28. tbl. 01. árg. 11. - 17. september 2019 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is
Ðe Lónlí Blú Bojs
Rokkkór Íslands
Vestmannaeyjahlaupið
Söngleikurinn Ðe Lónlí Blú Bojs verður sýndur í Eyjum 13. og 14. september. Sýningarnar byrja kl. 20:00 í Leikhúsinu.
Rokkkór Íslands verður með sing along tónleika í Höllinni laugardaginn 14. september. Skjáir með textum laganna.
Myndir úr Vestmannaeyjahlaupinu sem haldið var síðastliðinn laugardag 7. september.
Ný heimasíða
TÍGULS www.tigull.is
Aníta opnar lögmannsstofuna A. Lögmenn: - Leggur metnað í að veita persónulega og góða þjónustu -
ÓMAR GARÐARSSON omar49@simnet.is Aníta Óðinsdóttir, héraðsdómslögmaður hefur opnað eigin lögmannsstofu í Vestmannaeyjum þar sem hún býður upp á alla almenna lögmannsþjónustu. Aníta er ekki nýgræðingur í lögmannsstörfum því hún rak í rúm fjögur ár starfstöð Bonafide lögmanna í Eyjum sem var lokað í sumar. Í framhaldinu stofnaði hún eigin stofu, A.lögmenn Vestmannaeyjum og er á sama stað á Vesturveginum. Vestmannaeyingar vita að hverju þeir ganga þegar leitað er til Anítu sem hefur mjög víðtæka reynslu sem lögmaður. Hefur hún komið að flestu sem heyrir undir lögmennsku og málflutningi fyrir héraðsdómi.
TÍGULL
„Þetta kemur í beinu framhaldi af því sem ég hef verið að gera. Nafnið er annað og nú stend ég á eigin fótum en ég er með reynslu í farteskinu sem á eftir að nýtast umbjóðendum mínum,“ segir Aníta sem er lögmaður með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum. Hún byrjaði hjá hjá Bonafide lögmönnum að loknu námi árið 2015. „Allt hefur sinn tíma og breytingar eru af hinu góða. Ég tók þá ákvörðun þann 1. ágúst sl. að henda mér úr hreiðrinu og kveðja Bonafide lögmenn, eftir ríflega fjögur frábær og lærdómsrík ár. Við taka spennandi tímar sem sjálfstætt starfandi lögmaður hjá A. Lögmönnum.“ Aníta sér fram á að hafa næg verkefni. „Þau hafa verið til staðar síðustu ár og ég bind miklar vonir um að svo verði áfram. Þau mál sem ég hef verið að taka að mér sl. ár
eru m.a. skilnaðar-, umgengnis- og forsjármál, sakamál bæði í verjandastörfum og réttargæslu, barnaverndarmál, dánarbú, faðernismál, slysamál, vanrækslu- og læknamistakamál, gjaldþrotaréttur/skiptastjórn, stjórnsýslu- og sveitarstjórnarmál og málflutningur fyrir héraðsdómi. Auk þess mun ég veita alla almenna lögfræðiþjónustu.“ Aníta hvetur alla til þess að skoða nýju heimasíðuna hennar, www. alogmenn.is. „Og ekki hika við að hafa samband eða einfaldlega kíkja við að Vesturvegi 10. Ég mun leggja metnað minn í, eftir sem áður, að veita persónulega og góða þjónustu,“ sagði Aníta að lokum. Aníta er gift Guðmundi Inga Guðmundssyni og eiga þrjá stráka, Guðmund Huginn, Gabríel Gauta og Óðinn Inga.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Upplagið er 1750 eintök. Einnig er hægt að skoða blaðið á netinu: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
42
Wood burning oven &
beer from local brewery
PÍTSA FESTA Í HÁDEGINU!
ALLA FÖSTUDAGA
11:30 - 13:30
ÞÚ MÆTIR TIL OKKAR Í HÁDEGINU Á FÖSTUDÖGUM OG BORÐAR EINS OG ÞIG LYSTIR Á AÐEINS:
2.390 kr.
#PITSUGERDIN
/PÍTSUGERÐIN
pantanir í síma 551 0055
Pítsugerðin / Bárustíg 1 / 551-0055
Stórgjöf Guðmundar Karls nýtist fólki í neyð: - Í allt fá 25 manns fjárstuðning á hverju ári -
Aðstandendur Guðmundar ásamt stjórn Krabbavarnar. Frá vinstri: Sigurlaug Grétarsdóttir, Ásta María Jónasdóttir, Stefán Jónasson, Kristín Valtýsdóttir, Olga Sædís Bjarnadóttir, Guðný Halldórsdóttir, Sigríður Gísladóttir og Sigurbjörg Kristín Óskarsdóttir.
ÓMAR GARÐARSSON omar49@simnet.is „Félaginu þykir vænt um þann kærleik sem Guðmundur sýndi okkur með þessari veglegu gjöf sem hann eftirlét okkur og um leið þann hlýhug sem hann sýndi félaginu. Gjöf þessi er okkur ómetanleg, hún á eftir að hjálpa mörgum sem eiga um sárt að binda vegna veikinda. Þessi stuðningur er okkur dýrmætur,“ segir Sigurbjörg Kristín Óskarsdóttir, formaður Krabbavarnar í Vestmannaeyjum. Tilefnið er að Guðmundur Karl Jónasson sem lést á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum 2. júlí síðastliðinn arfleiddi Krabbavörn að öllum eigum sínum eftir sinn dag. Stjórn Krabbavarnar hitti systkini Guðmundar, Stefán og Ástu Maríu á Tanganum í síðustu viku til að sýna
þeim það þakklæti sem félagið ber til Guðmundar vegna þessara rausnarlegu gjafar. „Hún kemur sér vel fyrir þá sem leita til okkar. Krabbavörn í Vestamanneyjum eru samtök sem hafa það hlutverk að styðja þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Félagið er rekið með styrkjum frá velunnurum félagsins. Gjöf Guðmundar er góð viðbót og alveg ómetanleg,“ segir Sigga Stína. Félagið stendur á gömlum grunni Var stofnað þann 25. apríl 1949 og endurvakið þann 3. maí 1990 og hefur því starfað óslitið í nær 30 ár. „Aðstoð okkar felst í að veita fólki fjárstuðning með ýmsum hætti. Það geta verið ferðastyrkir, dvalarkostnaður og styrkir vegna jarðarfara. Á hverju ári leita til félagsins tíu til tólf manns sem eru að koma inn í fyrsta skipti en í allt eru þetta um 25 manns sem fá fjárstuðning á
hverju ári. Í allt um 5 milljónir sem skipta máli þegar fólk er að takast á við erfið veikindi. Þá á ég ekki bara við þá sem veikir eru því þetta snertir alla fjölskylduna.“ Það er fleira sem Krabbavörn getur boðið fólki. „Í Arnardranga húsi Rauða Krossins er hittingur á þriðjudögum á milli klukkan eitt og þrjú. Þar hefur fólk tækifæri til að ræða sín mál eða spjalla um daginn og veginn. Við reynum að vera til staðar fyrir fólk þegar á þarf að halda. Markmiðið er að aðstoða fólk við að ná jafnvægi við breyttar aðstæður í lífinu. Veita stuðning og nauðsynlegar upplýsingar. Hjá okkur getur fólk sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur fengið ráðgjöf, fræðslu og fengið upplýsingar um þá þjónustu sem í boði er. Allt atriði sem skipta máli,“ segir Sigga Stína.
HELGARTILBOÐ - TVEGGJA RÉTTA -
Forréttur: Flatbrauð með parmaskinku, fersku fennel og appelsínusalati, hummus og ofnbökuðum cherry tómötum Aðalréttur Hægelduð nautalund með madeira soðsósu fondant kartöflu og ristuðu spergilkáli í villisveppasmjöri 4.950,- kr.
#gottveitingastadur Bárustíg 11 900 Vestmannaeyjar
/gottrestautant 481-3060
www.gott.is
gott@gott.is
Vestmannaeyja, Trommað til styrktar Krabbavörn, Bleikar tuskur, Bleikan október og allskonar aðrar uppákomur hjá ýmsum félögum. Líka Brothers Brewery og Áramótagönguna svo eitthvað sé nefnt..” og ekki má gleyma Sigurlaugu Alfreðsdóttur sem hefur styrkt okkur í mörg ár með gjafakortum og öðrum munum sem hún hannar sjálf og selur í Póley, og systrunum Hafdísi og Berglindi sem hafa styrkt okkur vel í gegnum árin. Til að fá greiddan styrk vegna veikinda frá Krabbavörn þarf viðkomandi að vera félagsmaður og vera með lögheimili í Vestmannaeyjum. Hún segir að félagið njóti velvildar og fjölmargir einstaklingar, fyrirtæki og félög styrki félagið ár hvert og fyrir það séu þau óendanlega þakklát. „Félagsmenn eru um 350 í dag. Skrifstofa félagsins í Arnardranga er opin á þriðjudögum frá klukkan eitt til þrjú og þar er Sigríður Gísladóttir, starfsmaður félagsins. Hægt er að hafa samband við Sigríði eða einhvern úr stjórninni ef fólk vill ganga í félagið. „Allt kemur að notum og það veit enginn hver er næstur í
röðinni þegar krabbamein bankar upp á. Og munum að margt smátt gerir eitt stórt.“ Krabbavörn eru grasrótarsamtök sem vinna þarft verk og Sigga Stína segir starfið njóta velvildar og þau finni fyrir miku þakklæti í samfélaginu. „Við eru líka afar þakklát öllum sem hjálpa okkur að efla og styrkja starfsemina með ágóða af viðburðum. Þar get ég nefnt Sjö tinda gönguna, Kótilettuklúbb
Í stjórn félagsins eru: Formaður félagsins er Sigurbjörg Kristín Óskarsdóttir. Varaformaður: Guðný Halldórsdóttir. Gjaldkeri: Sigríður Gísladóttir. Ritari: Ingibjörg Andrea Brynjarsdóttir. Meðstjórnendur: Kristín Valtýsdóttir og Olga Sædís Bjarnadóttir.
Undirbúningur hafinn fyrir bleikan október - Miðvikudagshittingar í september Nú er undirbúningur hafinn fyrir bleikan október. Fjölmargir hafa lagt okkur lið síðustu mánuði og prjónað eða heklað tuskur sem er frábært og enn er hægt að bætast í hópinn. Öll miðvikudagskvöld kl.20:00 í september ætlum við að hittast og pakka og merkja tuskur. Já eða bara koma
og prjóna eða hekla fleiri tuskur og svo auðvitað spjall og kaffisopi. Allir að sjálfsögðu velkomnir og þarf ekki að vera með eða hafa verið með krabbamein til þess að mæta, bara opið fyrir alla sem hafa áhuga.
ÖKUKENNSLA
AKSTURSMAT ÖKUSKÓLI
GÍSLI MAGNÚSSON
896 6810 // gislimagg47@gmail.com
LÆKKAÐ VERÐ Á PARKETI OG FLÍSUM
20 25%
AFSLÁTTUR
AF VÖLDU PARKETI & FLÍSUM
– Í MEISTARA HÖNDUM Miðstöðin / Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
Sjá nwáwn.atrigull.is w
Viðburðir MIÐ
11
HITTINGUR KRABBAVARNAR UM BLEIKAN OKTÓBER
SEPT
Arnardranga kl. 20:00
FIM
VESTMANNAEYJAMÓT Í PARTNERS
12 SEPT
FÖS
13 SEPT
LAU
14 SEPT
The Brothers Brewery kl.21:00 SÖNGLEIKURINN ÐE LÓNLÍ BLÚ BOJS
Leikhús Vestmannaeyja kl. 20:00
LAU
GALDRAR MEÐ INGÓ GEIRDAL
Íslandsbanki kl. 13:00 - 14:00
14
ÍBV - AFTURELDING OLÍSDEILD KVENNA
SEPT
Íþróttamiðstöðin kl. 16:00
LAU
SÖNGLEIKURINN ÐE LÓNLÍ BLÚ BOJS
14 SEPT
Leikhús Vestmannaeyja kl. 20:00
LAU
14
ROKKKÓR ÍSLANDS
SEPT
Höllin kl. 21:30
SUN
ÍBV - FYLKIR PEPSÍ MAX DEILD KVENNA
15
Hásteinsvöllur kl. 14:00
SEPT
LAU
14
LJÓSMYNDASÝNING ÓSKARS PÉTURS
Einarsstofa kl. 13:00 - 14:30
SEPT
ÞRI
17
Kvika kl. 17:00
SEPT
FIMMTUDAGUR
www.eyjabio.is
ALZHEIMERSAMTÖKIN KAFFI
12
LAUGARDAGUR 14
SEPT
MIÐ
11 SEPT
MIÐ
11 SEPT
MIÐ
11 SEPT
MIÐ
11 SEPT
FIM
12 SEPT
MÁN
16 SEPT
MÁN
16 SEPT
SEPT
ÞRI
17 SEPT
kl.21:00
SUNNUDAGUR 15 SEPT
SUNNUDAGUR 15
kl.15:00
SUNNUDAGUR 15
SEPT
SEPT
ÞRI
17 SEPT
LEIKFIMI
Íþróttamiðstöðin kl. 10:10 - 10:50
HANDVERK & HITTINGUR
Vinnaminni/Kviku kl. 13:00 - 16:00
STÚLKNAKÓRINN
Vinnaminni/Kviku kl. 16:00
SÖNGHÓPURINN
Vinnaminni/Kviku kl. 17:00
SPILAVIST
Vinnaminni/Kviku kl. 20:00
BOCCIA
Vinnaminni/Kviku kl. 16:00
PERLUSAUMUR
Vinnaminni/Kviku kl. 16:00 - 18:00 VATNSLEIKFIMI
Sundlaug Íþróttamiðstöð kl. 10:50 - 11:20
LÍNUDANS
Vinnaminni/Kviku kl. 15:00
PÚTTSALURINN OPINN ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 12:30 - 14:00 HRESSINGARGANGAR Í HERJÓLFSHÖLL ALLA DAGA 08:00 - 12:00
kl. 15:00
kl.18:00
kl.21:00
FRÍTT Í SUND FYRIR HEIMAFÓLK 67 ÁRA OG ELDRI
Svefn – gefðu þér tíma til að sofa! - Einföld ráð sem að stuðla að bættum svefni sjúkdómur, þunglyndi, sykursýki sem og hjarta- og æðasjúkdómar, s.s hár blóðþrýstingur. Það er því mikill ávinningur fyrir heilsuna að gefa sér tíma til að sofa. Svefnþörf er einstaklingsbundinn en að meðaltali þarf fullorðinn og heilbrigður einstaklingur á bilinu 7 til 8 klst svefn á hverri nóttu. Ef einstaklingur vaknar úthvíldur að morgni þá hefur hann líklega sofið nóg.
Aldur
Mannslíkaminn kemst ekki af án hvíldar og svefns. Í svefni hvílist líkaminn og endurnýjar sig, taugakerfið endurnærist, líkaminn framleiðir vaxtarhormón sem meðal annars stýra vexti barna og unglinga og hraða endurnýjun fruma líkamans hjá þeim sem eldri eru. Heilinn fær hvíld og tíma til að vinna úr tilfinningum og hugsunum. Það er því öllum nauðsynlegt að sofa. Það hefur verið sýnt fram á að of lítill svefn hefur margvísleg neikvæð áhrif á heilsuna, aukin þreyta, meiri skapsveiflur og erfiðara getur verið takast á við dagleg verkefni. Vert að hafa í huga að þeir sem eru þreyttir er einnig hættara við að lenda í slysum. Margir sjúkdómar hafa verið tengdir við skertan nætursvefn, m.a alzheimer-
/crispus
0-3 mán 4-11 mán 1-2 ára 3-5 ára 6-13 ára 14-17 ára 18-65 ára 65 ára og eldri
Klukkustundir 14-17 12-15 11-14 10-13 9-11 8-10 7-9 7-8
Einföld ráð sem stuðla að bættum svefni: Algengast er að of stuttur nætursvefn valdi þreytu, orkuleysi og pirringi yfir daginn. Það getur verið gagnlegt að skoða svefnmynstrið. Rannsóknir hafa sýnt fram á að óreglulegur svefn er ekki eins endurnærandi og góður reglulegur nætursvefn. - Grundvallaratriði er að fara á fætur á sama tíma á hverjum morgni og fara í háttinn á sama tíma á hverju kvöldi.
772-6766 Heiðarvegur 9
- Forðast að leggja sig á daginn - Ef þú nærð ekki að festa svefn þá getur hjálpað að fara framúr og gera eitthvað annað, s.s fá sér flóaða mjólk, lesa, hlusta á rólega tónlist og leggja sig um leið og syfjan gerir vart við sig á ný. - Líkamleg áreynsla á hverjum degi leiðir til dýpri svefns. - Rólegheit á kvöldin auðveldar að sofna, betra er að hafa daufa lýsingu á kvöldin, heit sturta eða bað getur líka hjálpað. - Kaffi, te, orkudrykkir og gosdrykki trufla svefn og ráðlagt að neyta þeirra í hófi og aldrei eftir kvöldmat. Sama gildir um áfengi og reykingar. Fíkniefni trufla líka svefn og eru að auki ólögleg. - Enginn skjátími síðasta klukkutímann fyrir svefn - Hitastig í svefnherbergi skiptir máli, mælt er með að sofa við opinn glugga og hafa svalt og dimmt í herberginu, sængurfötin hrein og gott rúm. Gefðu þér tíma til að sofa vel ! Heimildir: Heilsuvera.is og landlaeknir.is f.h. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir, hjúkrunarstjóri heilsugæslustöðvar Kirkjubæjarklausturs
ÖKUKENNSLA
SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01
Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook
• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli
20 ára reynsla! Sími 692-3131
1919
2019
LJÓSMYNDASÝNINGAR
Í EINARSSTOFU
LJÓSMYNDIR BÆJARBÚA Á LAUGARDÖGUM Í EINARSSTOFU FRÁ SEPTEMBER OG FRAM Í DESEMBER Í tilefni af 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar hefur afmælisnefnd bæjarins staðið fyrir fjölda viðburða
NÚ ER KOMIÐ AÐ BÆJARBÚUM Næstu 13 laugardaga kl. 13-14:30 frá 14. september
verður boðið upp á dagskrá í Einarsstofu í Safnahúsi þar sem einn til þrír ljósmyndarar sýna rúllandi ljósmyndir á sýningartjaldi. Viðfangsefnið er 100 ára afmælisbarnið, Vestmannaeyjar og efnistökin verða eins ólík og hið margbrotna viðfangsefni. Þegar hafa um 40 einstaklingar skráð sig til þátttöku. Möguleiki er á því að bæta við örfáum ljósmyndurum. Boðið verður upp á tónlistaratriði á völdum dagskrám. Óskar Pétur Friðriksson er fyrstur og verður hann í Einarsstofu á laugardaginn, 14. september kl. 13.00. Óskar Pétur verður einn en oftast verða þrír ljósmyndarar sem sýna rúllandi ljósmyndir á sýningartjaldi. Fólk er hvatt til að mæta.
Afmælisnefnd Vestmannaeyjabæjar
Söngleikurinn Ðe Lónlí Blú Bojs í Bæjarleikhúsinu - Þrír peyjar sem tengjast Eyjum fjölskylduböndum Söngleikurinn Ðe Lónlí Blú Bojs verður sýndur í Eyjum um helgina. Sýningin er sett upp að mestu leyti að ungu fólki og þar á meðal eru þrír ungir peyjar sem að tengjast Eyjum fjölskylduböndum. Söngleikur sem fólk á öllum aldri hefur gaman af.
efnum, bæði innan skóla og utan. Nú síðast var ég framkvæmdastjóri sýningarinnar Framleiðendurnir í Háskólabíói árið 2018 en núna er ég að vinna í Borgarleikhúsinu og kem þar að söngleiknum Matthildur og gamanleiknum Sex í Sveit.
Nafn: Máni Huginsson Tengsl við Eyjar: Pabbi minn, Huginn og stjúpmamma mín, Lára eru Vestmannaeyingar og búa í Eyjum ásamt tveimur systkinum mínum, þeim Hlín og Jóel. Fjölskyldur þeirra eru þaðan og langflestir ættingjar okkar búa þar. Hvenær kviknaði áhugi þinn á leikritum? Í 10. bekk Garðaskóla í Garðabæ ákvað ég að fara í prufur fyrir Litlu Hryllingsbúðina sem var sett þar upp árið 2015. Ég hafði samt engan áhuga á að leika, ég vildi bara taka þátt þar sem mér fannst eins og krakkarnir í sýningunni árinu á
Af hverju að koma með leiksýninguna til Eyja? Ég hef mína fjölskyldu í Eyjum. Þar að auki hefur Vilberg leikari í sýningunni tengsl við Eyjar en móðir hans Sigurlaug og stjúpfaðir Jóhann búa í Eyjum. Ekki nóg með það þá eru foreldrar Pálma, sem hannaði ljósin í Bæjarbíói, þau Paloma og Jón Óskar, uppalin í Eyjum og fjölskyldur þeirra búa þar. Okkur þykir öllum mjög vænt um Vestmannaeyjar og fannst sjálfsagt að sýna nokkrum sinnum fyrir Eyjamenn og njóta þess að gera það sem okkur finnst skemmtilegast á eyjunni sem við tengjumst svo mikið.
undan höfðu skemmt sér svo vel. Ég komst inn í leikhópinn en eftir að hafa kynnst mér bað leikstjórinn mig um að vera aðstoðarleikstjóri. Þar kynntist ég uppsetningu á leikverkum og síðan þá hef ég tekið þátt í framleiðslu á ýmsum verk-
Um sýninguna Sýningin segir frá þeim Sörla, Páli og Njáli sem skipa lítinn sönghóp með stóra drauma. Þeir koma smáskífu til úrelts umboðsmanns að nafni Þorvaldur og landa hjá honum samningi. Þorvaldi finnst söng-
hópurinn ófullkomnaður og bætir inn söngvaranum Valdimari. Þannig verða Ðe Lónlí Blú Bojs til. Sagan segir frá því hvernig bandið þróast þegar þessi nýji meðlimur er skipaður inn, hvernig ástin getur flækst fyrir og hvernig frægðin getur stigið manni til höfuðs. Söngleikur sem allir hafa gaman af og er með lögum frá Ðe Lónlí Blú Bojs sem allir ættu að kannast við, þar á meðal Heim í Búðardal, Harðsnúna Hanna og Diggi Liggi Ló. Sýningin er að mestu leyti sett upp af ungu fólki. Höskuldur, leikstjóri og handritshöfundur, allur leikhópurinn (nema Jón Svavar, sem leikur umboðsmanninn Þorvald) og ég erum öll undir 22 ára aldri. Við kynntumst í Verzlunarskólanum í sýningunum þar. Höskuldur fékk hugmyndina af sýningunni þegar hann heyrði lag með Ðe Lónlí Blú Bojs í útvarpinu og uppgötvaði hljómsveitina. Það fékk hann til að kynna sér sögu hljómsveitarinnar og hann ákvað að skrifa handrit lauslega byggt á henni. Höskuldur setti saman leikhóp og fann mig og við settum upp þessa sýningu í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Sýningin verður sýnd í Leikhúsi Vestmannaeyja föstudaginn 13. september og laugardaginn 14. september. Báðar sýningarnar eru kl. 20:00. Miðinn kostar 3.500 kr. og er seldur við inngang. Við heitum @ blubojs á Instagram og á facebook: facebook.com/blubojs.
20%
25%
30%
40%
50%
70%
20%
25%
Gerðu geggjuð kaup
ÚTSALA Lýkur um helgina
30 prósent afsláttur
Valin blöndunartæki
Lýkur um helgina
Allt að
70
prósent afsláttur
Verkfæratöskur
Parket
25
Rafmagnsverkfæri
30 Matarstell, glös og könnur
prósent afsláttur
25 prósent afsláttur
50
Allt að
prósent afsláttur
Málning og viðarvörn
33 prósent afsláttur
Flísar
hu vef sa ver .is slun
Handverkfæri 20-50% • Rafmagnsverkfæri 20-30% • Orf 30-35% • Hekkklippur og keðjusagir 30-40% Claber slönguhjól 40% • Áltröppur og stigar 25-30% • Hillurekkar 25% • Verkfæratöskur 25-50% Þvottasnúrur (úti) 30-50% • Garðverkfæri 25-40% • Háþrýstidælur 25% • Borðplötur og sólbekkir 25-50% Pallaolía og viðarvörn 30% • Philips perur og útiljós 25% • Blöndunartæki Grohe (valdar vörur) 30% Smáraftæki 20% • Garðhúsgögn 30% • Reiðhjól og fylgihlutir 25-30% • Hnífapör og eldhúsáhöld 30% Matarstell og glös 30% • Bökunarvara 20% Pottar og pönnur 25% • Hreinsiefni og hreingerningaráhöld 30% Plastkörfur og box 20% • Strauborð og herðatré 20% • Vinnufatnaður 20-40% Barnabílstólar og sessur 25% • Veðurstöðvar og hitamælar 25% • Kerti og kertastjakar 25% Blómavasar og styttur 25% • Luktir 25% • Gerviblóm 25% • Útipottar 30% Riverdale heimilisvara 25-50% • Panill og vatnsklæðningar 20-40% ... auk hundruð annarra útsölutilboða Lí ka í
Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana.
prósent afsláttur
prósent afsláttur
Allt að
Pottaplöntu útsala
Allt að
30
prósent afsláttur
Allt að
50
Lýkur um helgina
Vestmannaeyjahlaupið var haldið 7. september - Tói Vídó sá um að mynda hlauparana -
Þaklist ehf Siglingaáætlun
Frá 30. mars - 30. nóvember 2019
Þakviðgerðir, Sérhæfi mig í flötum þökum. Tek að mér ýmsa smiðavinnu, parketlagnir, grindverk, sólpalla og fleira.
20 ára reynsla lærður smiður Smári Björn S: 849-2694 smaribjorn@gmail.com
Vestmannaeyjar brottför:
Landeyjarhöfn brottför:
07:00 - Alla daga
08:15 - Alla daga
09:30 - Alla daga
10:45 - Alla daga
12:00 - Alla daga
13:15 - Alla daga
14:30 - Alla daga
15:45 - Alla daga
17:00 - Alla daga
18:15 - Alla daga
19:30 - Alla daga
20:45 - Alla daga
22:00 - Alla daga
23:15 - Alla daga
Brottför frá Vestmannaeyjum 7:00 og 15:30 Brottför frá Þorlákshöfn 10:45 og 19:15
+354 481 2800
/þaklist
herjolfur@herjolfur.is
Básaskersbryggju - 900 Vestmannaeyjum
Leið 52
STRÆTÓ
www.straeto.is 540 -2700
Hægt er að borga fargjaldið inn í strætó
Virkir dagar:
Móttaka heyrnarfræðinga HTÍ
Vestmannaeyjum Föstudag 20/9
Staðsetning: HEILBRIGÐISSTOFNUN
08:00 Herjólfsferð: 10:45 18:00 Herjólfsferð: 20:45
Frá Mjódd Frá Mjódd Helgar:
Frá Umferðarmiðstöð Frá Mjódd Frá Mjódd
07:55 Herjólfsferð: 10:45 08:10 Herjólfsferð: 10:45 15:15 Herjólfsferð: 18:15
www.straeto.is | 540-2700
www.ernir.is 481-3300
MÆLINGAR – RÁÐGJÖF – HEYRNARTÆKI AÐSTOÐ OG STILLINGAR
Frá Reykjavík
Frá Vestm.eyjum
Tímabókanir s: 581 3855 og á heimasíðu www.hti.is
Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Brottför Lending
07:15 15:45 11:30 17:30
07:40 16:10 11:55 17:55
08:00 16:30 12:15 18:15
08:25 16:55 12:40 18:40
VETRARÁÆTLUN ERNIS
Tíu ferðir á viku til og frá Eyjum Bókaðu flugið á ernir.is Vetraráætlun gildir til 31. maí 2020 Áætlun getur tekið breytingum, alltaf rétt á ernir.is
Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Brottför Lending Frá Reykjavík
l l
Frá Eyjum
l
l l
l
l
l
l
l
l
l
l
l
Opnunartímar mánudag þriðjudag miðvikudag fimmtudag föstudag laugardag sunnudag
Vestmannaeyjar 7-18 13-18 7-18 7-18 13-18 lokað 10 -13 / 15 -19
562 2640 / 481 3300 / ernir@ernir.is
ernir.is
l
7:15
7:40
15:45
16:10
l
11:30
11:55
l
17:30
17:55
l
8:00
8:25
16:30
16:55
l
12:15
12:40
l
18:15
18:40