Skip to main content

Margrét Jónsdóttir FÍMsalurinn 1987

Page 1

32

ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1987.

Menning

Af nátttröllum Sýning Margrétar Jónsdóttur í FÍM-galleríinu

Margrét Jónsdóttir var á sínum tíma ein af stofnendum og drifööðrum Gallerís Suðurgötu 7, en hefur haft hægt um sig sem myndiistarmaður síðan galleríið lagði upp laupana árið 1980. Hún hafði nokkra sérstöðu innan þess hóps sem stóð að galleríinu, þar sem hún hafði meiri áhuga á veruleika hlutanna, og þá helst á ranghverfunni á veruleikanum, heldur en hugmyndalist, enda hafði hún stundað nám í jarðbundnum breskum listaskóla, St. Martíns, en ekki í Hollandi. Margrét var líka eina konan í hinu upprunalega Suðurgötugengi, sem virðist hafa haft einhveija mæðu í för með sér, að minnsta kostí ganga ansi mörg myndverk hennar frá þessum tíma út á þröngsýni, rembu, já og heimsku karla - ef ég er ekki að gera listakonunni rangt til með þessari túlkim. Sú myndgerð sem hún hefur þróað hin síðari ár, og birtist svo eftirminnilega á sýningu hennar í FÍM

galleríinu um þessar mundir, á rætur að rekja í aðskiljanlegar áttir.

í skrípamyndastílnum Hvað sköpulagið varðar, eiga figúrur hennar ýmislegt skylt við skrípamyndastflinn, sem var í tísku meðal ungra íslenskra listamanna í lok áttunda áratugarins en sá stfll

Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson barst svo aftur hingað með ísiandsvinum eins og Dieter Roth og Jan Voss. Eitthvað af sótsvörtum húmor þeirra, sérstaklega hvað varðar líkamlegar þarfir, hefur sennilega einnig síast inn í Margréti á einhveiju stigi málsins. Áhugi Margrétar á sjónbrellum,

eða sjónrænum tvískinnungi, minnir eilítíð á háþróuð súrrealísk myndhvörf, ekki síst á þá endurskoðun náttúrulögmálanna sem á sér stað í málverkum René Magritte. En markviss framsetning listakonunnar á sjónrænum hugmyndum bendir einnig til þess að hún hafi ekki horft alveg framhjá konseptlistinni.

Valdið strítt Aflir þessir þættir ganga síðan í eina sæng saman á einkasýningu Margrétar í FÍM-salnum. Salurinn hentar ekki aflri myndlist, en mjög vel fer um verk Margrétar. Eru þó mörg þeirra í stærra lagi. Flest málverka hennar sýna einstakar, steinrunnar figúrur, sem eru eins og nátttröll sem dagað hafa upþi. Ekki nóg með það, heldur er þeim fyrirmunað að hafa stjóm á líkamsstarfsemi sinni. Þær pissa eða æla mjög skraut-

Margrét Jónsdóttir ásamt tveimur málverka sinna. DV-mynd Raggi Vestmann

lega, eða þá að þær fara skyndilega að fúngera eins og plöntur, bæta við sig útlimum, verða rótarlegar í framan og þar fram eftír götunum. Þetta era umfram allt elegant og tilfyndin málverk, en stutt er samt í alvöruna í þeim. Mér segir svo hugur að enn sé tflgangur Margrétar sá að draga burst úr nefi karlaveldisins, sem þykist hafa allt á hreinu, en er svo afltaf

með buxurnar á hælunum þegar á reynir. Jafnframt verða bergnumdar karlfígúrur hennar að eins konar líkingum fyrir valdið sjálft, strítt og ómennskt, alveg burtséð frá því hver fer með það. Þessi nýju málverk Margrétar eru sérstæð og kærkomin viðbót við islenska myndlistarflóru. -ai

Ný tónlist fyrir klarínettu Hljómplata með verkum eftir Pál Pampichler Pálsson, Jón Nordal og Werner Schulze. Flytjendur: Slgurður Ingvi Snorrason, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Sinfóníuhljómsveit íslands.

að allt það hrós, sem maður hefur út úr sér látið um tónmeistarann Bjama Rúnar Bjamason, hefur maður fengið staðfest á sama vettvangi.

Eitt sinn áttí að nota upptöku á nýju íslensku tónverki á plötu. Þegar til átti að taka fannst hún ekki. Aftur var - verkið tekið upp. Enn týndist upptaka, en fannst aftíir og komst að lokum á plötu. Nú skyldu menn halda að svona fúrðusögur gerðust aðeins á íslandi. Ekki aldeilis. Ég heyrði um það leyti sem hljómplata sú er hér um ræðir var að koma úr pressunni, samlfljóma sögu úr músíklandinu Austurríki. Nema, bætti sögumaöur við, óforbetranlegur íslandsvinur, „á íslandi gerist svona nokkuð og hlutimir finnast aftur - hér glatast þeir fyrir fifllt og fast“.

Tónlist

Vilja aðeíns þaö besta Það er sem sé afls ekkert einsdæmi og alíslenskt fyrirbæri að einstaklingar, listamennimir sjálfir, brjótist í að gefa nýja tóitiist út á plötum á eigin spýtur. Meðal þeirra sem til þekkja erlendis, nýtur íslensk plötuútgáfa, þ.e.a.s. á klassísku sviði og þá fyrst og fremst að sjálfsögðu útgáfa á nútímatónlist, mikils álits. „Þeir vflja aðeins hið besta og láta þar af leiðandi einungis þá bestu skera og pressa fyrir sig,“ sagði fagmaöur á því sviði eftir að hafa heyrt nokkrar af nýjustu útgáfiun á íslenskri nútímatónlist. Þeirra á meðal var umrædd lfljómplata og læt ég það nægja til umsagnar um tæknflegan frágang hennar. Það sakar ekki kannski að geta þess líka

Eyjólfur Melsted Kynngimagnaöur konsert En vikjum nú að tóiflistinni á plötunni. Á A hlið er Klarínettukonsert Páls Pampichlers. Undirritaður sagði eitthvað á þá leið, þegar hann var frumfluttur - að hann væri albesta verk Páls tfl þessa og merkt framlag til klarínettubókmenntanna. Við þaö stend ég. Því oftar sem ég hlýði á þennan konsert, þeim mun kynngimagnaðri finnst mér hann. Það eykur á ánægjuna að flutningurinn á plötunni er góður. Hann er afar lifandi - svo að maður hyggur í fyrstu að um konsertupptöku sé aö ræða. Kannski stafar það líka af því að á leiknum er eflitla agnúa að finna, en svo smáa að þeir gera leikinn kunnugum eyrum aðeins meira lifandi. En þar komum við líka að ásteytingarsteini. Hvers vegna ekki að ætla meiri tíma til aö vinna hlutina, svo þeir verði ekki bara næstum því fullkomnir?

Líktogrúnir Á B hflö plötunnar em Ristur Jóns Nordal og Steflaus tilbrigði Wemers Schulze. Ristur bera nafn með rentu. Líkt og rúnir era þær einfaldleikinn

uppmálaður í gerð sinni, en innibera margslungna merkingu. Þær standa sanflfliða öðrum dúóum, sem Jón Nordal hefur samið á undanfomum árum, til að mynda Dúóinu fyrir fiðlu og sefló. Það segir sína sögu að Ristur hafa oftlega verið leiknar og þijá klarínettuleikara veit ég að minnsta kosti, sem við þær hafa glímt. Leikur Sigurðar Ingva og Önnu Guðnýjar á þessari plötu er frábær. Stundum kann þaö að verka tvíbent að út komi svo ágæt ifljóðritun á nýju verki - hún getur orðið að stöðluðu fordæmi um titikun. Þessi ifljóðritun ber þá hættu með sér.

Sjaldgæft úrval Tflbrigði án stefs. Er það ekki bara einhver samtíningur óunninna stefja sem annars heföu lent í ruslakörfunni? Má vel vera, eða undir það gæti maður tekið þar til Steflaus tilbrigði Wemers Schiflze óma af plötunni. Þau era níu talsins og bera sum hver skondin nöfn eins og hið fyrsta þeirra sem nefhist Dans margfætlanna. Hreint ekki út í bláinn því stundum hendir það að maður sjái klarínettuna og henni skyldar ómpípur sem ómandi orma með ótal anga. Þar bregður líka fyrir íslenskum hætti í einu tilbrigðanna, sem Lfljulag nefhist Aflar væm þó nafngiftimar harla lítils virði ef ékki leyndist að baki klár „insturmental“ hugsun og skýrt stuðlaður skáldskapur í tónum. Eiga raunar öll verkin á plötunni sér það sammerkt. - Á þessari vönduðu plötu er aö finna sjaldgæft úrval afbragðs nútímaverka fyrir klarínettu. -EM

Leirform

Sýnlng Guðnýjar Magnúsdóttur i Galleril -Hailgerði

Fyrir örfáum árum breytti Guðný Magnúsdóttir leirlistamaður um stefhu, lagöi tfl hliðar koppa og kimur til að gerast frjáls og óháður listamaður í þrívídd og með góðum árangri. Nú hefur Guðný aftur snúiö sér aö koppum og kimum ef marka má litla og netta einkasýningu hennar, Leirform, í Galleríi Hallgerði við Bókhlöðustíg. Þó segir mér svo hugur að Guöný

Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson hafi ekki snúið baki við skúlptúmum fyrir fifllt og allt, heldur noti hún þá þekkingu sem hún hefur aflað sér í fijálsri myndlist til endumýjunar keramikur sinnar. En það er kannski einum of mikið sagt að sýningin í Hallgerði sé undir-

Ijóðræn strangflatarlist Ásgeir Lárusson heitfr einn af huldumönnum íslenskrar myndlistar. í röskan áratug hefur hann öðra hvora verið aö halda litlar og hógværar einkasýningar í miöbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið á svæði sem takmarkast annars vegar við Skólavörðustíg, hins vegar við Vatnsstíg. Ég hef grun um að þessar sýningar hafi lengi vel vakið litla athygli enda var listamaðurinn allt í senn, bráðungur, óþekktur og nánast sjálfmenntaöur í list sinni. Þar að auki held ég að honum sjálfum hafi tæpast þótt ástæða tfl að gera veður út af þessu sýningarstússi. Engu aö síður höfðu þessar sýningar ýmislegt til síns ágætis, ekki síst algjört hleypidómaleysi listamannsins gagnvart liststefhum allra tíma, aöferöum og efniviöi.

Myndlíkingar Asgeir hirti það úr samtíma sínum og umhverfi sem honum sýndist og lagaði að listrænum þörfum sínum. Þær þarfir vora fyrst og fremst Ijóðrænar (sjá einnig konkretljóðabók hans, útg. Iðunn), miðuðust að því að magna upp margræð tákn, sefja fram snjallar myndlíkingar, raða saman myndrænum hendingum, hvort sem er í formi tvívíðra verka, skúlptúra eða gripa (objekta).

Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson Tveir leirmunir eftir Guðnýju Magnúsdóttur.

lögð af nytjakeramík því þar er einnig að finna tvær lágmyndir eða leirhengi í frjálsu formi og óhlutbundnum stfl. Út af fyrir sig notar Guðný tiltölulega hefðbundna formgerð í flátum sínum en hnykkir á henni með óvæntum tilbrigðum, stölluðum brúnum eða ydduðum jöðrum og svo auðvitað með sjálfri skreytingunni. Skreytingin er raunar eins og sjálfstæð viðbót við hvem hlut, þar sem hún fylgir sjaldnast forminu, heldur gengur í flestum tflfeflum þvert á það. Skreytingin er eiginlega aðalmáliö á þessari sýningu Guðnýjar. Hún getur verið bæði rúðustrikuð og kvik, yfir-

DV-mynd Brynjar Gauti

gripsmikil og einfóld, og það á einum og sama hlutnum. Átökin í skreytingunni stuðla að líflegu yfirbragði þessarar sýningar en sjálfum þykir mér hún einnig stuðla aö óróleika, jafnvel sundurþykkju í sjálfum hlutunum. Ég held að afTarasæfla sé að láta form og skreytingu haldast í hendur að minnsta kosti þegar um brúkshluti er að ræða. Annars verður óæskilegur klofningur mifli útlits og notagildis hlutarins. Á sýningu Guðnýjar em 15 hlutir. Hún verður opin til 25. október. -ai

Þó er engin leið að kalla þessi myndverk „bókmenntaleg", svo næmur er skilningur Ásgeirs á þörfum myndflatarins og sjálfstæði myndverksins. Helstu myndrænu einkenni á verkum Ásgeirs er nettleg meöhöndlun hans á öflum innviðum, ekki síst áferð þeirra. Iistamaðurinn gælir við sérhvem flöt og sérhvem hlut. Á sýningu þeirri sem Ásgeir heldur um þessar mundir í Gallerí Gijót á Skólavörðustígnum, heldur hann uppteknum hætti.

Ásgeir Lárusson - Olíuverk, 1987.

Klink í karrí í þetta sinn er hann upptekinn af málaralistinni þótt nokkrir skondnir objektar fái að fljóta með, þar á meðal lítifl „skógur" á stafli, „Klink í karrí“, sem er nákvæmlega það sem nafiúö segir til um, og brennd „lágmynd". Sérstaklega beinir Ásgeir sjónum sínum að nýju strangflatarbylgjunni, „Neo geo“, en gefur henni allt aö því munúðarlegt yfirbragð með heitum litum og ríkulegri áferð, teiknar auk þess og klístrar ofan á hinn málaða flöt. Helst bregst Ásgeiri bogalistin þegar hann þarf að hantéra með flókna myndskipan eða beita alvöra teikningu. Þá segir sjálfsmenntun hans til sín. Ekki ætti það að hafa nokkur áhrif á náttúratalent Ásgeirs þótt hann yrði sér úti um formlega myndlistarmenntun. Það fer vel um sýningu hans í Galleríi Gijót, sem nú hefur verið breytt, þanrúg að meira rými er lagt undir einkasýningar en áður. -ai


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Margrét Jónsdóttir FÍMsalurinn 1987 by margret jonsdottir - Issuu