Búkolla 19. - 25. mars - 24. árg. 11. tbl. 2020
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
Skólaþjónustan Skóli er hjartað í samfélaginu og skólastarf snertir öll heimili. Innan hvers samfélags er lærdómssamfélag kennara, nemenda og foreldra sem ber hitann og þungann af því að hver nemandi nái fullum þroska og verði sem best búinn undir líf og störf í lýðræðisþjóðfélagi. Skólaþjónustan tilheyrir lærdómssamfélagi leik- og grunnskóla í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Starfsemi hennar tekur annars vegar til stuðnings við nemendur og foreldra þeirra og hins vegar skóla og starfsfólk þess. Veitt er aðstoð og ráðgjöf um kennslu og umönnun nemenda, nám nemenda með sérþarfir og um starfshætti skóla, nýbreytni- og þróunarstörf og starfsumhverfi. Störf á vegum skólaþjónustunnar eru fjölbreytt og starfsemin tekur mið af ólíkum nemendum og skólum. Samstarf er við sérfræðinga annarra stofnana, s.s. félags- og heilbrigðisþjónustu og menntastofn anir. Innan skólaþjónustunnar starfar samhent, jákvætt og styðjandi fólk. Nú er tækifæri fyrir þau sem uppfylla kröfur um menntun og hæfni skv. auglýsingu, að sækja um laust starf kennsluráðgjafa hjá skólaþjónustunni. Sjá nánar á heimasíðu: skolamal@skolamal.is Ég hvet ykkur öll til að hnippa í fólk sem vill verða hluti af lærdómssamfélagi okkar. Hjarta okkar. Þórunn Jóna Hauksdóttir, forstöðumaður Skólaþjónustu Rang.- og V.-Skaft.