Skip to main content

Tígull 22.tbl 08. árg.

Page 1

22. tbl. 08. árg. 17. september 2026

MEÐAL EFNIS:

ÁLFARNIR FÖGNUÐU 590. GÖNGUNNI GAMLA MYNDIN ÍÞRÓT TAMIÐSTÖÐIN 50 ÁRA


Viltu hafa áhrif 2027? Styrtkarsjóður menningar, lista, íþrótta og tómstunda.

Búið er að opna fyrir umsóknir á mínar síður á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar

Upplýsingar um reglur sjóðsins er að finna á vestmannaeyjar.is

VILTU NÁ TIL ALLRA VESTMANNAEYINGA? Auglýsingasími Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir Forsíðumynd: Sigurgeir Jónason.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


HÁGÆÐA VINNUFÖT FÁST HJÁ OKKUR HÆGT ER AÐ ÚTVEGA ALLSKONAR KLÆÐNAÐ Í HINUM ÝMSU STÆRÐUM

Strandvegur 30 / 481 1475 www.midstodin.is / midstodin@midstodin.is


ÁLFARNIR FÖGNUÐU 590. GÖNGUNNI Í VESTMANNAEYJUM Um 40 félagar úr gönguhópnum Álfunum komu í dagsferð til Vestmannaeyja fimmtudaginn 10. september. Tilefnið var ekki af verri endanum, því í Eyjum fór hópurinn í sína 590. göngu. Álfarnir nýttu daginn vel, heimsóttu meðal annars Laxey, Fjarvarmaveituna og Eldheima og gengu um tíu kílómetra um eyjuna. Hvað heitir hópurinn og hvernig varð hann til? „Hópurinn heitir Álfarnir gönguhópur. Hann varð til á höfuðborgarsvæðinu á tímum kórónuveirufaraldursins og hefur raunar haft sterka Eyjatengingu alveg frá upphafi. Ferðafélag Íslands hafði verið með gönguhóp fyrir eldri og heldri, en þegar tveggja metra reglan tók gildi hafði hún óhjákvæmilega áhrif á starfið. Nokkrir göngumenn úr þeim hópi ákváðu þó að sýna dálitla borgaralega óhlýðni og héldu áfram að ganga saman. Allir voru með göngustafi svo hægt væri að pikka létt í þann sem hætti sér of nálægt,“ segja Álfarnir og hlæja. Úr varð öflugur gönguhópur sem hefur stækkað jafnt og þétt. Nú mæta að jafnaði 40 til 50 manns í hverja göngu. Hvernig fara göngurnar fram? „Við göngum tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum frá klukkan tíu til tólf. Hraðinn er það sem við köllum spjallhraða, enda skiptir félagsskapurinn ekki síður máli en hreyfingin.“

Frá vinstri, efri röð: Óskar Veigu Óskarsson, Guðjón Scheving, Viktor Sighvatsson, Eiríkur Þór Einarsson. Neðri röð: Jónas Sigurðsson, Unnur Runólfsdóttir, Auróra Friðriksdóttir, María Pálmadóttir og Bjarni Sighvatsson

Gönguleiðin er ákveðin kvöldið fyrir hverja göngu, eftir að veðurspáin hefur verið skoðuð vandlega. Gengið er víða um höfuðborgarsvæðið, hvort sem það er inni í borginni, meðfram ströndinni eða um opnu svæðin ofan byggðar. „Með því að velja sífellt nýjar leiðir höfum við heimsótt ótrúlega marga staði. Það kemur reglulega fyrir að fólk segist aldrei hafa

komið á ákveðnar slóðir þótt það hafi búið á höfuðborgarsvæðinu alla sína ævi.“ Hvað gangið þið langt hverju sinni? „Algengast er að við göngum um sex til átta kílómetra í hvert sinn. Í Vestmannaeyjum urðu kílómetrarnir þó um tíu og það reyndi því aðeins meira á.“


Allur hópurinn kominn saman.

Hvaða göngur eru eftirminnilegastar? „Ferðirnar til Vestmannaeyja eru svo sannarlega meðal þeirra eftirminnilegustu. Þetta er í annað sinn sem hópurinn kemur til Eyja. Fyrra skiptið var árið 2021, þegar við komum í tveggja daga ferð. Þá vorum við aðeins 17, þannig að hópurinn hefur stækkað mikið síðan.“ Í fyrri ferðinni var meðal annars gengið á Eldfell og nokkrir sem tóku þátt í báðum ferðunum höfðu á orði að gangan upp á fellið hefði verið örlítið erfiðari nú en síðast. „Annars er erfitt að velja eina göngu fram yfir aðra. Það er alltaf

sérstakt að uppgötva nýja staði í góðum félagsskap, jafnvel í sínu nánasta umhverfi.“ Hvernig var deginum varið í Eyjum? „Við byrjuðum á heimsóknum í Laxey og Fjarvarmaveituna. Eftir hádegishlaðborð á Tanganum fórum við í um tíu kílómetra göngu og komum meðal annars við í Eldheimum. Brottför Herjólfs seinkaði svo um hálftíma og við nýttum aukatímann vel með því að ljúka góðum degi á Gott.“ Ferðin markaði tímamót hjá hópnum, enda var þetta 590. gangan frá stofnun hans.

Álfarnir leggja áherslu á að hópurinn sé opinn öllum. Hvorki þarf að skrá sig né greiða þátttökugjald. Eina „skráningin“ felst í því að tekin er hópmynd í hverri göngu. Eyjamenn sem eiga leið um höfuðborgarsvæðið eru sérstaklega hvattir til að slást í för með Álfunum. „Þið getið verið nokkuð viss um að hitta fleiri Eyjamenn í Álfagöngu en hjá Reyni bakara,“ segja þau að lokum. Nánari upplýsingar um göngurnar má finna á Facebook-síðunni Álfarnir gönguhópur.


GAMLA MYNDIN Við höldum áfram að birta myndir eftir Hörð Sigurgeirsson sem starfaði sem ljósmyndari í Vestmannaeyjum um og eftir miðja síðustu öld. Ef þú ert með nöfn eða sögu sem tengist myndunum væri gaman að heyra frá þér! Kíktu á Leturstofuna Vestmannabraut 38 eða sendu okkur tölvupóst á tigull@tigull.is

Jóhannes ´Tómasson og fjölskylda. Fífilgötu 4. Árið 1952

Stúlkur í netagerðinni árið 1952.


PARTÝ Á PALLINUM? PALLASMÍÐI OG VIÐGERÐIR

Almennt v i ð h a ld & smíði!

Er september þinn skoðunarmánuður?

Frumherji í Eyjum Apríl 21. - 24. september

- Allar stærðir ökutækja

(Lokað í hádeginu)

Tímapantanir í síma

570 9090 s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com

Faxastígur 38

SÁLMASKRÁR Tökum að okkur gerð sálmaskráa. PANTA ÞARF TÍMA Í SÍMA 694 7999 eða senda tölvupóst á leturstofan@leturstofan.is

OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11:30 VERIÐ VELKOMIN Í VÖRUHÚSIÐ ALLT ÁRIÐ UM KRING


44 2 21 1

99

44 3 32 2

77 88 77 6 63 3 44

44

#124786 #124786

5 5F

6 65 5

P

X 1I

G

44

11

33

77

I

P

U

V

Z F W Y P B S V 33 2 28 8 X Z Í D X P Q F T 99 1 14 4 77

F

V

U

T

L

A

I

D

O

R

L

K

T

H

L

H

C

N

J

3

X3 N

5

B5 F

66

33 Name:

L

2 29 9

S

88

L

D

U

O

K

B

Ó

E

A

E

X

M

2I 2 M

P

F

N3 3 M

P

E

V

G

S

Y

F

I

N

H

U

L

I

E

I

T

3 39 9

77 O R G N 2 28 8

W

Q

L

1P1 A

U

D

S

P

V

A

K

B

C

S

R

N

W

O

D

G

C

X

6

V6 S

L

D

U

T

P

G

2 2 E8 8V5 5E

6A 6 B

D

Z

U

R

J

Y

L

7F7 5S 5 W

M5 5G

E

L

#16957 W#16957 U E

U

K

Y

G

A

Y

#209146 #209146 E

P

R

R

P

Difficulty: moderate moderate TDifficulty: N R K R

I

L

A

H

Y

Í

Y

E

V

M

J

Y

Z

G4 N

F2 N

Ð

O

B

B

F

T

M

4

2

HAUSTLAUF 2 2 HAUSTLAUF VINDUR UPPSKERUTÍÐ SVEPPIR 88 11 RIGNING SKAMMDEGI

11

3 36 6

55

8 3 8UPPSKERUTíð VINDUR3 KULDI KULDI LOPAPEYSA 99 BERJAMÓ FARFUGLAR

K

2W2 9F 9 A

22 D Z H 9 92 23 3

55

R

X

4 41 1 Q 8 Q8 R

H

H

N

88

Y

V

5 54 4

Difficulty: moderate Difficulty: moderate

G

T

9 97 7

7 71 1

4 4 ORÐARUGL 6 6 T 1T1 P D V R Z A R N R

1 1R

22 88

Created with TheTeachersCorner.net Word Search Maker

A

66

88

#15291 #15291

E

1

E

66 4 43 3

3 35 5 1 18 8 5 51 12 2

Difficulty: moderate Difficulty: moderate

33 J7 7 I

M

55 77

88 22

11

A

77 99

U4 4 I

V

8 A8 A

R

A

Difficulty: moderate Difficulty: A E moderate H

S

R

K

F

H1 F4 A

M

S

RIGNING

SVEPPIR BERJAMó LOPAPEYSA REGNHLíF 44 REGNHLÍF HAUSTLITIR

7 79 9 5 51 1 33

M

1

4

5

5 SKAMMDEGI FARFUGLAR HAUSTLITIR

6 61 1 44

lution at https://sudoku.cba.si/

77

sudoku.cba.si/

udoku.cba.si/

SUDOKU

77


FÉLAGSSTA RFIÐ FER ALLT FR AM Í KVIKU, NEMA ANN AÐ SÉ TEKIÐ FR AM!

FIM

17 SEPT

FIM

17 SEPT

FIM

17 SEPT

ar ZUMBA eg tþr n n MEÐ yERNU ja SIF tilk a byr ur KVIKA b ð r m Ve Zu

kl. 14:00

SÖNGBRÆÐUR LALLA

KVIKA kl. 17:00 - 18:00 SPILAVIST

KVIKU kl. 19:30

FÖS

18 SEPT

MÁN

21 SEPT

MIÐ

23 SEPT

LEIKFIMI MEÐ EYGLÓ

ÍÞRÓTTAHÚS kl. 10:00 PERLUSAUMUR

KVIKA kl. 15:00

SUNDLEIKFIMI

KVIKA kl. 11:20 - 12:00

MIÐ

HANDVERK & HITTINGUR

23

KVIKA kl. 13:00 - 16:00

SEPT

MIÐ

SÖNGDÍVUR SIGURRÓSAR

23

KVIKA kl. 16:00 - 17:00

SEPT

MIÐ

SÖNGHÓPUR LALLA

23

KVIKA kl. 17:00 - 18:00

SEPT

Hressingarganga í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00 Púttsalurinn pútt í kviku virka daga kl. 13:00 - 14:00

SKÁK Hvítur á leik og vinnur!

Hvítur á leik og vinnur!

Skákæfingar ungmenna í Vestmannaeyjum:

laugardögum kl. 10:40 fyrir byrjendur & kl. 11:30 fyrir framhaldshópa


50 ÁR LIÐIN FRÁ ÞVÍ AÐ ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ VESTMANNAEYJA VAR TEKIN Í NOTKUN ÁVARP PÁLS ZÓPHÓNÍASSONAR, FYRRVERANDI BÆJARSTJÓRA OG BÆJARTÆKNIFRÆÐINGI: Páll Zóphóníasson, fyrrverandi bæjarstjóri og bæjartæknifræðingur, flutti ávarp við hátíðarathöfn síðastliðinn laugardag í tilefni 50 ára afmælis Íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja. Páll kom að undirbúningi mannvirkisins allt frá upphafi og rifjaði upp aðdraganda þess og byggingu, sem ráðist var í meðan endurreisn bæjarins eftir eldgosið stóð enn yfir. Í ávarpi sínu fjallaði Páll meðal annars um fjármögnun framkvæmdarinnar, deilur um staðsetningu mannvirkisins og þann mikla áhuga sem fylgdi opnun sundhallarinnar árið 1976. Íþróttamiðstöðin er að hans mati eitt af táknum endurreisnar Vestmannaeyja. Hér á eftir má lesa ávarp Páls í heild sinni. Bæjarstjóri og ágætu Vestmannaeyingar. Í dag eru 50 ár liðin frá því að Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja var tekin í notkun. Það er því við hæfi að líta aðeins til baka og rifja upp hvernig þetta hús varð til – og við hvaða aðstæður. Saga sund- og íþróttaiðkunar í Vestmannaeyjum nær miklu lengra aftur. Sundkennsla hófst hér árið 1892 og fór lengi fram í sjónum undir Löngu. Miðhúsalaug var síðan vígð árið 1934 og var aðalsundlaug bæjarins þar til hún fór undir hraun í gosinu 1973. Aðstaða til íþróttaiðkunar innanhúss var ekki stór í sniðum. Litlir leikfimissalir, í Barnaskólann var salurinn 8,5 sinnum 15 metra og salurinn í Gagnfræðaskólanum var aðeins stærri eða 10 sinnum 20 metrar. Svo kom gosið 1973. Og að því loknu stóð samfélagið frammi fyrir því gríðarlega verkefni að endurreisa bæinn. En menn hugsuðu ekki aðeins um að endurbyggja það sem hafði glatast. Strax var farið að hugsa

Hákon , Íris, Páll og Eyþór á 50 ára afmæli Íþróttamiðstöðvarinnar.

til framtíðar. Í desember 1973, aðeins nokkrum mánuðum eftir að gosinu lauk, skipaði bæjarstjórn framkvæmdanefnd til að undirbúa byggingu varanlegra íþróttamannvirkja. Í nefndinni sátu Kristján Eggertsson tilnefndur af sundlauganefnd, Magnús Bjarnason tilnefndur af bæjarstjórn og Stefán Runólfsson tilnefndur af ÍBV var kosin formaður nefndarinnar. Með nefndinni starfaði ég sem bæjartæknifræðingur. Þana hófst vinna sem átti eftir að verða bæði umfangsmikil, áhugaverð og ákaflega ánægjuleg. Eftir víðtæka þarfagreiningu um stærð og fyrirkomulag í samvinnu við Menntamálaráðuneytið, þar sem um styrkhæfa framkvæmd var að ræða. Almennt var reiknað með að ríkisjóður greiddi 50 % framkvæmdakostnað miðað við að menn héldu sig innan við „norm“ ráðuneytisins. Eftir mikil fundarhöld komust menn að niðurstöðu um stærð og niðurstaðan var sú að reisa skyldi sameinaða íþróttamiðstöð– sundhöll, íþróttasal og nauðsynleg þjónusturými í einni heild.

Verkið var boðið út sem alútboð meðal verktaka á Norðurlöndum. Þrjú tilboð bárust tvö erlend og eitt íslenskt. Ákveðið var að ræða við danska verktakann Klemensen og Nilsen A/S sem hafði skilað næstlægst tilboðinu. Arkitekt hússins var danski arkitektinn og prófessorinn Paul Kærsgaard en verkið var aðallega í höndunum á tveimur arkitektum, HansJacobsen og Hans Crameren. En verktakafyrirtækið sá sjálft um verkfræðihönnun, þar á meðal um burðarvirki, lagnir, loftræsting og raflagnir. Hófst síðan samningaviðræður og var ma farið utan til þess að kanna gæði bygginga sem byggðar eru á hliðstæðan hátt. Bæjarstjórn samþykkti þann 23. desember 1974 að ganga til samninga við verktakann. Við undirbúning samningsins við verktakan kom í ljós að húsið var of stórt og ekki var fjárhagsleg innistæða fyrir öllu því húsnæði sem lýst var í útboðsgögnum og tilboðið byggðist á. Ráðuneytismenn höfðu lofað upp í ermina á sér og treystu sér ekki til að fara fram úr „nomum“ Það varð því að skera niður. Miðálman hafði verið hönnuð á


tveimur hæðum, en efri hæðin var felld niður. Þar með tapaðist bæði rými og hluti af því byggingarformi sem upphaflega hafði verið hugsuð. Unnið var áfram að útfærslu framkvæmdarinnar og meðal annars fóru tveir nefndarmenn og ég til Danmerkur ásamt tveimur fulltrúum Menntamálaráðuneytisins þeim Þorsteini Einarssyni Íþróttafulltrúa og Guðmundi Pálssyni arkitekt . Eftir mikla vinnu við endurskoðun útboðsganga, um frágang og efnisval var endanlegur verksamningur undirritaður hér í Vestmannaeyjum 23. maí 1975. Það er mikilvægt að hafa í huga að þá voru aðeins tvö ár liðin frá eldgosinu og enn unnið af fullum krafti við endurreisn bæjarins. Samt var ráðist í þetta stóra framtíðarverkefni. Í mínum huga er Íþróttamiðstöðin því eitt af táknum endurreisnar Vestmannaeyja eftir gosið. Menn ætluðu sér ekki aðeins að koma bænum aftur í fyrra horf – heldur að byggja hér upp gott og öflugt

samfélag til framtíðar. Framkvæmdir hófust formlega 31. maí 1975 þegar Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra tók fyrstu skóflustunguna. Það hafði reyndar verið nokkur ágreiningur um staðsetninguna. Íþróttafulltrúi ríkisins vildi húsið risi við malarvöllinn í Löngulág en við heimamenn vildum að það risi í Brimhólalaut. Ráðherra skar úr um málið þennan sama dag og Brimhólalaut varð fyrir valinu. Þótt verktakinn væri danskur, voru iðnaðarmennirnir sem unnu við bygginguna langflestir Vestmannaeyingar. Að jafnaði voru 3-5 menn frá verktakanum, verkstjóri, tæknifræðingur og tveir verkamenn og þakpappamaður. Fyrsti starfsmaður Íþróttamiðstöðvarinnar var Vignir Guðnason. Hann var ráðinn frá fyrsta framkvæmdadegi sem umsjónarmaður með framkvæmdum og varð síðar forstöðumaður hússins. Byggingin var stór á íslenskan mælikvarða þess tíma, um 3.300 fermetrar. Þar var 11 sinnum 25 metra sundlaug,

íþróttasalur með 20 sinnum 40 metra velli, búnings- og baðklefar og þjónusturými. Þegar húsið var tekið í notkun þótti það eitt mesta og fullkomnasta íþróttamannvirki landsins. Byggingarkostnaðurinn var um 420 milljónir króna á þáverandi verðlagi, sem samsvarar um 2,1 milljörðum króna á núverandi verðlagi, miðað við byggingarvísitölu, eða rúmlega 600 þús/m2. Eins og áður hefur komið fram var byggingin styrkhæf úr ríkissjóði samkvæmt reglum Menntamálaráðuneytisins „Norm ráðuneytisins“ Við endanlegar úteining Bæjarsjóður Vestmannaeyja að greiða rúmlega 55% byggingarkostnaðarins. („nomin“ gerðu ráð fyrir 50%) Mig langar hér að leiðrétta eitt atriði sem stundum hefur verið haldið fram. Það hefur verið sagt að Íþróttamiðstöðin hafi verið byggð fyrir gjafa- og söfnunarfé eftir gosið. Það er ekki réttað stilla þessu upp á þennan hátt. Gjafir

Uppbyggingarsjóður Suðurlands Opnar 16. september Ert þú með hugmynd sem getur eflt atvinnulíf, nýsköpun og/eða menningu á Suðurlandi?

Umsóknarfrestur 21. október, kl. 14:00 Nánari upplýsingar sass.is/uppbyggingarsjodur

Atvinnuþróun/nýsköpun Menning/samfélag


dyri hússins, ásamt sverði og framhlaðningi, byssu , sem Nilsen hin danski verktaki færði húsinu að gjöf við sama tækifæri. (Þetta eru vopn af sömu gerðar og Herfylkingin notaði. Það væri við hæfi að hengja það aftur upp, því að má segja að Herfylkingin hafi stundað skipulega líkamsrækt, þá fyrst hér landi.) Með vígslu íþróttavallarins var Íþróttamiðstöðin nú orðin sú heild sem stefnt hafði verið að – mannvirki fyrir skóla, íþróttafélög og almenning.

og söfnunarfé bárust vissulega á meðan gosinu stóð og skömmu eftir að því lauk, en það fé var almennt ekki bundið við einstakar framkvæmdir og fyrir löngu notað í annað enda mikið búið að ganga á, bæði á meðan gosinu stóð og efir að því lauk. Að vísu fjármagnaði Vestmannaeyjabær hluta af sínu framlagi með inneign sem hann átti hjá viðlagasjóði, en viðlagasjóður átti inni ógreitt framlag frá Finnlandi. Og það varð samkomulag um að verktakinn keypti hluta af byggingarefninu í Finnandi. Öðru máli gegndi um tæki og búnað sem kostuðu rúmlega 30 milljónir króna, sem samsvarar um 150 milljónum króna í dag. Framkvæmdanefndinni tókst að safna um 14 milljónum, eða um 40% kostnaðarins, sem samsvarar rúmlega 70 milljónum króna á núverandi verðlagi. Það var umtalsvert framlag og ástæða til að halda því sérstaklega til haga þegar rætt er um söfnunarfé í tengslum við byggingu Íþróttamiðstöðvarinnar, sérstaklega þegar það er haft íhuga að nánast allt söfnunarféð kom frá heimamönnum. Síðan rann stóri dagurinn upp. 10. júlí 1976 var sundhöllin vígð. Um 2.000 manns voru við vígsluna – nær helmingur bæjarbúa. Mánudaginn eftir munu 1.329 manns hafa farið í laugina. Það segir sitt um hvað þessi nýja aðstaða þýddi fyrir bæjarbúa. Sundlaugin er á margan hátt frábrugðin flestum öðrum sundlaugum

landsins: Í henni er saltvatn ma af öryggisástæðum, það eru mun meiri líkur á því að bjargs fólki frá drukknun, þar sem lífgun er möguleg eftir 5 mínútur í saltvatni en einungis 2 mínútur í ferskvatni. Og þá er önnur nýung að rennur við laugabarmana má líkja við öldubrjóta og kemur í veg fyrir frákast frá laugarkantinum. Síðar kom í ljós að laugin hér var vinsæl af sundfólki „ því hún var hröð“ minna fákast. Tveimur mánuðum síðar, 12. september 1976, var íþróttahúsið vígt og tekið formlega í notkun. Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra flutti ávarp og lýsti húsið formlega tekið í notkun. Danski verktakinn hafði boðið fimleikaflokki frá Danmörku til hátíðarinnar og sýndi hann listir sýnar. Stefán Runólfsson formaður framkvæmdanefndar hélt ræðu, þar sem hann ma þakkaði Vilhjálmi Hjálmarssyni ráðherra sérstaklega fyrir mikinn velvilja og eftir að hafa lýst byggingunni , afhenti hann Einar H Eiríkssyni forseta bæjarstjórnar lykla að húsinu sem eftir stutt ávarp afhendi síðan Vigni Guðnasyni framkvæmdastjóra hússins lyklavöldin. Einnig hélt Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi erindi um þróun íþrótta í Vestmannaeyjum og um Herfylkinguna, erindi sem var birt og inn rammað, hékk hér upp á vegg and-

Og nú eru liðin 50 ár. Á þessum árum hafa þúsundir barna lært hér að synda og kynslóðir Vestmannaeyinga æft íþróttir, keppt, fagnað sigrum og tekist á við ósigra. Húsið hefur því orðið miklu meira en steinsteypa, límtré, sundlaug og íþróttasalur. Það hefur verið hluti af daglegu lífi Vestmannaeyinga í hálfa öld. Það hefur heldur ekki staðið óbreytt í þessi 50 ár. Um síðustu aldamót var byggður nýr og stærri íþróttasalur við húsið og jafnframt ráðist í umfangsmiklar endurbæt-

ur á eldra húsinu. Búnings- og baðklefar sundlaugar megin hafa síðan verið endurnýjaðir. Fyrir um 15 árum var nýtt útisvæði við sundlaugina tekið í notkun með heitum pottum, rennibrautum og fjölbreyttri leik- og afþreyingaraðstöðu. Með því varð sundlaugin ekki aðeins vettvangur sundkennslu og sundiðkunar heldur


einnig mikilvæg fjölskyldu- og afþreyingarmiðstöð. Á síðasta ári var síðan ráðist í umfangsmikla endurnýjun á tæknibúnaði sundlaugarinnar. Mikilvægur tækj- og lagnabúnaður var endurnýjaður og færður til nútímans. Það er framkvæmd sem sést ekki mikið utan frá en er grundvallaratriði fyrir öruggan og hagkvæman rekstur sundlaugarinnar til framtíðar. Og uppbyggingunni er ekki lokið. Nú er verið að byggja nýja búningsklefa við nýja íþróttasalinn þar sem öll aðstaða verður til fyrirmyndar. Þá bíður enn það verkefni að endurnýja búningsklefana við gamla salinn. Þetta sýnir vel að mannvirki eins og Íþróttamiðstöðin getur aðeins þjónað samfélaginu í hálfa öld ef það fær að þróast með breyttum tímum og nýjum þörfum. Fyrir mig er þessi dagur sérstaklega ánægjulegur. Ég fékk að taka þátt í undirbúningi og byggingu hússins frá upphafi og hef fylgst með því frá fyrstu hugmyndum og fyrstu skóflustungu til dagsins í dag. Mánudaginn eftir munu 1.329 manns hafa farið í laugina. Það segir sitt um hvað þessi nýja aðstaða þýddi fyrir bæjarbúa. Og hingað hef ég komið nánast daglega, hafi ég á annað borð verið í Eyjum. Íþróttamiðstöðin er því ekki aðeins hluti af sögu Vestmannaeyja. Hún er líka stór hluti af minni eigin sögu. Þegar við lítum yfir þessi 50 ár megum við vera stolt af þeirri ákvörðun sem tekin var á erfiðum tíma – að byggja ekki aðeins upp það sem hafði glatast heldur fjárfesta í framtíðinni. Íþróttamiðstöðin er enn í dag lifandi vitnisburður um þá ákvörðun. Mig langar að þakka öllum þeim fjölmörgu sem í gegnum árin hafa stundað sundlaugina með mér, fyrir ánægjulega samveru og góðan félagsskap. Um leið vil ég líka þakka öllum þeim fjölmörgu starfsmönnum sem hafa starfað hér í gegnum árin fyrir gott og ánægjulegt samstarf. Og ég vona að Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja eigi eftir að þjóna Vestmannaeyingum jafn vel næstu

50 árin og hún hefur gert þau fyrstu. Til hamingju með 50 árin – og takk fyrir mig. Páll Zóphóníasson Ljósmyndir: Sigurgeir Jónason.


MYNDIR FRÁ ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐINNI EFTIR SIGURGEIR JÓNASON

Ljósmyndir: Sigurgeir Jónason.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 22.tbl 08. árg. by Leturstofan - Issuu