

EKKI BÍÐA EFTIR „MÓMENTINU“ HELDUR SKAPAÐU ÞAÐ
Þann 30. janúar hvetjum við alla og fyrirtæki til að halda hátíðlegan Lífið er núna daginn en tilgangur hans er að minna fólk á að staldra við og njóta líðandi stundar.
Ekki bíða eftir “mómentinu” heldur skapaðu það þegar þig langar til! Við hvetjum vinnustaði til að brjóta upp hversdagsleikann með því t.d. að hafa hrós-dag, vinaleik, mæta í sínu fínasta pússi eða bjóða upp á appelsínugular veitingar, hvetja starfsfólk til að fara í göngutúr í hádeginu og gera sér dagamun og huga að heilsunni.
Í tilefni dagsins hvetjum við alla og fyrirtæki til að gera appelsínugula litnum okkar hátt undir höfði, brjóta upp daginn með appelsínugulum kaffiveitingum, skreyta heima og kaffistofuna í vinnunni, klæðast appelsínugulu og skapa minningar með sínu

besta fólki. Það er ekki eftir neinu að bíða. Hægt er að nálgast ýmsan Lífið er núna varning til þess að skreyta með í vefverslun okkar.
Þau fyrirtæki sem hafa tök á að
taka enn frekar þátt í deginum eru hvött til að lýsa upp byggingar sínar í skammdeginu með appelsínugulum tónum sem er litur Krafts.

TÍGULL
DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

að taka baðið í gegn?
Þú færð allt fyrir baðherbergið á einum stað. Við bjóðum við upp á frábært úrval af blöndunartækjum, vöskum og klósettum. Gólefni ásamt úrvali af veggklæðningum.



Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
/midstodin @midstodin
INDVERSK VEISLA
Kæri Pétur, þakka þér kærlega fyrir áskorunina! Ég er algjör matarperri og elska rétti sem kosta fyrirhöfn og tíma. Allt sem tekur tíma bragðast einfaldlega betur. Þessi réttur, sem ég hef valið, er einn af mínum uppáhalds – Butter Chicken með heimalöguðu naan brauði og hrísgrjónum. Myndi setja rajita og lauk padokas með en það myndi krefjast aukablaðsíðu í blaðinu. Rétturinn krefst smá vinnu, en á móti færðu rétt sem bráðnar í munni og hlýjar líkama og sál. Allt hráefni fæst í Eyjum, sem er sérstaklega mikilvægt.
Butter Chicken
Hráefni:
Fyrir kjúklinginn:
• Pakki af kjúklingabringum eða læri, skornar í bita
• 130 g grísk jógúrt
• 16 g minced garlic
• 1 msk engiferrót, rifin
• 1 tsk túrmerik
• 1 tsk chiliduft
• 1 tsk garam masala
• 1 tsk kúmen
• Safi úr 1/2 sítrónu
• 1 tsk salt
Fyrir sósuna:
• 2 msk ólífuolía
• 1 laukur, smátt skorinn
• 3 hvítlauksrif, smátt söxuð
• 1 msk rifinn engifer
• 2 tsk chiliduft
• 2 tsk kúmen
• 1 tsk kóríander
• 1 tsk túrmerik
• 400 g hakkaðir tómatar (úr dós)
• 200 ml rjómi
• 1 tsk garam masala
• Salt eftir smekk
• Ferskt kóríander til skrauts (ef til)
Leiðbeiningar:
1. Blandaðu saman öllum hráefnum fyrir maríneringuna í skál. Settu kjúklinginn í blönduna og láttu marínerast í að minnsta kosti 1 klst (helst yfir nótt).
2. Steiktu kjúklinginn á heitri pönnu þar til hann fær fallegan lit (hann þarf ekki að eldast í gegn). Taktu hann af pönnunni

og settu til hliðar.
3. Hitaðu olíu eða smjör í stórum potti. Steiktu laukinn þar til hann er mjúkur og gylltur.
4. Bættu hvítlauk, engifer og kryddum út í og steiktu í 1-2 mínútur.
5. Helltu tómötunum saman við og láttu malla í 15-20 mín, þar til sósan verður djúp dökk rauð. Setjið í mixer og setja má allt að hálfu glasi af vatni ef hún mixast ekki.
6. Settu sósuna aftur á pönnuna, bættu rjómanum í og kjúklinginn og láttu malla í 1015 mín.
Heimalagað naan brauð
Hráefni:
• 4 dl hveiti
• 2 tsk sykur
• 1/2 tsk salt
• 2 tsk þurrger
• 1,5 dl volgt vatn
• 2 msk grísk jógúrt
• 3 msk brætt smjör
• Smjör, Garam masala og hvítlaukskrydd
Leiðbeiningar:
1. Blandaðu þurrgerinu saman við volgt vatn og sykur. Láttu standa í 5 mínútur þar til það freyðir.
2. Blandaðu hveiti, salti, jógúrt og smjöri saman í skál. Helltu gerblöndunni saman við og hnoðaðu þar til deigið er mjúkt.
3. Láttu deigið hefast í 30 mín á hlýjum stað
4. Skiptu deiginu í 6 litla bita og fletjið út, óhrædd við að nota hveiti hér þar sem deigið er blautt. Kryddið aðra hlið með Garam masala.
5. Hitaðu pönnu á rúmlega meðalhita, setja olíu alltaf á pönnuna fyrir hvert brauð og steiktu hvert brauð í 1-2 mínútur á hvorri hlið. Smyrja síðan með smjöri, smá salti og hvítlauk.
Bera svo fram með hrísgrjónum og rauðvínsglasi og allir verða matarglaðir!
Njótið vel!
Takk aftur Pétur fyrir áskorunina og ég ætla að skora næst á Kjartan Vídó, brennukóng Hljómeyjar og meistarakokk!
Guðmundur Jóhann Árnason er sælkeri vikunnar.

Flötum 29
Tímapantanir í síma: 481-1012
Neyðarsíminn: 844-5012
tannsi@eyjar.is
Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega. www.skvisubudin.is
/skvisubudin
PASSA MYNDIR
TÖKUM PASSAMYNDIR FYRIR ÖKUSKÍRTEINI OG ÖNNUR SKÍRTEINI

Flötum 21 / S. 481-1216
Er janúar þinn
skoðunarmánuður?



Eru framkvæmdir í pípunum?
Vertu tímalega að bóka pípara í verkið!
Láttu okkur um verkið. Við bjóðum upp á alhliða verktakavinnu: Pípulagnir, smíðar, raflagnir, múrvinnu.
aglverktakar@gmail.com // 768 5228

481-1567 ( Sendum heim alla daga frá kl. 17.00


Frumherji í Eyjum vikuna 27. - 30. janúar
Tímapantanir í síma 570 9090 Faxastígur 38
Lokað í hádeginu

KÁTIR KRAKKAR Á VÍKINNI


SARA BJÖRK KARLSDÓTTIR
Fjölskylda: Mamma mín heitir Thelma Rut og pabbi minn heitir Einir. Stóra systir Elena.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Fimleikastelpa.
Hvað er mamma þín best í að gera? Kubba með mér.
Hvað er pabbi þinn bestur í að gera?
Að leika með mér.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að leika
Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Sushi.
Hvað langar þig í jólagjöf? Dúkku með fötum.
Hvað er mamma þín gömul? Veit ekki.
Hvað er pabbi þinn gamall? Veit ekki.
Hver er besti vinur/vinkona þín/þinn? Auður Benna.
Hvað gerir þig glaða? Þegar eitthvað skemmtilegt.
Ertu hrædd við eitthvað ? Risaeðlur og ljón.
Fjölskylda: Mamma mín heitir Halla Björk og pabbi minn heitir Karl Haraldsson
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Skólastjóri
Hvað er mamma þín best í að gera? Spila með mér.
Hvað er pabbi þinn bestur í að gera ? Spila golf.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera ? Fara í göngu.
Hvað er uppáhalds maturinn þinn ? Píta.
Hvað langar þig í jólagjöf ? Málingadót.
Hvað er mamma þín gömul ? Veit það ekki.
Hvað er pabbi þinn gamall ? Fjörtíu ára.
Hver er besti vinur/vinkona þín/þinn ? Hildur.
Hvað gerir þig glaðan/a ? Að leika mér.
Ertu hrædd/ur við eitthvað ? Ljón og hákarla.
MÍA MARÍA EINISDÓTTIR

ÁRMANN HALLDÓR JENSSON
ER EYJAMAÐUR
ÁRINS 2024 AÐ MATI LESENDA TÍGULS
Okkur á Tígli finnst vel þess virði að minnast þess sem vel er gert. Frá áramótum höfum við því leitað eftir tilnefningum frá lesendum okkar um hver, að þeirra mati, á skilið nafnbótina Eyjamaður ársins 2024.
Við í Eyjum búum vel að mannauði og voru því fjölmargir nefndir til sögunnar og ættu allir nafnbótina skilið. Á meðal þeirra sem nefndir voru eru félagarnir í Hallgrímur Steinsson og Daði Pálsson. Þá var eiginkona Daða, Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir einnig tilnefnd fyrir hjálparstarf sitt í Kubuneh. Sonja Andrésdóttir, tómstundafulltrúi á
Hraunbúðum og að ógleymdum hr. Glacier Guy, Hannesi Gústafssyni.
Sá sem hlaut hins vegar flestar tilnefningar var Ármann Halldór Jensson.
Ef marka má ummælin hefur Ármann getið sér þess orðs að vera einstakt ljúfmenni sem ávallt er viðbúinn að stökkva til aðstoðar þeim sem hana þurfa. Í aðdraganda síðustu tveggja jóla hefur Ármann, í sínum frítíma, skellt sér í hlutverk Trölla, eða Grinch, og skemmt börnum Vestmannaeyja. Með þessu hefur
hann safnað dágóðri summu sem runnið hefur til góðgerðamála. 2023 gaf hann Barnaspítala Hringsins tæpar 700.000 kr. Þessi jólin var það félagið Gleym mér ei, en það er styrktarfélag sem er til staðar fyrir þau sem missa á meðgöngu og í/eftir fæðingu, sem hlaut styrk upphæð að 850.000 kr. Þá hefur Ármann getið sér einstaklega góðs orðs hjá skjólstæðingum sínum en hann ekur þjónustubíl fatlaðra í Eyjum.
Tígull óskar Ármanni innilega til hamingju með tilnefninguna sem hann á svo sannarlega skilið.

FRÁBÆR OG FRÆÐANDI FERÐ TIL SEVILLA
Dagana 16.–23. nóvember 2024 fóru fjórir nemendur ásamt tveimur kennurum úr Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum til Sevilla á Spáni. Ferðin var hluti af Erasmus-verkefni sem skólinn tekur þátt í ásamt framhaldsskólum í Sevilla á Spáni og Pisa á Ítalíu. Nú var komið að ferð til Spánar, en þema verkefnisins er „Vatn í tengslum við loftslagsbreytingar“ og í þessari heimsókn var fókusinn settur á orsakir og afleiðingar loftslagsbreytinga. Yfirumsjón með verkefninu fyrir hönd skólans hafa þær Tinna Hauksdóttir og Auðbjörg Halla Jóhannsdóttir.
Ferðin hófst með flugi til Malaga og þaðan lá leiðin beint til Sevilla, þar sem hópurinn gisti saman fyrstu nóttina. Í Erasmus-verkefnum er hefð fyrir því að nemendur dvelji heima hjá fjölskyldum jafnaldra sinna, og voru allir nemendur skólans mjög ánægðir með gistifjölskyldurnar sínar.
Spænski hópurinn hafði skipulagt fjölbreytta og fræðandi dagskrá þar sem nemendur unnu að verkefninu og fræddust enn frekar um efnið. Einnig var farið í tvær dagsferðir með hópana. Fyrst var farið í Doñana þjóðgarðinn, sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Garðurinn er frægur fyrir setlög

strandlengjunnar sem geyma upplýsingar um sögu loftlags svæðisins ásamt því að vera auðug af steingervingum, þar er einnig fjölbreytt vistkerfi og er garðurinn einstaklega mikilvægt farfuglasvæði. Þessi heimsókn var frábær, einstaklega fræðandi og ekki skemmdi veðrið fyrir, en það var 25 stiga hiti og heiðskírt. Nemendur og kennarar nutu
dagsins, dýfðu tásunum í sjóinn og sumir stungu sér til sunds. Á heimleiðinni var komið við í litlum bæ, El Rocío og fengið sér hádegismat, en þessi bær er frægur meðal Spánverja, og nærri milljón pílgríma leggja leið sína þangað ár hvert. Íslendingarnir komu allir rjóðir í kinnum til baka til Sevilla í lok þessa dags.
Önnur dagsferðin var svo til Solnova Solar Power Station, eitt stærsta sólarorkuver í heimi, sem er staðsett rétt utan Sevilla. Verið, sem samanstendur af fimm sólarorkuverum með samtals afkastagetu upp á 150 MW, nýtir spegla og sólarhitaorku til rafmagnsframleiðslu. Það er tákn um sjálfbæra orkuvinnslu og vakti mikla athygli hópsins. Eftir að hafa skoðað verið var keyrt með hópinn aftur til Seville þar sem við heimsóttum Confederación Hidrográfica del Guadalquivir (CHG), stofnunina sem fer með stjórn yfir vatnaumdæmi Guadalquivir sem rennur í gegnum Sevilla. CHG sér um vatnsauðlindastjórnun, náttúruvernd og flóðvarnir á vatnasvæðinu og gegnir þar með mikilvægu hlutverki í sjálfbærni og verndun náttúru á svæðinu. Verkfræðingar CHG fræddu okkur um þeirra helstu hlutverk og fóru m.a. yfir hvernig mælitæki þeirra virka, áhrif þurrka-tímabila á vatnsbirgðir héraðsins, og viðbragðsáætlanir þeirra í kjölfar ofsarigninga.
Fræðslan þessa dagana var mikil og verkefnavinnan gekk afar vel. Nemendur skólanna náðu vel saman, margar skemmtilegar stundir á og utan skólatíma. Borgin Seville hefur uppá ótal margt að bjóða og Spánverjarnir voru einstaklega dugleg að kynna hópinn fyrir borginni og auðvitað matarmenningunni sinni. Á lokakvöldinu var viðurkenningarathöfn fyrir vel unnin störf og sameiginlegur kvöldmatur í skólanum þar sem spænsku fjölskyldurnar komu með alls kyns gómsæta rétti. Á föstudeginum var ræs snemma stefnan tekin aftur á Malaga. Þar fékk hópurinn tíma til að skoða borgina og auðvitað versla áður en við flugum heim til Íslands og fengum frábært útsýni yfir eldgosið sem var þá í gangi. Það er óhætt að segja að hópurinn hafi komið til baka ríkur af reynslu, fróðleik og ómetanlegum minningum.







Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, systur og ömmu
BRYNJU FRIÐÞÓRSDÓTTUR
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorsteinn Ívar Þorsteinsson
Elísabet Jóna Þorsteinsdóttir
Marta Karlsdóttir
Pétur Eyjólfsson
Brynjar Karl Þorsteinsson
Eyjólfur Pétursson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi

ÆGIR ÖRN ÁRMANNSSON
lést á HSU í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 7. janúar síðastliðinn eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Útför verður gerð frá Landakirkju föstudaginn 24. janúar klukkan 13.00. Streymt verður frá henni á vef Landakirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, þeir sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Elín Jóhanna Eiríksdóttir
Hjördís Kristín Ægisdóttir Ármann Ragnar Ægisson Brett Whelan Paulina Pierzak
Þór Benedict, Óðinn Ægir, Snærós Perla




