Skip to main content

Kökubæklingur Nóa Síríus 2019

Page 1


KÖKUBÆKLINGURINN

UPPSKRIFTIR:

EVA LAUFEY

HERMANNSDÓTTIR

DAGS KRÁRGERÐARKONA HJÁ STÖÐ 2, MATREIÐSLUBÓKAHÖFUNDUR OG EIGANDI

WWW.EVALAUFEYKJARAN.IS.

Nói Síríus hefur fylgt Íslendingum í nærri 100 ár. Þar af hefur Síríus súkkulaði lífgað upp á bakstur landsmanna í 75 ár og er það sívinsælt í bæði klassískar og óhefðbundnari uppskriftir. Undanfarin ár hefur vöruúrval Nóa Síríus aukist og með miklu hugmyndaflugi hefur það orðið æ vinsælla að nota ýmis konar sælgæti frá Nóa í kökugerð og hvers kyns bakstur. Mörgum þessara uppskrifta hefur verið safnað saman í Kökubækling Nóa Síríus sem nýtur ávallt mikilla vinsælda og er orðinn fastur hluti af hátíðarundirbúningnum á fjölmörgum heimilum. Sem fyrr erum við stolt af kökubæklingnum og að geta boðið Íslendingum upp á úrvalshráefni í ómótstæðilegar freistingar.

LJÓSMYNDIR: HRÓBJARTUR SIGURÐSSON

ÚTLIT OG UMBROT: ÁRNASYNIR

FYLGIHLUTIR: TULIPOP

PRENTUN: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA EHF.

ÚTGEFANDI: NÓI SÍRÍUS, HESTHÁLSI 2-4, 110 REYKJAVÍK

Í ár var notast við borðbúnað og muni frá Tulipop við gerð Kökubæklingsins en Tulipop er skemmtilegur ævintýraheimur skapaður af teiknaranum Signýju Kolbeinsdóttur. Á Tulipop eyjunni býr fjölbreyttur hópur heillandi ævintýravera en þar má til dæmis finna hinn hugljúfa sveppastrák Bubble og systur hans Gloomy ásamt skógardýrinu Fred og prímadonnunni Miss Maddy. Hægt er að kynnast Tulipop heiminum betur og skoða vöruúrvalið á www.tulipop.is.

NÓA

SÍRÍUS SÚKKULAÐI

SÍRÍUS SUÐUSÚKKULAÐI

Meðalbragðsterkt súkkulaði með 45% kakóinnihaldi sem er löngu orðið klassískt. Síríus suðusúkkulaðið er vinsælt í bakstur og matargerð, auk þess sem það hentar frábærlega í heitt súkkulaði.

SÍRÍUS

56% DÖKKT SÚKKULAÐI

Súkkulaði sem hefur einstaklega kröftugt súkkulaðibragð en er á sama tíma silkimjúkt og með ljúfu eftirbragði. Það er í uppáhaldi margra með kaffibollanum en er ekki síður tilvalið í bakstur og frábært í súkkulaðikrem.

SÍRÍUS

70% DÖKKT SÚKKULAÐI

Uppáhald þeirra sem vilja almennilegt súkkulaðibragð og ekkert annað. Bragðfyllingin er mikil en samt er súkkulaðið, sem er með 70% kakóinnihaldi, í góðu jafnvægi. Síríus 70% hentar vel í eftirrétti, múffur og súkkulaðitertur þar sem ætlunin er að ná fram miklu súkkulaðibragði og fá afgerandi súkkulaðilit.

SÍRÍUS RJÓMASÚKKULAÐI

Hið milda og mjúka Síríus rjómasúkkulaði er vinsælasta súkkulaði Íslendinga og gjarnan borðað eins og það kemur fyrir, hreint eða með spennandi viðbótum. Það er unnið á sérstakan hátt til að það fái eins mjúka áferð og mögulegt er svo það bráðni þægilega í munni. Það er þó einnig vinsælt í bakstur þegar leitast er eftir mildum undirtóni frekar en sterku, afgerandi súkkulaðibragði.

SÍRÍUS HVÍTT SÚKKULAÐI

Hvítt súkkulaði er hvítt vegna þess að það inniheldur einungis kakósmjör en engan kakómassa (sem gefur hefðbundnu súkkulaði brúna litinn). Síríus hvítt súkkulaði er milt á bragðið en með mikla fyllingu og hentar því vel í allan bakstur, auk þess að vera einstaklega gómsætt beint úr pakkanum.

SÍRÍUS RÚBÍNSÚKKULAÐI

Ný súkkulaðitegund leit nýverið dagsins ljós en það er í fyrsta skipti í um 80 ár sem það gerist. Síríus rúbínsúkkulaði er unnið úr rúbín kakóbauninni en súkkulaðið fær bleika litinn og sérstakt bragðið, með keim af ávöxtum, sýru og berjum, frá bauninni sjálfri því engin litar­ eða bragð efni eru notuð við framleiðslu þess. Það verður spennandi að sjá hvernig Íslendingar nýta þessa nýjung til að skapa nýja töfra í eldhúsum landsins.

SJÁLFBÆRNI OG SAMFÉLAGS Á BYRGÐ

Síríus súkkulaði er hluti af Cocoa Horizons verkefninu. Cocoa Horizons gerir kakóræktendum kleift að rækta og framleiða kakóið á sjálfbæran og ábyrgan hátt. Cocoa Horizons ferlið tryggir fræðslu til kakóbænda varðandi ræktunaraðferðir og aðbúnað starfsfólks auk þess sem það kemur að fræðslumálum, heilsugæslu og aðgengi að hreinu vatni. Þannig stuðlar Cocoa Horizons að betri lífsskilyrðum í kakóræktarsamfélögum.

MARENGS AFMÆLISSTAFUR

FYLLTUR MEÐ LJÚFFENGUM SÆLGÆTISRJÓMA

MARENGSSTAFUR - TVÖFÖLD UPPSKRIFT

HRÁEFNI

8 stk eggjahvítur

400 g sykur

2 tsk lyftiduft

Salt á hnífsoddi

AÐFERÐ

1. Forhitið ofninn í 130°C (blástur).

2. Stífþeytið eggjahvíturnar. Þegar froða byrjar að myndast í skálinni bætið sykrinum smám saman við ásamt lyftiduftinu og saltinu.

3. Sprautið marengsblöndunni á pappírsklædda ofnplötu ef útbúa á ákveðið form eins og til dæmis tölustaf eða mótið blönduna að vild með sleif.

4. Bakið botnana við 130°C í 90 mínútur.

5. Kælið botnana vel áður en þið setjið rjómafyllinguna á milli og ofan á kökuna.

RJÓMAFYLLING

HRÁEFNI

500 ml rjómi

500 ml jurtarjómi*

3 tsk flórsykur

1 tsk vanillusykur

150 g Síríus rjómasúkkulaði með karamellukurli og íslensku sjávarsalti

100 g Nóa Kropp

150 g Síríus súkkulaðiperlur til skrauts

AÐFERÐ

1. Saxið rjómasúkkulaði.

2. Stífþeytið rjóma og jurtarjóma.

3. Bætið flórsykri, vanillusykri, söxuðu súkkulaði og Nóa Kroppinu saman við rjómann og blandið vel saman með sleif.

4. Skreytið kökuna með litríkum Síríus súkkulaðiperlum.

*Jurtarjómi á móti hefðbundnum rjóma eykur stífleika og gerir það að verkum að blandan heldur sér betur. Jurtarjómi fæst í öllum helstu matvöruverslunum en honum má skipta út fyrir hefðbundinn rjóma sé þess óskað.

JARÐARBERJASKYRKAKA

MEÐ SÚKKULAÐI

BOTN

HRÁEFNI

6 dl Rice Krispies

150 g Síríus suðusúkkulaði

110 g smjör

3 msk síróp FYLLING

HRÁEFNI

500 g jarðarberjaskyr

250 ml rjómi, þeyttur

1 msk flórsykur

100 g Síríus hvítir súkkulaðidropar og meira til skrauts

1 tsk vanilludropar

12 jarðarber og nokkur til skrauts

AÐFERÐ

1. Setjið Rice Krispies í matvinnsluvél og hakkið mjög fínt.

2. Bræðið súkkulaði og smjör í potti við vægan hita og bætið sírópinu saman við.

3. Hellið Rice Krispies út í súkkulaðiblönduna og hrærið vel saman. Hellið næst deiginu í form, helst smelluform sem auðvelt er að losa kökuna frá. Þrýstið deiginu í formið og kælið.

AÐFERÐ

1. Þeytið rjóma og blandið honum saman við skyrið með sleikju, bætið flórsykri og vanilludropum út í og hrærið.

2. Bræðið hvítu súkkulaðidropana yfir vatnsbaði og kælið.

3. Skerið jarðarberin mjög smátt og bætið út í fyllinguna ásamt hvíta súkkulaðinu.

4. Hellið fyllingunni yfir súkkulaðibotninn og kælið kökuna í minnst þrjár klukkustundir, best yfir nótt.

5. Skreytið kökuna með ferskum jarðarberjum og bræddu hvítu súkkulaði.

Það er líka gott að sáldra smá Síríus karamellukurli eða saxa Mega Kropp yfir til að gera dýrðina sætari.

LITRÍK AFMÆLISBOMBA

MEÐ KARAMELLUKREMI

SÚKKULAÐIBOTNAR

HRÁEFNI

7,5 dl hveiti

5 dl sykur

4 egg

2,5 dl olía

5 dl AB mjólk

5 msk Síríus kakóduft

2 tsk lyftiduft

1 tsk matarsódi

2 tsk vanilludropar

100 g Síríus

rjómasúkkulaðidropar

AÐFERÐ

1. Forhitið ofninn í 180°C.

2. Blandið saman öllum hráefnunum nema súkkulaðinu og þeytið þar til silkimjúkt.

3. Saxið súkkulaði og bætið við í lokin.

4. Smyrjið tvö til þrjú 24cm hringlaga bökunarform, skiptið deiginu á milli og bakið við 180°C í 25­30 mínútur.

5. Kælið kökuna vel áður en þið setjið á hana krem.

KARAMELLUKREM

HRÁEFNI

150 g Nóa rjómakúlur

1 dl rjómi

250 g smjör

200 g hreinn rjómaostur

500 g flórsykur

1 tsk vanilludropar

150 g Síríus súkkulaðiperlur

150 g Nóa trítlar

AÐFERÐ

1. Bræðið rjómakúlurnar í rjómanum við vægan hita. Kælið svolítið áður en þið bætið 2 dl af blöndunni við afganginn af kreminu.

2. Þeytið saman smjör og rjómaost þar til mjúkt.

3. Bætið flórsykrinum saman við og þeytið áfram þar til kremið er létt og ljóst.

4. Bætið vanillu og rjómakúlublöndunni út í og þeytið áfram.

5. Sprautið kreminu á milli botnanna og skreytið kökuna með litríkum súkkulaðiperlum og litríkum trítlum.

BISMARKKÚLUR

ALGJÖRT HNOSSGÆTI

HRÁEFNI

100 g smjör

4 msk sykur

1 tsk vanilludropar

2 msk Síríus kakóduft

3 dl mulið Kellogg's Corn Flakes

2 msk kaffi, kælt

3 dl mulinn Nóa Bismark brjóstsykur

AÐFERÐ

1. Þeytið saman smjör og sykur þar til blandan er létt og ljós.

2. Bætið vanilludropum, kakódufti, muldu kornflexi og kaffi saman við og blandið vel.

3. Rúllið litlar kúlur úr deiginu og veltið þeim upp úr fínmöluðum Bismark brjóstsykri (best að mylja brjóstsykurinn í matvinnsluvél).

4. Kælið kúlurnar áður en þið berið þær fram. Frábært að eiga í frystinum!

Ef þú vilt meiri lakkrís í lífið þá er tilvalið að velta kúlunum upp úr Síríus lakkrískurlinu eða söxuðu Síríus Trompsúkkulaði í stað Bismark brjóstsykursins.

TRÍTLANAMMI

ROCKY ROAD

HRÁEFNI

200 g Síríus suðusúkkulaði

200 g Síríus rjómasúkkulaði

100 g Nóa súkkulaði poppsmellur

150 g Nóa trítlar

100 g Nóa perluhnappar

AÐFERÐ

1. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og kælið svolítið.

2. Setjið saxaða poppsmelli, hlauptrítla og perluhnappa í pappírsklædd bökunarform.

3. Hellið súkkulaðinu yfir og setjið inn í kæli þar til súkkulaðið er orðið stíft.

4. Skerið í litla bita og berið fram.

Í nammiblönduna getur líka verið gott að hafa Mega Kropp, Karamelluhnappa, Lakkríshnappa eða einfaldlega uppáhalds Nóa sælgætið.

JÓLASVEINAHATTAR

MEÐ KREMKEXSÚKKULAÐI

HRÁEFNI

170 g smjör

190 g Síríus suðusúkkulaði

3 egg og 2 eggjarauður

160 g púðursykur

1 tsk lyftiduft

Salt á hnífsoddi

1 msk Síríus kakóduft

3 msk hveiti

140 g Síríus rjómasúkkulaði með kremkexi

250 ml þeyttur rjómi

AÐFERÐ

1. Forhitið ofninn í 180°C (blástur).

2. Bræðið smjör og súkkulaði við vægan hita í potti.

3. Þeytið egg, eggjarauður og púðursykur saman þar til eggjablandan verður létt og ljós.

4. Hellið súkkulaðiblöndunni í mjórri bunu yfir eggjablönduna og hrærið vel saman.

5. Bætið lyftidufti, salti, kakói, hveiti og smátt söxuðu rjómasúkkulaði með kremkexi út í deigið og blandið varlega saman við með sleikju.

6. Hellið deiginu í smurt form og bakið við 180°C í 25 – 30 mínútur.

7. Leyfið kökunni að kólna alveg áður en þið takið hana upp úr forminu.

8. Þeytið rjóma og skreytið kökubitana með rjómanum og jarðarberjum.

14 – 16 jarðarber Kremkexsúkkulaðinu má skipta út fyrir annað stykki í Síríus rjómasúkkulaðilínunni. Svo má einnig sáldra örlítið af flórsykri yfir til að það snjói á jólasveinana.

AMERÍSKAR PÖNNUKÖKUR

MEÐ FERSKUM BERJUM OG SÚKKULAÐISÓSU

PÖNNUKÖKUR

HRÁEFNI

5 dl hveiti

3 tsk lyftiduft

1/2 tsk salt

3 msk smjör (brætt)

1 egg

2 ­3  dl mjólk

4 dl súrmjólk

1 tsk vanilla

150 g Síríus rjómasúkkulaðidropar

AÐFERÐ

1. Sigtið hveiti, lyftiduft og salt saman í skál.

2. Bræðið smjör, leggið til hliðar og kælið.

3. Þeytið egg og mjólk saman.

4. Blandið öllum hráefnum saman í skál þar til deigið er silkimjúkt.

5. Hitið smá smjör á pönnukökupönnu og steikið pönnukökurnar í ca. mínútu eða tvær á hvorri hlið. Þær eru tilbúnar þegar þær eru gullinbrúnar.

SÚKKULAÐISÓSA

HRÁEFNI

150 g Síríus rjómatöggur

50g Síríus suðusúkkulaði

1 dl rjómi

AÐFERÐ

1. Bræðið rjómatöggurnar og suðusúkkulaðið í rjómanum við vægan hita og hrærið.

2. Berið fram með pönnukökunum og ferskum berjum.

Saxa má niður Nóa Kropp eða karamellukurl til að sáldra yfir.

