Búkolla
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
14. - 20. apríl · 26. árg. 15. tbl. 2022
Nú er kominn tími á að kreista
saman fjölskylduna og hafa gaman!
Sumarhátíð
Við skulum hefja sumarið með skemmtilegum degi á sparkvellinum á Hellu, Sumardaginn fyrsta frá kl 11 til 15!
Boltarnir frá @Loftbolti.is og hoppukastali verða í boði fyrirtækjanna hér á Hellunni fyrir ykkur kæru sveitungar.... Svo ætla vagnarnir „okkar" @LAVA 47 og @HEKLA STREETFOOD að vera með eldheitt tilboð og Villt og Alið verða með eitthvað gómsætt á grillinu þannig að geymið hádegisverðinn. Svo verður 10. bekkur með sælgætis- og nammisölu Á meðan að byrgðir endast verður sumarglaðningur sem fylgir tilboðunum Síðast ekki síst viljum við þakka RY og þeim fyrirtækjum sem styrktu okkur og gerðu þetta að veruleika
Auglýsendur ath. Auglýsingar í Búkollu fyrir 16. viku þurfa að berast fyrir 19. apríl.
Búkollu er dreift frítt inn á ÖLL heimili í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu