Tígull 26. tbl 06. árg.

Page 1


26. tbl. 06. árg. 17. - 23. júlí 2024

BREKI EINARSSON ESQUIRE

Breki Einarsson er tvítugur

Eyjamaður sem útskrifaðist frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum í desember síðastliðnum. Hann stefnir á nám í sagnfræði við Háskólann Íslands nú í haust en starfar sem stendur sem safnvörður á Sagnheimum.

Í raun er rétt að rita nafn Breka með viðbótinni Esquire því nýlega varð hann, eftir því sem við komum næst, fyrsti Vestmannaeyjingurinn til þess að fá veitt skjaldarmerki frá ríkistjórn Möltu.

„Ég er einn af fáum Íslendingum sem bera skjaldarmerki og ennþá færri hafa fengið merkin veitt, ég er án efa fyrsti Vestmanneyingurinn til þess. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sögu og öllu sem henni tengist, þar á meðal skjaldarmerkjum. Ég hef síðan ég var krakki langað í mitt eigið skjaldarmerki. Ég og Einar afi minn hönnuðum skjaldarmerki að gamni okkar þegar ég var krakki, en ég vildi fá óumdeilanlegt ekta skjaldarmerki svo ég fór að tala við fólk í skjaldarmerkjafræði (e. Heraldry) og lærði helling um það ferli, svo bara spurðist ég fyrir og sendi umsóknir,“ sagði Breki um aðdraganda nafnbótarinnar. „Ég gekk líka í riddarareglu sem er í Bretlandi og það hjálpaði til.“

Breki segir nokkrar aðrar ríkistjórnir, ásamt Möltu, veita slík skjaldamerki. „Það eru bara nokkur lönd sem

TÍGULL

Breki Einarsson Esq.

Skjaldamerki Breka inniheldur að sjálfsögðu Lunda.

hafa ríkisstjórn sem veita skjaldamerki, það er Skotland, England, Írland, Suður-Afríka, Kenya og Malta, minnir að það sé allt. Ég talaði við allar ríkisstofnanirnar og Malta var svo tilbúin að veita mér skjaldarmerki eftir að ég var búinn að senda inn þvílíka umsókn. Malta er líka land með sögu fulla ad riddurum sem börðust til dæmis á móti Ottómönnum 1565,“ sagði Breki kampakátur með afrekið. „Svo eftir 8 mánaða ferli fékk ég loksins aðalsbréfið/skjölin fyrir þetta og með merkinu fylgir líka nafnviðbótin Esquire. Svo ég get skrifað mig sem Breka Einarsson Esq. Ef ég svo kýs,“ sagði Breki og brosti.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Deildarstjóri á Kirkjugerði

Leikskólinn Kirkjugerði óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan deildarstjóra í 100% starf frá og með 15. ágúst 2024.

Kirkjugerði er 6 deilda leikskóli sem vinnur eftir hugmyndafræði Hugsmíðahyggjunnar. Í skólanum dvelja að jafnaði 108 börn á aldrinum 1-5 ára.

Einkunnarorð skólans eru: Gleði, félagsfærni og jákvæður agi.

Vestmannaeyjabær leggur áherslu á að efla gott starfsumhverfi í leikskólum sveitarfélagsins og liður í því er að færa starfstíma leikskóla nær starfstíma grunnskóla.

Menntun og hæfniskröfur:

• Leyfi til að nota starfsheitið kennari.

• Sérhæfing á leikskólastigi eða reynsla af deildarstjórn í leikskólastarfi æskileg.

• Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur og áhugasamur, vera jákvæður og lipur í samskiptum og hafa sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

• Hafa velferð og þroska barna að leiðarljósi.

• Hæfni í mannlegum samskiptum.

• Góð íslenskukunnátta.

• Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur

ATH. Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Umsókn, ásamt afriti af leyfisbréfi og ferilskrá, skal senda til leikskólastjóra á netfangið eyja@vestmannaeyjar.is

Helstu verkefni:

• Uppeldi og menntun:

- Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun barnanna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.

- Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi.

• Stjórnun og skipulagning:

- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á faglegu starfi deildarinnar.

- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga.

- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur deildarstjóra.

• Foreldrasamvinna:

- Ber ábyrgð á allri foreldrasamvinnu.

er til og með 22. júlí 2024

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni að sækja um.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Frekari upplýsingar gefur Eyja Bryngeirsdóttir skólastjóri Kirkjugerðis í síma 488-2280.

KRISTÓFER TJÖRVI EINARSSON

Aldur: 23 ára.

Starf:

Sumarstarfsmaður hjá RST Net.

Menntun:

Er á 3. ári í Byggingartæknifræði við Háskólann í Reykjavík.

Hvað hefur þú tekið oft þátt í Meistaramótinu?

Ég held að þetta hafi verið mitt fjórða skipti.

Hvenær byrjaðiru í golfi?

Ég byrjaði mjög snemma í golfi. Langar að segja að ég hafi byrjað um 5-6 ára.

Hver er þín helsta fyrirmynd?

Það myndu vera Lionel Messi og Kobe Bryant.

Hversu oft ertu að æfa?

Ég æfi reglulega og tel ég mikilvægast að æfa vipp og pútt. Ég spila mikið golf og finnst mér

það einnig virkilega góð æfing.

Hvað stefniru á í framtíðinni?

Ég stefni á að klára námið sem ég er í og síðan í framtíðinni að fara í meistaranám erlendis.

Hvernig hefur þér gengið í öðrum mótum?

Mér hefur gengið frekar vel í öðrum mótum í sumar en kannski ekki í líkingu við meistaramótið

Draumavöllurinn að spila á?

Valderrama á Spáni. Hrikalega erfiður völlur sem krefst nákvæmrar spilamennsku.

Hver er lykillinn að velgegninni um helgina?

Varstu svona mega gíraður í mótið?

Ég held að lykillinn hafi verið að ég tók þessu ekki það alvarlega, ég setti mér það markmið að fara út og hafa gaman af því að spila með mörgum frábærum kylfingum. Ég var virkilega spenntur fyrir mótinu og náði að halda ró minni inni á vellinum sem ég tel vera mikilvægt. Ég var með hausinn rétt stilltan á alla vikuna sem skóp þennan sigur. Golf snýst að miklu leyti um það hversu sterkan haus þú ert með og það hefur verið einn af mínum veikleikum síðastliðin ár. Það er ekki síður mikilvægt að æfa hugarfarið en það getur komið manni ansi langt að vera með sterkan haus.

Hvað gerir maður til að halda einbeitingu í svona móti?

Ég reyndi að slá eitt högg í einu allt mótið og svo finnst mér gott að hugsa að mikilvægasta höggið í golfi er það næsta ef eitthvað misheppnast. Mikilvægast finnst mér þó að geta slökkt á einbeitingu á milli högga og geta átt skemmtilegan tíma með vinum í golfi.

Eitthvað að lokum?

Ég vil bara þakka öllum þeim sem hafa stutt við bakið á mér allann minn golfferil.

TAKTU ÞÁTT! 5 eða 10 km

Rásmark verður við íþróttamiðstöðina.

Upphitun hefst kl. 12.35 og hlaupið ræst kl. 13.00.

Þátttökugjald er kr. 4.000. Skráning á netskraning.is.

Keppnisnúmer og gögn afhent milli kl. 18 og 20 föstudaginn 6. september í Íþróttamiðstöðinni.

// Nánari upplýsingar á vestmannaeyjahlaup.is

// Skráning hafin á netskraning.is

VESTMANNAEYJAMEISTARI KVENNA Í GOLFI SÓLEY ÓSKARSDÓTTIR

Aldur: 14 að verða 15.

Starf:

Kenna golf.

Menntun:

Er að fara i 10 bekk i GRV.

Hvað hefur þú tekið oft þátt í Meistaramótinu?

Er buin að taka 3 sinnum þátt í mótinu sem krakki og núna í fyrsta skiptið í meistaraflokki.

Hvenær byrjaðiru í golfi?

Byrjaði þegar ég var krakki en byrjaði í alvöru fyrir svona 2 árum.

Hver er þín helsta fyrirmynd?

Mamma og Rory McIlroy.

Hversu oft ertu að æfa? Á hverjum degi helst allan daginn.

Hvað stefniru á í framtíðinni?

Mér langar mjög mikið í háskólagolf.

Hvernig hefur þér gengið í öðrum mótum?

Vel í flestum.

Draumavöllurinn að spila á?

Le Golf National.

Hver er lykillinn að velgegninni um helgina, varstu svona mega gíruð í mótið?

Bara að vera einbeitt úti á velli og hvíla á milli hringja.

Hvað gerir maður til að halda einbeitingu í svona móti?

Bara að hugsa um eitt högg í einu og ekki ofhugsa.

Eitthvað að lokum?

Takk fyrir stuðninginn og allar kveðjurnar.

Blöðrur við tilefni

Afmæli, útskrift, brúðkaupsafmæli eða hvað sem það er getum við haft tilbúnar blöðrur á borðinu fyrir ykkur. Allt til þess að gera ykkar sérstöku stund enn betri.

BÁRUSTÍGUR 11 // S. 481-3060 // GOTT.IS

LEIKFÉLAGS VESTMANNAEYJA

Hæhæ, ég heiti Margrét Steinunn og mér var treyst fyrir því frábæra hlutverki að vera formaður stjórnar Leikfélags Vestmannaeyja. Ég fæ að sjá um það að bera ábyrgð á því sem við í leikhúsinu tökum okkur fyrir hendur. En geri það þó með góðum stuðning frá öðrum stjórnarmeðlimum enda þarf margar hendur til að láta leikfélagið okkar ganga.

Ég hlakka ótrúlega til komandi leikárs með þessari stjórn, ég veit við og meðlimir leikfélagsins munum gera eitthvað magnað saman.

Hæhæ!

Bryndís heiti ég og er ritari félagsins. Ég fékk það yndislega hlutverk að pikka og pota niður allt sem kemur fram á fundum leikfélagsins. Halda utan um fundargerðir og skjöl og svo auðvitað stússast ég í mörgu öðru líka eins og mér er unnt. Leikhúsið er sko aldeilis minn heimavöllur enda hef ég tekið þátt í allskonar sýningum hér bæði á sviði og á bak við það og get ekki beðið eftir því að halda áfram að þjóna leikhúsinu á komandi ári. Ég hlakka til að sjá ykkur á sviði og í salnum sætu!

Back and better then ever ! Ingveldur hér!

Vá hvað ég get ekki beðið eftir því að fá að stússast í tölunum á komandi leikári.

En það er einmitt mit hlutverk sem gjaldkeri í þessari glæsilegu stjórn okkar.

Ég hef lengi verið hluti af Leikfélagi Vestmannaeyja og gegnt allskonar skemmitlegum hlutverkum gegnum tíðina en í bókhaldinu líður mér best, Þar held ég utan um miðasölu, eiðlu og gróða félagsins og allskonar aðra hluti sem halda batterýinu gangandi.

Ég hlakka til að bjóða ykkur öll velkomin í leihúið í ár með bros á vör og leik í hjarta

Hellú !

Jökull heiti ég og er ný kosin vefsíðukall og stemingsstjóri leikfélagsins Vestmannaeyja en eins og starfsheitið gefur til kynna þá sé ég um allt sem tegist heimasíðu félagsins, fréttir og aðrar upplýsingar þar inn á. Ég ætla líka að sjá um að stjórinn hagi sér vel og haldi góðri stemningu í liðinu þetta leikárið. Ég hef unnið að alskonar skemmtilegu með leikfélaginu á seinustu árum og er svakalega sáttur að fá að þjóna leikfélaginu en frekar með þessarti geggjuðu stjórn okkar.

Hlakka til að sprella með ykkru öllum á komandi leikári.

Heyyyy girl heyyyy!

Guðrún Elfa heiti ég, stundum kölluð Glow og hef fengið það glæsilega hlutverk að vera annar helmingur markaðsteimis félagsins og meðstjórnandi í þessari geggjuðu stjórn okkar !

Ég hef fengið að stússast á alskonar hliðum leikúsins á seinasta árinu en við Anna María stefnum á að gefa ykkur geggjaða insýn inn í leikhúsið t.d. Hér á instagram og á öðrum samfélagsmiðlum á komandi leikári.

Ég sé helst um Auglýsinga gerð og framleiðslu myndefnis fyrir Leikfélagið ásamt því að potast í öllu öðru listrænu sem ég næ að troða mér í.

Ég hlakka því til sýna ykkur Allar hliðar leikhúsins á komandi ári, allt það fallega og fjölbreyttar og fáránlega fabjúlus sem leikhúsið hefur upp á að bjóða.

Halló, Arnar Gauti hér!

Ég er aftur mættur í stjórn og nú sem varaformaður Leikfélags! Í

því verkefni fellst alskonar stúss og ábyrgð og verð ég hægri hönd

hennar Margéta okkar !

á seinustu árum hef ég tekið að mér fjölbreytt hlutverk innan félagsins allt frá hló-tækni og leikmyndasmíði yfir í leika og sprell á stóra sviðinu

Halló hæ !

Ég heiti Anna María og er annar helmingur markaðsteimis félagsins á móti Guðrúnu en við ætlum að leifa ykkar að fylgjast með verkefnum félagsins á komandi leik ári.

Ég sé um allskonar auglýsinga stúss og ætla t.d. að vera með TikTokið fyrir ykkur í haust en þar fáið þið að sjá smá af allskonar héðan úr leikhúsinu.

Ég hef fundið mig algerlega í leikhúsinu hingað til og er svo ánægð að fá að stússast með þessari geggjuðu nýju stjórn okkar í allskonar spennandi verkefnum.

Ég hlakka til deila með ykku stuðinu og stemninguni sem leikhúsið hefur upp á að bjóða.

og er ég því spenntur að fá að sjá um leikfélagið í heild með nýrri og framúrskarandi stjórn.

Leikhúsið er staður þar sem allir fá að spreyta sig í alskonar skemmtilegum hlutverkum!

Ég hlakka því til að sjá ykkur með okkur baksviðs, í sæti eða jafnvel á sviði.

SUDOKU

Puzzlemaker is a puzzle generation tool for teachers, students and p more-using your own word lists.

GETUR ÞÚ FUNDIÐ ORÐIN?

derhúfa fata

Stúlka Felixdóttir

Fæðingardagur: 29. júní 2024

Fæðingarþyngd: 2206 g eða 9merkur.

Foreldrar: Felix Örn Friðriksson og Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir.

Drengur Tryggvason

Fæðingardagur: 30. júní 2024. Þyngd: 3378g Lengd: 50 cm.

Foreldrar: Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir.

Systkini: Sigurður Hjálmar Tryggvason og Sædís Lilja Tryggvadóttir.

Andlátstilkynning

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu bæði í blaðið og á vefinn okkar.

Bjóðum einnig upp á uppsetningu og prentun á sálmaskrám.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Tígull 26. tbl 06. árg. by Leturstofan - Issuu