
1 minute read
12. Kafli – Námsstyrkur við námslok
Ljúki námsmaður prófgráðu á þeim námstíma sem skipulag skólans á náminu gerir ráð fyrir á hann rétt á námsstyrk sem nemur 30% niðurfærslu á höfuðstól námslánaskuldarinnar ásamt verðbótum á þeim degi sem skuldabréf er fært til innheimtu.
Námsstyrkur er einungis veittur vegna náms sem er skipulagt sem fullt nám í að lágmarki tvær annir, þ.e. sem nemur að lágmarki 60 ECTSeiningum eða ígildi þeirra. Námsmenn hafa svigrúm til seinkunar í námi án þess að réttur til námsstyrks skerðist. Svigrúm til seinkunar er eftirfarandi: 1. Eitt ár umfram þann tíma sem skipulag iðn-, starfs- og aðfaranáms kveður á um. 2. Eitt ár umfram þann tíma sem skipulag bakkalárs- og meistaranáms kveður á um. 3. Sex mánuðir umfram þann tíma sem skipulag diplómanáms kveður á um. 4. Tvö ár umfram þann tíma sem skipulag doktorsnáms kveður á um. Undanþágur frá námsframvindu samkvæmt greinum 3.4.1 – 3.4.6 teljast ekki til seinkunar í námi. Áður en hægt er að veita námsmanni styrk þurfa að liggja fyrir staðfestar upplýsingar um hvenær nám hans hófst og hvenær því lauk með afriti af staðfestingu á lokaprófi. Námsmaður ber ábyrgð á því að sjóðnum berist slíkar upplýsingar. Að jafnaði er miðað við að staðfesting námsmanns á námslokum verði að hafa borist til sjóðsins innan 6 mánaða frá því hann lauk námi.