4. maí 2024


bæjarstjórinn íris róbertsdóttir
4. maí 2024
bæjarstjórinn íris róbertsdóttir
Í Vestmannaeyjum erum við afar stolt og ánægð með Puffin Run hlaupið sem hefur stækkað frá ári til árs og er nú haldið í 7. sinn. Hlaupið er krefjandi en jafnframt gefandi bæði andlega og líkamlega.
Enn eitt þátttökumetið er slegið í ár með rúmlega 1400 manns skráðum í hlaupið, og flestir í heilt hlaup eða 20 km. Eyjaskokk, sem stendur fyrir hlaupinu, leggur alltaf mikinn metnað í viðburðinn, enda er um að ræða einstakt náttúruhlaup með stórbrotinni hlaupaleið. Með samstilltu átaki allra þeirra sem koma beint eða óbeint að hlaupinu hefur þetta gengið ótrúlega vel hingað til. Margir bæjarbúar eru virkir þátttakendur ýmist með því að aðstoða við framkvæmdina eða hlaupa sjálfir.
Við Eyjamenn viljum taka vel á móti gestum okkar enda er það er alltaf sérstök upplifun að koma til Eyja, nánast eins og að fara til útlanda. Það er góð einkunn fyrir hlaupið og eyjuna okkar að
hlauparar koma aftur og aftur. Flestir eru að hefja hlaupasumarið sitt hér í Eyjum þessa fyrstu helgi í maí. Brosið og gleðin eru í fyrirrúmi og skín úr öllum andlitum.
Vestmannaeyjar hafa upp á margt að bjóða fyrir þátttakendur eftir hlaupið og ég efast ekki um að þú, sem og aðrir gestir, eigir góðar stundir framundan á okkar fallegu eyju. Hafðu í huga að þetta er upplifun og ævintýri sem fer í minningarbankann - og mundu að njóta!
Íris Róbersdóttir bæjarstjóri
Útgefandi: Leturstofan Vestmannaeyjum ehf.
Ábyrgðarmaður: Katrín Laufey Rúnarsdóttir
Umbrot og hönnun: Sæþór Vídó
Forsíðumyndina tók Friðrik Björgvinsson
á The Puffin Run 2023
„Unless you’re a pizza the answer is yes, I can live without
- Bill Murray
á Heiðavegi 5 s. 481 1567
Sun-fim 12-21 Fös og lau 12-22
Borðapantanir í síma 481-1567
Hlauparinn Ásdís pÁlmadóttir
Fjölskylda, aldur, menntun, atvinna ?
47 ára viðskiptafræðingur, gift fjögurra barna stelpumamma sem vinnur í Sportvörum sem vörumerkjastjóri.
Hvar ertu fædd og uppalin? Hafnarfirði.
Hvernig upplifðir þú hlaupið í fyrra?
Skemmtilegt eins og ALLTAF. Kemur manni alltaf smá á óvart hvað hlaupið er erfitt en á sama tíma svo falleg og skemmtileg leið.
Ertu með markmið fyrir hlaupið í ár?
Heldur betur, bæta besta tímann minn! Markmiðið er 2:25 mín!
Hvað finnst þér mest krefjandi parturinn af brautinni? Hraunið í lokin. Tæknilegt undirlagið hægir vel á manni og maður þarf að passa sig í hverju skrefi!
Hve oft hefur þú tekið þátt í The puffin run? Ég hef hlaupið leiðina 5 sinnum, 4 sinnum í keppni og 1 sinni í brautarskoðun.
Ertu með ákveðna rútínu fyrir hlaup eins og þetta? Reyna að ná góðum svefni, hafa mataræðið í lagi, a.m.k. daginn fyrir hlaup, og stressa mig ekki um of með því að ákveða að njóta frekar en þjóta!
Ertu með einhver ráð til þeirra sem eru að taka þátt í fyrsta sinn? Ekki fara of geyst af stað er líklega algengasta ráðleggingin og líklega sú sem flestir flaska á! Vera meðvitaður um að hlaupið er nánast upp í móti alla leiðina að einhverju leyti og því sleppa að horfa of mikið á hraða. Svo bara að njóta þess að hlaupa hring í kringum fallegustu eyju heims!
FRÁ VESTMANNAEYJUM
07:00 17:00 9:30 19:30 12:00 22:00 14:30
08:15 18:15 10:45 20:45 13:15 23:15 15:45 FRÁ LANDEYJAHÖFN
Ef siglt er til Þorlákshafnar er áætlun sem hér segir: Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 17:00 Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45
Verð: 8.900 kr / Ball: 2.900 kr
MATSEÐILL:
• Nauta ribeye
• Lamba innralæri
• Kalkúnabringur
Meðlæti
• Ferskt salat new style • Rómin kál, brauðteningar, granatepli, parmesan, sesardressing
• Gljáðar gulrætur • Kasjúhnetur, trönuber, döðlur, vorlaukur • Svepparagú
• Kastaníusveppir, skarlottlaukur, cantarellur
• Kremað kartöflusmælki • Dill, kryddsmjör, sjávarsalt • Villisveppasósa og bernaisesósa
Nánari upplýsingar og miðasala á Tix.is/hollin
Við tökum vel á móti þér
Við hjá N1 tökum á móti þér með bros á vör, hvort sem þú ert að koma þér í gang í morgunsárið, vantar síðdegishressingu eða ert á leið út á sjó. Merkið okkar stendur fyrir metnaðarfulla þjónustu fyrir þig og farartækið þitt og við erum með þér alla leið, á sjó og landi.
ALLA LEIÐ
WC ? Földi hlaupinna km
Drykkjastöðvar. Boðið er uppá vatn og Gatoraid.
Á drykkjarstöð 10 er einnig boðið uppá banana.
tHe puffin run
1 Herjólfsafgreiðsla.
2 Munavarsla og upplýsingar eru í bátaskýli Björgunarfélagsins. Keppendur fá merkispjöld og skulu merkja farangur sinn með sömu tölu og hlaupanúmeri.
3 Stjórnstöð. Afhending gagna.
4 Inngangur fyrir keppendur.
5 Rásmark/Endamark verður á bryggjunni við FES.
Svæði þar í kring er lokað og má engin fara inn á svæðið án leyfis.
Allir keppendur skulu mæta við rásmark 5 15 mín fyrir rástíma og bíða eftir merki stjórnanda. Keppendur fara í hólf fyrir aftan rásmark samkvæmt númeri. 80 hlauparar verða ræstir í einu á mínútu fresti.
Rástímar:
Kl. 12:15 Rásmark 5 nr. 1-1200
Kl. 12:30 Rásmark 5 nr. 4001-Boðhlaup #1 / nr. 2001-Tvímenning #1
Kl. 13:00 Hamar 5 nr. 4001-Boðhlaup #2
Kl. 13:15 Stórhöfði 10 nr. 4001-Boðhlaup #3 / nr. 2001-Tvímenning #2
Kl. 14:00 Eldfell 15 nr. 4001-Boðhlaup #4
Rútuferðir:
Kl. 12:30 Rásmark – Hamar nr. 4001-Boðhlaup #2
Kl. 13:15 Hamar - Rásmark nr. 4001-Boðhlaup #2
Kl. 12:30 Rásmark – Stórhöfði nr. 2001-Tvímenning #2 /nr. 4001-Boðhlaup #3
Kl. 14:00 Stórhöfði - Rásmark nr. 2001-Tvímenning #2 /nr. 4001-Boðhlaup #3
Kl. 13:45 Rásmark – Páskahellir nr. 4001-Boðhlaup #4
Kl. 14:15 Páskahellir - Rásmark nr. 4001-Boðhlaup #4
kl.15:30 Verðlaunaafhending á Vigtartorgi
Verðlaunaafhending verður kl. 15:15 við stjórnstöð 3
Útdráttarverðlaun. Dregið verður úr þátttökunúmerum og fær sá gjafabréf í Sportvörum. Keppendur geta séð lista yfir vinningshafa er þeir koma í mark. Vinningar verða afhentir á verðlaunaafhendingu klukkan 15:15 á Vigtartorgi.
Keppendum bíðst að nota sturtuaðstöðu í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja til kl. 18.00 á hlaupadegi án endurgjalds. Sýna þarf keppnis númer í afgreiðslu.
Hlauparinn
Fjölskylda, aldur, menntun, atvinna?
47 ára, á tvær dætur og tvær kisur. Starfa hjá Helix Health sem vörustjóri hugbúnaðarlausna sem hjálpa heilbrigðisstarfsfólki að veita eldra fólki betri umönnun.
Hvar ertu fæddur og uppalinn?
SunnyKef.
Hvernig upplifðir þú hlaupið í fyrra? Ég á margar minningar frá Eyjum alveg síðan ég var gutti að heimsækja afa minn, það er því ótrúlega gaman að koma og hlaupa í Puffin Run. Ég fór of hratt af stað í fyrra og missti aðeins dampinn þegar við byrjuðum að hlaupa á grasinu og fara í fjöruna. En mér finnst hraunið skemmtilegasti kaflinn, það er krefjandi en að sama skapi gerir þetta hlaup svo sérstakt. Á þessu kafla er maður orðinn vel þreyttur í kroppnum en þarf, í gegnum hraunið, að passa hvert skref og vera með fullkomna einbeitingu.
Hvað finnst þér mest krefjandi parturinn af brautinni? Það er kafli sem ég held að sé rétt áður en maður kemur að hrauninu, þá er hlaupið til vinstri upp malbikaðan veg og tekin u beygja þar niður. Það er svo vont svona seint í hlaupinu að hlaupa í áttina frá endamarkinu og svo til baka.
Hve oft hefur þú tekið þátt í The puffin run? Ég hef tvisvar tekið þátt 2023 og 2019 þegar ég vann hlaupið.
Ertu með ákveðna rútínu fyrir hlaup eins og þetta? Ég reyni að klára allan undirbúning daginn fyrir svo ég geti farið áhyggjulaus að sofa, svefninn er mikilvægur, ég kynni mér einnig hæðarprófíl brautarinnar. Ég hef komið mér upp góðri rútínu í upphitun sem felur í sér skokk,
tempo og hraðaspretti og klára 15 mínútum fyrir ræsingu. Svo er bara að vera kominn á ráslínu tímanlega og taka nokkra djúpa andardrætti til að passa að ná smá slökun.
Ertu með einhver ráð til þeirra sem eru að taka þátt í fyrsta sinn? Æfa að hlaupa niður brekku á góðri ferð. Prófa eins fjölbreytt undirlag og kostur er til dæmis að hlaupa í fjörusandi, það er lúmskt krefjandi. Brjóta hlaupið niður í nokkra kafla og hugsa bara um einn kafla í einu. Vera búin/n að taka fram úr áður en að hrauninu kemur, það er nánast vonlaust að taka framúr þar. En mikilvægt er líka að muna að taka eftir umhverfinu á leiðinni, þetta verður erfitt en þetta á líka að vera gaman :)
Gangi ykkur vel í Puffin Run! Við tökum vel á móti ykkur!
Vestmannabraut 28 | 900 Vestmannaeyjar | Iceland Sími / tel: +354 481 2900 | hotelvestmannaeyjar.is booking@hotelvestmannaeyjar.is
Vorgleði í Eyjum - 4. maí
Kírópraktorstöðin býður í létta vorgleði milli kl. 17-19 í tilefni af Puffin Run, 4. maí næstkomandi.
Hlökkum til að taka á móti gestum og gangandi í húsakynnum stöðvarinnar, við Strandveg 26.
LÉTTAR VEITINGAR Í BOÐI OG ALMENN GLEÐI.
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!
Kírópraktorstöðin Vestmannaeyjum - Strandvegur 26
Meistaralega bruggaður úr hágæða hráefni og hinu tæra lindarvatni okkar. Með þessu ferska krispí bragði sem þú tengir við bjór í fullkomnu jafnvægi.
5 eða 10 km
Rásmark verður við íþróttamiðstöðina.
Upphitun hefst kl. 12.35 og hlaupið ræst kl. 13.00.
Þátttökugjald er kr. 4.000. Skráning á netskraning.is.
Keppnisnúmer og gögn afhent milli kl. 18 og 20 föstudaginn 6. september í Íþróttamiðstöðinni.
// Nánari upplýsingar á vestmannaeyjahlaup.is // Skráning hafin á netskraning.is
SKEMMTIFERÐ
Skemmtiferðin er ein af vinsælustu ferðunum okkar og er fullkomin fyrir allar gerðir af hópum; vinahópa, saumaklúbba, vinnustaði, starfsmannaferðir o.s.frv.
Nú er tækifæri til að skoða Vestmannaeyjar
í þessari flottu djammferð og gera eins og á Þjóðhátíð – byrja snemma og taka daginn með trompi.
Í gistináttaferðinni sérsníðum við ferðina að þínum óskum og gerum eitthvað ótrúlega skemmtilegt saman eins og eyjamönnum er svo tamt.
tHe puffin run
• Ég er í nægilega góðu ástandi bæði líkamlega og andlega til að taka þátt í og ljúka The Puffin Run.
• Ég staðfesti að ég hef áttað mig á erfiðleikastigi hlaupsins sem liggur hringin í kringum Vestmannaeyjar þar sem er misjafnt undirlag og á köflum bratt niður í sjó.
• Ég skil að hlutverk framkvæmdaaðila og starfsmanna hlaupsins felst ekki í að „bjarga“ þátttakendum sem ekki eru nægjanlega vel undirbúnir m.t.t. hlaupaþjálfunar, næringu eða hvort þá vanti viðeigandi útbúnað. Öryggi hvers hlaupara er á hans eigin ábyrgð og hann þarf að hafa færni til að takast á við óvæntar aðstæður.
• Ég hef lesið og skilið reglur The Puffin Run og samþykki þær.
• Ég samþykki að fara eftir þeim leiðbeiningum sem starfsmenn hlaupsins leggja til og þigg þá aðstoð sem þeir álíta að þurfi vegna öryggis míns og annarra.
• Sem þátttakandi í The Puffin Run afsala ég mér öllum rétti til skaðabóta frá skipuleggjendum The Puffin Run, starfsmönnum og öðrum samstarfsaðilum hlaupsins, vegna meiðsla, veikinda, slyss, eða annarra ófyrirsjáanlegra atvika sem ég gæti orðið fyrir í The Puffin Run.
Viðurlög
Þátttakendur sem ekki fara eftir reglum hlaupsins eiga á hættu að verða skráðir úr hlaupinu.
Þeir sem ekki fara eftir settum fyrirmælum verða ábyrgir fyrir þeim kostnaði sem til fellur við leit og/eða umönnun björgunarsveita og annarra starfsmanna.
Réttur skipuleggjenda The Puffin Run
Skipuleggjendur eru ekki ábyrgir fyrir utanaðkomandi áhrifum á hlaupara. Það á við um veður, náttúruhamfarir, umferð fólks og farartækja eða annað óvænt sem getur haft áhrif á þátttakendur.
Skipuleggjendur geta afskráð og stöðvað þátttakanda sem ekki er í fatnaði eða hefur yfir að ráða nauðsynlegum búnaði sem hæfir aðstæðum.
Skipuleggjendur geta afskráð og vísað úr hlaupinu hverjum þeim sem skapar hættu fyrir sjálfan sig og/eða aðra eða fer ekki eftir reglum hlaupsins.
Skipuleggjendur eru ekki ábyrgir fyrir veikindum eða slysum þátttakenda, til og frá mótsstað og meðan á hlaupi stendur. Þátttakendur eru hvattir til að leita aðstoðar starfsmanna hlaupsins ef slys eða veikindi koma upp.
Þátttakendur eru alltaf á eigin ábyrgð þrátt fyrir að þeir þiggi aðstoð starfsmanna hlaupsins.
Skipuleggjendur áskilja sér rétt til að aflýsa hlaupinu með stuttum fyrirvara vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra ástæðna sem geta skapað hættu fyrir þátttakendur.