

Við hjá Vestmanneyjabæ, eins og Eyjamenn allir, erum alltaf jafn stolt og glöð þegar ÍBV íþróttafélag heldur sín knattspyrnumót á hverju sumri. Þetta eru stórverkefni sumarsins á íþróttasviðinu: TM mótið og Orkumótið í Eyjum. Mikil vinna og undirbúningur liggur að baki hjá félaginu, sem og öllum þeim þátttakendum sem mótin sækja. Enda eru þessi mót í flestum tilvikum hápunkturinn á sumrinu hjá þeim iðkendum og þjálfurum sem sækja okkur heim.
Eyjamenn eru þekktir fyrir að taka vel á móti gestum og það er einstök upplifun fyrir þátttakendur, nánast eins og að fara til útlanda, þegar farið er um borð í Herjólf og siglt til Eyja. ÍBV íþróttafélag leggur alltaf mikinn metnað í að mótin gangi vel fyrir sig og með samstilltu átaki allra þeirra sem koma beint eða óbeint að mótunum framkvæmdin ótrúlega vel. Og í raun má segja að bæjarbúar allir séu að einhverju leyti virkir þátttakendur í mótunum.
Félagið heldur nú 42. Orkumótið, var fyrirmynd annar sumarmóta sem við þekkjum svo vel í dag. Jákvæð upplifun af Eyjum, ásamt leikgleði og hæfilegu keppnisskapi, er það sem gerir mótin að minningum sem gleymast seint og eru alltaf svo verðmætar hjá öllum, bæði þátttakendum og þeim sem fylgjast með.
Fyrir okkur hér í Eyjum eru þetta tvær af stærstu ferðamannahelgum sumarsins, enda foreldrar og fjölskyldur dugleg að fylgja krökkunum sínum til leiks. Þetta er einmitt stór hluti af töfrum mótanna: það er ekki síður skemmtilegt að vera foreldri eða fylgdarmaður og sjá og upplifa gleðina sem skín úr hverju andliti.
Við hér í Eyjum erum stolt af því sem um að Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða fyrir mótsgesti og
ég efast ekki um að þú, sem og aðrir gestir mótanna, eigið góðar stundir framundan á okkar fallegu Heimaey. En mundu að þetta er upplifun og þetta er ævintýri sem vert er að njóta. Að vera til fyrirmyndar innan sem utan vallar er góð skemmtun. Þetta er leikur þó að þetta sé keppni!
Góða skemmtun! Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Miðvikudagur 25. júní
10:45/13:15/15:45/18:15
Brottför Herjólfs frá Landeyjarhöfn
11:00-20:30
18:00-20:00
Bátsferðir - skemmtisigling í Klettshelli
Kvöldmatur
Fimmtudagur 26. júní
7:00-9:00
8:00-18:00
8:20-12:20
11:30-13:30
13:00-17:00
16:30-18:30 19:00
Morgunmatur í Höllinni
Bátsferðir - skemmtisigling í Klettshelli
Leikir - riðlakeppni
Hádegismatur
Leikir - riðlakeppni
Kvöldmatur
Skrúðganga frá Barnaskóla og setning á Hásteinsvelli
Föstudagur 27. júní
7:00-9:00
8:20-12:20
9:00-17:00
11:30-13:30
13:00-17:00
16:30-18:30
19:00-19:45
20:00
Morgunmatur í Höllinni
Leikir - riðlakeppni
Liðsmyndataka við Sundlaugina - SportHero
Hádegismatur í Höllinni
Leikir - riðlakeppni
Kvöldmatur
Landslið - Pressulið, 2 leikir á Hásteinsvelli
Þeir sem keppa landsleik mæta 45 mín. fyrir leik í Herjólfshöll
Kvöldvaka í íþróttahúsinu - NUSSUN
Laugardagur 28. júní
7:00-9:00
8:00-14:00
11:15-13:15
15:00-16:30 16:30 17:00
17:15-18:00
19:30/22:00/23:55
Morgunmatur í Höllinni
Leikir - riðlakeppni
Hádegismatur í Höllinni
Jafningjaleikir
Bikarúrslitaleikir
Úrslitaleikur um Orkumótsbikarinn
Grillveisla við Týsheimili
Brottför Herjólfs frá Vestmannaeyjum
Dalvegur
H ama r s v e gur
Illugagata
Hásteinsvöllur
Skrifstofa ÍBV
Dalavegur
Helgafellsvöllur
Týsheimili
Herjólfshöll
Þórsheimili
Veitingasala og WC
Hamarsvegur
Þórsvöllur
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, í fyrra þegar ég spilaði á Orkumótinu.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Gylfi Sig.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 17 af því það er uppáhalds talan mín.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vinstri vörn.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, nokkrum sinnum. Til dæmis á Orkumótið 2019 þegar bróðir minn var í sigurliði mótsins.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Jóhann Berg Guðmundsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? #9 því ég fæddist 9. apríl.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Hægri kant.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United.
HRAFNKELL ARI ATLASON
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Ég hef komið til Eyja, árið 2023.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu?Uppáhaldsleikmaður í landsliðinU er Albert Guðmundsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég spila númer 99, því það er flott tala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Ég spila sem markvörður.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?
Arsenal er mitt lið.
KARL SALMAN USMANSSON
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei ég hef aldrei komið til Vestmannaeyja.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Uppáhalds leikmaðurinn minn í landsliðinu er Jóhann Berg.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er númer 4 því að Virgil Van Dijk er líka númer 4 en hann er uppáhalds leikmaðurinn minn.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mér finnst skemmtilegast að spila vörn.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?
Uppáhalds liðið mitt á Englandi er Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, sumarið 2023.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Ég á engan uppáhalds.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er númer 25. Ég er fæddur 25. desember og Halldóra frænka mín var líka númer 25 í fótbolta.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Mér finnst ótrúlega skemmtilegt að vera frammi og á miðju.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United alltaf.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei, er að fara í fyrsta skipti og hlakka til.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Steinn Óskarsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er númer 63, það er talan sem ég dró úr kassanum.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Skemmtilegast að spila í vörn og á miðjunni.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United!
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já ég hef komið einu sinni til Vestmannaeyja í fermingarveislu með pabba, stoppaði stutt. Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Steinn Óskarsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Númerið mitt er 31, ég valdi það vegna þess að það var það besta sem var í boði.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mér finnst skemmtilegast að spila vörn CB.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, var nú bara fyrir mánuði síðan að keppa æfingarleik við ÍBV.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég spila númer 10 því Mbappe, Neymar og fleiri góðir eru númer 10!
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Miðjumaður.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, bara þegar ég var lítill.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Steinn.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 17. Því það er afmælisdagurinn minn.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Striker.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? ManU.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, en ég var bara 3 ára. Við fjölskyldan fórum í 2018, helgina sem ÍBV unnu Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Mamma og pabbi segja að það var mikið spenna og fjör í Eyjum.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Steinn Óskarsson. Mamma hans er aðstoðarskólstjóri Mýrarhúsaskóla, þar sem ég er nemandi.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Númer 11 er treyjunúmerið Mo Salah. Gareth Bale og Neymar Jr. hafa líka borið #11.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Hægra megin í miðjunni.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Tottenham Hotspur; frændfólkið mitt búa í Enfield.
DAGUR BREKI ELVARSSON
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já hef farið þrisvar. Seinast þegar ég fór var fyrir 1-2 árum síðan.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Logi Tómasson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 14 útaf því að ég á afmæli 14. ágúst.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Frammi.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?
Man U.
ELVAR FREYR
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, ég fór í útilegu í Vestmannaeyjum með fjölskyldunni minni þegar ég var 5 ára.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Albert Guðmundsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er númer 14 af því að Chiesa í Liverpool er númer 14.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Á vinstri eða hægri kanti.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei ég hef ekki komið.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Ég er ekki viss!
Númer hvað spilar þú og afhverju? 15 og útaf 15 er uppáhalds talan mín, ég er líka fæddur 2015.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vörn.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já hef komið til Eyja að horfa á bróðir minn á Orkumótinu og systur mína á TM mótinu.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Hákon Haraldsson, Stefán Teitur og Ísak Bergmann.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Nr 29, það voru dregin nr.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Miðja.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Arsenal.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei hef ekki komið ennþá.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Hákon Arnar.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Nr.3 því mamma mín á afmæli 3. mars.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Sókn.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei þetta er fyrsta skiptið mitt í Eyjum
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Steinn
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég spila nr 29, ég er fæddur 29. mars.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Ég vil helst spila á miðjunni.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool!
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Bý sko í Eyjum.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Gylfi Sig er uppáhalds í landsliðinu.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Spila í treyju númer 13 aðallega til að pirra stjúppabba minn sem þolir ekki oddatölur.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Hægri kant.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
ALMAR FREYR INGASON
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, nokkrum sinnum, ég á fjölskyldu í Eyjum sem ég heimsæki stundum.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Jóhann Berg Guðmundsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 11, veit ekki.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Hægri kant.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Arsenal.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, ég fór í sumarbústað þegar ég var lítill, með fjölskyldunni minni.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Það er hann Albert!
Númer hvað spilar þú og afhverju? 5, af því mér finnst það vera góð tala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Best er framherji.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? ManU.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, man það ekki.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Allir.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 14, útaf því að Christian Eriksen er númer 14.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vinstri kant eða miðju.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester united.
Icewear gefur öllum þátttakendum mótsins skópoka og veglegan
Icewear afsláttarmiða! MÓTSINS verslun.
Einnig er mótgestum boðinn 25% afsláttur af öllum vörum í verslun Icewear í Vestmannaeyjum meðan á mótinu stendur.
*Gildir fyrir Vini Icewear, hægt er að skrá sig á staðnum.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já oft! Ég kem á hverju ári því pabbi minn er frá Eyjum og afi minn og amma búa þar.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Óskarsson því ég hef séð hann spila með FCK í Kaupmannahöfn.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég hef hingað til verið númer 15 því ég er fæddur 2015 en fyrir Orkumótið fæ ég úthlutað númeri frá KR sem ég veit ekki hvað verður.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Miðju
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? ManU.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei ekki komið áður til Vestmannaeyja.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Arnór Ingvi Traustason Njarðvíkingur.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Nr 17 af því að uppáhalds frænka var 17 ára þegar hann valdi númer.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vörn skemmtilegust
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Arsenal.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? .Já, árið 2021.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Steinn Óskarsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? ,30” Ég valdi númer 30 af því að það er mín heppnatala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Miðjumaður.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já 3x, einu sinni á Viðisleik, einu sinni með fjölskyldunni og í fyrra á Orkumótið.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Rúnar Þór þegar hann var valinn annars Orri Óskarsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 29, útaf Kai Havertz.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Miðju Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? ManU.
ARON INGI HILMARSSON
BJARMI ÞORBJÖRNSSON
ENDIJS HEISELIS
HALLDÓR ORRI ÞORGILSSON
BALTASAR HRAFN LEÓSSON
CHRISTIAN FONSECA ÓLAFSSON
EYJÓLFUR PÉTURSSON
HILMAR DARRI VALTYSSON
ARI BJARKAN FANNARSSON
BALTASAR LEONAR KRISTJÁNSSON
DANIILS SEVCOVS
FLORENCIO SILVA
HÁKON DAGUR HAFLIÐASON
ARNAR DAN VIGNISSON
BENEDIKT BJARKASON
ELMAR BJARKASON
GUÐMUNDUR GÍSLI SÆÞÓRSSON
HINRIK DAÐI ÓTTARSSON
INGI HRAFN ALBERTSSON
JÖKULL THOR GUÐBJARTSSON
MANÚEL BIRNIR KARLSSON
SIGURÐUR VIGFÚSSON
EVERT BENT BJÖRGVINSSON
JÓEL DAN GÍSLASON
KRISTÓFER DAÐI VIKTORSSON
MÁR ÓLI FRIÐÞJÓFSSON
THEÓDÓR BJARNI SVEINSSON
EIÐUR GAUTI THEÓDÓRSSON
JÓHANN DARRI EINARSSON
KRISTÓFER VEIGAR SVEINSSON
PÉTUR BJARNASON
ÓSKAR ÍSAK BRYNJARSSON
AMARTYA PRASHER
JÓN ÓLAFUR SVEINBJÖRNSSON
LÚKAS GOÐI HARÐARSON
SIGURÐUR ANDRASON
ÓÐINN TÝR BRYNJARSSON
Lag og texti: Jón Jónsson
Nú er tími ævintýra.
Grænir vellir okkar bíða.
Hér eignast munum haug af minningum
Tvöföld skæri og svo spretta.
Í góðu færi verð að negla.
Við skiljum allt eftir á vellinum
Oooooh, gaman útí Eyjum
Oooooh, sameiginlegt eigum að trúa draumana á.
Hér í Eyjum upplifum þá
Oooooh, í fótbolta' útí Eyjum
Oh oh ooooh!
Pabbi og mamma, afi og amma
Dómarann má ekki skamma
Ef eitthvað klikkar gengur betur næst
Viljum njóta, viljum þora.
Þarft að skjóta til að skora.
Við vitum öll að draumar geta ræst.
Oooooh, gaman útí Eyjum
Oooooh, sameiginlegt eigum að trúa draumana á.
Hér í Eyjum upplifum þá
Oooooh, í fótbolta’ útí Eyjum
Oh oh ooooh!
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, ég fór síðast til Vestmannaeyja árið 2017.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Steinn Óskarsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Númer 17, mér finnst hún flott tala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Mér finnst skemmtilegast að spila á vinstri kanti.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Mitt uppáhalds lið er Manchester United.
ÖLVER BJÖRGVINSSON
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, árið 2023 með fjölskyldunni í sumarfríi.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Albert Guðmundsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Númer 14, því það er afmælisdagurinn minn.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Hægri bakvörður þar sem ég er örfættur.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já kom í fyrra að horfa á bróðir minn keppa á Orkumótinu.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Ég á ekki uppáhalds.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Númer 10 því Messi er uppáhalds leikmaðurinn minn.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Arsenal.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já. Fór síðast árið 2023 að horfa á frænku mína keppa í fótbolta.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Steinn Óskarsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég spila númer 59. Við fengum úthlutað númerum hjá Stjörnunni en svo á ég afmæli 29. maí/29.05 svo þetta er blanda af þeim tölum.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Hægri kant.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Óskarsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Nr. 1 er markmaður.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Mark.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei ég hef aldrei komið til Eyja.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Óskarsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 9, ég valdi það bara.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Mér finnst skemmtilegast að vera striker því þá skora ég fleiri mörk.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já. 2024 að keppa á Orkumótinu.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Óskarsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 7. Það er flott tala. Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Sóknarsinnaður miðjumaður. Tía.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Þetta er erfiðasta spurningin. Ég held með Real Madrid í spænska boltanum en held eiginlega ekki með neinu liði í enska. Mér finnst samt gaman að fylgjast með Liverpool og Arsenal
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já ég kom til Vestmannaeyja þegar mamma átti afmæli 2019.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Uppáhalds leikmaðurinn minn er Albert Guðmundsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég spila í treyju
37 að því að ég fékk hana úthlutaða en hún er orðin uppáhalds talan mín.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Mér finnst skemmtilegast að spila vinstri bakvörð.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Ég held með Manchester United í ensku.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei er að koma í fyrsta skipti.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Hákon Arnar Haraldsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Er númer 8 og finnst það góð tala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Á miðju eða kanti.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, einu sinni. Ég kom í dagsferð í júlí í fyrra.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Jóhann Berg Guðmundsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég spila númer 91 því bróðir minn var með þetta númer þegar hann var í fótbolta og notar það ennþá í körfubolta.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Hægri kant.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Ég hef komið nokkrum sinnum til Vestmannaeyja, síðast var það fyrir tveim árum.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Hákon Rafn.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Númer 14, því mér finnst það góð tala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Man United.
Það voru lið Þróttar frá Reykjavík og HK sem léku til úrslita á síðasta Orkumóti. Bæði lið gerðu tvö mörk í fyrri hálfleik en það voru Þróttarar sem tóku forystuna í bæði skiptin, fyrst var það Garðar Freyr Gunnlaugsson sem skoraði en Kristófer Aron Kristjánsson jafnaði metin, síðan skoraði Andri Birgisson áður en Marinó
Þorsteinn Kristjánsson jafnaði eftir góðan samleik við liðsfélaga sína. Garðar Freyr Gunnlaugsson skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik og sitt annað mark í leiknum þegar hann skallaði knöttinn í netið óvaldaður á fjærstönginni. Leiknum lauk því með 3:2 sigri Þróttara. Við heyrðum í tveimur peyjum úr sigurliðinu.
Hvaða stöðu spilaru?
Númer hvað spilaru?
Hver er þín helsta fyrirmynd í fótboltanum?
Hafðir þú áður komið til Vestmannaeyja?
Hvernig fannst þér að koma til Eyja?
Hvernig var tilfinningin að verða meistarar?
Eitthvað að lokum?
GUÐMUNDUR ANDRI BJARNASON
Ég er oftast varnarmaður.
Ég spila í treyju nr. 8 vegna þess að ég get líka spilað á miðju.
Virgil van Dijk, þó ég sé ekki Liverpoolmaður.
Ég hef mörgum sinnum komið til Eyja með fjölskyldunni, fyrst þegar ég var þriggja ára.
Mér fannst frábært að koma til Eyja og eftirminnilegast er að sjálfsögðu úrslitaleikurinn.
Það var eiginlega ólýsanlegt. Ég fann til endalausrar gleði.
Til þeirra sem keppa á Orkumótinu í sumar: Njótið í botn!
HLYNUR HALLSSON
Miðju og stundum á kanti
Ég spila númer 3, af því pabbi minn var nr. 3 og bróðir spilar líka nr. 3. Núna líka spila mjög margir í fjölskyldunni minni líka nr. 3.
Emmi bróðir minn, pabbi minn því hann spilaði einu sinni í meistaraflokki og svo Toni Kroos, hann var miðjumaður og svo flottur leikmaður.
Já, ég hef einu sinni á þjóðhátið og þá var ég bara pínulítill og ég hef líka farið nokkrum sinnum eftir það með fjölskyldunni minni.
Það var mjög gaman að fara til Eyja, ég man mest af öllum sigrunum og hvernig við unnum leikina allir saman og hvernig þjálfararnir hjálpuðu okkur í þessu.
Mjög góð, ég fór bara næstum að gráta af gleði.
Við vorum heppnir með góða þjálfara og við hefðum ekki geta gert þetta nema að gera þetta allir saman.
Fæðingardagur? 29 ágúst 2004.
Staða á vellinum? Framherji. Ferill sem leikmaður? Grótta-
FCK-Sønderjyske-Real Sociedad. Bestu leikmenn sem þú hefur spilað með? Mohamed Elyounoussi og Martin Zubimendi. Erfiðasti andstæðingurinn? Rodri (Man City).
Hver eru markmið þín í fótboltanum? Komast á stórmót með landsliðinu og halda áfram að gera fólkið í kringum mig stolt af mér.
Besti þjálfari sem þú hefur haft og af hverju? Pabbi, Óskar Hrafn lagði allan grunn sem ég þurfti til að ná langt.
Hver var þín helsta fyrirmynd þegar þú varst yngri? Lionel Messi.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Reitur og skot æfingar hefur alltaf verið í uppáhaldi
En það leiðinlegasta sem þú gerir á æfingum? Föst leikatriði. Mestu vonbrigði á vellinum?
Detta úr undanúrslitum Copa
Del Rey á móti Real Madrid í framlengingu og tapið gegn Úkraínu í umspili EM.
Stærsta stund á þínum ferli? Knattspyrnumaður ársins, fyrsti leikur sem fyrirliði Íslands og að komast í 16 liða úrslit meistardeildarinnar.
Hvernig er hefðbundinn leikdagur hjá þér? Borða góðan morgunmat, legg mig til 12,
borða hádegismat, spila smá playstation ef mögulegt og reyni að dreyfa huganum, annars bara passa að ég sé klár í leikinn. Ertu hjátrúafull fyrir leiki? Var það mikið þegar ég var yngri en ekki lengurþ Áttu þér áhugamál fyrir utan fótbolta? Spila mikið tölvuleiki með vinum mínum og vera með fjölskyldu.
Hjá hvaða liði hafa verið þínir bestu tímar á ferlinum? Átti frábæra tíma hjá FCK í akademíunni og aðalliðinu, vonandi verður Sociedad ennþá betra. Hver er sterkasta deild sem þú hefur spilað í? La Liga Fórst þú oft á TM mótið/ Orkumótið í Eyjum?
Fór í kringum 3x minnir migá Orkumótið, uppáhalds mótið mitt af þeim öllum.
Hvað þurfa krakkar sem eru að leggja leið sína á TM og Orkumótið í Eyjum að gera til þess að ná langt í fótbolta?
Leggja hart að sér, vera viljug til að læra og vera sterk í hausnum.
7 8 2 4
9 7 5 4 7 1 2 4 6
Virkir dagar frá 8:00-17:00 laugardagar 10:00-14:00
Nýsmíði
Gólfhitafræsing
Gólfhitalögn
Kjarnaborun
Pallasmíði
Þakvinna
Innréttingar
Utanhúsklæðningar
aglverktakar@gmail.com // 768 5228
Verið velkomin
Jákvæður og uppbyggilegur stuðningur er besta hvatningin!
Við erum hér til að hafa gaman saman!
Berum virðingu fyrir dómurum,
þau eru fólk eins og við, með mismikla reynslu.