2 minute read

Stuðlað að hreysti og góðri heilsu

Þórunn Ívarsdóttir starfar sem áhrifavaldur á samfélagsmiðlum og hefur gert undanfarin 6 ár. Hún hefur mikinn áhuga á heilsu, lífsstíl, hönnun og heimilinu. Þórunn heldur góðri rútínu og byrjar alla daga á að taka vítamín og bætiefni með stóru ísköldu vatnsglasi og endar yfirleitt daginn eins.

Í þessum hraða heimi er mikil streita og mikið álag og nauðsynlegt að taka inn vítamín og bætiefni til að tryggja að líkaminn sé í toppstandi. Skortur einstakra bætiefna getur orðið til þess að við finnum fyrir þreytu, sleni, þrekleysi og jafnvel vanheilsu.

Guli Miðinn frá Heilsu er breið vítamín- og bætiefnalína sem við ættum flest að þekkja í sjón. Henni hefur verið pakkað og hún seld á Ísland í næstum 30 ár. Vítamínin og bætiefnin eru þróuð og allt útpælt með þarfir Íslendinga í huga. Úrvalið er breitt og hægt er að finna hinar ótrúlegustu blöndur vítamína og steinefna frá Gula Miðanum. Örn Svavarsson, stofnandi Heilsu, vann með það að leiðarljósi að finna bestu mögulegu hráefni og kenndi Íslendingum að nota jurtir og um virkni þeirra. Því með réttum vítamínum og bætiefnum er hægt að stuðla að bættri heilsu og betri líðan.

Sjálfri finnst mér gott að taka inn eitt alhliða fjölvítamín eða múltí-vítamín. Þá tryggi ég það að líkaminn minn sé að innbyrða vel samsetta blöndu af bætiefnum en Múltí Vít frá Gula miðanum inniheldur 12 vítamín og 10 steinefni. Dagleg neysla hjálpar til við að byggja upp líkamann og getur stuðlað að hreysti og góðri heilsu. Ofan á það finnst mér gott að breyta til og taka inn mismunandi bætiefni eftir því til dæmis hvaða árstími er eða eftir því hvernig mér líður. Til dæmis finn ég mikið fyrir verkjum í liðunum og þá er algjört grundvallaratriði fyrir mig að taka inn blöndu af Glucosamine. Blandan inniheldur ekki bara Glucosamine en einnig Chondroitin en með því að taka þessi tvö efni inn saman getur það hjálpað líkamanum að viðhalda uppbyggingu brjósks.

Þessi tvö efni hafa möguleika á því að hægja á brjóskskemmdum í liðum og draga úr sársauka. Einnig inniheldur blandan túrmerik sem á að vera bólgueyðandi. Undanfarið hef ég fundið mikinn mun á mér við að taka inn sérstaklega D-vítamín en eins og við vitum sést lítið til sólar stóran hluta af árinu. D-vítamín er oft kallað sólarvítamín vegna þess að húðin framleiðir það þegar hún verður fyrir áhrifum útfjólublárra geisla. D-vítamín er nauðsynlegt til að skjaldkirtill og fleiri kirtlar starfi eðlilega. Ég passa upp á D-vítamín neysluna yfir vetrartímann sérstaklega.

Framleiðandi Gula Miðans í Bandaríkjunum er með GMP gæðavottunarkerfi og hefur á að skipa fullkomnum rannsóknarstofum til að þróa og prófa hráefni og fullunna vöru. Rannsóknir á virkni og hreinleika efnanna fara bæði fram í þeirra eigin rannsóknarstofum og einnig eru óháðir aðilar fengnir til að kanna og rannsaka virkni og hreinleika efnanna.

Vörurunum frá Gula Miðanum er pakkað í dökk glerglös en það er gert til að varðveita gæði innihaldsefnanna sem best og verja þau gegn birtu og sólarljósi og mengun frá plastumbúðum. Allar umbúðirnar eru endurvinnanlegar og mega glösin fara í endurvinnslu glers og tapparnir í endurvinnslu plasts. Vörurnar eru framleiddar í samstarfi við bandarískt fyrirtæki og hefur Heilsa starfað með því í rúma 3 áratugi. Fyrirtækið er gamalt og rótgróið með gífurlega reynslu í þróun og framleiðslu á vítamínum og bætiefnum.