Skip to main content

Birkitre

Page 1

VALLASKÓLI

Birkitegundir á Íslandi

MÁR INGÓLFUR MÁSSON


Birki Birki (fræðiheiti Betula) er ættkvísl jurta af birkiætt (Betulaceae) sem vaxa víða um norðurhvel jarðar og tilheyra beykiættbálkinum (Fagales). Birki er skylt elri (önnur orðmynd: ölur) og hesli sem teljast einnig til birkiættar. Birkið er auðþekkt á smágerðu, tenntu laufi og ljósum pappírskenndum berki. Á Íslandi eru tvær birkitegundir innlendar og jafnframt mjög einkennandi fyrir íslenska náttúru: ilmbjörk (birki í daglegu tali) og fjalldrapi. Ilmbjörkin er eina innlenda tré landsins sem myndar skóga. Við landnám er talið að allt að þriðjungur Íslands hafi verið þakinn birkiskógi, jafnvel allt að 40% landsins.


BIRKI

Ilmbjörk

I LMBJÖRK (B ETULA PUBESCENS ) 1. vex um allt land 2. verður ekki mjög hávaxin 3. vex hægt 4. Útbreiddasta skógartréð á Íslandi en mjög breytilegt í vexti. Kynblöndun við fjalldrapa skýrir kræklótt vaxtarlag og runnkenndan vöxt að stórum hluta

Ilmbjörk er oftast fremrur smávaxið tré, frá hálfum metra en getur þó náð allt að 15 metra hæð. Það er fjölbreytilegt í útliti allt frá kræklóttum margstofna runna upp í beinvaxið tré. Það vex oftast hægt en vöxturinn getur þó verið hraður hjá ungum tjrám í frjósömu landi. Við getum fundið Ilmbjörk um allt lang og allt upp í 500 m. hæð yfir sjávarmáli. Ilmbjörkin er ljóselsk tegund sem þarf frjósaman jarðveg til að ná góðum vexti. Hún hentar mjög vel í íslenskri veðráttu enda vind- og frostþolið og sérlega lífsseigt. Öll höfum við séð séð Ilmbjörkina í íslenskri náttúru það er nánast einkennistré Íslands og skartar fallegum haustlitum. 
 Björkin hefur þó nokkra veikleika hún er seinvaxin og smá í rýru landi, oft kræklótt, trjámaðkafaraldrar, birkiryð.

2


BIRKI

Hengibjörk, vörtubirki

H ENGIBJÖRK ( BETULA PENDULA ) 1. vex um allt land 2.

er miðlungshá

3. Vex fremur hægt hjá norðlægum kvæmum. 4. Leit að góðu hengibjarkarkvæmi fyrir Ísland hefur ekki verið mjög ítarleg og enn hefur ekkert mjög vel aðlagað kvæmi fundist. Leitin heldur þó áfram. Hengibjörk er eitt áhugaverðasta lauftré til frekari notkunar í skógrækt á Íslandi

Hengibjörk er miðlungs stórt tré, sem nær að minnsta kosti 15 m hæð hérlendis.
 Tréið er sæmilega beinvaxið með nokkuð breiða krónu og slútandi greinar með aldrinum.
 Björkin vex fremur hægt hjá norðlægum kvæmum og því er það þolinmæðisverk að rækta. 
 Björkin vex um land allt og er ljóselsk tegund sem þarf frjósaman jarðveg og sumarhlýindi til að ná góðum vexti.
 Það er formfagurt með hvítan börk og fallega haustliti.
 Því miður er tréfið oft seinvaxið og þjáist stundum af vorkali hjá norðlægum kvæmum og oft mikil afföll í æsku.

3


Steinbjörk

S TEINBJÖRK ( BETULA ERMANII ) 1.

Vex um allt land

2. Lítið til miðlungshátt tré 3. Vex fremur hægt hérlendis 4. Steinbjörk er trjásafnstegund hérlendis en hvorki hæf til notkunar í skógrækt né almennri garðrækt sökum skorts á aðlögun að hafrænu loftslagi. Upp af fræi af steinbjörk í Múlakoti vaxa þó falleg og vel aðlöguð tré sem eru blendingar steinbjarkar og ilmbjarkar

Steinbjörk er lítið til miðlungs tré, en hæð þess er innan við 10 m hérlendis
 Það er þó glæsilegt tré með stuttan stofn og breiða krónu, oft kræklótt.
 Eins og með aðrar birkitegundir þá er vöxtur þess hægur hérlendis en það vex um land allt.
 Steinbjörkin er ljóselsk tegund og þarf frjósaman jarðveg og sumarhlýindi
 Hún er með hrjúfan börk, og fallega haustliti, þá myndar steinbjörkin góða kynblendinga við ilmbjörk
 Því miður hefur tréinu gengið alla að aðlagast íslensku loftslagi, en aðeins fá tré eru til hérlendis.

4


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Birkitre by Már Ingólfur Másson - Issuu