Búkolla 24. - 30. ágúst · 21. árg. 33. tbl. 2017
VARAHLUTAVERSLUN Björns Jóhannssonar Sími 487 5995
ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Sumar í Odda Jazzmúsík í Oddakirkju...
Á fimmtudaginn nk. kl 20:00 í tónleikaröð Sumars í Odda koma fram Ólafur Stolzenwald á Kontrabassa og Óskar Guðjónsson Saxófón. Báðir voru í Fíh skólanum á sínum tíma og hafa spilað með helstu jazzleikurum landsins og haldið úti hljómsveitum. Óskar ma. meðlimur í ADHD og spilaði með Mezzóforte á sínum tíma. Renna í nokkur uppáhaldslög sín , án efa mjög spennandi prógram.
Aðgangseyrir er 3000,- , 2000,- fyrir eldri borgara og öryrkja, frítt fyrir börn yngri en 16 ára. ATH: Enginn posi á staðnum. Eftir tónleika er svo boðið upp á kaffi og meðlæti að hætti kirkjukórsfélaga,
Verið öll hjartanlega velkomin
Kirkjukór Odda og Þykkvabæjarkirkna