62 |
fimmtudagur 31. Maí 2012
Bókmenntaarfur byggður á hvalveiðum Bandaríkjamanna F
MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON
rásögnin af örlögum hvalveiðiskipsins Essex og raunum áhafnarinnar er sönn þótt hún kunni að vera lyginni líkust. Vitnisburðir þeirra sem komust af voru allir skráðir á sínum tíma og tveir þeirra sem lifðu af skráðu sjálfir frásagnir sínar. Annar þeirra var Owen Chase stýrimaður og er bók hans meðal heimilda að þessari grein. Þetta slys vakti mikla athygli á sínum tíma, bæði vegna þess að hvalur sökkti skipinu en líka að sjálfsögðu vegna þess að skipbrotsmennirnir gripu til hins óhugsandi, sem var að éta félaga sína til að komast af.
Gullöld bandarískra hvalveiða Gullöld bandarískra hvalveiða stóð frá um 1820 og langt fram á seinni hluta 19. aldar. Árið 1846 áttu Bandaríkjamenn alls 735 af 900 hvalveiðiskipum heimsins alls. Hundruð þúsunda hvala voru veiddir af þessum skipum sem fóru um heimshöfin og könnuðu um leið ný lönd og gerðu Bandaríkin að siglingaveldi og einu mesta stórveldi heims. Hvalveiðarnar voru fimmta stærsta atvinnugrein Bandaríkjanna á þessum tíma. Hvalveiðiskipin voru um fimmtungur af skipaflota þjóðarinnar. Árið 1853 var mesta hagnaðarár veiðanna en þá veiddu Bandaríkjamenn alls um átta þúsund hvali sem gáfu 103,000 tunnur af búrhvalalýsi, 260,000 tunnur af öðru hvalalýsi og 5,7 milljón pund af hvalaskíðum. Tekjurnar af þessu voru 11 milljónir dollara sem var geipimikið fé. Hvalveiðarnar höfðu á sér ævintýralegan og goðsagnakenndan blæ sem blandaðist geig. Hryllingssaga Essex-málsins ýtti enn frekar undir þennan dularfulla ljóma. Höfundur Moby Dick stundaði sjálfur hvalveiðar Skáldsagan um Moby Dick er eitt af frægustu verkum heimsbókmenntanna. Gerðar hafa verið kvikmyndir eftir bókinni og hún kemur stöðugt út í nýjum útgáfum víða um heim. Hún kom fyrst út árið 1851 í Bandaríkjunum en vakti litla athygli og salan var dræm. Það var ekki fyrr en mörgum árum síðar að bókin var uppgötvuð á ný og viðurkennd sem meistaraverk. Hermann Melville, höfundur Moby Dick, var fæddur árið 1819, ári fyrr en hvalurinn sökkti Essex með þeim afleiðingum sem var lýst í greininni hér að framan. Hann stundaði sjálfur hvalveiðar á bandarísku skipi í Kyrrahafi og lenti í ýmsum ævintýrum. Melville þekkti eins og flestir Bandaríkjamenn vel til örlaga Essex og áhafnar þess. Í bók sinni lætur hann þó staðar numið við það
Hvalveiðar voru hættulegar. Oft kom fyrir að menn brutu báta sína þegar þeir urðu fyrir sporðaköstum hvalanna. Ein af frægum teikningum eftir listamanninn Rockwell Kent úr skáldsögunni um Moby Dick. þegar hvíti hvalurinn Moby Dick ræðst á skip Akabs skipstjóra og sökkvir því svo aðeins sögumaðurinn Ísmael kemst af. Í bók sinni tvinnar Melville greinilega saman sinni eigin reynslu af hvalveiðunum og sögunni af endalokum Essex. Skáldsagan um Moby Dick er ekki einungis bókmenntalegt listaverk sem lesa má aftur og aftur, heldur er bókin líka einstök heimild um aðferðir við hvalveiðar á þessum tímum. Melville lýsir því mjög vel hvað menn vissu um hvalina, hvernig þeir veiddu þá og unnu afurðir á hafi úti um borð í skipunum á 19. öld. Þannig má hæglega segja að hér fari
eitt af lykilritum í sögu hvalveiða. Annað af höfuðritum bandarískra bókmennta á sömuleiðis rætur að rekja til afdrifa Essex og áhafnar þess. Það er skáldsagan Ævintýri Artúrs Gordon Pym eftir Edgar Allan Poe. Sú bók kom út árið 1840 og segir frá miklum svaðilförum ungs manns sem leggur út sem laumufarþegi með hvalveiðiskipi frá Nantucket. Hann lendir í miklum ævintýrum og hrakningum. Þar kemur einmitt fyrir atriði þar sem menn draga um það hverjum skuli slátrað til matar svo hinir megi lifa. Hvalveiðar Bandaríkjamanna gáfu
ekki einungis tekjur svo þeim tókst að byggja upp hagkerfi og brjótast til sjálfstæðis heldur voru þær einnig mikilvægur þáttur til innblásturs í bókmenntum þeirra. Þannig má með mörgum rökum segja að hvalveiðar hafi átt ríkan þátt í skapa sjálfsmynd Bandaríkjanna sem þjóðarheildar. Segja má að þjáningar áhafnarinnar á Essex hafi ekki verið til einskis því án þeirra hefðu hvorki Hermann Melville né Edgar Allan Poe skrifað bækur sínar og þannig fært þjóðinni mikilvægan bókmenntaarf. Svona geta atburðir á sjónum skilið eftir sig djúp og varanleg spor í vitund þjóðar.