Skip to main content

Leikskrá Árborg Máni 23. maí 2015

Page 1

Upphitun Hesta-Jóa Það tímabil sem nú gengur í garð er annað tímabil Mána í deildinni. Liðið náði í engin stig í fyrr en er staðráðið í að sækja fleiri stig í ár. Þeir eru með blöndu af ungum og reyndum leikmönnum og er mun líklegri í ár en í fyrra að taka stig af liðum í þessum riðli. Lykilleikmenn: Sinisa Kekic, Atli Arnarsson og Halldór Steinar Kristjánsson

Íslandsmót – 4. deild karla, D riðill

Næsti leikur: Stokkseyri vs Árborg á Stokkseyrarvelli 28. maí nk. kl. 20:00.

Næsti heimaleikur: Árborg vs Léttir á Jáverk vellinum 5. júní nk. kl 20:00.

STYÐJUM ÁRBORG til SIGURS


Umfjöllun Fótbolta.net um A. riðil 4. deildar Að mati Fótbolta.net er A. riðill 4. deildar veikasti riðill deildarinnar. Sérfræðingar þar á bæ reikna með að riðilinn verði tvískiptur, þ.e.a.s. að ÍH, Árborg, Hamar og mögulega Léttir verði að berjast um það að komast úrslitakeppni en Stokkseyri, Máni og Kóngarnir eigi erfitt tímabil fyrir höndum. Fótbolti.net gleymir einu í umfjöllun sinni en það er að fjalla um að leikir Árborgar, Stokkseyri og Hamars eru nágrannaslagir sem eru oftast erfiðari leikir að spila og er enginn annar riðill sem hefur upp á þetta að bjóða. Það má því reikna með skemmtilegum og baráttumiklum leikjum á milli þessara liða. Fótbolti.net spáir því að þetta verði lokaniðurstaðadeildarinnar: ÍH Árborg Hamar Léttir Stokkseyri Máni Kóngarnir Þess ber að geta að Léttir sem er varalið ÍR tók sig til og vann ÍR í Borgunarbikarnum um síðustu helgi. Liðin í þessum riðli sem er talinn vera sá léttasti er því mun jafnari en menn gera sér grein fyrir. Knattspyrnufélag Árborgar lofar því að komandi knattspyrnusumar verði mjög skemmtilegt með „Derby-leikjum“ og öðrum góðum fótboltaleikjum sem áhugavert er fyrir alla íbúa Árborgarsvæðisins og þá sérstaklega Selfossbæjar að mæta og horfa á og fylgjast með uppöldum heimastrákum með nokkra einstaklinga sem allir eru með tengingu við Selfoss innanborðs. Vonumst til að sjá þig sem oftast á vellinum í sumar! Knattspyrnufélag Áborgar


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook