Búkolla 30. apríl - 6. maí - 24. árg. 17. tbl. 2020
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
Þjónustumiðstöð Rangárþings ytra auglýsir!
Sumarstörf 2020 Þjónustumiðstöð Rangárþings ytra auglýsir eftir ungmennum í sumarvinnu fyrir sumarið 2020. Í ljósi aðstæðna og fyrirsjáanlegs atvinnuleysis meðal ungs fólks hefur sveitastjórn ákveðið að hækka hámarksaldur þeirra sem verða ráðin í sumarvinnu hjá sveitarfélaginu. Gert er ráð fyrir að ungmenni fædd 2002 til 2007 geti sótt vinnu. Gera má ráð fyrir að störf ungmenna þetta sumarið verði með fjölbreyttara sniði en áður, t.d við skapandi greinar. Unglingar fæddir á árunum 2002 -2007 sem áhuga hafa á því að starfa við vinnuskólann á komandi sumri, eru hvattir til að senda inn umsóknir sínar en ráðgert er að starfsemi vinnuskólans hefjist þriðjudaginn 2. júní 2020 kl. 8.00. Ráðgert er að ganga frá ráðningum sumarfólks eigi síðar en 27. maí 2020. Nánari upplýsingar veitir Heimir, sími: 780-8833, netfang: heimir@ ry.is. Hægt er að sækja um á vefsíðu Rangárþings ytra (www.ry.is) eða í afgreiðslunni að Suðurlandsvegi 1. Umsóknarfrestur til 19. maí n.k.
Skemmtileg sumarvinna með góðu fólki☺ f.h. Þjónustumiðstöðvar R.y. Heimir Hafsteinsson, umsjónarmaður fasteigna hjá Rangárþingi ytra.