Búkolla 10. - 16. maí · 22. árg. 18. tbl. 2018
Prentsmiðjan Svartlist svartlist@simnet.is Sími 487 5551
9. maí – Opnun kosningaskrifstofu D-lista sjálfstæðismanna og annarra lýðræðissinna. Við kynnum stefnuskránna okkar í Hvolnum klukkan 19:00. Að því tilefni ætlum við að bjóða til saltfiskveislu. Í kjölfarið opnum við kosningarskrifstofuna okkar að Austurvegi 15. Valborg Ólafsdóttir mun spila fyrir okkur ljúfa tóna og við bjóðum upp á léttar veitingar. 10. maí – Fjölskyldudagur Við ætlum að efna til fjölskyldudags í Hjarðartúni klukkan 15:00. Við viljum hvetja sem flesta til þess að koma á hjólunum sínum því hann Baldur ætlar að hjóla með okkur öllum hring um svæðið. Við ætlum að grilla pylsur í boði SS og njóta dagsins saman. Einnig verður í boði að teyma undir börnunum. 11. maí – Skemmtikvöld í Midgard Feðginin Magnús Þór Sigmundsson og Þórunn Antonía Magnúsdóttir ætla að leika nokkur lög fyrir okkur frá klukkan 20:00. Við munum bjóða upp á léttar veitingar um kvöldið en að sjálfsögðu er svo barinn opinn eithvað frameftir kvöldi. Eldhúsið er einnig opið til 21:00 og því tilvalið að mæta aðeins fyrr og fá sér góðan kvöldmat. 13. maí – Vöfflukaffi í Gamla fjósinu á Mæðradaginn. Tilvalið er að allar mömmur fái vöfflur á mæðradaginn! Því ætlum við að bjóða ykkur í Gamla fjósið klukkan 15:00 þar sem við getum rætt saman um málefni sveitarfélagsins og gætt okkur á veitingum. Kosningaskrifstofan verður opin alla virka daga frá 17:00-19:00, 14:00-16:00 á laugardögum og lokað á sunnudögum. Við hlökkum til að taka á móti ykkur, njóta stundarinnar saman og ræða þau málefni sem brenna hvað mest á ykkur.