

75.000 króna tómstundastyrkur
Foreldrar og forráðamenn fimm til átján ára barna með lögheimili á Seltjarnarnesi fá 75.000 króna tómstundastyrk á ári vegna þátttöku í skipulögðu frístundastarfi 2023.
Hægt er að sækja um tómstundastyrkinn hvenær sem er innan almanaksársins en athugið að hann flyst ekki á milli ára. Umsóknir og ráðstöfun tómstundastyrkja er rafræn og fer fram í gegnum Mínar síður Nánari upplýsingar á www.seltjarnarnes.is sjá Mínar síður.

Ávarp formanns
Þorsteinn Ingason, formaður knattspyrnudeildar Gróttu.

Knattspyrnudeild hefur á árinu sem er að líða haldið áfram að vaxa og dafna. Aldrei hafa fleiri iðkendur verið skráðir hjá deildinni og nú í lok árs. Þjálfarar í yngri flokka starfinu eiga þar sérstakt hrós skilið en fjölgun iðkenda er auðvitað þeim helst að þakka. Eftirtektarverður árangur hefur náðst í fjölgun yngstu iðkenda deildarinnar og sífellt er reynt að fylgjast með brottfalli úr eldri hópum. Rekstur knattspyrnudeildar er fyrst og fremst æskulýðs- og forvarnarstarf og við sem komum að knattspyrnudeild erum afar stolt af því starfi sem þar fer fram. Fjölgun iðkenda fylgja einnig töluverðar áskoranir, ekki síst hvað varðar aðstöðumál. Það er ekki ofsagt að deildin sé búin að sprengja utan af sér. Í vallarhúsinu á Vivaldi-velli eru einungis fjórir búningsklefar, sem ekki nægir til að bjóða aðkomuliðum og dómurum fullnægjandi aðstöðu þegar leikjaálagið er sem mest yfir sumartímann. Hefur brugðið við að leikmenn aðkomuliða eða dómarar hafi þurft að hafa fataskipti í tækjageymslu eða glersalnum. Geymslurými er af skornum skammti og sökum plássleysis og mikillar notkunar hefur reynst erfitt að halda því skipulögðu og snyrtilegu. Skrifstofuaðstaða fyrir þjálfara deildarinnar er lítil sem engin, þó ráðist hafi verið breytingar að undirlagi stjórnar knattspyrnudeildar og yfirþjálfara deildarinnar á undanförnum misserum.
Mikilvægt er að ráðast í uppbyggingu á Vivaldi-velli til að unnt sé að taka á móti þeim fjölda iðkenda sem nú eru við deildina og boðið þeim upp á aðstöðu sem rúmar starfið. Stjórn knattspyrnudeildar hefur á liðnum árum velt upp ýmsum hugmyndum og tillögum í þeim efnum, bæði hvað varðar varanlega uppbyggingu en einnig tímabundnar lausnir. Brýnt er orðið að brugðist verði við þörfinni og ráðist í uppbyggingu sem rúmar starf deildarinnar.
Mikil endurnýjun hefur átt sér stað í starfi knattspyrnudeildar á liðnu ári. Báðir þjálfarar meistaraflokka félagsins stýrðu liðum sínum sem aðalþjálfarar í fyrsta sinn. Árangur beggja liða var frábær, en kvennaliðið tryggði sér sæti í næst efstu deild að nýju eftir árs veru í annarri deild. Karlaliðið endaði í þriðja sæti næst efstu deildar sem var töluvert betri niðurstaða en spár fyrir tímabilið gerðu ráð fyrir. Þjálfarar liðanna eru nú byrjaðir að undirbúa lið sín fyrir átök komandi sumars, þar sem ætlunin er að byggja ofan á árangur síðasta sumars.
Besti mælikvarðinn á árangur í yngri flokka starfinu er í okkar huga fjöldi iðkenda og hefur þeim haldið áfram að fjölga eins og áður var nefnt. Nýr yfirþjálfari yngri flokka, Paul Westren, tekur við góðu búi. Töluverð nýliðun hefur verið í þjálfaraliðinu og bjóðum við nýja þjálfara velkomna til starfa, ásamt því sem við óskum þeim sem horfið hafa til annarra starfa velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Mikilvægasta auðlind knattspyrnudeildar er að sjálfsögðu tengingin við íbúa bæjarins, núverandi og fyrrverandi. Við sem komum að starfi leitumst við að styrkja þá taug og rækta þannig að kynslóðir af Gróttufólki vaxi úr grasi og tengist félaginu löngu eftir að knattspyrnuferlinum inni á vellinum lýkur. Sumir verða þjálfarar, aðrir vonandi dómarar, einhverjir verða foreldrar Gróttubarna og sem flestir vonandi stuðningsmenn. Þeim mun betur sem tekst til að rækta þessi tengsl, þeim mun kraftmeira verður starf deildarinnar.
Fyrir hönd stjórnar knattspyrnudeildar óska ég ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi árum. Við þökkum samstarfið á liðnu ári og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á því næsta.
Fótboltasumarið 2022
















Meistaraflokkur karla
Höfðu betur gegn spánni
Meistaraflokkur karla gerði gott mót í sumar í Lengjudeildinni. Uppaldir Gróttumenn í bland við unga og efnilega knattspyrnumenn sem gengu í raðir félagsins létu ljós sitt skína undir stjórn Christopher Brazell, yngsta þjálfara deildarinnar. Nokkrar breytingar urðu á liðinu í árslok 2021. Ágúst Gylfason lét af störfum og Chris tók við stjórnartaumunum ásamt því að Halldór Kristján Baldursson sneri sér að þjálfun og varð aðstoðarþjálfari liðsins. Gróttu var spáð 9. sæti en kom sparkspekingum heldur betur á óvart með frammistöðu sinni í sumar. Þrátt fyrir ýmsar breytingar, t.d. brotthvarf Sigurvins Reynissonar, Hákons Rafns Valdimarsson og Péturs Theódórs Árnasonar og meiðsli Kristófer Melsteds snemma sumars sýndu drengirnir frábæra frammistöðu. Nokkrir máttarstólpar voru þó enn til staðar og stór hluti liðsins búninn að æfa og spila saman í fleiri ár.
Grótta var í toppbaráttunni framan af sumri en þegar leið á tímabilið sigldu HK og Fylkir fram úr öðrum liðum og tryggðu sér efstu tvö sætin. Í síðustu umferðunum var stefnan sett á að ná 3. sætinu og það markmið náðist eftir góða sigra á Fjölni og Grindavík. Grótta lauk því leik í 3. sæti, þremur sætum ofar en árið 2021 og sex sætum ofar en spáin sagði til um! Þetta var í sjöunda sinn sem karlalið Gróttu spilar í næstefstu deild og aðeins einu sinni, árið 2019, hefur liðið endað ofar. Gaman var að fylgjast með yngri leikmönnum blómstra, s.s. Kjartani Kára, Luke Rae, Tómasi Joh, Arnþóri Páli, Degi Þór og Benjamin. Jón Ívan átti frábært
tímabil með Gróttu í sumar og var sá markvörður sem hélt oftast hreinu í Lengjudeildinni. Frammistaða hans vakti verðskuldaða athygli í efstu deild og ákvað Jón í framhaldinu að reyna fyrir sér í Bestu deildinni þar sem hann mun spila með Fylki á næsta ári.
Kjartan Kári Halldórsson var markahæstur í Gróttu þetta sumarið og einnig markakóngur Lengjudeildarinnar en hann skoraði 17 mörk í 19 leikjum. Kjartan var valinn efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar 2022 og var í úrvalsliðinu. Grótta átti einnig tvo fulltrúa á varamannabekk úrvalsliðsins, þá Jón Ívan og Arnar Þór Helgason.


Á lokahófi meistaraflokkana völdu þjálfarar besta leikmann tímabilsins, þann efnilegasta og mikilvægasta leikmanninn en leikmenn kusu um mesta naglann, hrökkbrauðið og leikmann leikmanna. Einnig voru veitt verðlaun fyrir markahæsta leikmanninn. Kjartan Kári var valinn besti leikmaðurinn og markmaðurinn Hilmar Þór Helgason var valinn sá efnilegasti. Ólafur Karel Eiríksson var kosinn mesti naglinn og Valtýr Már Michaelsson hrökkbrauð ársins.
Fjórir leikmenn liðsins æfðu og léku með yngri landsliðum Íslands í sumar,
Tómas Johannessen lék með U16 og U17 ára landsliðinu og Kjartan Kári Halldórsson, Arnar Daníel Aðalsteinsson og Sigurbergur Áki Jörundsson léku með U19 ára landsliðinu. Benjamin Friesen hefur síðustu vikur verið á reynslu hjá Werder Bremen og Tómas Johannessen var á reynslu hjá KRC Genk í nóvember. Kjartan Kári fór á reynslu í nóvember til FK Haugesund og skrifaði nýlega undir þriggja ára samning við félagið en það spilar í norsku úrvalsdeildinni. Það er því ýmislegt í gangi hjá leikmönnum Gróttu og virkilega spennandi að fylgjast með þróun þeirra.








Þjálfarateymi meistaraflokks tekur litlum breytingum á næsta ári en þó einhverjum. Chris Brazell verður áfram þjálfari meistaraflokks karla á komandi tímabili en hann skrifaði undir þriggja ára samning haustið 2021. Dominic Ankers og Halldór Kristján Baldursson verða áfram aðstoðarþjálfarar liðsins og Gareth Owen áfram markmannsþjálfari. Þeir Þór Sigurðsson styrktarþjálfari og Jón Birgir Kristjánsson sjúkraþjálfari kveðja Gróttu.

Unga kynslóðin
Aþena

Mist Guðmundsdóttir
4. flokki – fædd 2009
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: 6 ára
Hvaða stöðu spilar þú? Miðvörður
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum?
Killer og spil
En leiðinlegast? Sprettir
Góð minning úr fótboltanum? Þegar ég var í 5. flokki og við unnum Stjörnuna á Símamótinu
Uppáhalds fótboltakona/maður? Alex Morgan
Með hvaða liðum heldur þú? Liverpool Uppáhalds jólamatur? Hamborgarhryggur og hangikjöt
Albert Einar Sigtryggsson
4. flokki – fæddur 2009
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: Þegar ég var 7 ára
Hvaða stöðu spilar þú? Hægri bakvörð
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum?
Skotæfingar
En leiðinlegast? Ekkert
Góð minning úr fótboltanum? N1 2021
Uppáhalds fótboltakona/maður? Raphinha hjá Barcelona
Með hvaða liðum heldur þú? Gróttu, Arsenal og Barcelona Uppáhalds jólamatur? Kalkúnn og jólaeplasalat
Óskar Gunnar Styrmisson 5. flokki – fæddur 2011


Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: Ég byrjaði 5 ára, var þá á Sólbrekku og fór með þeim yfir á æfingar Hvaða stöðu spilar þú? Ég spila hægri bakvörð Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Spila En leiðinlegast? Það er ekkert leiðinlegt á æfingum Góð minning úr fótboltanum? Þegar ég kom einu sinni inn á í stöðunni 0-7 á móti Grindavík, við náðum að snúa leiknum við og í stöðunni 6-7 skoraði ég beint úr aukaspyrnu og jafnaði Uppáhalds fótboltakona/maður? Ronaldo, Sara Björk og Alphonso Davies Með hvaða liðum heldur þú? Liverpool, Gróttu og La Spezia (bróðir minn spilar þar) Uppáhalds jólamatur? Kalkúnn
Edda Regína Stefánsdóttir
5. flokki – fædd 2011
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: 7 ára Hvaða stöðu spilar þú? Vörn og miðju Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Spila og tækniæfingar En leiðinlegast? Örugglega bara sprettur Góð minning úr fótboltanum? Þegar ég skoraði á loka mínútunni frá miðju á móti Haukum á Símamótinu í 6.flokki
Uppáhalds fótboltakona/maður? Sara Björk
Með hvaða liðum heldur þú? Manchester United og smá með Juventus út af Söru Uppáhalds jólamatur? Kalkúnn

Sólveig Katla Árnadóttir

6. flokki – fædd 2013

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: 4 og 1/2 árs gömul
Hvaða stöðu á vellinum finnst þér skemmtilegast að spila? Á miðjunni
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Spila. All the way!
En leiðinlegast? Að vera send á línuna þegar Jórunn vill láta okkur bíða
Góð minning úr fótboltanum? Þegar við lentum í 3. sæti á fyrsta Símamótinu sem ég tók þátt í, það var svo gaman Uppáhalds fótboltakona/maður? Sveindís Jane og Mo Salah
Með hvaða liðum heldur þú? Real Madrid, Liverpool og Gróttu. Og auðvitað íslenska landsliðinu Uppáhalds jólamatur? Hamborgarhryggur
Christian Rafn Pálmason 6. flokki – fæddur 2013
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: 3 ára Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Spila
En leiðinlegast? Skothringur er frekar pirrandi :)
Góð minning úr fótboltanum? Að við áttum Gróttumann í Orkumótsliðinu
Uppáhalds fótboltakona/ maður? Það var Pálmi Rafn Pálmason en er núna Cristiano
Ronaldo
Með hvaða liðum heldur þú? Gróttu, KR, Arsenal, KA Uppáhalds jólamatur? Hangikjöt með hvítri sósu

Þórhallur Dan Johansen
7. flokki – fæddur 2015
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: 4 ára Hvaða stöðu á vellinum finnst þér skemmtilegast að spila? Miðjumaður
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Killer
En leiðinlegast? Ekkert Góð minning úr fótboltanum? Þegar ég nelgdi beint úr aukaspyrnu frá miðju í sammarann á Petit mótinu í sumar Uppáhalds fótboltakona/maður? Ronaldo
Með hvaða liðum heldur þú? Gróttu og Man Utd Uppáhalds jólamatur? Rjúpa
Fríða Daðadóttir
7. flokki – fædd 2015

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta: Þegar ég var í 1. bekk
Hvaða stöðu á vellinum finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Spila
En leiðinlegast? Ekkert Góð minning úr fótboltanum? Það var gaman á Símamótinu Uppáhalds fótboltakona/maður? Sveindís Jane
Með hvaða liðum heldur þú? Gróttu, Val og KR Uppáhalds jólamatur? Purusteik
Meistaraflokkur kvenna
Gróttukonur upp í Lengjudeildina
Eftir að hafa fallið með naumindum úr Lengjudeild kvenna sumarið 2021 var markmið síðasta tímabils aðeins eitt: Að komast aftur upp. Gróttukonum var spáð 1. sæti af sparksérfræðingum enda leit liðið vel út, bæði á pappír og á vellinum. Stærsti hluti hópsins hélt tryggð við félagið og tók slaginn í 2. deildinni, ákveðnar í að stoppa stutt í deildinni. Undirbúningstímabilið gekk vel. Grótta fékk liðsstyrk úr ýmsum áttum og fór í vel heppnaða æfingaferð til Spánar í lok marsmánaðar.
Um vorið gengu til liðs við Gróttu þrjár ungar konur frá Bandaríkjunum sem settu svip sinn á liðið. Vegna meiðsla þurfti Jennifer Lum því miður frá að hverfa fljótlega eftir komu sína en Kayla Thompson og Ariela Lewis urðu máttarstólpar í liðinu, sitthvoru megin á vellinum. Ljóst er að mikið er til af efnilegum knattspyrnukonum innan félagsins og fengu nokkrar þeirra tækifæri með meistaraflokki í sumar. Þær Jóna Guðrún Gylfadóttir og Sara Björk Arnarsdóttir, fæddar 2007 og 2008, léku með liðinu í Lengjubikarnum og Arnfríður Auður Arnarsdóttir, fædd 2008, lék sex leiki í 2. deildinni og skoraði í þeim fjögur mörk áður en hún varð fyrir meiðslum sem héldu henni frá vellinum út tímabilið.
Sumarið byrjaði vel og vann Grótta fyrstu þrjá leiki sína sannfærandi. Í kjölfarið gerðu Gróttukonur tvö jafntefli en héldu þó áfram á sigurbraut eftir það fyrir utan eitt tap gegn Völsungi. Fyrirkomulag 2. deildar kvenna þetta árið var þannig að spiluð var einföld umferð og deildinni síðan skipt upp í efri og neðri hluta. Grótta endaði í 3. sæti með 26 stig eftir einfalda umferð og var því í efri hluta deildarinnar. Ásamt Gróttu í efri hlutanum voru Fram, Völsungur, ÍR, ÍA og KH. Í fyrsta leik úrslitakeppninnar, þann 26. ágúst, gerði Grótta 1-1 jafntefli við ÍA og voru sömu úrslit rúmri viku síðar gegn Fram. Þriðji leikurinn fór fram á Húsavík gegn Völsungi við erfiðar aðstæður. Leikurinn var gríðarlega mikilvægur í toppbaráttunni og þurftu Gróttukonur
að sækja til sigurs. María Lovísa skoraði á 79. mínútu og tryggði Gróttu mikilvægustu úrslit sumarsins! Grótta vann síðan öruggan sigur á KH, 5-1, sunnudaginn 18. september en þá var þó ekkert öruggt í þeim efnum hvort


Gróttukonur kæmust upp um deild eða ekki, enda einn leikur eftir. Klukkan sex sama dag sigraði ÍA hins vegar Völsung sem varð til þess að Gróttukonur voru öruggar upp um deild! Stelpurnar voru því hver í sínu horni heima þegar fréttirnar bárust frá Húsavík en voru ekki lengi að hópast saman á Rauða Ljóninu og fagna áfanganum. Þá áttu Gróttukonur einn heimaleik eftir og var árangrinum fagnað enn frekar eftir þann leik. Gróttufólk fjölmennti á Vivaldivöllinn þar sem Gróttukonur
fengu silfurmedalíur afhentar frá KSÍ. Á lokahófi meistaraflokkana völdu þjálfarar besta leikmann tímabilsins, þann efnilegasta og mikilvægasta leikmanninn en leikmenn kusu um mesta naglann, hrökkbrauðið og leikmann leikmanna. Einnig voru veitt verðlaun fyrir markahæsta leikmanninn. Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir var valin besti leikmaðurinn og Lilja Davíðsdóttir Scheving sú efnilegasta. Mikilvægasti leikmaðurinn var Bjargey Sigurborg Ólafsson, mesti naglinn Nína Kolbrún
Gylfadóttir og að lokum hrepptu Margrét Rán Rúnarsdóttir og Patricia Dúa Thompson Landmark titilinn hrökkbrauð ársins.


Pétur Rögnvaldsson verður áfram þjálfari meistaraflokks kvenna á komandi tímabili en hann skrifaði undir tveggja ára samning haustið 2021. Melkorka Katrín Flygenring Pétursdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarþjálfari en hún kemur til félagsins frá FH og þjálfar einnig 5. flokk kvenna.





Fótboltasumarið 2022


















Emelía Óskarsdóttir
Fyrsta Gróttukonan í
atvinnumennsku
Emelía hóf knattspyrnuferil sinn í 8. flokki Gróttu fimm ára gömul og lék upp yngri flokkana með Gróttu og Gróttu/KR. „Orri bróðir minn var búinn að vera í tvö ár í fótbolta og við horfðum mikið á fótbolta saman, söfnuðum fótboltaspilum og svoleiðis svo um leið og ég hafði aldur til þá var ég mætt á æfingu.“ Emelía æfði margar íþróttir þegar hún var yngri en þegar hún byrjaði í 6. bekk í Mýrarhúsaskóla varð fótboltinn númer
eitt, tvö og þrjú. „Ég var búin að vera að æfa ýmislegt annað með fótboltanum - handbolta, karate, fimleika, selló og píanó... nefndu það, ég prófaði það. Síðan þegar ég var byrja í 6. bekk þá var það bara fótboltinn.“ Emelía æfði og keppti bæði með strákum og stelpum í yngri flokkum Gróttu og þótti snemma mjög efnileg. „Ég tók alltaf svona annaðhvert ár, þegar ég var á yngra ári þá æfði ég með stelpunum, 2005 og
2006 og síðan þegar ég var á eldra ári var ég að æfa og spila með strákunum. Þetta var ekki beint planað samt.“ Vorið 2020, þegar Emelía var nýorðin 14 ára, byrjaði hún að æfa með meistaraflokki Gróttu sem var þá á leið í sitt fyrsta tímabil í Lengjudeildinni. Emelía spilaði 12 leiki með liðinu í Lengjudeildinni það sumarið og skoraði eitt mark.

Hlutirnir gerðust hratt eftir áhuga Kristianstads
Sumarið 2021 flutti Emelía til Danmerkur og spilaði með unglingaliðum BallerupSkovlunde Fodbold, betur þekktu sem BSF, þar sem frammistaða hennar vakti athygli Kristianstad og fleiri stórliða. Í byrjun janúar á þessu ári fór Emelía á reynslu til Kristianstad og í framhaldinu skrifaði hún undir hjá félaginu. „Þetta gerðist frekar hratt, ég var uppi í sumarbústað milli jóla og nýárs með Covid þegar Beta (Elísabet Gunnarsdóttir) bað okkur um að koma á fund og í framhaldinu hvort ég vildi koma á reynslu. Viku seinna var ég komin út á æfingu. Það voru nokkur
„Þetta var bara ein besta tilfinning sem ég hef upplifað. Það er erfitt að lýsa því en það er klikkað að koma inn á í þessu andrúmslofti og með allan þennan fjölda í stúkunni. “
önnur dönsk lið sem höfðu sýnt mér áhuga, m.a. FC Nordsjælland og það munaði litlu að ég færi þangað en mér leist best á Kristianstad og sé ekki eftir þeirri ákvörðun. Þetta er risastór breyting en ég hef verið fljót að aðlagast.“
Hin 16 ára Emelía skrifaði undir þriggja ára samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Kristianstads
DFF sem tók gildi í mars á þessu ári. Fyrstu vikurnar í Svíþjóð lék hún með unglingaliði Kristianstads, U19 ára liðinu sem er svipað 2. flokki hérlendis, en æfði með aðalliðinu. Emelía spilaði síðan sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið í apríl þegar liðið mætti Eskilstuna í sænsku deildinni. „Ég kom inná fyrir Amöndu Andradóttur í seinni hálfleik. Ég var í hálfgerðu blackouti af spenningi og hljóp inn á vitlausan kant. Ég var samt meira spennt heldur en stressuð. Mamma var að horfa í stúkunni og hún sagði að ég hefði staðið mig rosalega vel.“


Eins og lítil fjölskylda
En hvernig líður þessari 16 ára stelpu frá Seltjarnarnesi í sænska úrvaldsdeildarliðinu Kristianstads? „Mér líður bara frábærlega, þetta er mjög gott umhverfi. Allir liðsfélagarnir mínir eru yndislegir og þjálfarateymið líka, þetta er bara eins og lítil fjölskylda.
Í liðinu eru leikmenn eins og kanadísku landsliðskonurnar Evelyne Viens og Gabrielle Carly, sem urðu Ólympiumeistarar með kanadíska landsliðinu í Tókíó 2021. Evelyne er framherji og Carly er varnarmaður og þær hafa tekið mér frábærlega og kennt mér mikið. A-landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir var að ganga til liðs við okkur og ég hlakka mikið til að kynnast henni og spila með henni. Svo er auðvitað góð vinkona mín Amanda í liðinu og það er alltaf gaman að vera með henni. Þótt allir séu góðir vinir þá er þetta mjög sterkt lið með mörgum landsliðskonum og samkeppnin er mikil. “
Elísabet Gunnarsdóttir hefur verið aðalþjálfari Kristianstad síðan árið 2009 og er á sínu þrettánda ári með liðið. Emelía segir að það hjálpi til að vera með íslenskan þjálfara þegar verið er að aðlagast breyttum aðstæðum. „Það hjálpar til sérstaklega þegar maður er svona ungur að taka stórt skref. Þótt ég kunni ensku þá er þetta aðeins heimilislegra, að geta bara talað sitt tungumál við þjálfarann og hún við mig. Það munar miklu finnst mér. Það sem hefur líka breyst er að í aðalliði Kristianstad er töluð enska sem er auðveldari fyrir mig heldur en danskan
í unglingaliðunum í Danmörku og sænskan í unglingaliðunum í Svíþjóð. Það gat oft verið mjög erfitt að skilja fyrirmælin og planið í hálfleik í þeim leikjum og stundum vissi ég hreinlega ekki hvað þjálfarinn var að segja. Þá var bara að fara út, hlaupa með boltann framhjá vörninni og skora,“ segir Emelía hlæjandi.
Stórt stökk Það felast ýmsar áskoranir í því að flytja til útlanda og hefja nýjan kafla, hvað þá þegar maður er 16 ára. En hverjar hafa verið helstu áskoranirnar að mati Emelíu?
„Fótboltalega séð þá var það klárlega þetta stóra skref að fara úr 3. flokks eða U16 fótbolta, í fullorðinsfótbolta í aðalliðinu. Ég var samt fljót að aðlagast bæði félagslega og fótboltalega og þar hjálpaði æfingaferð sem við fórum í til Spánar mikið. Líka að mamma, Orri og Magnea systir mín voru í Kaupmannahöfn sem er bara einn og hálfan tíma í burtu og mamma kom mjög oft til mín á meðan ég var að aðlagast.“ Aðspurð hvað kom Emelíu mest á óvart við það að fara til Svíþjóðar segir hún að það sé tempóið. „Tempóið var svo ótrúlega hátt miðað við það sem ég var vön. Ég var alveg að búast við því að það yrði hátt en þetta var svona next level.“ Það er stórt stökk að fara úr því að spila með unglingaliðum í að spila með Kristianstads í sænsku úrvalsdeldinni. Emelía nefnir að hún hafi þroskast mikið sem leikmaður eftir að hún kom í Kristianstad, en einnig sem einstaklingur. „Ég er orðin miklu sjálfstæðari eftir að ég flutti út, það fylgir þessu. Eitt af því sem mér finnst ég hafa bætt sem leikmaður er að ég er orðin mun þroskaðri og sterkari leikmaður heldur en þegar ég kom fyrst til Kristianstads. Ég var mikið að hlaupa bara með boltann í hvert sinn sem ég fékk hann, en leikskilningurinn hefur aukist mikið og því fylgja betri ákvarðanir þegar ég er með boltann. Ég er orðin betri skotmaður, bæði með hægri og vinstri. Svo hef ég líka bætt mig mikið í taktík, hef lært helling hérna enda miklu meiri áhersla lögð á taktík en heima.“

„Markmiðið mitt er að spila með einhverjum af bestu liðum heims og verða ein af bestu leikmönnum í heimi. Það er ekki flóknara en það.“
Hvernig er hinn týpíski dagur hjá Emelíu í Svíþjóð? „Ég vakna og fæ mér hafragraut, læri það sem ég þarf þann daginn og horfi á Grey’s Anatomy inni á milli. Legg síðan af stað á æfingu um svona tvö leytið, ég er í hálftíma í strætó á leiðinni á völlinn. Það er oftast æfing kl. 15:30 eða 16. Eftir æfingu erum við aðeins inni í teygjuherbergi að teygja á, síðan fer ég heim og borða með fósturfjölskyldunni minni og hef það huggulegt. Þetta er venjulegur dagur á tímabilinu. Þegar undirbúningstímabilið er í gangi þá æfum við tvisvar á dag flesta daga, styrkur á morgnanna klukkan átta og fótbolta og taktík á daginn. Það er mjög krefjandi tímabil og þá gerir maður lítið annað en að borða, æfa og sofa.“
Fyrsta markið kom í september Í september síðastliðnum skoraði Emelía sitt fyrsta mark fyrir aðallið Kristianstads í sænsku úrvalsdeildinni. Emelía kom inn á undir lok fyrri hálfleiks þegar Kristianstads tók á móti Hammarby. Hún skoraði þriðja mark liðsins en Kristianstads fór með 3-1 sigur. Hvernig var tilfinningin? „Þetta var bara ein besta tilfinning sem ég hef upplifað. Það er erfitt að lýsa því en það er klikkað að koma inn á í þessu andrúmslofti og með allan þennan fjölda í stúkunni. Þetta var erfiður leikur, hátt tempó og gaman að koma inná. Þetta var í fyrsta sinn sem ég hafði spilað svona mikið með liðinu og bara geggjað að ná að skora. Einfaldlega frábær tilfinning.“
Hvað finnst þér best að borða fyrir leiki? „Það er mjög mismunandi eftir því klukkan hvað við erum að spila en ég er ekki beint með eitthvað sérstakt sem ég borða fyrir leik. Ég borða oft pasta með kjúkling, pestó og maísbaunummér finnst það mjög gott. Svo borða ég eiginlega alltaf egg svona klukkutíma fyrir leik.“
Emelía er uppalin Gróttukona og æfði og spilaði upp alla yngri flokka félagsins og með meistaraflokki áður en hún flutti til Danmerkur í fyrra. En hvers saknar hún mest við Gróttu? „Það er erfitt að útskýra það… ég sakna bara Gróttu, heildarinnar.“ Undirrituð skilur hvað hún á við og annað Gróttufólk gerir það eflaust líka.
Emelía stefnir enn hærra í framtíðinni og eru markmið hennar að sjálfsögðu háleit, enda ótrúlega góður og efnilegur leikmaður hér á ferð. „Markmiðið mitt er að spila með einhverjum af bestu liðum heims og verða ein af bestu leikmönnum í heimi. Það er ekki flóknara en það.“
Emelía er frábær fyrirmynd fyrir ungra iðkendur í Gróttu og er það mikið gleðiefni að ungir Gróttuleikmenn eigi ekki einungis góðar fyrirmyndir innan félagsins heldur einnig úti í heimi. En er Emelía með einhver ráð til ungra leikmanna í Gróttu? „Já, að æfa mikið og muna að hafa gaman, það er mikilvægt. Einnig að muna að æfa vinstri fótinn sinn líka og hægri fótinn ef þú ert betri með vinstri.“

















Aðstoðarþjálfarar



















Vil þroskast bæði sem manneskja og fótboltamaður

Kjartan Kári Halldórsson á leið í norsku úrvalsdeildina
Kjartan Kári Halldórsson er 19 ára Seltirningur sem hefur æft og spilað með Gróttu alla tíð. Kjartan hefur nú spilað 48 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu og skorað í þeim 29 mörk. Hann var valinn efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar í sumar ásamt því að vera markakóngur með 17 mörk í 19 leikjum. Kjartan Kári á einnig að baki 13 leiki fyrir U19 og U16 ára landslið Íslands og æfði í haust í fyrsta sinn með U21 árs landsliðinu. Nýverið gerðu Kjartan Kári og knattspyrnudeild Gróttu samkomulag við norska úrvalsdeildarfélagið FK Haugesund um að Kjartan gengi til liðs við félagið.
Haugesund endaði í 10. sæti norsku deildarinnar á liðnu tímabili en félagið hefur leikið í úrvalsdeildinni, Eliteserien, frá árinu 2010 og best náð þriðja sæti. Ljóst er að það eru gríðarlega spennandi tímar framundan hjá Kjartani Kára sem er núna að fara að stíga sín fyrstu skref í atvinnumennsku eftir frábært tímabil með Gróttu í sumar.

Kjartan Kári er fæddur og uppalinn á Seltjarnarnesi og fór á sína fyrstu fótboltaæfingu þegar hann var þriggja og hálfs árs gamall. „Bróðir minn var að æfa fótbolta í Gróttu og við vorum
oft að leika okkur á vellinum sem varð til þess að ég fór á mína fyrstu æfingu. Ég prófaði líka handbolta en fannst fótboltinn alltaf skemmtilegri svo ég var bara í honum.“ Kjartan fór í gegnum allt yngri flokka starf félagsins og spilaði sína fyrstu keppnisleiki með meistaraflokki sumarið 2020, þegar Grótta lék í úrvalsdeild í fyrsta sinn í sögu félagsins. Þá var Kjartan 17 ára. Fyrsti leikur Kjartans var þegar Grótta tók á móti Breiðablik á Vivaldivellinum á ágústkvöldi og fór leikurinn 0-1 fyrir Breiðablik. Samkomutakmarkanir voru við í gildi og máttu einungis vera 20
áhorfendur á vellinum. Kjartan kom inn á í seinni hálfleik gegn hörkuliði Breiðabliks sem var undir stjórn fyrrum þjálfurum Gróttu, Óskari Hrafni Þorvaldssyni og Halldóri Árnasyni. „Þetta var mjög stressandi, að spila minn fyrsta meistaraflokksleik í efstu deild á móti Breiðablik. Ég var að stíga mín fyrstu skref í meistaraflokki þetta sumar og þetta var krefjandi leikur gegn stærsta fótboltaklúbb á Íslandi. Í þokkabót var ég að spila gegn Óskari sem hafði fylgt mér upp marga yngri flokka sem þjálfari.“
Markakóngurinn sprakk út í sumar Kjartan tók sín fyrstu skref í meistaraflokki sumarið 2020 en var svo lykilleikmaður liðsins í Lengjudeildinni ári síðar þar sem hann lék 19 leiki fyrir Gróttu og skoraði í þeim átta mörk. Kjartan var valinn efnilegasti leikmaður Gróttu á lokahófi meistaraflokkana eftir tímabilið árið 2021 og hlaut einnig nafnbótina íþróttamaður æskunnar ársins 2021 hjá Gróttu. Í sumar sprakk Kjartan út í Gróttuliðinu og varð markakóngur Lengjudeildarinnar með 17 mörk í 19 leikjum ásamt því að vera kosinn efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar. Á lokahófi meistaraflokkanna var Kjartan valinn besti leikmaður ársins hjá Gróttu og kom það fáum á óvart. Kjartan hefur því fengið ófáar viðurkenningar fyrir frammistöðu sína síðustu tvö ár. Mikið var fjallað um Kjartan af sparkspekingum í fjölmiðlum en hann lét það ekki hafa áhrif á sig. „Það er alltaf gott að fá gott umtal og góða dóma í fjölmiðlum en ég las minnst af því sem var skrifað. Þetta voru hlutir sem ég vissi af en markmið mín hafa alltaf verið þau sömu, að halda fókus, spila góðan fótbolta og vera samkvæmur sjálfum mér en ekki því sem skrifað er um mig.“
Draumurinn um atvinnumennsku að rætast
Ljóst er að það þarf mikinn metnað og áhuga til að ná þeim árangri sem Kjartan hefur tekist að ná síðustu misseri. En hefur Kjartan alltaf haft svona mikinn áhuga og metnað fyrir fótbolta? „Ég hef alltaf verið með mikinn metnað í fótbolta. Ég varð fljótt mjög áhugasamur
og vildi aldrei missa af æfingu. Mér hefur alltaf fundist gaman að vera í íþrótt þar sem liðsheildin skiptir máli. Ætli það hafi ekki verið í svona 5. flokki sem metnaðurinn fór að verða mikill hjá mér.“ Kjartan þekkir að það þarf að leggja mikið á sig til að ná markmiðum sínum og nú er hann svo sannarlega að uppskera. „Frá því að ég vissi að ég vildi leggja fótbolta fyrir mig sem framtíðarvinnu hefur markmiðið verið að komast í atvinnumennsku. Þetta hefur verið krefjandi vinna en hún er að skila mér því sem mig hefur alltaf dreymt um.“
Nokkur lið reyndu að fá Kjartan í sínar raðir í félagsskiptaglugganum í sumar en Kjartan kláraði tímabilið með Gróttu. „Þetta var bara ákvörðun sem ég tók sjálfur, mig langaði að klára tímabilið með Gróttu.“ Líkt og komið hefur fram samdi Kjartan Kári við Haugesund í nóvember síðastliðnum en hann vakti áhuga erlendis og hér heima fyrir eftir frammistöðu sína í sumar. „Haugesund hafði samband við Gróttu til að fá mig á reynslu til sín og ég fór þangað í eina viku. Þeim leist vel á mig og vildu semja við mig og mér leist vel á félagið. Þetta er mjög flottur klúbbur, góð æfingaaðstaða, frábærir leikmenn og þjálfarar. Ég fann strax að það er mikill metnaður í klúbbnum um að standa sig vel.“ Kjartan var orðaður við ýmis lið í Bestu deildinni, komu þau til greina? „Það kom ýmislegt annað til greina hér á landi en markmið mín hafa alltaf náð út fyrir landsteinana og með þessum samning hef ég stigið mín fyrstu skref í þeim efnum.“ Kjartan fór á reynslu til Bodö/Glimt í október 2021 þar sem
hann og Arnþór Páll Hafsteinsson æfðu með unglingaliðum félagsins og aðalliðinu. Í janúar síðastliðnum æfði Kjartan aftur með Noregsmeisturum Bodö/Glimt á Marbella á Spáni og keppti þar með liðinu. Ferðirnar fóru klárlega í reynslubankann hjá Kjartani og voru góður undirbúningur fyrir framtíðina.
Áskorun framundan
Aðspurður hver framtíðarmarkmið Kjartans séu í boltanum segir hann að það sé að halda áfram að læra og þroskast sem manneskja og fótboltamaður. „Gefa allt í það að vera besta útgáfan að sjálfum mér sem félagi og liðsmaður. Það verður áskorun fyrir mig að flytja í annað land og að standa á eigin fótum en markmiðið mitt er að gleyma aldrei að vera samkvæmur sjálfum mér og halda áfram að spila eins góðan fótbolta og mér mögulega tekst til. Vonandi verður það farsælt bæði fyrir mig og Haugesund.“

Kjartan Kári er frábær fyrirmynd fyrir unga leikmenn Gróttu en það er draumur margra að spila fótbolta erlendis og hafa af því atvinnu. Kjartan er að lokum með þessi ráð til ungra Gróttuleikmanna: „Að leggja sig 100% fram og taka allar aukaæfingar sem völ er á. Kjarni málsins er samt einfaldur - aldrei hætta, þó að það komi erfiðir tímar þar sem annað fangar hugann og manni finnst ekkert ganga upp. Hunsa tilfinninguna þegar manni finnst maður búinn að missa áhugann, ekki hlusta á annað fólk. Halda áfram, no matter what.“
„Þetta var mjög stressandi, að spila minn fyrsta meistaraflokksleik í efstu deild á móti Breiðablik. Ég var að stíga mín fyrstu skref í meistaraflokki þetta sumar og þetta var krefjandi leikur gegn stærsta fótboltaklúbb á Íslandi. Í þokkabót var ég að spila gegn Óskari sem hafði fylgt mér upp marga yngri flokka sem þjálfari.“
Jóna Guðrún Hilmir
& eru framtíðarleikmenn Gróttu.
Hér eru þau spurð spjörunum úr!

Myndi byggja innanhúss fótboltavöll
Nafn: Jóna Guðrún Gælunafn: Pabbi kallar mig stundum Johnnie
Aldur: 15 ára Staða á vellinum: Miðja Hvenær byrjaðirðu að æfa fótbolta? Í 8. flokki
Fyrirmynd í fótbolta? Megan Rapinoe Með hvaða liði heldurðu í ensku? Arsenal
Uppáhalds sjónvarpsþáttur? How I Met Your Mother Sætasti sigurinn? Þegar við unnum í vítaspyrnukeppni á Gothia Cup og komumst í 8-liða úrslit.
Uppáhalds jólahefð? Skera í laufabrauð með fjölskyldunni
Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndiru breyta? Byggja innanhúss fótboltavöll.
Besta moment í ár með Gróttu? Keppa á Gothia Cup
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta? Nei ég er svo raunsæ Skemmtilegasta að gera á æfingu? Spila
En leiðinlegasta? Sprettir Eftirminnilegt augnablik úr boltanum? Þegar ég var valin í landsliðið á TM mótinu í Eyjum og skoraði
Framtíðardraumur í fótboltanum? Að spila fótbolta í háskóla í útlöndum
Hvað færðu þér í bragðaref? Jarðarber, Snickers og kökudeig
Ef þú værir föst á eyðieyju og gætir tekið þrjá leikmenn úr liðinu þínu með þér, hverja myndiru taka og af hverju? Dóru, Karolínu og Ingu af því að þær eru svo duglegar á árunum og myndu róa bátnum sem ég myndi smíða og stýra röggsamlega heim af eyjunni
Besti jólamaturinn? Kalkúnn með sósu og fyllingu sem amma gerir
Skallatennis það skemmtilegasta
Nafn: Hilmir Pétursson
Gælunafn: Hilmirinn19
Aldur: 16 ára
Staða á vellinum: Miðjumaður
Hvenær byrjaðiru að æfa fótbolta? 4 ára
Fyrirmynd í fótbolta? Luka Modric
Með hvaða liði heldurðu í ensku? Man United
Uppáhalds sjónvarpsþáttur? The OC
Sætasti sigurinn? 4-0 sigur á móti
Leikni í 3. flokki
Uppáhalds jólahefð? Möndlugrautur
Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndiru breyta? Lækka skatta
Besta moment í ár með Gróttu? Lokahóf 2. flokks
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta? Hafragrautur á morgnana fyrir leik
Skemmtilegasta að gera á æfingu? Skallatennis
En leiðinlegasta? Halda bolta
Eftirminnilegt augnablik úr boltanum? Að fara á ÍslandEngland á EM 2016
Framtíðardraumur í fótboltanum?
Spila fyrir meistaraflokk Gróttu eða Kríu
Hvað færðu þér í bragðaref? Daim, kökudeig og smartieskurl
Ef þú værir fastur á eyðieyju og gætir tekið þrjá leikmenn úr liðinu þínu með þér, hverja myndiru taka og af hverju? Ég myndi taka þá alla með Besti jólamaturinn? Hamborgarhryggur
„Það þarf að ganga í hlutina til að eitthvað breytist“

Viðtal við Huldu Mýrdal Gunnarsdóttur, annan stofnanda Heimavallarins
Hulda Mýrdal Gunnarsdóttir og Mist Rúnarsdóttir byrjuðu með fyrsta íslenska hlaðvarpsþáttinn um knattspyrnu kvenna í lok árs árið 2018 undir nafninu Heimavöllurinn. Á þeim tíma var ekkert hlaðvarp um knattspyrnu kvenna og þær tóku af skarið til auka umræðu og áhuga. Markmiðið var að auka sýnileika knattspyrnukvenna sem fyrirmyndir og breyta leiknum. Síðan þá hefur Heimavöllurinn stækkað og er m.a. orðin knattspyrnuverslun í Faxafeni.
Síðan Heimavöllurinn var stofnaður árið 2018 hefur verkefnið stækkað mikið og hlaðvarpsþættirnir eru í dag hluti af mikla stærra verkefni. Heimavöllurinn er á öllum helstu samfélagsmiðlum þar sem knattspyrnu kvenna eru gerð skil á lifandi hátt alla daga ásamt því að Hulda Mýrdal hefur haldið áritunarviðburði og verið með umfjöllun og viðtöl á yngri flokka mótum þar sem markmiðið er að knattspyrnukonur á öllum aldri upplifi að sviðsljósið sé þeirra. Hulda Mýrdal og Þórunn María G. Kærnested opnuðu knattspyrnuverslunina Heimavöllinn
í Faxafeni 10 þann 1. nóvember sl. eftir að hafa verið með vefverslunina Heimavöllurinn.is síðustu tvö ár. Þórunn hefur síðustu tvö ár unnið hörðum höndum að Heimavellinum ásamt Huldu. Markmiðið hefur skýrt frá fyrsta degi - að breyta leiknum í samfélaginu og auka sýnileika knattspyrnukvenna sem fyrirmyndir.
Hulda Mýrdal er fædd árið 1989, uppalin í Vesturbænum og á rætur að rekja til Akraness. Hún hefur alla tíð verið mikið í íþróttum, hefur gaman af lífinu og
framkvæmir þær hugmyndir sem hún fær. „Ég er ekkert að taka sjálfri mér of alvarlega.“ Hulda byrjaði að æfa fótbolta þegar hún var fimm ára gömul í KR. „Það kom ekkert annað til greina þar sem pabbi var á þeim tíma læknir KR liðsins. Ég spilaði bæði fótbolta og körfubolta með KR og handbolta í Gróttu þar sem ég var í Grandaskóla. Frá fimm ára aldri fór ég aldrei út úr húsi án bolta og þegar ég var níu ára þurfti mamma að segja upp áskrift af Sýn, sem sýndi alla leiki í ensku deildinni, til að koma mér út úr húsi um helgar.“ Hulda spilaði sinn fyrsta
leik fyrir meistaraflokk KR árið 2004, þá 15 ára gömul, í Reykjavíkurmótinu. „KR liðið var gríðarlega sterkt og það fer í minningarbankann að hafa æft með Eddu Garðars, Emblu Grétars, Guðrúnu Sóleyju, Hólmfríði Magnúsdóttur, Olgu Færseth, Ólínu Viðars og Katrínu Ómars.“ Leikirnir með KR í efstu deild urðu aðeins átta og langaði Huldu að spila meira. Hún fór því á lán í ÍR í Pepsi deildinni og síðan í Fram í 1.deildina. „Ég var fyrirliði þar og spilaði fjögur tímabil með þeim. Ég ákvað svo að slá til og fara á Vopnafjörð að spila sumarið 2015. Þar lendi ég í því að fá slæmt olnbogaskot í leik og heilahristing sem hafði þau áhrif að ég hef ekki spilað fótbolta síðan.“

