Upplýsingarrit The Puffin Run 2025

Page 1


3. maí 2025

Páll magnússon

VELKOMNIR TIL EYJA HLAUPARAR OG FYLGJENDUR

Tvennt af því skemmti legasta sem ég geri í Vestmannaeyjum á hverju sælu sumri er að vera hliðvörður á Þjóðhátíð inni og brautarvörður í Lundahlaupinu - Puffin Run. Í báðum tilvikum hitti ég þvílíkan aragrúa af jákvæðu og skemmti legu fólki að það er engu saman að jafna.

Í Puffin Run stend ég vaktina inni í Herjólfsdal – einsog á Þjóðhátíðinni –og beini hlaupurum rétta leið um dalinn fagra.

þess að minnast á upphafsmanninn að þessu öllu saman, frumkvöðulinn sjálfan, Magnús Bragason. Undir hans stjórn og handleiðslu hefur þessi viðburður vaxið og dafnað með hverju árinu sem líður. Og nú er enn slegið met í fjölda þátttakenda –1600 – uppselt!

Það hafa margir hlauparar sagt mér – íslenskir og útlenskir – að líklega sé ekkert utanvegahlaup sem fari fram í jafn stórbrotinni og fjölbreytilegri náttúru og Puffin Run. Ég er ekki hissa á því

– enda erum við Eyjamenn afar stoltir af þessum viðburði sem orðinn er einn af hápunktum sumarsins hér í bænum okkar. Margir aðkomnir hlauparar hafa sagt mér að Puffin Run sé líka hápunktur sumarsins hjá þeim.

Það er ekki hægt að skrifa þessi ávarpsorð án

Ég tala örugglega fyrir hönd okkar allra Eyjamanna þegar ég býð ykkur öll með tölu – hlaupara og fylgjendur – hjartanlega velkomin til Vestmannaeyja. Ég vona að dvölin verði skemmtileg – og hlaupið árangursríkt og gefandi!

Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja

Útgefandi: Leturstofan Vestmannaeyjum ehf.

Ábyrgðarmaður: Katrín Laufey Rúnarsdóttir

Umbrot og hönnun: Sæþór Vídó

Forsíðumyndina tók Friðrik Björgvinsson

á The Puffin Run 2023

25 amínósýrur í frjálsu formi

MINNI HARÐSPERRUR MEIRA ÚTHALD

the Puffin run

SKILMÁLAR

FYRIR

ÞÁTTTAKENDUR

• Ég er í nægilega góðu ástandi bæði líkamlega og andlega til að taka þátt í og ljúka The Puffin Run.

• Ég staðfesti að ég hef áttað mig á erfiðleikastigi hlaupsins sem liggur hringin í kringum Vestmannaeyjar þar sem er misjafnt undirlag og á köflum bratt niður í sjó.

• Ég skil að hlutverk framkvæmdaaðila og starfsmanna hlaupsins felst ekki í að „bjarga“ þátttakendum sem ekki eru nægjanlega vel undirbúnir m.t.t. hlaupaþjálfunar, næringu eða hvort þá vanti viðeigandi útbúnað. Öryggi hvers hlaupara er á hans eigin ábyrgð og hann þarf að hafa færni til að takast á við óvæntar aðstæður.

• Ég hef lesið og skilið reglur The Puffin Run og samþykki þær.

• Ég samþykki að fara eftir þeim leiðbeiningum sem starfsmenn hlaupsins leggja til og þigg þá aðstoð sem þeir álíta að þurfi vegna öryggis míns og annarra.

• Sem þátttakandi í The Puffin Run afsala ég mér öllum rétti til skaðabóta frá skipuleggjendum The Puffin Run, starfsmönnum og öðrum samstarfsaðilum hlaupsins, vegna meiðsla, veikinda, slyss, eða annarra ófyrirsjáanlegra atvika sem ég gæti orðið fyrir í The Puffin Run.

Viðurlög

Þátttakendur sem ekki fara eftir reglum hlaupsins eiga á hættu að verða skráðir úr hlaupinu.

Þeir sem ekki fara eftir settum fyrirmælum verða ábyrgir fyrir þeim kostnaði sem til fellur við leit og/eða umönnun björgunarsveita og annarra starfsmanna.

Réttur skipuleggjenda The Puffin Run

Skipuleggjendur eru ekki ábyrgir fyrir utanaðkomandi áhrifum á hlaupara. Það á við um veður, náttúruhamfarir, umferð fólks og farartækja eða annað óvænt sem getur haft áhrif á þátttakendur.

