Skip to main content

Jöfn og Frjáls 2023

Page 1


OG FRJÁLS JÖFN

HAUST2023

ÁVARP FORSETA

Kæru félagar, það eru spennandi tímar fyrir Ungt jafnaðarfólk um land allt. Vöxturinn og krafturinn í hreyfingunni er áþreifanlegur og spennandi verkefni eru framundan fyrir þau sem veljast til forystu í okkar hreyfingu. Það er þó ekki einungis þeirra að halda starfinu gangandi, það fellur í hlut alls ungs jafnaðarfólks að tryggja að rödd UJ nái sem hæst. Við höfum séð á undanförnum árum hversu mikilvægt það er að ungt fólk taki þátt í samfélagsumræðu,að ungt fólk taki sér pláss á pólitískum vettvangi, að ungt fólk standi með sínum gildum og séu leiðandi í að vinna að betri heim fyrir okkur öll. Það er því mitt ákall til ykkar að halda áfram á þessari braut og höldum jafnaðarstefnunni á lofti. tryggjum að í næstu kosningum gefum við fólki tækifæri á að kjósa betri framtíð með jafnaðarstefnuna að leiðarljósi.

Kæru félagar, ég hef aldrei verið mikið fyrir klisjur en þó langar mig að ítreka eitt sem sagt hefur verið ótal sinnum. Ungt fólk er ekki bara framtíðin, við erum hérna núna og það eru tækifærin líka. hreyfing jafnaðarmanna er í stórsókn og við verðum að tryggja að rödd ungs fólks haldist sterk innan hennar. Við þurfum að halda áfram að láta til okkar taka, halda áfram að taka það pláss sem við höfum unnið okkur fyrir og tryggja að þessi orð séu ekki bara klisja. Ungt jafnaðarfólk þarf að mæta til leiks og tryggja að ákvarðanir um okkar framtíð séu ekki teknar án okkar aðkomu. Verum tilbúin að taka þá slagi sem þarf að taka og látum í okkur heyra þegar þannig ber undir, þá eru okkur allir vegir færir. Með jafnaðarkveðju,

Arnór Heiðar Benónýsson Forseti Ungs jafnaðarfólks 2022-23

MIG LANGAR AÐ VERÐA... 1.

A. Læknir

B. Blaðamaður

C. Arkitekt

D. Flugfreyja

2 .MOTTÓIÐ MITT ER:

A. BÆTUM BORGINA

B. HVAR ER GUÐMUNDUR?

C. KJÓSTU MEÐ HJARTANU

D. MINN TÍMI MUN KOMA

3. ÉG REPPA...

A. 101 RVK B. LAUGARDALINN

C. AK CITY D. VERZLÓ

4. UPPÁHALDS ÞÁTTUR?

A. THE WIRE

B. THE IDOL

C. LANDINN

D. BORGEN

5. UPPÁHALDS KOKTEILL?

A. STRAWBERRY DAG-QUIRI

B. LONG ISLAND ICE TEA

C. BRENNIVÍN

D. IRISH COFFEE

6. UPPÁHALDS RÍKISSTJÓRN?

A. BORGARSTJÓRNIN

B. VIÐREISNARSTJÓRNIN

C. STJÓRN HINNA VINNANDI STÉTTA

D. NORRÆNA VELFERÐASTJÓRNIN

7. SHOUTOUT Á…

A. BORGARLÍNU

B. UNGT JAFNAÐARFÓLK

C. ESB

D. VERKAMANNABÚSTAÐI

NNAHÓJ:B LLÁP TSELF :C IGOL SRANIE TSELF :D ANNAHÓJ GIS

:A RUGAD .B

HEITT

Borgarlínan

KALT VERÐBÓLGAN

HVALVEIÐAR

UNGLINGURINN KRISTRÚN FROSTA

VIÐTAL TÓK

Hvaða menntaskóla varstu í?

MR Varstu virk í félagslífinu?

Ekki svo, var virkari í grunnskóla, m.a. formaður nemendafélagsins í Hvassó. Ég átti kanadískan kærasta á öðru og

þriðja ári í menntaskóla og var mikið á flakki á þeim tíma.

Sumarstörf á menntaskólaárunum?

