Listmálarinn Margrét Jónsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1953 og starfar að list sinni í Frakklandi og Íslandi. Hún hefur unnið sem myndlistarmaður um hálfa öld en 48 ár eru frá fyrstu sýningu hennar í London. Menntuð við Myndlista og Handíðaskóla Íslands, diplóma í frjálsri myndlist/grafík árið 1974. Masternám við Central Saint Martin’s College of Art í London árin 1974 til 1976.
Myndlista og Handíðaskóla Íslands, diplóma í grafískri hönnun árið 1984. Diplóma frá Kennaraháskólanum árið 1997. Hún hefur haldið yfir 50 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Margrét var einn af stofnendum Gallery Suðurgötu 7 sem var mikilvæg miðstöð í þróun framlínumyndlistar á Íslandi. Hún er í ritinu „Íslensk listasaga“, sem er fimm binda verk og spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Einn af stofnendum
Hagsmunafélags Myndlistarmanna sem var undanfari Sambands Íslenskra Myndlistarmanna ásamt stofnun SÍM.