Skip to main content

Jólablað VG

Page 1

VGblaðið 2. tölublað

Vestmannaeyjum, jólin 2020

Gleðileg jól

18. árgangur

farsælt komandi ár


Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir SKIPALYFTAN ehf.

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jólaog nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Bíla- og vélaverkstæðið HARÐAR & MATTA

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Útgefandi: Vinstrihreyfingin- grænt framboð í Vestmannaeyjum Ritstjórn: Ragnar Óskarsson ábyrgðarmaður Helga Jóhanna Harðardóttir

Forsíðumyndin: Forsíðumyndin að þessu

sinni er eftir Aldísi Gunnarsdóttir - Myndin er í einkaeign


3

Helga Jóhanna Harðardóttir:

Jólahugvekja á aðventu Þegar ég hugsa um orðið aðventa þá sé ég fyrir mér eitthvað notalegt og huggulegt. Ég sé fyrir mér fjölskylduna skreyta piparkökur, skera út laufabrauð eða baka smákökur. Ég sé fyrir mér rökkur úti en þó snjó en inni sé ég kveikt á kertaljósum og fallega birtu af jólaljósum. Ég sé fyrir mér börnin mín full af tilhlökkun við að opna fyrsta gluggann í jóladagatalinu, horfa saman á jóladagatal sjónvarpsins og ég tala nú ekki um komu fyrstu jólasveinanna. Þetta er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa um aðventuna en í raunheimi er vissulega ekki alltaf notalegt eða huggulegt á aðventunni. Meira að segja í raunheimi verða þessar stundir sem ég taldi upp hér að ofan oft ekkert svo huggulegar vegna pirrings og þreytu. Svo tökum við kannski mynd af fallegu augnabliki og deilum því með umheiminum á netinu. Oft vill aðventan hjá sumum verða þannig að hún einkennist af öngþveiti og ringulreið. Það er mikið að gera og margt sem þú ætlar þér að klára fyrir jólin. Það vill oft vera þannig að mikið er um vinahittinga, fólk að fara á tónleika, jólahlaðborð, verslunarferðir fyrir jólin og ýmsa aðra viðburði á aðventunni. Í amstri dagsins hjá foreldrum er að mörgu að hyggja því þú þarft að muna eftir

Helga Jóhanna Harðardóttir sparinestisdeginum, föndurdeginum, jólapeysudeginum, mæta með börnin á ýmsa viðburði eins og jólaböll, jólasveinaklúbba, litlu jólin, fimleikasýningu og svo mætti lengi telja. Ekki misskilja mig að mér leiðist svona stúss því það er alls ekki

þannig. Ég viðurkenni samt að á þessum tíma mætti maður stundum staldra betur við og skapa aðstæður þannig að maður sé ekki á þönum allan daginn og frekar að njóta tímans. Í ár fer aðventan og undirbúningur jólanna fram með öðrum hætti en vanalega. Vegna samkomutakmarkana verðum við að hugsa og framkvæma hlutina á annan hátt. Það verður væntanlega minna um að maður hitti marga í einu nema á rafrænan hátt. Það verður ekkert eða lítið af allskonar viðburðum tengdum aðventunni og nú versla margir jólagjafirnar í gegnum vefverslun. Með þessu fyrirkomulagi held ég að á endanum verði aðventan fyrir vikið mun huggulegri og notalegri en síðustu ár. Einbeitum okkur að því jákvæða sem þessar takmarkanir færa okkur og finnum jákvæðar og nýjar leiðir til þess að gera undirbúning jólanna skemmtilegan. Það er svo sannarlega farið að reyna á úthald okkar gagnvart veirunni en við verðum að þrauka og þá er ekkert betra en að hugsa á jákvæðum nótum. Kæri lesandi ég óska þess að þú eigir gleðiríka aðventu og hafir það huggulegt á jólahátíðinni. Helga Jóhanna Harðardóttir


Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jólaog nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

PRENTSMIÐJAN EYRÚN HLÍÐARVEGI 7 - S: 481-1075 - preyrun@simnet.is

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir FASTEIGNASALA VESTMANNAEYJA

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir


5

Helgi Bernódusson:

Um Braga Straumfjörð Jósepsson og árin hans í Eyjum Setti svip á bæjarlífið.

Margir Eyjamenn þekkja eða muna eftir Braga Straumfjörð eða Braga Jósepssyni. Hann bjó í Eyjum milli 1950 og 1960 og setti þá svip á bæjarlífið. Hann er fæddur í Stykkishólmi 6. febr. 1930, ólst þar upp og býr þar á ný eftir margar krókaleiðir á ævi sinni þaðan og þangað aftur. Bragi varð níræður fyrr á þessu ári. Hann er ern og sprækur, býr einn í húsi sínu í Stykkishólmi og sér um sig sjálfur, „höfuðið í góðu lagi“ segir hann, sjálfum sér líkur. Hann fæst aðallega við skriftir. „Ég er sem sagt ekki Vestmanneyingur eins og ýmsir kynnu að halda. Ég hóf hins vegar starfsferil minn í Vestmannaeyjum, giftist konu þaðan, átti mín fyrstu börn þar, gaf út fyrstu ljóðabækur mínar meðan ég var í Eyjum, Spíruskip (1960) og Djúpfryst ljóð (1961). Vestmanneyingar muna mig fyrst og fremst sem kennara, býst ég við. Ég kenndi börnum við Aðventistaskólann og síðar unglingum ensku við Gagnfræðaskólann. Ég var um tíu ár í Eyjum, nýkominn úr skóla erlendis. Þetta voru fyrstu starfsár mín. Því er þessi tími svo minnisstæður í lífi mínu, og ég var ungur og ástfanginn. Við hjónin bjuggum fyrstu árin í Eyjum hjá tengdaforeldrum mínum en síðan byggðum við okkur íbúðarhús. Já, það var nóg að gera, kennsla á morgnana, verslunarrekstur á daginn, húsbygging á kvöldin og yrkingar á nóttinni. Maður er sprækastur milli tvítugs og þrítugs! Ég var fullur af lífsfjöri árin sem ég var í Eyjum. Ég var mikið innan um börn og unglinga og fannst gaman að því, en tók líka þátt í lista- og menningarlífi, og svo lét ég dálítið að mér kveða í atvinnurekstri. Já, ég kynntist mörgum Eyjamönnum sem hafa orðið mér alveg ógleymanlegir.“ Þannig minnist Bragi Eyjaáranna þegar hann lítur til baka. Og líf hans átti eftir að taka marga snúninga eftir að hann kvaddi Vestmannaeyjar 1961.

„Lausaleiksbarn“ í Hólminum.

Móðir Braga, Jóhanna Bjarnrós Bjarnadóttir, var vinnukona á prestsetrinu í Stykkishólmi þegar hann fæddist, en faðir hans, Jósep Jakobsson, var verkamaður þar í plássinu. Kynni þeirra voru stutt og ekki til annars stofnað. Jóhanna varð síðar húsfreyja í LitluTungu í Holtum og eignaðist tvo drengi með bónda sínum. Hún dó ung, aðeins 36 ára. Jósep fluttist úr Hólminum til Reykjavíkur áður en Bragi fæddist, giftist þar og

eignaðist tvö börn. Hann drukknaði 1942. Hann ætlaði að hefja búskap á Bálkastöðum í Miðfirði og var á leið þangað þegar slysið varð. Bragi sá föður sinn aðeins einu sinni, en hann var vinsæll maður og myndarlegur; átti annað barn í lausum leik 1930, árið sem Bragi fæddist. Hálfsystkini Braga eru því fimm.

Af hverju „Straumfjörð“?

„Æ, ég veit það ekki. Ég held að móðir mín hafi ekki viljað að ég væri kenndur við Jósep. Ég hét bara Bragi Straumfjörð og tók ekki upp föðurnafnið, Jósepsson, fyrr en ég fluttist til Ameríku þrítugur. Þar bar og ber öll fjölskyldan þetta nafn, „Josepsson“. Kannski var móður minni eitthvað í nöp við Jósep, karlinn, og ekki meiningin að búa til barn. En forlögin láta ekki að sér hæða og því fór sem fór! Fóstra mín, prestsfrúin, vildi að ég héti Kormákur en það varð ekki. Ég hef hins vegar notað það sem skáldanafn. „Kormáks hef ég kossa þegið“ sagði hún stundum.“ Þau orð eru úr kvæði eftir Grím Thomsen. Það var Kormákur skáld Ögmundarson sem elskaði Steingerði Þorkelsdóttur svo heitt, og hún hann, eins og segir í Kormákssögu. Jóhanna fékk að hafa Braga hjá sér í húsi prestsins, og svo kær varð drengurinn litli húsbændunum, séra Sigurði Ó. Lárussyni og frú Ingigerði Ágústsdóttur, að þegar Jóhanna fór þaðan úr húsi varð Bragi eftir hjá prestshjónunum og ólst þar upp sem þeirra fóstursonur. Þau voru barnlaus en áttu annan fósturson, Sigurð Reyni Pétursson, sem varð hæstaréttarlögmaður og lengi framkvæmdastjóri STEFs. „Ég leit mikið upp til hans, hann var níu árum eldri en ég. Hann reyndist mér vel sem fósturbróðir til dauðadags.“ Bragi hafði ágæt samskipti við hálfsystkini sín, ekki mikil, en góð. „Það var mjög gaman að alast upp í Hólminum. Ég var auðvitað í sveit á sumrin en vann annars eins og aðrir unglingar, t.d. í vegavinnu, múrverki og var m.a.s. á sjó. Ég kynntist fólkinu vel. Þar er ekki síður fallegt en í Vestmannaeyjum! Ég hef skrifað mikið um Stykkishólm og íbúana á Nesinu.“ Þarna vísar Bragi til átta binda verks, byggðarsögu Stykkishólms með yfirliti um fólkið í bænum, sögu þess og ættir. Og þar eru líka fremst æskuminningar Braga sjálfs af Þórsnesinu. Ritið er geysimikið að vöxtum.

Bragi Straumfjörð Jósepsson, kennari í Vestmannaeyjum 1952-1961, aðventisti, athafnamaður, skáld og prófessor.

Tengslin við Vestmannaeyjar.

„Ég hafði viss tengsl við Vestmannaeyjar áður en ég fluttist þangað haustið 1952. Sr. Sigurður, fósturfaðir minn, var bróðir Ólafs Lárussonar læknis í Arnardrangi. Það var gott á milli þeirra bræðra. En mestu munaði þó að ég kynntist stúlku úr Eyjum, Dorte Oddsdóttur. Við giftum okkur og ég fluttist með henni til Vestmannaeyja.“ Dorte (Dóróte) er fjórum árum yngri en Bragi, fædd 1934. Hún er hjúkrunarkona að mennt, einkadóttir Odds Þorsteinssonar skókaupmanns og danskrar konu hans, Önnu Katerinu Henriksen, sem kölluð var „Katy“. Þau bjuggu í Einarshöfn, Kirkjuvegi 15, sem enn stendur. Oddur rak á jarðhæðinni skóverslun með sínu nafni, en íbúð þeirra var á aðalhæðinni og herbergi í risi. Á baklóðinni var lítið hús, sem líka stendur enn við hraunjaðarinn og er búið í. Þar rak Oddur skóverkstæði sitt. Aðalmaður í bakhúsinu var Guðmundur Halldórsson, oft kallaður „Gvendur skóari“, allsérstæður maður, „mikill ljúflingur“ segir Bragi. Í skóversluninni og á skóverkstæðinu var á þessum tíma mikið að gera og Oddur með fólk í vinnu. Bragi greip sjálfur í skóviðgerðir hjá Oddi og Guðmundi og segist hafa haft gaman af því, „sérstaklega að vinna við spólurokkinn“, auk þess sem skemmtilegt hafi verið að rabba við viðskiptavinina sem komu og fóru. „Oddur tók mér vel sem tengdasyni og félaga. Hann var ættrækinn og talaði oft


6 um ættingja sína upp á landi, í Fljótshlíð, og þá sem tengdust verslun Lárusar G. Lúðvígssonar í Reykjavík. Hann var mikill „sölumaður“ og vinsæll kaupmaður. Ég man að mér þótti athyglisvert hve margir sjómenn keyptu af honum sjóstígvél sem hann hafði límt ofan á og náðu upp í klof og var hægt að leggja niður. Já, hann var sómamaður, góður heimilisfaðir og hafði mikið dálæti á Dorte, dóttur sinni.“

vor 1952 að heimsækja bróður sinn, Ólaf lækni, sem þá lá banaleguna. Hann notaði tækifærið og heilsaði upp á „tilvonandi tengdadóttur“ sína. Það fór vel á með þeim. Vestmannaeyjar toguðu auðvitað stíft í Dorte því að hún var eina barn foreldra sinna, en ég gat líka alveg hugsað mér að flytjast til Eyja og stofna heimili þar. Aðventistar ráku barnaskóla í Eyjum og þar fékk ég ágætt starf.“

Aðventisti.

Skólinn og kennslan.

Bragi lauk skyldunámi heima í Stykkishólmi og fór síðan á héraðsskólann á Laugarvatni. En 18 ára gamall hóf hann nám í Kennaraskólanum. Þar varð Bragi fyrir trúarlegri reynslu og skírðist niðurdýfingarskírn í kirkju sjöunda dags aðventista í Reykjavík. Það hafði mikil áhrif á líf Braga. Eftir kennarapróf vorið 1951 ákvað Bragi að fara á trúboðsskóla aðventista í Bretlandi, Newbold Missionary College í Binfield, skammt vestur af London, þar sem hann las uppeldis- og sálarfræði. Fyrr um sumarið 1951 fór Bragi með hópi aðventista frá Íslandi í skemmti- og fræðsluferð til Glasgow í Skotlandi og síðar yfir Ermasund til Parísar. Í þessum hópi var Dorte, nýútskrifuð úr Gagnfræðaskólanum í Vestmannaeyjum. Þar og þá hófust kynni þeirra. Bragi fór svo í trúboðsskólann að ferðinni lokinni. Dorte fór heldur ekki beint heim aftur til Íslands. Hún fékk vinnu á Stanford-heilsuhælinu í Watford. Þau Dorte og Bragi hittust nokkrum sinnum þennan vetur úti í Bretlandi, ástin hafði kviknað og þau trúlofuðu sig þar. Dorte hélt heim um vorið en Bragi kom nokkru síðar. Um haustið, 26. sept. 1952, giftu þau sig í Reykjavík. Það var sr. Sigurður, fósturfaðir Braga, sem gaf þau saman heima hjá Sigurði Reyni, uppeldisbróður hans. „Fóstri minn hafði farið til Eyja þetta

Skóli aðventista í Vestmannaeyjum var stofnaður 1928. Hann var í húsi sambyggðu kirkju þeirra við Brekastíg og er lítið eitt yngra en kirkjan sjálf. Skólinn var enn býsna vinsæll á þeim árum sem Bragi var í Eyjum, ekki aðeins fyrir börn í söfnuðinum heldur líka utan hans, sérstaklega í yngstu aldurshópunum. Flest urðu börnin um 20. Bragi kenndi við skólann frá 1952 til 1957 en þá flutti hann sig upp í Gagnfræðaskóla og varð fastur kennari þar, kenndi auk ensku dönsku og teikningu. Nemendur í Aðventistaskólanum, sem voru hjá Braga, minnast þess hve líflegur, skemmtilegur og frumlegur kennari Bragi var og hvetjandi. Hann fór t.d. með krökkunum í tjaldútilegur suður á eyju. Bragi kom með ýmsar nýjungar í skólastarfið, lét nemendur hafa fjölbreytt verkefni sem juku þeim frumkvæði. „Hann var æðislegur, hann Bragi“ segir einn fyrrverandi nemandi. Og annar segir: „Hann var yndislegur, við elskuðum hann!“ Hann beitti fyrstur kennara í Eyjum hljóðlestraraðferð við lestrarkennsluna. Í Gagnfræðaskólanum var tungumálakennslan hjá Braga hefðbundnari. „Það var alltaf gaman í tímum hjá Braga“ segir nemandi hans þar, „hann var orðheppinn og tók sig ekki jafnalvarlega og margir samkennarar hans“ og bætir við þessari sögu: Einn nemandi spurði Braga, vafalaust af kvikindisskap: „Hvað er „varta“ á ensku, Bragi?“ Bragi var á því augnabliki á gati, klóraði sér í höfðinu góða stund og svaraði: „Ég skal segja þér, að svo skrýtið sem það er, þá fá Englendingar ekki vörtur.“ Varta á ensku er reyndar „wart“. Bragi kenndi líka teikningu og kynnti nemendum m.a. abstraktlist og þá sköpun sem í henni felst. „Mér þótti alltaf vænt um Braga Háskólakennarinn dr. Bragi Jósepsson á skrifstofu sinni í Bowling Green því að hann talaði í Kentucky um 1968. Með síða barta eftir tískunni og pípan þá reykt innan við okkur sem dyra.

jafningja“ segir annar nemandi hans. Stundum ók Bragi nemendum heim í hádegishléi eða eftir kennslu. Hann gat oft verið utan við sig og enn lifa sögur um það í Eyjum. Einu sinni ætlaði Bragi að heyra í Dorte, konu sinni, í síma og hringdi fyrst á „miðstöð“ eins og þá var gert. Talsímakonan: „Miðstöð.“ Bragi (eftir nokkurt hik): „Æ, hvert ætlaði ég að hringja? Já, hvað er aftur símanúmerið heima hjá mér?“ Talsímakonan: „Ef þetta er Bragi Straumfjörð þá er númerið 717 og konan þín heitir Dorte.“ Bragi: „Já, einmitt. Leyfðu mér að tala við hana.“

Merkilegt og skemmtilegt fólk.

Bragi varð strax virkur og drífandi í starfi Aðventistasafnaðarins þar sem þau voru fyrir Dorte og tengdaforeldrar hans, Oddur og Katy. Hann spilaði á gítar og söng ágæta vel og teiknaði. T.d. má sjá auglýsingu í Fylki þegar í nóv. 1952 um að „Bragi Straumfjörð kennari“ flytji ræðu á samkoma í Aðventkirkjunni á vegum Ungmennafélags S.D.A. [sjöunda dags aðventista]. Ræðuna nefndi Bragi „Dæmið ekki“. Söfnuðurinn var ekki stór en ákaflega samheldinn og þróttmikill. Bragi segist minnast margra ágætismanna og kvenna í hópnum sem gott var að eiga samneyti við. „Ég hafði mikil samskipti við alla í söfnuði aðventista meðan það var. Sérstaklega minnist ég öðlingsmannanna Holbergs Jónssonar og Reykdals, bróður hans, sem unnu við netagerð. Fanný, kona Reykdals, var systir Daníels Guðmundssonar bílstjóra. Erlendur Stefánsson var líka góður vinur minn. Já, ég átti marga kæra vini í söfnuðinum og minnist þeirra með hlýju.“ Katy, tengdamóðir Braga, kom til Eyja 1923 sem hjúkrunarfræðingur á vegum Rauða krossins en fyrir tilstuðlan O.J. Olsens. Olsen, sem stofnaði aðventistasöfnuðinn í Eyjum, hafði áður vakið mikla hrifningu meðal bæjarbúa á trúarsamkomum. Þau Olsen og Katy þóttu sýna mikinn dug og styrk 1923 þegar taugaveikifaraldur geisaði í Vestmannaeyjum. Katy stofnaði síðan Baðhúsið við Bárugötu15 þar sem hún hafði nuddstofu og stundaði gigtlækningar og þar voru líka sjóböð. Má nærri geta hvað það hefur komið sér vel fyrir sjómenn á vertíðum hér áður fyrr. Með Katy starfaði lengi systir hennar, Emma á Heygum. Katy sótti hana til Færeyja 1925 þar sem hún var orðin ekkja eftir skammvinnt hjónaband, ung kona með tvö börn. Emma bjó eftir það í Eyjum með börn sín og þótti frábær nuddkona. „Þetta voru einstaklega ljúfar og góðar manneskjur.“ Það hefur skapað aðventistum sérstöðu meðal trúarsafnaða að þeir hafa ávallt lagt mikla áherslu á heilbrigði og reglusemi, hreinlæti og gott mataræði. Það sást vel í starfi þeirra í Eyjum. „Þó að svona mikil hollustu og bindindissemi væri í kringum mig á þessum árum var ég ekki neinn meinlætamaður,


7 reksturinn, Reykdal kom ekkert nálægt honum. Fyrirtækið var með lager og skrifstofu á Faxastíg 2 og gekk mjög vel, var önnur aðalheildverslunin í bænum við hlið Kjartans Friðbjarnarsonar. ROCO var raunar á fleiri stöðum, Skólavegi 4 og Bárustíg 15. Það hafði m.a. umboð fyrir hina vinsælu Sanítas-drykki, sultur og Jolly cola. Vöruúrvalið var ótrúlega mikið af auglýsingum að dæma: Veiðarfæri (net), vélar, byggingarvörur, Bragi og Dorte og börn þeirra (elstu börn Braga): Oddur og matvörur, vefnaðarvörur, Ingigerður Saga, bæði fædd í Eyjum en nú búsett í Bandaríkjunum, Wilton-gólfteppi, Golvflex hann í Texas en hún í Kaliforníu. -gólfdúkar og flísar, fjarri því. Ég hafði gaman af því að skemmta málverk og bækur, gosull til einangrunar, mér og vera innan um „synduga“ menn og stálvaskar frá Ofnasmiðjunni, föt frá konur! Margt af því var afar skemmtilegt Klæðagerðinni Amaró á Akureyri, þakpappi, fólk og margir urðu miklir vinir mínir. Ég miðstöðvarofnar, páska-hangikjötið frá nefni fyrst Pál Steingrímsson, kennara, kjötverslun Tómasar Jónssonar, Reykjavík listmálara og kvikmyndamann. Við vorum o.s.frv. Sumt var í umboðssölu, annað flutt miklir vinir og bræður í listinni. Ég inn og einhvern útflutning hafði fyrirtækið. sótti myndlistarnámskeið hjá honum og Bragi þótti snjall sölumaður og hikandi hafði gaman af. Sigmundur Andrésson, og sparsamir menn slógu til, stóðust ekki „Simmi bakari“, var vinur minn, mikill glaðlegt og frjálslegt fas hans, og keyptu lífsnautnamaður og bókamaður. Við Daníel meira en þeir ætluðu sér. Arnmundur Kjartansson, „Daddi barón“, brölluðum Þorbjörnsson netagerðarmeistari ákvað að margt saman þótt við ynnum hvor fyrir sína kaupa hálfan kassa af Sanítas-appelsíni af heildsöluna. Eins taldi ég til vina minna Braga fyrir jólin. „Addi, blessaður farðu Sverri tannlækni sem var gaman að vera bara með allan kassann, þú getur svo skilað með, og ekki má gleyma séra Jóhanni Hlíðar. helmingnum eftir jól.“ Eins og nærri má Við kenndum saman við Gagnfræðaskólann. geta var engu skilað! Hann var skemmilegur og notalegur maður Ári síðar, 1954, keypti Bragi Baðhúsið og margt til lista lagt. við Bárugötu 15 og setti þar á stofn Þegar ég gaf út skáldsöguna „Gáfnaljósið“ Náttúrulækningabúðina með heilsuvörur 2006 tileinkaði ég hana gömlum vinum o.fl. eins og sönnum aðventista sæmir! sem ég kynntist í Eyjum, m.a. Ása í Bæ, Verslunin gekk vel framan af en svo dofnaði Oddgeiri, Páli Steingrímssyni og Steinari yfir henni. Kristján Friðbertsson rak þar í Sigurjónssyni sem þar var um tíma. Þetta útihúsi um tíma verslunina „Heilsurækt“ og voru allt listamenn, hver á sína vísu. var m.a. með fisk. Bragi lét teikna þriggja Það voru líka nokkrir Hólmarar í Eyjum hæða stórhýsi á lóðinni, en áður en til sem ég kannaðist við eða þekkti. Sigurður framkvæmda kom seldi hann Sparisjóði Finnsson, kennari og síðar skólastjóri Vestmannaeyja lóðina og hugmyndina. Barnaskólans, hafði verið kennari minn í „Það var góður bisniss sem ég gerði þá Hólminum fyrr á árum, mikil íþróttamaður og við Þorstein Þ. Víglundsson skólastjóra ágætur í alla staði. Ég man líka eftir Hilmari minn og sparisjóðsstjóra“ segir Bragi. Og Sigurbjörnssyni („Nínon“) og bræðrum áformin komust til framkvæmda eins og sjá hans í Eyjum, og Önnu Ragnarsdóttur, konu má við Bárugötuna í dag. Sigurbergs Hávarðssonar („Bebba bank“) Bragi lét ekki staðar numið heldur sem var jafnaldra mín úr Hólminum.“ eignaðist eitt fyrirtækið enn þegar hann keypti að hálfu Pípu- og steinagerð Reimars Atvinnurekstur í Eyjum. Hjartarsonar, en meðeigandi hans var Þótt Bragi væri í kennslu í barnaskóla Lúðvík, sonur Reimars. aðventista og virkur í starfi safnaðarins Bragi tók líka við umboði happdrættis fyrstu árin nægði það ekki kröftum hans. DAS í Vestmannaeyjum þegar Sigurður Hann vann, eins og áður sagði, heilmikið hjá Gunnsteinsson fluttist frá Eyjum 1958, og Oddi tengdaföður sínum á skóverkstæðinu. raunar viðskiptum hans að mestu, öðrum Ári eftir að Bragi fluttist til Eyja keypti en Efnalauginni Straumi sem Kjartan hann sér lítinn vörubíl, brúnan Bedford, Friðbjarnarson keypti og rak. með stýrið hægra megin, og stofnaði ásamt „Það var þannig nóg að gera frá morgni Reykdal Jónssyni netagerðarmanni umboðs- til kvölds. Frá sólsetri á föstudögum og til og heildverslunina „R. Jónsson & Co.“ sem sólseturs á laugardögum héldu aðventistar kölluð var „ROCO“. Bragi sá alveg um hvíldardaginn heilagan. Þá skyldum

við ekki vinna heldur hvílast og sækja samkomu. Út af þessu mátti ekki bregða, og þótti mörgum Vestmanneyingum skrýtið. En þegar ég gerðist mikill „athafnamaður“ varð ég smám saman viðskila við vini mína í aðventistasöfnuðinum og hætti alveg kennslu þar 1957. Ég græddi ágætlega á þessu braski mínu, hafði gaman af að vasast í því. Ég byggði nýtt hús við Bröttugötu og keypti mér nýjan Taunus-bíl, V-300!“

Vestmannaeyjar voru þróttmikill staður.

„Mér fundust Vestmannaeyjar ákaflega þróttmikill og skemmtilegur staður á 6. áratugnum, þegar ég var þar, mikil uppbygging og kraftur í fólkinu, líf og fjör og mikið um að vera í atvinnulífi, ekki síst á vertíðum. Þá streymdi að verkafólk og sjómenn, mörg hundruð manns, kannski þúsund. Þar var náttúrlega misjafn sauður í mörgu fé en flest var þetta ungt fólk í leit að vinnu, peningum, ævintýrum og mökum!“ Þeim sem muna Braga eða kynntust honum í Eyjum fannst hann óvenjulegur maður að mörgu leyti, talsverður bóhem, fór ótroðnar slóðir og vissi ekki alltaf hvað klukkan var. Menn botnuðu lítið í ljóðum hans. Bragi féll fljótt í þann hóp manna í Eyjum sem byrjaði að losa um gamla samfélagshætti með frjálsari lífsstíl, þeim stíl sem síðar varð ráðandi eftir 1960 samfara aukinni velmegun, Prestley, Bítlum og pillu. Sem sagt: svolítið á undan sínum tíma. En sammerkt er að allir tala hlýlega um Braga.

Aðventistar áttu afgirtan landskika („stykki“) vestur í hrauni og byggðu þar sumarbústað. Þangað fór Bragi með börnin í Aðventistaskólanum í tjaldútilegu. Myndirnar eru teknar um 1955. Á myndinni til vinstri eru Elísa Þorsteinsdóttir og Jón Holbergsson fylgjast með pottinum á prímusnum.


