Helga María Ragnarsdóttir Höfundur uppskrifta og ljósmynda í bökunarbæklingi Nóa Síríus í ár er Helga María Ragnarsdóttir. Helga María hefur mikla ástríðu fyrir matargerð, bakstri og ljósmyndun og leggur metnað í að skapa rétti og bakkelsi sem eru bæði gómsæt og falleg. Með uppskriftum sínum og myndum vill hún miðla matargleði og hvetja fólk til að njóta þess að elda og baka. Við gerð uppskriftanna fyrir bökunarbæklinginn fékk hún systur sína, Júlíu Sif Liljudóttur, sér til aðstoðar. Þær systur hafa rekið saman eitt af vinsælustu matarbloggum Íslands ásamt því að hafa gefið út matreiðslubók.
Efnisyfirlit
Síðustu 30 ár hefur Nói Síríus gefið út kökubækling fyrir jólin sem er orðinn ómissandi hluti af hátíðarundirbúningi þjóðarinnar. Árið 2024 var í fyrsta skipti gert hlé á útgáfu bæklingsins en í stað hans var settur í loftið glænýr uppskriftavefur sem ber nafnið Ljúfa líf. Vefurinn inniheldur bæði gamlar og nýjar uppskriftir auk þess sem að allir kökubæklingar fyrri ára eru þar aðgengilegir. Kökubæklingur síðasta árs var fyrsti bæklingurinn sem var gefinn út eingöngu á rafrænu formi. Bæklingurinn ber heitið Bökum saman og er ætlað að vera hvatning til þess að búa til samverustundir og minningar saman en bakstur er tilvalin leið til þess. Við erum afskaplega stolt af bæklingnum í ár en í honum eru 10 glænýjar uppskriftir þar sem vörur frá Nóa Síríus spila lykilhlutverk. Í bæklingnum ættu því öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Bananatertan hennar ömmu
– 04
Snúðar með eplafyllingu og karamellukurli
– 06
Marengs jólatré með berjum og Nóa Smá Kroppi
– 08
Piparkökukaka með rjómaosta- og hvítsúkkulaðikremi
– 10
Hvítt súkkulaðisalami
– 12
Rice Krispies bitar milljónamæringsins
– 14
Barna bollakökur með Opal hlauphringja kremi
– 16
Kleinuhringir með Eitt Sett fyllingu
– 18
Marengsrúlla með Pipp, mandarínum og Corn Flakes – 20 Appelsínusúkkulaðimús
02
– 22
Hráefni – 4 egg – 2 ¼ dl sykur – 1 dl hveiti – 2 msk kakó – 1 msk kartöflumjöl – 1 tsk lyftiduft
Bananatertan hennar ömmu
Fylling – 100 g smjör, við stofuhita – 70 g flórsykur – 2 bananar
Fyrir 10-12 manns Aðferð – Kaka 1. Þeytið saman egg og sykur þar til létt og ljóst.
Krem
2. Sigtið þurrefnin út í og veltið rólega saman með sleikju. 3. Skiptið í tvö kökuform og bakið við 175°C í 20 mínútur.
– 100 g smjör – 100 g flórsykur – 200 g Síríus suðusúkkulaði – 1 tsk vanilludropar
4. Leyfið kökubotnunum að kólna alveg áður en þeir eru teknir úr forminu. 5. Smyrjið bananafyllingunni á milli botnanna og þekjið síðan kökuna með súkkulaðikreminu.
Aðferð – Fylling 1. Hrærið saman mjúkt smjör og flórsykur þar til létt og ljóst. 2. Stappið bananana með gaffli og blandið varlega saman við.
Aðferð – Krem 1. Hrærið saman mjúkt smjör, flórsykur og vanilludropa. 2. Bræðið suðusúkkulaði í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði. 3. Hellið bráðnu súkkulaðinu út í kremið í mjórri bunu á meðan þið hrærið á lágri stillingu.
04
01
Snúðar með eplafyllingu og karamellukurli
Hráefni
Um 20 stykki
Snúðadeig
Aðferð – Snúðadeig
– 100 g smjör
1. Byrjið á því að útbúa eplafyllinguna svo hún nái að kólna á meðan deigið er útbúið. 2. Bræðið smjörið í potti og hellið því í hrærivélarskál ásamt mjólkinni.
– 5 dl mjólk – 7 g þurrger
3. Blandan á að vera ylvolg en ekki heit.
– 1 tsk kardimommudropar
4. Bætið sykri, þurrgeri, salti og kardimommudropum saman við.
– 1½ dl sykur
5. Bætið hveitinu smám saman út í á meðan deigið er hnoðað. Gætið þess að bæta ekki of miklu hveiti við svo snúðarnir verði ekki þurrir.
– 11–12 dl hveiti – Lítil klípa af salti
6. Deigið á að vera mjúkt og teygjanlegt og þið eigið að geta snert það með fingrinum án þess að það festist við hann. 7. Leggið viskustykki eða plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefast í um klukkustund, eða þar til það hefur um það bil tvöfaldast að stærð.
Epla- og karamellukompott
8. Skiptið deiginu í tvennt og fletjið annan helminginn út í einu í stóran ferhyrning. Smyrjið eplafyllingunni jafnt yfir deigið og brjótið það í þrennt eftir endilöngu. Skerið deigið í lengjur, snúið upp á þær og mótið snúða.
– 8 epli
9. Raðið snúðunum á tvær bökunarplötur með bökunarpappír. Leggið viskustykki eða plastfilmu lauslega yfir og látið hefast aftur í um klukkustund.
– 1 dl sykur – 100 g smjör
8. Hitið ofninn í 200°C.
– 1 poki Síríus karamellukurl
9. Bakið snúðana í 12–15 mínútur, eða þar til þeir eru fallega gullinbrúnir. 10. Á meðan snúðarnir bakast er sykurlögurinn útbúinn. Blandið saman 1 dl af sykri og 1 dl. af heitu vatni og hrærið þar til sykurinn hefur leyst upp.
– Lítil klípa af salti – 1 msk maíssterkja – 2 msk vatn
11. Penslið snúðana með sykurleginum um leið og þeir koma úr ofninum. Sykurlögurinn gefur þeim fallegan gljáa og hjálpar til við að halda þeim mjúkum lengur. 12. Skreytið að vild með karamellukurli.
Aðferð – Epla- og karamellukompott 1. Afhýðið eplin, fjarlægið kjarnana og skerið í litla bita. 2. Bræðið smjörið í stórum potti eða á pönnu við meðalhita. Bætið eplunum út í og steikið í 3–4 mínútur, eða þar til þau byrja að mýkjast. 3. Bætið sykri og salti saman við og hrærið vel. Látið malla við vægan til meðalháan hita í 8–12 mínútur, eða þar til eplin eru orðin mjúk en halda enn lögun sinni. 4. Bætið karamellukurlinu út í og hrærið þar til það hefur bráðnað og myndað karamellusósu utan um eplin. 5. Hrærið maíssterkjunni saman við vatnið og hellið blöndunni út í kompottinn á meðan þið hrærið. 6. Látið malla áfram í 1–2 mínútur, eða þar til kompotturinn hefur þykknað. Ef hann er enn of þunnur má láta hann malla örlítið lengur án loks. 7. Takið pottinn af hitanum og látið kompottinn kólna alveg áður en honum er smurt yfir deigið.
06
01
Marengs jólatré með berjum og Nóa Smá Kroppi Fyrir 12-14 manns Aðferð – Marengs 1. Hitið ofninn í 120°C með blæstri. 2. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær mynda mjúka toppa. 3. Bætið sykrinum smám saman út í, litlu í einu, og þeytið áfram á miklum hraða þar til marengsinn er orðinn stífur og glansandi. 4. Blandið möndluflögunum varlega saman við marengsinn með sleikju. 5. Skiptið marengsinum í fjóra misstóra hringi á tvær bökunarplötur með bökunarpappír, tvo hringi á hvora plötu. Gott er að teikna hringina á bökunarpappírinn til viðmiðunar. Miðið við að stærsti hringurinn sé um 26 cm í þvermál og að hver hringur sé um 4 cm minni en sá næsti á undan. Skiljið örlítið af marengsinum eftir til að móta lítinn topp sem verður fimmta og efsta hæð jólatrésins. 6. Bakið báðar plöturnar samtímis í ofninum við 120°C með blæstri í um 75 mínútur. Ef tími gefst til er gott að slökkva á ofninum og leyfa marengsinum að kólna inni í honum.
Aðferð – Rjómafylling
Hráefni
1. Þeytið rjómann þar til hann er orðinn léttur og þéttur.
Marengs
2. Skerið stærri berin í minni bita og blandið þeim varlega saman við rjómann ásamt Nóa Smá Kroppinu.
– 6 eggjahvítur – 300 g sykur – 100 g möndluflögur
3. Setjið stærsta marengsbotninn á kökudisk og dreifið hluta af rjómafyllingunni yfir. Leggið næststærsta botninn ofan á og endurtakið þar til allir botnarnir hafa verið lagðir saman, frá þeim stærsta til þess minnsta.
Rjómafylling
4. Setjið litla marengstoppinn efst á jólatréð. 5. Skreytið að vild með ferskum berjum og Nóa Smá Kroppinu.
– 5 dl rjómi – Fersk ber eftir smekk, t.d. jarðaber og bláber – 1 poki Nóa Smá Kropp
08
01
Piparkökukaka með rjómaosta- og hvítsúkkulaðikremi Fyrir 8-10 manns Aðferð – Mjúk piparkaka 1. Hitið ofninn í 175°C. 2. Blandið þurrefnunum saman í skál. 3. Hrærið restinni af hráefnunum saman við þar til deigið er laust við kekki. Gætið þess að hræra ekki of mikið.
Hráefni
4. Smyrjið tvö 20 cm lausbotna kökuform með smjöri eða olíu og skiptið deiginu jafnt á milli formanna. Bakið í miðjum ofni í 35- 45 mínútur, eða þar til tannstöngull sem stungið er í miðju kökunnar kemur hreinn út.
Mjúk piparkaka – 6 dl hveiti – 2 dl sykur – 2 tsk lyftiduft – 1½ tsk matarsódi – 1 msk kanill – 2 tsk malað engifer – 2 tsk malaður negull – ½ tsk salt – 6 dl mjólk – 1 dl olía – 2 tsk vanilludropar eða vanillusykur – 1 msk eplaedik
5. Látið kökubotnana kólna alveg áður en kremið er sett á.
Aðferð – Rjómaostskrem 1. Þeytið rjómaostinn og smjörið saman með handþeytara eða hrærivél. 2. Bætið flórsykri og vanillu út í og þeytið þar til kremið er létt og loftkennt. 3. Bræðið um 2/3 af hvítu súkkulaði dropunum í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði, takið skálina af hitanum, bætið restinni af súkkulaðinu út í og hrærið þar til allt er bráðið. 4. Hellið súkkulaðinu í mjórri bunu út í kremið á meðan þið hrærið á meðalháum hraða.
Rjómaostskrem
5. Smyrjið kreminu á kökuna og skreytið að vild.
– 200 g rjómaostur – 1 poki Síríus hvítir súkkulaðidropar – 100 g smjör, við stofuhita – 1 tsk vanilludropar – 400 g flórsykur
10
01
Hráefni
Hvítt súkkulaðisalami
Súkkulaðisalami – 2 pokar Síríus hvítir súkkulaðidropar – 25 g smjör – 1 dl rjómi – 1 dl þurrkuð trönuber – 1 dl pistasíuhnetur, án skelja – 5 kexkökur af Göteborgs Kormo hafrakexi
Um 20 bitar Aðferð 1. Saxið hvíta súkkulaðið og setjið í lítinn pott ásamt smjörinu og rjómanum. Hitið við vægan hita og hrærið stöðugt þar til súkkulaðið hefur bráðnað. Gætið þess að það brenni ekki við. Takið pottinn af hellunni og látið blönduna kólna aðeins. 2. Myljið hafrakexið og hrærið því saman við súkkulaði blönduna. Bætið trönuberjunum og pistasíuhnetunum út í og hrærið vel þar til allt hefur blandast jafnt saman.
Skreyting
3. Setjið blönduna á stórt stykki af plastfilmu og mótið í rúllu, um 4-5 cm í þvermál. Vefjið plastfilmunni þétt utan um rúlluna og snúið upp á endana svo hún haldi lögun sinni.
– ½ dl flórsykur
4. Setjið rúlluna í ísskáp í að minnsta kosti 2 klukkustundir eða þar til hún er orðin alveg stíf. 5. Fjarlægið plastfilmuna og veltið rúllunni upp úr flórsykri þannig að hún líkist salami. 6. Skerið súkkulaðisalamíið í sneiðar og berið fram.
12
01
Rice Krispies bitar milljónamæringsins Um 30 bitar Aðferð
Hráefni
1. Bræðið rjómakúlurnar, smjörið og rjómann saman á lágum hita í stórum potti þar til allar kúlurnar eru alveg bráðnaðar.
– 2 pokar Nóa rjómakúlur – 75 g smjör – ½ dl rjómi – 7½ dl Rice Krispies – 2 pokar Síríus rjómasúkkulaðidropar
2. Hellið Rice Krispies út í og hrærið saman. 3. Setjið bökunarpappír í kökuform eða stórt mót og pressið vel niður þar til yfirborðið er slétt og fínt. 4. Bræðið rjómasúkkulaði dropana í örbylgjuofni eða yfir vatns baði, hellið yfir og dreifið varlega þar til þeir þekja allt. 5. Kælið í ísskáp eða frysti í 1-2 tíma. 6. Takið úr mótinu og skerið í bita.
14
Barna bollakökur með Opal hlauphring ja kremi Fyrir 12-14 manns Aðferð – Kaka 1. 1. Hitið ofninn í 175°c 2. Blandið saman þurrefnunum í stóra skál 3. Bætið restinni af hráefnunum útí og hrærið saman þar til engir kekkir eru.
Hráefni
4. Hellið deiginu út í bollakökuform og bakið í miðjum ofni í
18-20 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn út þegar þið stingið í hana. Ég myndi kíkja á þær eftir 18. mínútur
Kakan
5. Látið kökurnar kólna alveg áður en þið setjið kremið á hana.
– 7½ dl hveiti – 3 dl sykur – 3 tsk lyftiduft – 2 tsk matarsódi – 1 tsk salt – 7½ dl mjólk eða haframjólk – 2 dl matarolía – 1½ tsk vanilludropar – 2 msk eplaedik
Aðferð – Nammikrem með Opal hlauphringjum 1. Setjið Opal hlauphringina og rjómann í lítinn pott og hitið við
vægan hita. Hrærið reglulega þar til hringirnir hafa bráðnað alveg saman við rjómann. Látið blönduna kólna niður í stofuhita.
2. Þeytið mjúkt smjörið í nokkrar mínútur. Bætið flórsykrinum smám saman út í og þeytið áfram þar til kremið er orðið létt og ljóst.
Nammikrem með Opal hlauphringjum
3. Hellið Opal hlauphringja blöndunni í mjórri bunu út í kremið
á meðan þeytt er á meðalhraða. Þeytið áfram í stutta stund þar til kremið er orðið slétt og mjúkt.
– 300 g smjör, við stofuhita
4. Sprautið kreminu á bollakökurnar þegar þær hafa kólnað alveg.
– 400 g flórsykur – ½ dl rjómi – 1½ dl Opal hlauphringir
Fyrir skemmtilega og litríka kremtoppa má skipta kreminu í þrjá hluta og lita einn bleikan með rauðum matarlit, annan gulan og þann þriðja grænan. Leggið plastfilmu á borðið og setjið kremið í þrjár lengjur hlið við hlið, eina í hverjum lit. Rúllið plastfilmunni utan um kremið og snúið upp á endana. Klippið annan endann af alveg við kremið og setjið rúlluna í sprautupoka með stjörnustút, með opna endann að stútnum. Sprautið kreminu á bollakökurnar í hringlaga hreyfingu til að mynda marglita kremtoppa.
5. Skreytið að vild með Opal hlauphringjum.
16
Kleinuhringir með Eitt sett fyllingu
Hráefni Kleinuhringir
Um 20 stykki
– 7 g þurrger
Aðferð – Kleinuhringir
– 1 dl sykur
1. Blandið þurrgerinu saman við um helminginn af hveitinu í hrærivélarskál. Bætið mjólk, sykri, eggi, vanillusykri og mjúku smjöri út í og hnoðið saman í klístrað deig.
– 2 tsk vanillusykur
– 2½ dl mjólk, við stofuhita – 1 egg, við stofuhita
2. Bætið saltinu út í og síðan meira hveiti smám saman á meðan deigið er hnoðað. Það er ekki víst að þurfi að nota allt hveitið.
– Lítil klípa af salti
3. Hnoðið deigið í hrærivél á meðalhraða í að minnsta kosti 10 mínútur. Deigið á að vera mjúkt og örlítið klístrað en meðfærilegt og byrja að losna frá hliðum skálarinnar.
– 75 g smjör (við stofuhita)
– 7–8 dl hveiti
4. Leggið viskustykki eða plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefast í um klukkustund, eða þar til það hefur um það bil tvöfaldast að stærð. Á meðan deigið hefast er gott að útbúa Eitt Sett ganache-ið svo það nái að kólna og þykkna.
Eitt Sett ganache
5. Setjið deigið á létt hveitistráð borð og fletjið það út þar til það er um 1,5 cm á þykkt. Skerið út hringi með glasi eða kringlóttu kökumóti sem er um 7 cm í þvermál.
– 1 poki Eitt Sett lakkrískurl
6. Leggið kleinuhringina á bökunarpappír sem hefur verið stráð örlitlu hveiti yfir.
– 200 g Síríus suðusúkkulaði
– 2½ dl rjómi
7. Breiðið hreint viskustykki eða plastfilmu lauslega yfir og látið hefast aftur í um klukkustund, eða þar til þeir hafa stækkað vel.
– 25 g smjör – Lítil klípa af salti
8. Hitið olíuna í 175°C í djúpum, þykkbotna potti. Gætið þess að fylla pottinn ekki meira en til hálfs af olíu. Djúpsteikið nokkra kleinuhringi í einu í um 1–1½ mínútu á hvorri hlið, eða þar til þeir eru fallega gullinbrúnir.
Djúpsteiking og skreyting
9. Takið kleinuhringina upp úr olíunni með gataspaða og látið umframolíu renna af á eldhúspappír. Veltið þeim upp úr sykri á meðan þeir eru enn heitir og látið þá síðan kólna alveg.
– 1½ lítri bragðlaus olía til djúpsteikingar, t.d. repju- eða sólblómaolía
10. Setjið Eitt Sett ganache-ið í sprautupoka með kringlóttum stút. Gerið lítið gat á hlið hvers kleinuhrings, stingið stútnum vel inn og fyllið ríkulega með ganache-inu.
– Sykur til að velta kleinuhringjunum upp úr
11. Skreytið að lokum með örlitlu Eitt Sett kurli að vild.
– Eitt Sett lakkrískurl til skreytingar að vild
Aðferð – Eitt Sett ganache 1. Setjið Eitt Sett kurlið og rjómann í lítinn pott og hitið við vægan hita. Hrærið reglulega þar til kurlið hefur bráðnað eins vel og hægt er saman við rjómann. 2. Saxið suðusúkkulaðið í smáa bita. Takið pottinn af hitanum og bætið súkkulaðinu saman við. Látið standa í 1–2 mínútur og hrærið síðan þar til súkkulaðið hefur bráðnað og blandan er orðin slétt. 3. Bætið smjörinu og saltinu saman við og hrærið þar til smjörið hefur bráðnað alveg. 4. Látið ganache-ið kólna og þykkna þar til það hefur náð mjúkri áferð. Hrærið öðru hverju á meðan það kólnar. 6. Setjið ganache-ið í sprautupoka og fyllið kleinuhringina með því þegar þeir hafa kólnað alveg.
18
Hráefni Marengsbotn
Marengsrúlla með PIPP, mandarínum og Corn Flakes
– 6 eggjahvítur – 3 dl sykur – ¾ dl kartöflumjöl – 3 dl Corn Flakes, vel mulið
Fyrir 8-10 manns Aðferð – Marengsrúlla 1. Hitið ofninn í 165°C á yfir- og undirhita og setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
Fylling
2. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær mynda hvíta og stífa froðu. Bætið sykrinum smám saman út í á meðan þeytt er áfram. Þeytið þar til marengsinn er stífur og glansandi og sykurinn hefur leyst vel upp.
– 4 dl rjómi – 1 plata PIPP með saltkaramellufyllingu – 2 mandarínur
3. Blandið kartöflumjölinu varlega saman við marengsinn með sleikju. Myljið Corn Flakes vel og blandið því varlega saman við. 4. Setjið bökunarpappír á ofnplötu. Setjið marengsinn í sprautupoka með þykkum stút og sprautið honum í lengjum, þétt upp við hvor aðra, eftir langhlið plötunnar þar til platan hefur verið þakin marengs.
Skreyting – 1 plata PIPP með saltkaramellufyllingu, brædd – Dass af þeyttum rjóma (má sleppa) – Rifur úr appelsínuberki til skrauts
5. Bakið í miðjum ofni í 25 mínútur. Látið kólna og hvolfið honum síðan varlega yfir á annað stykki af bökunarpappír. Takið bökunarpappírinn mjög varlega ofan af marengsinum.
Aðferð – Fylling 1. Þeytið rjómann þar til hann er léttur og mjúkur. Takið smá rjóma frá ef þið viljið skreyta rúlluna með þeyttum rjóma. Smyrjið rjómanum jafnt yfir marengsbotninn og stráið yfir niðurskornum mandarínum og söxuðu Karamellu Pippi. 2. Rúllið marengsinum varlega upp frá langhliðinni og færið rúlluna yfir á fat. Skreytið með bráðnu PIPP og restinni af rjómanum. 3. Geymið rúlluna í ísskáp þar til hún er borin fram.
20
Appelsínusúkkulaðimús Fyrir 6-8 manns Aðferð 1. Þeytið 300 ml af rjóma í skál og geymið í kæli. 2. Hitið restina af rjómanum (250 ml), um helminginn af sykrinum og eggjarauðurnar saman í potti á lágum hita þar til blandan er rétt undir suðumarki, og hrærið stöðugt á meðan. Passið að blandan sjóði ekki. 3. Saxið súkkulaðið og setjið í skál, hellið heitri rjómablöndunni yfir og leyfið að standa í 2-3 mínútur. Hrærið svo saman þar til allt súkkulaðið hefur bráðnað. 4. Þeytið eggjahvíturnar og restina af sykrinum í hrærivél þar til blandan er stíf. 5. Veltið helmingnum af þeytta rjómanum varlega saman við súkkulaðiblönduna, síðan helmingnum af þeyttu eggjahvítunum og svo koll af kolli þar til allt er komið saman. Setjið í stóra skál eða glös sem þið viljið bera músina fram í.
Hráefni – 4 egg (rauður og hvítur aðskildar) – 55 g sykur – 300 g Síríus suðusúkkulaði með appelsínubragði – 550 ml rjómi
6. Kælið í að minnsta kosti 8 klukkustundir eða yfir nótt.
22