Það tekur minnst pláss í töskunni en skiptir mestu máli.
2. Lopapeysa, pollagalli & derhúfa
Í Herjólfsdal geta komið fjórar árstíðir á einu lagi.
3. Brekkusöngurinn
Þúsundir radda, ein brekka og gæsahúð sem gleymist seint.
4. Blysin í dalnum
Augnablikið þegar Herjólfsdalur lýsist upp er engu líkt.
5. Þjóðhátíðarlögin
Lærðu að minnsta kosti viðlögin — enginn vill bara „lalala“ sig í gegnum kvöldið.
Forsíðumyndina tók Bent Marinósson á Þjóðhátíð Vestmannaeyja 2025.
TÍGULL
DREIFING:
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.
Þjóðhátíð á Þjóðhátíð á
BÓAS
12-04 á fimmtudag
10:30-20 fös-sun
10:30-22 mánudag
NÆTURSALA
TIL KL.04.00 Á FIMMTUDAG
RÍFANDI
FYRIR DALINN
Trúbadorar föstudag
laugardag og sunnudag
481-1567 ( Sendumheim
ATH! tilboð ekki í gildi fimmtudag - mánudags
BEGGA HEFUR KOMIÐ AÐ UNDIRBÚNINGI
ÞJÓÐHÁTÍÐAR Í NÆR HÁLFA ÖLD
„Þessi mánuður í Dalnum gefur mér gríðarlega mikið“
Bergljót Blöndal, jafnan kölluð Begga, hefur komið að undirbúningi Þjóðhátíðar í Herjólfsdal frá árinu 1977. Það sem hófst með þátttöku eiginmanns hennar í starfi Týs varð að áratugalangri fjölskylduhefð. Að baki hátíðinni liggur gríðarleg sjálfboðavinna, en fyrir Beggu er það samveran, félagsskapurinn og vináttan sem standa upp úr.
Fyrsta Þjóðhátíð Beggu var haldin á Breiðabakka árið 1975 og fyrstu tvær hátíðir hennar fóru þar fram. Árið 1977 tók hún svo í fyrsta sinn þátt í undirbúningi hátíðarinnar í Herjólfsdal.
Þátttaka fjölskyldunnar hófst í gegnum Jóa, eiginmann Beggu, sem var félagi í Tý. Á þeim tíma sáu Týrarar um Þjóðhátíð annað hvert ár og fjölskyldan fylgdi honum fljótlega inn í starfið. Síðan þá hefur undirbúningurinn verið stór hluti af sumri fjölskyldunnar.
Margar hendur gera Dalinn kláran
Mikil vinna liggur að baki því að gera Herjólfsdal tilbúinn fyrir hátíðina. Reisa þarf veitingatjöld, mála, undirbúa svæðið og manna meðal annars innrukkun og gæslu áður en fyrstu gestirnir streyma inn.
Begga segir engan einn standa að Þjóðhátíð. Þar vinni stór hópur fólks saman og mörg handtök þurfi til að allt verði tilbúið. Hún telur að gestir geri sér ekki alltaf grein fyrir umfangi sjálfboðastarfsins fyrr en þeir hafa sjálfir tekið þátt.
Sjálf hefur Begga einkum haldið utan um málningagengið. Ákveðinn kjarni sjálfboðaliða mætir ár eftir ár, þótt hópurinn taki eðlilega breytingum. Nýtt fólk
bætist við á meðan annarra er saknað þegar þeir hætta.
„Ég er gríðarlega heppin með þetta frábæra fólk sem er í kringum mig,“ segir hún.
Dýrmæt samvera fjölskyldunnar Undirbúningurinn hefur tekið breytingum frá því Begga hóf þátttöku. Fyrstu árin kom fjölskyldan að hátíðinni annað hvert ár, þegar Týr sá um framkvæmdina. Eftir að félögin sameinuðust undir merkjum ÍBV varð þátttakan árleg.
Fyrir Beggu er tíminn í Dalnum þó miklu meira en vinna. Hann hefur alla tíð verið mikilvæg samvera fjölskyldunnar. Dætur þeirra hjóna hafa fetað í fótspor
foreldranna og tekið virkan þátt í undirbúningnum.
Begga segir hjónin heppin að eiga tvær dætur sem hafi áhuga á að standa í þessu með þeim. Með bros á vör bætir hún við að þau vilji meina að dæturnar séu „vel upp aldar“.
Henni finnst kynslóðaskiptin í sjálfboðastarfinu ganga vel. Nýtt fólk kemur inn, lærir af þeim sem fyrir eru og tekur smám saman við keflinu. Þannig berst þekkingin og áhuginn áfram á milli kynslóða.
Þegar bláa tjörnin varð græn Ýmis skemmtileg og óvænt atvik hafa komið upp í gegnum árin. Eitt þeirra tengist gamla ríginum á milli Týs og Þórs, sem Begga segir
Undirbúningur í fullum gangi fyrir Þjóðhátíðina. Kristín, Ebba og Begga.
að hafi að mestu verið í gamni, að minnsta kosti á seinni árum.
Á einni Þórshátíð hafði tjörnin í Dalnum verið lituð blá. Tveir bræður, sem komu fram með bardagalistasýningu, fóru út í tjörnina í búningum sem gáfu frá sér lit. Úr varð að tjörnin varð græn – Týsliturinn.
kemur eðlilega með sínar eigin venjur.
Begga saknar þess þó að meira sé spilað á gítar og sungið saman í tjöldunum. Hún minnist sérstaklega stemningarinnar í Laufástjaldinu, þar sem Óli Jóns spilaði á gítar og stundum var jafnvel dregin fram harmonikka.
Þórarar töldu að vonum að einhverjir Týrarar hefðu komist í tjörnina og breytt litnum. Svo var þó ekki, heldur hafði samspil litanna einfaldlega séð um hrekkinn.
Þrátt fyrir umfang undirbúningsins man Begga ekki eftir neinu stórvægilegu sem hafi endanlega mistekist. Ýmislegt hafi auðvitað komið upp, en niðurstaðan sé alltaf sú sama: Þetta reddast.
Saknar söngsins í hvítu tjöldunum Hefðirnar í hvítu tjöldunum hafa breyst töluvert með nýjum kynslóðum. Skipulagið er ekki jafn niðurnjörvað og áður og nýtt fólk
Þá ómuðu gömlu lögin um tjaldið, lög á borð við Gamla Jón í Gvendarhúsi, sem heyrast ef til vill sjaldnar hjá yngri kynslóðinni.
Þótt siðir og söngvaval breytist segir Begga kjarna Þjóðhátíðar enn þann sama: samveruna með fjölskyldu og vinum.
Gleði, sorg og spenna Þegar undirbúningnum lýkur, Dalurinn er orðinn tilbúinn og gestirnir byrja að streyma inn, upplifir Begga blendnar tilfinningar.
Gleðin fylgir því að hátíðin sé að hefjast en á sama tíma gætir
söknuðar, enda er þá lokið í bili þeirri nánu samveru sem skapast meðal sjálfboðaliðanna í aðdragandanum.
„Tilfinningin er algjör rússíbani; gleði, sorg og spenna,“ segir hún.
Vinnan í Herjólfsdal stendur yfir vikum saman og Begga segir þennan tíma gefa sér gríðarlega mikið. Þegar hún lítur til baka eru það ekki aðeins hátíðirnar sjálfar sem standa upp úr, heldur fólkið, vináttan og allar minningarnar sem hafa orðið til á leiðinni.
Hún segist standa eftir rík af vinum og að vinátta hópsins sé ómetanleg – enda sé slíkur félagsskapur langt frá því að vera sjálfgefinn.
Föstudagurinn er hápunkturinn
Undirbúningurinn fyrir hvíta tjaldið hefst á því að fjölskyldan fer yfir hátíð fyrra árs. Skoðað er hvað gekk vel, hverju þarf að breyta og hvað þarf að útvega. Síðan er verslað fyrir bakstur og annað sem fylgir tjaldhaldinu áður en sjálft tjaldið er reist.
Föstudagurinn er sérstakur í augum Beggu. Þá fer fjölskyldan í fín föt, mætir á setningu Þjóðhátíðar og safnast síðan saman yfir kaffi í hvíta tjaldinu. Það sé hápunkturinn – og ekki verra ef hægt er að sitja úti í sól og blíðu.
Eftir nær hálfa öld í undirbúningi veit Begga þó betur en flestir að veðrið er aðeins bónus. Svo lengi sem fjölskyldan er samankomin, kaffið tilbúið og Dalurinn farinn að iða af lífi er Þjóðhátíðin hafin. Og ef eitthvað skyldi klikka? Þá reddast það, eins og alltaf.
Það er alltaf stuð í tjaldinu hjá Beggu.
FINNUR EKKERT BETRA
Sigurlaug Böðvarsdóttir hefur Þjóðhátíð í blóðinu. Minningarnar ná frá heimasaumuðum búningum, hárkollum og soðnum pylsum í tjaldinu til þess umfangsmikla verkefnis að manna miðasölu og gæslu við innganginn í Herjólfsdal. Þar stýrir hún nú um 150 manna hópi og leggur sitt af mörkum til þess að aðrir geti notið töfranna í dalnum.
Þótt hlutverk hennar á hátíðinni hafi breyst með árunum er gleðin enn sú sama. Sigurlaug vill alltaf vera aðeins lengur.
Sjúkraliði með áhuga á kínverskum lækningum Sigurlaug hefur starfað sem sjúkraliði í 25 ár. Fyrir nokkrum árum bætti hún við sig námi í kínverskri læknisfræði, nálastungum og svonefndri cupping-meðferð. Síðan hefur hún, eins og hún orðar það sjálf, dundað sér við að „pína fólk aðeins“.
Fjölskyldan skipar stóran sess í lífi hennar, enda er hún sex barna móðir. Á Þjóðhátíð kemur fjölskyldan öll að hátíðarhaldinu með einum eða öðrum hætti. Verkefnin eru fjölbreytt: að reisa brennuna, flytja fólk til Eyja með Herjólfi, smíða og græja í dalnum eða manna miðasölu og gæslu við hliðið.
Hárkollur, heimasaumuð föt og löng leið heim Sigurlaug man ekki nákvæmlega eftir fyrstu Þjóðhátíðinni sinni, en fyrstu minningarnar eru engu að síður ljóslifandi. Móðir hennar saumaði hátíðarfötin, hárkollur voru settar upp og í tjaldinu voru bornar fram soðnar pylsur. Þar var fullt af frænkum og frændum og leiðin heim yfir golfvöllinn virtist alltaf óendanlega löng. Kannski stafaði það þó ekki eingöngu
Fjölskyldan mætti í búning á Þjóðhátíð 2023 eins og oft áður.
af vegalengdinni, heldur því að Sigurlaug var sjaldnast tilbúin að yfirgefa dalinn.
Áhuginn á búningum hefur heldur ekki elst af henni. Þegar heimasaumuðu fötin frá mömmu heyrðu sögunni til tóku búningakeppnir unglingsáranna við. Síðar fóru Sigurlaug og systur hennar að sauma sér kjóla úr teppum, ásamt tilheyrandi aukahlutum. Undanfarin ár hafa hún og Georg klæðst neonlituðum heilgöllum ásamt yngstu börnunum – sjón sem hefur vart farið fram hjá gestum í dalnum.
Aðrar hefðir eru kunnuglegri: tjaldið er skreytt, bakað og smurt, Þjóðhátíðarlögin fá að hljóma og kjötsúpa, pulled pork, glimmer, regngallar og kaffi á setningunni eru ómissandi hluti helgarinnar. Nýjasta fjölskylduhefðin er
þó miðasalan. Þar fær hver og einn að minnsta kosti eina vakt, gjarnan með vinum sínum.
Orðin fullorðna manneskjan í hvíta tjaldinu
Sigurlaug er að sjálfsögðu með hvítt tjald, en henni þykir enn dálítið undarlegt að vera orðin fullorðna manneskjan sem þarf að smyrja, ganga frá og sjá til þess að allt sé í lagi.
Undirbúningurinn hefur breyst mikið eftir að fjölskyldan tók að sér miðasöluna. Nú snýst aðdragandinn fyrst og fremst um að skapa aðstæður svo aðrir geti notið hátíðarinnar. Tíminn er af skornum skammti og því hyggst hún endurnýta skraut frá fyrri árum og kaupa tilbúnar veitingar í tjaldið, þótt nokkrar samlokur verði eflaust smurðar heima.
Eitt verður þó að vera á boðstólum: sítrónukakan hans Georgs. Þeir skilja sem skilja.
Um 150 manns og ótal símtöl Sigurlaug viðurkennir að hún hafi ekki fyllilega gert sér grein fyrir umfangi verkefnisins þegar hún tók miðasöluna að sér. Árið áður hafði hún lýst því yfir að hún hefði lítið lagt af mörkum til hátíðarinnar frá því hún málaði í dalnum sem unglingur. Hún hefði ef til vill gengið að Þjóðhátíð sem gefinni og ætlaði að bæta úr því.
Þegar hún var beðin um að taka að sér miðasöluna varð hún því að standa við stóru orðin.
Í dag sér hún um að manna miðasöluna og gæsluna við hliðið inn í dalinn, verkefni sem krefst um 150 starfsmanna. Margir koma aftur ár eftir ár og eru orðnir ómetanlegur hluti af hópnum. Aðrir stíga sín fyrstu skref og enda vaktina gjarnan á því að bjóðast til að koma aftur að ári.
Það reynist þó ekki alltaf jafn auðvelt að fylla vaktirnar. Þegar úthringingarnar hefjast segir að jafnaði aðeins einn af hverjum tíu já. Símtölin í júlí verða því ófá og vaktapúslið getur valdið töluverðum höfuðverk. Hingað
til hefur þó alltaf tekist að láta dæmið ganga upp, ekki síst með hjálp reyndra kvenna á borð við Guðnýju Togga og félaga sem hafa komið sterkar inn á lokametrunum.
Eftir Goslok fer svefninn smám saman að minnka, en spennan eykst með hverju jái. Þegar líf færist loks yfir Herjólfsdal og undirbúningurinn fer á fullt kviknar Þjóðhátíðarstemningin fyrir alvöru.
Allt getur gerst í miðasöluskúrnum Miðasöluskúrinn býður reglulega upp á óvænt og skondin atvik. Einu sinni lenti Sigurlaug í langri og strangri orðahnippingu við ungan mann sem krafðist þess að fá armband. Skanninn sýndi að armband hafði þegar verið afhent, en maðurinn gaf sig ekki og hótaði meðal annars að kalla til lögreglumann sem hann sagðist þekkja.
Sigurlaug hélt ró sinni og útskýrði að hún gæti ekki afhent annað armband. Þegar hún sagði honum loks ákveðin að annaðhvort keypti hann nýjan miða eða hún kallaði sjálf eftir aðstoð gafst hann upp og lyfti höndunum. Þá kom sannleikurinn í ljós: armbandið var þegar á úlnliðnum. Hann hafði
Sigurlaugu hefur alltaf dreymt um að vera í gæslunni, þarna má sjá hana með græna hárkollu í verkfallsvesti að reyna að blanda sér við gæsluna.
einfaldlega gleymt að hann væri búinn að sækja það.
Í annað sinn þurfti Sigurlaug að skjótast inn í skúrinn ásamt Bryndísi dóttur sinni. Þar biðu Skoppa og Skrítla í fullum skrúða og vantaði far. Sigurlaug sagði þeim að setjast inn í bílinn og kæmi sjálf eftir augnablik. Undrunarsvipurinn á Bryndísi þegar móðir hennar sneri aftur og hún sat á milli þeirra tveggja var óborganlegur.
Kannski var þó eftirminnilegasti gesturinn ungi maðurinn sem mætti í dalinn um hálftíu á föstudagsmorgni, léttklæddur og með litla flugfreyjutösku. Hann hafði farið með töskuna á Húkkaraballið og var enn ekki farinn að sofa. Hann hafði bókað pláss á VIP-tjaldsvæðinu, en ekki áttað sig á því að hann þyrfti sjálfur að koma með tjald – og allan búnað.
Teppakjólar, stigakeppni og færeyingar í eftirdragi Sigurlaug hefur löngum verið mikill sprellikall á Þjóðhátíð. Einu sinni tóku hún og systur hennar tvo Færeyinga upp á sína arma og drógu þá með sér um allan dalinn. Fjölskyldan á ættir að rekja til Færeyja og systrunum þótti því ekkert sjálfsagðara en að hafa þá í eftirdragi alla helgina.
Systurnar efndu einnig eitt sinn til stigakeppni sín á milli. Tíu stig fengust fyrir að fá gæslumann til að lána sér vesti, en það reyndist mun erfiðara en þær höfðu gert ráð fyrir. Kvöldið eftir fann Sigurlaug vesti merkt „verkfallsvörður“ í kjallaranum hjá móður sinni.
Undir morgun, með græna hárkollu og græna málningu í andlitinu, klæddi hún sig í vestið yfir teppakjól og grænar netasokkabuxur. Síðan gekk hún á eftir gæslunni og reyndi að falla inn í hópinn. Tilraunin tókst ekki
SUMAR ÚTSALA
GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ
ALLT Í HVÍTU TJÖLDIN
Allar útileguvörur, garðhúsgögn, búsáhöld, glös, diskar og margt fleira
30% afsláttur
sérlega vel og gæslunni þótti uppátækið mun minna fyndið en Sigurlaugu.
Þjóðhátíðin sem breytti öllu Erfitt er fyrir Sigurlaugu að velja eitt augnablik úr öllum þeim Þjóðhátíðum sem hún hefur upplifað. Tvö ártöl skipta þó sérstöku máli. Ef hún hefði ekki farið á Þjóðhátíð árin 2000 og 2013 ætti hún að öllum líkindum ekki sex börn í dag.
Þjóðhátíðin 2013 stendur sérstaklega upp úr. Þá var Sigurlaug með þátt á Gufunni og auglýsti kertafleytingu eftir brennuna til að hvetja fólk til að vera gott hvert við annað. Uppátækið vatt upp á sig og endaði með viðtali í kvöldfréttunum. Þar með varð ekki aftur snúið og kveikt var á kertum við mikla athygli fjölmiðla.
Sprellkvótinn var þó ekki tæmdur. Sama ár hitti hún Georg og móður hans í fyrsta sinn á fimmtudagskvöldinu. Hún kynnti sig óhikað sem verðandi tengdadóttur og tilkynnti Georg að hann yrði faðir framtíðarbarna hennar, hvort sem honum líkaði betur eða verr. Henni tókst síðan furðu auðveldlega að finna hann aftur og aftur í mannfjöldanum alla helgina. Að lokum gaf hann sig – og Sigurlaug reyndist sannspá.
Töfrarnir breytast ekki
Umgjörð Þjóðhátíðar hefur stækkað og gestunum fjölgað, en að mati Sigurlaugar hefur kjarninn lítið breyst. Hún sjálf er nú sex barna móðir með ábyrgð á stórum hópi fólks og þekkir ekki endilega alla listamennina sem stíga á svið. Upplifunin er því önnur, en gleðin er sú sama.
Hún er enn jafn spennt og þegar hún var barn, skemmtir sér alltaf jafn vel og vill aldrei fara heim. Það á jafnvel við þegar hún þarf að halda aftur inn í dal í brjáluðu veðri til að festa tjaldið betur.
Sigurlaug búin að troða hárkollum á alla yngri meðlimi fjölskyldunnar. Bergþór, Steinunn, Guðbjörg og Kristín og Sigurlaug aftast.
Það sem erfitt er að útskýra fyrir þeim sem aldrei hafa komið er samspil allra þessara ólíku þátta. Í Herjólfsdal skemmta börn, gamalmenni og allir þar á milli sér saman. Þar mætast gleði, vinátta og samvera, hvort sem veðrið er brjálað eða dásamlegt. Sumir sækja í brekkusönginn, aðrir í sunnudagssígóið, en allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Lögin, fjölskyldan og framtíð hátíðarinnar Gömlu Þjóðhátíðarlögin skipta Sigurlaugu miklu máli. Hún bíður alltaf spennt eftir nýja laginu, en vill jafnframt að betur sé hlúð að þeim eldri, sem henni finnst heyrast sjaldnar en áður. Þegar kemur að því að velja besta lagið stendur valið milli „Síðasta dansins“ og „Ég veit þú kemur“. Niðurstaðan er einföld: bæði.
Á draumalistanum yfir flytjendur
í Herjólfsdal eru Herbert Guðmundsson, Sigga Beinteins, Bubbi Morthens og Páll Óskar – helst öll saman með eina allsherjar sýningu.
Þegar framtíð Þjóðhátíðar ber á góma veltir Sigurlaug fyrst og fremst fyrir sér hvort fólk muni áfram ráða við þrjá daga. Sjálf leggur hún þó meiri áherslu á að varðveita anda hátíðarinnar: gleðina, samveruna, fjölskylduna og vináttuna.
Fyrir Eyjamenn er Þjóðhátíð ekki aðeins viðburður heldur hluti af lífinu. Hún tengist minningum, rótum og hefðum sem ganga á milli kynslóða. Hjá henni snýst hátíðin nú fyrst og fremst um að börnin hennar fái að njóta alls þess sem Herjólfsdalur hefur upp á að bjóða. Það virðist hafa tekist, enda elska þau Þjóðhátíð – og fjölskyldan elskar að hafa gaman.
Veður er hugarfar
Skilaboð Sigurlaugar til hátíðargesta eru einföld: Verum góð hvert við annað og munum að veður er hugarfar.
Hún hvetur fólk jafnframt til að taka eftir öllum sjálfboðaliðunum sem taka á móti gestum við hliðið og afhenda armböndin, í hvaða veðri sem er.
Án þeirra kæmist enginn inn í dalinn.
Og ef Sigurlaug ætti að lýsa Þjóðhátíð í aðeins þremur orðum væru þau þessi: Finnur ekkert betra!
fimmtudag - mánudag
Hann verður til taks ef á þarf að halda og hægt er að hringja í síma 867-7787 til að panta tíma eða fá ráðgjöf!
Georg og Sigurlaug í brekkunni ásamt Öglu dóttur sinni sem gæjist þarna í horninu.
Final logo - Esjan kírópraktík
Gleðilega Þjóðhátíð!
BÍLAVERKSTÆÐI HARÐAR & MATTA
DAGSKRÁ
FRAM AÐ
Miðvikudagur 29. júlí
HVÍTU TJÖLDIN:SÚLURNAR
17:00
17:45
Skvísusund
Lundaholur
Sjómannasund
Ástarbraut
Veltusund Klettar
20:00
Sigurbraut
Herjólfsgata
Þau sem eiga ekki frátekna lóð
18:30
19:15
Skvísusund
Lundaholur
Sjómannasund
Ástarbraut
Veltusund Klettar
Sigurbraut
Herjólfsgata
Aðeins bilar með súlur fá að fara inn í dal á þessum tíma
Fimmtudagur 30. júlí
HVÍTU TJÖLDIN:BÚSLÓÐIN
Búslóðaflutningar verða á eftirfarandi tímum:
30. júlí kl. 11.30 til 15:00 og kl. 17.30 til 20:00
31. júlí kl. 9.30 til 11:30 Á öðrum tímum verður Dalurinn lokaður fyrir umferð.
FERMINGARBÖRN 2012
Sem fengu aðgangsmiða að gjöf frá ÍBV þurfa að sækja armband milli kl. 12 og 16 fimmtudag á Básaskersbryggju. Hafið meðferðis gjafabréf og skilríki.
ATHUGIÐ aðeins
ARMBÖND AFHEND Á BRYGGJUNNI
Eingöngu verða afhend armbönd á Básaskersbryggjunni og opnar fimmtudaginn 31. júlí kl. 11:30 til 24:00. Fös frá 8:30 - 20:30 Laugardagur og sunnudagur auglýst síðar.
ATHUGIÐ armböndin eru sett
Séra Bjössi / Háski / REA / Eyþór Wohler
BÚSLÓÐIN
Í TJALDIÐ
Búslóðaflutningar
leyfðir
9:00 - 11:30
LÉTT LÖG Í DALNUM
SETNING ÞJÓÐHÁTÍÐAR
• Þjóðhátíð sett: Hörður Orri Grettisson, formaður ÍBV
• Hátíðarræða:
Magnús Bragason
Biskup Íslands: Guðrún Karls
Helgudóttir blessar hátíðina
• Lúðrasveit Vestmannaeyja
• Bjargsig: Bjartur Týr Ólafsson
• KAFFIHLÉ
Á TJARNARSVIÐI
• Brúðubíllinn
• Klara Einars
• Töfrabrögð
LÉTT LÖG Í DALNUM
Á BREKKUSVIÐI kl. 15:30-17:00
• Barnasöngkeppni Landsbankans
Á TJARNARSVIÐI
• Brúðubíllinn
• Brekkusöngur Barna: Aron Daði
• BMX brós
• Mucky Muck
• Daniil
• Hipsumhaps
• Frumflutningur
Þjóðhátíðarlags: Herra hnetusmjör & Birgitta Haukdal
• Retro Stefsson, eftir brennu
Kynnir: Bjarni Ólafur Guðmundsson
Á TJARNARSVIÐI
• Latibær
• Ágúst Brynjars, brekkusöngvari
• Sólon
Á BREKKUSVIÐI kl. 15:30-17:00
• Barnasöngkeppni Landsbankans
• Elísabet Ormslev
• Klara Einars
• Aron Can
• Frikki Dór
• Herra Hnetusmjör
Kynnir: Bjarni Ólafur Guðmundsson
Sigurvegari í barnasöngkeppni Landsbankans
• Gosarnir + gestir
Jón Jónsson
Klara Elias
Birgitta Haukdal
Matti Matt
Pálmi Gunnarsson
Kynnir: Bjarni Ólafur Guðmundsson
Dagskrá Þjóðhátíðar 2026 er birt með fyrirvara um breytingar
KVÖLDVAKA
BRENNA Á FJÓSAKLETTI
• XXX Rottweiler
• Gísli Pálmi
Sprite Zero Klan
FLUGELDASÝNING
barnasöngGuðmundsson
Ágúst Brynjarsson
Á TJARNARSVIÐI
• Babies flokkurinn • Brimnes
Á TJARNARSVIÐI
• Mucky Muck & Elísabet • Brimnes
Á TJARNARSVIÐI
• Sveitamenn • Mucky Muck
LÖGREGLAN
Er með mikinn
viðbúnað yfir
Þjóðhátíðina og er þeim sem þarfnast aðstoðar lögreglu bent á að hringja í 112
GÖNGUM
VEL UM
Kæru hvítatjaldsbúar sem og aðrir tjaldbúar. Munið að ganga vel um hátíðarsvæðið og hirða upp allt drasl í kringum tjald ykkar. Ath! Bannað er að skilja eftir húsgögn eftir hátíðina.
DRÓNAR OG HÁTALARAR
Óheimilt er að fljúga dróna (fjarstýrðu loftfari) á hátíðarsvæði án sérstaks leyfis yfirvalda.
Stórir hátalarar eru ekki leyfilegir á hátíðarsvæðinu. Þetta er gert til að viðhalda þeirri góðu stemmningu sem verið hefur í hústjöldunum (notum söngröddina og gítarinn).
DÓSIR OG FLÖSKUR
ÞJÓÐHÁTÍÐAR VAKT HSU
Sjúkraskýli er opið í
Herjólfsdal frá kl.
20:00 - 08:00
Vaktsími HSU er 1700
NEYÐARTILFELLI
hringið í síma 112
Þjóðhátíðarnefnd vill benda gestum á, að á nokkrum stöðum á hátíðarsvæðinu eru sérstakir gámar fyrir plastflöskur og dósir, hagnaður af þeim rennur í yngri flokkastarf ÍBV.
GLERFLÖSKUR BANNAÐAR Í HERJÓLFSDAL
Athygli er vakin á því að meðferð glerflaska er stranglega bönnuð á Þjóðhátíð í Herjólfsdal. Þessi regla er sett í öryggisskyni til að fyrirbyggja slys og tryggja öryggi allra hátíðagesta. Við biðjum gesti um að nota drykkjarílát úr plasti eða málmi og virða regluna af ábyrgð. Starfsfólk hátíðarinnar áskilur sér rétt til að gera upptækar glerflöskur og vísa fólki frá svæðinu sem að virðir ekki bannið.
Hreinsun hefst kl. 10.00 á laugardag og sunnudag og kl. 13. á mánudag. Sjálfboðaliðar eru velkomnir.
öllum
Hve dátt er hér í dalnum inni, er dagur lýkur göngu sinni og þegar ljómar bálið bjarta, þá birtir yfir hverju hjarta.
Oddgeir Kristjánsson/Ási í Bæ
Gengur milli kl. 12 og 18
3
Ganga milli kl. 20 og 06
í Dalinn STRÆTÓ
leið 1
MIÐBÆR
• Dalurinn
• Miðbær
• Dalurinn
Gengur milli kl. 12 og 18
leið 2
HAMARINN
• Dalurinn
• Miðbær
• Kirkjuvegur
• Foldahraun
• Áshamar
• Dalurinn
Gengur milli kl. 20 og 06
leið 3
HELGAFELL
• Dalurinn
• Helgafellsbraut
• Illugagata
• Dalurinn
Gengur milli kl. 20 og 06
Fullorðnir kr. 1.200
Börn (6-13 ára) kr. 600
Eldri borgarar kr. 600
BRENNAN VERÐUR AÐ LIFA
Bergvin Haraldsson hefur sótt Þjóðhátíð frá barnæsku. Í dag er hann hluti af brennugenginu og vill tryggja að ein helsta hefð hátíðarinnar varðveitist
Bergvin Haraldsson hefur sótt Þjóðhátíð nánast frá fæðingu og á sterkar minningar úr Herjólfsdal. Brennan skipar sérstakan sess hjá Bergvini, enda er hann hluti af brennugenginu og telur mikilvægt að varðveita þessa rótgrónu hefð.
Bergvin er íþróttafræðingur og starfar sem yfirþjálfari og handboltaþjálfari hjá ÍBV. Þjóðhátíð hefur verið fastur liður í lífi hans frá barnæsku og hefur hann sótt hátíðina nánast á hverju ári frá því hann man eftir sér.
Fyrsta skýra minning hans frá Þjóðhátíð er frá því hann var fimm eða sex ára. Þá stóð hann ásamt fjölskyldu sinni og fylgdist með brennunni. Sú upplifun hefur greinilega setið eftir, enda er brennan enn í dag einn mikilvægasti hluti hátíðarinnar í hans huga.
Fastar hefðir í Dalnum Í gegnum árin hafa ýmsar hefðir skapast hjá Bergvini, fjölskyldu hans og vinum. Ein þeirra er árleg mæting í sunnudagsskólann á laugardagskvöldinu, sem er orðinn ómissandi hluti af hátíðinni.
Bergvin er ekki með eitt ákveðið hvítt tjald heldur segist vera með útibú í nokkrum tjöldum víðs vegar um Dalinn. Þegar hann er spurður hvað sé nauðsynlegt að hafa í hvíta tjaldinu er svarið einfalt: næring.
Undirbúningurinn fyrir hátíðina er annars fremur rólegur hjá honum, þótt hann reyni að leggja sitt af mörkum þegar tækifæri gefst. Þjóðhátíðarstemningin byrjar þó snemma. Bergvin finnur fyrst fyrir henni fljótlega eftir goslok, þegar vinna við brennuna er komin af stað.
Beint upp á fjall
Bergvin er hluti af brennugenginu og gegnir því mikilvægu hlutverki í einni þekktustu hefð Þjóðhátíðar. Á hátíðinni mætir gengið seint í Dalinn og fer beint upp á fjall. Þar er síðasti undirbúningurinn kláraður áður en skemmtunin hefst fyrir alvöru.
Ýmislegt skemmtilegt hefur eflaust gerst í kringum brennuna í gegnum árin. Bergvin kýs þó að halda þeim sögum innan hópsins og segir kíminn að ekkert af því sé líklega prenthæft.
Gleðilega Þjóðhátíð
Gleðilega Þjóðhátíð!
Sendum Eyjamönnum og Þjóðhátíðargestum öllum okkar bestu óskir um
gleðilega Þjóðhátíð
Brennan er jafnframt sú hefð sem honum finnst mikilvægast að varðveita til framtíðar.
„Brennan verður að lifa.“
Ógleymanleg endurkoma
Þjóðhátíð hefur að mati Bergvins tekið miklum breytingum frá því hann var yngri. Gestum hefur fjölgað og umgjörð hátíðarinnar verður betri með hverju árinu. Kjarninn hefur þó haldist sá sami: gleðin, upplifunin og sterk samstaða Eyjamanna.
Eitt augnablik stendur sérstaklega upp úr í minningunni. Það var þegar hann gekk aftur niður í Herjólfsdal eftir að Þjóðhátíð hafði tvívegis fallið niður vegna heimsfaraldursins. Tilfinningin við endurkomuna var einstök og sýndi vel hversu mikilvæg hátíðin er Eyjamönnum.
Bergvin gerir ekki upp á milli einstakra ára og segir hátíðina alltaf jafnfrábæra. Það sem erfitt sé að útskýra fyrir þeim sem aldrei hafa komið sé fyrst og fremst gleðin og samstaðan sem myndast í Dalnum.
Samstaðan skapar hátíðina
Að baki Þjóðhátíð liggur gríðarleg vinna. Bergvin segir Eyjamenn undirbúa hátíðina vikum og jafnvel
mánuðum saman. ÍBV vinni frábært starf við framkvæmd hennar og fjöldi Eyjamanna leggi hart að sér til að gera hátíðina að veruleika.
Þessi samvinna er að hans mati ein helsta ástæða þess að Þjóðhátíð á jafn sterkan stað í hjörtum fólks sem á rætur í Vestmannaeyjum. Hátíðin sé ekki aðeins skemmtun heldur sameiginlegt verkefni samfélagsins og mikilvægur hluti af sjálfsmynd Eyjamanna.
Væri gott að geta pantað veðrið Þegar Bergvin horfir til framtíðar sér hann litla ástæðu til stórra breytinga. Helst myndi hann vilja geta pantað gott veður, en að öðru leyti telur hann hátíðina ekki þurfa að breytast mikið.
Hann hefði þó gaman af því að sjá einhverjar af eldri hljómsveitunum koma fram í Herjólfsdal. Þegar kemur að besta Þjóðhátíðarlaginu er hann ekki í nokkrum vafa og segir „Í brekkunni“ bera af.
Bergvin lýsir Þjóðhátíð í þremur orðum: gleði, samstaða og upplifun. Að lokum sendir hann hátíðargestum einföld en kunnugleg skilaboð: „Sjáumst í Dalnum.“
Þann 5. ágúst opnar ný tannlæknastofa að Flötum 29. Við leggjum áherslu á faglega þjónustu, hlýlegt viðmót og góða upplifun fyrir alla fjölskylduna. Hægt er að panta tíma í síma 481 - 1012 eða með því að senda okkur tölvupóst á mottaka@domusdentist.is
Velkomin til okkar.
mottaka @domusdentis.is
481 1012 Neyðaþjónusta um helgar!
OPIÐ ALLA DAGA 9 - 16
Gleðilega Þjóðhátíð
Gleðilega Þjóðhátíð!
Eyjar
Sækja Nova appið!
FLUGELDAR ( ÞJÓÐHÁTÍÐARLAG 2026 )
Höfundur lags og texta: Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör