02. tbl. 06. árg. 17. - 24. janúar 2024
JÓI Í LAUFÁSI EYJAMAÐUR ÁRSINS
SKV. LESENDUM TÍGULS
UPPSKRIFT VIKUNNAR
Íslensk kjötsúpa Ríkjandi norðan átt og nístingskuldi hefur ríkt í kortunum undanfarna daga. Þá er fátt betra en íslensk kjötsúpa í kaldan kroppinn. Hráefni: 3 l. vatn 2.5 kg. súpukjöt á beini 400 gr. rófur 400 gr. kartöflur 200 gr. gulrætur 40 gr. hrísgrjón 1 stk. lítill laukur 5 cm. biti blaðlaukur 5 msk. súpujurtir u.þ.b. 2 msk. salt, eftir smekk Svartur pipar eftir smekk Aðferð: Skolið kjötið og setjið loks með vatninu í pott, setjið yfir meðalhita. Gætið að því að halda rétt við suðumark þegar suðan hefur komið upp. Fleytið froðuna og hluta fitunnar sem kemur fyrsta korterið ofan af pottinum. Skerið niður grænmetið eftir smekk. Setjið svo allt saman í pottinn með kjötinu og sjóðið í u.þ.b. 40 mín. Smakkið til með salti og pipar. Uppskrift og mynd fengin að láni á lambakjot.is
TÍGULL
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
JÓHANN JÓNSSON FRÁ LAUFÁSI ER EYJAMAÐUR ÁRSINS Okkur á Tígli finnst vel þess virði að minnast þess sem vel er gert. Frá áramótum höfum við því leitað eftir tilnefningum frá lesendum Tíguls um hver, þeirra mati, á skilið nafnbótina Eyjamaður ársins. Við í Vestmannaeyjum erum svo heppin með íbúa að fjölmargir komu til greina og voru tilnefningarnar úr ýmsum áttum. Þrír aðilar sköruðu þó fram úr og voru nefndir oftar en aðrir. Annar aðilinn sem var áberandi í tilnefningum var Sigurjón Óskarsson fyrir hans uppbyggingu í Vestmannaeyjum með tilkomu Laxey. „Hugsar til komandi kynslóða og samfélagsins“ sagði með einni tilnefningunni. „Það er honum að þakka að það er fólksfjölgun í Eyjum,“ sagði annar.
Ármann Halldór Jensson fékk fjölmargar tilnefningar en hann gladdi börn Eyjanna mikið fyrir jólin í gervi Trölla eða the Grinch. Bauð hann fólki að hafa samband og panta sig í heimsóknir. Ágóðan gaf hann svo, ásamt dágóðri upphæð sem hann safnaði til viðbótar, til Barnaspítala hringsins. Samtals tæpar 700.000 kr. „Jákvæður og vinalegur við alla þrátt fyrir að fá það ekki alltaf sjálfur til baka. Heilsar flestum og vinalegur við krakka í bænum. Hann toppaði svo árið með grinch ævintýrinu sínu og gaf peninginn sem hann fékk út úr því til barnaspítala hringsins sem sýnir bara hversu stórt hjarta hann er með.“ sagði einn um ástæðu tilnefningarinnar. „Vinur vina sinna og sýnir alúð. Fer með gómsæti á Hraunbúðir, skemmtir kertaverksmiðjunni og krökkum hér og þar um bæinn,“ sagði annar. „Fyrir óbilandi vilja til að bæta samfélagið sitt með gleði og góðmennsku“
Öll hefðu þau svo sannarlega átt nafnbótina skilið. Sá sem langflestir tilnefndu hins vegar sem Eyjamann ársins var Jóhann Jónsson frá Laufási. Ég held að það geti allir verið sammála um það að Jói, eins og flestir kalla hann, er svo sannarlega vel að titlinum kominn. Það sést best á ummælunum sem fylgdu tilnefningu hans. Látum við nokkur þeirra fylgja hér að neðan. „Einstaklega duglegur við að halda bænum okkar hreinum og fínum án þess að vera beðin um það“ „Fyrir að hafa allt snyrtilegt hann er allstaðar að passa að allt sé snyrtilegt hvort sem það sé í vinnunni eða sem sjalfboði“
Hann var þó ekki sá eini í fjölskyldunni sem var tilnefndur. Tengdasonur hans, Daði Pálsson, var einnig áberandi. „Fyrir röggsama atvinnuuppbyggingu i Eyjum,“ sagði einn. „Yfirburðamaður í öllu sem snýr að skapandi störfum bæði í sjávarútvegi og húsabyggingum,“ sagði annar. Kona Daða og dóttir Sigurjóns Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir, fékk einnig þónokkrar tilnefningar fyrir framtak sitt í Kubuneh. „Kubuneh verslun og verkefnið allir skipta máli fyrir heilsugæsluna í Kubuneh,“ sagði einn. „Fyrir öll sín góðverk til Kubuneh,“ sagði annar.
„Duglegur að hugsa um Eyjuna okkar“ „Vinnur óeigingjarnt starf í þágu Vestmannaeyjabæjar“ „Hann er bara svo duglegur að laga hér allt i fallega bænum okkar“ „“Góð fyrirmynd í umgengni við náttúru eyjanna Fyrir það frábæra starf sem hann vinnur fyrir bæjarfélagið okkar er til mikils sóma. Hann sést ekki úti á götu öðruvísi en að plokka rusl. Hann á hugmyndina af því að setja
Tígull kíkti á Jóa á heimili hans í Eyjum og færði honum glaðning að launum fyrir tilnefninguna. Mynd af Eyjunum sem á stendur „Jóhann Jónsson er Eyjamaður ársins 2023 samkvæmt lesendum Tíguls.“ Að auk fékk hann blómvönd frá Tígli og gjafabréf í Miðstöðinni frá Miðstöðinni og Tígli uppá 30.000 kr.
jólaskreytinguna upp á hraun. Ég veit ekki hvort að hún hafi bjargast í gosinu eða ný skreyting verið smíðuð. Það sem hann tekur tekur að sér er 100%. “ „Ótrúlegur bæjarstarfsmaður sem lætur sig allt varða við að halda bænum okkar hreinum og fallegum.“ „Þarf varla að koma í orð, sannaðist hversu mikilvægur hann var þegar hann slasaði sig á fæti og var frá allt var í lamasessi á meðan. Litlu hlutirnir sem skipta samt svo miklu máli sem hann sér um bæði á og ekki á, launum.“ „Hjálpar fólki sem á erfitt um jólin. Duglegir ad halda bænum hreinum. Alltaf að hjálpa ÍBV.“ „Maðurinn á bak við tjöldin þ. e. Þjóðhátíð þrettándinn og fegrar bæinn okkar á allan hátt“
„Þvílíkur fagmaður og dugnaðarforkur fyrir bæinn okkar. Hann fer í öllum veðrum og dögum og græjar það sem þarf að gera.“ „Fyrir áratuga ást fyrir eyjunni okkar“ „Hann er af öðru stigi í ósérhlífni. Áfram Jói“ „Á það svo sannarlega skilið“ „Endalaust duglegur og sinnir starfi sínu langt umfram það sem hann fær greitt fyrir. Alltaf með græjur í bílnum sínum til hvers kyns smá verka, sópa glerbrotum af götum og gangstéttum sem og öðru rusli. Algjörlega til fyrirmyndar og mikil hvatning fyrir okkur hin að hafa snyrtilegt í kringum okkur.“ „Þekki ekki duglegri mann“ „Harðduglegasti Eyjamaður síðustu
áratuga sem veigrar sér ekki í þjónustu við samfélagið okkar. Eigum honum svo margt að þakka í umhverfinu okkar.“ „Okkur öllum góð fyrirmynd.“Því hann á það svo sannarlega skilið. Maðurinn hugsar um eyjuna á öllum tímum, meðal annars þegar hann á frí. Þá er hann mættur að tína rusl eða laga hluti. Vestmannaeyjar eru heppnar að hafa þennan öðling“ „Fer ekki mikið fyrir Jóa en bærinn okkar er fallegri fyrir hans verk“ Tígull óskar Jóa í Laufási innilega til hamingju með tilnefninguna sem hann á svo sannarlega skilið. Þá þökkum við einnig þeim fjölmörgu sem sendu inn tilnefningar en alls bárust tæplega 300. Það er því nokkuð ljóst að lesendur kunna að meta að fá að taka þátt í valinu og munum við því örugglega endurtaka leikinn að ári.
NÝTT FLOKKUNARKERFI Á SORPI Í VESTMANNAEYJUM Síðan árið 2011 hafa Eyjamenn flokkað sorp sitt í þrjá flokka; almennt sorp, endurvinnanlegt og lífrænt. Í ár verður smávægileg breyting þar á þegar flokkunum verður fjölgað í fjóra. Megin breytingin við flokkunina er að aðskilja þarf pappa og plast í sitthvora tunnuna. Samkvæmt nýju flokkunarkerfi verður fjórum úrgangsflokkum safnað við hvert heimili. Flokkað verður í eftirfarandi flokka: Matarleifar, Pappír og pappi, Plastumbúðir og Blandaður úrgangur. Almennt er gert ráð fyrir að við hvert heimili verði ein tunna fyrir plastumbúðir, ein fyrir pappír og pappa og tvískipt tunna fyrir almennt sorp og matarleifar. Ruslatunnurnar verða merktar með samræmdum merkingum sem munu gilda fyrir alla flokkun á Íslandi. Allar tunnurnar fá því nýjar límmiða merkingar. Ekki þó reiknað með að allar tunnurnar verði endurnýjaðar við þetta. „Nei, við flest heimili þá verður brúna tunnan fjarlægð og tvískipt sett í staðinn. Núverandi almenna tunna verður þá endurvinnslutunna,“ sagði Brynjar Ólafsson, framkvæmdarstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar í samtali við Tígul nú í vikunni. En þessar breytingar eru gerðar til að uppfylla lög, nr. 103 frá árinu 2021. LÍTILSHÁT TAR HÆKKUN Á SORPGJÖLDUM Aðspurður hvort íbúar komi til með að þurfa greiða sérstaklega fyrir nýju tunnurnar sagði hann bæinn skyldugan til þess innheimta gjöld fyrir þær samkvæmt lögum. Verða þau innheimt í gegnum sorphirðugjöld en þau, sem og sorpeyðingargjöld vegna sorps frá heimilinum eru innheimt með fasteignagjöldum líkt og gert hefur verið. Fyrir árið 2023 voru gjöldin samanlagt rúmar 69 þús.
Brynjar Ólafsson, framkvæmdarstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs.
kr. og fyrir árið 2024 verður þau 71. þús. kr. „Tunnurnar eru komnar til Eyja en ég bíð eftir að tvískiptur sorpbíll komi til Eyja svo hægt sé að keyra tunnunum út,“ sagði Brynjar þegar hann var spurður hvenær þessar breytingar ganga í gegn. Málmar og gler eru hinsvegar ekki lengur velkomnir í heimilissorpið og þarf að losa það sérstaklega á grenndarstöðvum eða á móttökustöð upp á hrauni. „Til stendur að koma upp tveimur nýjum grenndarstöðvum. Ein á Tangagötu vestan við Krónuna og önnur í botnlanga milli Eyjahrauns 1 og Eyjahrauns 3. Munu þær verða auglýst betur síðar,“ sagði Brynjar.
GREIT T FYRIR ALMENNT SORP Á MÓTTÖKUSTÖÐ Breytingar eru einnig væntanlegar á móttökustöð sorps og þá sér í lagi á gjaldskrá. „Vestmannaeyjabær hefur til þessa borgað með móttöku á gjaldskyldum úrgangi skv. gjaldskrá. Þessi kostnaður hefur hlaupið á tugum milljóna ár hvert. Þetta hefur verið greitt með útsvari íbúa í Vestmannaeyjum í stað þess að sá sem hendir þurfi að borga fyrir það. Samkvæmt lögum hefur Vestmannaeyjabær ekki heimild til að greiða með þessu lengur og frá og með 1. febrúar verður það því í höndum þeirra sem henda ruslinu að greiða fyrir það samkvæmt gjaldskrá hverju sinni,“ sagði Brynjar og bætti við. „Kostnaður vegna móttökusvæðis hefur ekki verið
2.grein Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar hefur ákveðið að innheimt verði árgjald fyrir hvert ílát á heimili eftir eftirfarandi gjaldskrá: Sorpgjöld á heimili Árgjald inn í þeim gjöldum sem- breytilegt innheimt gjald eru með fasteignagjöldum heldur 240L Blandaður og lífrænn úrgangur, tvískipt 22,500 kr hafa verið greidd sérstaklega af 120L Blandaður úrgangur 20,500 kr útsvarstekjum.“ 240L Blandaður úrgangur 29,500 kr Sorpútboð er áætlað í lok janúar330L og verður gjaldskrá móttökuBlandaður úrgangur 40,600 kr stöðvarinnar væntanlega 660L Blandaður úrgangur endur81,200 kr skoðað í kjölfar útboðsins, enda 120L Lífrænn úrgangur 11,200 kr á gjaldskráin eingöngu að endurspegla raunkostnað við móttöku, 240L Lífrænn úrgangur 22,350 kr förgun og flutning sorps.“ Brynjar 330L Lífrænn úrgangur 30,800 kr tók þó skýrt fram að ekki verður 660L Lífrænn úrgangur 61,500 kr rukkað fyrir losun á endurvinnan120L Pappi plast 10,400 kr legum efnumeða eins og t.d. pappa, plasti, raftækjum, hjólbörðum og 240L Pappi eða plast 14,900 kr málmi. 330L Pappi eða plast 20,500 kr Til stóð og stendur enn að 660L Pappi eða plast 41,000 kr halda íbúafund þar sem þessarÖnnur breytingar En gjöldverða vegnakynntar. meðhöndlunar úrgangs ákveðið var aðmeira frestaenhonum fram Skrefagjald, 15 metra frá sorphirðubíl 50% álag pr. yfir útkeyrslu á nýju tunnum og (frá 1.9.2024) tunnu komin smá reynsla á nýja kerfið. Breytingakostnaður við ílát (frá 1.9.2024) 4,000 kr Þá geta íbúar tekið saman reynslu ogEndurnýjunargjald spurningar sem vakna inn15,000 kr tunnuvið 240L með flutningi á leiðinguna staðfang og mætt á fundinn til aðAukahirðing fá svör við þeim. v. óviðunandi flokkunar eða 6,500 kr frágangs. TILTEKT Í JANÚAR? Það er því nokkuð ljóst að það Tvískiptu tunnurnar eru komnar til Eyja en verður ekki dreift strax þar sem beðið er eftir Auk þess hefur ákveðið og margborgar sig bæjarstjórn að vanda sig vel að fast gjald fyrir rekstur grenndar- og móttökustöðva tvískiptum bíl sem getur tæmt þær. við flokkun þess að sitja upp kr. fyrir heimili. annan fastantil kostnað verði 18.700 með sem minnst af „almennu“ En það er þó ekki fyrr en eftir 1. í geymslunni og bílskúrnum og sorpi því greiða þarf fyrir förgun á febrúar. Ættu því bæjarbúar allir henda sem mestu fyrir þann tíma. 3.grein því á móttökustöð. að nýta tækifærið og taka vel til Það gæti margborgað sig. Móttöku- og urðunargjald rekstraraðila á móttökustöð: Heiti Óflokkaður blandaður rekstrarúrgangur Blandaður Rekstrarúrgangur Lífrænn úrgangur
Ólitað timbur Litað timbur Óvirkur úrgangur (urðun) Endurvinnsluefni Garðaúrgangur Annað Spilliefni Sóttmengaður úrgangur Öll verð eru án VSK
pr/m3 35.974 kr. 23.987 kr. 6.539 kr.
6.539 kr. 10.898 kr. 6.539 kr. 0 kr. 0 kr.
Skýring Óflokkaður úrgangur, t.d. lífrænn úrgangur blandaður rekstrarúrgangi. Almennt sorp, spillt endurvinnsluefni Ómengaður lífrænn úrgangur (ekkert plast eða utanaðkomandi, sláturúrgangur er undanskilinn v/beina) Bretti, ómálað timbur Gagnavarið, málað, spónlagt o.fl.
Gler, jarðvegur, steypubrot Pappi, plast, hjólbarðar, málmar, landbúnaðarplast,raftæki Gras, trjágreinar,lauf Skv tilboði. Skv. gjaldskrá móttökustöðva (Efnamóttakan) Skv tilboði Núverandi móttöku- og urðunargjald rekstraraðila á móttökustöð.
Heimilt er að innheimta kostnað vegna umfram meðhöndlunar á úrgangi frá úrgangshafa, gjöld vegna þessa skulu ekki vera hærri en sem nemur raunkostnaði vegna umfram meðhöndlunar. Undanþegin magngjaldtöku eru bifreiðar sem bera úrvinnslugjald. Ath. ekki er tekið á móti
Ástkær bróðir okkar Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs sonar okkar, bróður, frænda og vinar
ÁRNA SIGURÐAR PÉTURSSONAR Pétur Árnmarsson Anna Sigríður Ingimarsdóttir Katrín Ósk Pétursdóttir Aron Steinar Pétursson frændsystkini og vinir
HÖRÐUR GÍGJA Bröttugötu 14 Vestmannaeyjum andaðist 30 desember sl. Jarðsett verður í kyrrþey. Kristjana Gígja Kjartan Guðbjartsson Davíð H Gígja Elínborg Ragnarsdóttir Geir Gígja Susan Perez Friðrik Gígja Jenný Elfa Árnadóttir
Andlátstilkynning Minningargrein Sálmaskrá Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu bæði í blaðið og á vefinn okkar. Bjóðum einnig upp á uppsetningu og prentun á sálmaskrám.
900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is // s. 481 1161 leturstofan
leturstofan
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, fósturföður, tengdaföðurm, afa og langafa
ÓLAFS TRYGGVASONAR málarameistara Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum fyrir einstaka alúð og umönnun. Júlía Tryggvadóttir Tryggvi Þór Ólafsson Brynhildur Baldursdóttir Sigurður Ómar Ólafsson Sædís Steingrímsdóttir Linda Björk Ólafsdóttir Hjalti Jónsson Þórhildur Ólafsdóttir Jonathan R. Glenn Tryggvi Már Sæmundsson Arnbjörg Harðardóttir barnabörn og barnabarnabörn
Auglýsingasími Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is
Vantar þig fyrirbæn?
Hafðu samband í síma 861-4848 betel@simnet.is Viltu biðja með öðrum? Sambæn hvern miðvikudag í hádeginu Hvítasunnukirkjan Vestmannaeyjum
Er janúar þinn skoðunarmánuður? Frumherji verður í Eyjum vikuna 22. - 25. janúar - Allar stærðir bíla -
Opnar kl. 13:00 á fyrsta degi og lokar kl. 12:00 á síðasta degi (lokað í hádeginu kl 12:00-13:00) Fundir eru sem hér segir:
Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30
AL-ANON
Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI
Tímapantarnir í síma 570 9090
(Stöðvarstjóri Jónas, 570 9128) Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarfélagsins.