ÞREFÖLD SÚKKULAÐISÆLA

TILVALIN Í ALLAR VEISLUR

SÚKKULAÐIKAKA

HRÁEFNI

100 g smjör, brætt

2 egg

2,5 dl sykur

1,5 dl hveiti

2 tsk vanillusykur

3 msk Síríus kakóduft

100 g Síríus Pralín karamellusúkkulaði, smátt saxað

½ tsk salt

AÐFERÐ

1. Forhitið ofninn í 175°C (blástur).

2. Bræðið smjör í potti við vægan hita.

3. Þeytið saman sykur og egg í smá stund eða þar til blandan verður létt og ljós. Blandið öðrum hráefnum nema berjum saman við og hrærið í smá stund eða þar til deigið verður silkimjúkt.

4. Smyrjið bökunarform. Mér finnst best að nota smelluform en þá er mikið þægilegra að ná kökunni úr forminu.

5. Hellið deiginu í formið og bakið við 175°C í 20 mínútur.

6. Kælið kökuna mjög vel áður en þið setjið súkkulaðimúsina á kökuna, best er að nota kökuform sem er nógu stórt til þess að rúma kökubotninn og súkkulaðimúsina sem fer ofan á.

HIMNESK SÚKKULAÐIMÚS

HRÁEFNI

150 g Síríus suðusúkkulaði

500 ml rjómi

2 eggjarauður

AÐFERÐ

1. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og kælið.

2. Þeytið rjóma.

3. Setjið eggjarauðurnar út í súkkulaðið og hrærið saman þar til blandan er orðin slétt.

4. Bætið því næst rjómanum saman við og dreifið yfir botninn. Kælið í nokkrar klukkustundir.

VANILLURJÓMI

HRÁEFNI

250 ml rjómi

2 tsk vanillusykur

Blönduð ber

50 g Síríus suðusúkkulaði

150 g blönduð fersk ber

AÐFERÐ

1. Þeytið rjóma og vanillusykur, dreifið rjómanum yfir súkkulaðimúsina og skreytið kökuna með allskyns berjum. Rífið gjarnan suðusúkkulaði yfir kökuna áður en hún er borin fram.

SMÁBITAKÖKUR

MEÐ KARAMELLUSÚKKULAÐI

HRÁEFNI

2 egg

230 g smjör

400 g sykur

3 tsk vanilludropar

320 g hveiti

1 tsk lyftiduft

1 tsk matarsódi

150 g Nóa saltkaramelluhnappar og 50 g til skrauts

100 g Síríus karamellukurl

50 g Síríus suðusúkkulaði til að skreyta

AÐFERÐ

1. Forhitið ofninn í 180°C (blástur).

2. Þeytið saman smjör, sykur og egg þar til blandan er létt og ljós.

3. Blandið þurrefnum ásamt vanilludropum saman við og þeytið. Gott er að stoppa einu sinni til tvisvar og skafa meðfram hliðum svo allt blandist vel saman.

4. Saxið hnappana mjög vel og bætið þeim ásamt karamellukurli út í deigið með sleikju.

5. Gott er að nota tvær matskeiðar til þess að móta kökurnar. Setjið þær á pappírsklædda ofnplötu og bakið við 180°C í 10­12 mínútur.

6. Bræðið 50 g af suðusúkkulaði yfir vatnsbaði, sáldrið yfir kökurnar og skreytið þær með smátt söxuðum súkkulaðihnöppum.

Hægt er að skipta út karamellusúkkulaðinu fyrir Síríus lakkrís með því að nota Nóa lakkrískurl og rjómasúkkulaði með saltlakkrísflögum og sjávarsalti.

REGNBOGABOLLAKÖKUR

FULLKOMNAR FYRIR ÖLL TÆKIFÆRI

BOLLAKÖKUR (20-22 STK)

HRÁEFNI

250 g smjör, við stofuhita

4 dl sykur

4 egg

4 – 5 dl mjólk

5 dl hveiti

2 – 3 tsk lyftiduft

1 tsk matarsódi

2 tsk vanilludropar

70 g Síríus rjómasúkkulaðidropar

70 g Síríus trompsúkkulaði

AÐFERÐ

1. Forhitið ofninn í 180°C.

2. Þeytið sykur og smjör þar til blandan er létt og ljós. Bætið eggjum saman við, einu í einu, þeytið vel á milli.

3. Sigtið saman hveiti og lyftidufti minnst þrisvar sinnum.

4. Bætið hveitiblöndunni, matarsódanum, vanilludropunum og mjólkinni saman við og þeytið í nokkrar mínútur eða þar til blandan verður silkimjúk.

5. Saxið súkkulaðið með trompbitum og setjið út í deigið ásamt súkkulaðidropunum.

6. Setjið deigið í pappírsform.

7. Bakið við 180°C í 15 – 18 mínútur.

8. Kælið kökurnar áður en þið setjið á þær krem.

SÚKKULAÐIKREM

HRÁEFNI

300 g smjör við stofuhita

200 g hreinn rjómaostur

500 g flórsykur

2 tsk vanilludropar

150 g Síríus dökkir súkkulaðidropar

150 g Síríus súkkulaðiperlur

AÐFERÐ

1. Þeytið saman rjómaost og smjör þar til það verður mjúkt.

2. Bætið flórsykrinum saman við og þeytið þar til kremið er létt og ljóst.

3. Á meðan bræðið þið dökku súkkulaðidropana yfir vatnsbaði.

4. Hellið súkkulaðinu og vanilludropunum út í kremið. Hrærið mjög vel í nokkrar mínútur.

5. Setjið kremið í sprautupoka og sprautið á kökurnar.

6. Skreytið kökurnar með litríkum Síríus súkkulaðiperlum.

Til að fá ljósara súkkulaðikrem má skipta út dökku súkkulaðidropunum fyrir hvíta dropa. Fyrir fjölbreytni á bollakökuhlaðborðið má setja Síríus lakkrískurl eða karamellukurl á sumar bollakökurnar.

OSTAKAKA Í GLASI

MEÐ LJÚFFENGRI KARAMELLUSÓSU

HRÁEFNI

250 g Nóa Mega Kropp

2 dl Rice Krispies

50 g Síríus suðusúkkulaði

50 g brætt smjör

350 g hreinn rjómaostur

100 ml rjómi

2 tsk flórsykur

1 tsk vanilludropar

150 g Síríus rjómasúkkulaði

150 g Nóa rjómakúlur

1 dl rjómi

Hindber til skrauts

AÐFERÐ

1. Setjið Mega Kropp, Rice Krispies og suðusúkkulaði í matvinnsluvél og maukið. Bræðið smjör og hellið saman við. Geymið súkkulaðiblönduna.

2. Þeytið saman rjómaost og rjóma þar til blandan verður létt og ljós, bætið flórsykri og vanilludropum saman við.

3. Bræðið rjómasúkkulaði yfir vatnsbaði og hellið í mjórri bunu saman við rjómaostablönduna og hrærið hægt á meðan.

4. Bræðið rjómakúlurnar í rjómanum og kælið svolítið.

5. Skiptið Rice Krispies blöndunni niður í glös, því næst fer rjómaostablandan og svo er það ljúffenga karamellusósan. Endurtakið þar til þið eruð komin með tvö til þrjú lög.

6. Skreytið gjarnan með hindberjum!

Jarðarber eða önnur sæt ber henta líka í stað hindberja. Skipta má út rjómakúlunum fyrir Nóa súkkulaðikúlur.

LJÚFFENGT BANANABRAUÐ

SEM ALLIR ELSKA

HRÁEFNI

2 egg

2 dl sykur

2 þroskaðir bananar

60 g smjör

3 1/5 dl hveiti

1 tsk vanilludropar

1/2 dl mjólk

2 tsk lyftiduft

150 g Síríus rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti

AÐFERÐ

1. Forhitið ofninn í 180°C.

2. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós.

3. Bræðið smjörið við vægan hita og leggið til hliðar.

4. Sigtið saman hveiti og lyftiduft að minnsta kosti tvisvar sinnum og blandið við eggjablönduna.

5. Stappið banana og bætið saman við ásamt vanilludropunum, mjólkinni og smjörinu.

6. Saxið niður súkkulaðið og blandið saman við deigið með sleif.

7. Smyrjið form og hellið deiginu í formið, ég sáldra alltaf svolitlu haframjöli yfir en það er algjörlega valfrjálst.

8. Bakið við 180°C í 45 – 50 mínútur.

ÁVAXTASPJÓT

MEÐ SÚKKULAÐI OG ÁVÖXTUM AÐ EIGIN VALI

HRÁEFNI AÐFERÐ

200 g jarðarber

200 g brómber

Hálfur ananas

1 hunangsmelóna

2 ­ 3 bananar

Vínber

150 g Síríus hvítir

súkkulaðidropar

150 g Síríus dökkir

súkkulaðidropar

10 – 15 tréspjót

1. Skerið ávextina niður og þræðið upp á tréspjótin.

2. Bræðið hvítu og dökku súkkulaðidropana yfir vatnsbaði, í sitt hvorri skálinni.

3. Dreifið súkkulaðinu yfir spjótin og kælið.

FRÖNSK SÚKKULAÐIKAKA

MEÐ BLAUTRI MIÐJU OG TROMP SÚKKULAÐIÍS

SÚKKULAÐIKÖKUR (4-6 KÖKUR)

HRÁEFNI

120 g smjör

200 g Síríus suðusúkkulaði

30 g hveiti

60 g flórsykur

salt á hnífsoddi

2 eggjarauður

2 egg

AÐFERÐ

1. Forhitið ofninn í 210°C (blástur).

2. Smyrjið form.

3. Saxið súkkulaði.

4. Bræðið smjör og saxað súkkulaðið saman við vægan hita.

5. Sigtið saman þurrefni.

6. Þeytið egg og eggjarauður saman í annarri skál.

7. Hellið eggjablöndunni saman við hveitiblönduna og hrærið.

8. Hellið því næst deiginu í skál með bræddu súkkulaði og hrærið öllum hráefnunum vel saman.

9. Skiptið deiginu niður í hringlaga, eldfast mót og bakið við 210°C í 10 – 12 mínútur. Ég bakaði mínar í nákvæmlega 12 mínútur og þær voru fullkomnar.

TROMP SÚKKULAÐIÍS

HRÁEFNI

5 eggjarauður

10 msk sykur

400 ml rjómi

150 g saxað Síríus suðusúkkulaði

1 tsk vanilludropar

AÐFERÐ

1. Þeytið saman eggjarauður og sykur þar til blandan verður létt og ljós.

2. Léttþeytið rjóma og hrærið saman við með sleikju.

3. Bræðið Síríus suðusúkkulaði, kælið svolítið og hellið saman við rjómablönduna.

4. Saxið niður rjómasúkkulaði með trompbitum og bætið út í ásamt vanilludropunum, hrærið vel saman.

5. Hellið ísblöndunni í form og setjið inn í frysti í nokkrar klukkustundir.

6. Berið fram með kökunni.

150 g Síríus rjómasúkkulaði með trompbitum *Ofnar eru mjög misjafnir og mögulega þurfið þið aðeins minni eða meiri baksturstíma. Ef þið viljið æfa ykkur þá mæli ég með því að baka eina köku í einu en með því getið þið fundið út hvaða tími er bestur í ykkar ofni.

Sælkerabakstur

Bökunarvörurnar frá Nóa Síríus eru fullkomnar í baksturinn. Hvort sem það er silkimjúkt rjómasúkkulaði, kraftmikið suðusúkkulaði eða ljú engt lakkrískurl, þá verður þinn sælkerabakstur enn betri með vörunum frá Nóa Síríus.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook