

MOSI KEMUR HEIM Í EYJAR
– nýr árgangur í mótun á Eldfelli
Vestmannaeyjar fá nú enn sterkari tengingu við eitt athyglisverðasta íslenska gin síðari ára. Á sama tíma og nýr árgangur af Mosa Eldfelli er kominn í veðrun á toppi Eldfells hefur sala hafist á gjafaöskjum með Eldfellsútgáfunni á veitingastaðnum Næs.
Á toppi Eldfells stendur nú yfir vinna við árgang 2026 af Mosa Eldfelli þar sem tunnur með gininu liggja undir berum himni og sæta áhrifum veðurs og náttúruafla Vestmannaeyja. Vindur, salt og hitasveiflur eru meðal þeirra þátta sem móta endanlegt bragð vörunnar og gera hvern árgang einstakan.
Samhliða því hefur Mosi hafið sölu á gjafaöskjum með Eldfellsútgáfunni á Næs, þar sem Eyjamenn og gestir geta nú í fyrsta sinn keypt vöruna í heimabyggð. Hingað til hefur hún aðallega verið fáanleg hjá sérhæfðum söluaðilum og á völdum stöðum utan Eyja.
Eldfell mótar karakter drykkjarins
Sala fer fram í gegnum QR-kóða á staðnum og er fyrirkomulagið rekið í samstarfi við Sante í Vestmannaeyjum. Markmiðið er að gera heimafólki auðveldara að nálgast vöru sem sækir innblástur sinn og sérstöðu beint til Eldfells og sögu Vestmannaeyja.
TÍGULL
DREIFING:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

„Það hefur lengi verið draumur okkar að gera Mosa Eldfell aðgengilegan heimafólki. Þótt vörumerkið hafi vakið athygli víða um heim hefur alltaf verið mikilvægt fyrir okkur að tengingin við Vestmannaeyjar haldist sterk,“ segir Arnar Jón Agnarsson, stofnandi Mosa.
Heimafólk fær loksins aðgang að Eldfellsútgáfunni
Mosi hefur vakið athygli á undanförnum árum fyrir óhefðbundna nálgun við framleiðslu og þroskun gins. Í stað þess að reiða sig eingöngu á hefðbundna tunnugeymslu er drykkurinn látinn þroskast við
ólíkar íslenskar aðstæður þar sem umhverfið sjálft verður hluti af framleiðsluferlinu.
Eldfell er fyrsta og þekktasta veðrunarstöð fyrirtækisins. Þar vinna náttúruöflin með framleiðendum að því að skapa bragðeinkenni sem erfitt er að endurtaka annars staðar í heiminum.
Með nýjum árgangi í mótun og sölu hafna í Vestmannaeyjum virðist hringurinn því lokaður. Varan sem mótast á Eldfelli er nú loksins orðin aðgengileg þeim sem búa í skugga eldfjallsins sjálfs – og styrkir enn frekar tengsl Mosa við uppruna sinn í Eyjum.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumynd/Addi í London
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.






GÓÐA SKEMMTUN Á GOSLOKAHÁTÍÐINNI
„ÉG ELSKA AÐ SJÁ BROS Á ANDLITUM FÓLKS“

Kristína frá Litháen hefur vakið athygli í Vestmannaeyjum fyrir fallegar og hugmyndaríkar skreytingar sem hún býr til fyrir jól, afmæli og ýmis önnur tilefni. Sköpunargáfan, þolinmæðin og gleðin sem skín í gegnum hvert verkefni hafa heillað marga Eyjamenn. Tígull settist niður með Kristínu og fékk að kynnast henni betur.
Segðu okkur aðeins frá þér. Ég heiti Kristína, er 41 árs og kem frá borginni Šiauliai í Litháen. Ég flutti til Vestmannaeyja með eiginmanni mínum, Mantas, og börnunum okkar þremur, Gabriele, Armandas og Leju.
Hvernig kom það til að þið fluttuð til Íslands og síðan til Vestmannaeyja?
Við komum til Íslands árið 2022, fyrir fjórum árum. Upphaflega ætluðum við aðeins að vera hér yfir sumarið. Okkur langaði að taka okkur hlé frá vinnunni í Litháen og sýna börnunum okkar Ísland, þar sem við höfðum sjálf komið hingað fyrir um tuttugu árum. Við áttum líka vini frá Litháen sem búa í Vestmannaeyjum og ætluðum að heimsækja þá. En þegar sumarið var liðið fannst okkur við vera komin á réttan stað og ákváðum því að setjast hér að.
Hvernig hefur verið að aðlagast lífinu í Vestmannaeyjum?
Í byrjun var margt sem olli okkur áhyggjum, sérstaklega hvernig börnunum myndi ganga að aðlagast nýju landi, nýju tungumáli og nýju samfélagi.
Fljótlega sáum við hins vegar að Vestmannaeyjar eru mjög öruggur og góður staður til að ala upp börn. Íbúarnir tóku mjög vel á móti okkur og við höfum smám saman fundið okkur vel hér.
Það sem mér líkar best við Vestmannaeyjar er friðurinn. Fólkið er einstaklega hlýtt og vingjarnlegt og hér er enginn stöðugur asi eða stress. Lífið er einfaldlega rólegra.
Hvaðan kemur áhuginn á skreytingum og handverki?
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á listsköpun og handverki. Ég hef aldrei lært þetta í skóla heldur er ég algjörlega sjálfmenntuð.
Fyrir mig er þetta leið til að tjá mig og gera það sem mér þykir vænt um. Þegar mér dettur hugmynd í hug get ég varla hugsað um neitt annað fyrr en hún er orðin að veruleika. Þá líður mér eins og ég sé að endurhlaða mig og vera ég sjálf.
Hvaðan sækir þú innblásturinn?
Ég leita einfaldlega að tækifærum til að láta hugmyndirnar mínar verða að veruleika. Ég hef elskað listir frá barnæsku og það sem veitir mér mesta innblásturinn er að geta komið fólki á óvart og séð bros á andlitum þess.
Hvað tekur langan tíma að útbúa svona skreytingar?
Það fer alveg eftir verkefninu. Sumt get ég gert á örfáum klukkustundum en annað tekur mun lengri tíma.
























Til dæmis tók það mig rúman mánuð að búa til afmælistölurnar sem margir hafa séð. Ég þurfti að lita hvert einasta blað, bleyta það, þurrka og síðan líma blómin saman eitt af öðru.
Ég lít þó ekki á þetta sem vinnu heldur mitt eigið afslöppunarrými. Ég sé aldrei eftir þeim tíma sem fer í verkefnin.
Ég á ekki eitt ákveðið uppáhaldsverkefni. Sum finnst mér takast betur en önnur, en hugmyndirnar eru alltaf að fæðast og ég er þegar farin að hugsa um næstu verkefni.
Hvernig líður þér þegar þú sérð viðbrögð fólks við skreytingunum?
Það veitir mér mikla gleði að geta komið fólki, sérstaklega börnum, á óvart. Þegar ég sé gleðina í augunum þeirra og finn tilfinningarnar sem skapast, þá veit ég að allt erfiðið var þess virði. Ég sé aldrei eftir þeim tíma eða kostnaði sem fer í verkefnin. Hvert bros gefur mér nýja orku. Ég vona að mér hafi tekist að gleðja fólk og sýna því athygli, sérstaklega þegar um er að ræða einhvern sem er elskaður og mikilvægur. Það er yndisleg tilfinning að geta lagt mitt af mörkum til að skapa fallega stund, jafnvel þótt hún vari aðeins augnablik. Ég geri einfaldlega það sem hjartað segir mér og þannig fæ ég að njóta mín og skapa.
Myndir: Addi London




Nýfæddir vestmannaeyingar

Nafn: Melkorka Sif Tómasdóttir
Fæðingardagur: 18. febrúar 2026
Foreldrar: Tómas Aron Krjartansson og
Sigríður Kristjana Þorkelsdóttir
Þyngd: 3650g
Lengd: 48 cm
Móður afi og amma: Þorkell Ingimarsson og Gunnþóra Hólmfríður Önundardóttir.
Föður afi og amma: Kjartan Sölvi Guðmundsson og Anna Lilja Tómasdóttir.

Nafn: Tjörvi Týr Guðbjartsson
Fæðingardagur: 06. apríl 2026
Foreldrar: Selma Rut Sigurbjörnsdóttir
og Guðbjartur Logi Gunnþórsson
Þyngd: 4530g
Lengd: 54 cm
Móður afi og amma: Edda Daníelsdóttir og Sigurbjörn Árnason.
Föður afi og amma: Anna og Gunnþór
Systkini: Helgi Hrannar 13 ára, Sigurbjörg
Anna 7 ára og Gunnþór Gauti 5 ára.
Nafn: Embla Malen Tómasdóttir
Fæðingardagur: 14. febrúar 2026
Foreldrar: Selma Helgadóttir og Tómas Bent Magnússon.
Þyngd: 16 merkur
Lengd: 56 cm
Móður afi og amma: Helgi Sigurðsson og María Valdimarsdóttir.
Föður afi og amma: Magnús Elíasson og Harpa Hauksdóttir.

Nafn: Drengur Jónsson
Fæðingardagur: 21. mars 2026
Foreldrar: Jón Þór Guðjónsson og
Nanna Berglind Davíðsdóttir
Þyngd: 2975g
Lengd: 49 cm
Móður afi og amma: Davíð Guðmundsson og Aðalheiður Jensdóttir
Föður afi og amma: Guðjón Örn Guðjónsson og Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir
Systkini: Tinna Mjöll 5 ára í nóvember og Andrea Dögg 2 ára í apríl.



D A G S K R Á G O S L O K A H Á T Í Ð A R
2 0 2 6
S K A N N A H É R


Nafn: Drengur Alexandersson
Fæðingardagur: 01. maí 2026
Foreldrar: Eva Dögg Davíðsdóttir
og Alexander Ágúst Óskarsson
Þyngd: 4030 g
Lengd: 50 cm
Systir: Enja Hlín Alexandersdóttir
Móður ömmur og afar: María Pétursdóttir
og Gunnar Bergur Runólfsson // Davíð Þór
Einarsson og Sonata Grajauskaite Föður amma og afi: Brynhildur Jónsdóttir og
Óskar Gísli Karlsson

Nafn: Hólmgeir Þór Austfjörð Jónsson
Fæðingardagur: 08. apríl 2026
Foreldrar: Gabriela Dögg Viktorsdóttir og
Jón Ævar Austfjörð Hólmgeirsson
Þyngd: 3990 g
Lengd: 51 cm
Móður amma og afi: Anna Kristín Kristófersdóttir og Viktor Þór Reynisson
Föður amma og afi: Jóhanna Inga Jónsdóttir og Hólmgeir Austfjörð Ólason
Nafn: Drengur Elmarsson
Fæðingardagur: 09. maí 2026
Foreldrar: Sòlveig Adolfsdottir og Elmar Hrafn Òskarsson
Þyngd: 3650 g
Lengd: 51 cm
Systkyni: Una Maria, Elísabet Lilja, Baldur Örn og Natan Máni
Móður afi og amma: Adolf Þórsson og María Sigurbjörnsdóttir
Föður afi og amma: Óskar Guðjón Kjartansson og Una Sigríður Ásmundsdóttir

Nafn: Lovísa Lena Eyþórsdóttir
Fæðingardagur: 17. apríl 2026
Foreldrar: Eyþór Daði Kjartansson og Karen Guðmundsdóttir
Þyngd: 3000 g
Lengd: 46 cm
Móður afi og amma: Guðmundur Benediktsson og Kristbjörg Helga Ingadóttir
Föður afi og amma: Kjartan Guðmundsson og Anna Lilja Tómasdóttir










TÓNLIST, BREKKUSÖNGUR, SAMVERA OG EINSTÖK
STEMNING SEM ER EINFALDLEGA EKKI
HÆGT AÐ UPPLIFA ANNARS STAÐAR.




FORSÖLULOK
Forsölu félagsmanna ÍBV lýkur
á miðnætti föstudaginn 3. júlí!
Tryggið ykkur miða á dalurinn.is
ÞJÓÐHÁTÍÐARMIÐAR FYRIR 67–70 ÁRA
Hægt er að kaupa miða á sérkjörum, 15.990 kr.
Eldri borgarar sem eru félagsmenn geta einnig nýtt félagsmannaafsláttinn og keypt 3 miða á þeim kjörum til viðbótar við miða keyptan á sérkjörum eldri borgara.
Ef aðstoð vantar er hægt að hafa samband við framkvæmdastjóra ÍBV, Ellert Scheving, á ellert@ibv.is eða í síma 867-0262. Eins er velkomið að kíkja í Týsheimilið.
Þrautir vikunnar

Vinir Icewear fá 25% afslátt af öllum Icewear vörum
Í tilefni af Goslokahátíð verður verslun Icewear opin til kl. 22 fimmtudaginn 2. júlí. Léttar veitingar, happdrætti og góð stemmning!
icewear.is @icewearmagasin






AF FLUGGER
Wood Tex viðarvörn og Facade Resist útimálningu á stein.




FACADE RESIST ÚTIMÁLNING Á STEIN
Facade Resist er algjörlega einstök vara, sem í meira mæli gerir það mögulegt að mála utandyra þrátt fyrir veðuráskoranir eins og rigningu og kulda.