Ársskýrsla menningarmála telur 80 blaðsíður. Þar er fjallað um menningarstefnu, hlutverk og leiðarljós málaflokksins, stefnumörkun, styrkveitingar, auk greiningar á fjármálum og mannauðsmálum. Í samantektinni er gerð ítarleg úttekt á hlutverki, framtíðarsýn og markmiðum þeirra fimm Menningarhúsa sem undir málaflokkinn heyra, en það eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Héraðsskjalasafn Kópavogs, Náttúrufræðistofa Kópavogs og Salurinn. Þar eru einnig kynntar lykiltölur málaflokksins og húsanna frá árinu 2020 og áætlanir fyrir árið 2021.