Skip to main content

Tígull 34. tbl 07. árg.

Page 1

34. tbl. 07. árg. 18. - 31. desember 2025

Gleðileg Jól


Gleðileg Jól Við óskum ykkur gleði og friðar um jólin og gæfu á nýju ári. Þökkum fyrir samveruna & viðskiptin á árinu sem er að líða.


Aukakrónur koma sér vel um jólin Landsbankinn.is


ÞAKKLÆTI OG KÆRLEIKUR Ég hef alltaf elskað aðventuna, jólin og stemminguna sem umvefur allt á þessum árstíma. Alveg sérstaklega jólaljósin sem færa okkur birtu og yl á dimmasta tíma ársins. Tíma sem við notum oft til að sýna þakklæti. Þessi árstími minnir okkur á gleði og kærleika en líka á þær áskoranir sem við höfum unnið úr á árinu sem er að líða. Við sem búum á þessari fallegu eyju þekkjum það að takast á við áskoranir. Samgöngurnar til Eyja eru stöðugt baráttumál og okkur finnst ganga hægt. Sem betur fer eru ekki lengur svokallaðir dýpkunargluggar, sem þýddu einfaldlega að ekkert var dýpkað yfir erfiðasta tímann, heldur á að dýpka allt árið þegar veðuraðstæður leyfa. Það var mjög mikil breyting. Krafan um öflugra dýpkunarskip er alltaf í gangi og verður haldið til streitu nú þegar nýtt útboð á dýpkun er í farvatninu. Það er kominn á samningur um ríkisstyrkt flug þótt um stutt tímabil, sé að ræða. Formlegur samningur um ríkstyrkt flug kom aftur inn í fyrra eftir að hafa fallið niður árið 2010. Það þarf meira að koma til en því miður eigum við öll þessi samgöngumál undir ríkisvaldinu en ekki okkur sjálfum. Það er því okkar sameiginlega verkefni að halda hagsmunum okkar á lofti gagnvart ríkisvaldinu með stöðugum þrýstingi á þingmenn og ráðherra. Okkur finnst hægt ganga en þetta er samt eina leiðin sem við höfum til að knýja fram umbætur. Félagið Eyjagöng var stofnað nú í lok árs - sem er mjög jákvætt og loksins verður farið í þær grunnrannsóknir sem skortir vegna jarðagangagerðar milli lands og Eyja. Farið verður af stað strax á næsta ári og hefur Vestmannaeyjabær samþykkt að styðja við félagið. Það var sömuleiðis mikilvægur áfangi að þessa verkefnis er getið í nýrri samgönguáætlun. Á sama tíma er líka mikilvægt að vera þakklát fyrir það sem við höfum. Það er margt gott í okkar samfélagi þótt alltaf sé hægt að gera betur. Menningarlífið er fjölbreytt og margt öflugt fólk á þeim vettvangi sem gleður okkur á hverju ári með viðburðum af ýmsu tagi. Í atvinnulífinu er mikið að gerast; ný stoð að verða til enda höfum við Eyjamenn löngum verða kraftmikið og öflugt fólk sem stendur saman þegar á reynir.

TÍGULL

Í samfélaginu er kraftur og uppbyggingin er mikil. Okkur fjölgar hratt og í því felast áskoranir sem við verðum að leysa. Samstaða hefur verið okkar aðalsmerki og er mikilvæg okkur Eyjamönnum. Það þýðir ekki að við þurfum öll að vera sammála alltaf um alla hluti, en sýnum hvert örðu virðingu og finnum lausnir fyrir okkar góða samfélag. Við stefnum öll að því sama þrátt fyrir að okkur geti greint á um leiðir: að halda áfram að byggja upp okkar hjartans heimahöfn sem er Heimaey. Þessi árstími hefur uppá margt að bjóða og er samvera fjölskyldu og vina stór hluti af stemmingunni og tilhlökkuninni á aðventunni og nærir jólaandann. Börnin gera svo allt betra. Þau minna okkur á að njóta augnabliksins og að gleðin og kærleikurinn eru besta jólagjöfin. Helgileikur 6.bekkjar grunnskólans var hátíðlegur en jafnframt skemmtilegur og gaman að sjá uppskeruna af allri vinnunni hjá krökkunum og kennurum þeirra. Það eru margir svona viðburðir sem eru orðnir fastir liðir hjá okkur, aðventutónleikar, Stjörnuleikurinn og svo mætti lengi telja. En umfram allt - njótum samveru. Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Við sendum Vestmannaeyingum nær og fjær okkar bestu óskir um

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir það liðna.


HVAÐ SEGJA BÖRNIN?

Hákon Daði Hafþórsson Fjölskylda: mamma mín heitir Linda Rós Sigurðardóttir, pabbi heitir Hafþór Halldórsson. Systkini mín eru Gabriel, Bríet Björk og Brynjar Ingi. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Ég ætla bara í vinnu eins og mamma. Hvað er mamma þín best í að gera? Að knúsa og kyssa mig. Hvað er pabbi þinn bestur í að gera? Byggja því hann byggði kofann okkar útí garði. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að fara til útlanda. Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Nammi. Hvað langar þig í jólagjöf? Minecraft dót. Hvað er mamma þín gömul? 30 ára. Hvað er pabbi þinn gamall? 42 ára. Hver er besti vinur þinn? Brynjar. Hvað gerir þig glaðan? Að leika við Brynjar og fara í feluleik Ertu hræddur við eitthvað? Ekkert í öllum heiminum

Oktavía Dröfn Arnarsdóttir Fjölskylda: Mamma mín heitir Guðrún Bára Magnúsdóttir og pabbi minn Arnar Smári Gústafsson, systkini mín eru Óliver Gauti og litla systir. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Að setja make up á aðra Hvað er mamma þín best í að gera? Baka Hvað er pabbi þinn bestur í að gera? Vinna Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Leika við vinkonur og handbolti Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Píta Hvað langar þig í jólagjöf? Hjólaskauta og línuskauta, hlífar og hjálm Hvað er mamma þín gömul? 29 ára Hvað er pabbi þinn gamall? 32 ára Hver er besti vinur þinn? Allir sem ég þekki Hvað gerir þig glaða? Fara á handboltaæfingu Ertu hrædd við eitthvað? Köngulær, myrkrið og þrumur og eldingar


Gleðileg Jól Sendum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og landsmönnum öllum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Með þökk fyrir samfylgdina í gegnum árin.


OR ÐA ÞR AU T

GLEÐILEG JÓLIN JÓLAMATUR PAKKAR

SAMVERUSTUNDIR FJÖLSKYLDA GLEÐI HAMINGJA

ÞORLÁKSMESSA AÐFANGADAGUR JÓLADAGUR GAMLÁRSDAGUR

NÝÁRSDAGUR ÞRETTÁNDINN TRÖLLIN JÓLASVEINAR


Við óskum bæjarbúum

Gleðilegra Jóla Þökkum fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.


Gjöf frá okkur til ykkar

JÓLAHVÍSL 21. DESEMBER KL. 20:30 Jólahvísl hefur á síðustu árum orðið einn af kærustu aðventuviðburðum Vestmannaeyja, þar sem tónlist, samvera og hlýja mynda einstaka jólastemningu. Guðný Emilíana Tórshamar, 23 ára og starfsmaður Hótel Vestmannaeyja, hefur verið eitt af andlitum Jólahvíslsins frá upphafi. Í ár stígur fjölmennasti hópur söngvara hingað til á sviðið, tíu talsins, auk öflugs baklandshóps sem leggur sitt af mörkum ár hvert. Í þessu stutta viðtali ræðir Guðný um hefðina, andrúmsloftið, nýjungar í ár og hvað gerir Jólahvísl að svo kærum viðburði fyrir Eyjamenn. Hverjir eru það sem taka þátt í Jólahvísl? Ásamt mér og Elísubetu koma fram: Júlíanna Andersen, Þórarinn Ólason, Hafþór Elí, Unnur Ólafsdóttir, Guðni Hjálmarsson, Magdalena Kubu, Eva Eldey og Júlína Von, ásamt húsbandinu. Höddi og Haffi eru Hjóðmenn. Einnig er fullt af frábæru fólki á bak við tjöldin sem tekur þátt í undirbúningnum ár hvert. Hvað hefur helst hvatt þig til að halda Jólahvísl ár eftir ár og hvað gerir verkefnið sérstakt fyrir þig persónulega? Þetta er orðin hefð fyrir mér og það er svo kærleiksríkt að fá að vera hluti af þessu. Svo er þetta líka góður og skemmtilegur félagsskapur. Í ár taka 10 söngvarar þátt — hvað varð til þess að stækka hópinn og hvernig hefur það áhrif á upplifunina?

Emilíana á Jólahvísl í fyrra. Ljósmynd / ÓskarPétur Friðriksson.

Við höfum viljað brjóta aðeins upp og koma með nýjungar á hverju ári. Engir tónleikar eru eins, þó við höldum alltaf í sama grunninn og boðskapinn. Það er líka svo gott að breyta til og fá fleiri til að njóta stundarinnar með okkur á sviðinu. Hvernig myndir þú lýsa andrúmsloftinu og stemningunni sem þið viljið skapa á Jólahvísli? Hlýlegt, kærleiksríkt og húmorískt andrúmsloft. Hvaða breytingar eða nýjungar má búast við í ár miðað við fyrri tónleika? Við leggjum mesta áherslu í ár á lýsinguna á sviðinu. Svo er þetta líka í fyrsta sinn sem Tóti syngur með okkur.Hann hefur oft hjálpað okkur á bak við tjöldin, en aldrei sungið á Jólahvíslinu áður. Af hverju heldur þú að Jólahvísl hafi orðið svona fastur og kær árlegur viðburður fyrir marga í Vestmannaeyjum? Það er erfitt að nefna eitthvað

eitt, en ef ég á að velja þá er það boðskapur tónleikanna, sem hefur alltaf verið sá sami. Yfirskrift tónleikanna er: “Þetta er gjöf frá okkur til ykkar.” Við höfum haft bauk fyrir frjáls framlög sem fer óskert í Landakirkju til úthlutunar til þeirra sem eiga lítið. Allir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína. Er eitthvað atriði eða lag sem stendur þér sérstaklega nærri í ár — og af hverju? Lagið „Það snjóar“ hefur verið hjá okkur nánast á hverju ári, sungið af öðrum söngvurum. Í ár verður breyting því ég fæ loksins að syngja það sjálf. Og að lokum... Allir eru hjartanlega velkomnir á Jólahvísl. Aðgangur er ókeypis. Húsið opnar kl. 20:00 og tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Komið og njótið. „Þetta er gjöf frá okkur til ykkar.“


M

SENDU

FRt aÍðT10Tkg All

Jólatilbo

ð

2AFS9LÁ% TTUR

JÓLAÐ

TILBO

Verð frá

26.990

16.990

r

Ninja CREAMi ísvéla

JÓLA

TILBOÐ

59.990

augu Meta Quest VR gler

Í TÖLVUTE

ð Jólatilbo s én Síðasti s Gildir út

L Ó J U J GRÆ K

18. des

JÓLA

TILBOÐ Verð frá

64.990

PS5 Leikjatölvur

Verð frá

84.990

Nintendo Switch

2

JÓLA TILBOÐ

69.990 Verð frá

990

Tækifærisgjafir

Uppáhald jólasveinanna!

49.990

50” QLED Google

TV Verð frá

i

Pizzaofn með stein

9.990 r

GPS krakka símaú

17. desember 2025 • Birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl

Verð frá

ALLT FYRIR

11.990


1

61

6

5

5

4

4

7

1

6 71

6 7

5

5

4

64

16

1

7

7

9 1

79 6 1

7 6

4 5

4 5

4

64

16

1

2

7

7

9

39 7

3 7

4

4

2

62

16

1

2

6

6

8 9

39 8

3

6 4

6 4

2

2

8

6 58

6 5

8

38

23

2

6

6

3 2

92 3

59

5

9

89

5 68

5 6

8

8

2

62

6

6

3

93

59

5

43

94

89

58

5

2

62

16

1

3

93

29 5

2 5

4 8

4 2

64 2 9

6 9

3

3

2

6

1 86

1 8

4

24

2

4

4

3moderate 3 64 6moderate 2 Difficulty: 2 Difficulty: 4

#146455 #146455

8 1

Difficulty: 4moderate 8 Difficulty: 24moderate 2 1

4

4

2

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

#146455 #146455

8

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

#146455 #146455

Difficulty: 4moderate 4moderate 8 Difficulty: 2 Difficulty: 2moderate Difficulty: moderate

1

1

6

16

1

7

5

6

26 1

2 1

57 3

85

68

26

57

85

8

2

3 8

3 8

8

3

3

81

8

3

41 8

#34990#34990 #34990#34990

6

6

36

3

4

64

3 76

7 53

4

4

7 3

4

4

7

2

2

2

12

81

2

12

9

19

SUDOKU

6

9 9

9 9

#34990#34990

7

7

6

76

7

5

5

4

6

76

7

5

15

6

6

4

54

4 6

6

3

3

3 3

23 23 23

2 2

6

6

2

2

5

25

92

9

9

6 4

86 4

28

2

5

25

92

39

3

91 2

9

4 6

86 4

38 2

62 3

56

5

9

39

3

79 2

97 2

9

4

84

38

63

6

3

3

3 98

7 59

7 5

3

5 3

65 3

86

8

2

12

1

1

1

4

1 2

91 2

41

94

29 1

15

81 4

94 8

46

74 1

8 31 7

9

9

6 7 4

46 7

7 84

3 87

3 8

5 7

45 7

4

1

1

3

53

95

89

68

26

12

1

9

9

7 6

47 6

84 7

28 3 7

2 3

5

4 35

4 3

1 9

81 9

38

53

95

19 8

6 78 1

7 26

12

1

9

9

7

7

8

28

12

1

3 4

3 4

9 1

81 9

8

4 9

1 39 4

71 3 6

7 6

#109099 #109099

12 Difficulty: 1moderate 2 Difficulty: 3moderate 3

#203394 #203394

4

moderate 34 Difficulty: 3 Difficulty: 71 7moderate 1

#109099 #109099

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

#203394 #203394

2moderate 2 8 Difficulty: Difficulty: moderate

#203394 #203394

4 9

34 3 9 Difficulty: Difficulty: moderate moderate

9

8

1

1

8

3

3

2 9

2 9

7 8

7 8

3

3

9 6 2

62

76

37

3

3

4

6

16 7

37 1

3

1 42

4

6

16

31

3

1 2

91 2

9

1

1

1

1

9 51

19 5

1 4

1 4

5 9

19 5

4 1

4 1

15

41

4

6

9 2

9 2

8

6

6

2 9

2 9

6

46

24

2

42

2 1

ew Get sudokus new Getsudokus new at https://sudoku.cba.si/ sudokus at https://sudoku.cba.si/ at https://sudoku.cba.si/

6

#23395#23395

5

7

89

8

7

37

63

6

9

9 6 2

7

3 87

63 8

6

9

6 9

6 9

2 7

82 3 7

68 3

6

6

6

2

82

8

2

2

8

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

9 9

4

4

4 6

4 6

8

48

14

61 4

6 4

58

8 25

42 8

1 74

7 61

46

5

5

5

5

8 9

5 89

25 8

42 8

7 34 1

57 3 1

45

5

5

9 8

8 69 5

6 28 5

2

3 7

5 3 87

8 45

87

8

95

6 39 8

6 3 8

1

31

83 5

8 5

3 6

3 6

1 Difficulty: 1 Difficulty: 8moderate 8moderate

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

7

9

solve Can'tit? solve Can't Check it? solve Check theit? solution Check the solution atthe https://sudoku.cba.si/ solution at https://sudoku.cba.si/ at https://sudoku.cba.si/

9

#109099 #109099

ew Get sudokus new Getsudokus new at https://sudoku.cba.si/ sudokus at https://sudoku.cba.si/ at https://sudoku.cba.si/

62

3

87

8

5

#196017 #196017

5

5

4 4 4


Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem nú er að líða.


HVAÐ SEGJA BÖRNIN?

AUÐUR BENNA BENÓNÝSDÓTTIR Fjölskylda: Mamma mín heitir Emma Kristjánsdóttir og pabbi minn heitir Benóný Þórisson. Systkini mín eru Tinna Karen, Hekla Katrín og Emil Gauti. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Vinna í Tvistinum. Hvað er mamma þín best í að gera ? Hafa kósý. Hvað er pabbi þinn bestur í að gera ? Spila Uno og fara í sund. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Sund. Hvað er uppáhalds maturinn þinn ? Sushi. Hvað langar þig í jólagjöf ? Hvítt ilmkerti og bangsa. Hvað er mamma þín gömul? 21. Hvað er pabbi þinn gamall? 28. Hver er besti vinur þinn? allar stelpurnar. Hvað gerir þig glaða? Kisurnar mínar. Ertu hrædd við eitthvað? Hákarl.

SIGTRYGGUR EGILL ÞORLÁKSSON Fjölskylda: Mamma mín heitir Dóra Sif Egilsdóttir og pabbi heitir Þorlákur Sigurbjörn Sigurjónsson. Systur mínar heita Díana Sif og Sigurdís og stóri bróðir minn heitir Sigurjón Andri. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Flugmaður og löggumaður. Hvað er mamma þín best í að gera? Að þjálfa Sigurjón og mig. Hvað er pabbi þinn bestur í að gera? Að vera dómari. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Fara út að hjóla og vera í skólanum. Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Kjúklingasúpa appelsínagul og líka appelsínugulur fiskur. Hvað langar þig í jólagjöf? Tólf ára Legó. Hvað er mamma þín gömul? 34 ára. Hvað er pabbi þinn gamall? 34 ára. Hver er besti vinur þinn? Guðjón, Vignir, Jón Gísli, Hákon og Emil. Hvað gerir þig glaðan? Leika saman útí og leika inni. Ertu hræddur við eitthvað? Nei. Eða jú. Nei ég er ekki hræddur við neitt.


Vínbúðin Vestmannaeyjum

Opnunartímar um hátíðarnar Opening hours during the holiday season 22. desember Mánudagur

23. desember Þriðjudagur ÞORLÁKSMESSA

24. desember Miðvikudagur AÐFANGADAGUR

11–18

11–19

11–13

29. desember Mánudagur

30. desember Þriðjudagur

31. desember Miðvikudagur GAMLÁRSDAGUR

11–18

11–18

11–13

19. desember Föstudagur

20. desember Laugardagur

11–19

11–16

25. desember Fimmtudagur JÓLADAGUR

26. desember Föstudagur ANNAR Í JÓLUM

27. desember Laugardagur

Lokað

Lokað

11–16

1. janúar Fimmtudagur NÝÁRSDAGUR

2. janúar Föstudagur

Lokað

11–19

Closed

Closed

Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is Við minnum á að áfengiskaupaaldurinn á Íslandi er 20 ár og biðjum fólk að hafa skilríki meðferðis.

Closed

vinbudin.is

21. desember Sunnudagur

Lokað Closed

28. desember Sunnudagur

Lokað Closed


Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!

Sjómannadagsráð

Bílaverkstæði

HARÐAR & MATTA


EVRÓPUMÓT Í GÚRKU Í VESTMANNAEYJUM 27. DESEMBER 2025 Undirbúningur er hafinn fyrir Evrópumót í Gúrku sem fram fer í Vestmannaeyjum þann 27. desember 2025. Mótið verður með svipuðu sniði og keppnin í fyrra, en að þessu sinni er um Evrópukeppni að ræða í stað Heimsmeistaramótsins. Síðasta mót vakti mikla lukku og endaði með glæsilegum sigri heimsmeistarans Hreggviðs Óla Ingibergssonar, sem enn í dag virðist svífa um á sigurvímu samkvæmt samfélagsmiðlum hans frá Dublin. Þátttaka og skráning Þeir sem hyggjast taka þátt þurfa að hafa hraðar hendur. Þátttökugjaldið er óbreytt frá síðasta ári, eða 3.000 krónur. Skráning telst gild einungis við greiðslu þátttökugjaldsins. Reikningsupplýsingar: • Reikningsnúmer: 0582-26-6117 • Kennitala: 061175-4909

Auglýsingasími Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is

Að greiðslu lokinni skal senda tölvupóst á magnusgisla@gmail.com og tilgreina fyrir hvern eða hverja er verið að greiða. Dagskrá mótsins Mótið fer fram í Höllinni í Vestmannaeyjum. • Upphitun hefst kl. 10:00 • Keppni hefst kl. 11:00 • Gert er ráð fyrir að mótinu ljúki um kl. 18:00 Spilað verður eftir sömu reglum og í fyrra, og að þessu sinni verður einnig keppt um Forsetabikar, ætlaðan þeim sem falla úr leik í fyrstu umferð. Aðstandendur hvetja fólk til að deila tilkynningunni og hjálpa til við að skapa lifandi stemningu á mótinu. Líf og fjör í Höllinni 27. desember – og góður leikur tryggður!


JÓLASTEMNING OG GLEÐI Í JÓLAÞORPI VÖRUHÚSSINS Veðrið lék við okkur hér á Eyjunni síðastliðinn sunnudag og nýttu margir það vel. Jólaþorp Vöruhússins var afar vel sótt og ríkti þar mikil stemning og sönn jólagleði sem skein af andlitum gesta á öllum aldri. Ljósmyndari Tíguls, Addi London, lét sig heldur ekki vanta og fangaði stemninguna.


GLEÐILEGA HÁTÍÐ Kæru vinir Gleðileg jól og farsælt komandi ár Takk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða Hafið það notalegt yfir hátíðirnar Jólakveðjur frá Vöruhús fjölskyldunni

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!


Við óskum öllum gleðilegra jóla Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hlaut Íslensku menntaverðlaunin 2025 fyrir framúrskarandi nám í málm- og vélstjórnargreinum

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum / Dalvegur 2 900 Vestmannaeyjum / 488-1070 / www.fiv.is


Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári! Hellugerð Agnars FRÁR VE 78

NÝJA TANNLÆKNASTOFAN


KÆRI NÁGRANNI! SENDUM ÞÉR OG ÞÍNUM BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEGA HÁTÍÐ

Afgreiðslutími yfir hátíðirnar 24.des kl.9-12 25.des Lokað 26.des Lokað 27.des kl.11-15 28.des Lokað 29.des kl.9-18 30.des kl.9-18 31.des kl.9-12 1.jan Lokað

Vesturvegi 5 sími 481 3900

apotekarinn.is


MIKIL ÞJÓNUSTUAUKNING FYRIR NÝBURA Í VESTMANNAEYJUM - ný tæki styrkja snemmtæka greiningu og meðferð Jafnframt hefur Ljósmæðravakt HSU í Vestmannaeyjum fengið að gjöf heyrnamæli, sem tryggir að nýfædd börn geti fengið heyrnarskimun á staðnum. Fram að þessu hafa ekki öll börn átt kost á heyrnarmælingu á fæðingarstað og fjölskyldur oft þurft að ferðast til Reykjavíkur eða Selfoss í slíka greiningu. Í ávarpi við afhendingu gjafarinnar benti Björk Steindórsdóttir, yfirljósmóðir HSU, á að tíðni heyrnarskerðingar hjá nýburum sé um 0,1–0,3%, eða 1–2 börn af hverjum 1.000 fæddum. Snemmtæk greining, helst innan fyrstu þriggja mánaða ævinnar, skipti sköpum fyrir málþroska, samskiptahæfni og félagslegan og tilfinningalegan þroska barnsins. Ef greining dregst getur það haft áhrif á framtíðarmöguleika barnsins til menntunar og atvinnu.

Hér eru bræður úr Oddfellow við afhendingu á heyrnamælinum: Jón Helgi Sveinson, Sigurður Friðrik Karlsson, Eyþór Þórðarson, Gréta, Ingi Rafn Eyþórsson og Arna Huld.

Mikilvægar gjafir hafa nýlega borist Ljósmæðravakt Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) í Vestmannaeyjum sem styrkja verulega þjónustu við nýbura og fjölskyldur þeirra. Um er að ræða nýjan gulumæli og heyrnamæli, sem gera kleift að greina alvarleg heilsufarsvandamál hjá nýburum á einfaldan, öruggan og snemmtækan hátt.

Heyrnarmæling fer fram með svokallaðri OAE-mælingu, þar sem nemi er settur í eyrnahlustina og viðbrögð hárfrumna í kuðungi innra eyrans mæld. Mælingin er fljótleg og sársaukalaus og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands fylgir eftir þeim börnum sem ekki standast skimun. Að lokum voru færðar sérstakar þakkir til Herjólfbræðra fyrir höfðinglega gjöf heyrnamælisins. Með tilkomu beggja þessara tækja hefur þjónusta við nýbura í Vestmannaeyjum tekið stórt skref fram á við og tryggir fjölskyldum öruggari, skilvirkari og fjölskylduvænni heilbrigðisþjónustu í heimabyggð.

Þegar eldri gulumælir reyndist orðinn óþjónustuhæfur vegna aldurs brugðust Kiwanisklúbburinn Helgafell, Kvenfélagið Líkn, Oddfellow Rbst. nr. 3 Vilborg og Oddfellow St. nr. 4 Herjólfur fljótt við og lögðu sitt af mörkum til kaupa á nýjum gulumæli. Gulumælir (Bilichek) er notaður til að mæla magn bilirubins í húð nýbura og er lykiltæki við greiningu á nýburagulu, sem getur verið lífshættuleg ef hún nær háum gildum. Með mælinum er hægt að fylgjast náið með þróun gulunnar án þess að taka blóðprufu úr barninu. Þetta gerir heilbrigðisstarfsfólki kleift að grípa tímanlega til viðeigandi meðferðar, svo sem ljósameðferðar með ljósateppi í heimahúsi, sem í mörgum tilfellum kemur í veg fyrir innlögn á sjúkrahús. Slík meðferð minnkar álag á fjölskyldur, dregur úr streitu og hefur jákvæð áhrif á umönnun barns og brjóstagjöf.

Ljósateppið í notkun.


Við óskum Eyjamönnum og fyrirtækjum í Eyjum gleðilegra jóla - og þökkum fyrir viðskiptin á árinu sem senn er á enda.

www.prentun.is


Stefanía & Oskar

ELSKUM AÐ SPILA MEÐ GÓÐU FÓLKI Blaðamaður Tíguls fékk þau Stefaníu og Oskar í létt jólaspjall. Nöfn: Stefanía Ósk Bjarnadóttir og Oskar Dagur Eyjólfsson Störf: Stefanía: Íþróttamiðstöðin Oskar: háseti á Drangavík. Hvað er í jólamatinn? Rækjukokteill í forrétt og Hamborgarhryggur í aðalrétt. Eitthvað sérstakt meðlæti? Oskar: smjörsteikt rósakál. Stefanía: Súrkál sem langamma kom með frá þýskalandi í denn inn í fjölskylduna. Hvar haldiði jólin? Við höldum jólin heima hjá okkur í fyrsta skipti með allri fjölskyldu Oskars sem býr um allt land og einn hluti erlendis. Eftirminnilegasta jólagjöfin? Stefanía: Þegar ég fékk hund. Oskar: 100% world of worldcraft first edition tölvuleikur Er einhver hefð sem þið hafið tekið frá foreldrunum ykkar? Stefanía: klukkan 18:00 er matarborðið tilbúið, allir sitja og hlusta á rás 1 þegar jólabjöllurnar hringja inn jólin, óska öllum gleðilegra jóla og þá má byrja að borða.

ry ou r "B r

Oskar: Rækjukokteill Hafið þið skapað nýja hefð? Þetta eru fyrstu jólin okkar heima í nýja húsinu, spurðu mig aftur á næsta ári. Eruð þið spila fólk? Ó já elskum spila með góðu fólki.

Hvað kemur ykkur í jólaskap? Stefanía: snjórinn kemur mér alltaf í jólaskap og mamma. Oskar: Harry potter. Hvernig skiptið þið verkum yfir jólin? Stefanía þrífur og bakar, Oskar eldar og setur upp útiljósin.

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.


Starfsfólk Íslandsbanka óskar bæjarbúum gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.


Linda Rós

ÍGULKER EFTIRMINNILEGASTA JÓLAGJÖFIN Á Kirkjubæjarbrautinni undirbýr þessi fjölskylda jólin á sinn skemmtilega og afslappaða hátt, þar sem húmor, persónulegar hefðir og góður matur ráða för. Í þessu viðtali deilir Linda Rós jólahefðum þeirra, uppáhaldsminningum og hvernig jólastemningin skapast á heimilinu. Fjölskylda: Verri helmingurinn Hafþór Halldórsson, saman eigum við Hákon Daða, fyrir á ég Gabriel Martinez og Haffi á fyrir Bríet Björk og Brynjar Inga. Störf: ég vinn hjá EFLU og Hafþór er vélstjóri á Bylgju VE. Hvað er í jólamatinn? Við höfum verið með tvíréttað því ég er svo mikill gikkur að ég borða ekki hamborgarahrygg eins og aðrir á heimilinu, þannig að það er hamborgarahryggur og wellington. Eitthvað sérstakt meðlæti? Við höfum reynt að vera með kartöflur en það hefur samt komið fyrir að þær hafi bara verið óeldaðar á eldhúsbekknum (og já ég er að austan og þetta er bekkur ekki borð) annars er það bara þetta venjulega sósa, waldorf salat (uppskrift frá mömmu) og laufabrauð. Hvar haldiði jólin? Við erum bara heima á kirkjubæjarbrautinni. Eftirminnilegasta jólagjöfin? Pabbi minn gaf mér ígulker sem hann veiddi sjálfur. Ég bað hann um að veiða igulker handa mér þegar ég var lítil en hann gleymdi þvi (ég var voða sár), svo ca 20 árum seinna gaf hann mér eitt í jólagjöf, svo reyndar vann systir mömmu 150 þús króna inneign i tattoo í fb leik sem hún síðan gaf mér i jólagjöf.

Er einhver hefð sem þið hafið tekið frá foreldrunum ykkar? Við höfum verið mjög dugleg að fara framhjá öllum hefðum nema kannski halda mér sem mest frá eldamennskunni þar sem ég á það til að gleyma mér smá en ég fæ samt að græja smjörið, salatið frá mömmu og eftirréttinn. Hafið þið skapað nýja hefð? Já það má eiginlega segja það því við höfum farið frá því að hlusta á messuna yfir í að hafa eitthvað í sjónvarpinu sem okkur finnst skemmtilegt. Ég reyndar byrjaði svo nýja desember hefð í ár með því að bjóða álfinum góða (elf on the shelf) inná heimilið, ætli sú hefð verði þá ekki í nokkur ár í viðbót.

Eruð þið spilafólk? Sko ég er svo tapsár að það er eiginlega ekki hægt að spila, ef ég myndi tapa þá væri dagurinn ónýtur en ég er að æfa mig í að tapa a móti þessum 5 ára sem er reyndar hundleiðinlegur winner. Hvað kemur ykkur í jólaskap? Ég dett í jólaskap í enda október þegar ég stelst til að setja upp jólaljósin en annars þegar við byrjum að sjóða hangikjötið þá eru jólin komin. Hvernig skiptið þið verkum yfir jólin? Ég sé um að skreyta, kaupa gjafir og pakka inn, Haffi sér um að matinn fyrir utan náttúrulega eftirréttinn sem er eins og allir vita aðalatriðið þannig að það mætti segja að jólin séu að mestu á mínum herðum.


HEIM UM JÓLIN – Arndís Ósk finnur nýja sýn á lífið eftir veikindin og snýr aftur til tónlistarinnar Arndís Ósk Atladóttir-Kvam er 41 árs tónlistarkona og tveggja barna móðir sem býr með fjölskyldu sinni í Kristiansand í Noregi. Eftir að hafa greinst með krónískt blóðkrabbamein árið 2022 hefur hún fundið nýja sýn á lífið — og með henni vaknaði löngunin til að snúa aftur til tónlistarinnar. Nú hefur hún gefið út íslenska útgáfu hins sígilda jólags Home for Christmas, sem heitir Heim um jólin, lag sem tengir saman rætur hennar í Vestmannaeyjum, heimþrá og hlýju hátíðanna. Þrátt fyrir nýjan veruleika helgaðan heilsu og meðferð heldur Arndís áfram að skapa með jákvæðni að leiðarljósi og sinnir jafnframt sjálfboðastarfi sem formaður blóðkrabbameinsfélagsins í suður Noregi. Í þessu einlæga viðtali opnar hún sig um ferlið á bak við lagið, tengslin við Eyjarnar, jólahefðirnar sem hún ber með sér milli landa — og kraftinn sem hún finnur í tónlistinni. „Ég er núna heimavinnandi eftir að hafa greinst með krónískt blóðkrabbamein árið 2022, og er í meðferð við því út lífið. Þrátt fyrir þetta reyni ég að halda áfram með daglegar skyldur og verkefni með jákvæðnina að leiðarljósi. Ég er nú samt sem áður búin að koma mér í einhver verkefni og er formaður blóðkrabbameinsfélagsins í suður Noregi í sjálfboðaliða starfi.“ segir Arndís Ósk. Hún er sjúkraliði að mennt og gift Sturla Kvam, eiga þau börnin Söra Constanse Sturladóttur-Kvam 9 ára og Sebastian Ravn Sturlasson-Kvam 4 ára. Hvað var það sem kveikti löngunina til að gera íslenska útgáfu af laginu Home for Christmas? Ég var beðin um að syngja á jólahátíð í Kristiansand, sem var haldin af íslensku kirkjunni í Noregi og Íslendingafélaginu í Suður-Noregi. Mér fannst það tilvalið tækifæri til að taka þetta fallega lag og þýða það yfir á íslensku. Lagið hefur alltaf heillað mig og söngkonan Maria Mena sem á lagið er ótrúlega hæfileikarík tónlistarkona sem syngur og semur tónlist sem hefur snert mig mikið. Lagið minnir mig á að „Heima“ fyrir mig eru Vestmannaeyjar, þrátt fyrir að hjartað mitt hafi endað í Noregi. Um jólin hugsa ég sérstaklega mikið til vina og fjölskyldu á Íslandi, og lagið hjálpar mér að tengjast þeim tilfinningum og minningum. Einnig var ég á þeim stað í lífinu að ég vildi vera skapandi, og byrja aftur að syngja og taka af skarið við að búa til tónlist eftir langt hlé. Hvernig gekk ferlið að þýða lagið eða aðlaga textann

að þinni útgáfu? Var eitthvað sem þú vildir endilega halda eða leggja sérstaka áherslu á? Þýðingin gekk mjög vel, en á nokkrum stöðum þurfti ég að breyta og semja nýtt til að ná fram betri hljóm og samræmi í laginu. Textinn er saminn sem ljóð, og ég lagði sérstaka áherslu á að skapa tengingu við hlustendur þannig að þeir gætu speglað eigin upplifanir og tilfinningar um hvað „Heim“ merkir fyrir þá. Ég var einnig mjög heppin með alla þá hjálp sem ég fékk frá vinum sem yfirfóru textann fyrir mig og leiðréttu málfræðivillur. Hvaða tilfinningar vildir þú að hlustendur fengju þegar þeir heyra Heim um jólin? Þær tilfinningar sem ég leitast eftir er að skapa er góða jólastemmningu, en vekja fólk líka til umhugsunar. Mín mesta gleði er að geta verið með þeim sem ég elska yfir jólahátíðina. Um leið hugsa ég til þeirra sem ekki fá tækifæri til að verja þessum tíma með sínum nánustu. Það er mikilvægt að við sýnum nærgætni og náungakærleika, og að við mætum þeim sem eiga erfitt yfir hátíðarnar með stuðningi, hlýju og hjálpsemi. Hvernig tengir þú sjálf við lagið – er eitthvað persónulegt í textanum eða flutningnum? Ég fæ stundum djúpa heimþrá til Íslands og þá sérstakleg til Vestmannaeyja, til íslenskrar tungu, húmorsins, vina og vinkvenna sem ég hlæ með af öllum lífsins og sálarkrafti, og ekki síst til íslensks


matar! Það er eitthvað einstakt við þessar rætur sem maður ber alltaf með sér, sama hvar í heiminum maður býr. Í textanum tala ég um djúpa heimsþrá og söknuð í þá sem erum manni næstir. Í textanum set ég fram að ég tengi sterkt við þá hugsun að enginn viti hvað framtíðin ber í skauti sér fyrr en öll er. Þess vegna vel ég að elska lífið, njóta þess með mínu fólki og takast á við verkefni sem skora á mig og þroska. Að semja texta og að setja lag sem maður syngur sjálfur á streymisveitur hefur verið bæði krefjandi og spennandi ferðalag. Það vekur örlitla óvissu, en einnig mikla eftirvæntingu að sjá hvernig lagið og textinn ná til fólks. Hvernig myndir þú lýsa uppruna þínum í Vestmannaeyjum – hvaða áhrif hefur hann haft á þig? Ég hef djúpa og einlæga ást til Vestmannaeyja. Að fá tækifæri til að alast þar upp og vera óheflaður „villingur“ í þessu einstaka samfélagi er eitthvað sem ég óska hverju einasta barni. Í Eyjum fékk ég mín fyrstu tækifæri á sviði tónlistar, leiklistar og í atvinnu, sem mótuðu mig bæði persónulega og faglega. Vestmannaeyingar eru með einstakan húmor, og ég tel að þeir hafi kennt mér að taka lífinu ekki of alvarlega og láta ekki þvaður annarra hafa áhrif á mig. Þar eiga enn mínir bestu vinir heima, og nokkrir þeirra hafa meira að segja flutt aftur til Eyja eftir dvöl í Noregi. Samt sem áður upplifði ég á tímapunkti að samfélagið væri lítið, sérstaklega á þeim árum þegar ég var að fóta mig í lífinu og leita leiða til að þroskast og breikka sjóndeildarhringinn. Það var mér mjög hollt að flytja upp á land á sínum tíma og tala nú ekki um að flytja til Noregs og upplifa að búa í mun rólegra samfélagi. En ef ég flyt einhvern tímann aftur heim til Íslands verða Vestmannaeyjar

þó ávallt í efsta sæti, og maðurinn minn, Sturla, segir hið sama: ef hann flytur til Íslands einhvern tíman í lífinu, þá verður það til Eyja.

Hvað saknar þú mest við Eyjarnar nú þegar þú býrð erlendis? Ég sakna vinkvenna og vina minna í Eyjum ótrúlega mikið. Ég sakna einnig þess að upplifa alvöru storm, því þó Norðmenn tali um storm í aðsigi, hef ég á þessum tólf árum í Noregi aldrei fundið fyrir veðri sem kemst í hálfkvisti við það sem við Eyjamenn köllum raunverulegt rok eða storm. Þar er oft aðeins smá blástur, sem fyrir alvöru eyjakonu jafnast á við að fara í lagningu á hárgreiðslustofu. Ég sakna þess líka að ganga inn í Skýlið til Svönu og Ástu Jó , og syngja „Gleði, gleði, gleði “. Leikhúsið í Eyjum er á allt öðrum mælikvarða og mér finnst erfitt að vera ekki lengur hluti af þeirra skapandi og öflugu starfsemi. Ég fylgist þó með úr fjarlægð og gleðst yfir öllu sem þar er gert. Og ég verð að sjálfsögðu að nefna Þjóðhátíðina! Ég sakna hennar! Skemmtilegast hátíð í heimi! Að lokum sakna ég náttúrufegurðarinnar í Vestmannaeyjum ! Þessa ótrúlega, hrífandi umhverfis sem finnur sér engan líkan í heiminum. Kemur þú oft heim til Íslands yfir jólin eða önnur tímabil? Ég óska þess að ég gæti komið oftar heim yfir hátíðarnar, en kostnaðurinn er því miður mikill akkurat á þeim tíma. Þess vegna hef ég valið að heimsækja heimahagana á öðrum tímum ársins, yfirleitt einu sinni á ári. En við eigum okkur þá ósk að koma og upplifa Þrettándann heima í Eyjum einn daginn öll fjölskyldan. Hvaða hefðir hefuru tekið með þér frá Íslandi inn í lífið erlendis? Við höldum fast í íslenskar jólahefðir og bjóðum á hverju ári norskum vinum okkar í hefðbundinn íslenskan jólamat í desember. Þau kunna sérstaklega vel að meta þessa siðvenju, þar sem hangikjöt eða svínahamborgarhryggur eru í aðalhlutverki. Ég hef kynnt börnunum mínum fyrir jólasveinahefðinni og koma íslensku jólasveinarnir í heimsókn til okkar í Kristiansand. Þeir eru ekkert smá öflugir að geta komið alla leið hingað og glatt íslensku/norsku börnin okkar. Við mætum einnig á viðburði sem Íslendingar í suður Noregi halda, og þá fá þau að upplifa alvöru íslenskt Jólaball. Ég hlusta mikið á íslensk jólalög með börnunum mínum og er að kenna þeim að syngja þau, þannig að tónlistin spilar stórt hlutverk í jólaundirbúningnum hér á bæ. Ég legg einnig áherslu á að halda í aðventuhefðirnar, og í ár ætla ég í fyrsta sinn að gera laufabrauð ásamt Kristínu Jónu og Þránni, fjölskylduvinum okkar sem eru líka Eyjamenn sem búa í næsta bæ. Við hlökkum mikið til að prófa þá fallegu og rótgrónu íslensku hefð saman með þeim. Hvað gefur þér mestu ró og gleði í hversdagslífinu? Það sem veitir mér mesta gleði og innri ró er að vita að fólkið mitt hafi það gott og sé ánægt þar sem það


er. Söngur og tónlist hefur ávallt verið mín helsta hvíld og uppspretta gleðinnar, og síðustu misseri hef ég fengið aukið frelsi til að skapa og syngja aftur meira. Ég er orðin virk í að semja ljóð og texta og er jafnframt að vinna að tónverkum sem ég hef haft í vinnslu um lang hríð en ekki haft sjálfstrausið í að útsetja það. Skemmtilegt að segja frá því að á nýju ári kemur út nýtt lag á steymistveiturnar sem er hægt að hlusta á allan ársins hring. Náttúran hér í Noregi er líka stórkostleg og veðrið, hversu fjölbreytt sem það er, býður það upp á einstaka stemningu. Ég nýt hennar til fulls með reglulegum gönguferðum í skóginum, sem veita mér bæði ró og innblástur. Hvað er eitthvað sem fólk veit kannski ekki um þig en þér finnst lýsa þér vel? Þetta er erfið spurning! Ég er opin og reyni að vera alltaf heiðarleg, nánast eins og opin bók (Stundum aðeins of opin bók). Það sem lýsir mér líklega best er sú trú mín að jafnvel þegar á móti blæs, þá rennur upp nýr dagur og á endanum styttir alltaf upp. Ég legg mig fram við að halda jákvæðri afstöðu dag frá degi, og vona að ég geti hjálpað til við að draga fram það besta í fólkinu í kringum mig. Þó að ég hafi þróað með mér ákveðinn skráp í gegnum tíðina, þá er ég innst inni hlý manneskja og legg mig fram við að mæta öðrum af einlægni og virðingu. Hvaðan sækir þú innblástur, bæði í tónlist og lífinu almennt? Vá — innblásturinn og fyrirmyndirnar eru ótal margar! Ég ólst upp í tónlist og leikhúsinu í Eyjum. Mamma mín, Hanna Stóra, var í leikfélaginu alla mína barnæsku og ég horfði upp til Guðlaugar Ólafs, frænku minnar, sem söng út um allt. Jórunn Lilja, systir mín, var líka syngjandi um allan bæ, og ég dáðist að þessum flottu söngkonum. Hver man ekki eftir hljómsveitinni Dancing Mania með Jórunni og Sveini Wage! Í tónlistinni hef ég sótt innblástur til listamanna á borð við Björk, Margréti Eir, Adele, Ettu James, Radiohead, Coldplay, Alanis Morissette og The Cranberries. Ég gæti talið áfram endalaust þegar kemur að tónlistarfólki, en ég dreg líka mikinn styrk af fólki sem sér tækifærin, er jákvætt í eðli sínu og sýnir jafnframt hreinskilni. Í gegnum lífið hef ég átt mér margar fyrirmyndir og reynt að tileinka mér það besta sem hver og ein hefur haft fram að færa. Ég áttaði mig þó ung á því að það er hvorki raunhæft né æskilegt að reyna að feta í hvert einasta fótspor þeirra sem maður lítur upp til. Undir yfirborðinu er nefnilega einstaklingur sem mótast af eigin vonum og þrám, sigrum og sorgum, og það er sú blanda sem gerir okkur einstök. Ef þú gætir sent þér sjálfri skilaboð tíu árum aftur í tímann, hvað myndir þú segja? 1. Ég myndi minna sjálfa mig á að treysta ferlinu og vera þolinmóð. Að lífið hefur sínar áskoranir en líka ótal tækifæri og að ég eigi að halda áfram að hlusta

á innsæi mitt og fylgja því sem gerir mig hamingjusama. 2. Ég myndi segja: „Ekki vera hrædd við að taka séns; það er í gegnum reynslu og mistök sem þú lærir mest. Vertu skapandi og leyfðu þér að prufa þig áfram í tónlistinni. 3. Ég myndi minna sjálfa mig á að það er í lagi að ekki allt gangi eins og maður vonast eftir og að það sem virðist vera hindrun núna getur orðið mikilvægur lærdómur fyrir framtíðina. 4. Ég myndi segja sjálfri mér að vera meira með fjölskyldu og vinum, að hlusta á hjartað mitt og gefa mér leyfi til að vera sú sem ég er, frekar en að reyna að lifa eftir væntingum annarra. Ég myndi segja við mig að ég er nóg, og að ég er akkurat eins og ég á að vera. Síðast en ekki síst, ætla ég líka að minna sjálfa mig á alla daga, að njóta augnabliksins núna, því tíminn líður hratt. Hvert er uppáhalds jólaglaðningurinn eða jólahefðin þín? Ég hef alltaf verið heilluð af jólasveinahefðinni og sögunum um Grýlu, Leppalúða og Jólaköttinn. Þessar sögur hafa fylgt mér frá barnsaldri og skapað sérstaka stemmingu yfir jólunum sem ég elska enn þann dag í dag, og börnin mín fá að upplifa núna. Hvaða tónlist er “þín jólaplata” sem þú þarft alltaf að hlusta á yfir hátíðarnar? Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi Frostrósar og Björgvins Halldórssonar. Það er eitthvað við tónlistina þeirra sem kveikir strax jólahátíðina innra með mér — eins og að stíga inn í kunnuglega og notalega stemmingu. Undanfarin ár hef ég líka átt mér uppáhalds jólatónlistarfólk eins og Valdimar, GDRN og Sigríði Thorlacius. Þau flytja svo fjölbreytt og falleg jólalög, og þau gefa hlýju í hjartað þegar ég hlusta á þau. Og svo er auðvitað verð ég að minnast á Mariah Carey. Jólaplatan hennar Under the Mistletoe hefur eiginlega fylgt mér frá því ég man eftir mér. Hún fer alltaf í spilun hjá mér á hverju einasta ári, ómissandi hluti af minni jólahefð. Eitthvað að lokum? Kæru Eyjamenn, konur, kvár, stálp og hán. Mig langar að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Ég þakka ykkur kærlega fyrir allt það liðna, fyrir stuðninginn, vináttuna og samveruna. Ég vona að lagið „Heim um jólin“ fylli hjörtu ykkar af hlýju og hátíðarskapi og minni okkur öll á að taka vel á móti hvert öðru og njóta þess að vera saman. Nú er lagið einnig aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum – leitið einfaldlega að Arndis Atla og þá birtist það strax! Gleðileg jól og kærar þakkir fyrir mig!


Við erum alltaf á vaktinni

Gleðilega hátíð


GLEÐISPRENGJURNAR SLÓGU Í GEGN Það var þétt setið á tónleikum Gleðisprengjanna síðastliðinn fimmtudag. Addi London lét sig ekki vanta. Hér eru myndir fyrir ykkur sem komust ekki.


Við óskum heimilisfólki, aðstandendum, starfsfólki og velunnurum Hraunbúða gleðilegra jóla, farsæls nýs árs og guðs blessunar. HRAUNBÚÐIR

Þú færð jólagjafirnar fyrir dýrin hjá okkur!

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir það liðna!

Vinsæla skatan okkar er til sölu hjá okkur í Fiskvinnslu VE

eyjadyr.is

Fiskvinnsla VE

Eiði 12 895-1965 - Viðar Elíasson


Sælkeri vikunnar JÓN ÞÓR GUÐJÓNSSON LÉTTSTEIKT RJÚPA MEÐ KIRSUBERJASÓSU Takk fyrir áskorunina Chef Sindri Freyr. Því það styttist óðum í jólin og maður er með delluna, þá ætla ég að henda í smá villibráð. Mæli með að hafa grafna gæs í forrétt og Pinot Noir með í matarboðinu. Innihald: 16 rjúpnabringur salt og nýmalaður pipar 4 msk. olía Kirsuberjasósa 1 laukur, smátt saxaður 2 msk. olía 1½ di púrtvín 1 msk. balsamedik 1-2 di kirsuberjasósa 1 tsk. timían 1 msk. brómberjasulta 4 dl sterkt riúpnasoð sósujafnari 40 g kalt smjör í teningum salt og nýmalaður pipar Aðferð: Kryddið rjúpnabringur með salti og pipar og steikið upp úr olíu á pönnu í 1 mínútu á hvorri hlið eða þangað til kjötið verður fallega brúnt. Setjið bringurnar i eldfast mót og steikið i 180°C heitum ofni i 3 mínútur. Takið þá kjötið úr ofninum og látið standa i 3 mínútur. Endurtakið þangað til bringurnar hafa verið samtals 9 mínútur í ofninum. Berið bringurnar fram með kirsuberjasósunni og blönduðu grænmeti og steiktum kartöflum. Kirsuberja sósa Látið lauk krauma í olíu i potti i 2 mínútur: Bætið púrtvíni, bals-

Jón Þór er sælkeri vikunnar.

amedik, kirsuberjasósu og timían í pottinn og sjóðið niður um ¾. Setjið þá brómberjasultu og rjúpna soð saman við og þykkið með sósujafnara. Takið pottinn af hellunni og bætið smjöri út í.

Hrærið stöðugt bar til smjörið hefur bráðnað, eftir það má sósan ekki sjóða. Smakkið til með salti og pipar. Skora svo á Hjörleif Davíðsson, mág minn, sem er líklega mesti matgæðingur sem ég þekki fyrir utan Sindra.


Við óskum bæjarbúum

Gleðilegra jóla

og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu.

Við óskum Vestmannaeyingum

Gleðilegra jóla

og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu.

Við óskum bæjarbúum

Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir það liðna!


Við sendum landsmönnum öllum hugheilar jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir árið sem er að líða.


Gleðileg jól og farsælt komandi ár Við hjá Landsvirkjun sendum landsmönnum öllum hlýjar jólakveðjur, með ósk um orkuríkt komandi ár.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 34. tbl 07. árg. by Leturstofan - Issuu