Skip to main content

Búkolla 7.-13. apríl 2022

Page 1

Búkolla 7. - 13. apríl · 26. árg. 14. tbl. 2022

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16

Styrktartónleikar á Laugalandi í Holtum verða haldnir 7. apríl nk. kl. 20:00 Karlakórinn ásamt Kvennakórnum Ljósbrá standa fyrir þessum viðburði. Tónleikarnir eru til styrktar heiðurshjónunum Stínu Pálu og Þresti frá Varghóli. Fram koma Karlakór Rangæinga undir stjórn Guðjóns Halldórs Óskarssonar og Kvennakórinn Ljósbrá undir stjórn Ingibjargar Erlingsdóttur. Undirleikur verður í höndum Glódísar Margrétar Guðmundsdóttur. Miðaverð er krónur 3000,- sem rennur óskipt til þeirra heiðurshjóna. Frítt fyrir börn en að auki er tekið við frjálsum framlögum. Posi verður á staðnum. Karlakór Rangæinga og Kvennakórinn Ljósbrá

Auglýsendur ath.

Auglýsingar í Búkollu fyrir næstu viku (15 viku) þurfa að berast fyrir mánud. 11. apríl. Fyrir Búkollu í 16. viku þurfa auglýsingar að vera komnar fyrir 19. apríl.


17. júní hátíðarhöld á Hvolsvelli 2022 Menningarnefnd Rangárþings eystra leitar að áhugasömum aðilum til að sjá um og skipuleggja hátíðarhöld þann 17. júní 2022 á Hvolsvelli. Til greina kemur að sækja um hátíðina í heild eða hluta hennar. Hátíðarhöld á þessum degi hafa verið í senn hefðbundin sem og fjölbreytt og skemmtileg og er nauðsynlegt að umsækjendur hafi það að leiðarljósi að dagskráin á að höfða til allra aldurshópa. Nánari upplýsingar gefur markaðs- og kynningarfulltrúi í tölvupósti arnylara@hvolsvollur.is eða í síma 488 4200. Umsóknum skal skila í tölvupósti á netfangið arnylara@hvolsvollur.is fyrir 19. apríl nk.


Skrifstofa Viðskiptaþjónustu Suðurlands og TM á Hvolsvelli verður lokuð frá og með 13. apríl opnum aftur mánudaginn 25. apríl. Gústi og Gunnhildur

Frá kjörstjórn Ásahrepps Framboðsfrestur, vegna sveitarstjórnarkosninga í Ásahreppi sem fram fara laugardaginn 14. maí 2022, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 8. apríl 2022. Kjörstjórn Ásahrepps tekur á móti framboðslistum í félagsheimilinu Ásgarði, milli kl. 11:00 og 12:00 þann dag. Komi til óbundinna kosninga geta þeir sem setið hafa í sveitarstjórn eitt kjörtímabil eða lengur skorast undan kjöri. Þeir sem uppfylla skilyrði um slíkt verða að tilkynna það kjörstjórn fyrir lok framboðsfrests. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar til framboða fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2022 má finna á www.kosning.is Kjörstjórn Ásahrepps Kristín Ósk Ómarsdóttir, formaður Hulda Brynjólfsdóttir Benedikt Elvar Jónsson


Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra

Aðalskipulag Rangárþings eystra 2020-2032 Heildarendurskoðun Sveitarstjórn Rangárþings samþykkti á fundi sínum þann 20.12.2021 að auglýsa tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Rangárþings eystra skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er auglýst ásamt forsenduhefti og umhverfismatsskýrslu sbr. 15. gr. laga nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Tillagan inniheldur greinargerð, umhverfismatsskýrslu, sveitarfélags- og þéttbýlisuppdrætti fyrir Hvolsvöll og Ytri-Skóga ásamt séruppdráttum. Í aðalskipulagi er sett fram stefna sveitarstjórnar um þróun sveitarfélagsins varðandi landnotkun, byggðarþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál. Tillögunni er ætlað að leysa af hólmi gildandi aðalskipulag Rangárþings eystra 2012-2024. Aðalskipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofu Rangárþings eystra að Austurvegi 4 á Hvolsvelli og hjá Skipulagsstofnun Borgartúni 7b, 105 Reykjavík frá og með 6. apríl 2022. Einnig má nálgast öll gögn tillögunnar rafrænt á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is. Tillagan er auglýst frá og með 6. apríl með athugasemdafresti til 18. maí 2022. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu berast skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa að Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur eða á netfangið bygg@hvolsvollur.is. F.h. Rangárþings eystra Guðmundur Úlfar Gíslason Skipulags- og byggingarfulltrúi


Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýstar eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra. Skálabrekka – Deiliskipulagstillaga Um er að ræða 3,74 ha spildu þar sem m.a. verður heimilt að byggja tveggja hæða íbúðarhús, með hámarkshæð allt að 8,5m frá botnplötu. Hólmaflöt – Deiliskipulagstillaga Um er að ræða nýtt deiliskipulag á lóðinni Hólmaflöt. Á byggingarreit B1 er gert ráð fyrir íbúðarhúsi, allt að 140 m2 og á byggingarreit B2 er gert ráð fyrir tveimur 30 m2 gestahúsum. Ofangreindar deiliskipulagstillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 6. apríl nk. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 18. maí nk. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli. F.h. Rangárþings eystra Guðmundur Úlfar Gíslason Skipulags- og byggingarfulltrúi

Skoðið Búkollu á hvolsvollur.is

eða ry.is á þriðjudögum


Loksins - Loksins PÁSKABINGÓ

Kvenfélagsins Einingar verður þriðjudaginn 12. apríl kl. 17:00 m til u k k í Hvoli Hvolsvelli. Hlö r! ykku Að venju verða gómsæt páskaegg í vinning! á j s að

Munum engin posi!

Kvenfélagið Eining Hvolhreppi

Rangárþing ytra Fyrir okkur öll!

Síðasti skiladagur lista til framboðs í sveitarstjórnarkosningum 2022. Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Rangárþingi ytra, sem fram fara laugardaginn 14. maí 2022, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 8. apríl 2022. Þann sama dag tekur kjörstjórn sveitarfélagsins á móti framboðslistum í Heklu, fundarsal sveitarfélagsins að Suðurlandsvegi 1-3, Hellu, milli kl. 11:00-12:00. Vakin er athygli á að ný kosningalög nr. 112/2021 tóku gildi 1. janúar 2022. Allar nánari leiðbeiningar til framboða er að finna á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands kosning.is Kjörstjórn Rangárþings ytra. Helga Hjaltadóttir, formaður Birkir Ármannsson Heiðrún Ólafsdóttir


Síðasti skiladagur lista til framboðs í sveitarstjórnarkosningum 2022 Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Rangárþingi eystra, sem fram fara laugardaginn 14. maí 2022, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 8. apríl 2022. Þann sama dag tekur yfirkjörstjórn sveitarfélagsins á móti framboðslistum á skrifstofu sveitarfélagsins að Austurvegi 4, Hvolsvelli, milli kl. 11:00-12:00. Vekjum athygli á að ný kosningalög nr. 112/2021 tóku gildi 1. janúar 2022. Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar til framboða er að finna á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands kosning.is Yfirkjörstjórn Rangárþings eystra. Ágúst Kristjánsson, formaður Gróa Hermannsdóttir Pétur Halldórsson


Búkollu er dreift frítt inn á ÖLL heimili í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu


Rangárþing eystra auglýsir eftirfarandi störf fyrir sumarið 2022 Verk- og flokkstjórar vinnuskóla og starfsmenn í Áhaldahús við Ormsvöll. Verkstjóri vinnuskólans heyrir undir garðyrkjustjóra. Starfssvið verkstjóra er að hafa umsjón með vinnuskóla þ.e. leiðbeinir flokkstjórum, sér um skil á tímaskráningum til launafulltrúa og skilar greinargerð um störf vinnuskólans að sumri loknu. Hæfniskröfur, að búa yfir stjórnunarhæfileikum, samskipta- og skipulagsfærni. Vera góð fyrirmynd, reyklaus og hafa reynslu af vinnu með unglingum. Æskilegt að hafa ökuréttindi samkvæmt D1- akstur bifreiðar með allt að 16 manns auk eftirvagns. Flokkstjóri vinnuskólans starfar undir verkstjóra vinnuskólans. Hann leiðbeinir og stjórnar vinnuskólahópi. Ber ábyrgð á tímaskýrslum og skilum þeirra til verkstjóra. Sér um góða liðsheild og kennir rétt vinnubrögð. Er uppbyggilegur, reyklaus og góð fyrirmynd starfsmanna sinna. Hæfniskröfur að búa yfir stjórnunarhæfileikum, samskipta- og skipulagsfærni og hafa ökuréttindi. Starfsmenn áhaldahúss heyra ýmist undir verkstjóra áhaldahúss eða garðyrkjustjóra, fer eftir vinnuflokki starfsmanna. Starfssvið eru lóðir og umhverfi sveitarfélagsins. Takmarkaður fjöldi starfa er í boði. Hæfniskröfur, að búa yfir góðum samskiptahæfileikum, vinnusemi og stundvísi. Lágmarksaldur 17 ár, hafi ökuréttindi. Vinnuvélaréttindi er kostur. Umsóknarfrestur er til 8. apríl 2022. Umsóknareyðublað má finna hér: https://www.hvolsvollur.is/is/moya/formbuilder/index/index/umsokn-um-starf-iahaldahusi Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björk Benediktsdóttir, umhverfisstjóri, á netfanginu gudrunbjork@hvolsvollur.is


Helgihald í dymbilviku og um páska Pálmasunnudagur

Fermingarguðsþjónusta á Breiðabólstað kl. 11 Fermingarguðsþjónusta Voðmúlastaðakapellu kl. 13 Fermingarguðsþjónusta Krosskirkju kl. 14

Skírdagur

Fermingarguðsþjónusta Akurey kl. 11 Fermingarguðsþjónusta Stórólfshvolskirkju kl. 13

Hlíðarendakirkja á föstudaginn langa:

Helgistund kl. 11. Ég kveiki á kertum mínum. Orð Krists á krossinum lesin. Fermingarguðsþjónusta í Akureyjarkirkju 16. apríl kl. 11

Páskadagur

Stórólfshvolskirkja - Hátíðarguðsþjónusta kl. 10 Kórinn býður kirkjugestum í morgunkaffi að guðsþjónustu lokinni. Krosskirkja – hátíðarguðsþjónusta kl. 13.

Helgihald í Oddaprestakalli í dymbilviku og um páska Skírdagur

Oddakirkja Síðdegismessa kl. 17:00

Föstudagurinn langi:

Helgistund í Keldnakirkju kl. 14:00. Valdir Passíusálmar og píslarsagan lesin saman.

Páskadagur:

Árdegismessa í Þykkvabæjarkirkju kl. 08.00. Morgunkaffi í íþróttahúsinu að messu lokinni.

2. Páskadagur Helgistund á Lundi kl. 13:00 Fylgist með fréttum af starfi Oddaprestakalls á Facebooksíðum kirknanna í prestakallinu.

Sr. Elína


Rúðuskipti-rúðuviðgerðir

ásamt annarri þjónustu við bílinn þinn. Vinnum fyrir öll tryggingafélög og höfum mikinn metnað fyrir því sem við gerum í okkar starfi. Tímapantanir í síma 487-5995, email amglyngas5@gmail.com eða á FB."

AMG-Bílrúður ehf og Lyngás 5 ehf

Tek að mér alla málningavinnu, innan sem utan.

Fagleg og traust vinnubrögð. Er á svæðinu. Aron Örn sími: 6997893 aronorn87@gmail.com

Páskabingó foreldrafélags Grunnskólans á Hellu Verður haldið laugardaginn 9. apríl nk. frá kl. 11-13 í íþróttahúsinu á Hellu. Glæsilegir vinningar. Bingóspjaldið á 500 kr. Enginn posi. Hlökkum til að sjá sem flesta.

Stjórn foreldrafélags Grunnskólans á Hellu.


Gallerý pizza Sími: 487-8440

HEIMSENDINGAÞJÓNUSTA

á Hvolsvöll og Hellu (innanbæjar) ef pantað er fyrir kr. 5000 eða meira

Asískir réttir

Take aw

ay

Vorrúllur m/grjónum og sósu

kr. 2000

Sweet chilly kjúklingur m/grjónum og sósu

kr. 2000

Rækjur m/grjónum og sósu

kr. 2000

Sesam kjúklingur m/grjónum og sósu

kr. 2000

Tilboð 4 hamborgarar, stór sk. franskar og 2 l gos

kr. 5990

16" pítza á matseðli 12" hvítlauksbrauð 2 l gos kr. 5500

Tilboðið gildir út apríl


Við setjum viðskiptavininn ávallt í fyrsta sæti Sumarstarf á Hvolsvelli Við leitum að áreiðanlegum einstaklingi með ríka þjónustulund til sumarstarfa í útibúi Landsbankans á Hvolsvelli. Nánari upplýsingar

