Búkolla 5. - 11. nóvember 2020

Page 1

Búkolla 5. - 11. nóvember · 24. árg. 44. tbl. 2020

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16

ÚTBOÐ - GATNAGERÐ Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI Skaftárhreppur auglýsir eftir tilboðum í gatnagerð á Læknisreit, Kirkjubæjarklaustri. Um er að ræða þrjár botnlangagötur alls um 300m að lengd. Skaftárhreppur áskilur sér rétt til að skipta verkinu upp í allt að 3. áfanga. Fyrsti áfangi skal byggingarhæfur eigi síðar en 1. maí 2021. Útboðsgögn má nálgast á netfanginu bygg@klaustur.is frá og með föstudegi 6. nóvember nk. kl. 10.00. Undirrituðum tilboðum skal skila á netfangið bygg@klaustur.is fyrir kl. 13.00 miðvikudaginn 25. nóvember nk. Tilboð verða opnuð sama dag, kl 13.15 af undirrituðum og tveimur vottum. Frekari upplýsingar veitir skipulags- og byggingarfulltrúi, bygg@klaustur.is, sími: 487-4840.

Alifuglabúið Rangárbú, Jarlsstöðum í Landsveit óskar eftir að ráða starfsmann.

Í starfinu felst m.a. daglegt eftirlit með fugli, þrif og útmokstur úr húsum, og einfalt viðhald. Leitað er að öflugum og úrræðagóðum einstaklingi sem getur hafið störf sem fyrst. Umsækjandi skal hafa lokið prófi í búfræði frá landbúnaðarskóla, lokið námskeiði í alifuglahaldi, starfað við umhirðu alifugla sem nemur tveimur árum í fullu starfi eða geta sýnt fram á sambærilega þekkingu sem viðurkennd er af Matvælastofnun. Umsóknir sendist á thor@heitgolf.is. Upplýsingar veittar í síma 824-6600 (Þór).


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Búkolla 5. - 11. nóvember 2020 by Rangárthing ytra - Issuu