3
6
4
8
7
5
ÞRAUTIR
Difficulty: easy
8
Get new sudokus at https://sudoku.cba.si/
#26506
3 4
9
6
8
9
3
1 7
5
3
2 7
8
5
4 1
3
9
7
6
#94052
6
8 1
2
7
6 5
1
2
4
4
2
3
8 9
1
6
7
5
2 2
Difficulty: hard
5 1
7
3
1
1
#134886
7
8
4 Name:
Created with TheTeachersCorner.net Word S Difficulty: hard
Difficulty: moderate
#214912 mánuðir
V
E
K
S
U
D
R
P
G
N
Q
S
O
S
S
P
T
N
I
H
G
P
O
D
E
A
B
F
C
D
B
V
M
A
R
S
X
R
B
D
X
I
G
C
Ú
Q
E
Q
P
U
Z
U
S
H
M
W
Q
M
K
N
V
R
B
R
H
M
F
R
N
M
R
E
B
M
E
S
E
D
F
Ó
X
D
B
Q
T
W
T
Z
R
O
Y
E
Y
P
T
O
F
I
B
V
U
E
T
B
U
P
V
J
V
K
J
A
N
Ú
A
R
G
R
K
E
F
B
M
H
I
T
I
U
W
T
B
U
Z
P
L
W
T
U
G
M
C
G
U
A
Z
R
D
J
S
Ó
G
O
Z
P
H
P
Q
P
O
B
Y
S
R
K
Í
X
D
Ú
H
B
V
G
A
X
P
X
D
F
U
E
D
E
K
U
L
C
G
T
E
E
C
L
E
P
C
A
B
Y
V
R
O
L
V
O
Ú
Á
V
B
X
R
E
B
M
E
T
P
E
S
E
E
Q
A
M
T
J
E
Q
F
Z
A
B
U
K
U
F
R
C
C
G
P
O
Y
Y
I
O
P
I
J
M
X
H
A
L
W
U
Í
T
R
P
R
R
B
T
F
I
U
M
J
N
O
B
H
L
H
Y
L
C
C
D
R
T
S
X
D
Y
J
Ú
N
Í
O
X
K
L
H
R
S
U
F
O
Z
JANúAR JANÚAR MARS FEBRÚAR MAíMARS JúLí SEPTEMBER
APRÍL MAÍ JÚNÍ
Can't solve it? Check the solution at https://sudoku.cba.si/
4
FEBRúAR JÚLÍ APRíLÁGÚST JúNí SEPTEMBER áGúST OKTóBER
OKTÓBER NÓVEMBER DESEMBER
Hægt er að kaupa miða og velja sæti á eyjabio.is FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR
KL. 20.00 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR
KL. 15.00 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR
KL. 15.00
KL. 20.00
Vilt þú vera með okkur í liði?
Rekstrarstjóri í Vestmannaeyjum Húsasmiðjan leitar að metnaðarfullum leiðtoga til að reka verslun okkar í Vestmannaeyjum. Við leitum að einstaklingi sem brennur fyrir þjónustu og fólki, er söludrifinn og hefur jákvætt hugarfar. Megin ábyrgð rekstrarstjóra er rekstur verslunar, skipulag og stýring á daglegri starfsemi sem og að vinna að því alla daga, ásamt flottum hópi starfsfólks, að veita viðskiptavinum okkar frábæra þjónustu. Húsasmiðjan er leiðandi á byggingavörumarkaði og er með sterk og vönduð vörumerki. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir réttan aðila til að vera þátttakandi í frekari uppbyggingu á örum og spennandi markaði.
Helstu verkefni: • Skipulagning og ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri • Bein söluráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini ásamt tilboðsgerð • Sköpun og eftirfylgni viðskiptasambanda • Umsjón með innkaupum og birgðahaldi • Umsjón með starfsmannamálum • Stuðla að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi
Menntunar- og hæfniskröfur: • Stjórnunarreynsla og hæfni til að leiða fólk til árangurs • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni • Góð þekking á verslunarrekstri og á byggingavörum • Reynsla af sölustörfum og sölustjórnun • Menntun sem nýtist í starfi • Góð íslensku- og enskukunnátta
Gildin okkar Áreiðanleiki Þjónustulund Skannaðu kóðann og skoðaðu starfið Þekking Við hvetjum öll áhugasöm til þess að sækja um, óháð kyni. Nánari upplýsingar um starfið gefur Guðrún Tinna framkvæmdastjóri verslanasviðs á tinna@husa.is Sótt er um á ráðningarvef Húsasmiðjunnar
www.husa.is/laus-storf.
Umsóknarfrestur til 28. janúar 2024
Við leggjum ríka áherslu á liðsheild og góð samskipti og í Húsasmiðjunni ríkir skemmtilegur og líflegur starfsandi. Starfsmannafélag Húsa- smiðjunnar er mjög öflugt og stendur fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum uppákomum yfir árið.
Framúrskarandi fyrirtæki 2017-2023