Búkolla 5. - 11. janúar · 22. árg. 1. tbl. 2018
VARAHLUTAVERSLUN Björns Jóhannssonar Sími 487 5995
ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Tilkynning frá Sorpstöð Rangárvallasýslu Sorpstöð Rangárvallasýslu hefur tekið við sorphirðu heimila í Rangárvallasýslu og verður samhliða því boðið uppá aukna flokkun frá heimilum.
Plastumbúðir
Búið er að fjárfesta í nýjum sorpbíl sem aðskilur plast, pappa og almennt heimilissorp. Innan tíðar verður nýrri tunnu dreift á öll heimili í Rangárvallasýslu og er hún ætluð undir plast. Svarta tunnan er fyrir almennt heimilissorp Bláa tunnan er fyrir pappír og pappa græna tunnan er fyrir plast Almennt heimilissorp verður tekið á tveggja vikna fresti en plast og pappír einu sinni í mánuði. Sorphirðudagatöl eru aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna. www.asahreppur.is www.ry.is www.hvolsvollur.is
· Plastpokar · Plastbrúsar s.s. hreinsiefni · Plastdósir s.s. skyr.is, smurostur · Plastfilma glær og lituð · Plastumbúðir s.s. utan af kexi og sælgæti · Plastbakkar · Plastflöskur s.s. sjampó og sósur · Frauðplastumbúðir · Pokar utan af snakki