Skip to main content

Tígull 19. tbl 08. árg.

Page 1

19. tbl. 09. árg. 20. ágúst 2026

DOCTOR VICTOR & FJÖLSKYLDA KVEÐJA EYJUNA Í BILI!


RÖKÞRAUT VIKUNNAR Morgunstund í Eyjum Fjórir Vestmannaeyingar, Anna, Bjarni, Dóra og Einar, ákváðu að verja laugardagsmorgni á fjórum ólíkum stöðum í Heimaey. Hvert þeirra tók með sér ólíkt nesti. Staðirnir voru Eldheimar, Herjólfsdalur, Skansinn og Stórhöfði. Nestið var flatkökur, kaffi, kakó og kleinur. Getur þú fundið út hver fór hvert og hvaða nesti hvert þeirra tók með sér? Vísbendingar: 1. Einar fór hvorki að Stórhöfða né í Eldheima. 2. Einar tók ekki með sér flatkökur. 3. Dóra fór hvorki á Skansinn né í Eldheima. 4. Sá sem fór í Herjólfsdal tók með sér flatkökur. 5. Bjarni tók með sér kaffi. 6. Kaffið var drukkið í Eldheimum. 7. Anna tók með sér kleinur. 8. Sá sem tók með sér kleinur fór ekki á Skansinn. Nafn:

Staður:

Nesti:

Anna Bjarni Dóra Einar Lausn þrautarinnar: Nafn Arna Bjarni Dóra Einar

Staður Stórhöfði Eldheimar Herjólfsdalur Skansinn

Nesti Kleinur Kaffi Flatkökur Kakó

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir Forsíðumynd: Jón From Iceland.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


SENDUM FllaRr fÍaTrtöTlvur A

um land

allt

Ð

ALLT A

50%

TUR AFSLÁVUTTÖSKUM ÖL

AF FART

Verð frá

Verð frá

49.990 Skólafartölvur

1.492

Fartölvutöskur

20. ágúst 2026 • Birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl

Þú finnur réttu fartölvuna í skólann á tolvutek.is

úrvalið Skoðaðu du þér og gæd ndi ís á svala


VESTMANNAEYJAR VERÐA ALLTAF SÉRSTAKUR STAÐUR FYRIR OKKUR

Victor og fjölskylda - Dagbjört, Frosti og tvíburarnir Máni og Stormur á Tenerife fyrr á árinu. Victor Guðmundsson læknir, frumkvöðull og tónlistarmaður hefur ásamt fjölskyldu sinni búið í Vestmannaeyjum síðastliðið ár. Árið hefur verið viðburðaríkt svo ekki sé meira sagt, en Victor hefur unnið að uppbyggingu Lifeline Health og Fjarlækninga, þróað tónlistarverkefnið Doctor Victor og steig nú í sumar á stóra sviðið í Herjólfsdal á Þjóðhátíð. Nú er fjölskyldan á leið aftur upp á land eftir árið í Eyjum. Við settumst niður með Victori og ræddum um lífið í Vestmannaeyjum, fjölskylduna, heilbrigðisverkefnin, tónlistina og hvað tekur við. Hvernig kom það til að þið fjölskyldan fluttuð til Vestmannaeyja? Það var í raun alltaf planið að koma hingað í eitt ár. Við Dagbjört erum bæði læknar og okkur langaði að koma hingað, leggja okkar af mörkum innan heilbrigðiskerfisins og prófa um leið að búa í Vestmannaeyjum með strákana okkar þrjá.

Við vissum því frá upphafi að þetta væri hugsað sem eins árs ævintýri og að við myndum líklega flytja aftur í bæinn að því loknu. En það sem við gerðum kannski ekki alveg ráð fyrir var hvað okkur myndi líða vel hér og hversu tengd við yrðum Eyjunum á þessum stutta tíma. Þannig að núna þegar árið er liðið og komið að flutningunum er þetta miklu skrýtnara en ég bjóst við. Það er ákveðinn söknuður strax farinn að gera vart við sig. Hvernig hefur verið að búa hér með þrjú ung börn? Algjörlega frábært. Það er líklega eitt af því sem við eigum eftir að sakna mest. Vestmannaeyjar eru einstakur staður til að vera með börn. Það er nálægð við allt, náttúran er bókstaflega allt í kringum mann og hér er ákveðið frelsi sem er erfitt að finna annars staðar. Maður er kominn nánast hvert sem er á nokkrum mínútum og það gefur manni meiri tíma með

fjölskyldunni. Strákarnir hafa notið sín ótrúlega vel og fyrir okkur Dagbjörtu hefur verið mjög dýrmætt að fá að upplifa þetta ár með þeim hér. Svo er það auðvitað fólkið. Okkur hefur verið tekið ótrúlega vel frá fyrsta degi. Við höfum eignast góða vini og fundið mikla hlýju frá samfélaginu. Það er alls ekki sjálfsagt að flytja á nýjan stað með fjölskylduna og upplifa svona sterkt að maður sé velkominn. Þú hefur verið með ansi mörg járn í eldinum samhliða læknisstarfinu. Hvað hefur verið að gerast? Já, þetta hefur verið svolítið klikkað ár þegar maður lítur til baka - en mjög skemmtilegt! Ég hef lengi haft mikinn áhuga á nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og sérstaklega því hvernig við getum nýtt tækni og nýjar leiðir til að bæta þjónustu og heilsu fólks. Tvö verkefni hafa verið sérstaklega stór hjá mér síðustu ár, Lifeline


Health og Fjarlækningar, og það skemmtilega er að bæði hafa fengið að taka mjög mikilvæg skref hér í Vestmannaeyjum. Ég hef stundum sagt að Vestmannaeyjar séu eyja tækifæranna og ég held að þetta ár hafi eiginlega sannað það fyrir mér. Segðu okkur aðeins frá Lifeline Health. Hvað eruð þið að gera þar? Lifeline Health er heildræn heilsuþjónusta sem ég stofnaði ásamt frábæru teymi lækna, en Mads Aanesen læknir sem er nú kominn til Vestmannaeyja að starfa næstu vikur hefur verið með mér í báðum verkefnum. Grunnhugmyndin hjá Lifeline Health er að færa meiri áherslu yfir á forvarnir og hjálpa fólki að skilja eigin heilsu betur áður en vandamálin verða alvarleg. Við horfum meðal annars á fjóra grunnþætti heilsunnar sem við leggjum mikla áherslu á: hreyfingu, næringu, svefn og andlega líðan. Síðan tengjum við það við heilsufarsmælingar, blóðprufur, læknisfræðilegt mat og persónulega áætlun. Eitt af fyrstu stóru verkefnunum okkar fór af stað hér með Vestmannaeyjabæ og það hefur skipt okkur gríðarlega miklu máli. Hér höfum við fengið tækifæri til að prófa hugmyndina í raunverulegu samfélagi, fá endurgjöf og þróa þjónustuna áfram, en við höfum unnið verkefnið í nánu samstarfi við Veru Lífsgæðasetur sem er með frábæra starfsemi í gangi hér í Vestmannaeyjum. Við erum núna farin að horfa á næstu skref og hvernig við getum byggt Lifeline Health upp víðar um landið, en þótt fyrirtæki og sveitarfélög hafi verið fókusinn í upphafi þá er markmiðið að geta boðið öllum í Vestmannaeyjum upp á heilsufarsskoðun á næstunni. Og nú eru Fjarlækningar líka að fara af stað hér í Vestmannaeyjum? Já, og mér þykir ótrúlega vænt um það. Fjarlækningar er verkefni sem ég hef unnið að með frábæru teymi undanfarin ár. Hugmyndin

Davíð yfirlæknir, Iðunn hjúkrunarfræðingur og Díana forstjóri HSU - ásamt Mads og Victori, læknar og stofnendur Fjarlækninga og Lifeline Health. er að einfalda aðgengi að læknisþjónustu vegna algengra og afmarkaðra heilsufarsvandamála sem ekki þurfa endilega líkamsskoðun. Sjúklingur getur þá sent inn erindi, svarað stöðluðum spurningum um einkenni sín og læknir fer yfir upplýsingarnar og metur hvað sé viðeigandi næsta skref. Þetta á auðvitað ekki við um bráð eða alvarleg veikindi, heldur er markmiðið að nýta fjarþjónustu þar sem hún á raunverulega við. Núna er samstarf hafið milli Fjarlækninga og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og þjónustan verður fyrst prófuð hér í Vestmannaeyjum. Markmiðið er síðan að læra af reynslunni hér og þróa þjónustuna áfram áður en horft verður til frekari útvíkkunar innan HSU og vonandi um land allt eftir það en fólk getur nálgast þjónustuna á heimasíðu okkar www.fjarlaekningar.is. Þjónustan er að sjálfsögðu enn í þróun, en við erum mjög opin fyrir því að fá ábendingar frá fólki hér í Vestmannaeyjum svo við getum aðlagað þjónustuna og gert hana eins þægilega og hægt er, en við viljum reyna minnka álag og biðlista ásamt því að auka aðgengi að læknisþjónustu um land allt. Þar

notum við til dæmis sjálfspróf sem fólk getur sótt á heilsugæslu ef grunur er um streptókokkasýkingu, þvagfærasýkingu eða annað en þetta mun vonandi létta álagið á heilbrigðiskerfinu hér í Eyjum. Mér finnst mjög sérstakt að þetta skuli gerast akkúrat núna þegar við fjölskyldan erum að flytja, en við erum að kveðja Eyjarnar á sama tíma og Fjarlækningar eru í raun að hefja nýjan kafla hér. Þetta eru því frekar mögnuð tímamót og ég er mjög spenntur fyrir framhaldinu. Það er þó ekki bara læknirinn Victor sem hefur haft nóg að gera í Eyjum. Hvernig hefur tónlistin þróast á þessu ári? Tónlistin hefur tekið gríðarlega mikið pláss og ég er mjög spenntur fyrir því sem er fram undan. Ég hef spilað á píanó frá því ég var barn og tónlistin hefur alltaf verið stór hluti af mér, þó að læknisfræðin hafi síðan orðið hinn stóri hluti lífsins. Undanfarin ár hef ég verið að sameina þetta meira undir Doctor Victor verkefninu og núna finnst mér ég loksins vera kominn á stað þar sem ég veit nákvæmlega hvað mig langar að gera með tónlistina. Vestmannaeyjar hafa verið ótrú-


lega góður staður til að skapa. Hér er eitthvað við náttúruna, kyrrðina og orkuna sem gefur manni innblástur. Við héldum meðal annars “music camp” eða lagasmíðabúðir hér í Eyjum í vor þar sem hópur af frábæru tónlistarfólki kom saman og við eyddum nokkrum dögum í að semja og framleiða tónlist. Það var mjög gaman að geta boðið fólki hingað og gert Vestmannaeyjar að hluta af sköpuninni, en þar voru meðal annars erlendir tónlistarmenn sem höfðu aldrei séð jafn flotta náttúru.

augnablik sem ég hef upplifað sem tónlistarmaður. En það sem gerði þetta enn sterkara fyrir mig var að við vorum búin að búa hér í heilt ár. Ég var ekki bara að koma með Herjólfi til að spila á Þjóðhátíð og fara svo aftur heim. Vestmannaeyjar voru orðnar heimilið okkar. Við þekktum fólkið, samfélagið og staðinn á allt annan hátt - að standa þarna og horfa yfir Herjólfsdal, eftir árið sem við höfðum átt hér, var eiginlega erfitt að lýsa. Ég endaði svo með að loka stóra

Victor og Eva Mey systir hans lokuðu stóra sviðinu á Þjóðhátíð 2026. Ég var annars duglegur að spila hér í bænum þegar tími gafst, en Lundinn og allt fólkið þar á sérstakan stað í hjartanu mínu. Við höfum byggt upp ótrúlega skemmtilega stemningu þar síðustu ár sem hefur bara stækkað með tímanum, meðal annars með Lundapartýinu og Lundatjaldinu á Þjóðhátíð og fleira. Það hefur verið ótrúlega gaman að fá að vera hluti af því öllu, enda mikilvægt að muna að skemmta sér líka! Og svo endaði þetta eiginlega með ansi stórum hætti á Þjóðhátíð? Já, það var algjörlega ógleymanlegt - að fá að standa á stóra sviðinu í Herjólfsdal og spila fyrir allan þennan fjölda var eitt stærsta

sviðinu á Þjóðhátíð á sunnudeginum með systur minni Evu Mey sem hefur einmitt starfað hér sem læknir síðasta árið, svo það var frábær endir á þessu ótrúlega ári og mögnuðu Þjóðhátíð. Ég verð að gefa öllu því einstaka fólki sem kom að hátíðinni mikið hrós - fólkinu í Dalnum, nefndinni, ÍBV og öllum þeim sem komu að því að gera þessa hátíð svona magnaða. Þetta var án efa ein besta Þjóðhátíð sem maður hefur upplifað og veðrið var ótrúlegt. Ég hlakka strax til að mæta aftur á næsta ári! Hvar sérðu helstu tækifærin í Vestmannaeyjum til framtíðar? „Ég held að tækifærin séu gríðarlega mörg. Það er mikil og

spennandi uppbygging í gangi og Vestmannaeyjar eru að mínu mati frábær staður til að búa á, starfa, byggja upp fyrirtæki og ala upp fjölskyldu. Hér hefur verið unnið gott starf og mér finnst gaman að sjá hvernig hægt er að byggja áfram á þeim sterka grunni sem þegar er til staðar. Það eru mikil lífsgæði fólgin í því að búa hér sem ég held að mætti tala enn meira um. Eitt einfalt dæmi er tíminn sem maður sparar í hversdagsleikanum. Hér tekur örfáar mínútur að komast nánast hvert sem er maður er fljótur í vinnuna, á leikskólann, í íþróttir eða út í búð og eyðir ekki stórum hluta dagsins í umferð. Þegar þetta safnast saman eru þetta margar klukkustundir í hverri viku sem maður fær til baka. Það skiptir miklu máli, sérstaklega fyrir barnafjölskyldur. Mér finnst líka mikilvægt að halda áfram að tala Vestmannaeyjar upp og minna á allt það frábæra sem hér er í boði. Samgöngurnar skipta auðvitað miklu máli og við þurfum að geta rætt þær af hreinskilni og halda áfram að vinna að úrbótum, án þess þó að skapa þá mynd að það sé erfitt að koma hingað. Þvert á móti er frábært að heimsækja Vestmannaeyjar og hér er ótrúlega margt að sjá, gera og upplifa. Umræðan um möguleg göng er auðvitað mjög áhugaverð og Haraldur Pálsson, vinur minn, og teymið hans hafa unnið frábært starf í þeim málum. Það verður gaman að fylgjast með framhaldinu. Ég sé líka tækifæri í því að gera enn meira fyrir börn og fjölskyldur yfir vetrarmánuðina. Við héldum tvo fjölskylduviðburði fyrr á árinu og það var frábært að sjá krakka og foreldra koma saman og eiga góða stund. Vonandi verður hægt að byggja áfram á því. Ég veit til dæmis að María Rán, sem stóð að viðburðunum með mér, er með mjög skemmtilegar hugmyndir tengdar Leikhöllinni. Svo er ÍBV auðvitað gríðarlega mikilvægur hluti af samfélaginu og þar er frábært starf í gangi. Íþróttastarfið, atvinnulífið, ferða-


En þegar ég horfi til baka eftir tíu eða tuttugu ár held ég samt að það sem ég muni fyrst hugsa um verði við fjölskyldan hér í Eyjum. Strákarnir okkar voru svo litlir þegar við komum hingað og við höfum fengið þetta heila ár saman á þessum ótrúlega stað. Göngutúrarnir, náttúran, fólkið, leikskólinn, íþróttirnar, veðrið, Herjólfur og allt þetta litla sem verður að daglegu lífi. Þetta verður alltaf sérstakur kafli í lífi fjölskyldunnar okkar.

Doctor Victor spilaði á stóra sviðinu á laugardeginum á Þjóðhátíð í ár. þjónustan og allt það sem er að gerast hér mynda saman mjög sterkan grunn fyrir framtíðina. Mér finnst líka mikilvægt að halda áfram að kynna Vestmannaeyjar af krafti, bæði hér heima og erlendis, og sýna fólki allt það sem Eyjarnar hafa upp á að bjóða. Hér er einstök náttúra, fjölbreytt afþreying og einfaldlega frábært að koma hingað. Ég held að það séu mikil tækifæri í því að fá enn fleiri til að heimsækja Eyjarnar og upplifa staðinn.

Af hverju eruð þið að flytja? Það var alltaf planið að taka bara eitt ár og við gerðum samning við HSU um það tímabil. Við ætluðum að vera hér í eitt ár og nú tekur næsti kafli við. Við erum með fjölskyldu í bænum og Dagbjört er að halda áfram í sérnámi sínu í bráðalækningum og verkefnin mín eru að fara á fullt í bænum. Það er því ekkert dramatískt við flutningana. Við erum í raun bara að fylgja þeirri áætlun sem við lögðum upp með. Munurinn er sá að þegar við komum hingað hugsuðum við líklega: „Við ætlum að búa í Eyjum í eitt ár.“ Núna hugsum við frekar: „Við fengum að búa í Eyjum í heilt ár” og það er svolítið önnur tilfinning.

Er þetta þá endanleg kveðja? Nei, ég ætla alls ekki að segja það! Við elskum Vestmannaeyjar. Við elskum fólkið hér og lífið sem við höfum fengið að eiga hér með börnunum okkar. Þannig að það er aldrei að vita hvað gerist síðar. Svo verða tengslin við Eyjarnar áfram sterk. Fjarlækningar eru rétt að hefja sína vegferð hér, Lifeline Health á sterkar rætur hér og ég efast stórlega um að ég sé búinn að spila mitt síðasta gigg í Vestmannaeyjum. Við förum því ekki héðan með tilfinninguna að við séum að loka dyrunum. Við erum fyrst og fremst ótrúlega þakklát fyrir fólkið sem tók á móti okkur, fyrir tækifærin sem við höfum fengið, fyrir samfélagið og fyrir að börnin okkar hafi fengið að upplifa þetta með okkur. Ég hef sagt það áður og segi það enn og aftur: Vestmannaeyjar eru eyja tækifæranna. Ég vil að lokum þakka kærlega fyrir okkur og það er aldrei að vita nema leiðin liggi hingað aftur einn daginn!

Vestmannaeyjar eru einfaldlega magnaður staður. Hér er margt mjög vel gert, mikil lífsgæði og fullt af tækifærum til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið. Hvað stendur mest upp úr eftir árið? Fólkið og fjölskyldutíminn, klárlega. Það hefur gerst ótrúlega margt með öll verkefni sem ég hef unnið að og ég er mjög stoltur og þakklátur með það, en það sem mér finnst einkenna Eyjamenn er að þeir eru alltaf til í að keyra á hlutina og finna lausnir. Lifeline Health hefur tekið stór skref, Fjarlækningar eru að fara af stað með HSU og tónlistin hefur þróast gríðarlega. Svo að fá að enda árið hér á því að spila á stóra sviðinu á Þjóðhátíð var magnað.

Victor, Frosti og Dagbjört ásamt vinafólki - Sólrún félagsráðgjafi hjá Veru Lífsgæðasetri, Gylfi Viðar og Sóldís Eva.


GETUR ÞÚ HJÁLPAÐ STELPUNNI AÐ FINNA HLUTINA SÍNA?

HVER ER LEYNIGESTURINN? Vísbendingar: 1. Leynigesturinn er íslenskur tónlistarmaður. 2. Hann er einkum þekktur fyrir rapp. 3. Hann kemur ekki fram undir sínu rétta nafni. 4. Rétt fornafn hans er einnig algengt íslenskt karlmannsnafn. 5. Sviðsnafnið hefst á virðulegu ávarpi. 6. Seinni hluti sviðsnafnsins er eitthvað sem margir smyrja á brauð. 7. Sviðsnafnið er samtals fimmtán bókstafir án bils. 8. Upphafsstafirnir eru H.H. Lausn: Rétt nafn tónlistarmannsins er Árni Páll Árnason, Herra Hnettusmjör.


ALLT Á EINUM STAÐ! Smíðavinna Pípulagnir Múrvinna Gólfhitafræsing

Sólpallar Skjólveggir Milliveggir Eldhúsinnréttingar

www.aglverktakar.is

AGLverktakar@gmail.com 896-0074 Jónas AGLverktakar

AGLverktakar

Parketlögn Gluggaskipti Hurðir Baðherbergi


UPPSKRIFTIR VIKUNNAR:

Létt kjúklingasalat

Hráefni: 400 g kjúklingalundir ½ msk balsamikgljái salt og nýmalaður pipar 3 sneiðar gróft brauð 400 g blandað salat 1 stk lárpera, afhýdd, steinhreinsuð og sneidd 70 g kirsuberjatómatar, skornir í bita handfylli af alfa alfa spírum 70 g pekanhnetur 70 g niðurrifinn ostur Aðferð: Hitið ofninn í 180°C. Raðið kjúklingalundunum á smjörpappírsklædda ofnplötu og hellið balsamikgljáanum yfir og kryddið með salti og pipar. Bakið í 25–30 mínútur. Ristið brauðsneiðarnar og skerið þær í kubba. Raðið salatinu á diska, stráið brauðinu og kjúklingnum yfir ásamt öllu grænmetinu, hnetunum og ostinum og hellið létt salat-dressingu eða góðri olíu yfir. Hægt er að bæta við að vild: Gulum baunum, vínberjum, papriku o.s.frv.

Bananapie með Dumle karamellusósu Hráefni: 150 g Digestive kex 2 meðalstórir bananar, vel þroskaðir 1 poki Dumle go nuts (175 g) 2 ½ dl rjómi 4 msk rjómi Aðferð: Raði Kexið er mulið fremur smátt. Bananar skornir í sneiðar og 2 ½ dl af rjóma þeyttur. Dumle go nuts molarnir (3 molar skildir eftir til skrauts) eru settir í pott ásamt 4 msk af rjóma og brætt við vægan hita. Því næst er skipt á milli 4 skála: kexmylsna í botninn, þá Dumle go nuts sósa, bananabitar, þeyttur rjómi, kexmylsna, Dumle go nuts sósa, þeyttur rjómi og loks restinni af bananabitunum stungið ofan í rjómann. Dumle go nuts molarnir þrír eru saxaðir smátt og dreift yfir til skrauts.


HÁGÆÐA VINNUFÖT FÁST HJÁ OKKUR HÆGT ER AÐ ÚTVEGA ALLSKONAR KLÆÐNAÐ Í HINUM ÝMSU STÆRÐUM

Strandvegur 30 / 481 1475 www.midstodin.is / midstodin@midstodin.is


SÁLMASKRÁR Tökum að okkur gerð sálmaskráa. PANTA ÞARF TÍMA Í SÍMA 694 7999 eða senda tölvupóst á leturstofan@leturstofan.is

PARTÝ Á PALLINUM? OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11:30

PALLASMÍÐI OG VIÐGERÐIR

Almennt v i ð h a ld & smíði!

VERIÐ VELKOMIN Í VÖRUHÚSIÐ ALLT ÁRIÐ UM KRING

s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com


5. september 2026


7 7 3 3

4 48 8

1 17 76 6

5 56 6

5 5

4 4

8 8

1 1

6 62 2

8 8

9 9 7 7

2 2

3 3

3 3 2 2

#58944 #58944 Name:

ORÐARUGL 1 12 2

4 4

Z

Y

Q 9B 9 F

A

H

I

A

Y

J

R

T5 5 G

B

Z

J4 4I 5 B 5

V

D

E

Z

R

Y

I

F

W

J

T

K

N

E

M

U

H

E

4K 4 M O

U

Y

R

X

N

G

V

T

L

U

2 Z2 N

D8 8

Y

D

P

R

P

P

I

A

O

D

K

A

G

Q

B

K

Þ

I

K

F

A

H

I

G

W

X

P

E

A

B

S

U

C

N

D

X

Q

U

U

M

T

I

C

S

G

S

D

O

I

N

O

P

B

Á

G

G

F

X

E

M

H

U

O

X

Z

G

6 J6 N

K

B

A5 5 T2 2 I

P A

I

1 1S

N

N

V

L

L 3 N3 4K 4 9B 9 U

P

G

U

L

L

W

L

M

S

Y

I

Y

C

E

H

V

L

M

B

Q

H

K

G

V

T

R

D

K

W

L

4 Q4

5 51 13 3 4 46 6

8 L8

REGNBOGI 3 3 REGNBOGI SKUGGI HNAPPUR 7 7MáVUR ELDFJALL BAKPOKI

6 62 2

8 8

7S 7 Ú

H

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

B

3O3 N 5V 5 F 8 HNAPPUR 8 SKUGGI

KANILL KANILL SPEGILL VÖLUNDARHÚS TUNGLSKIN

3 39 92 2

3 3

C

7 73 34 4 Z

6 6

W

U

Ö6 6 V

G

T

3U 38P 8W

K

G

N

O1 1

A

P

H

K

F

W

U

S

G

R

U

B

E

N

T

J

J

R

Z

W

#46116 #46116

N

4P 4 X

U

L

8 MÁVUR 8 ELDFJALL

2 2B

R

4 4 7 Q73 3

P

8J 84T 4Q

9 9

L

I

R 9 A9 D U

6 6

R

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

7 D7

2 2

VöLUNDARHúS BAKPOKI SPEGILL 2 2 6TUNGLSKIN 6 ÞRUMA ÞRUMA HINDBER HINDBER

4 4

2 2

6 65 5

1 1

J

lution at https://sudoku.cba.si/

Y 1K7 7F8 8 S 1

1 1

Difficulty: Difficulty: moderate moderate Created with TheTeachersCorner.net Word Search Maker

3 3

#72579 #72579

8 87 7

8 8

Difficulty: Difficulty: moderate moderate

6 6

5 5

4 43 32 2 5 5

#59319 #59319

G

1 12 2

2 25 5 9 9

7 7

4 46 6

9 94 4

3 3

8 81 1

7 7

7 7

1 1

4 4

sudoku.cba.si/

sudoku.cba.si/

SUDOKU

3 3


LITAÐU EFTIR NÚMERUM

1

2

3

4

5

6

7

8

9

10


Afmælisveisla Landsbankans og TM

Í tilefni af tvöföldu stórafmæli Landsbankans og TM er landsmönnum boðið í afmælisveislu fimmtudaginn 20. ágúst nk. Hátíðarhöldin fara fram samtímis í útibúum Landsbankans um allt land kl. 14. Kynntu þér afmælisdagskrána nánar á landsbankinn.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 19. tbl 08. árg. by Leturstofan - Issuu