Skipuleggjendur geta afskráð og stöðvað þátttakanda sem ekki er í fatnaði eða hefur yfir að ráða nauðsynlegum búnaði sem hæfir aðstæðum.

Skipuleggjendur geta afskráð og vísað úr hlaupinu hverjum þeim sem skapar hættu fyrir sjálfan sig og/eða aðra eða fer ekki eftir reglum hlaupsins.

Skipuleggjendur eru ekki ábyrgir fyrir veikindum eða slysum þátttakenda, til og frá mótsstað og meðan á hlaupi stendur. Þátttakendur eru hvattir til að leita aðstoðar starfsmanna hlaupsins ef slys eða veikindi koma upp.

Þátttakendur eru alltaf á eigin ábyrgð þrátt fyrir að þeir þiggi aðstoð starfsmanna hlaupsins.

Skipuleggjendur áskilja sér rétt til að aflýsa hlaupinu með stuttum fyrirvara vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra ástæðna sem geta skapað hættu fyrir þátttakendur.

UTANVEGAHLAUP OG ÍSLENSK NÁTTÚRA Í 360°

Hvað ef fólk gæti séð alla hlaupaleiðina í Puffin Run – svona eins og á Google Street View?

Þetta var pælingin mín þegar ég hljóp Puffin Run í fyrra með 360° myndavél á hausnum. Tilraunin heppnaðist vonum framar og úr varð Youtube-myndband þar sem hlaupaleiðin er spiluð á 10x hraða. Hægt er að snúa sjónarhorninu í allar áttir, virða fyrir sér útsýnið, skoðað undirlagið og lykkjuna eftir Herjólfsdal út á strönd. Sjá hversu löng og há brekkan upp Stórhöfða raunverulega er, athuga hvort þú verðir nokkuð lofthræddur við björgin undir flugvellinum og athugað af hverju þú þarft að fara varlega í hrauninu á síðustu kílómetranum. Þetta myndband getur nýst hlaupurum við undirbúning, en líka veitt fólki innblástur til að æfa og taka þátt. Það er gaman að segja frá safna fyrir betri búnaði til að þróa hugmyndina. Fjármögnun heppnaðist góðum stuðningi. Nú er ég að undirbúa að taka upp hlaupaleiðir og fanga íslensk náttúruundur í 360°. Í sumar mun ég taka upp nokkur utanvegahlaup til viðbótar við þau sem fyrir eru, mynda víða í kringum höfuðborgarsvæðið og

á hausnum í hlaupinu í ár til að taka brautina upp í enn betri gæðum. Ef þið sjáið stórskrítinn gaur með myndavél á hausnum þá skulið þið ekki hika við að vinka í vélina!

Óskar Þór Þráinsson, forfallinn utanvegahlaupari, náttúruunnandi, skáti og græjukall.

Puffin Run á Youtube.

GANGI YKKUR

SEM ALLRA BEST

Eigendur og starfsfólk

Vinnslustöðvarinnar óskar

þátttakendum í The Pu n Run góðs gengis.

HLAUPADAGSKRA.IS

- ÖLL HLAUP Á EINUM STAÐ

Það var árlegur viðburður okkar stuttbuxnabræðra að setjast niður í upphafi árs til að reyna að fá yfirsýn yfir helstu hlaup ársins með það að markmiði að skipuleggja hlaupasumarið framundan. Við vorum búnir að koma okkur upp eigin kerfi, skjölum og dagatölum til að finna vænleg og líkleg hlaup til að skrá hjá okkur í, og fannst sárlega vanta betri lista og yfirsýn yfir öll hlaup sem væru í boði. Við höfðum safnað upplýsingum frá góðum hlaupasíðum sem eru til staðar um hlaup, eins og hlaup.is, timataka.is og víðsvegar á Facebook, en engin þeirra veitti okkur fullnægjandi upplýsingar um öll þessi hlaup.

Í undirbúningi 360° verkefnisins fæddist hugmyndin að safna saman þessum upplýsingum á einn stað og setja upp sérstaka heimasíðu með þessum hlaupum, www. hlaupadagskra.is – vef sem birtir einfaldan lista yfir alla hlaupatengda við-

Óskar og Tommi, stuttbuxnabræður.

burði ársins á einum stað og gerir öllum auðvelt að finna næsta viðburð sem hentar, hvort sem það er utanvegahlaup, götuhlaup eða skemmtihlaup.

Það fór mikill tími í að safna þessu saman en afraksturinn er listi með 130 viðburðum og ótrúlega fjölbreytni hlaupa sem stendur okkur hlaupurum til boða. Á síðunni er hægt að skoða hlaup eftir dagsetningu, staðsetningu, vegalengd og tegund. Þar hefur líka verið bætt við korti og leitarstillingum sem hjálpa fólki að finna hlaup í nágrenninu – eða gera eitthvað nýtt og spennandi.

Með þessu verkefni viljum við styðja við skipuleggjendur hlaupa og hjálpa þeim að kynna viðburðina sína betur. Með því að halda utan um dagskrána á einum stað vonumst við einnig til að stuðla að meiri áhuga, aukinni þátttöku og betra

flæði upplýsinga fyrir hlaupasamfélagið. Hlaupadagskra.is er lifandi verkefni og við erum sífellt að þróa það áfram. Við erum með fullt af fleiri hugmyndum í pokahorninu. Ef þú ert með ábendingu, villt bæta hlaupi við eða hefur hugmynd sem gæti bætt síðuna, þá viljum við endilega heyra frá þér. Vefnum er haldið uppi af hlaupaástríðu, ekki viðskiptaviti eða forritunarhæfileikum og því óskum við eftir ábendingum, hugmyndum eða brennandi áhugafólki um hlaupasíður og vefforritun sem langar að leggja sitt af mörkum.

Kíktu á hlaupadagskra. is og sjáðu hvað er fram undan – við hlökkum til að sjá þig á hlaupum í Puffin Run sem er fyrir okkur ómissandi upphaf á utanvegasumrinu!

Óskar Þór Þráinsson og Tómas G. Gíslason

ÁFRAM ÞÚ!

?

Földi hlaupinna km

Drykkjastöðvar. Boðið er uppá vatn og Gatoraid. Á drykkjarstöð 10 er einnig boðið uppá banana.

WC Klósett

Puffin run

ALLT SEM ÞÚ ÞARFT AÐ VITA

1 Herjólfsafgreiðsla.

2 Munavarsla og upplýsingar eru beint á móti Tanganum.

Keppendur fá merkispjöld og skulu merkja farangur sinn með sömu tölu og hlaupanúmer sitt.

3 Stjórnstöð. Afhending gagna.

4 Inngangur fyrir keppendur.

5 Rásmark/Endamark verður á bryggjunni við FES.

Svæði þar í kring er lokað og má engin fara inn á svæðið án leyfis.

Allir keppendur skulu mæta við rásmark 5 kl. 12.00 og bíða eftir merki stjórnanda. Keppendur fara í hólf fyrir aftan rásmark samkvæmt númeri. 80 hlauparar verða ræstir í einu á 60 sek. fresti.

Rástímar:

Kl. 12:15 Rásmark. 5 Ræsing hefst.

Kl. 13:00 Hamar 5 Boðhlaup #2

Kl. 13:15 Stórhöfði 10 Boðhlaup #3 / Tvímenning #2

Kl. 14:00 Eldfell 15 Boðhlaup #4

Rútuferðir:

Kl. 12:30 Rásmark – Hamar nr. 4001-Boðhlaup #2

Kl. 13:15 Hamar - Rásmark nr. 4001-Boðhlaup #2

Kl. 12:30 Rásmark – Stórhöfði nr. 2001-Tvímenning #2 /nr. 4001-Boðhlaup #3

Kl. 14:00 Stórhöfði - Rásmark nr. 2001-Tvímenning #1 /nr. 4001-Boðhlaup #2

Kl. 13:45 Rásmark – Páskahellir nr. 4001-Boðhlaup #4

Kl. 14:15 Páskahellir - Rásmark nr. 4001-Boðhlaup #3 kl.15:15 Verðlaunaafhending á Vigtartorgi

Keppendum bíðst að nota sturtuaðstöðu í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja til kl. 18.00 á hlaupadegi án endurgjalds. Sýna þarf keppnis númer í afgreiðslu.

TORG

hlauParinn

FYRIR MÉR ER HLAUP AFSLÖPPUN

OG HREINSUN FYRIR HUGANN

32 ára búsett í Aarhus í Danmörku sein ustu 10 árin. Mamma, Hobby hlaupari, Pilates reformers þjálfari, hjúkrunar fræðingur með sérhæfingu í sárum. Búin að búa í Danmörku í bráðum 10 ár. Áhugi fyrir hlaupi hefur aukist með ár unum og árið 2023 hljóp ég mitt fyrsta hálfmaraþon og hef ekki hætt að hlaupa síðan.

Fyrir mér er hlaup afslöppun og hreinsun fyrir hugann í busy hvers dagsleikanum.

Markmiðið mitt í hlaupum er alltaf að njóta og líða vel, svo er tíminn bara bónus. Mín helsta hvatning er sonur minn. Hann tekur þátt í litlum hlaupum með mér hér á íslandi og í DK. Knús frá honum í miðri braut í Puffin gefur meiri orku en

mætir áskorun á þessu leveli í hlaupum. Svo er ég svo heppin að eiga fjölskyldu hérna og get í leiðinni notið með þeim, fyrir mér er það ómetanlegt. Eftir að hafa minnkað djammið og aukið hlaupið þá held ég að mér sé óhætt að segja að Puffin run sé mín nýja Þjóðhátíð.

the Puffin run

VERÐLAUN

Veitt eru peningaverðlaun til fyrstu þriggja karla og kvenna.

• Fyrsta sæti 200.000 kr.

• Annað sæti 150.000 kr.

• Þriðja sæti 100.000 kr.

Verðlaun frá

Einnig eru veitt úrdráttarverðlaun sem eru gjafabréf frá eftirfarandi:

Aldursflokkaverðlaun fyrir fyrstu konu og karl.

Gjafabréf að upphæð kr. 25.000.-

Verðlaun frá

Fyrsta sæti í tvímenningslið karla, kvenna og blandað.

Gjafabréf að upphæð kr. 25.000.-

Verðlaun frá

Fyrsta sæti fjögurramannasveit karla, kvenna og blandað

Gjafabréf að upphæð 15.000.- kr

hlauParinn

PASSAÐU

andrea Kolbeinsdóttir

AÐ BYRJA EKKI OF HRATT OG NJÓTTU ÚTSÝNISINS

Andreu Kolbeinsdóttur þarf vart að kynna fyrir íslenskum hlaupurum enda marfaldur Íslandsmeistari og brautamethafi og sigurvegari The Puffin Run síðustu þriggja ára.

Hvar ertu fædd og uppalin?

Ég bý í Árbænum

Hefur þú tekið þátt í Puffin Run?

Já, síðustu þrjú ár.

Ert þú með markmið fyrir hlaupa sumarið þitt? Stærsta markmiðið mitt í sumar er Kaupmannahafnarmaraþonið í maí og svo HM í fjallahlaupum í september.

Ert þú með ráð fyrir þá sem eru að hlaupa í fyrsta skipti í Puffin Run?

Passaðu að byrja ekki of hratt, njóttu útsýnisins á miðri leið og farðu svo varlega síðustu kílómetrana. Margir hafa dottið og slasað sig í oddhvassa hrauninu (þar með talið ég haha).

Hvernig skóm hleypur þú í: Uppáhalds keppnis skórnir mínir fyrir utanvegahlaup eru Vectiv pro frá North Face.

Hvaða fatnaði hleypur þú í:

Ég hleyp lang mest í North Face og Salomon fatnaði úr Útilíf.

Hver er rútínan þín á hlaupadegi?

Ég vakna þremur tímum fyrir hlaup til að fá mér ristað brauð og kaffi. Hlusta svo á peppandi tónlist á meðan ég geri mig til og liðka mig. Skokka svo 3-4km og tek nokkra stílspretti fyrir start.

Hvað finnst þér vera lykillinn að góðri endurheimt á líkama og sál eftir hlaup?

Taka létt niðurskokk og koma svo góðri næringu og Unbroken í sig sem fyrst. Nánast undantekningarlaust fer ég svo í sund þar sem maður slakar vel á með hlaupavinum. Ef ég nenni tek ég svo smá teygjur og yoga fyrir svefninn.

VELKOMIN TIL VESTMANNAEYJA

SKEMMTIFERÐ

Skemmtiferðin er ein af vinsælustu ferðunum okkar og er fullkomin fyrir allar gerðir af hópum; vinahópa, saumaklúbba, vinnustaði, starfsmannaferðir o.s.frv.

Nú er tækifæri til að skoða Vestmannaeyjar

í þessari flottu djammferð og gera eins og á Þjóðhátíð – byrja snemma og taka daginn með trompi.

Í gistináttaferðinni sérsníðum við ferðina að þínum óskum og gerum eitthvað ótrúlega skemmtilegt saman eins og eyjamönnum er svo tamt.

Vestmannabraut 28 | 900 Vestmannaeyjar | Iceland

Sími / tel: +354 481 2900 | hotelvestmannaeyjar.is booking@hotelvestmannaeyjar.is

FRÁ VESTMANNAEYJUM 07:00 17:00 9:30 19:30 12:00 22:00 14:30 Ef siglt er til Þorlákshafnar er áætlun sem hér segir: Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 17:00 Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.