Ánægja með störf lögreglu
Mikill meirihluti landsmanna er ánægður með störf lögreglu á landsvísu og telur hana skila góðu starfi, en þetta kemur fram í viðhorfskönnun, sem embætti ríkislögreglustjóra og embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu stóðu fyrir um mitt ár. Í könnuninni, sem var framkvæmd af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands dagana 26. maí til 15. júlí sl., var spurt um viðhorf til lögreglu, ótta borgaranna við afbrot sem og reynslu þeirra af þeim.
Þegar á heildina er lítið, hversu góðu eða slæmu starfi finnst þér lögreglan skila í þínu hverfi/byggðarlagi til að stemma stigu við afbrotum? var ein þeirra spurninga sem varpað var fram í könnuninni, en 90% landsmanna sögðu lögregluna hafa skilað góðu starfi hvað þetta varðar. Þess má geta að í úrtakinu voru rúmlega 4.000 manns á aldrinum 18-75 ára og var svarhlutfallið 62 prósent. Stuðst var við netpanel og voru spurningarnar sendar rafrænt og svör