8 Haldið til Bandaríkjanna.

Bragi kvaddi Vestmannaeyjar vorið 1961 og hélt til Bandaríkjanna ásamt fjölskyldu sinni. Þau rýmdu hús sitt á Bröttugötu 11 og auglýstu til sölu ýmislegt af búslóðinni í bæjarblöðum í lok maí það vor. Þau leigðu húsið en seldu ekki fyrr en eftir gos. Þau áttu þá líka lögheimili sitt áfram í Vestmannaeyjum fram til 1974. Það hafði losnað um tengslin við Eyjar þegar foreldrar Dorte dóu með stuttu millibili, Oddur „skóari“ haustið 1959 og Katý snemma árs 1961. Og skóbúðin var komin í hendur annarra, þeirra Axels Ó. Lárussonar og Döddu „skó“ sem ráku hana lengi. „Í starfi mínu sem kennari, bæði í Aðventistaskólanum og ekki síður Gagnfræðaskólanum, hafði áhugi minn á skólamálum og kennslufræði aukist og ég fann sterka löngun til þess að hefja framhaldsnám á því sviði. Úr varð að við fjölskyldan fórum til Bandaríkjanna sumarið 1961 og þar vorum við í 10 ár eða svo. Það var mikil reynsla fyrir okkur að sigla með Goðafossi yfir hafið og koma í heimsborgina New York. Við vorum fyrst eitt ár í Michigan en ég lauk svo B.A.-prófi 1963 við Peabodykennaraháskólann í Nashville í Tennessee, síðan M.A.-prófi við sama skóla í samanburðar-kennslufræði 1964 og að því loknu stundaði ég rannsóknir og frekara nám og lauk doktorsprófi frá Peabody árið 1968. Þetta var góður skóli, tengdur hinum þekkta Vanderbilt-háskóla í sömu borg. Ég kenndi svo við háskóla vestra og hefði eflaust átt kost á fastri stöðu þar og aðstöðu til rannsókna en mig langaði heim til Íslands. Ég vildi verða þar að liði í skólamálum, auka sveigjanleika í skólakerfinu og koma á fót fjölbrautaskólum með einingakerfi í stað bekkjardeilda og ársprófa. Það mál komst í höfn eins og menn þekkja. Mér fannst að skólarnir ættu að vera faglegir eins og er vestan hafs en leggja ekki eins mikla áherslu á hið félagslega hlutverk þeirra eins og í Evrópu. En þetta var ekki þrautalaust, skilningur var ekki alltaf mikill, og ég lenti í alls konar ævintýrum. Þegar ég stundaði rannsóknir á kennsluháttum og eins þegar ég rannsakaði áhrif sjónvarps á unglinga sakaði Þjóðviljinn mig t.d. um njósnir fyrir bandarísku leyniþjónustuna. Þannig gekk þetta. Ég varð svo deildarstjóri í fræðslumáladeild menntamálaráðuneytisins 1973 en rekinn tveim árum síðar, og var raunar dæmt ólöglegt. Eftir það var ég í blaðamennsku, námsráðgjafi um tíma en endaði svo starfsferil minn sem lektor og síðar prófessor við Kennaraháskóla Íslands. Ég er hreykinn af ýmsu sem ég kom til leiðar og líka af því að hafa stofnað fyrsta fyrirtækið hér á landi til að annast skoðanakannanir, Skáís.

Stuttur stjórnmálaferill.

Þegar Bragi fluttist heim á ný hellti hann

sér í stjórnmálin. Hann var í efsta sæti fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna í Suðurlandskjördæmi 1971. Hann komst ekki á þing en fékk þó 305 atkvæði. Það skipti þó öllu fyrir Braga að Samtökin fengu aðild að ríkisstjórn og í hlut flokksins kom m.a. menntamálaráðuneytið. Þá gerðust ýmsar mikilvægar breytingar í skólamálum. Bragi gekk síðan í Alþýðuflokkinn 1974, var í fræðsluráði Reykjavíkur og var kosinn varaþingmaður 1978. Sat hann sem slíkur á Alþingi. Í næstu kosningum, haustið 1979, reiddi Bragi hæst til höggs, þótt hann dveldist þann vetur erlendis sem háskólakennari. Hann bauð sig fram á móti formanni flokksins og forsætisráðherra, Benedikt Gröndal, í 1. sæti listans í Reykjavík. Braga tókst að láta hjörtu margra krata skelfast þá daga — en ekki að fella formanninn. Þarna lauk afskiptum Braga af pólitík. Hann sneri sér á ný að kennslu. „Þó að ég hafi nú endað í Alþýðuflokknum var ég enginn krati, og átti í rauninni alls ekki þar heima.“

Aftur í Hólminn á ævikvöldi.

„Þegar ég vildi heim til Íslands að loknu námi í Bandaríkjunum gat Dorte ekki hugsað sér það svo að við skildum. Það var allt í góðu. Hún býr í Bandaríkjunum. Hún hafði þá byrjað nám í hjúkrunarfræði við háskóla áður en ég fór heim og lauk því nokkru síðar. Börnin okkar, sem bæði fæddust í Eyjum, eru fyrir vestan líka. Oddur (f. 1953) er tæknifræðingur í Texas, yfirmaður í raftæknifyrirtæki. Ingigerður Saga (f. 1960), Inga Beder eins og hún heitir nú, býr í Kaliforníu og er myndlistarmaður. Sara, móðursystir Dorte, var eiginlega partur af fjölskyldunni. Hún var hjúkrunarfræðingur líka og bjó í Los Angeles, uppáhaldsfrænka. Við Dorte erum alltaf í mjög góðu sambandi og tölumst oft við í síma. Það er margt sem tengir okkur, börnin, barnabörn og barnabarnabörn þar vestra. Dorte var og er mjög sjálfstæð í hugsun. Við áttum hamingjurík ár saman í Bandaríkjunum. Mér þykir mjög vænt um hana og ég held að það sé gagnkvæmt.“ Bragi giftist aftur 1974 Gretu Kaldalóns, kennara og skólastjóra. Hún er 17 árum yngri en Bragi, f. 1947. Þau eignuðust þrjú börn, Loga tölvunarfræðing (f. 1975), hann vinnur núna í Úsbekistan; Sigurð Óskar Lárus, grafískan hönnuð (f. 1977) og Braga Kormák, sjálfstætt starfandi (f. 1981). Þau Greta skildu. „Það er eins með Gretu, við erum í góðu sambandi og hún kemur stundum í heimsókn til mín í Hólminn.“ Bragi lauk störfum í Kennaraháskólanum sjötugur að aldri og stuttu síðar, árið 2003, fluttist hann í Stykkishólm á ný og býr þar sæll og glaður. Hann hefur sannarlega ekki setið auðum höndum, skrifað firnin öll og rekið forlagið Mostrarskegg. Hann gaf út bókmenntatímaritið Stínu ásamt mörgum stórkanónum bókmenntanna, m.a. Guðbergi Bergssyni og Thór Vilhjálmssyni. Bragi

Fyrsta ljóðabók Braga. Hún kom út 1960 meðan hann bjó í Vestmannaeyjum: „Spíruskip. Nokkrar uppstillingar eftir Kormák Bragason. Uppsetning og teikningar eru eftir Gísla Sigurðsson.“

ÍNA ÞEIR HLÓGU Í Km, útg. 1961). (úr Djúpfrystum ljóðu

þegar frægasti maður á fellsströnd dó þá flögguðu þeir á skarðsströnd ur en þegar frægasti mað á íslandi dó þá hlógu þeir í kína því þeir vissu ekki að þetta land var til hefur skrifað skáldsögur, leikrit og ljóð, að ógleymdu stórvirkinu um sögu Stykkishólms. „Já, ég hef alltaf haft gaman af því að fara óvenjulegar leiðir. Þegar ég var í skóla í Reykjavík fundust mér kókflöskurnar, glerflöskurnar sem við gátum keypt, svo litlar að ég fór á fund forstjóra Vífilfells og kvartaði, vildi stærri flöskur, einn eða tvo lítra. Björn Ólafsson tók mér vel og af kurteisi, en ekkert breyttist, ekki fyrr en löngu seinna. Nú kaupum við tvo lítra í plastbrúsum hvar sem er. Eins var þetta þegar ég var á Laugarvatni. Framsóknarmenn réðu þar öllu undir stjórn Bjarna Bjarnasonar skólastjóra. Þá var ég rosalegur kommi og saknaði þess að hafa ekki Þjóðviljann. Svo ég hringdi bara í ritstjórann og bað um að þeir sendu þrjú eintök af blaðinu á Héraðsskólann. Það gerðu þeir og voru harla glaðir, blaðið kom og Bjarni sagði ekki neitt.“


9

Í veröld sem var Þá voru veturnir glitrandi alltaf vel við karlinn. gleðistundir þegar snjónum Hann hafði í eina tíð hafði kyngt niður og svalt verið vertíðarmaður loftið fraus undir tindrandi hér í Eyjum og stjörnum og björtum mána. Þá hafði frá ýmsu að skapaðist sá tími vetrarleikja segja frá veru sinni hjá börnum og unglingum að sem sjómaður. skíðasleðarnir voru teknir fram Hann sagðist hafa eftir skólasetu dagsins eða á róið með Stefáni í tunglskinsbjörtum kvöldum. Gerði, þeim kunna Heiðarvegi og jafnvel formanni. Skólavegi var stundum lokað Þetta sumar lést fyrir allri annarri umferð en móðir systkinanna snjósleðabruni. Það var sem í Stóradal og var vegirnir vöknuðu af værum heimilisfólkinu í svefni og gleðihlátrar sungu Neðradal ásamt sig inn í hjörtun. Á þeim öðrum sveitungum stundum var hægt að renna sér Kristinn Viðar Pálsson boðið þangað til ofan frá Gagnfræðaskólatúni erfidrykkju. Veislan niður allan Skólaveginn að Skuld og var haldin í lítilli baðstofu þar sem lítið jafnvel að Reynistað og á Heiðarveginum var af veraldlegu glingri til skrauts nema við neðstu verkamannablokkirnar sem þá myndum af gömlum ættingjum. Þá var þar voru í byggingu, og þaðan alla leið niður á einnig gömul pendúlklukka sem sló sínum Básaskersbryggju. Stundum var fjölmennt á taktföstu slögum eins og hún hafði gert sleðum og fór það eftir því hve sleðarnir voru gegnum tíðina og látið fólkið vita um gang stórir. Allir vegir voru þá malarbornir og þá tímans. Það var komið haust hjá hinni látnu neistaði stundum undan skaflaskóm. Þannig heiðurskonu sem nú var að kveðja sína liðu veturnir með draumum æskunnar. jarðnesku vist. Nú var lífsklukka hennar En svo kom vorið og þá fór seiðandi sjálfrar þögnuð. þráin til sveitarinnar að vakna í vitund Fólkið í Stóradal hafði ætíð verið sátt minni. Komið var að seinni sumardvöl við sína tilveru í nánd við hina miklu minni í Neðradal. Samferða mér í sveitina huldufólksbyggð þar í kring. Lifað af þessu sinni voru þeir bræður Magnús og landsins gæðum, annað þurfti ekki. Guðjón Sigurjón, synir Jóns Magnússonar sem var bóndi var hraustur maður og hafði í sér seiglu loftpressustjóri bæjarins. Við sem unnum íslenskrar náttúru. Eftir að bændasamfélagið með honum kölluðum hann Jón Sullivan var aflagt, bæði í Neðradal og í Fjósum vegna þess að loftpressan Sullivan tegund. varð Stóridalur seinasti bærinn í dalnum Þá var flogið frá Eyjum á Skógasand með með búskap og hinn aldni bóndi einn eftir Douglas Dakoda eða þristinum eins og þær af fjölskyldu sinni. Þá henti það óhapp um vélar voru kallaðar. Þar beið okkar rúta sem vetur að Guðjón fótbrotnaði og þurfti því á flutti okkur með fram fögrum fjallabyggðum læknisaðstoð að halda. Ekki var auðvelt að austur eftir á áfangastað. Ég var aftur kominn nálgast lækni þar sem enginn var síminn á í sveit. Gamalkunnug veröld blasti við í bænum og varð Guðjón því að skreiðast þá dalakyrrðinni milli fjalla og fegurðar þar löngu leið fram dalinn yfir lækjarsprænur og sem lækurinn kveður sína ljóðrænu tónlist slæman vegslóða alla leið heim að Skagnesi með fram blómstrandi bökkum. Eyjadrengja sem er fremsti bærinn og stendur uppi í var beðið við brúsapallinn sem við Maggi hlíðinni. þekktum þar sem við vorum oft samferða Ég þekkti vel til fólksins í Fjósum. Á úr dalnum þegar við skiluðum af okkur því óðali bjó Sveinn Runólfsson og var mjólkurbrúsum þangað. Sumardvalastaður ráðsmaður hjá tveimur systrum og móður Sigurjóns sem var honum ókunnur var í þeirra. Sveinn hafði fljótt vakið athygli mína Stóradal hjá þeim Guddu og Guðjóni og vegna þess hve rjóður hann var í kinnum. móður þeirra. Ég komst að því að hann hafði fyrr á öldinni Guðjón í Stóradal samsvaraði sér vel sótt vetrarvertíðir í Vestmannaeyjum og í vaxtarlagi en mér fannst hann alltaf þá verið í skiprúmi hjá Þorsteini í Laufási. sérstakur persónuleiki. Sumir hafa sínar Einn grimman vetur í eftirminnilegri kenjar eins og þegar hann stóð í slætti í veiðiferð hafði frostið komist í -25 stig. Á miklum sólarhita og klæddist þá ullarpeysu klakabrynjuðum bátnum hélaðist hvít seltuð en þegar veður var hráslagalegt var hann í gríma á andlit skipverjanna og báru þeir æ skyrtunni með uppbrettar ermar. Þegar við síðan minjar þess. hann var talað, lyfti hann öðru augnalokinu, Oft fékk ég sendingar að heiman frá móður kímdi við og svaraði í gátum. Mér líkaði minni, oftast fatnað og sælgæti. Einnig komu

bréf frá systkinum mínum sem voru dugleg að skrifa. Sunnudag nokkurn fékk ég Magga í Fjósum með í gönguferð austur að Gimli sem er bær við þjóðveginn, en þar beið mín sending frá móður minni. Þegar við komum þangað hittist svo illa á að enginn var heima. Og þar sem löng var leiðin heim ákváðum við að bíða fólksins um stund í þeirri vona að fólkið skilaði sér heim fljótlega. Settumst við þá í skjól við rifsberjarunna sem svignuðu undan safaríkum berjaklösum. Þær freistingar stóðumst við ekki og borðuðum okkur sadda. Ekki kom fólkið og var því ekki annað í stöðunni en að rölta heim aftur. Daginn eftir fór ég lausríðandi á Jarpi gamla austur að Gimli. Í það sinn fór ég ekki erindisleysu. Alúðleg hjón tóku á móti mér og buðu mér inn í bæinn. Þar settist ég með þeim við eldhúsborð. Meðan ég sötraði í mig mjólk og brauð spurðu þau mið spjörunum úr, hvaðan ég væri og hvernig mér líkaði sveitavistin. Svo færðu þau sig upp á skaftið með áleitnar spurningar, hvort ég hefði komið þangað heim í gærdag og ef svo væri hvort ég hefði orðið var mannaferða. Ég kvað svo ekki hafa verið. Við það vaknaði hjá mér grunsemd um hverju þau væru að fiska eftir. „Nei ekki það,“ sögðu þau bæði og fylgdust með svipbrigðum mínum. „Þannig var að við hjónin fórum til kirkju í gær og meðan við vorum fjarverandi virðist sem einhverjir hafi verið hér á ferð og hirt megnið af rifsberjunum sem við ætluðum að nota í sultu.“ Ég fann mig milli tveggja elda og roðnaði af skömm. Hjónin hafa efalaust séð sektarsvipinn á mér og felldu niður talið. Þegar ég kvaddi þau var miklu fargi af mér létt. Húsbóndi minn, Magnús í Neðradal, var mikill hagleiksmaður og margir sóttu til hans með aflaga hluti sem þurftu viðgerðar við. Allir fóru ánægðir úr smiðju Magnúsar bónda sem lóðaði þvottapotta, smíðaði skeifur, batt inn bækur og hvað eina sem til féll. Á sínum yngri árum var hann snjall harmoníkuleikari og spilaði á böllum víða um sveitina. Oft brugðu bændur sveitarinnar sér af bæ og heimsóttu Magnús, einkum nágrannar sem komu að kvöldlagi til að láta klippa sig. Magnús notaði handklippur sínar í baðstofunni og ræddi við kollega sína meðan hann snyrti kollana. Ég hlustaði oft á samræður þeirra bænda sem að mestu snerust um heyskap og stríðið í Kóreu sem þá stóð sem hæst. Einn kvöldgestanna er mér minnisstæður þegar hann sagði okkur furðusögu, eflaust ýktan atburð, sem átti að hafa gerst við Eyjar í byrjun aldarinnar. Það gustaði vel af sögumanni þegar hann hóf frásögn sína með miklum leikrænum tilþrifum svo engu var líkara en hann hefði sjálfur verið þátttakandi.


10

Kristinn fékk að beita Jarpi gamla fyrir rakstrarvélina svipaða og þessa og raka saman heyinu í garða eða múga. Þóttist hann þá maður meiri þar sem hann sat á rakstrarvélinni og hottaði á klárinn stoltur af því að vera trúað fyrir slíku hjálpartæki Sagan var þannig: Maður nokkur var á veiðum langt úti í hafi þegar hann varð var við stórhveli sem synti hraðförum til hans með opinn skoltinn og beittar tennur. Á flótta sínum til lands stakk skelfingu lostinn maðurinn árunum svo djúpt og ört í sæinn að árarförin voru enn sjáanleg árið eftir. Þegar gestir úr Eyjum komu í heimsókn til okkar í Neðradal hreyfði það við mínum tilfinningum. Dag einn komu þeir akandi í hlað á fjögurra manna breskum bíl af gerðinni Ford Junior nágrannar mínir heima í Eyjum bræðurnir í Húsi þeir Addi og Sigurpáll og félagar þeirra Reynir Lóu og Hávarður Birgir. Magnús í Neðradal var föðurbróðir þess síðastnefnda. Þeir félagar höfðu reyndar stutta viðdvöl, ætluðu aðeins að heilsa upp á fólkið á bænum. Þeir sögðust ætla að skreppa austur í Vík og buðu mér með sér. Ég þáði og hafði mikla ánægju af þeirri ferð. Síðar um daginn þegar þeir kvöddu mig heima horfði ég á eftir bílnum í rykmekki. Þá þótti mér bærinn minn verða hnípinn og það sóttu í mig leiðindi. Heimþráin sem setið hafði í mér sumarlangt hafði vaknað. Hún varaði ekki lengi því fljótlega fyrndist yfir hana. Þetta sumar kom Bebbi, hugmyndaríkur útvarpsvirki úr Eyjum til okkar í fárra daga heimsókn. Hann var vel kunnugur Neðradalsfólkinu og hafði verið þar í sveit eins og Hávarður frændi hans. Faðir hans var einn af bræðrum bóndans og þar sem Bebbi var vel kunnugur heimilisfólkinu í Fjósum gerði hann sér ferð þangað. Þá hittist svo á að ljóslaust var í eldhúsinu, eina staðnum á bænum sem ljósvæddur var af lítilli lækjarrafstöð. Og þarna var mættur rafvirki austan úr Vík sem reyndi að finna út af hverju rafmagnsleysið stafaði. Þá varð útvarpsvirkjanum á að spyrja: „ Hafið þið prófað hvort peran sé í lagi?“ Þá kveiknaði á öllum heilasellum og í ljós kom að það var einmitt peran sem hafði gefið sig. Með nýrri peru ljómaði birtan á andlitum systranna í

Fjósum. Þegar engjasláttur hófst var farið með nesti með sér. Það var geymt í emaleruðum potti og ullarflíkum vafið um til að halda honum volgum. Við vorum alltaf þrjú í för sem fórum út á bakkana því Eygerður var það fullorðin að hún hélt sig heima við en sá um alla matargerð þótt sjóndöpur væri. Ég man enn hvað mér fannst brauðið hennar sem hún bakaði úr hveitiklíði mikið lostæti. Allir teigar voru slegnir með hestasláttuvél sem tveim hestum var beitt fyrir, Stjarna og Rauði. Þeir gátu verið viðbrigðnir og sá Magnús því um sláttinn. Það heyrðist mikið í sláttuvélinni þegar hreyfa þurfti hana aftur á bak. Einhverju sinni fældust hestarnir af hávaðanum og fékk Magnús ekkert að gert en gat með snarræði hent sér af vélinni en hestarnir hentust með tildrið aftan í sér út í ána. Ég fékk hins vegar að taka í orfið sem Magnús hafði smíðað handa mér og með því sló ég grastoppana sem vélin náði ekki til. Auk þess fékk ég að beita Jarpi gamla fyrir rakstrarvélina og raka saman heyinu í garða eða múga. Þóttist ég þá maður meiri þar sem ég sat á rakstrarvélinni og hottaði á klárinn stoltur af því að vera trúað fyrir slíku hjálpartæki. Þegar leið að hausti og smalaferðir hófust var réttað í Stóragili sem er gilskorningur skammt frá bænum í Stóradal. Þegar ég fór í mína fyrstu smölun lánaði Magnús bóndi mér göngustaf sem faðir hans hafði notað í leitum. Hann bað mig um að gæta hans vel. Smölun gekk vel. Þegar komið var í réttir og bændur fóru að ræða saman og gera sér glaðan dag, kom Óskar á Brekku til mín og tókum við tal saman. Hrósaði hann mér mikið fyrir dugnaðinn og sagðist aldrei hafa séð til jafn duglegs smala. En á meðan viðurkenningarorðunum hans rigndi yfir mig pikkaði ég stafnum í svörðinn og, brothljóð heyrðist og stafurinn, sjálfur erfðagripurinn sem mér hafði verið trúað fyrir, óvígur. Ég

