Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt skýrslu með niðurstöðum úr árlegri könnun á viðhorfum til lögreglu, ótta við afbrot og reynslu af þeim.
Gagnaöflunin fór fram dagana 10. maí til 14. júní 2020 og var framkvæmd af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fyrir embætti ríkislögreglustjóra og lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Tekið var 2.000 manna tilviljunarúrtak fólks á aldrinum 18 ára og eldra af höfuðborgarsvæðinu úr netpanel Félagsvísindastofnunar. Fjöldi svarenda var 1.159 og svarhlutfallið því um 60 prósent. Gögnin voru vigtuð fyrir kyni, aldri og menntun svarenda.