

MAMMA PRJÓNAÐI HANDA MÉR KJARVALSPEYSU
Ágúst Halldórsson hefur brallað ýmislegt og oft margt sem varla er hægt að segja frá í fjölmiðlum, þess vegna var ekki annað hægt en að taka stöðuna á vin okkar.
Hvað stóð upp úr á árinu 2024 ? Það sem stóð mest upp úr árinu var þegar mamma prjónaði handa mér Kjarvalspeysu. Einnig fórum við fjölskyldan til Tenerife með Möttu í sjötugs afmælisferð þó flestir héldu að hún væri ekki deginum eldri en sextíu.
Síðan stóð það líka uppúr þegar ég datt af hjólinu mínu á leið niður Sæfell. Pissaði blóði og fór á spítala, settur í skanna og greindist þar með eitthvað á vinstra nýranu sem kom seinna í ljós að væri illkynja æxli. Fór í aðgerð. Og allt í toppstandi. Borgar sig stundum að meiða sig.
Hvaða lag hlustaðir þú oftast á árið 2024?
Miðað við Spotify þá segja þeir BACK TO ME með Kanye West. Og sú hljómsveit sem ég hlustaði mest á var Oasis.
Hvað finnst þér ómissandi að gera alltaf á gamlársdag/kvöld?
Að ná eins mörgum drykkjum niður frá sjö, hálf átta til miðnættis því kl. 23:59 legg ég Bakkus á varamannabekkinn fyrstu þrjá mánuði ársins. Sem ég hef staðið við samviskusamlega í fjölda ára, en konan mín hefur tvisvar keypt miða á handboltamótin HM og EM
TÍGULL
DREIFING:

en þá hef ég bara breytt þessu í Tryggva Más lífstílinn og leyfi mér þá í útlöndum.
Hvað gerðir þú um áramótin? Við fjölskyldan vorum upp í Stóragerði hjá Sævaldi og Fjólu. Þar er yfirleitt mikið um manninn. Þrjátíu, fjörtíu manns að meðaltali.
Hvað var í matinn á gamlárskvöld? Það er allt sem hægt er að ímynda sér. Humar, naut, kalkúnn, önd og svo Irish í eftirrétt.
Strengir þú eitthvað áramótaheit? Ég gerði það í fyrra. Þá ætlaði ég
að prufa MDMA á árinu en það klikkaði svo ég setti mér annað í ár og það er að baka súrdeigsbrauð með eigin súrdeigsmóður.
Hvernig leggst nýja árið í þig? Ekkert eðlilega vel. Rikki tengdapabbi er hættur að drekka og stendur sig með prýði og ætlum við að fara með honum til Englands á leik með Leeds, peyjarnir í fjölskyldunni. Hvort hann sé kominn í Tryggva Más lífsstílinn eða alveg hættur kemur svolítið í ljós þá. Einnig verð ég fertugur á árinu og ætla ég að fara eitthvað með eiginkonunni út í heim.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Spennandi ferðir út í heim 2025
Marokko jeppaferð 13.-20. apríl. Páskaferð. Sahara eyðimörkin, Atlasfjöll, fornar borgir. Aðrar dagsetningar í boði.
Georgía og Armenía 15.-25. maí. Spennandi menningarheimur, náttúra, saga og menning.
Sardinía/Korsika 15.-25. maí. Hin fjöllótta og fagra eyja Napoleons, Sardinía, forn menning, horfið aftur í tíma og rúmi. Einnig miðaldaborgin Riga í Lettlandi
Portúgal 6.-17. júlí. Spennandi ferð til Portúgal, landsins sem hefur verið valið sem einn besti áfangastaður Evrópu fyrir ferðamenn seinustu þrjú ár. Saga, sveitir og fagrar fornar borgir. Gönguferð um Kákasusfjöll Georgíu 14.-27. júní. Ævintýraleg gönguferð, stórfengleg náttúra og ævaforn menning.
Balkanskaginn 2.-15. júní. Serbia, Svartfjallaland, Króatía og Bosnía. Miðaldaborgir, náttúra og saga.
Albania 12.-25. júní. Menning, náttúra og stórbrotin saga. Óspillt land, ævintýraleg upplifun.
Uzbekistan og Kazakstan 4.-19. september. Framandi heimur mið-Asíu, saga, menning og náttúra. Silkivegurinn, glæsihallir, framandi markaðir og líf hirðingjanna.
Malta og Sikiley 15.-28. september. Menning, náttúra og mannlíf. Við siglum milli eyjanna.
Tyrkland 5.-18. sept. Evrópa og Asía mætast í Istanbúl. Einstök menning, saga og náttúra
Sameinuðu Arabísku furstadæmin og Oman 9.-26. október. Ævintýraleg ferð um framandi menningarheim. Hallir, virki, eyðimörkin, markaðir, moskur. Þúsund og ein nótt.
Costa Rica 5.-19. október. Stórkostleg náttúra, ævintýralegir frumskógar, strendur, fossar, fjöll og heimamenn.
Sardinía/Korsika 15.-21. maí og Portúgal 6.-17. júlí







Síðumúli 29 - 108 Reykjavík | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Sælkeri vikunnar
PÉTUR STEINGRÍMSSON

Pétur Steingrímsson, til hægri, er sælkeri vikunnar og býður uppá þorskhnakka með döðlupestói. Með honum á myndinni er Gunni kótilettukokkur eins og Pétur kallaði hann.
Já takk, ég tek glaður áskorun Tíguls að birta hér eina af mínum uppáhalds mataruppskriftum og um leið þakka ég traustið sem ritstjórnin á blaðinu hefur á mér. Það er ekkert leyndarmál að ég er mikill áhugamaður um matreiðslu en mestur er áhuginn og ununin í að borða matinn ef hann er rétt eldaður og góð sósa og meðlæti fylgi með. Svo hef ég í gegnum árin safnað mataruppskriftum og ef ég rekst á góða uppskrift þá glaðnar yfir mínum. Ég held að ég eigi um 60-70% af þeim uppskriftum sem komu í Eyjafréttum á sínum tíma þ.e. þegar þeir voru með matgæðing vikunnar í blaðinu. Það hefur oft komið sér vel að hafa í gegnum árin safnað þessu saman þegar mikið liggur við.
Ég var í fyrstu ákveðinn að bjóða upp á kótilettur í raspi eftir uppskrift frá Gunna okkar kótilettukokk en hugsaði sem
svo að það gengi ekki upp. Ég gæti ekki boðið upp á það að reyna að elda kótilettur þó það væri eftir uppskrift hans því ég veit að það fer enginn í skóna hans í þeim málum. Við mætum bara á Kótilettukvöldið okkar og fáum þær bestu þar. Í staðinn ætla ég að bjóða upp á uppskrift af þorskhnökkum með döðlupestó, frábær uppskrift og auðveld fyrir alla að prófa og ekki skemmir að úr verður veisluréttur. Eina sem þarf að passa er að elda hann ekki of lengi, fátt er verra en þurr og ofeldaður fiskur. Uppskriftin er komin að mig minnir frá matráði Samherja.
Mig langar að skora á hann
Guðmund Jóhann á Haukabergi að vera númer tvö í þessum áskorendaleik og koma með eina góða uppáhalds mataruppskrift, ég veit og hef reynslu af því að hann er listakokkur.
ÞORSKHNAKKAR
MEÐ DÖÐLUPESTÓ
Það sem þarf:
1 stór sæt kartafla
2 rauðar Romero paprikur
Sjávarsalt
Svartur pipar
1 krukka fetaostur
1 krukka grænt pestó
2/3 bolli salthnetur
10-15 döðlur
1 kg. þorskhnakki/flök best að hafa bitana sem jafnasta þá verður eldunin góð og jöfn.
Aðferð:
Afhýðið sæta kartöflu og skerið í um 1 c.m þykkar sneiðar. Kljúfið Romero paprikurnar og fræhreinsið þær og skerið í nokkuð stóra bita, um 2-3 cm. Smyrjið eldfast mót með 2 msk af olíu af fetaostinum. Raðið sætum kartöflum í botninn á mótinu og dreifið paprikunum yfir ásamt sjávarsalti og svörtum pipar. Eldið í ofni við 200 gráður í 20 mínútur og útbúið döðlupestó á meðan.
Döðlupestó útbúið:
Hellið olíu af fetaosti og setjið hann í skál og stappið örlítið með gaffli þannig að teningarnir verði smærri.
Blandið grænu pestói saman við fetaostinn ásamt salthnetunum og smátt skornum döðlunum.
Raðið þorskstykkjunum ofan á sætu kartöflurnar og paprikunar. Smyrjið 2-3 matskeiðum af döðlupestó yfir hvert þorskstykki þannig að fiskurinn verði alveg þakinn pestói.
Lækkið hitann á ofninum í 180 gráður og eldið fiskinn í 20 mínútur. Passið að elda fiskinn ekki of lengi, ofeldaður fiskur verður þurr og óspennandi.
Berið fram með fersku salati og jafnvel einhverju góðu brauði.
Verði ykkur að góðu.
Er janúar þinn skoðunarmánuður?

Frumherji í Eyjum
vikuna 27. - 30. janúar
Tímapantanir í síma 570 9090
Faxastígur 38
Lokað í hádeginu

Óskað er eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2024
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2024. Frestur til tilnefninga er til miðnættis sunnudaginn 2. febrúar nk. og þær skal senda á netfangið: menntaverðlaun@sudurland.is.
Veitt verður viðurkenning sem og peningaverðlaun. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu SASS: sass.is.



ÍÞRÓTTAFÓLK ÍÞRÓTTABANDALAGS VESTMANNAEYJA 2024
Miðvikudaginn 8. janúar fór fram viðurkenningarhátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja. Oliver Heiðarsson knattspyrnumaður var útnefndur Íþróttamaður Vestmannaeyja 2024, Andri Erlingsson íþróttamaður æskunnar 16-19 ára og Kristín Klara Óskarsdóttir íþróttamaður æskunnar 12-15 ára.
Landsliðsfólkið okkar var heiðrað, en ÍBV átti 16 leikmenn sem spiluðu landsleiki á árinu og 2 þjálfara sem stýrðu landsliðum. Ásamt þeim voru Lengjudeildarmeistarar mfl kk í fótbolta, Íslandsmeistarar í 6. fl. kk yngra ár í handbolta og bikarmeistarar 4. fl. kvk í handbolta heiðruð.

Íþróttamaður æskunnar árið 2024 Yngri- Kristín Klara Óskarsdóttir og eldri- Andri Erlingsson. Íþróttamaður Vestmannaeyja árið 2024 Oliver Heiðarsson.
Fimleikafélagið Rán: Tinna Mjöll Frostadóttir
Kynnir: Kristín Ósk Óskarsdóttir
Golfklúbbur Vestmannaeyja: Kristófer Tjörvi Einarsson
Íþróttamaður æskunnar yngri
Efnilegust: Sóley Óskarsdóttir
Kynnir: Sigursveinn Þórðarson
ÍBV íþróttafélag:
Handbolti: Elmar Erlingsson og Marta Wawrzynkowzka
Fótbolti: Vicente Valor og Natalie Viggiano
Kynnir: Ellert Scheving Pálsson
Íþróttafélagið Framherjar Smástund/KFS: Hallgrímur Þórðarsson
Kynnir: Óðinn Sæbjörnsson
Íþróttafélagið Ægir:
Eldri: Róbert Agnar Guðnason
Yngri: Birgir Rúnar Júlíuson
Kynnir: Sylvía Guðmundsdóttir
Skotfélag Vestmannaeyja: Marcin Wanecki
Kynnir: Hörður Snær Færseth Péturson
Sundfélag ÍBV: Bjartey Ósk Sæþórsdóttir
Kynnir: Ragnheiður Reynisdóttir
Íþróttamaður æskunnar árið 2024
Yngri- Kristín Klara Óskarsdóttir
Eldri- Andri Erlingsson
Íþróttamaður Vestmannaeyja árið 2024
Oliver Heiðarsson

Handbolti: Elmar Erlingsson Kynnir: Ellert Scheving Pálsson

Íþróttafélagið Framherjar Smástund/KFS:Hallgrímur Þórðarsson
Kynnir: Óðinn Sæbjörnsson

Sundfélag ÍBV: Bjartey Ósk Sæþórsdóttir

Fimleikafélagið Rán: Tinna Mjöll Frostadóttir

Íþróttafélagið Ægir: Róbert Agnar Guðnason og Birgir Rúnar Júlíuson.
Kynnir: Sylvía Guðmundsdóttir.

Skotfélag Vestmannaeyja: Marcin Wanecki
Kynnir: Hörður Snær Færseth Péturson

Íslandsmeistarar í 6. flokki yngri í handbolta.
Íþróttabandalag Vestmannaeyja heiðraði líka nokkra einstaklinga fyrir þeirra störf í þágu íþrótta í Eyjum með gull og silfurmerki auk þess sem Sigurður Georgsson fékk sérstaka viðurkenningu fyrir sitt framlag í þágu íþróttanna. Þeir sem hlutu silfurmerki að þessu sinni voru: Drífa Þöll Arnardóttir, Elías Jörundur Friðriksson, Súsanna Georgsdóttir, Unnar Hólm Ólafsson og Óðinn Kristjánsson. Gullmerki hlutu Arnar Andersen, Gunnar Andersen, Klara Tryggvadóttir og Magnús Þorsteinsson.
Silfur
Heiðursmerki IBV úr silfri hafa verið veitt frá árinu 1970 þeim einstaklingum sem hafa unnið vel og dyggilega fyrir íþróttahreyfinguna í áratug eða lengur.
Í ár þökkum við eftirtöldum einstaklingum fyrir óeigingjarnt starf og dygga þjónustu fyrir íþróttahreyfinguna og veitum þeim silfurmerki IBV.
Þau eru:
Drífa Þöll Arnardóttir
Elías Jörundur Friðriksson Óðinn Kristjánsson
Unnar Hólm Ólafsson
Súsanna Georgsdóttir
Gull
Þá er næst heiðursmerki ÍBV úr gulli sem er næst æðsta heiðursviðurkenning Íþróttabandalags Vestmannaeyja. Við veitingu gullmerki ÍBV skal tekið mið af því að sá sem veita á merkið hafi áður verið veitt silfurmerki ÍBV og hafi staðið í forustusveit íþróttamála í Vestmannaeyjum og unnið þeim vel og dyggilega.
ÍBV og þau eru:
Arnar Andersen
Gunnar Andersen
Klara Tryggvadóttir Magnús Þorsteinsson.
Heiðursskjöldur
Árið 1994 var byrjað að heiðra einstakling sem með starfi sínu og rækt við íþróttir í Vestmannaeyjum þótti skara fram úr. Í ár hlaut Sigurður Georgsson heiðursskjöldin en Sigurður hefur starfað dyggilega fyrir íþróttahreyfinguna í Vestmannaeyjum um áraraðir. Sigurður starfaði lengi vel fyrir Knattspyrnufélagið Týr, þar sat hann í stjórn árið 1984 og var varaformaður félagsins árin 1985 og 1986. Sigurður var einn þeirra sem kom að stofnun Tommamótsins og vann í kringum mótin í fjölda ára. Sigurður sat í Þjóðhátíðarnefnd fyrir Týr.
Það má með sanni segja að Sigurður sé stór hlekkur í keðju Þrettándagleðinnar. Siguður hefur starfað í kringum þrettándann í 58 ár. Geri aðrir betur. Hann hefur komið nálægt öllu sem tengist þrettándanum en þó aðallega brennunni. Siggi er vel að þessum heiðri kominn.
Árið 2003 var byrjað að tilnefna Íþróttamann æskunnar og hefur valið verið í höndum valnefndar
ÍBV. Í ár verða valdir Íþróttamenn æskunnar eldri 1619 ára og Íþróttamenn æskunnar yngri 12-15 ára, sem þótt hafa skara fram úr í íþrótt sinni og framkomu.
Íþróttamaður æskunnar yngri
Kristín Klara Óskarsdóttir.
Kristín Klara stóð sig frábærlega á árinu. Hún leggur stund á bæði fótbolta og handbolta. Hún tók stórt skref síðasta sumar þegar hún lék 15 leiki með meistaraflokki kvenna í fótbolta. Kristín Klara varð einnig bikarmeistari með 4.flokki kvenna en þær tóku einnig silfur á Íslandsmótinu. Kristín Klara er frábær fyrirmynd. Dugleg stúlka sem æfir af kappi.
Íþróttamaður æskunnar eldri
Andri Erlingsson
Andri tók stórt stökk á þessu ári, hann er að stimpla sig inn sem gildandi leikmaður í meistaraflokki í handbolta. Hann hefur staðið sig frábærlega á yfirstandandi tímabili og í október var hann valinn besti sóknarmaður deildarinnar samkvæmt allri tölfræði hb statz. Andri er frábær fyrirmynd fyrir alla unga iðkendur. Andri lifir heilbrigðum lífstíl og æfir vel. Andri kláraði svo árið með því að spila með U-19 ára landsliði Íslands í handbolta á Sparkassen Cup í Þýskalandi þar sem liðið tók silfur.
Íþróttamaður Vestmannaeyja 2024 Byrjað var að tilnefna Íþróttamann Vestmannaeyja árið 1978 en valið hefur verið í höndum ÍBV bandalags frá árinu 1982. Íþróttamaður Vestmannaeyja þarf til að bera að hafa skarað fram úr í íþrótt sinni og með framkomu verið öðrum til fyrirmyndar. Íþróttamaður Vestmannaeyja 2024 er Óliver Heiðarsson, knattspyrnumaður.
Oliver átti frábært ár. Hann var lykilmaður í liði ÍBV sem vann Lengjudeildina í haust. Hann var markahæsti leikmaður deildarinnar með 14 mörk og var valinn besti leikmaður deildarinnar. Oliver er frábær fyrirmynd fyrir unga iðkendur félagsins, harð duglegur leikmaður sem gefst aldrei upp. Hann kjarnar hvað það er að vera ÍBV-ari, barátta og gleði. Oliver vakti verðskuldaða athygli erlendis og fór á reynslu til enskra stórliða í lok ársins.
Gunnar Páll formaður stjórnar Íþróttabandalag Vestmannaeyja lokaði kvöldinu með þessum orðum: „Ég vil þakka sérstaklega öllum þeim sjálfboðaliðum sem leggja sitt að mörkum til íþróttastarfs hér í eyjum sama hvaða íþrótt um ræðir. Það er hægt að segja með hreinni samvisku að án ykkar væri þetta ekki hægt. Íþrótta og æskulýðsstarf hefur löngu sannað sig sem ein af betri forvörnum þegar kemur að uppeldi og þroska hvers barns. Til ykkar íþróttaiðkendur sem hér eru og þá sérstaklega til þeirra sem eldri eru vil ég hvetja ykkur til þess að vera góðar fyrirmyndir fyrir þau yngri. Hvetjið þau áfram við hvert tækifæri, hrósið og sýnið áhuga. Þið sem eldri eruð gerið ykkur ekki grein fyrir því hvað yngri krakkarnir líta mikið upp til ykkar og hversu mikil áhrif ykkar hegðun og viðhorf hefur á þeirra lærdóm og þroska.“

Íslandsmeistarar í 6. flokki yngri í handbolta.

Lengjudeildarmeistarar mfl. kk. í fótbolta.

Bikarmeistarar 4. fl. kvk í handbolta heiðraðar.

Þau voru sæmd silfurmerki ÍBV.

Sigurður Georgsson hlaut heiðursskjöldinn Gunnar Páll Hálfdánsson afhenti honum skjöldinn.

Þau voru sæmd gullmerki ÍBV.

Stjórn Íþróttabandalags Vestmannaeyja: Björn Matthíasson gjaldkeri, Arnheiður Pálsdóttir ritari, Helga Sigrún Þórsdóttir varaformaður, Elísa Sigurðardóttir meðstjórnandi og Gunnar Páll Hálfdánsson formaður.
ÞRAUTIR


Ástkær móðir mín, tengdamóðir, systir og amma

BRYNJA FRIÐÞÓRSDÓTTIR
Vestmannaeyjum
lést á gjörgæsludeild LSH við Hringbraut miðvikudaginn 8. janúar. Útförin hennar verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 17. janúar klukkan 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Nýrnafélagið.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorsteinn Ívar Þorsteinsson
Elísabet Jóna Þorsteinsdóttir
Marta Karlsdóttir
Pétur Eyjólfsson
Brynjar Karl Þorsteinsson
Eyjólfur Pétursson


Um áramót - SANDRA ERLINGSDÓTTIR
TEK ALLTAF MORGUNÆFINGU Á GAMLÁRS
Sandra Erlingsdóttir atvinnukona í handbolta er spennt fyrir nýja árinu enda að öllum líkindum spennandi breytingar framundan
Hvað stóð upp úr á árinu 2024? Það var klárlega nóttinn þann 15. Júlí þegar Martin Leo strákurinn okkar kom í heiminn.
Hvaða lag hlustaðir þú oftast á árið 2024?
Dvel ég í draumahöll kom sterkt inn í lok árs, en annars var það líklegast þjóðhátíðarlagið 2024 Töfrar.
Hvað finnst þér ómissandi að gera alltaf á gamlársdag/kvöld?
Ætla það sé bara ekki að taka góða morgunæfingu oftast þegar ég næ að vera heima á Íslandi þá fer ég alltaf með mömmu á æfingu.
Viltu minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Hvað gerðir þú um áramótin?
Þetta árið var ég að spila í kringum jól og áramót svo við litla fjölskyldan vorum þrjú saman í kósý. Klukkan 00:00 var ég komin upp í rúm og var einmitt með Martin Leo á brjósti. Passaði vel við árið 2024 að enda það svoleiðis.
Hvað var í matinn á gamlárskvöld?
Síðastliðin ár hefur fjölskyldan mín verið með beef Wellington í matinn og Daníel kærastinn minn vildi halda í hefðir og prófa að gera það sjálfur sem heppnaðist einstaklega vel hjá honum.
Strengir þú eitthvað áramótaheit?
Ég vinn mikið með að setja mér markmið og einnig finnst mér gaman að setjast niður og fara yfir árið. Skoða hvað ég afrekaði og hvar ég get bætt mig bæði í bolta, vinnu og lífinu. Það er hinsvegar nóg um að vera þessa dagana svo ég hef ekki komið mér í það ennþá.
Hvernig leggst nýja árið í þig?
Bara ótrúlega vel. Það verða að öllum líkindum miklar breytingar hjá okkur litlu fjölskyldunni og er ég spennt að sjá hvert framtíðin tekur okkur! Einnig get ég ekki beðið eftir að halda áfram að njóta og fylgjast með Martin Leo vaxa og dafna. Það er heldur betur rétt þegar Fólk talar um að tíminn sé fljótur að líða þegar þau eru lítil.
HVER ER EYJAMAÐUR ÁRSINS AÐ
ÞÍNU MATI?
Þess sem vel er gert er vel þess virði að minnast. Tígull leitar því til lesenda sinna eftir tilnefningum á Eyjamanni ársins 2024. Sendu inn þína tilnefningu á Tigull.is eða með því að skanna kóðann hér til hliðar.
