Búkolla 21. - 27. apríl · 26. árg. 16. tbl. 2022
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
Á-listinn þakkar íbúum fyrir gott viðmót og áhuga fyrir starfi listans vegna undirbúnings kosninganna 14. maí næstkomandi. Hér eru nokkur af áherslumálum Á-listans:
Standa vörð um öflugt og framúrskarandi skólastarf og tryggja að hver nemandi fái þjónustu og kennslu miðað við sínar þarfir. Koma á frístundastyrkjum fyrir börn og unglinga svo að öll börn í sveitarfélaginu njóti jafnræðis óháð efnahag og búsetu. Auglýsa starf sveitarstjóra laust til umsóknar. Endurskoða áætlun um vegamál með það að markmiði að gera betur. Lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara þar sem heimili og þjónusta eru tengd saman. Hlúa að starfsfólki sveitarfélagsins til að tryggja árangur og vellíðan í starfi. Koma á fót hverfaráðum til að tryggja sem best áhrif íbúa í sínu nærumhverfi. Grenndargámastöðvar í dreifbýlinu og almenn endurskoðun sorphirðuþjónustu. Gangbrautarmerkingar inn á umferðarskipulag til að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Vinna með ferðaþjónustuaðilum með það að markmiði að gera sveitarfélagið að eftirsóttum áfangastað. Tryggja að aðgengismál fatlaðs fólks séu eins og best verður á kosið. Opna bókhald sveitarfélagsins og beinar útsendingar frá sveitarstjórnarfundum. Vinna umhverfis- og auðlindastefnu fyrir sveitarfélagið með það að markmiði að hámarka verðmæti eigna sveitarfélagsins og bæta lífsgæði íbúa. Tryggja að alltaf sé til staðar nægt framboð af byggingalóðum. Sjá til þess að loksins verði sett upp þvottaaðstaða fyrir bíla og önnur farartæki.
Fylgist með fréttum af áherslumálum listans og kynningu á frambjóðendum á Facebook-síðu okkar Á-listinn Rangárþing ytra