atvinna.landsbankinn.is


Stöð 2

Sjónvarpið

SUNNUDAGUR 10. apríl 07:15 KrakkaRÚV 10:00 Reikningur 10:15 Ferðastiklur 11:00 Silfrið 12:10 Okkar á milli 12:40 Matur með Kiru 13:10 Húsið okkar á Sikiley 13:40 Jan Johansson - lítil mynd um mikinn listamann 14:10 Jethro Tull: Thick as a Brick 16:05 Undarleg ósköp að vera kona 17:05 Ísþjóðin með Ragnhildi Steinunni 17:30 Íþróttagreinin mín - Sitjandi skíði 18:00 KrakkaRÚV - 18:01 Frímó 18:25 Menningarvikan 19:00 Fréttir 19:25 Íþróttir 19:35 Veður 19:45 Landinn 20:15 Hringfarinn - einn á hjóli í Afríku 21:10 Eldflaugasumar 22:05 Gómorra 22:55Yuli - Sagan af Carlos Acosta 08:00 Barnaefni 11:00 Are You Afraid of the Dark? (1:3) 11:45 Top 20 Funniest (6:18) 12:25 Nágrannar (8724:190) 14:15 Simpson-fjölskyldan (13:22) 14:40 Family Law (4:10) 15:20 Inside the Ritz Hotel London (1:2) 16:10 Suður-ameríski draumurinn (1:8) 16:45 Suður-ameríski draumurinn (2:8) 17:25 Okkar eigið Ísland (1:8) 17:40 60 Minutes (28:52) 18:26 Veður (100:365) 18:30 Fréttir Stöðvar 2 (100:365) 18:45 Sportpakkinn (98:365) 18:55 Ísland í dag (70:265) 19:10 Hvar er best að búa? (6:6) 19:50 The Heart Guy (2:10) 20:35 Shetland (3:6) 21:35 Grantchester (2:8) 22:25 Leonardo (8:8) 23:20 The Drowning (1:4 - Tilfinningaþr. þátta röð frá 2021. Jodie hefur verið að byggja upp líf sitt eftir að sonur hennar hvarf fyrir átta árum. Þar til allt í einu að hún sér strák sem hún er fullviss um að sé Daniel, sonur hennar. 00:05 Shameless (2:12) 01:00 Tell Me Your Secrets (6:10) 01:50 The Blacklist (18:22) 02:30 Top 20 Funniest (6:18) 03:15 Simpson-fjölskyldan (13:22) 03:35 Family Law (4:10) 04:20 Inside the Ritz Hotel London (1:2) 06:00 Tónlist 08:00 Geimhundar - ísl. tal 09:25 Gamba - ísl. tal 11:30 Dr. Phil 14:30 PEN15 15:00 The Block 16:35 Spin City 17:00 The King of Queens 17:20 Everybody Loves Raymond 17:45 Sveppi í Afríku 18:40 Young Rock 19:10 Heil og sæl?(Heil og sæl? 3) 19:40 MakeUp 20:10 This Is Us 21:00 Law and Order: Special Victims Unit 21:50 Billions 22:50 The Hobbit: An Unexpected Journey 00:55 The Silence of the Lambs Stórmynd frá 1991 02:50 Becky - 04:20 Tónlist

TAXI

Rangárþingi Sími 862 1864 Jón Pálsson 6 manna bíll

FASTEIGNIR TIL SÖLU

Vegna góðrar sölu að undanförnu vantar okkur allar tegundir eigna á söluskrá.

Sanngjörn söluþóknun Gjaldfrjáls þjónusta fyrir kaupendur engin umsýslugjöld. Nánari upplýsingar og myndir er að finna Sími: 487-5028 á heimasíðu okkar Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali www.fannberg.is Ágúst Kristjánsson, lögg. fasteignasali

AA - Opinn fundur

á sunnudögum kl. 20 í Safnaðarheimili Oddakirkju Dynskálum 8 Hellu Allir velkomnir

AA fundur á föstudögum kl 20 í Safnaðarheimili Oddakirkju Dynskálum 8 Hellu Allir velkomnir

Búkolla auglýsingaskrá kemur út einu sinni í viku. Dreift á miðvikud. og fimmtud. inn á öll heimili og fyrirtæki í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Útgefandi: Prentsmiðjan Svartlist

Auglýsingasími 487 5551 - svartlist@simnet.is


Spennandi starf í Húsasmiðjunni á Hvolsvelli. Vilt þú vera með okkur í liði? Við leitum að jákvæðum og kraftmiklum einstaklingum til þess að bætast í hóp öflugra starfsmanna verslunarinnar í sumar. Um er að ræða sumarstörf í 100% starfshlutfall, bæði í verslun og timbursölu. Viðkomandi þarf að hafa jákvætt hugarfar og hafa vilja og metnað til þess að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina.

Helstu verkefni

• Sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini • Almenn umhirða verslunar • Önnur tilfallandi verslunarstörf

Hæfniskröfur • • • • •

Rík þjónustulund Jákvætt hugarfar og samskiptahæfni Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð Sterk öryggisvitund Almenn tölvukunnátta

Nánari upplýsingar um störfin gefur Finnbogi Óskar Ómarsson rekstrarstjóri á finnbogi@husa.is. Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2022. Sótt er um á ráðningarvef Húsasmiðjunnar www.husa.is/laus-storf Skannaðu QR kóðann og skoðaðu starfið

Gildin okkar eru: Áreiðanleiki Þjónustulund Þekking

Við hvetjum alla áhugasama til þess að sækja um, óháð kyni Húsasmiðjan er líflegur vinnustaður með góðan starfsanda og sterka liðsheild. Húsasmiðjan leggur áherslu á að nýta til hins ýtrasta hæfni, frumkvæði og þekkingu samhents hóps rúmlega 500 starfsmanna sem starfa hjá fyrirtækinu. Lögð er rík áhersla á símenntun og fræðslu og að starfsmenn eigi þess kost að eflast og þróast í starfi.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook