

BRÚÐKAUPS BLAÐIÐ
Inngangur
Brúðkaupsdagurinn er einn stærsti og eftirminnilegasti dagur í lífi margra. Áður en stóri dagurinn rennur upp fylgir honum oft langur og spennandi undirbúningur þar sem margt þarf að huga að, allt frá staðsetningu og skreytingum til klæðnaðar, húðumhirðu, förðunar og þess ilms sem mun ávallt minna á daginn.
Hvort sem þú ert verðandi brúður, brúðgumi eða færð að deila þessum einstaka degi með ástvinum þínum vonum við að þetta blað veiti þér innblástur og hugmyndir fyrir stóra daginn.
Í þessu sérblaði deilir Luxeklúbburinn uppáhalds ráðum sínum um húðumhirðu, förðun og ilmi ásamt innblæstri frá nokkrum af virtustu snyrtivörumerkjum heims, þar á meðal Lancôme, YSL, Giorgio Armani, Valentino, IT
Cosmetics og Urban Decay. Markmiðið er einfalt, að hjálpa þér að líða sem best og njóta hvers augnabliks á deginum sem skiptir máli.




Förðun: Sara Dögg Johansen


Módel: Telma Fanney og Magdalena Guðmunds.
Ljósmyndari: Thelma Arngríms
Fatnaður: Loforð


Markmiðið
er einfalt, að hjálpa þér að líða sem best.
Förðun: Sara Dögg Johansen
Módel: Telma Fanney
Ljósmyndari: Thelma Arngríms

Rómantísk og ljómandi brúðarförðun
Rómantísk og klassísk brúðarförðun með áherslu á ljómandi húð og létta augnförðun með eyeliner. Augnförðunin er mjúk með hlýjum nude tónum og fíngerðum eyeliner sem opnar augun án þess að vera of dramatísk. Kinnarnar fá ferskan blæ með kinnalit og highlighter sem gefur húðinni heilbrigðan og náttúrulegan ljóma. Varirnar eru mótaðar með varablýanti og svo plumping glossi sem gefur vörunum létta fyllingu og er í rómantískum bleikum tón.
Andlit










YSL Touche Éclat Blur Primer
Lancôme Teint Idole
Ultra Wear foundation
Lancôme Teint Idole Ultra Wear concealer
Lancôme Teint Idole Ultra Wear bronzer
YSL All Hours Hyper Luminize 2 highlight
It Cosmetics Bye Bye Pores Pressed Powder Translucent
YSL Make Me Blush
Pressed 87 kinnalitur
Lancôme Teint Idôle
Ultra Wear contour stick

Urban Decay Eyeshadow
Primer Potion

Lancôme Idôle Tint
Liquid EyeBlush

Lancôme Idôle Liner 01 Glossy Black eyeliner

Lancôme Idôle Goddess
Dimension Eyeshadow

Lancôme Le Stylo WP
Pencil 01 Noir augnblýantur




IT Brow Power augabrúnablýantur


YSL Lash Latex maskari
YSL lipliner 103 varablýantur
YSL Loveshine Plumping Gloss
Varir

Eylure Eylure Cluster Wispy Clusters augnhár

All Nighter Setting Spray

Förðun: Sara Dögg Johansen
Módel: Magdalena Guðmundsdóttir
Ljósmyndari: Thelma Arngríms

Tímalaus og náttúruleg
brúðarförðun
Tímalaus soft glam förðun með áherslu á fallega húð með léttum ljóma og brúntóna augnskuggum. Húðin er með satínáferð og á móti notum við fallegan kinnalit sem gefur hlýju og ferskleika. Í augnförðunina notum við mjúka jarðliti sem gefa fallega dýpt og ramma inn augun, í lokin setjum við örlítið af glitrandi augnskugga og náttúruleg augnhár sem gefa augunum fallegt form. Augabrúnir eru náttúrulega mótaðar og á varirnar notum við látlausan varablýant til að móta varirnar og svo olíugloss sem gefur vörunum mikla næringu og fallegan glans fyrir stóra daginn.
Andlit










Luminous Silk Illuminating Primer
Armani Luminous Silk Foundation
Armani Luminous Silk Concealer
YSL All Hours Bronzer
YSL All Hours Loose Powder
Armani Fluid Sheer Glow Enhancer ljómi
Lancôme Kinnalitur Blush Subtil 02 Rose Sable
Make Me Blush 44 Nude Lavalliére krem kinnalitur
It Cosmetics Glow With Confidence Blush Sun Bronze

Urban Decay Eyeshadow Primer Potion










Armani eye Tint Liquid Shadow 22M Cashwe
YSL Lines liberated 02 Brown
Lancôme Lash Idôle Curl Goddess maskari
Lancôme Lip Idôle Liner 21 Shade Throwing Beige
YSL Couture Mini Clutch Palette 100
Lancôme Brow Define Pencil
Lancôme Lip Idôle JuicyTreat
YSL Lines liberated 01 Black
Varir


All Nighter Setting Spray Glow

Eylure Clusters Fluffy
Mikilvægi húðumhirðu
Húðin er grunnurinn að fullkominni brúðarförðun og því mikilvægt að byrja strax að huga að góðri rútínu fyrir heilbrigða og ljómandi húð. Varist að finna skyndilausnir með sterkum og virkum innihaldsefnum of stuttu fyrir brúðkaupsdaginn og reynið frekar að nota sömu húðvörurnar í 4-6 vikur sem gefa milda virkni og slípun, mikinn raka og hafa róandi áhrif á húðina.
4-6 vikum fyrir brúðkaup:
Settu upp milda en áhrifaríka rútínu sem þú fylgir í 4-6 vikur fyrir stóra daginn. Veldu mildan hreinsi sem hefur uppbyggjandi áhrif og styrkir varnarlag húðar og notaðu svo andlitsvatn sem hefur slípandi og rakagefandi áhrif á húðina. Fyrir jafnari áferð og öflugri hreinsun mælum við með að nota slípandi hreinsi 1-2 sinnum í viku en ef þú finnur fyrir ertingu skaltu nota hreinsinn sjaldnar eða sleppa honum.

Á morgnanna er gott að byrja að hreinsa húðolíu og óhreinindi, sem safnast hafa á húðinni yfir nóttina, með mildum hreinsi og setja andlitsvatn í blauta bómull og strjúka létt yfir. Húðin verður fyrir miklu áreiti yfir daginn og fer sjálfkrafa í varnarham til að verjast umhverfisáreiti á við vinda, kulda, hita, mengun, UV geislun o.fl., það er því mikilvægt að gefa henni mikinn og öflugan raka sem hún getur gengið á yfir daginn. Besta þrennan er fyrirbyggjandi og rakagefandi serum, nærandi og uppbyggjandi krem og frískandi og létt augnkrem sem dregur úr þrota. Mikilvægasta skrefið er svo sólarvörn með SPF50 og öflugri geislavörn sem er árangursríkasta leiðin til að hægja á öldrun húðar.
Ef þú vilt að húðvörurnar þínar hafi hámarks virkni á kvöldin verður þú að hreinsa húðina vel svo virku eiginleikarnir hafi greiða leið niður í húðina. Best er að nota tvöfalda hreinsun þar sem þú notar olíuhreinsi til að fjarlægja óhreinindi á yfirborði húðar, mengun, förðunarvörur o.fl., og notar svo freyðandi hreinsi sem nær dýpra í húðina. Að hreinsun lokinni er gott að setja andlitsvatn í lófa og þrýsta formúlunni ofan í húðina. Á nóttunni fer húðin í endurnýjunarham þar sem allir frumuferlar fara á fullt við að endurnýja og lagfæra, vegna þessa er mikilvægt að velja húðvörur sem hafa hvetjandi áhrif á viðgerðarferlið.
Á kvöldin er mjög gott að nota slípandi serum sem innihalda t.d. retinól en retinól vinnur bæði á yfirborði húðar fyrir jafnari áferð og litarhátt, og örvar frumuendurnýjun og kollagenmyndun dýpra í húðinni. Mikilvægt er að byrja notkun hægt, 1-2 sinnum í viku til að finna hvernig húðin bregst við, ef hún bregst vel við má nota örar, t.d. annað hvert kvöld, og að lokum á hverju kvöldi. Við notkun sýra losum við um dauðar húðfrumur á yfirborði húðar svo hún verður mun viðkvæmari fyrir geislun sólar, því er enn nauðsynlegra að nota öfluga sólarvörn á daginn. Hafa má í huga að eðlilegt er að húð flagnar og að bólumyndun eykst fyrstu vikuna við notkun retinóls þar sem hún er að losa sig við dauðar húðfrumur og óhreinindi. Leyfðu retinólinu að vinna í 20-30 mínútur áður en þú berð þétt og nærandi krem á húðina og nærandi og styrkjandi augnkrem á augnvæðið. Ef þú vilt smá extra í kvöldrútínuna til að hámarka virknina og drekkja húðinni í næringu mælum við með olíuserumi til að innsigla allt sem á undan hefur komið.
Morgunrútína: Kvöldrútína:

Biotherm Aquasource Hydra Barrier Cleanser

Kiehl´s Micro Dermabrasion

Lancôme Génifique Serum

Lancôme UV Expert Supra Screen SPF 50+

Kiehl´s Daily Refining Milk-Peel Toner

Biotherm Aquasource Electrolyte

Kiehl´s Avocado Creamy Eye Treatment


Biotherm Biosource Total Renew Oil Cleanser Kiehl´s Calendula Cleanser

Kiehl´s Ferulic Brew Rejuvenating Facial Essence Toner

Kiehl´s Midnight Recovery Cloud Cream

Kiehl´s Midnight Recovery Concentrate

Lancôme Rénergie C.R.x Retinol Triple Serum Night

Lancôme Rénergie Eye Cream
Húðumhirða
á stóra deginum
Það er gott að sleppa virku húðvörunum þínum 1-2 sólarhringum fyrir athöfn og einblína frekar á rakagefandi og róandi húðvörur, ekki skrúbba eða slípa til að forðast ertingu og roða. Við mælum með að taka góða dekurstund, annað hvort kvöldið eða morguninn fyrir athöfn. Hreinsaðu húðina með mildu hreinsunum þínum, berðu ofur rakagefandi maska á húðina og kælandi augnmaska á augnsvæðið, og leyfðu þeim að vinna í a.m.k. 20 mínútur. Notaðu svo rakan þvottapoka sem þú dregur mjúklega eftir andlitinu, ekki nota hreinsi til að þvo formúlurnar af, með því móti halda þær áfram að gefa þér raka allan daginn og viðhalda þéttleika og heilbrigði húðar. Endaðu á að bera létta rakakremið og augnkremið þitt í litlu magni á húðina svo hún sé undirbúin fyrir förðunina.
Vörur:
Góð ráð:
Vertu með rakagefandi andlitssprey í veskinu til að spreyja yfir húðina og gefa henni þéttleika, raka og ljóma í þurru lofti.


Vertu dugleg að bera varamaska á varirnar nokkrum sinnum á dag fyrir stóra daginn til að koma í veg fyrir sprungnar varir undir varalitnum.
Notaðu örvandi augnháraserum í 4-6 vikur fyrir brúðkaup fyrir sterkari og heilbrigðari augnhár og augabrúnir.

IT Cosmetics Bye Bye Makeup Cleansing Balm

Kiehl´s Avocado Creamy Eye Treatment

Kiehl´s Ultra Facial Mask

Kiehl´s Ultra Facial Cream

Ekki gleyma líkamanum
Við viljum að húð líkamans ljómi af heilbrigði, alveg eins og húð andlits. Bættu inn í líkamsrútínuna þína skrúbbi, styrkingu og nærandi kremum 4-6 vikum fyrir brúðkaupsdaginn fyrir hámarks árangur. Notaðu slípandi og nærandi líkamsskrúbb sem jafnar áferð og litarhátt húðar 2-3x í viku, fylgdu eftir með stinnandi og styrkjandi líkamsserumi og endaðu á hámarks næringu sem þéttir, styrkir og sléttir. Á hverjum degi mælum við svo með að nota léttara, rakagefandi krem sem hámarkar virkni líkamsrútínunnar. Á brúðkaupsdaginn er svo meiriháttar að nota líkamskrem sem gefur góðan ilm og fallegan ljóma.
Vörur:
Góð ráð:
Bættu ljómadropum út í líkamskremið þitt fyrir enn meiri ljóma á bringu, öxlum, handog fótleggjum. (Armani ljómadropar)

Púðraðu létt yfir húð líkamans og spreyjaðu setting spreyi yfir til að koma í veg fyrir að líkamskremið smiti og endist allan dagin og kvöldið. (laust púður og UD setting spray)
Settu auka ljóma á viðbeinin fyrir extra birtu og ferskleika. (Lancome glow stick)
Biotherm Biocorps Body Scrub

Biotherm Collagen Fit Body Cream

Biotherm Oil Therapy Body Lotion

Biotherm Biocorps Body Serum

Biotherm Lait Corporel Body Lotion

Biotherm Collagen Fit Body Milk
Fyrir herrann
Það er alveg jafn mikilvægt að karlmenn hugsi um húðina sína og hvað þá fyrir stóra daginn. Góð rútína með fáum, en áhrifaríkum vörum gerir mikið fyrir áferð og útlit húðar og mælum við með að koma henni inn, ekki minna en mánuði fyrir brúðkaup.
Veldu mildan en áhrifaríkan hreinsi og notaðu á kvöldin eða kvölds og morgna til að fjarlægja mengun og óhreinindi og koma í veg fyrir inngróin hár. Fyrir djúphreinsun er gott að nota andlitsskrúbb 1-3x í viku sem slípar dauðar húðfrumur af yfirborði húðar. Notaðu létt og frískandi gel á morgnanna fyrir rakasprengju og ef húðin er þeim mun þurrari er gott að nota krem yfir. Berðu svo létt augnkrem á augnsvæðið til að draga úr þrota og baugum. Á kvöldin er gott að nota sömu rútínuna nema bæta við virku serumi sem styrkir húðina, dregur úr sýnileika opinna húðhola og fínna lína og dregur fram heilbrigði. Að lokum er upplagt að bæta inn uppbyggjandi og rakagefandi líkamskremi.
Vörur:

Kiehl’s Facial Fuel Energizing Face Wash For Men

Biotherm Aquapower Advanced Gel

Biotherm Force Supreme Body Reshaper

Kiehl’s Facial Fuel Energizing Scrub

Biotherm Aquapower Eye Gel

Biotherm Aquasource+ Electrolyte Dewy Gel

Biotherm Force Supreme Blue Serum
Láttu förðunina endast allan daginn
Til að förðunin haldist falleg frá fyrstu myndatöku og fram á síðasta danssporið skiptir góð undirstaða öllu máli. Vel undirbúin húð með góðri rakagjöf og farðagrunni hjálpa förðunarvörunum að leggjast jafnt og endast betur yfir daginn.
Sem loka skref mælum við með setting spreyinu frá Urban Decay sem læsir förðuninni á sínum stað og tryggir að hún haldist fersk og falleg allan daginn og langt fram á kvöld. Urban Decay All Nighter Setting Spray er klassíska uppáhaldið, létt micro mist sprey sem kælir húðina um 4°C við snertingu, veitir allt að 8 klukkustunda raka og heldur förðuninni á sínum stað.
Fyrir þau sem vilja auka ljóma húðarinnar er einnig hægt að velja All Nighter Vitamin C Setting Spray. Það inniheldur glýserín, gojiberjaþykkni og níasínamíði sem gefa húðinni jafnara, sléttara og meira ljómandi yfirbragð. Fullkomið fyrir geislandi brúðarlúkkið.
Fyrir þá sem kjósa matta áferð er All Nighter Setting Spray Matte frábær kostur.
Formúlan inniheldur hrísgrjónaduft sem hjálpar við að draga úr glans og gefur húðinni mjúka, sléttari áferð án þess að hafa þurrkandi áhrif.

Spreyin eru öll núningsþolin, vatns- og svitaheld og henta öllum húðgerðum.




Ilmir sem fullkomna brúðkaupsdaginn
Á brúðkaupsdeginum skipta smáatriðin öllu máli – kjóllinn, blómin, augnablikið… og ilmurinn. Réttur ilmur fangar stemninguna, vekur minningar og fylgir þér langt inn í framtíðina. Hér eru valdir ilmir sem henta jafnt fyrir rómantíska brúði, sjálfsöruggan brúðguma og ógleymanlega kvöldstund.

Valentino Born in Roma Purple Melancholia
Purple Melancholia ilmirnir frá Valentino fanga dularfulla rómantík með nútímalegum blæ.
Donna Purple er chypre ávaxtakeimur sem skilur eftir sig djúpa og seiðandi slóð.


Uomo Purple sameinar kardimommu, lavender og rjómakenndan kókoskeim.
Emporio Armani – Stronger With You Powerfully & Power of YOU
Ilmirnir í YOU línunni frá Armani eru tileinkaðir tengingum og tilfinningum.
Power of YOU er bjartur og líflegur ilmur sem sameinar ástaraldin, blóm og vanillu í sjálfsörugga heild.


Stronger With YOU Powerfully þar sem kirsuber og mandarína mætast hlýjum grunni kastaníu, vanillu og amberviðar.
Prada Paradoxe & Paradigme
Prada sameinar andstæður í fáguðum ilmum sem einkennast af jafnvægi og elegans.
Paradoxe sameinar ferskleika neroli við mjúka og hlýja dýpt musks og skapar tímalausan elegans.

Paradigme er fáguð blanda þar sem perur og bergamot veita ferskleika á móti hlýjum musk- og viðarnótum.

Lancôme La Vie Est Belle Vanille Nude
Veitir persónulega undirskrift sem endist allan daginn.

Lancôme La Vie Est Belle Vanille Nude er mjúkur og hlýr ilmur með jasmínu, bourbon vanillu og kremuðu hvítu muski.

YSL LIBRE Berry Crush & MYSLF L’ABSOLU
Yves Saint Laurent túlkar frelsi og styrk í sínum einkennandi ilmum.
LIBRE Berry Crush er björt og ávaxtarík
útgáfa af hinum klassíska LIBRE, þar sem hindber, kókosrjómi og blómakenndir tónar skapa létta og geislandi heild


MYSLF L’ABSOLU byggir á MYSLF ilminum. Bergamot, appelsínublóm, patchouli og mjúkt, kryddað engifer mynda fágaðan og heillandi ilm
YSL Black Opium Over Red & Y Eau de Parfum
Andstæður mætast í kraftmiklum ilmum Yves Saint Laurent.
Black Opium Over Red sameinar safarík kirsuber við djúpan kaffikeim og sæta vanillu.


Y Eau de Parfum er ferskur og fágaður ilmur þar sem bergamot og engifer opna með skýrum og björtum tónum.
ARMANI My Way Sunny Vanilla & Acqua di Giò EDP Intense
Ferðalag skynfæranna heldur áfram með Armani.
My Way Sunny Vanilla þar sem ananas og hvít blóm blandast mjúkri vanillu og skapa hlýja og rómantíska heild

Acqua di Giò EDP Intense sameinar ferskleika sítrusnóta við sjávarangan og djúpa viðartóna.
Ráð fyrir stóra daginn
Skipulagið er eitt en raunveruleikinn á brúðkaupsdaginn getur verið allt annar.
Við spurðum nokkrar konur hvaða augnablik komu þeim á óvart á stóra deginum og hvaða ráð þær myndu gefa verðandi brúðum.

Eva Ruza
Eitt ráð sem þú myndir gefa verðandi brúði?
„Plís njóta. Það er án gríns eina ráðið mitt.
Njóta hverrar einustu mínútu, frá því þú opnar augun um morguninn og þangað til þú ferð að sofa.
Ekki hafa áhyggjur af smáhlutum. Dagurinn er yfirleitt allur planaður upp a mínútu, vonandi gott fólk í kring sem grípur þá bolta sem þarf að grípa og ef eitthvað klikkar er það vanalega ekkert stórræði. Svo lengi sem brúðhjónin mæta bæði í kirkjuna. Og dagana fyrir brúðkaup. Njóta þess að vera í undirbúningsdekrinu.„
Hvað myndir þú gera öðruvísi?
„Ég held að það sé nákvæmlega ekkert sem ég vildi hafa gert öðruvísi. Ég giftist honum Sigga mínum í Slóveníu árið 2007, það voru 50 gestir í brúðkaupinu sem bæði komu héðan og svo fjölskylda og vinir frá Króatíu og Slóveníu og allt var fullkomið. Við vorum eitthvað svo lítil og sæt bæði, ég 24 ára og hann 27 ára. Við sigldum með gestina yfir í kirkjuna okkar og ég klæddi mig í brúðarkjólinn úti á bakvið kirkjuna, þannig að það var mjög afslappað allt. Ein af mínum bestu vinkonum greiddi mér, ég málaði mig sjálf og ekkert vesen. Vorum á uppáhalds staðnum okkar með öllu fólkinu sem við elskum útaf lífinu, þannig að ég get sagt alveg beint frá hjartanu að ég mundi engu vilja breyta. „

Þórunn Högna
Hvað kom þér mest á óvart á brúðkaupsdaginn?
„Það sem kom mér mest á óvart var hversu róleg ég var og ekkert stressuð! Ég var ólétt komin 6 mánuði og var nýlega hætt að kasta upp! Náði ekki að fara í neglur deginum áður og græjaði það bara sjálf, síðan vaknaði ég við það að Tristan ældi yfir mig! Ég hugsa að í dag hefði ég farið í meira panikk! „

Karitas María
Eitt ráð sem þú myndir gefa verðandi brúði?
„Ekki reyna að stjórna öllu á deginum sjálfum.
Skipuleggðu það sem þú getur fyrirfram og leyfðu þér svo að vera bara til staðar og njóta. Veldu fólk í kringum þig sem þú treystir, fáðu góða aðila í hár og förðun og ekki síst góða veislustjóra – ég var með svo góða vini í þessu og þau gerðu daginn svo miklu skemmtilegri og áhyggjulausari. Gestirnir muna stemninguna og gleðina miklu frekar en öll smáatriðin.“

Fanney Ingvars
Eitt ráð sem þú myndir gefa verðandi brúði?
„Klisjan er sannarlega sönn varðandi að njóta hvers augnabliks á stóra deginum. Aðdragandi að brúðkaupi er langur og skipulagið mikið. Þegar dagurinn sjálfur rennur upp á allt að vera komið í annarra manna hendur, maður þarf að reyna að sleppa takinu á öllu og njóta hvers augnabliks. Þiggja aðstoð frá þeim sem maður treystir best og vera með góða aðila til að stjórna veislunni. Hvert augnablik frá morgni til kvölds eru minningar sem lifa með manni um ókomna tíð og það er mikilvægast af öllu að njóta! „

Jana
Eitt ráð sem þú myndir gefa verðandi brúði?
„Mundu að stoppa af og til og taka allt inn. Dagurinn líður svo ótrúlega hratt og áður en þú veist af er hann búinn. Ekki stressa þig á smáatriðunum – enginn man eftir þeim. Það sem fólk man eftir er ástin, stemningin og gleðin. Fyrir mig var þetta besti dagur lífs míns og okkar, og ég er svo þakklát að hafa leyft mér að njóta hans í stað þess að hafa áhyggjur af því að allt væri fullkomið.“