Samfélagsfræði
ALÞINGI
ALÞINGI ÍSLENDINGA
UPPHAF ALÞINGI er löggjafarþing Íslands og var upphaflega stofnað árið 930 á Þingvöllum. Í dag sitja 63 þingmenn á þingi, ráðherrar eru yfirleitt valdir úr röðum þingmanna og sama gildir um forseta Alþingis. Hér munum við skoða upphaf Alþingis, stikla á stóru um sögu þingsins og hvernig starfshættir eru á Alþingi í dag.
Upphaf Alþingis
ÚLFLJÓTUR
Úlfljótur var landnámsmaður á austurlandi og fyrsti lögsögumaður Íslendinga. ❖ Við hann eru kennd Úlfljótslög sem voru fyrstu lög Íslendinga. ❖ Þegar ákveðið var að stofna Þing á Íslandi var Úlfljótur sendur til Noregs að nema lög. ❖
Skömmu eftir árið 900 var farið að huga að þeim möguleika að stofna eitt allsherjarþing - Alþingi - á Íslandi. Nokkru fyrir árið 930 komu höfðingjar sér saman um að senda mann, Úlfljót að nafni, til Noregs. Erindi hans var að kynna sér lög og venjur sem hafa mætti að fyrirmynd í hinu nýja þjóðfélagi. Hann sneri aftur til Íslands og við hann eru kennd fyrstu lögin sem sögð voru upp á Alþingi - Úlfljótslög. Fóstbróðir Úlfljóts, Grímur geitskör, fór um Ísland til að afla fylgis við stofnun Alþingis sem og að finna hentugan þingstað. Niðurstaðan varð sú að þingið yrði í Bláskógum og sumarið 930 komu menn saman, þar sem nú heita Þingvellir, til að taka þátt í fyrsta Alþingi Íslendinga sem markar upphaf þjóðríkis á Íslandi. Nokkrar ástæður eru taldar líklegastar fyrir því að Þingvöllum var valinn staður. Sumir tengja þetta við mögulega ættingja Ingólfs Arnarsonar en líklegri ástæða er þó að á Þjóðveldisöld lágu Þingvellir vel við helstu leiðum og þéttbýlustu svæðum á Íslandi og því auðvelt fyrir flesta að komast þangað. Þá eru Þingvellir líka frá náttúrunarhendi heppilegur þingstaður. Góðir hagar, eldiviður og vatn og þá hentaði staðurinn líka einkar vel til þinghalds. 2
Þá nefnir Ari fróði líka Þóri kroppinskegg en hann hafði átt land í Bláskógum en myrti þræl sinn og í refsingarskyni voru allar eignir hans gerðar upptækar og var allt land hans gert að allsherjareign til afnota fyrir þingið(thingvellir.is).
Alþingi starfaði sem löggjafarsamkoma og dómstóll þar til Ísland gekk í samband við Noreg árið 1262(Gamli Sáttmáli). Við Gamla Sáttmála breyttust störf þingsins. Til að lög Alþingis tækju gildi þurfti nú Noregskonungur að samþykkja þau. Þá voru líka tveir lögsögumenn í stað eins áður. Þjóðveldisöld
Þó Úlfljótur hafi farið og numið lög þá var hann ekki valinn sem lögsögumaður á hinu fyrsta þingi. Þann heiður fékk Hrafn Hængsson. Fyrstu lög Íslendinga eru samt kennd við Úlfljót og heita Úlfljótslög.
Ísland undir erlendum yfirráðum Næstu árhundruð er Ísland undir erlendum yfirráðum. Alþingi heldur þó áfram að starfa. Nýjar lögbækur tóku við af Úlfljótslögum. Járnsíða árið 1271 og svo Jónsbók árið 1281. Nýju lögin breyttu hlutverki Alþingis, löggjafarvaldið fór að miklu leyti í hendur konungs og Alþingi varð með tímanum nær eingöngu að dómsstól.
Danakonungur lagði svo niður störf Alþingis árið 1798.
Endurreisn Alþingis.
Alþingi til forna. W.G. Collingswood. Fengið af Vísindafvefnum
Árið 1843 gaf Danakonungur út tilskipun þess efnis að Alþingi skyldi endurreist. Markaði það mikin sigur í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga að fá aftur þjóðþing. Hið
Þjóðveldisöld 3
endurreista Alþingi fundaði fyrst í húsakynnum MR(sem þá hét Latínuskólinn) í Reykjavík en árið 1881 var Alþingishúsið vígt og starfsemin fluttist þangað.
Stærsta breytingin á kosningaréttinum á Íslandi varð árið 1915. Þá fengu konur í fyrsta sinn að kjósa. Þær stóðu þó ekki alveg jafnfætis körlum, kosningaaldurinn hjá þeim var 40 ára og átti hann að lækka um 1 ár á ári þar til hann varð jafn körlum. Því var þó snarlega hætt árið 1920 og konur jafngildar körlum frá því. árið 1934 var kosningaaldurinn svo lækkaður í 21 ár, árið 1968 20 ár og 1984 var hann kominn niður í 18 ár.
Árið 1871 voru Stöðulögin samþykkt en þau áttu að ákvarða stöðu Íslands gagnvart Danmörku. Þeim fylgdi svo fyrsta stjórnarskráin sem Íslendingar fengu að gjöf frá Danakonungi í tilefni 1000 ára byggðar landsins. Næstu 70 ár voru tekin fjöldamörg skref í átt að fullveldi og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar og auknu vægi Alþingis.
Kosningaréttur
Þrískipting Valds
Á Íslandi er almennur kosningaréttur. Það þýðir að allir íslenskir ríkisborgarar 18 ára og eldri hafa kosningarétt og mega kjósa til Alþingis, sveitarstjórnar og í forsetakosningum svo eitthvað sé nefnt.
Ein af grundvallarstoðum lýðræðis er þrískipting valds. Þrískiptingin er Löggjafarvald, Framkvæmdavald og Dómsvald. Kenningin um þrískiptingu valds var fyrst sett fram af John Locke og fullkomnuð af franska heimspekingnum Montesquiue. Hugmyndin kom fram á 18. öld og tengist upplýsingunni sterkum böndum.
Upphaflega var kosningarétturinn þó ekki svona víðtækur og náði aðeins til um 5% þjóðarinnar, en aðeins efnamiklir karlar, 25 ára og eldri, fengu bara að kjósa. Smátt og smátt víkkaði kosningarétturinn. Fyrst var slakað á kröfum um eignir og árið 1903 máttu orðið allir karlar 25 ára og eldri sem borguðu meira en 4 krónur í útsvar og voru ekki öðrum háðir sem hjú kjósa.
Á Íslandi er skiptingin samkvæmt stjórnarskrá sú að forseti og Alþingi fara með löggjafarvaldið, forseti og ríkisstjórn með framkvæmdavaldið og dómstólar með dómsvaldið. Vald forseta er takmarkað og er aðallega táknrænt, hann getur þó
4
neitað lögum staðfestingar og hefur nokkrum sinnum reynt á það.
Dómsvald
Löggjafarvald
Dómsvald er valdið til þess að meta hvort farið sé að lögum ríkisins og hvort framkvæmdavaldið hafi framkvæmt þau rétt. Hér á landi er dómsvaldið í höndum dómsstóla, héraðsdóms og hæstarétts. Dómsstólarnir eiga að vera sjálfstæðir og ekki undir áhrifum löggjafans eða framkvæmdavaldsins.
ALþingi fer með löggjafarvaldið á Íslandi. Löggjafarvaldið felur í sér að sá sem fer með valdið setur(gefur) lög sem samfélagið fer eftir. Á Íslandi er því svo farið að Alþingi setur lögin og svo þarf forsetinn að samþykkja þau. Með löggjöf eru lagður grundvöllur að stjórnsýslu landsins og dómgæslu og lagasetning því ákveðin undirstaða annarra þátta ríkisvaldsins. Alþingi er því æðsti handhafi ríkisvaldsins.
Framkvæmdavald Á Íslandi fer Forseti með framkvæmdavaldið samkvæmt stjórnarskrá en hann framselur Forsætisráðherra það sem svo deilir því niður á aðra ráðherra. Flest allar stofnanir ríkisins falla undir framkvæmdavaldið t.d. lögreglan, Seðlabankinn og sýslumannsembættin. Innan framkvæmdavalds eru þó nokkur skörun við löggjafar- og dómsvald, t.d. með setningu reglugerða og úrskurðum deilumála. Er litið á það sem eðlilegan hlut þar sem löggjafarvaldið setur reglur um hvenær megi setja reglugerðir og flest öllum úrskurðum er hægt að vísa til dómsstóla.
Charles-Louis de Secondat, Baron de La Brède et de Montesquieu (f. 18. janúar 1689 í Bordeaux – 10. febrúar 1755)
5
Alþingi í dag
Merki Alþingis.
Í dag sitja 63 þingmenn á Alþingi. Setið er í einni deild og koma þingmennirnir úr sex kjördæmum. Allir eru þingmennirnir þjóðkjörnir og skiptast niður á kjördæmin eins og sýnt er á myndinni til hliðar. Fremri talan segir til um fjölda kjörina þingmanna og sú seinni er jöfnunarsæti. Jöfnunarsætunum er ætlað að leiðrétta misræmi milli kjördæma þannig að atkvæðin telji jafnt milli kjördæma. Hægt er að lesa hér um hvernig þeim er útdeilt.
Kjördæmaskipan. Fremri talan er fjöldi kjörinna þingmanna og sú seinni jöfnunarsætin.
Misjafnt er milli kosninga hversu margir flokkar eru í framboði en hér er fjölflokkakerfi þ.e. yfirleitt er þó nokkur fjöldi flokka í framboði. Oft er talað um “fjórflokkinn” á Íslandi en það eru Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkurinn, Samfylking(áður Alþýðuflokkurinn) og Vinstri HreyfinginGrænt framboð(áður Alþýðubandalagið). Við hann bætast svo reglulega nokkrir flokkar nú síðasta Björt Framtíð og Píratar, en þessir sex flokkar eiga fulltrúa á Alþingi. Aðrir flokkar sem hafa fengið fulltrúa á þing eru m.a. Kvennalistinn, Frjálslyndi Flokkurinn, Borgaraflokkurinn og Þjóðvaki.
Þingkosningar Að öllu jöfnu er kosið til þings á fjögurra ára fresti. Eitt kjörtímabil er því fjögur ár. Síðast var kosið til Alþingis 27. apríl 2013. 6
meirihlutastjórn er með vantrauststillögu. 15 sinnum hefur verið lögð fram vantrauststillaga á Íslandi en alltaf hafa þær fallið í atkvæðagreiðslu.
Meirihlutastjórn Venjan er á Íslandi að mynda meirihlutasamsteypustjórn tveggja eða fleirri flokka. Afar sjaldgæft er að minnihlutastjórnir séu myndaðar á Íslandi.
Ríkisstjórn Þeir flokkar sem mynda meirihluta hverju sinni mynda líka ríkisstjórn. Ríkisstjórnin fer með framkvæmdavaldið og í henni sitja 10 ráðherrar(2015). Ráðherrafjöldi hefur verið mismunandi milli ríkisstjórna í upphafi voru þeir þrír en fjölgað jafnt og þétt á 20. öldinni, yfirleitt verið um 10, en flestir hafa þeir verið 12.
Skjaldarmerki Íslands
Stærsta verkefni ríkisstjórnar hverju sinni eru fjárlög. Þau segja til um hversu miklum peningum ríkið eyðir og hve miklar tekjur það fær inn. Fjárlög eru sett fyrir eitt almannaksár í einu þ.e. frá 1. janúar til 31. desember. Í
Núna í upphafi árs 2015 mynda Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur meirihluta og ríkisstjórn undir forsæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins. Ein leið minnihlutans til að steypa 7
fjárlögum birtast helstu stefnumál hverrar ríkisstjórnar t.d. hvort lækka eigi eða hækka skatta.
Umboðsmaður Alþingis á að hafa eftirlit með opinberri stjórnsýslu. Tryggvi Gunnarsson gegnir í dag embætti umboðsmanns Alþingis.
Störf Þingsins Starfsár Alþingis er frá hausti og fram á vor. Venjulega er þingsetning í lok september og þingstörfum líkur í maí. Nokkur embætti eru innan þingsins og veigamest er Forseti Alþingis. Forseti er kosinn að lokinni þingsetningu á hverju hausti. Hans helsta starf er að stjórna þinghaldi, ákveða dagskrá þingfunda, hefur frumkvæðið að því að semja starfsáætlun hvers þings og áætlun Einar K. Guðfinnsson. um fundarhöld. Forseti hefur enn fremur Forseti Alþingis umsjón með starfi þingnefnda og alþjóðanefnda og fyrirspurnir til ráðherra eru háðar leyfi hans. Forseti sker úr ágreiningi um túlkun þingskapa og umræður utan dagskrár eru bundnar samþykki hans. Samkvæmt stjórnarskránni er forseti Alþingis einn þriggja handhafa forsetavalds. Tvær sjálfstæðar stofnanir heyra undir Alþingi. Umboðsmaður Alþingis og Ríkisendurskoðun. Báðar eru þó sjálfstæðar og lúta ekki boðunarvaldi frá Alþingi og geta tekið upp mál að eigin frumkvæði. 8