Upphaf Heimavallarins
Við biðjum Huldu að segja okkur frá því hvernig hugmyndin að Heimavellinum vaknaði. „Árið 2018 er ég mikið að hlusta á hlaðvörp um fótboltann og fannst sérstakt að það væri ekki eitt einasta hlaðvarp um knattspyrnu kvenna í boði. Ég hafði samband við Mist Rúnarsdóttur þar sem ég vissi að hún hefði fjallað um fótbolta í mörg ár á Fótbolti.net. Við ákváðum að hittast í nóvember 2018 og prófa að taka upp einn þátt og ákváðum að nafnið yrði Heimavöllurinn. Fyrsti þátturinn fékk yfir 12.000 hlustanir. Til að auka áhugann frekar ákváðum við að opna Instagram reikning (@heimavollurinn).“ Eftir að Hulda og Mist byrjuðu með hlaðvarpið fengu þær fjölmargar ábendingar frá fótboltastelpum og foreldrum að það væri hvergi hægt að fá fótboltatreyjur eða plaköt tengd fótboltakonum. Svörin sem foreldrar fengu í íþróttabúðum voru að það væri engin eftirspurn eftir þessum vörum. „Mér fannst þetta galið
og til að gera mjög langa sögu stutta opnaði ég vefverslunina heimavöllurinn. is rétt fyrir jólin 2020. Við fengum bestu leikmenn landsins í myndatöku og hönnuðum plaköt með því markmiði að hvetja fótboltastelpur áfram. Fljótlega varð lagerinn of stór fyrir stofuna heima og nú hef ég opnað verslun í Faxafeni 10 þar sem hefur verið stöðugur straumur af fótboltakrökkum og foreldrum. Við bjóðum upp á fótboltavörur fyrir öll kyn og frá öllum liðum en sérstaða okkar er sú að við leggjum áherslu á sýnileika knattspyrnukvenna. Mig langaði að opna skemmtilega verslun þar sem fótboltakrakkar geta skoðað allskonar fótboltavörur á sama tíma og stjörnurnar á Heimavellinum eru knattspyrnukonur.
Ég sé hvað það gefur fótboltastelpum mikið að geta speglað sig í þeim og þetta víkkar sjóndeildarhringinn fyrir fótboltastráka. Þetta þarf ekki að vera flókið, það er hægt að gera samfélagið fallegra. Þetta er bara eftir allt saman bara fótbolti, skemmtilegasta íþrótt í heimi.“

Ljóst er að gríðarleg ástríða er að baki verkefninu hjá Huldu. „Það sem dreif mig áfram í upphafi voru áhrifin og það var greinilegt að vandamálið var ekki skortur á eftirspurn. Það er erfitt fyrir fólk að hafa áhuga á einhverju sem það sér aldrei og það var nákvæmlega staðan. Vinnan fór því í að gera knattspyrnukonur á öllum aldri sýnilegar. Ég trúði svo innilega á að það væri hægt að gera miklu stærri hluti. Það bara kveikti eitthvað innan í mér að heyra stanslaust að „það væri enginn áhugi” þegar ég upplifði allt annað. Árið 2018 ætlaði ég í framhaldsnám í sálfræði en ákvað að hætta við það og skrá mig í vefmiðlun til að læra að klippa efni. Ég var með margar hugmyndir og vildi framkvæma þær því það þurfti að breyta hlutunum og það strax.“
Heimavöllurinn er orðinn gríðarlega stór, með sjö þúsund fylgjendur á Instagram og verslun í Faxafeni er orðin að veruleika. Upphaflega hugmyndin var einungis hlaðvarp og markmiðið að auka umræðuna með þeim hætti. „Mér fannst gríðarlega mikilvægt að gera fleiri og stærri hluti þegar ég sá hvað það var mikil þörf á þeim. Boltinn hefur svo rúllað og að baki liggur mikil vinna. Það hefur ekki verið neitt markmið. Það er bara að gera það sem ég geri af öllu hjarta og ég held að sú vinna smiti út frá sér. Það er hálf óraunverulegt að vera í Faxafeni 10 með verslun og sjá gleðina hjá fótboltastelpum þegar þær koma inn. Þá hugsa ég bara: Já, þetta er ástæðan fyrir að ég hafði alltaf trú á þessu.“
Heimavöllurinn hefur augljóslega haft mikil áhrif á sýnileika kvennaknattspyrnu á Íslandi og hefur umfjöllun í fjölmiðlum stóraukist. „Það eru miklu fleiri fréttir í dag sem innihalda fleira en einungis úrslit leikja. Mér finnst ótrúlega gaman að sjá hvað áhuginn hefur aukist og þetta spilar allt saman. Þegar umfjöllun eykst - þá auðvitað eykst áhuginn. En það er hægt að gera miklu betur og það gerist ekki að sjálfu sér. Það þarf að ganga í hlutina til að eitthvað breytist.“
Að lokum, er Hulda með einhver skilaboð til Gróttufólks? Nr. 1. Grótta á risa hrós skilið fyrir geggjaða umfjöllun á samfélagsmiðlum. Topp eitt á landinu! Nr. 2. Þú getur haft miklu meiri áhrif en þig grunar - það má breyta hlutum sem hafa alltaf verið eins. Nr. 3 Styttu af Hildigunni handboltaþjálfara fyrir utan Gróttu takk.
Atvinnumennirnir okkar
Orri Steinn Óskarsson varð fyrsti atvinnumaður Gróttu er hann gekk til liðs við danska stórliðið FC Kaupmannahöfn árið 2019, þá einungis 15 ára gamall. Síðan þá hafa þrír uppaldir Gróttuleikmenn til viðbótar farið í atvinnumennsku. Hákon Rafn Valdimarsson gekk til liðs við IF Elfsborg í Svíþjóð sumarið 2021, Emelía Óskarsdóttir gekk til liðs við Kristianstads DFF í Svíþjóð snemma á þessu ári og að lokum skrifaði Kjartan Kári Halldórsson undir hjá FK Haugesund í Noregi í nóvember síðastliðnum. Gróttukrakkar eiga því ekki einungis flottar fyrirmyndir innan félagsins heldur einnig úti í heimi.
Orri Steinn
Gróttumaðurinn Orri Steinn Óskarsson
hefur verið að gera það gott með U19 ára liði FCK síðustu tvö ár og hefur síðastliðin misseri tekið sín fyrstu skref með aðalliði Kaupmannahafnarliðsins. Orri fór til FCK frá Gróttu árið 2019 og framlengdi samning sinn við félagið í vor til ársins 2025. Á síðustu leiktíð var Orri markahæsti leikmaður U19 ára liðs FCK með 29 mörk og þar á undan var hann markahæstur í U17 ára liðinu, með 29 mörk ásamt því að skora 10 fyrir U19 ára liðið. Hann skoraði því 68 mörk á tveimur tímabilum með unglingaliðum FCK. Orri hefur einnig spilað vel með unglingalandsliðum Íslands en hann á að baki 30 leiki og 18 mörk með U16, U17, U19 og U21. Í nóvember síðastliðnum lék Orri með U19 ára landsliðinu er þeir tryggðu sér sæti í milliriðlum undankeppni EM 2023. Orri var þar í stóru hlutverki og skoraði tvö mörk gegn Kasakstan og eina mark Íslands gegn Skotlandi. Orri Steinn skoraði sitt fyrsta mark fyrir aðallið FCK í nóvember síðastliðnum þegar hann kom liðinu í 1-0 gegn Thisted í bikarnum og varð í október yngsti Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu. Orri var 18 ára og 57 daga gamall þegar hann kom inn á gegn Sevilla.

Hákon Rafn
Gróttumaðurinn Hákon Rafn Valdimarsson gekk til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið IF Elfsborg sumarið 2021, þá 19 ára gamall. Hákon hafði verið aðalmarkvörður Gróttu síðan 2018 og vakti athygli utan landsteinanna fyrir góða frammistöðu. Sumarið 2018 fór Grótta upp úr 2. deild og var Hákon, þá einungis 17 ára gamall, milli stanganna í 15 af 22 leikjum. Árið eftir vann Grótta Inkasso deildina og tryggði sér sæti í efstu deild í fyrsta sinn í sögu félagsins þar sem Hákon lék alla leiki Gróttuliðsins og var valinn í lið ársins. Hákon hefur gert góða hluti með Elfsborg undanfarið og varði mark liðsins í 12 síðustu deildarleikjum tímabilsins sem lauk í nóvember. Hákon á að baki 10 landsleiki með yngri landsliðum Íslands og þrjá A-landsleiki en hann lék sína fyrstu A-landsleiki í janúar á þessu ári. Hann varð þar með fyrsti Gróttumaðurinn til að spila A-landsleik!

Nafn: Aldur: 18 ára
Staða: Sóknarmaður
Lið: FC København
Hvenær fórstu út í atvinnumennsku? Þegar ég var nýorðinn 15 ára
Hvað hefur verið mest krefjandi úti? Það hefur verið erfitt að hafa mikla pressu á sér að koma upp í aðalliðið en maður verður bara að halda köldum haus varðandi það og ekki láta það hafa áhrif á hvernig maður spilar Eftirminnilegt augnablik úti?
Vinna bæði U19 deildina og Superliga í sömu viku og spila fyrsta leikinn minn fyrir framan fullan Parken var besta vika lífs míns


Hvað borðarðu fyrir leiki? Allt á milli hafragrauts og pasta, mjög mismunandi
Nafn: Hákon Rafn Valdimarsson
Aldur: 21 árs
Staða: Markmaður
Lið: Elfsborg

Hvenær fórstu út í atvinnumennsku?
Ég fór út um miðjan júlí árið 2021
Hvað hefur verið mest krefjandi úti?
Mest krefjandi er líklega bara að leggja sig 100% fram á hverri einustu æfingu því það er það sem maður þarf að gera til þess að bæta sig
Eftirminnilegt augnablik úti? Fyrsti leikurinn minn fyrir Elfsborg þar sem við unnum 1-0 í nágrannaslag
Hvað borðarðu fyrir leiki? Borða yfirleitt pasta svona þremur tímum fyrir leik
Hvað kom þér mest á óvart við að fara út?
Hversu mikil vinna þetta er, maður hélt að þetta yrði bara skemmtilegt 24/7 en það var ekki raunin
Hvers saknarðu mest við Gróttu? Ég sakna strákanna í klefanum mest og fjölskyldutilfinningarinnar innan klúbbsins
Ef þú mættir taka einn leikmann úr Gróttu yfir í liðið þitt, hver væri það?
Einfalt svar, Kjartan Kári, besti leikmaður deildarinnar í fyrra og besti vinur minn í þokkabót
Ráð til ungra leikmanna í Gróttu: Aldrei láta neinn segja þér að eitthvað sé ekki hægt
Hvað kom þér mest á óvart við að fara út?
Líklega bara hversu miklu stærra allt tengt fótbolta er í Svíþjóð, til dæmis vellirnir og fjöldi stuðningsmanna Hvers saknarðu mest við Gróttu? Sakna mest að æfa með bestu vinum sínum og geta svo farið í sund beint eftir æfingu
Ef þú mættir taka einn leikmann úr Gróttu yfir í liðið þitt, hver væri það?
Tæki Kristó Orra, væri til í að sjá hvort hann myndi væla á íslensku eða ensku á æfingum
Ráð til ungra leikmanna í Gróttu: Gefa sig allan fram á hverri einustu æfingu, æfa auka þegar hægt er og hugsa vel um líkama sinn
Ítarlegri viðtöl má finna við Emelíu Óskarsdóttur og Kjartan Kára Halldórsson á bls. 14-16 og 20-21


GRÓTTUFÓLK
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Ágústa Embla Thygesen og fjölskyldan á Nesinu Ásgerður og Kiddi Aufí, Vigdís og Hugrún
Best wishes for a Merry Christmas and a healthy and successful New Year to everyone at Grotta from your fans in Germany! Paul and Claudia Standley Birgir Tjörvi, Erla Kristín, Kristín Klara og Árni Pétur Bjargey og Jóhannes Bjarni og Jórunn María Bjarni og Stefanía, Bakkavör 5 Bjarni Torfi & Erla Borghildur, Viðar og blessuð börnin Bragi, Ragna, Ragnar Björn og Helga Sif Daði, Arney, Emma og Tómas Dagbjört, Knútur og fjölskyldan Barðaströnd 12 Didda og Dofri Edda Regína, Katrín Ronja og Hildur Ríkey Egill Stefánsson og fjölskylda Vallarbraut 12 Eiðismýri 13 Elín, Mangi, Elín Eir, Nonni og Jökull Elsa, Bergþór, Bryndís, Hrafnhildur og foreldrar Elsa, Palli, Kjartan, Anna Linda og Sara Emma Björg og Birta Sigrún Fjölskyldan á Barðaströnd 7 Fjölskyldan á Bollagörðum 55 Fjölskyldan á Fornuströnd 4

Fjölskyldan á Melabraut Fjölskyldan á Nesbala 116 Fjölskyldan á Nesbala 12 Fjölskyldan á Nesbala 122 Fjölskyldan á Sævargörðum 12 Fjölskyldan á Selbraut 12

Kæru Seltirningar Gleðileg jól
Fossar fjárfestingarbanki
Fossar veita viðskiptavinum sérsniðna og persónulega þjónustu og eru í fararbroddi þegar kemur að tengingu íslensks atvinnulífs við alþjóðlegt fjárfestingarumhverfi.

2. flokkur karla upp um deild
2. flokkur karla tefldi fram tveimur liðum í sumar og komst A-liðið í úrslit í C-deild eftir að hafa unnið sinn riðli í C-deild með 22 stig í 10 leikjum. Í undanúrslitunum mætti Grótta liði KR2. Það var frábær stemning á Vivaldivellinum þann 28. september þegar leikurinn fór fram og fjöldi fólks í stúkunni. KR2 tefldi fram nokkrum sterkum leikmönnum í leiknum og það var jafnræði var með liðunum fyrsta hálftímann. Grótta skoraði tvö mörk rétt fyrir leikhlé og í byrjun seinni hálfleiks gerðu strákarnir út um leikinn og komust í 4-0. Kjartan Kári Halldórsson var með tvö mörk, Benjamin Friesen með eitt og eitt markanna

var sjálfsmark. Halldór Orri Jónsson skoraði rétt fyrir leikslok og tryggði Gróttu 5-0 sigur og mikil gleði braust út í leikslok. Sigurinn þýddi að 2. flokkur karla hafði tryggði sér sæti í B-deild Íslandsmótsins. Úrslitaleikurinn nokkrum dögum síðar tapaðist því miður gegn sterku liði Selfoss en sæti í B-deild engu að síður tryggt. Í sumar var liðsheildin í 2. flokknum sterk og leikmenn A- og B-liðsins stóðu vel við bakið hver á öðrum. Við óskum strákunum og þjálfurum þeirra, Arnari Þór Axelssyni og Dom Ankers, innilega til hamingju með árangurinn og hlökkum til að fylgjast með þeim í B-deild á næsta ári.
Kvika er sérhæfður banki sem er leiðandi í eignastýringu og fjárfestingastarfsemi.

Undirbúningurinn fyrir Ólympíumót fatlaðra er í fullum gangi. Fylgstu með sendiherrum okkar gera atlögu að hinu ómögulega á hverjum degi – alla leið til Parísar 2024.
FRELSIÐ TIL AÐ HREYFA SIG GERIR ALLT MÖGULEGT


Tónlistarmaðurinn og fyrrum fótboltamaðurinn Jón Ragnar Jónsson flutti á Seltjarnarnes árið 2018 ásamt eiginkonu sinni, Hafdísi Björk Jónsdóttur, og tveimur börnum þeirra. Nú eru börnin orðin fjögur en eldri börnin, Jón Tryggvi og Mjöll eru bæði á fullu í fótbolta í 6. flokki Gróttu.
Flestir þekkja Jón Jónsson sem er einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar en lengi átti fótbolti hug hans og hjarta meðfram tónlistinni. Jón ólst upp í Hafnarfirði og kemur úr mikilli FH fjölskyldu, en pabbi hans var formaður knattspyrnudeildarinnar um árabil. Jón lagði skóna á hilluna fyrir nokkrum árum og er núna kominn á hliðarlínuna að hvetja börnin sín áfram í bláu.

Æskuár í FH
Jón Ragnar Jónsson byrjaði ungur að æfa fótbolta og að eigin sögn kom ekkert annað til greina en að hann yrði sendur á æfingu. „Ég var bara polli þegar ég byrjaði, fjögurra eða fimm ára. Ég kem úr mikilli FH fjölskyldu svo það kom ekkert annað til greina. Ég á óskýra minningu af fyrstu æfingunni, í pínulitlum leikfimisal í gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði, þar sem ég var þarna háskælandi og pabbi að hvetja mig áfram. Það var sem betur fer eitthvað sem ég var fljótur að hrista af mér og fótbolti hefur bara alltaf verið partur af mér.“ Jón lék upp alla yngri flokka FH og eignaðist þar sína bestu æskufélaga, eins og er oft raunin í hópíþróttum. „Ég var einstaklega heppinn með samferðafélaga. Án þess að ætla að verða grobbinn í Gróttublaðinu þá unnum við bara allt. Ég er fæddur árið 1985 og það gekk alltaf betur þegar við vorum á yngra ári, því þeir sem voru ‘84 voru bara „ridiculous“ gæjar. Davíð Viðars frændi, Sverrir Garðars, Emil Hallfreðs, Atli Guðna og allir þessir. Við urðum ansi oft Íslandsmeistarar, unnum
Shellmótið, Esso mótið og allt þetta. Við þurftum að hafa aðeins meira fyrir hlutunum þegar við vorum á eldra ári. Þá var ég fyrirliði sem var auðvitað bara tryllt og rosalegur skóli út í lífið, þessi leiðtogahæfni.“
Jón tók sín fyrstu skref í meistaraflokki árið 2005, þá 19 ára gamall, er hann kom inn á móti Víði Garði í 32-liða úrslitum í VISA-bikarnum.
„Ég fékk boltann í punginn eftir 18 sekúndur. Ég lagðist ekkert niður en var bara virkilega að drepast.“ segir Jón hlæjandi. „Ég hugsaði bara með mér að ég gæti ekki lagst niður, einhver smástrákur sem er nýkominn inná.“
Árið 2006 fór Jón á láni yfir til Þróttar sem þá lék í 1. deild karla. „Það var í raun Atli Eðvalds heitinn, fyrrum landsliðsþjálfari, sem steig inn og vildi
fá mig í Þrótt. Ég þekkti hann því ég var með Sif dóttur hans í bekk allan grunnskólann og við bjuggum í sömu götu. Ég fékk brilliant reynslu á besta tíma, því það haustið fór ég til Boston á fótboltastyrk og mætti þangað í toppformi.“ Jón spilaði með Þrótti fjögur sumur, bæði í 1. deild og í efstu deild, á meðan hann kláraði hagfræðigráðu í Boston. Haustið 2009 sneri Jón aftur í FH sem var þá undir stjórn Heimis Guðjónssonar.
Ekkert gigg eftir miðnætti
Jón er einn vinsælasti tónlistarmaður landsins og sinnti lengi bæði fótboltanum og tónlistinni. „Já ég hélt báðum boltum lengi á lofti. Ég man að maður var stundum að afþakka gigg því það var æfing. Svo var það líka þannig að Heimir þjálfari hélt að ég væri að gera útaf við mig í einhverjum giggum, var að spurja hvort ég væri að koma fram um helgar sem það voru leikir. Þvert á móti hefur þetta gert mér gott, ég setti strax þá reglu til dæmis að spila aldrei eftir miðnætti, svo ég hefði orkuna í bæði.” Þó að Jón sé hættur í fótbolta þá reynir hann enn að fylgja þessari reglu til að
halda rútínu og gleði, þó hann brjóti hana einstaka sinnum.
Jón og Hafdís eiga saman fjögur börn og fæddust eldri tvö, Jón Tryggvi og Mjöll, árin 2013 og 2014 á meðan Jón var enn á fullu í boltanum. Mjöll fæddist 27. september 2014, daginn fyrir næstsíðasta leik Pepsi deildar karla en FH var í miklum séns á Íslandsmeistaratitli. „Við vorum í þvílíkri toppbaráttu og það var leikur daginn eftir á móti Val. Maður á náttúrulega ekki að vera að segja frá þessu… Ég var búinn að vaka þarna alla nóttina og mæti á laugardagsæfingu um morguninn, nokkrum tímum eftir að Mjöll fæðist og sagði engum að hún væri fædd sko. Bara til að vera í liðinu daginn eftir, svona var maður klikkaður.“ segir Jón og hlær. „Pabbi ætlaði að koma og óska mér til hamingju og ég bara ussaði á hann. Þetta fór nú ekki betur en svo að við töpuðum þarna viku seinna á móti Stjörnunni. Þetta var reyndar trylltur leikur á móti Val, Atli Guðna átti þrítugsafmæli þennan dag, skoraði þrennu og við rústuðum Val á Hlíðarenda en það taldi ekki.“ Jón lék allan leikinn gegn Val sem endaði með 4-1 sigri FH. Viku síðar mættust FH og Stjarnan í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn sem endaði með
1-2 sigri Stjörnunnar. Sigurmarkið kom út vítaspyrnu í uppbótartíma og voru hitinn og dramatíkin mikil í Kaplakrika þennan dag. „Þetta var alveg ömurlegur endir. Tímabilið 2014 var samt mitt uppáhalds tímabil, þó það hafi endað svona. Það hefði samt verið ansi góður kafli í ævisöguna góðu ef við hefðum náð að landa titlinum.“
Lagði skóna tvisvar á hilluna Jón þurfti tvær tilraunir til að hætta í fótbolta. Skórnir fóru fyrst á hilluna haustið 2015 en hann sneri aftur um mitt sumar 2016 og spilaði sinn síðasta leik árið 2017. „Laugi aðstoðarþjálfari hringir í mig um mitt sumar 2016 og segir að það vanti alla stemningu í liðið og að ég verði að koma til baka. Þeir voru í efsta sæti en stemningin var orðin þung.“ Jón sló til og reimaði á sig skóna á ný. „Það var hollt fyrir mig að hætta tvisvar. Það var erfiðara í fyrra skiptið, í seinna skiptið var maður tilbúnari að sleppa tökunum og finna sér annan farveg og nýjan takt.“ Jón hefur alltaf lagt mikið upp úr því að hreyfa sig og hefur verið að hlaupa eftir að hann hætti í fótboltanum, ásamt því að vera í mánudagsbolta með félögunum. „Ég verð bara þyngri í hausnum ef ég hreyfi mig ekki, þannig virkar þetta bara.“ Jón hljóp sitt fyrsta og eina maraþon árið 2019 og varð í 5. sæti

„Tímabilið 2014 var samt mitt uppáhalds tímabil, þó það hafi endað svona. Það hefði samt verið ansi góður kafli í ævisöguna góðu ef við hefðum náð að landa titlinum.“
í Reykjavíkurmaraþoninu af Íslendingum. Næst á dagskrá var að komast á pall og hafði Jón komið sér í svakalegt form árið 2020 en hlaupinu var aflýst vegna Covid. Sama var upp á teningnum árið 2021. „Þá slaka ég aðeins á í hlaupunum. Ég var búinn að vera eins og hamstur á hjóli, eins og einhver atvinnuhlaupari. Þá var líka minna að gera í tónlistinni svo ég hafði meiri tíma í þetta. Eftir að allt opnaði aftur er búið að vera svo mikið að gera svo maður er bara feginn ef maður kemst út í 45 mínútna hlaup.“
Enduðu óvænt á Nesinu Jón ólst upp í Hafnarfirði en eftir að hann flutti heim frá Boston árið 2009 fluttu þau Hafdís fljótlega í Garðabæ þar sem þau bjuggu næstu sjö árin. „Við bjuggum í Sjálandshverfinu svo við vorum alveg nálægt Hafnarfirði. Við vorum það nálægt að Jón Tryggvi var að æfa með FH, sénsinn að ég myndi setja hann í Stjörnuna!“ segir Jón glettinn. Fjölskyldan flutti á Seltjarnarnes árið 2018 en það var fyrir hendingu. „Við vorum aðeins að skoða en ekki á Seltjarnarnesi. Mágur minn benti okkur á húsið og Hafdís þekkti aðeins til. Við áttum tvö börn á þessum tíma og í húsinu höfðu tvö börn alist upp. Þetta var of gott til að vera satt. Við hoppuðum bara á þetta og sjáum
ekki eftir því.“ Jón segist hafa verið feiminn til að byrja með í þessu litla og nýja samfélagi en fljótlega komist inn í hlutina. „Þetta er hluti af því að víkka sjóndeildarhringinn. Maður má ekki bara eiga vinina sem maður kynntist þegar maður var átta ára. Þú ert alltaf að kynnast nýju fólki sem auðgar þig og kennir þér eitthvað nýtt. Við höfum kynnst helling af nýju fólki og það er ótrúlega hollt fyrir mann. Þú kemst líka eiginlega ekki upp með annað en að kynnast fólki á Nesinu, það eru allir hérna að gera það sama, sérstaklega þeir sem eru í þessum barnapakka. Það er svo fallegt. Þú ferð á leiksýningu í skólanum og hittir hóp af fólki, ferð svo að horfa á Mjöll á fimleikaæfingu og þar er sama fólkið og svo hittiru þau líka á fótboltaog handboltamótunum. Svo ferðu í Hagkaup og hittir þau líka þar. Þetta er algjör stemning.“
Jón Tryggvi hélt hann áfram að æfa í FH eftir að fjölskyldan flutti á Seltjarnarnes. „Maður var í góðri fegðastund fastur í umferðinni að keyra í Hafnarfjörð. Hann kunni vel við sig í FH og afi hans var formaður og allt þetta. En það er svo fallegt hvernig lífið leysir yfirleitt málin fyrir mann.“ Jón vísar í það að Jón Tryggvi sá bekkjarfélaga sína á leiðinni á æfingar í Gróttu og tók ákvörðun um að rölta með þeim og byrjaði að æfa í


Gróttu. Sama var uppi á teningnum hjá yngri systur hans, Mjöll. „Maður er alltaf að monta sig af þessum lífstíl, að börnin geti bara hjólað í skólann og farið á æfingar og koma svo heim síðdegis og eru búin að öllu, án þess að maður sé að skutla þeim út um allt. Það er gríðarlega mikil samheldni hérna, fólk er tilbúið að hlaupa undir bagga með manni og öfugt. Það er ótrúlega gaman hvað þetta er fjölskyldumiðað.“ Jón talar fallega um Seltjarnarnesið og stemninguna í þessu litla bæjarfélagi. „Þetta er svona út á landi stemning, einn fyrir alla og allir fyrir einn. Það er æðislegt að vera hérna, maður er í góðum foreldrahóp, sem betur fer. Þetta er fólkið sem verður með manni á hliðarlínunni næstu árin.“ Þó að iðkendafjöldi í Gróttu hafi aukist mikið síðasta áratuginn er Grótta með smærri félögum miðað við lið eins og Breiðablik, FH og Stjörnuna. „Það getur verið gott að velja leikmenn úr stærri púlíu, en það eru margir kostir við að vera í smærri klúbb. Krakkarnir þekkjast vel, eru saman í skólanum og fótboltanum, svo kannski líka í fimleikum og handbolta. Þá myndast einhver kemistría sem er ekki keypt úti í búð heldur. Þessi smæð getur verið mikill kostur. Aðhaldið er líka svo mikið á æfingum, þjálfararnir eru kannski að benda á að þú átt að sparka boltanum 2cm aftar á fætinum, sem er kannski ekki endilega mögulegt þegar það eru 80 krakkar á æfingu.”
Lifir sig inní boltann frá hliðarlínunni Nú snerist lífið um FH í ansi langan tíma og Jón ber auðvitað enn sterkar taugar til félagsins. Var ekkert erfitt að skella börnunum í Gróttubúning og vera mættur með Gróttuderhúfuna á hliðarlínuna? „Það má segja að þetta hafi komið í skrefum. Manni fannst það alveg skrítið fyrst en ástin á börnunum manns er bara svo ótrúlega sterk. Þú sérð hvað lifnar yfir þeim, þeim líður vel og þú heldur bara með því. Það gerðist mjög fljótt, en það að skella á sig derhúfunni og Gróttutreflinum kom í skrefum.
Ég man að við vorum á Norðurálsmótinu 2021 með Jón Tryggva, þá
mætti pabbi, afi Jónsi, og hann horfði á mig eins og ég væri eitthvað skrítinn og spurði bara hvað ég væri að gera með þessa húfu? Dóttir Davíðs Þórs (Viðarssonar) frænda er einu ári yngri en Mjöll og við hittumst á móti í Víkinni og þar voru sömu viðbrögð. En þetta er bara stuð og stemning.”
Að eigin sögn er Jón ekki alltaf fyrirmyndarforeldri á hliðarlínunni. „Maður lifir sig aðeins inní þetta. Ég get verið fljótur að kasta reglunni um að segja bara áfram Grótta út um gluggann en ég reyni samt að vanda mig. Mér finnst ég einhvernveginn ég geta nýtt reynsluna mína til að kalla réttu hlutina inná völlinn án þess að taka frammi fyrir hendurnar á þjálfurum. Ef liðsfélagi Mjallar eða Jóns Tryggva gerir eitthvað gott þá finnst mér geggjað að hrósa viðkomandi, og með nafni. Ég held að ég sé að ná ágætu jafnvægi í þessu. Sonur Pálma Rafns (Pálmasonar) er með Jóni Tryggva í liði svo ég er með hann
þar til að backa mig upp í ruglinu. Ef það stefnir í eitthvað þrot þá er ég auðvitað með Hafdísi til að passa uppá mig, hún pikkar í mig.”

Ættum að taka á símanotkun Jón ræðir áfram um samheldnina sem hann hefur fundið fyrir á Nesinu. „Mér finnst við geta notað samheldnina sem ríkir innan þessa litla bæjarfélags enn meira hvað varðar síma- og samfélagsmiðlanotkun barna. Við gætum auðveldlega sammælst um það að börn væru ekki að nota þessi forrit fyrr en þau hefðu aldur til. Það væri svo hollt fyrir krakkana að þurfa ekkert að pæla í þessu því línan væri skýr. Mjöll dóttir mín er í 3. bekk og á ekki síma. Hún hringir stundum í mig úr Vivaldisímanum og mér finnst það svo krúttlegt. Ég held við gætum klárlega bætt okkur í þessu enn frekar. Það væri svo nett ef það væri t.d. litið til Seltjarnarness, að við værum að gera hlutina á ákveðinn hátt og værum fyrirmyndir fyrir önnur bæjarfélög. Ég er eiginlega viss um að það myndi skila sér í betri líðan barna og árangri í leik og starfi.” Jón er meðvitaður um að fullorðnir séu fyrirmyndir í símanotkun og að maður þurfi að byrja hjá sjálfum
GRÓTTUFÓLK
sér. „Ég reyni að vera ekki í símanum þegar ég er sjáanlegur en ég get samt alveg verið uppí sófa heima hjá mér að skrolla eitthvað heilalaust þegar börnin eru sofnuð. Maður reynir miklu frekar að vera til staðar meðan krakkarnir eru vakandi og ef ég þarf að gera eitthvað rosalega mikilvægt í símanum mínum þá geri ég það þegar þau eru farin að sofa. Við sjáum það oft á dag að börnin læra það sem fyrir þeim er haft. Ef maður ætlar að segja þeim að vera ekki í símanum verður maður að hætta því sjálfur. Ég segi oft, ef þú ert að bíða eftir tíma í Tónó, talaðu við hina sem eru að bíða, ekki vera að glápa á eitthvað í símanum. Ég held að í framtíðinni verði enn dýrmætara að vera með félagslega færni, svo það er mikilvægt að rækta hana.”
Giggar á fótboltamótunum hjá krökkunum


Það er nóg að gera í tónlistarlífinu á sumrin en Jón tekur frá þær helgar sem börnin eru á fótboltamótum.
„Já ég gigga ekki þá. En það sem er kósý við þetta er að ég get giggað á fótboltamótunum þeirra í staðinn.” segir Jón hlæjandi.
JÓN JÓNSSON.
En


það
er bara ógeðslega gaman sko.”
Jón spilaði á Orkumótinu í sumar þar sem Jón Tryggvi spilaði og á Símamótinu þar sem Mjöll var að keppa. Þau eru ekkert feimin við það að pabbi sé að spila. „Þau eru algjörir pepparar og bara nokkuð stolt af pabba.”
Þegar Jón og Hafdís Björk fluttu á Nesið áttu þau tvö börn en nú hafa tvö bæst við og börnin orðin fjögur. „Eldri tvö eru komin djúpt inn í þessa menningu, þau segja manni hvað er á döfinni og svona. Sigríður Sól er næst, hún er búin að vera í fimleikum á laugardagsmorgnum en það styttist í fyrstu fótboltaæfinguna. Ég held hún yrði varnarsinnaður miðjumaður. Friðrik Nói er bara hálfs árs en við sjáum hvað gerist þar.”
„Greyið jafnaldrar barnanna minna, það er alltaf bara já hann er kominn
Andri Árnason hrl.
Halldór Jónsson hrl.
Lárus L. Blöndal hrl.
Páll Ásgrímsson hdl., LL.M.
Sigurbjörn Magnússon hrl.
Stefán A. Svensson hrl., LL.M.
Vífill Harðarson hdl., LL.M.
Borgartúni 26 • 105 Reykjavík Sími 580 4400
Andri Árnason, lögmaður
Andri Andrason, lögmaður, LL.M.

Bjarni Aðalgeirsson, lögmaður
Dr. Finnur Magnússon, lögmaður, LL.M.
Edda Andradóttir, lögmaður, LL.M.
Halldór Jónsson, lögmaður
Hólmfríður Björk Sigurðardóttir, lögmaður
Lárus L. Blöndal, lögmaður
Sigurbjörn Magnússon, lögmaður
Simon David Knight, lögmaður
Stefán A. Svensson, lögmaður, LL.M.
Vífill Harðarson, lögmaður, LL.M.
Borgartúni IS 105 +354 www.juris.is






















Meiri tími til að undirbúa æfingar og leiki
Viðtal við Magnús Örn Helgason, þjálfara U17 ára landsliðs kvenna

Gróttumaðurinn Magnús Örn Helgason var fyrir rúmu ári ráðinn sem þjálfari U17 ára landsliðs kvenna. Markaði það lokin á 14 ára þjálfaraferli Magga hjá Gróttu, í bili að minnsta kosti, en Gróttublaðið tók þjálfarann tali og spurði út í ferilinn og lífið hjá Knattspyrnusambandi Íslands.
„Þjálfaraferillinn hófst haustið 2007 þegar ég réði mig sem aðstoðarþjálfara í 5. flokki karla ásamt Ásmundi Haraldssyni og Orra Axelssyni, þá 18 ára gamall,“ segir Magnús aðspurður um hvenær hann hóf störf hjá Gróttu. „Ég fékk ýmis tækifæri hjá Gróttu næstu árin og kom að þjálfun 4., 5. og 6. flokks karla og þjálfaði fyrsta 3. flokk kvenna í sögu félagsins. Það var þó ekki fyrr en um 2013 eða 2014 þegar ég áttaði mig á því að hugsanlega gæti ég gert þjálfun að mínu aðalstarfi. Þá var ég byrjaður í íþróttafræði í Háskólanum í Reykjavík og sótti öll þjálfaranámskeið sem ég komst á hjá KSÍ. Skórnir voru líka komnir á hilluna. Mér fannst ég einfaldlega vera mun betri þjálfari en leikmaður.“
Töpuðu fyrir verðandi heimsmeisturum
Til að gera langa sögu stutta þá varð Magnús Örn næstu árin einn áhrifamesti einstaklingurinn í uppgangi fótboltans í Gróttu. Hann tók við sem yfirþjálfari haustið 2014 og lék lykilhlutverk í fyrstu árum Gróttu/KR samstarfsins í kvennaboltanum. Undir hans stjórn styrktist þjálfarahópur deildarinnar og byrjað var að tala um yngri flokka starfið í Gróttu sem eitt það metnaðarfyllsta á landinu. Maggi þjálfaði svo meistaraflokk kvenna árin 2019-2021 en eftir þarsíðasta tímabil söðlaði hann um og réði sig til starfa hjá KSÍ: „Á síðasta árinu mínu í Gróttu hafði ég tilfinningu fyrir því að tími væri kominn til að takast á við nýjar áskoranir. KSÍ auglýsti eftir þjálfara U17 ára landsliðsins
sumarið 2021 og ég ákvað að sækja um. Ég hafði fengið nokkur tækifæri til að aðstoða við þjálfun yngri landsliðanna og farið í þrjár keppnisferðir með U17 svo ég vissi að þetta væri starf ég hefði mikinn áhuga á að sinna. Umsóknarferlið var nokkuð viðamikið en að lokum var ég ráðinn og kvaddi Gróttu eftir tímabilið.“
Við spyrjum Magga hver helsti munurinn sé á að þjálfa landslið eða félagslið. „Í fyrsta lagi þá hittirðu ekki leikmennina sem þú þjálfar nærri því jafn oft. En á móti kemur gefst mikið meiri tími til að undirbúa æfingar og leiki. Ég er stundum spurður hvað ég sé eiginlega að gera í vinnunni þegar ég er ekki að þjálfa en það eru mörg verkefni sem fylgja starfinu. Til dæmis þarf maður að vera
duglegur að mæta á völlinn til að fylgjast með stelpunum og svo er að mörgu að huga þegar farið er í keppnisferð með 20 leikmenn og 8 starfsmenn. Svo sé ég líka um Hæfileikamótun kvenna en þar kalla ég inn á æfingar efnilegustu 4. flokks stelpur allra félaga og því fylgja auðvitað ferðalög um landið.“
Aðspurður hver sé eftirminnilegasta ferðin sem Maggi hefur farið með U17 ára landsliðinu nefnir hann Serbíu. „Það var örugglega fyrsta ferðin til Serbíu. Þangað var ég að koma í fyrsta skipti og ferðin gekk algjörlega eins og í sögu. Við unnum heimakonur 4-1 í fyrsta leik á glæsilegum leikvangi undir flóðljósum. Töpuðum svo fyrir spænska liðinu, sem vann HM U17 tæpu ári síðar, og enduðum á því að vinna Norður-Írland og tryggja okkur áfram. Milliriðillinn í mars, sem var spilaður í Dublin, var líka ævintýralegur en þar misstum við af sæti á lokakeppni á markatölu.
Má ekki gleyma sér í rómantíkinni Við spyrjum Magnús hvort hann sakni Gróttu og það stendur ekki á svari: „Já, ég er mjög tengdur félaginu, þykir vænt um Gróttu og á marga góða vini á Vivaldivellinum.“
Nú er meistaraflokkur kvenna kominn í Lengjudeildina á ný og karlaliðið náði eftirtektarverðum árangri í þeirri deild í sumar. Hvað þarf Grótta að gera til að viðhalda þessum árangri og gera enn betur?
„Þetta stendur allt saman og fellur með fólkinu. Félag eins og Grótta þarf á því að halda að það séu duglegir og metnaðarfullir þjálfarar að þjálfa bæði lið og að rétt sé valið inn í
leikmannahópana. Það má heldur ekki missa sjónar af yngri flokka starfinu þó að meistaraflokkunum gangi vel. Eitt slæmt tímabil hjá litlu félagi, þar sem þjálfari sinnir flokknum sínum ekki vel eða það koma upp önnur vandamál sem ekki eru leyst, getur haft vondar afleiðingar þegar til lengri tíma er litið. Svo má Gróttufólk heldur ekki gleyma sér í rómantíkinni. Knattspyrna er vinsælasta íþrótt landsins og fjármagn í bæði karla- og kvennafótbolta eykst á hverju ári. Samkeppnin er mikil svo það þarf að tryggja að félagið hafi fjármagn til að starfa af metnaði við góða aðstöðu þó að stefnan og markmiðin séu alltaf svipuð. Þar reynir á yfirstjórn félagsins, sveitarfélagið, sjálfboðaliða og styrktaraðila. Allir þessir aðilar verða að vera vakandi og taka ábyrgð, ef það er á annað borð áhugi fyrir því að hafa góð fótboltalið í bænum. Til dæmis eru jafnmargir búningsklefar á svæðinu nú og fyrir 12 árum þegar það var varla kvennafótbolti í Gróttu og ekkert varalið til staðar. Kría var stofnuð 2014 og það sama ár tefldi Grótta/KR fram liðum í 2., 3. og 4. flokki kvenna í fyrsta sinn. Tveimur árum síðar var meistaraflokkur kvenna stofnaður hjá Gróttu. Klefavandinn hefur verið æpandi í 5-6 ár. Og ef við tölum um tekjuhliðina þá er Grótta orðin þekkt stærð í íslenskri knattspyrnu svo tækifærin til að afla frekari styrkja með margvíslegum leiðum eru sannarlega til staðar,“ segir Magnús og bætir við eftir andartak: „Afsakið tuðið! Þetta átti líklega að vera létt og skemmtilegt viðtal.“ Jólablað Gróttu er sannarlega ekki hafið yfir erfiðu málin. Þetta er þörf umræða.
Að búa til minningar
Að lokum spyrjum við Magga hver séu hans eftirminnilegustu augnablik frá löngum ferli í Gróttu: „Ferðir á mót, innanlands og utanlands, standa klárlega upp úr. Hvort sem það er Orkumótið, Pæjumótið, Dana Cup eða USA Cup þá er stemningin og andinn í hópunum alltaf sérstök. Þú ert búinn að vera með krökkunum allan veturinn og vorið og svo eru mótin hápunktur sem allir njóta. Frasarnir um að það skiptist á skin og skúrir og að lið vinni saman og tapi saman á hvergi betur við en á mótunum. Ég var svo lánsamur að kynnast Davíð B. Gíslasyni snemma á mínum þjálfaraferli en hann var öflugur í öllu foreldrastarfi hjá börnunum sínum fjórum og tók oft að sér fararstjórn. Hann sagði alltaf að hlutverk okkar fullorðna fólksins væri að hjálpa krökkunum að búa til minningar með vinum sínum og liðsfélögum og sá boðskapur stóð með mér.
Það eru líka minningar að skíttapa fótboltaleik eða verða sjóveikur í Herjólfi. Það er reynsla sem þú deilir með öðrum alveg eins og glæstir sigrar. Spurningin er bara hvernig þú tekst á við aðstæðurnar. Í minningu Davíðs vinar míns, sem féll frá snemma á árinu, er gott að rifja upp þetta sjónarmið og ég hvet alla þjálfara til að leggja sig fram um að búa til minningar og njóta þess að vinna með krökkunum, já og foreldrum þeirra líka.“













GRÓTTUFÓLK
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Fjölskyldan á Tjarnarstíg 24

Fjölskyldan á Unnarbraut 13
Fjölskyldan Bakkavör 10 Fjölskyldan BaniJamra Bahrain
Fjölskyldan Barðaströnd 11
Fjölskyldan Barðaströnd 37 sendir hátíðarkveðju til nágranna sinna á Nesinu öllu
Fjölskyldan Barðaströnd 9
Fjölskyldan Bollagörðum 121
Fjölskyldan Bollagörðum 49
Fjölskyldan Bollagörðum 53
Fjölskyldan Eiðismýri 12
Fjölskyldan Hofgörðum 3
Fjölskyldan Hofgörðum 8
Fjölskyldan Kolbeinsmýri 6
Fjölskyldan Látraströnd 13
Fjölskyldan Látraströnd 19
Fjölskyldan Lindarbraut 41
Fjölskyldan Miðbraut 22
Fjölskyldan Miðbraut 28
Fjölskyldan Nesbala 86

Fjölskyldan Selbraut 74
Fjölskyldan Sólbraut 8
Fjölskyldan Suðurmýri 22
Fjölskyldan Unnarbraut 10
Fjölskyldan Valhúsabraut 4
Fjölskyldan Vesturströnd 16
Fjölskyldan Vesturströnd 5 Fornaströnd 7
Frá fjölskyldunni Hofgörðum 13
Franzi Hrólfsskálamel 16
Gleðileg Jól Gróttufólk! Kveðja Kaja, Gummi og börn
Fyrirliðar meistaraflokka Gróttu eru þau Arnar Þór Helgason og Tinna Bjarkar Jónsdóttir Þau eiga það bæði sameiginlegt að vera fædd árið 1996 og vera uppalið Gróttufólk. Kynnumst þeim aðeins betur.

„Ætti ekki að flækjast fyrir Kristófer að smíða bát“
Nafn: Arnar
Gælunafn: Bombi
Aldur: 26 ára
Staða á vellinum: Miðvörður
Hvenær byrjaðirðu að æfa fótbolta? Í kringum 6 ára aldur Hvenær lékstu þinn fyrsta leik í meistaraflokki? Árið 2015 með Kríu
Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Barnaby ræður gátuna Fyndnasti liðsfélaginn? Kristófer Melsted
Hverjum er erfiðast að mæta á æfingu? Heilum Júlí Karlssyni Sætasti sigurinn? Magni á Grenivík 2019
Súrasta tapið? FH í Krikanum 2020 Hvað borðarðu fyrir leik? Kjúkling Hver er alltaf síðastur út úr klefanum? Ívan Óli Santos
Uppáhalds jólahefð? Þorláksmessukaraoke-ið eða Jólakattarfellan
Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndiru breyta? Setja í farveg lausnir á aðstöðuvanda knattspyrnudeildarinnar, bæði til skamms og langs tíma. Bæjarbúar geta verið stoltir af báðum meistaraflokksliðunum og öflugu yngri flokka starfi, en þrátt fyrir stórstígar framfarir síðustu ár hefur aðstaðan lítið breyst frá 2009! Það hefur vantað fleiri klefa í langan tíma, fundar- og skrifstofuaðstaða er pínulítil og varamannaskýlin eru úr sér gengin svo eitthvað sé nefnt. Þór bæjarstjóri er mikill Gróttumaður, og þegar ég afhendi honum lykilinn að skrifstofunni á ný eftir þennan eina dag þarf hann að sannfæra félaga sína í bæjarmálunum um mikilvægi þess að styrkja félagið enn frekar.
Ertu A eða B manneskja? Ég er svona AB mjólk, en hallast meira að B Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið, hvern myndiru velja? Bessa Jóhannsson Hver er líklegastur í liðinu til að gleyma takkaskóm í útileik? Gunnar Jónas
Fengi Tinnu Brá aftur í markið
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta? Ég er með fullt af hjátrúm þegar kemur að fótboltaleikjum. Til dæmis fyrir heimaleiki spila ég Random Access Memories með Daft punk í gegn áður en ég fer út á völl. Ég geng einnig alltaf inn um aðalinnganginn á Vallarhúsinu þegar það er leikur, ekki í gegnum salinn eins og margir hafa lagt í vana sinn. Svo þarf ég að reima vinstri skóinn minn svona tvisvar-þrisvar rétt fyrir leik, hoppa með hné í brjóst rétt áður en að leikurinn byrjar og margt fleira. Maður er alveg vel skrýtinn. Skemmtilegasta að gera á æfingu? Murder ball En leiðinlegasta? Upphitun Eftirminnilegt augnablik úr boltanum? Það var mjög skemmtilegt að gera jafntefli í Vesturbænum á móti KR einum manni færri í klukkutíma Hvað færðu þér í bragðaref? Þegar ég var að stunda bragðarefinn þá henti ég yfirleitt í súkkulaðispæni og þrist. Er annars kominn í Galeto ísinn.
Ef þú værir fastur á eyðieyju og gætir tekið þrjá leikmenn meistaraflokks með þér, hverja myndirðu taka og af hverju? Kristófer Orri er fyrstur á blað þar sem hann er lausnamiðaður maður og útskrifaður verkfræðingur og því ætti það ekki að flækjast fyrir honum að smíða bát. Svo myndi ég vilja fá Ólaf Karel með mér til þess að veiða í matinn. Að lokum myndi ég taka Valtý með mér svo við myndum ekki allir tapa glórunni í hitanum á eyjunni. Næstir inn væru Hannes Ísberg þar sem hann er úrræðagóður og efnilegur verkfræðingur, og hann Gabríel þar sem hann er með mjög háværa rödd sem gæti borist til meginlandsins.
Besta moment í ár með Gróttu? Það var hrikalega skemmtilegt að vinna Þórsarana fyrir norðan í sumar. Endurkomusigurinn gegn Aftureldingu var einnig ótrúlegur.
Önnur góð Gróttuminning? Það myndi æra óstöðugan að ætla að rifja upp allar mínar góðu Gróttuminningar síðustu ára. Annars standa klárlega upp úr stundirnar þegar við höfum tryggt okkur upp um deild, þá árin 2016, 2018 og síðast en ekki síst árið 2019
Staða á vellinum: Framherji
Hvenær byrjaðirðu að æfa fótbolta? Byrjaði af alvöru í 5. flokki Hvenær lékstu þinn fyrsta leik í meistaraflokki? 2016 Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Raunveruleikasjónvarp
Fyndnasti liðsfélaginn? Kolla
Hverjum er erfiðast að mæta á æfingu? Margrét Rán er mjög sterk, erfitt að mæta henni Sætasti sigurinn? Lokaleikurinn á móti Álftanesi 2019 þegar við tryggðum okkur í Inkasso Súrasta tapið? Tap á móti KR í síðasta leik í fyrra var ansi súrt Hvað borðarðu fyrir leik? Misjafnt Hver er alltaf síðust út úr klefanum? Jórunn líklega Uppáhalds jólahefð? Baka smákökur með ljúfum jólatónum Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndiru breyta? Stækka vallarhúsið og leggja nýtt teppi Ertu A eða B manneskja? Svona mitt á milli myndi ég segja
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið, hvern myndiru velja? Það væri ekki
Hver er líklegust í liðinu til að gleyma takkaskóm í útileik? Mér finnst Edda S eitthvað líkleg Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta? Nei get ekki sagt það
Skemmtilegasta að gera á æfingu? Skotæfingar og spil En leiðinlegasta? Upphitun Eftirminnilegt augnablik úr boltanum? Inkasso 2019 Hvað færðu þér í bragðaref? Jarðarber og Þrist og svo eitthvað sem ég er í stuði fyrir hverju sinni Ef þú værir föst á eyðieyju og gætir tekið þrjá leikmenn meistaraflokks með þér, hverja myndirðu taka og af hverju? Jórunni því við erum vanar að ferðast saman, Kollu til að segja okkur góðar sögur og Margréti Rán til að halda uppi stuðinu og koma okkur heim Besta moment í ár með Gróttu? Komast upp í Lengjudeildina aftur klárlega Önnur góð Gróttuminning? Margar skemmtilegar minningar en tímabilið 2019 og núna í ár stendur upp úr





















Sara Björk og Tómas bættust við í landsliðshóp Gróttufólks
Gróttukonan Sara Björk Arnarsdóttir tók þátt í UEFA development mótinu í Póllandi með U15 ára landsliðinu í október. Fyrsti leikurinn af þremur var gegn Tyrkjum og var Sara Björk í byrjunarliði Íslands sem sigraði 5-2. Næsti leikur var gegn Póllandi en liðið tapaði 3-6 og kom Sara inn á þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum. Í þriðja leik Íslands var Sara aftur í byrjunarliði og vann Ísland góðan 2-0 sigur gegn Litháen. Þetta voru fyrstu landsleikir Söru Bjarkar.


Gróttumaðurinn Tómas Johannessen lék með U17 ára landsliðinu í Norður Makedóníu í lok október en um var að ræða undankeppni EM 2023. Leikið var 22. október - 1. nóvember. Ísland vann öruggan 3-0 sigur í fyrsta leik gegn Norður Makedóníu og var Tómas í byrjunarliði Íslands. Drengirnir unnu einnig næsta leik en sá fór 3-1 gegn Lúxemborg. Með sigrinum tryggði Ísland sér sæti í milliriðlum undankeppni EM 2023 og eiga því möguleika á komast í lokakeppnina í Ungverjalandi næsta sumar.



Tómas lék sína fyrstu landsleiki með U16 í maí síðastliðnum og hefur síðan þá leikið sex leiki
Knattspyrnudeild Gróttu er afar hreykin af því að eiga þessa glæsilegu fulltrúa í landsliðum Íslands og óskar félagið þeim báðum innilega til hamingju með árangurinn!
GRÓTTUFÓLK



4. flokkur karla á Spáni í október

Þann 18. október
nánar
Ásamt
og
sem
Í hópnum voru drengir fæddir 2008 og 2009 sem æfðu og spiluðu í 4. flokki á síðasta tímabili. Það var æft einu sinni á dag í 90 mínútur við góðar aðstæður og í lok ferðar var spilaður leikur við heimamenn sem var fjörugur en krefjandi leikur. Drengirnir
Grótta fer í CRAFT
CRAFT er nýr búningastyrktaraðili Gróttu en íþróttafélagið Grótta hefur samið við New Wave Iceland um að félagið noti CRAFT íþróttafatnað næstu fjögur árin. Grótta fór í stórt útboð síðastliðinn vetur og niðurstaðan var að semja við New Wave Iceland en strax frá upphafi sýndi fyrirtækið mikinn áhuga að semja við okkur. Með tilkomu samningsins verður New Wave Iceland einn af aðalstyrktaraðilum Gróttu. Grótta þakkar Errea á Íslandi fyrir frábært samstarf undanfarin 14 ár en Grótta hefur spilað í Errea fatnaði frá haustinu 2008.

Haraldur Jens Guðmundsson, framkvæmdastjóri New Wave Iceland er hæstánægður með nýja samninginn: „Við hjá New Wave Iceland erum afar ánægð að hafa náð saman við Gróttu um samstarf næstu fjögur árin þar sem Grótta æfir og keppir í fatnaði frá Craft. Grótta er öflugt félag sem við erum stolt af að geta stutt við bakið á næstu árin og hlökkum við mikið til samstarfsins.”
Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Gróttu hafði þetta að segja eftir undirritun samningsins: „Um leið og við þökkum Errea fyrir áralangt farsælt samstarf hlökkum við mikið til samstarfsins við Craft. Samningurinn er einn stærsti heildarsamningur sem félagið hefur gert frá upphafi. Vöruúrval Craft er mikið og spennandi tímar framundan í samvinnu Gróttu og Craft.” Craft er alþjóðlegt íþróttavörumerki sem hóf starfsemi 1977 og framleiðir í dag hágæða fatnað fyrir flestar íþróttir sem hafa notið mikilla vinsælda um langt skeið. Craft er í eigu New Wave Group sem er móðurfélag dreifingaraðila Craft á Íslandi, New Wave Iceland. Á síðustu árum hefur Craft haslað sér
nutu sín vel allan tímann en mikið var um afþreyingu á hótelinu svo engum leiddist. Á hótelinu var rennibrautagarður, borðtennisborð, sundlaug og margt fleira sem þeir gátu nýtt sér. Einnig var farið í dagsferð til Benidorm og kíkt á ströndina. Ferðin var gríðarlega vel heppnuð en markmið hennar var að drengirnir fengju smjörþefinn af því að vera atvinnumenn í fótbolta. Ferðin gekk eins og í sögu og voru góðar minningar skapaðar hjá drengjunum.
völl á liðamarkaðnum með góðum árangri þar sem má telja fjölda landsliða og félagsliða sem hafa kosið að leika í Craft sbr. sænsku knattspyrnuliðin Hammarby IF og IFK Gautaborg, sænska handboltalandsliðið og sænska landsliðið í fimleikum. Á myndinni má sjá Harald Jens frá New Wave Iceland og Þröst Þór Guðmundsson formann aðalstjórnar Gróttu við undirskrift samningsins.

Paul tekur við sem yfirþjálfari

Paul Western var í haust ráðinn sem yfirþjálfari yngri flokka knattspyrnudeildar Gróttu og tók við því starfi af Chris Brazell sem hafði sinnt því af kostgæfni síðustu þrjú ár. Paul hóf störf hjá Gróttu sumarið 2021 og hefur hann síðasta árið þjálfað 3. flokk karla og kvenna, meistaraflokk karla og Kríu. Þessi 42 ára Englendingur hefur komið víða við en hann var aðstoðarskólastjóri Craig Bellamy Academy í Sierra Leone, yfirþjálfari Chelsea/R&F Guangzhou akademíu í Kína og áður en hann kom til Íslands stýrði hann Kick4Life akademíu í Lesótó í Afríku ásamt karlaliði þeirra. Paul er að klára UEFA-A og UEFA-Youth þjálfaragráður og hefur góða reynslu af því að þjálfa börn og fullorðna á öllum aldri og frá mismunandi bakgrunnum. Ásamt því að vera yfirþjálfari mun Paul áfram þjálfa 3. flokk karla.
Paul tekur við starfinu af Chris Brazell sem ætlar að einbeita sér að starfi sínu sem þjálfari meistaraflokks karla. Chris setti sitt mark á starf deildarinnar, kom með nýstárlegar hugmyndir til félagsins og sinnti starfi sínu af miklum metnaði. Þeir sem þekkja Paul vita að hann er ekki síður metnaðarfullur og hugmyndaríkur. Knattspyrnudeild Gróttu fagnar ráðningu Pauls og hlakkar til frekara samstarfs með honum.

100 leikja klúbburinn
Fimm leikmenn bættust við í 100 leikja klúbbinn í sumar
Í sumar náðu fimm leikmenn Gróttu þeim merka áfanga að hafa spilað 100 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu. Það voru þau Arnar Þór Helgason, Bjargey Sigurborg Ólafsson, Kristófer Orri Pétursson, Óliver Dagur Thorlacius og Tinna Bjarkar Jónsdóttir. Þau bætast því við í hóp merkra leikmanna sem hafa náð þessum áfanga en í klúbbnum eru 16 leikmenn, samkvæmt tölum frá vefsíðu KSÍ.
Í maí sl. fengu þeir Arnar Þór Helgason og Kristófer Orri Pétursson viðurkenningu fyrir að hafa náð 100 leikjum fyrir Gróttu, en Arnar Þór var að spila sinn 106. leik og Kristófer Orri sinn 100. Fyrirliðinn Arnar Þór spilaði sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk Gróttu árið 2016 og á nú að baki 124 leiki fyrir félagið. Kristófer Orri spilaði sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk árið 2017 og hefur nú leikið 119 leiki fyrir Gróttu. Arnar og Kristófer eru báðir uppaldir Gróttumenn eins og margir sem hafa náð þessum áfanga, en það eru þó ekki allir. Óliver Dagur Thorlacius spilaði sinn 100. leik fyrir Gróttu í september sl. en hann kom til félagsins frá KR árið 2018. Í sumar varð Tinna Bjarkar Jónsdóttir fyrst Gróttukvenna til að ná þeim merka áfanga að spila 100 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu. Fyrirliðinn er uppalin í Gróttu og lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk árið 2016 og hefur nú leikið 111 leiki. Bjargey Sigurborg Ólafsson spilaði einnig sinn hundraðasta leik í sumar en hún kom til félagsins árið 2016 en lokaleikur tímabilsins var 100. leikur Bjargeyjar í bláu treyjunni.
En hverjir eru það sem hafa náð þessum áfanga fyrir félagið? Kíkjum á það…
Guðmundur Marteinn Hannesson – fæddur 1986 – 185 leikir fyrir Gróttu á árunum 2008-2017
Garðar Guðnason – fæddur 1984 – 174 leikir fyrir Gróttu á árunum 2002-2013 Hrafn Jónsson – fæddur 1986 – 145 leikir fyrir Gróttu á árunum 2003-2014
Pétur Theódór Árnason – fæddur 1995 – 142 leikir fyrir Gróttu á árunum 2011-2021
Grétar Ali Khan – fæddur 1984 - 129 leikir fyrir Gróttu á árunum 2002-2014
Arnar Þór Helgason – fæddur 1996 – 124 leikir fyrir Gróttu á árunum 2016-2022
Sigurvin Reynisson – fæddur 1995 - 124 leikir fyrir Gróttu á árunum 2016-2021
Ásgrímur Sigurðsson – fæddur 1980 – 122 leikir fyrir Gróttu á árunum 2004-2010






Bjarni Jakob Gunnarsson – fæddur 1985 – 121 leikir fyrir Gróttu á árunum 2005- 2014



Sölvi Davíðsson – fæddur 1984 – 120 leikir fyrir Gróttu á árunum 2007-2012





Kristófer Orri Pétursson – fæddur 1998 – 119 leikir fyrir Gróttu á árunum 2017-2022
Enric Már Du Teitsson – fæddur 1984 – 113 leikir fyrir Gróttu á árunum 2002-2012
Tinna Bjarkar Jónsdóttir – fædd 1996 – 111 leikir fyrir Gróttu á árunum 2016-2022
Óliver Dagur Thorlacius – fæddur 1999 - 103 leikir fyrir Gróttu á árunum 2018-2022

Pétur Már Harðarson – fæddur 1984 – 102 leikir fyrir Gróttu á árunum 2005-2014

3. flokkur karla og kvenna á ferð og flugi
Báðir 3. flokkar Gróttu héldu utan í sumar, stelpurnar til Svíþjóðar og drengirnir til Spánar, þar sem var keppt á alþjóðlegum knattspyrnumótum. Slíkar ferðir skapa ógleymanlegar minningar meðal leikmanna ásamt því að ýmislegt fer í reynslubankann.
3. flokkur kvenna Gróttu/KR skellti sér á Gothia Cup í júlí. Mótið fór fram í Svíþjóð og er eitt stærsta fótboltamót heims. Stelpurnar voru ytra í viku og skemmtu sér vel. Liðið vann fyrstu þrjá leiki sína; 1-0 gegn sænsku liði, 3-0 gegn þýsku liði og síðan 4-0 gegn sænsku liði og komust því öruggelga upp úr riðlinum. Í 16-liða úrslitum mættu þær sænska liðinu Mjölby AI/FF og var staðan 0-0 eftir venjulegan leiktíma. Þá var farið í vítaspyrnukeppni þar sem Grótta/KR bar sigur úr býtum, en mörk Gróttu/KR skoruðu Katla, Íris, Rakel og Jóhanna. Gaman er að segja frá því að fram að vítaspyrnukeppninni höfðu markmennirnir okkar, Helena og Júlíana, ekki fengið á sig mark í fyrstu fjórum leikjunum. Síðar sama dag var strax komið að 8-liða úrslitunum og mættu stelpurnar þar gríðarlega sterku liði frá Noregi, Arna-Bjørnar, þar sem Grótta/KR beið lægri hlut. Arna-Bjørnar stóðu síðan upp sem sigurvegarar á mótinu í 3. flokki kvenna. Stelpurnar stóðu sig ótrúlega vel í miklum hita og spiluðu vel saman. Þær nýttu frítímann einnig vel, kíktu á ströndina, fóru í Liseberg, versluðu og nutu samverunnar. Þær mega vera stoltar af sinni frammistöðu og þeim árangri sem þær náðu á mótinu og óskum við þeim til hamingju með hann!

3. flokkur karla hélt til Spánar í byrjun júlí til að taka þátt í Costa Blanca Cup á Benidorm. Þetta var í 28. sinn sem mótið var haldið og yfir 300 stráka- og stúlkna lið frá meira en 20 löndum tóku þátt í mótinu. Grótta lenti í riðli með þremur spænskum liðum og var fyrsti leikur drengjanna gegn Real Unión. Í þeim leik sást að spænsku drengirnir voru aðeins vanari hitanum en leikurinn fór heimamönnum í vil. Eftir fyrsta leik var síðan haldið á glæsilega opnunarhátíð mótsins þar sem Grótta skemmti áhorfendum með hinu hinu fræga víkingaklappi. Daginn eftir spilaði Grótta sinn annan leik gegn spænska liðinu U.D. Rayo Ibense og fór leikurinn fram um kvöldið í aðeins minni hita en sá fyrsti. Leikurinn fór 0-0 en nóg var að gera hjá báðum markmönnum. Þjálfarar Gróttu voru gríðarlega ánægðir með frammistöðu sinna manna í þeim leik og þann karakter sem drengirnir sýndu. Á miðvikudeginum spilaði Grótta síðan sinn lokaleik gegn C.D. Buzanada sem endaði með 3-3 jafntefli, en mörk Gróttu skoruðu Alexander Emil, Alex Kári og Hilmir. Grótta endaði í 3. sæti í sínum riðli og fór áfram í útsláttarkeppni en töpuðu þar 3-1 gegn spænska liðinu Esc Dep, en Alexander Emil skoraði mark Gróttu. Utan vallar var ýmislegt brasað. Menn sleiktu sólina, heimsóttu vatnsrennibrautargarð og spiluðu mini-golf. Og auðvitað varð að kíkja á McDonalds. Ferðin gekk í heild sinni mjög vel og munu góðar minningar frá Spáni fylgja strákunum í langan tíma.

GRÓTTUFÓLK
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Guðbergsdætur á Hofgörðum 11 Gummi, Lilja, Rabbi, Ragga, Hrafntinna, Addi og Móa Gunnar Egill, Anna María og Benni Halla og Þorsteinn Halli, Daníel, Tómas og Eva Hátiðarkveðja frá fjölskyldunni á Lindarbraut 3 Hátíðarkveðjur frá fjölskyldunni á Selbraut 5


Hofgarðar 24 Ísabella, Alexandra og Emilía
Jólakveðja Alexandra og Iris Salon Nes Jólakveðja frá fjölskyldunni Selbraut 70 Kæja Kristín og Óðinn Kristján
Kári Hrafn, Sólveig Katla, Auður Freyja, Sigga Dögg og Árni Karvel, Tinna, Líney og Móey Magga og Kjartan Magnús Birnir og fjölskylda Máni og Saga
Nesbali 108
Pálína, Sölvi, Sólveig Þóra og Kristín Sara Pétur, Birkir og Bjarki á Miðbraut Pétur, Eydís Lilja og Ástrós Arna Sara Björt, Theodór Leví og Matthías Leó Takk fyrir okkur! Kjartan Kári og fjölskylda Tómas, Bjarki og Þórdís Tómas, Elínborg, Friðrik og Jón Helgi. Verbúðin þakkar fyrir Sveitaballið Viðar Sigurjón og fjölskyldan Bollagörðum 93 www.husavidgerdir.is
Þór & María, Sara, Arna, Marta, Daníel og Vaskur Þorsteinn og Hansína
Ákvörðunin örlagaríka Ritstjórapistill
Árið er 2008 og hinn 17 ára gamli Atli Freyr Sveinsson gengur í bekki í 6. bekk Mýrarhúsaskóla og hvetur stelpur í árganginum til að koma og prófa fótboltaæfingar. Systir hans, Lovísa Birta, var með mér í bekk sem leiddi til þess að við bekkjarsysturnar mættum á fyrstu æfinguna hjá Atla, en þá voru engar stelpur að æfa fótbolta. Við vorum í dansi, fimleikum, handbolta og hinu og þessu - en fótbolta? Það þekktist varla. Einhverjar höfðu æft með strákum þegar við vorum yngri en svo flosnaði upp úr því. Ég ætlaði nú ekkert að ílengjast í þessari íþrótt en fjölskyldan stóð í framkvæmdum svo ég bjó tímabundið í Vesturbænum og Tinna (núverandi fyrirliði meistaraflokks Gróttu), sem bjó í Vesturbænum líka, bað mig að koma samferða sér á æfingar svo ég sló til og hér er ég í dag. Ég hef oft hugsað til þess hvað þessi ákvörðun hefur haft örlagarík áhrif á líf mitt sem hefur síðan þá snúist meira og minna um knattspyrnudeild Gróttu. Árið 2011 fékk Úlfur Blandon, yfirþjálfari yngri flokka, okkur Tinnu til að aðstoða Orra Axelsson við að þjálfa 6. flokk kvenna. Launin voru hvorki meira né minna en eitt stykki Gróttupeysa en okkur var alveg sama. Þetta var bara gaman. Í flokknum æfðu stelpur fæddar 2002 og 2003 og eru nokkrar þeirra leikmenn meistaraflokks í dag. Þar hófst þjálfaraferillinn góði sem hefur heldur betur gefið af sér. Ég hugsa að ég gæti gefið út bók með þeim gullmolum sem stelpurnar sem ég hef þjálfað í gegnum tíðina hafa látið út úr sér. Gríðarleg fjölgun hefur átt sér stað í félaginu síðasta áratuginn, enda heilt kyn sem bættist við iðkendahópinn. Í dag er fótbolti sem betur fer alveg jafn mikið fyrir stelpur og stráka, okkur þykir sjálfsagt að það sé meistaraflokkur kvenna í félaginu og hellingur af stelpum æfa alveg frá 8. flokki og upp úr, sem er frábært.

Grótta er orðið eftirsóknarvert félag í meistaraflokki. Þangað leita ungir og efnilegir leikmenn til að láta ljós sitt skína meðal Gróttumanna- og kvenna. Leikmenn yngri flokka horfa með stjörnur í augunum á fyrirmyndir sínar á Vivaldivellinum og ætla verða eins og “María Lovísa” og “Addi bomba”. Það hefur sýnt sig og sannað að fyrirmyndir eru mikilvægar og ekki er
skortur á þeim í félaginu. Gróttukrakkar geta einnig litið út fyrir landsteinana, en þar er að finna góðar fyrirmyndir í Emelíu, Orra Steini, Kjartani Kára og Hákoni Rafni, sem eru öll komin í atvinnumennsku. Margir leikmenn Gróttu hafa spilað fyrir yngri landslið Íslands og Hákon spilaði sinn fyrsta A-landsleik á árinu. Á næstu árum munu eflaust fleiri bætast í hópinn. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á mörgum vígstöðvum innan knattspyrnudeildarinnar síðustu ár og hefur metnaðurinn innan félagsins aukist. Framtíð knattspyrnudeildar Gróttu er svo sannarlega björt og ég vona að Seltirningar fjölmenni á Vivaldivöllinn næsta sumar til að fylgjast með karla- og kvennaliðunum í Lengjudeildinni.
Í dag er ég þjálfari 6. flokks kvenna og leikmaður meistaraflokks kvenna, ásamt því að sinna mínum innri áhrifavaldi á @grottaknattspyrna. Fyrir mér er Grótta einstakt félag, lítill klúbbur með stórt hjarta. Fólkið innan félagsins er metnaðarfullt og duglegt og vill allt fyrir sitt félag gera. Innan knattspyrnudeildarinnar ríkir góður andi, meðal þjálfara, leikmanna, stjórnarmanna og sjálfboðaliða, en án þeirra væri Grótta ekki til. Valdi vallarstjóri sér síðan um að halda þessu öllu gangandi, enda er best að spyrja bara Valda ef maður er í einhverjum vafa. Síðustu ár hefur ýmislegt breyst til hins betra innan félagsins en þó er ljóst að það er margt sem situr enn á hakanum. Vallarhúsið er löngu sprungið og gervigrasið bíður endurnýjunar. Frábært íþróttastarf er unnið á Seltjarnarnesi en það má ekki gleyma að huga að þeim mannvirkjum sem halda utan um það góða starf. Það skilar sér margfalt til baka.
Ég vona að þið hafið notið lestursins. Ég vil þakka fyrirtækjum og Gróttufólki innilega fyrir dýrmætan stuðning, Elsu og Eyjólfi fyrir samstarfið og Magga fyrir yfirlesturinn.
Gleðileg jól!
Jórunn María Þorsteinsdóttir Bachmann













