Skip to main content

Sjeikfélag Akureyrar

Page 1

SjeikfĂŠlag Akureyrar


Benni Benedikt Karl Gröndal útskrifaðist sem leikari úr The Commedia School sumarið 2009. Eftir útskrift hefur hann leikið í sýningum á borð við Endalok alheimsins og Eiðinn og eitthvað, sem Grindvíska atvinnuleikhúsið setti upp auk Útlenska drengsins og Útundan sem sýnd voru í Tjarnarbíó. Hjá Leikfélagi Akureyrar hefur hann leikið í sýningunum Lísa í Undralandi, Býr Íslendingur hér, Þetta er grín án djóks, Pílu Pínu og Helga magra. Benedikt hefur einnig leikið í sjónvarpi og hefur komið fram sem Rauða ljónið, lukkudýr KR en vill ekki hafa hátt um það hér fyrir norðan. Þá hefur hann getið sér gott orð sem ötull talsmaður sjórána.

Sessý Sesselía Ólafsdóttir lærði leiklist í leiklistarskólanum KADA í London. Hún útskrifaðist árið 2012 og hefur frá útskrift leikið bæði hérlendis og erlendis, í kvikmyndum, á sviði og í hryllingstölvuleiknum SOMA. Þá lék hún meðal annars Ylfu í Föngum, Guðnýju frá Klömbrum í Þöggun og Hildi í verkinu Framhjá rauða húsinu og niður stigann. Þá hefur hún fengist við að semja handrit, sögur, lög og ljóð og skemmt fólk og fólki undir formerkjum Vandræðaskálda. Hún hefur gert ýmsa hluti til að drýgja leikaratekjurnar, þar á meðal verið handamódel og leikið ristað brauð. Þess fyrir utan er hún þekkt fyrir að rækta besta kannabisið á eyrinni.


Jói Jóhann Axel Ingólfsson nam leiklist við Stella Adler Studio of Acting í New York. Eftir útskrift vorið 2016 tók hann þátt í sýningunni Elska sem leikhópurinn Artic setti upp og var sýnd í Hofi og Samkomuhúsinu. Fyrir útskrift hafði Jóhann tekið þátt í fjölmörgum sýningum og má þar nefna Ræflavík sem Norðurbandalagið setti upp í Rýminu, sem og Oliver Twist og Rocky Horror hjá Leikfélagi Akureyrar. Jóhann hefur einnig samið tónlist fyrir leikhús og unnið sem tónlistarstjóri. Fræknasta frammistaða Jóhans á sviði er þó túlkun hans á hlutverki asnans í Kardemommubænum. Þá sat hann inni til skamms tíma fyrir vörusvik á barnalandi.

Lárus Lárus var fædd á Hrafnseyri við Arnarfjörð um miðbik síðustu aldar, yngst sjö eðla. Eftir að hafa leikið 12 ára jaxlinn í uppsetningu áhugaleikfélags Súðavíkur á Karíusi og Baktusi fór hún í nám til London, þar sem hún nam við the Royal Academy of Dramatic Art. Þaðan útskrifaðist hún svo með láði ásamt félögum sínum Laurence Olivier, Kenneth Branagh og Gunnari Eyjólfssyni. Þaðan lá leiðin til Hollywood, þar sem hún lék Godzillu í Godzillu, burðarhlutverkið í Jurassic Park, vinkonuna í Clueless og hákarlinn í Jaws. Hún sneri að því loknu aftur heim og fékk strax hlutverk Kela í Stundinni okkar og lék síðan Ólaf Egil Egilsson í Rómeó og Júlíu Vesturports.


EY RA R SÝ NIR LE IKF ÉL AG AK UR

ES PE AR E W IL LI AM SH AK ÚT UM ÖL L 37 VE RK ÆG ILE GU M 97 MÍN HL NG RE SP & UM Á HÁ DR AM AT ÍSK

- eins og hann leggur

sig!

Það var einn fagran júnímorgun í maí sem Benna vantaði andalifrarpaté með croissantinu sínu og fór í Bónus í Naustahverfi að hann rakst á Sessý í grænmetiskælinum, þar sem hún dáðist að litadýrðinni. Eftir snarpa umræðu áttuðu þau sig á því að Akureyri hefur liðið mikinn Sjeikspírskan skort, allt frá því að Sjeikspír kom hingað sem skiptinemi í Barnaskóla Íslands um miðbik sextándu aldar. Þau Benni og Sessý ákváðu samstundis að láta mínútugamlan draum sinn rætast og stofnuðu Sjeikfélag Akureyrar. Eftir að hafa ákveðið helstu hlutverk sem þau vildu leika varð þeim ljóst að þau þurftu einhvern til þess að leika aukahlutverkin. Svo skemmtilega vildi til að þau ákváðu bæði að borga fyrir það sem þau fengu sér í þetta skiptið og rákust því á Jóa á kassanum. Eftir snarpa umræðu komu þau sér saman um að Jói yrði þriðji meðlimur Sjeikfélagsins. Eftir að hafa rekist á vegg hjá Akureyrarbæ, sem þvertók fyrir að fjármagna 37 Sjeikspír uppsetningar á einum vetri, ákváðu þau, í mótmælaskyni, að setja upp öll verkin í einu. Allt í þessu verki er byggt á sönnum atburðum þangað til annað kemur í ljós og leikhópurinn vill koma því á framfæri að þó þau séu ótrúlega stolt af allri vinnunni, þá er sýningin alfarið á ábyrgð leikstjórans.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook