Skip to main content

Tígull 20.tbl 08. árg.

Page 1

20. tbl. 08. árg. 3. september 2026

MEÐAL EFNIS:

SÆLKERI VIKUNNAR MYNDASYRPA ADDA Í LONDON SÉR FRAMTÍÐINA Í VESTMANNAEYJUM


NÝFÆDDIR VESTMANNAEYINGAR Tígull óskar fjölskyldunni innilega til hamingju! RICHARDSSON Fæðingardagur: 21. ágúst 2026 Foreldrar: Dagbjört Nótt Jónsdóttir og Richard Óskar Hlynsson

Móður afi og amma: Ágústa Ágústsdóttir og Kristinn Steinarsson Föður afi og amma: Svetlana Luchyk og Hlynur Sigmarsson

Þyngd: 3924 g Lengd: 51,5 cm

SKÁK

Hvítur á leik og vinnur! Skákæfingar ungmenna í Vestmannaeyjum: laugardögum kl. 10:30 fyrir byrjendur & kl. 11:00 fyrir framhaldshópa

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir Forsíðumynd: Addi London

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


ALLT FYRIR IÐNAÐARMANNINN S tr a n dve gi 3 0

|

s. 4 8 1 1475

|

www.midstodin.is

|

midstodin@midstodin. is

|

/ midstodin


ROLAND MERKAJ SÉR FRAMTÍÐINA FYRIR SÉR Í VESTMANNAEYJUM

Roland á verkstað. Roland Merkaj er 32 ára pípulagningameistari með langa reynslu í faginu, bæði erlendis og á Íslandi. Hann kom til Íslands árið 2017 og hefur síðan byggt hér upp líf sitt og starfsferil. Árið 2026 lá leið hans til Vestmannaeyja þar sem eitt verkefni varð fljótt að fleirum. Í dag rekur Roland fyrirtækið RD Lagnir og segir verkefnin í Eyjum hafa verið að bætast jafnt og þétt við. Roland á tvö börn á Íslandi, dæturnar Viktoríu Örnu, 6 ára, og Emblu Björk, 1 árs. Börnin skipa stóran sess í lífi hans og þegar hann horfir til framtíðar segist hann sjá mikil tækifæri í Vestmannaeyjum. Byrjaði ungur í pípulögnum Roland byrjaði ungur að vinna við pípulagnir. Hann starfaði við fagið í Grikklandi frá árinu 2007 til 2016 og öðlaðist þar mikla verklega reynslu sem varð grunnurinn að

áframhaldandi starfsferli hans. Árið 2017 kom Roland til Íslands og hélt áfram að starfa við fagið hér á landi. Árið 2018 hóf hann störf hjá Sigurjóni Pípara í Reykjavík, þar sem hann starfaði til ársins 2023. Þar kynntist hann íslenskum byggingariðnaði vel og öðlaðist dýrmæta reynslu af þeim kröfum og vinnubrögðum sem tíðkast hér á landi. Meistaraprófið stór áfangi Eftir áralanga verklega reynslu ákvað Roland að styrkja stöðu sína enn frekar í faginu með frekara námi. Hann fór í meistaranám við Tækniskólann og útskrifaðist úr meistaranáminu árið 2025. Ég hafði þá unnið lengi við pípulagnir og fannst mikilvægt að bæta náminu við reynsluna. Meist-

araprófið var stór áfangi fyrir mig og opnaði fyrir mig ný tækifæri. Með meistaramenntuninni bættist formleg menntun við þá miklu verklegu reynslu sem Roland hafði þegar aflað sér í Grikklandi og á Íslandi. Leiðin lá til Vestmannaeyja Árið 2026 kom Roland til Vestmannaeyja á eigin vegum og tók að sér verkefni fyrir Sigurgeir Sævaldsson. Það sem átti í upphafi að vera eitt verkefni varð fljótt að fleirum og síðan þá hafa verkefnin í Vestmannaeyjum verið að bætast jafnt og þétt við. Roland segir eitt verkefni oft hafa leitt af sér annað og að það hafi verið sérstaklega ánægjulegt að finna fyrir því trausti sem honum hefur verið sýnt. Þetta hefur þróast mjög eðlilega. Ég kom hingað til að taka að mér


verkefni og síðan hefur þetta bara undið upp á sig. Verkefnin hafa verið að bætast við jafnt og þétt og ég er mjög þakklátur fyrir þær móttökur og það traust sem mér hefur verið sýnt hér í Eyjum. Með hverju nýju verkefni hefur Roland jafnframt kynnst fleiri Eyjamönnum og samfélaginu betur. Það er einmitt samfélagið sem hann segir hafa komið hvað mest á óvart. Mér finnst samfélagið hérna frábært Roland talar hlýlega um Vestmannaeyjar og segir móttökurnar hafa haft mikil áhrif á sig. Mér finnst samfélagið hérna frábært. Mér hefur verið mjög vel tekið og það er eitthvað sérstakt við nálægðina hér. Maður kemur hingað til að vinna eitt verkefni og áður en maður veit af er maður farinn að þekkja fullt af fólki og verkefnin orðin fleiri. Hann segir þessa nálægð einnig þýða að mikilvægt sé að standa sig vel. Í litlu samfélagi skipti orðspor, traust og góð samskipti miklu máli. Fyrir mér skiptir mestu máli að standa við það sem maður segir og skila góðu verki. Hér spyrst það fljótt út ef fólk er ánægt með vinnuna þína. Rekur RD Lagnir í dag Í dag rekur Roland fyrirtækið RD Lagnir, þar sem hann nýtir þá þekkingu og reynslu sem hann hefur byggt upp á löngum ferli sínum í pípulögnum. Hann segir markmiðið vera að byggja fyrirtækið upp af yfirvegun og leggja áherslu á góða þjónustu, vönduð vinnubrögð og traust viðskiptavina. Í dag rek ég RD Lagnir og verkefnin hér í Vestmannaeyjum hafa verið að bætast jafnt og þétt við. Ég er mjög ánægður með hvernig þetta hefur þróast og sérstaklega þakklátur fyrir það traust sem fólk hér hefur sýnt mér.

Roland með dóttur sinni Viktoríu Örnu. Sér framtíðina fyrir sér í Vestmannaeyjum Þegar Roland kom til Vestmannaeyja árið 2026 var það fyrst og fremst vegna verkefnis í pípulögnum. Eftir því sem verkefnunum hefur fjölgað hefur áhugi hans á Eyjum hins vegar aukist. Með mikla starfsreynslu, meistaramenntun og eigin rekstur sér hann góð tækifæri til að halda áfram að byggja upp starfsemi sína í Vestmannaeyjum. Mér líður mjög vel hér og ég sé mikla möguleika. Ég vil halda áfram að byggja RD Lagnir upp, veita góða þjónustu og vonandi

verða bæði ég og fyrirtækið hluti af samfélaginu hér til framtíðar. Það sem hófst með einu verkefni fyrir Sigurgeir Sævaldsson hefur því undið töluvert upp á sig. Verkefnin hafa orðið fleiri, kunningsskapurinn aukist og tengsl Rolands við Vestmannaeyjar orðið sterkari. Eftir tæpan áratug á Íslandi, áralanga reynslu í faginu og meistarapróf í farteskinu horfir Roland Merkaj bjartsýnn til framtíðar. Það er greinilegt að Vestmannaeyjar eiga stóran sess í framtíðaráformum hans.


GAMLA MYNDIN Við höldum áfram að birta myndir eftir Hörð Sigurgeirsson sem starfaði sem ljósmyndari í Vestmannaeyjum um og eftir miðja síðustu öld. Ef þú ert með nöfn eða sögu sem tengist myndunum væri gaman að heyra frá þér! Kíktu á Leturstofuna Vestmannabraut 38 eða sendu okkur tölvupóst á tigull@tigull.is

Heimilisfólk Helgafellsbraut 18. 1950.

Jóhann Sigfússon og fjölskylda. 1951.


ALLT Á EINUM STAÐ! Smíðavinna Pípulagnir Múrvinna Gólfhitafræsing

Sólpallar Skjólveggir Milliveggir Eldhúsinnréttingar

www.aglverktakar.is

AGLverktakar@gmail.com 896-0074 Jónas AGLverktakar

AGLverktakar

Parketlögn Gluggaskipti Hurðir Baðherbergi


3 3 2 2

5 5

#59319 #59319

8 8

#58944 #58944 SUDOKU

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

5 5 4 4

4 45 5

7 73 34 4

8 8

5 51 13 3

8 84 4 9 9

7 7

5 52 2

9 9

4 4

2 2

7 73 3

6 6 3 38 8

1 1

3 34 49 9

#72579 #72579

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

1 1

#46116 #46116

Difficulty: Difficulty: moderate moderate Name:

3 3 ORÐARUGL 5 5 4 4

Created with TheTeachersCorner.net Word Search Maker

8 8

7 7

H

F

I

Ð 8 R8 I

L

D

I 8Q8 G

O

X

Q

U2 2 K

R

R

D

D

G

C

X

H

J

S

O

H

V

G

T

U

S

V

Ó

Y

V

K

4 E4 X

2 P2

F

Q

3V 3 L

U6 6 P

M

6 6A2 2K

2B 2 V

E

R

K

H

T

O

I

A

D

K

V

R

T

Z

M

L

9I 9N

V

V

K

J

W

O

R

Ð

H

D

1 1

5 5N

6 6

6 6

4 46 6 6 6

4 4

8 8

2 2

4 4

M 3 3R

4 4

9 9

1 17 78 8

7 7

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

1 12 2

3 3

6 6

7 7H

8 87 7

4 43 32 2

3 39 92 2

7 7

4 R4 E

7 U7 R

A

N

Ó

Z

R

M

R

L

O

H

U

L

K

S

G

L

2J 2 Ó

F

L

F

O

X

V

M

S

M

G

L

I

Z

E

G

A

L

U

G 6 A6 J

A 4S 4 I

R

I

J

N

T

A

V

E

L

O

R

Z

T

E

B

I

R

F

N

Y

Q

R

6 65 5

7 71 1

K

X

W

1 1

3E 3W 1 1B5 5N 8 U 8R

Can't solve it? Check the solution at https://sudoku.cba.si/

8 81 1

Get new sudokus at https://sudoku.cba.si/

Get new sudokus at https://sudoku.cba.si/

2 2

3 3

7 7

L 4 4

Y

A

F

U

9 9A X

A

G 5 X5

L2 2A8 8 L

Ð

E

#96784 #96784

J

T

V

S

A

O

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

B

C

R

A

B

#208789 #208789

D

E

M

A

N

T

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

U

R

T

A

A

H

I

D

H

M

E

N

R

Á

J

U

L

F

F

Ö

V

G

Q

H

F

Í

L

H

L

L

A

F

W

I

B

B

A

R

K

L

O

K

U

G

KAKTUS KAKTUS NORðURLJóS DREKAFLUGA RISAEðLA VÖFFLUJÁRN VATNSMELóNA

DREKAFLUGA NORÐURLJÓS KOLKRABBI KOLKRABBI FIðRILDI SÓLGLERAUGU FALLHLíF

U 2Z 2 N

VöFFLUJáRN

RISAEÐLA SóLGLERAUGU VATNSMELÓNA FIÐRILDI FALLHLÍF HAMINGJA HAMINGJA DEMANTUR DEMANTUR


SÆLKERI VIKUNNAR: Friðrik Már Sigurðarson

Nautalund sem getur ekki klikkað Ég þakka ástkærri tengdamóður minni fyrir áskorunina, sannkallaður heiður að koma á eftir henni, algjör snillingur í eldhúsinu. Hráefni: 1stk nautalund ca 1,5-2 kg Íslenskt smjör Rósmarín lauf Salt & pipar (eða hvaða krydd sem ykkur þykir gott) Plastfilma Aðferð: Takið lundina úr ísskáp í síðasta lagi í hádeginu daginn sem hún er elduð. Ég byrja á að hreinsa lundina og nudda ólifuolíu á hana og sker í burtu sinina. Því næst krydda ég hana vel með salti og pipar. Svo er lundinni komið fyrir ofan á plastfilmu og set ég rósmarin laufin yfir og nokkrar smjör klípur ofan á. (því meira því betra að mínu mati). Svo er nautalundinni vafið þétt inní plast filmu og gott er að fara allaveg 4-5 sinnum utan um lundina þannig að það nái enginn safi að leka úr. Set kjötið inn í ofn í plastinu á 65°C blástur í 2 tíma. Svo er kjötið tekið út látið standa í ca. 10 mínútur á meðan ég hita grillið í hæsta hita. Svo grilla ég kjötið í 2-2,5 mín á hvorri hlið á sjóðandi heitu grillinu og hvílt aftur í 10 mínútur áður en það er skorið. Þetta hefur enn ekki klikkað og kemur sennilega aldrei til með að gera það. Meðlæti: Bökunarkartöflur, grillað grænmeti og góð sósa. (sveppasósa eða bernaise).

Ég skora á eðlukónginn Theodór Sigurbjörnsson að koma með næstu uppskrift.


SÁLMASKRÁR Tökum að okkur gerð sálmaskráa. Panta þarf tíma í síma 694 7999 eða senda tölvupóst á leturstofan@leturstofan.is

PASSA

MYNDIR TÖKUM PASSAMYNDIR FYRIR ÖKUSKÍRTEINI OG ÖNNUR SKÍRTEINI

PANTA ÞARF TÍMA

Í SÍMA: 694 7999 (LIND)

VESTMANNABRAUT 38

Viltu minnast látins ættingja eða vinar? Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, afa og langaafa.

KRISTINS VIÐARS PÁLSSONAR Fyrir hönd aðstandenda Hrefna G. Tómasdóttir

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi, þér að kostnaðarlausu. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef. Verð: 18.600 kr.


Takmarkað magn

Meðan birgðir endast SÍÐUSTU EINTÖK Og frábær tilboð

T.

5-6. SEP

LA OPIÐ ALNA

HELALUGAGRDI. 11-17

. 13-17

SUNNUD

ALLT AÐ

50FS.L0ÁT0TU0R A

2. september 2026 • Birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl

RÝMINGARSALA Fartölvur • Borðtölvur • AIO Skjátölvur Leikjafartölvur Leikjaturnar • Skjáir Prentarar • Mýs • Lyklaborð • ofl.


LUNDAPYSJUM SLEPPT myndasyrpa frá Adda í London


Verkstjóri veitukerfa Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf verkstjóra veitukerfa HS Veitna í Vestmannaeyjum.

Frekari upplýsingar á hsveitur.is/storf

Við færum fólki birtu, yl og vatn hsveitur.is

PARTÝ Á PALLINUM? OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11:30

PALLASMÍÐI OG VIÐGERÐIR

Almennt v i ð h a ld & smíði!

VERIÐ VELKOMIN Í VÖRUHÚSIÐ ALLT ÁRIÐ UM KRING

s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com


5. september 2026

Ræst verður frá Íþróttamiðstöðinni kl.12:30

Skráning inn á netskráning.is


Tryggingaráðgjafi í Vestmanneyjum Við auglýsum nú laust starf ráðgjafa í tryggingaráðgjöf í útibúi Landsbankans í Vestmannaeyjum. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og við leitum að öflugum og jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund, framúrskarandi samskiptahæfileika og mikinn metnað. Helstu verkefni og ábyrgð: ● Veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina ● Bjóða viðskiptavinum trausta tryggingaráðgjöf og yfirferð á vernd þeirra ● Vinna þétt með öðrum einingum samstæðunnar að því að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu ● Frumkvæði að umbótum sem auka ánægju viðskiptavina ● Ýmis önnur spennandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur: ● Menntun sem nýtist í starfi ● Reynsla af þjónustustörfum eða ráðgjöf ● Reynsla af tryggingum er kostur ● Rík þjónustulund, samskipta- og skipulagshæfni

● Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður í starfi ● Góð íslensku- og enskukunnátta ● Önnur tungumálakunnátta kostur

Umsóknarfrestur er til og með 13. september. Nánari upplýsingar veita Jón Óskar Þórhallsson útibússtjóri jon.o.thorhallsson@landsbankinn.is og Guðrún Kvaran mannauðsráðgjafi gudrun.kvaran@landsbankinn.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 20.tbl 08. árg. by Leturstofan - Issuu