Búkolla 1. - 7 apríl · 25. árg. 13. tbl. 2021
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
Almennt reiðnámskeið fyrir Alla þá sem vilja Hestamannafélagið Geysir ætlar að bjóða uppá úrval af reiðnámskeiðum núna eftir páska fyrir alla þá sem hafa áhuga á að bæta sína hestamennsku. Allt miðast við sóttvarnir á hverjum tíma. Öll skráning fer fram á sportfengur.com og lýkur laugardagskvöldið 3. apríl. Almennt reiðnámskeið verður haldið bæði á Hvolsvelli/Skeiðvangi og Hellu/Rangárhöllinni. Þar verður kennt í tveggja manna hópum í 45 mín. hver hópur. Einstaklingsmiðuð reiðkennsla sem hentar hverjum og einum. Boðið verður uppá 6 vikna námskeið 5. apríl - 15. maí verð 25.000 kr. Kennarar verða: Hvolsvelli/Skeiðvangi - kennt miðvikudögum (hámark 10) Alma Gulla Matthíasdóttir menntaður reiðkennari frá Hólaskóla. Hellu/Rangárhöll - kennt mánudögum (hámark 10) Klara Sveinbjörnsdóttir menntaður reiðkennari frá Hólaskóla
Hestakonur !!!
Reiðnámskeið með Ingu Maríu, sem er með áralanga reynslu með kvennahópa ásamt almennri reiðkennslu hérlendis og erlendis, svo og kennslu við Háskólann á Hólum. Lögð verður áhersla á léttleika og tölt og gleði manns og hests í fyrirrúmi. Kennt verður einu sinni í viku á miðvikudögum frá kl 18:00 - 21:00 í 6 vikur, hópakennsla, verð 20.000 kr. Byrjað verður 7. apríl - 12. maí. Stjórnin