Vann í 11-11 búðinni á Grensásvegi með skóla nokkur

sumur í grunn- og menntaskóla. Svo vann ég eitt sumar

sem þjónn á frönskum veitingastað í Valencia á Spáni og annað sumar sem þjónn í Toronto, Kanada. Sumarið eftir útskrift vann ég í Landsbankanum.

Varstu pólitísk á þessum árum?

Ég var ekki virk í stjórnmálaflokk en hafði mjög sterkar

skoðanir á þjóðmálum. Kaus að sjálfsögðu í þeim kosningum sem ég hafði aldur til, og setti þá x við S!

Uppáhalds kennarinn þinn?

Kristín Jónsdóttir íslenskukennari, alveg frábær.

Hvort er betra fyrir framhaldsskóla, 3ja eða 4ja ára kerfi?

4 ára – fólk þarf meiri tíma á þessum árum. Það er búið að þjappa kennsluefninu alltof mikið saman og lítill tími fyrir félagslíf. Hefði frekar átt að skoða breytingar grunnskólamegin.

Ertu með skemmtilega sögu frá þessum árum?

Ég var í hljómsveit með þáverandi kærasta mínum í Toronto á þessum tíma, og við tókum upp plötu og vorum

með litla tónleika á földum og „trendy“ bar í Toronto.

Gengið var inn á staðinn í gegnum kínverskan veitingastað

og gegnum klósettganginn niður stigann að kjallara þar sem tónleikastaðurinn var!

Ertu með heilræði fyrir unga lesendur?

Ekki hafa áhyggjur þó þið vitið ekki hvað þið viljið vinna

við þegar þið eruð orðin stór. Ég er enn að finna út úr því sjálf.

Mynd frá umræddum tónleikum í Toronto

Aðalmálið er að sinna einhverju almennilega, einbeita sér að einhverju fagi og/eða verkefni og geta verið stoltur af árangri sínum.

Það skiptir máli upp á sjálfstraust að upplifa að maður hafi náð tökum á einhverju vegna þess að maður beitti sér –það getur jafnvel verið fyrir utan skóla.

HVAÐ ER JAFNAÐARSTEFNAN?

Samfylkingin – jafnaðarflokkur Íslands er stjórnmálaflokkur sem byggir á jafnaðarstefnu og á rætur sínar í verkalýðshreyfingunni, líkt og jafnaðarflokkar í öðrum löndum. Það var árið 2000 sem Samfylkingin var formlega stofnuð með samruna fjögurra flokka (Alþýðuflokks, Alþýðubandalags, Kvennalista og Þjóðvaka) en saga flokksins teygir sig aftur til stofnunar Alþýðuflokks og Alþýðusambands Íslands árið 1916. Jafnaðarfólk hafði áttað sig á því árið 2000 að sundrung í marga litla flokka skilaði litlum árangri. Til að sigra kosningar þyrfti samfylkingu.

Soffía Svanvhít Árnadóttir, forseti Hallveigar - UJ í Reykjavík

Samfylkingin hefur ekki átt sæti í ríkisstjórn í áratug en á síðastliðnum mánuðum hefur fylgi hennar vaxið hratt í könnunum. Því er tilefni til að

efna til umræðu um hugsjónir og grundvöll jafnaðarstefnunnar. Hver eru gildi jafnaðarstefnu og hvernig eru þau samfélög sem jafnaðarflokkar hafa mótað hvað mest?

GILDI JAFNAÐARSTEFNUNNAR

Grunngildi jafnaðarstefnu eru frelsi, jafnrétti og samstaða. Þetta eru klassísk gildi sem eiga uppruna sinn í uppreisn almennings gegn kúgunarvaldi konunga og yfirstéttar.

Frelsi er vald til að ráða eigin lífi og taka eigin ákvarðanir. Í augum jafnaðarfólks er frelsi ekki aðeins frelsi til athafna heldur ekki síður frelsi frá kúgun, fátækt og misrétti. Það er nefnilega fátt jafn frelsisskerðandi og að búa við slíkar aðstæður, því þá kemst fátt annað að en að lifa af.

Jafnaðarfólk lítur á það sem samfélagsverkefni að tryggja öllum raunverulegt frelsi og til þess þarf aðgerðir stjórnvalda, því ekki eru allir svo heppnir að fæðast inn í frelsi.

Jafnrétti og frelsi eru nátengd hugtök. Jafnrétti er jafn réttur allra til að stjórna eigin lífi og hafa áhrif á samfélagið. Til að allir geti notið frelsis verður að vera jafnrétti. Þannig er jafnrétti forsenda fyrir frelsi sem gildir fyrir alla. Jafnrétti þýðir ekki að allir þurfi að eiga jafn mikið eða lifa sams konar lífi, langt því frá. Jafnrétti kallar hins vegar á að allt fólk hafi tækifæri til að leita lífsins hamingju á sínum eigin forsendum. Til þess þarf réttláta skiptingu verðmæta í samfélaginu.

Jafnrétti er siðferðislega réttlátt en það er líka ábyrg efnahagsstjórn. Ójafnrétti býr til mörg vandamál sem samfélagið þarf síðar að mæta með kostnaðarsömum aðgerðum. Það er hagstæðara fyrir samfélagið að taka á fátækt snemma, frekar en þegar fátæktin hefur alið af sér allskyns vandamál fyrir einstaklinga og samfélag. Þar má nefna áföll, einangrun og ýmis heilsukvilla sem fátæktin getur valdið. Ef ekki er gripið inn í með opinberri aðstoð gengur fátækt oft í arf með þeim afleiðingum að fyrrnefnd vandamál margfaldast. Að halda fólki í fátækt kemur jafnframt í veg fyrir að hæfileikar fólks nýtist í þágu samfélagsins. Af þessum ástæðum er brýnt að tryggja jafnrétti í samfélaginu.

Samstaða er sameiginleg ábyrgð okkar á samfélaginu og afkomu hvers annars. Við sýnum samstöðu þegar við beitum okkur fyrir almannahag. Dæmi um samstöðu er að borga skatta sem renna í velferðakerfið til að bæta stöðu þeirra sem á þurfa að halda og styðja í leiðinni við jafnvægi og stöðugleika í samfélaginu.

JAFNAÐARSTEFNAN Í RAUNVERULEIKANUM

En hvernig líta jafnaðarsamfélög út í raunveruleikanum? Tökum hin

Norðurlöndin sem dæmi, þar sem jafnaðarflokkar hafa ráðið mestu um samfélagsgerðina. Sanngjarnt skattkerfi og sterkt velferðarkerfi eru þar einkennandi. Fjármagnstekjuskattur, hátekjuskattur og eignaskattur eru hærri á hinum Norðurlöndunum sem tryggir að auðurinn safnist ekki á hendur fárra og að afkomuöryggi allra sé tryggt. Ríkasta fólkið gefur til

baka til samfélagsins – þess samfélags sem hjálpaði því að komast á þann stað sem það er á. Skattkerfið tekur mið af því að það kemst enginn neitt einn og að verðmætasköpun er samvinnuverkefni launafólks, atvinnurekenda og hins opinbera.

Í jafnaðarsamfélögum Norðurlanda er gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta, umtalsverðar barnabætur, stór hluti leiguhúsnæðis er rekinn án hagnaðarsjónarmiða og ríkið greiðir fjárhagsaðstoð til námsfólks.

Fjárhagsaðstoðina þarf almennt ekki að greiða til baka sem tryggir að námsfólk þarf ekki að vinna á meðan námi stendur. Auk þess er mun betur stutt við aldrað fólk og öryrkja en á Íslandi. Þess má einnig geta að sterkt velferðarkerfi stuðlar að ró á vinnumarkaði og eykur þannig efnahagslegan stöðugleika. Einnig dregur sterkt velferðarkerfi úr ójafnrétti og þar með spennu á milli samfélagshópa. Samfélög Norðurlandanna þar sem jafnaðarflokkar eru við völd einkennast af sterkum efnahag, stöðugleika, friði og miklu jafnrétti.

Instagram: @hallveigujr

MYNDIR FRÁ STARFINU

Fólk fái fastan heimilislækni og heimilisteymi

Þjóðarátak í umönnuneldra fólks

Öruggt aðgengi um land allt

Meiri tími með sjúklingnum

Tökum ábyrgð á heilbrigðiskerfinu í heild

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook