Skip to main content

Tígull 21.tbl 08. árg.

Page 1

21. tbl. 08. árg. 10. september 2026

HEILSUBLAÐ


HEILSAN OKKAR – ALLA DAGA

Heilsa snýst ekki eingöngu um að mæta í ræktina eða hlaupa ákveðinn fjölda kílómetra. Hún felst líka í svefni, næringu, hvíld, góðum tengslum og því að hlúa að andlegri líðan. Oft eru það litlu skrefin, endurtekin reglulega, sem hafa mest áhrif.

Hvernig hefur þú það – í alvöru?

Í þessu heilsublaði kynnumst við fólki sem starfar að heilsu og hreyfingu í Vestmannaeyjum. Við ræðum við þrjá þjálfara, kynnum okkur fjölbreytta stundatöflu og beinum sjónum að þjónustu sem getur hjálpað okkur að slaka á og hugsa vel um líkamann.

Andleg heilsa er hluti af heilsunni, rétt eins og líkamleg heilsa. Við þurfum öll hvíld, tengsl, öryggi og svigrúm til að takast á við álag lífsins. Stundum hjálpar að fara út, hreyfa sig, hitta góðan vin eða draga aðeins úr kröfunum. Á öðrum tímum þurfum við stuðning og samtal við einhvern sem kann að hjálpa.

Von okkar er að blaðið veiti lesendum innblástur til að finna sína eigin leið að betri líðan. Hún þarf hvorki að vera flókin né fullkomin. Göngutúr í góðum félagsskap, aukinn svefn, nærandi máltíð eða stund í ró og næði getur verið góð byrjun. Munum að heilsan er ekki verkefni sem þarf að klára. Hún er eitthvað sem við hlúum að, einn dag í einu.

TÍGULL

Við erum oft dugleg að spyrja fólk hvernig það hafi það, en gefum okkur sjaldnar tíma til að spyrja okkur sjálf sömu spurningar.

Það er styrkleikamerki að segja frá vanlíðan og leita sér aðstoðar. Enginn þarf að bera allt einn. Gefðu þér augnablik í dag og spyrðu: Hvernig líður mér? Hvað þarf ég einmitt núna? Og er einhver sem ég gæti talað við?

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


ALLT FYRIR IÐNAÐARMANNINN S tr a n dve gi 3 0

|

s. 4 8 1 1475

|

www.midstodin.is

|

midstodin@midstodin. is

|

/ midstodin


STÖÐUGLEIKI SKILAR MEIRI ÁRANGRI EN SKAMMVINN ÁTÖK Einkaþjálfarinn Devon Már Griffin hefur lengi haft mikinn áhuga á líkamsrækt og íþróttum. Í dag starfar hann hjá World Class í Vestmannaeyjum, þar sem hann aðstoðar fólk á öllum aldri og getustigum við að ná betri tökum á heilsunni. Það sem veitir honum mesta ánægju í starfinu er að sjá fólk uppgötva eigin getu. „Mér finnst skemmtilegast að hjálpa fólki að sjá hvað það er í raun fært um að gera og fylgjast með sjálfstraustinu aukast samhliða styrk og betri líðan,“ segir Devon. Þjálfun fyrir alla Devon vill ekki einskorða sig við einn ákveðinn markhóp. Til hans leitar fólk með fjölbreytt markmið, hvort sem það vill léttast, byggja upp styrk og vöðva, bæta almenna heilsu eða einfaldlega koma sér af stað í ræktinni. Honum finnst sérstaklega gefandi að vinna með fólki sem hefur ekki fundið sig í líkamsrækt áður. Ræktin getur virst framandi í byrjun og margir eru óvissir um æfingar, tæki og tækni. Þá skiptir máli að fá leiðsögn við hæfi og öðlast smám saman öryggi. „Það þarf enginn að vera kominn í gott form áður en hann byrjar hjá mér. Það er einmitt tilgangurinn með því að byrja.“ Ég býð einnig upp á fjarþjálfun fyrir þá sem vilja æfa á eigin tíma og stað, með æfingaprógrammi, eftirfylgni og stuðningi.

Devon starfar í dag hjá World Class.

Raunhæf leið að settum markmiðum Nálgun Devons er markviss en jafnframt raunhæf. Engir tveir einstaklingar eru eins og því er þjálfunin sniðin að markmiðum, getu og þörfum hvers og eins. Hann leggur áherslu á góða tækni, stigvaxandi framfarir og að fólk skilji hvers vegna það gerir hverja æfingu.

Fyrsta skrefið er einfalt samtal. Þar er farið yfir markmið, fyrri reynslu, heilsufar og mögulegar takmarkanir. Í framhaldinu eru sett raunhæf markmið og útbúin áætlun sem hentar viðkomandi. Devon segir einnig mikilvægt að hafa gaman af ferlinu, enda verði annars erfitt að viðhalda því til lengri tíma.


Margir viti í meginatriðum hvað þeir eigi að gera en eigi erfitt með að hefjast handa eða halda stöðugleika. Þar geti stuðningur þjálfara skipt sköpum. Devon aðstoðar meðal annars við styrktaruppbyggingu, þyngdarstjórnun, aukið úthald, bætta æfingatækni og reglusemi í hreyfingu. Meira en tala á vigt Árangur snýst þó ekki eingöngu um kíló eða tölur. Devon hefur séð fólk verða sterkara, öðlast meira sjálfstraust og mæta í ræktina með allt annað hugarfar en áður. „Fyrir mér er það stór árangur þegar einstaklingur finnur að hann getur meira en hann hélt og hreyfing verður hluti af lífsstílnum.“ Líkamlegar breytingar og betra form geti vissulega verið hluti af markmiðinu, en mestu máli skipti að byggja upp venjur sem endast. Ekki flækja hlutina Helsta ráð Devons til lesenda er einfalt: Ekki gera hlutina flóknari en þeir þurfa að vera. Fullkomið mataræði og sex æfingar á viku séu ekki nauðsynleg forsenda árangurs. „Byrjaðu á því sem þú getur haldið. Hreyfðu þig reglulega, styrktu líkamann, borðaðu sæmilega, fáðu nægan svefn og vertu þolinmóður. Stöðugleiki til lengri tíma vinnur nánast alltaf á móti stuttum átökum.“ Devon býður upp á einkaþjálfun hjá World Class í Vestmannaeyjum fyrir einstaklinga og litla hópa, tvo til þrjá saman. Hægt er að hafa samband við hann á Facebook undir nafninu Devon Már Griffin, á Instagram undir: @devonmargriffin eða með tölvupósti á devonmarg1997@gmail.com.

„Hvert lítið skref í átt að betri heilsu skiptir máli.“


RAGGA NAGLI – BESTAR Á BREYTÓ & FLEIRI NÁMSKEIÐ HJÁ VISKU Í samstarfi við H-verslun og NOW mætir Ragga Nagli í Visku með frábæran fyrirlestur um breytingaskeiðið. Engin kona 35 ára eða eldri ætti að láta þetta fram hjá sér fara því breytingaskeiðið snertir okkur allar. Með réttri fræðslu og góðum verkfærum er hægt að styðja betur við heilsuna, orkuna og líkamann á þessum nýja kafla. Ragga Nagli verður með tveggja klukkustunda námskeið þar sem farið verður yfir lífsstílsbreytingar fyrir konur á breytingaskeiði, með áherslu á mataræði, hreyfingu, vöðvauppbyggingu og bætiefni. Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um: • Hvernig hreyfing og næring nýtist best á breytingaskeiði • Fitutap og vöðvauppbyggingu • Áhrif hormónabreytinga á líkamssamsetningu • Næringu fyrir og eftir æfingar • Bætiefni fyrir konur á breytingaskeiði

Ragnhildur Þórðardóttir eða Ragga Nagli eins og flestir þekkja hana.

frípassa hjá Metabolic eyjar

Að fyrirlestri loknum gefst tækifæri til að spyrja Röggu spurninga og fá góð ráð. Þátttakendur fá einnig hugmyndir að áhrifaríkum æfingum og mataræði sem styður við heilsu og frammistöðu.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Allar fá veglegan gjafapoka frá H-verslun ásamt afslætti af vítamínum og bætiefnum frá NOW. Einnig fá þátttakendur þriggja vikna

Komdu og fáðu hagnýta fræðslu og verkfæri til að verða best á breytó.

Dagsetning: 19. september Tími: 13:00–15:00 Staðsetning: Viska, Ægisgötu 2 Verð: Aðeins 7.500 kr.

Skannaðu QR kóðann til að skrá þig:


Saman á skrefinu Saman á skrefinu er gönguhópur fyrir þau sem vilja njóta útiveru og hreyfingar í góðum félagsskap. Farið verður í stuttar og einfaldar gönguferðir um Vestmannaeyjar þar sem áhersla er lögð á samveru, hreyfingu og notalega stund saman. Hópurinn hentar öllum sem vilja komast út, hitta fólk og taka skrefin saman í afslöppuðu og styðjandi umhverfi.

Fleiri námskeið hjá Visku Viska býður upp á mörg námskeið og er skráning hafin á haustnámskeiðin. Við hvetjum alla til þess að kíkja á heimsíðu Visku og sjá hvað er í boði. Viskave.is

Viska fræðuslu- og símenntunarmiðstöð býðir einnig uppá: Náms- og starfsráðgjöf, fjarpróf, námsaðstöðu, lesblindugreiningu, fundarsali, raunfærnismat, áhugasviðspróf, námsleiðir, íslenskukennslu og margt fleira.


9 9

3 34 49 9

#72579 #72579

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

6 6 3 38 8

#46116 #46116 SUDOKU

8 8

3 3

5 5

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

4 4

8 8

3 3

1 1

7 7

8 8

2 2

7 7

2 2 3 3

6 62 2 1 1

4 4

2 2

3 39 92 2

4 4

6 65 5

7 7

3 3

1 1

7 71 1 7 7

9 9

2 2

4 4

5 5

6 6

6 6

2 28 8

4 4

#96784 #96784

3 31 15 5

7 7

8 8

4 4

2 2

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

Can't solve it? Check the solution at https://sudoku.cba.si/

7 7

1 1

Get new sudokus at https://sudoku.cba.si/

Get new sudokus at https://sudoku.cba.si/

5 52 2

9 9

5 5

#208789 #208789

Difficulty: Difficulty: moderate moderate Name:

ORÐARUGL

Created with TheTeachersCorner.net Word Search Maker

Z

D

H

F

U

G

X

U

I

N

Æ

R

I

N

G

Q

X

Z

V

B

J

Z

G

I

B

L

Æ

K

N

I

S

S

K

O

Ð

U

N

A

E

V

B

I

E

A

J

K

K

Y

R

D

S

N

T

A

V

S

A

T

L

Y

A

Q

R

D

U

M

D

P

Y

A

M

W W

A

M

J

I

D

L

L

U

H

U

G

L

E

I

Ð

S

L

A

I

M

Z

W

G

Y

Z

Í

P

X

J

R

I

N

R

A

V

R

O

F

S

G

I

U

M

D

Q

Ð

I

Q

M

A

R

Q

G

Ú

T

H

A

L

D

V

Æ

X

W

X

X

A

Q

T

T

V

S

T

Y

R

K

U

R

V

W

K

E

V

E

H

N

N

Q

R

U

G

N

I

T

S

Ý

R

Þ

Ð

Ó

L

B

F

N

M

E

W

G

H

Y

A

P

Q

N

C

N

D

E

K

J

V

J

P

N

F

N

D

D

A

G

S

K

X

U

L

I

J

C

L

N

P

Y

F

Q

I

A

K

W

S

N

X

H

R

E

Y

F

I

N

G

B

I

E

X

E

Z

Q

J

W

HREYFING HREYFING VELLíðAN SVEFN STYRKUR NÆRING ÚTHALD

SVEFN VELLÍÐAN BLóðþRýSTINGUR BLÓÐÞRÝSTINGUR VATNSDRYKKJA HUGLEIÐSLA LæKNISSKOðUN

NæRING

STYRKUR HUGLEIðSLA VATNSDRYKKJA JAFNVæGI JAFNVÆGI FORVARNIR

ÚTHALD LÆKNISSKOÐUN FORVARNIR


Á að fara að mála? 30 % afsláttur af útimálningu

Flugger 03 Wood Tex - Hálfþekjandi málning á við Hálfmött, gegnsæ og öndunarvirk viðarvörn. Hún er hálfþekjandi svo þú sérð æðar og byggingu timbursins í gegn. Áætluð ending efnisins eru 8 ár. Hálfmött viðarvörn með UV-síu. Endist í allt að 8 ár.

www.skipalyftan.is // 488 3550


MÆTING ER ALLTAF BÆTING HJÁ METABOLIC EYJAR Hjá Metabolic Eyjar er lögð áhersla á að hreyfing sé aðgengileg, árangursrík og síðast en ekki síst skemmtileg. Þar leiða þær Eygló, Tinna Þórs og Anika Hera fjölbreytta hóptíma fyrir venjulegt, upptekið fólk sem vill koma reglulegri hreyfingu fyrir í dagskránni án þess að þurfa að snúa lífinu á hvolf. Þær koma úr ólíkum áttum en samanlögð reynsla þeirra af þjálfun og margvíslegri hóptímakennslu spannar meira en þrjá áratugi. Báðar hafa lokið viðeigandi námi í þjálfun og halda áfram að bæta við þekkingu sína, hvort sem er í formlegu námi eða á sérhæfðum námskeiðum. Þjálfun á forsendum hvers og eins Metabolic Eyjar einblínir fyrst og fremst á þjálfun almennings. Markmiðið er að mæta fólki þar sem það er statt og laga æfingarnar að ólíkri getu, reynslu og þörfum. „Það ætla sér ekki allir að keppa í því sem þeir æfa. Margir eru einfaldlega að reyna að halda hreyfingu inni í skipulaginu þrátt fyrir þétta dagskrá og stuttan svefn,“ segja þær. Þess vegna er aðgengileiki rauður þráður í starfseminni. Æfingarnar taka 45 mínútur og eru settar þannig upp að auðveldara sé að koma þeim fyrir í annasömum degi. Áherslan er á örugga þjálfun án öfga og óþarfa meiðslahættu. Metabolic Eyjar býður einnig upp á litla, lokaða námskeiðshópa þar sem bæði æfingar og umhverfi eru

Eygló, Tinna og Anika með æfingu hjá Metabolic Eyjar.

sniðin sérstaklega að þörfum þátttakenda. Þar á meðal eru mömmutímar og stoðkerfistímar sem hafa fengið góðar viðtökur og greinilega svarað raunverulegri þörf. Frí vika til að prófa Fyrsta skrefið er einfalt. Nýir þátttakendur geta skráð sig í ókeypis prufuviku á heimasíðu Metabolic Eyjar þegar þeir eru tilbúnir að hefja þjálfun. Við skráningu berst tölvupóstur með öllum helstu upplýsingum og þegar viðkomandi mætir í fyrsta tímann fær hann aukna athygli og leiðsögn frá þjálfara.

Engin krafa er um að fólk mæti strax þrisvar eða fjórum sinnum í viku og haldi því áfram um ókomna tíð. Mikilvægara er að finna raunhæfan takt og byggja smám saman upp reglusemi. Og það þarf að vera gaman, því ánægjan er einn sterkasti hvatinn til áframhaldandi mætingar. „Mæting er alltaf bæting.“ Smásigrar sem skila sér út í lífið Árangur birtist ekki aðeins í tölum eða stórum stökkum. Smásigrarnir geta falist í betri rútínu, auknu sjálfstrausti, bættri líkamsstöðu,


betri svefni, minni verkjum og meiri áhuga á hollari næringu. Með því að takast sjálfviljug á við krefjandi æfingar byggir fólk einnig upp seiglu. Sú seigla getur nýst þegar raunverulegur mótvindur mætir fólki í daglegu lífi og það stendur frammi fyrir verkefnum sem það hefði helst viljað sleppa. Reglan skiptir mestu máli Helsta heilsuráð Eyglóar, Tinnu og Aniku er að koma reglu á svefn, næringu og hreyfingu. Þær mæla með að byggja máltíðir upp í kringum prótein, drekka nægt vatn og takmarka neyslu orkudrykkja. Góðar svefnvenjur skipta einnig miklu, til dæmis hæfilegt hitastig og lítil birta í svefnherberginu ásamt minni skjánotkun fyrir háttinn. Hreyfingin þarf helst að vera fjölbreytt og efla kraft, styrk, úthald og liðleika. Mestu máli skiptir þó að finna hreyfingu sem veitir ánægju, því þannig aukast líkurnar á reglulegri ástundun. „Við tökum ekki frí frá tannburstun. Af hverju finnst okkur þá sjálfsagt að taka löng og ítrekuð frí frá hreyfingu?“ Almennu hóptímarnir eru stærsti þjónustuþáttur Metabolic Eyjar og veita áskriftarleiðir ótakmarkaðan aðgang að yfir tíu opnum tímum á viku. Einnig eru í boði fjögurra eða sex vikna mömmuog stoðkerfisnámskeið. Allir tímar fara fram í sal 1, gamla salnum, í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Nánari upplýsingar og bókanir eru á www.metaboliceyjar.is. Metabolic Eyjar má einnig finna á Instagram undir @metabolic_eyjar og á Facebook undir Metabolic Eyjar.

Hóptímar Mömmuhópur Stoðkerfishópur www.metaboliceyjar.is

„Veldu þig, heilsuna þína og framtíðina þína — einn dag í einu.“


VESTMANNAEYJAHLAUPIÐ fór fram síðustu helgi


HEILSAN ER LANGHLAUP, EKKI KRAFA UM FULLKOMNUN Anika Hera Hannesdóttir þekkir vel þá tilfinningu að vilja ná árangri en þurfa um leið að láta æfingar og næringu passa inn í raunverulegt líf. Hún starfar sem hóptímaþjálfari hjá Metabolic Eyjar og hefur nú fært út kvíarnar með stofnun AWIX Training, þar sem hún býður upp á einstaklingsmiðaða fjarþjálfun. Anika útskrifaðist sem ÍAK-einkaþjálfari árið 2023 og tók í kjölfarið að sér einstaklinga í einkaþjálfun. Ári síðar hóf hún að kenna hóptíma hjá Metabolic Eyjar, þar sem hún starfar enn. Fyrr á þessu ári lauk hún einnig námskeiði í Nutrition Science hjá Stanford áður en hún tók næsta skref og stofnaði AWIX Training. Meira en tala á vigtinni Í þjálfun sinni leggur Anika mesta áherslu á styrktaræfingar og sérsniðnar æfinga- og næringaráætlanir. Helsti markhópurinn er fólk sem vill öðlast betri yfirsýn yfir æfingar og næringu, er tilbúið að leggja sig fram og vill fá skipulag og aðhald til að hámarka árangurinn. Markmiðin geta verið fjölbreytt: að byggja upp styrk og vöðva, minnka fituforða, efla sjálfstraust eða skapa betri venjur og aga. Nálgun Aniku er persónuleg, hvetjandi og markviss, með ríka áherslu á góða tækni og stöðugar framfarir. „Ég vil ekki að fólk upplifi að það þurfi að vera fullkomið til að ná árangri. Lífið getur verið sveiflukennt og þess vegna finnst mér mikilvægt að vinna með raunverulegar aðstæður hvers og eins.“

Hjá AWIX Training býður Anika upp á einstaklingsmiðaða fjarþjálfun. Ljósmynd: Þórey Hallgrímsdóttir.

Markmiðið sé ekki aðeins að sjá ákveðna tölu á vigtinni eða líta út á tiltekinn hátt. Áherslan sé einnig á að byggja upp venjur, öryggi og sjálfstraust sem nýtist áfram eftir að ákveðnum áfanga er náð. Plan sem passar inn í lífið Fyrsta skref nýrra viðskiptavina er samtal í gegnum samfélagsmiðla. Í framhaldinu sendir Anika spurningalista þar sem meðal annars er spurt um markmið, fyrri reynslu af æfingum, daglegt líf og mataræði. Svörin gefa henni skýrari mynd af þörfum viðkomandi og gera henni

kleift að útbúa plan sem hentar aðstæðum hans. Anika hjálpar fólki að koma reglu á æfingar og næringu, læra rétta framkvæmd og verða öruggara við notkun lóða og tækja. Oft sé vandinn ekki sá að fólk viti alls ekki hvað það eigi að gera. Það sem vanti sé skýrt skipulag, aðhald og einhvern sem hjálpar því að halda sér við efnið. „Mig langar að vera sá þjálfari.“


Þegar breytingin verður stærri en sú líkamlega Það sem Aniku finnst mest gefandi er þegar árangurinn nær út fyrir líkamlegar breytingar. Hún nefnir einstaklinga sem verða öruggari í ræktinni, bæta sig í æfingum, þora að lyfta þyngra og finna jafnvel fyrir betri meltingu og andlegri líðan. Það sé líka einstaklega ánægjulegt að sjá líkamlegan árangur hjá þeim sem leggja vinnuna á sig. Slíkar breytingar gerist þó ekki á einni nóttu. Heilsuna þurfi að hugsa sem langhlaup og það sé heildarmyndin sem skipti mestu máli. Anika ráðleggur fólki að gera daglega hreyfingu að eðlilegum hluta lífsins, rétt eins og vinnu, skóla og öðrum skyldum. Það þurfi ekki að gera allt fullkomlega og einn erfiður dagur eyðileggi ekki ferlið. Regluleg hreyfing og góð næring nú séu fjárfesting í betri heilsu og líðan á efri árum. Einstaklingsmiðuð þjálfun í gegnum AWIX Hjá AWIX Training býður Anika upp á einstaklingsmiðaða fjarþjálfun. Hægt er að fá sérsniðna æfingaog næringaráætlun saman eða velja aðeins annan þáttinn. Viðskiptavinir fá einnig aðgang að æfingamyndböndum og kennsluefni, vikulegu stöðumati og endurgjöf á eigin æfingamyndbönd. Áætlanirnar eru unnar út frá markmiðum, reynslu og aðstæðum hvers og eins og hægt er að laga þær eftir því sem lífið og þarfirnar breytast. Nánari upplýsingar má nálgast á Instagram-síðunni @awixtraining. Einnig er hægt að hafa samband við Aniku í gegnum persónulega Instagram-reikninginn hennar, @anikaahera.

PARTÝ Á PALLINUM? PALLASMÍÐI OG VIÐGERÐIR

Almennt v i ð h a ld & smíði!

s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com

„Á erfiðum dögum er nóg að gera sitt besta — sama hversu lítið það virðist.“


Nýtt í haust & vetur frá


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 21.tbl 08. árg. by Leturstofan - Issuu