bað Magnús innilegrar fyrirgefningar þegar ég kom heim. Magnús skipti sjaldan skapi og þegar hann sá mig auman á svip sagðist hann mundu spengja saman brotin. Það var komið haust og brátt yrði dvöl minni í Neðradal lokið. Ég átti að fermast árið eftir og sagði Magnúsi að ég byggist ekki við að koma aftur næsta sumar. Og þótt hann legði fast að mér sat ég við minn keip. Hann taldi mikið meira heilbrigði í að vera sumarlangt í sveit en á mölinni heima. Ég vissi samt að margs yrði að sakna því þótt maður yfirgefi sveitina yfirgefur sveitin mann aldrei. Ég átti stórt bú úr dýrabeinum en var nú búin að gefa þau stráknum í Nesi. Og lengi á ég eftir að muna eftir Kristínu gömlu sem alltaf var í nálægðinni ef einhverjir örðugleikar leituðu á hug minn. Ég veitti henni fljótt athygli þegar hún sat á kvöldin á rúmstokknum, greiddi og fléttaði sitt síða og dökka hár sem haldið hafði sínum upprunalega lit þátt fyrir háan aldur. Áður en hún lagðist til svefns, dró hún litla og slitna matskeið undan koddanum sínum og strauk með henni sitt lúna bak. Mér þótti þetta svo merkilegt húsráð sem hlaut að vera svo gott að ég varð mér úti um skeið og apaði þennan sið eftir henni. Kristín hafði mörg ráð í hendi sinni. Eitt atvik rifjast upp fyrir mér þegar ég var að hringsnúast með stutt prik kringum flugfýlsunga sem hafði tyllt sér niður í mýrinni. Líklega hefur sést til mín og mér gekk illa að koma fýlnum á annað tilverustig. Endalaust gat hann ælt bleikrauðri spýjunni. Nema hvað, Kristín kom skeiðandi heiman frá bæ, greip eldsnöggt um hálsinn á fýlsunganum, stakk hausnum upp í sig og hugðist kremja hann. Illa gekk reyndar sú aðferð því sú gamla var tannlaus. Svo rann upp brottfarardagur minn í töfraljómum morgunupprisunnar. Þá kvaddi ég gömlu konurnar í Neðradal með söknuði en þær höfðu reynst mér sem mæður. Mér fannst blika tár í hvörmum þegar Kristín gamla rétti mér peningaseðla. „Þú mátt eiga þetta að skilnaði,“ sagði hún. Magnús bóndi var búinn að koma farangri mínum fyrir á hestvagninum. Síðan var lagt af stað og smátt og smátt fjarlægðumst við bæinn minn þaðan sem ég átti svo hlýjar minningar. Bændurnir í dalnum höfðu sumarið áður sameinast um að gera slóðann úr djúpi dalsins vel akfæran. Og þar sem ég sat í vagninum og hlustaði á vinalegt marrið í hjólunum og frussið í Jarpi gamla sem vildi minna á tilveru sína, horfði ég upp í ásinn þar sem fjárhúsið stóð efst í skriðuskákinni. Þangað hafði ég oft sótt eldmeti sem ég bar svo inn í eldhús til Eygerðar, þurrkaða skánina sem Magnús hafði stungið upp af fjárhúsgólfinu og látið þorna. Í hvert sinn sem ég kom heim með slíka sendingu var mér boðið að fara í mjólkursýrutunnuna, þar sem flest matarkyns var geymt, og fá mér sviðalöpp. Ég horfði líka yfir dalinn sem beið í móðu morgunsins. Fífan í mýrinni drúpti enn höfði en þegar sólarbjarminn næði völdum mundi


11 döggin hverfa og hvíti kollurinn brosa, þessar perlur sem blikuðu svo skært. Og svalinn frá læknum sem liðaðist hljóðlega um dalinn mundi kæla blómin sem uxu á lækjarbökkum. Svona hafði það verið frá upphafi og svona mundi það halda áfram að verða. Í morgunkyrrðinni vorum við einir á ferð um vegslóðann og fátt rauf þögnina nema hvað tjaldurinn og heiðlóan sendu frá sér tregafull saknaðarljóð. Kannski voru þessir kæru sumargestir að senda mér kveðju sína. „Jæja, þá erum við víst komnir,“ sagði Magnús þegar hann stöðvaði vagninn við brúsapallinn þar sem hann skilaði af sér farangri mínum og tveim mjólkurbrúsum. En hvað ég þekkti þennan stað vel, svo oft hafði ég komið þar. Stundum var skyr í tómum brúsa og það var svo þétt í sér að ég gat brotið af því bita og jóðlað á því heimleiðis. Magnús hafði setið þögull og hugsandi á svip eins og eitthvað væri að brjótast um í hans skýra kolli. Svo rauf hann þögnina og sagði: „Þú kemur þá ekki aftur næsta vor, Kiddi minn?“ Ég svaraði með þögninni. Auðvitað hefði ég átt að vera lengur og sé alltaf eftir því. Þegar sást til mjólkurbílsins sagði hann: „Þá er víst komið

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

að kveðjustund.“ Hann borgaði mér vel fyrir sumardvölina, helmingi meir en sumarið áður. Síðan bætti hann um betur og borgaði fyrir mig fargjaldið. Svona var hann, alltaf sama góðmennið. Þegar bíllinn brunaði á brott sá ég hvar eldri maður gekk heimleiðis með hestvagn sinn. Eflaust hefur hann ekki viljað íþyngja Jarpi gamla með þyngd sinni. Hinir fyrstu morgungeislar spegluðust á gluggarúðunum í Neðradal. Brátt mundi lífið færast í sama horf og áður. En þá yrði snúningsstrákurinn úr Eyjum ekki til staðar því hann var á leið heim til sín úr sveitinni sem senn skartaði litskrúðugum klæðum haustsins. En út í bláma hafsins þar sem öldurnar brotnuðu við klettóttar eyjar var för minni heitið. Þar beið mín allt sem mér var kærast og þar mundi nýr kapítuli lífs míns hefjast með nýjar þrár og langanir sem voru að vakna og hefja áhlaup sitt að bernskunni. Þar biðu æskuárin og þar og þar mundi ég móta mín unglingsár og leggja drög að framtíðinni sem var óráðin gáta, En með réttu hugarfari mundi framtíðin færa mér gæfu og þar vildi ég lifa allt til enda veraldar.

Kristinn Viðar Pálsson

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Dæmigerður brúsapallur ámóta þeim sem fyrir kemur hér í frásögninni

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir LÍFEYRISSJÓÐUR VESTMANNAEYJA

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir


Sendum bæjarbúum bestu jólaog nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jólaog nýársóskir

Sendum bæjarbúum bestu jóla- og nýársóskir


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Jólablað VG by Leturstofan - Issuu