Búkolla 31. mars - 6. apríl 2022

Page 1

Búkolla 31. mars - 6. apríl · 26. árg. 13. tbl. 2022

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16

Myndasýningarkvöld – litfögur hross Hrossaræktarsamtök Suðurlands auglýsa. Mánudaginn 4. apríl 2022 verður haldið myndasýningarkvöld í Rangárhöllinni kl. 20,00. Þar mun Páll Imsland sýna fjölda mynda af íslenska hestinum, litum hans, litaafbrigðum og litmynstrum og útskýra samhengi fyrirbæranna. Lítið verður um erfðaformúlur og umfjöllun um fræðilegar flækjur. Um er að ræða skemmtisýningu frekar en fræðilegan fyrirlestur og þess vænst að áhorfendur geti átt notalega og ánægjulega kvöldstund saman og glaðst yfir fallegum hrossum. Áhersla verður lögð á að sýna sem best það fjölbreytta úrval lita, litbrigða og litmynstra sem finnast í íslenska hrossastofninum og að fjalla um það á léttu og auðskyldu máli hvernig á fjölbreyttninni stendur. Léttar veitingar. Ókeypis aðgangur. Allir velkomnir. H.S.

Búkollu er dreift frítt inn á ÖLL heimili í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.