Búkolla 3. - 9. ágúst · 21. árg. 30. tbl. 2017
VARAHLUTAVERSLUN Björns Jóhannssonar Sími 487 5995
ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Gunnarsgerði, Hvolsvelli Lóðir til úthlutunar Rangárþing eystra auglýsir hér með eftirfarandi lóðir í Gunnarsgerði, lausar til úthlutunar. Um er að ræða raðhúsalóðirnar 1a-1d, 3a-3c og 4a-4c, parhúsalóðirnar 5a-5b, 6a6b og 7a-7b, einbýlishúsalóðirnar 8, 9 og 10. Umsóknareyðublað, nánari upplýsingar um lóðirnar og skipulagsskilmála má nálgast á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Ormsvelli 1, Hvolsvelli, bygg@hvolsvollur.is Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Rangárþingi eystra. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2017. Umsóknum skal skilað á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa eða á netfangið bygg@hvolsvollur.is. F.h. Rangárþings eystra Anton Kári Halldórsson Skipulags- og byggingarfulltrúi
Guðsþjónusta í bænhúsinu á Núpsstað
Guðsþjónusta verður um verslunarmannahelgina í bænhúsinu á Núpsstað í Skaftárhreppi sunnudaginn 6. ágúst nk. og hefst kl. 14:00.
Séra Ingólfur Hartvigsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kristján Gissurarson frá Eiðum leikur á orgel. Félagar úr kórum prestakallsins leiða söng. Á eftir guðsþjónustu verður boðið upp á kirkjukaffi. Það er árviss viðburður um hverja verslunarmannahelgi að haldin sé guðsþjónusta í bænhúsinu á Núpsstað. Það er sérstök upplifun að taka þátt í helgihaldi á þessum hrífandi stað. Hvet ég bæði heimamenn og ferðafólk að koma til messu og njóta þess að eiga góða stund á fallegum stað.
Ingólfur Hartvigsson, sóknarprestur.