16. tbl. 08. árg. 24. júní - 1. júlí 2026

![]()
16. tbl. 08. árg. 24. júní - 1. júlí 2026

Nú flykkjast peyjar í 6. flokki í fótbolta og fjölskyldur þeirra til að upplifa Orkumótið í Eyjum. Mótið fer fram dagana 25. júní - 27. júní. Megi leikarnir vera æsispennandi, ævintýrin ógleymanleg og kaffið á hliðarlínunni rjúkandi heitt. Góða skemmtun!
Kæru þátttakendur og gestir
Við Eyjamenn erum mjög hreykin af ÍBV íþróttafélagi og hvernig þeir skipulega sín glæsilegu knattspyrnumót er partur af því. TM-mótið og Orkumótið eru ekki bara stór verkefni, þau eru hjartað í íþróttasumarinu í Eyjum.
Að baki þessum mótum liggur gríðarleg vinna, metnaður og samheldni. Sjálfboðaliðar, félagið og þátttakendur leggja allir sitt af mörkum til að skapa viðburði sem margir bíða eftir allt árið. Fyrir fjölda iðkenda og þjálfara eru þessar helgar einfaldlega hápunktur sumarsins.
Ferðin til Eyja setur tóninn, að stíga um borð í Herjólf og sigla til okkar er hluti af upplifuninni. Hér tekur á móti ykkur samfélag sem kann að taka vel á móti fólki og leggur metnað í að láta allt ganga upp. Þegar allir leggjast á eitt verður til stemning sem er einstök og ógleymanleg.
Orkumótið er haldið í 42. sinn í ár og hefur fest sig í sessi sem eitt stærsta og líflegasta mót landsins. Hér ríkir stemmingin, leikgleðin og heilbrigður keppnisandi. Þetta eru augnablikin sem verða að minningum, minningum sem lifa lengi.
Þessar helgar breyta Eyjum. Fjölskyldur streyma hingað, líf og fjör er alls staðar og samfélagið allt tekur þátt. Það er ekki síður gaman að fylgjast með, styðja og taka þátt í gleðinni á hliðarlínunni. Við Eyjamenn erum stolt af því sem við höfum upp á að bjóða og ég er sannfærð um að þið finnið það sjálf þessa daga. Njótið hverrar stundar, sýnið hvort öðru virðingu og munið hvað skiptir máli.
Þetta er leikur en gleðin er alvöru.

Góða skemmtun! Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
DREIFING:
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Miðvikudagur 24. júní
10:00/12:00/14:00/17:00
Brottför Herjólfs frá Landeyjarhöfn

11:00-20:30
18:00-20:00
Bátsferðir - skemmtisigling í Klettshelli
Kvöldmatur
Fimmtudagur 25. júní
7:00-9:00
8:00-18:00
8:20-12:20
11:30-13:30
13:00-17:00
16:30-18:30 19:00
Morgunmatur í Höllinni
Bátsferðir - skemmtisigling í Klettshelli
Leikir - riðlakeppni
Hádegismatur
Leikir - riðlakeppni
Kvöldmatur
Skrúðganga frá Barnaskóla og setning á Hásteinsvelli
Föstudagur 26. júní
7:00-9:00
8:20-12:20
9:00-17:00
11:30-13:30
13:00-17:00
16:30-18:30
19:00-19:45
20:00
Morgunmatur í Höllinni
Leikir - riðlakeppni
Liðsmyndataka við Sundlaugina - SportHero
Hádegismatur í Höllinni
Leikir - riðlakeppni
Kvöldmatur
Landslið - Pressulið, 2 leikir á Hásteinsvelli
Þeir sem keppa landsleik mæta 45 mín. fyrir leik í Herjólfshöll
Kvöldvaka í íþróttahúsinu - Tónhylur
Laugardagur 27. júní
7:00-9:00
8:00-14:00
11:15-13:15
15:00-16:30 16:30 17:00
17:15-18:00
20:00/22:00/23:55
Morgunmatur í Höllinni
Leikir - riðlakeppni
Hádegismatur í Höllinni
Jafningjaleikir
Bikarúrslitaleikir
Úrslitaleikur um Orkumótsbikarinn
Grillveisla við Týsheimili
Brottför Herjólfs frá Vestmannaeyjum



Illugagata
TÝSVÖLLUR



Myndataka SPORTHERO
H ama r s v e gur

Tjaldsvæði
Skrifstofa ÍBV - Mótsstjórn
Týsheimili

Veitingasala
HERJÓLFSHÖLL

Tjaldsvæði Tjaldsvæði



Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær?
Já, 2016 og 2023
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Hákon Rafn
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? 1, það eru svo margir frægir fótboltamenn með það Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mark Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Liverpool


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já þá hvenær?
Já, ég hef komið þegar eldri bróðir minn var að keppa á Orkumótinu og svo er draumurinn að fara á Þjóðhátíð. Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Gísli Gotti, kærasti systur minnar.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? 7, af því að Ronaldo er númer 7 og við kóngarnir erum númer 7.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vinstri kantur, af því það er svo gaman að koma inn á völlinn og þruma á markið.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool, LANG BESTIR.


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Guðlaugur Victor, hann gefst aldrei upp!
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu?
16, það er afmælisdagurinn minn og happatalan mín. Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Miðju
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Liverpool


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Ég hef farið nokkrum sinnum áður en ég man ekki hvenær ég fór síðast. Ég fór t.d. þegar systir mín keppti á Orkumótinu 2021.
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?
Örugglega markmaðurinn, Elías Rafn.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég er númer fjögur af því að ég á afmæli 4.júní.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mark og miðju
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Liverpool


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær?
Já ég hef komið 3x til Vestmannaeyja, 2x í ferðalagi með fjölskyldunni og á Orkumótið í fyrra.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Óskarsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er númer 4 þar sem ég er varnarmaður og bestu varnarmennirnir eru oft númer 4.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já ég fór þegar ég var 7 ára með fjölskyldunni minni og vinafólki okkar. Það var mjög gaman og svo margt spennandi hægt að gera.
Uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Framarinn Viktor Bjarki Daðason.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég spila í treyju númer 52 því talan sem mig langaði í var frátekin. Svo þegar ég hugsaði málið þá fannst mér talan 52 eins og fjöldinn á spilum í spilastokk. Þannig að ég er með öll spilin á hendi þegar ég mæti til leiks.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vinstri kantur eða framsækinn miðjumaður.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Hvers konar spurning er þetta? Auðvitað Manchester United!


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær?
Jáhhh oft, mamma mín er frá Vestmannaeyjum Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Gylfi Sig
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? 32, neihh held ekki
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vörn
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Manchester United


Fullt nafn: Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær?
já hef komið nokkrum sinnum, síðast á Orkumótið 2025.
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Daniel Leó Grétarsson
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu?
ég er nr 30. Það fá allir í Keflavík bara úthlutað númer. Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Hægri kantur
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Liverpool




Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja ef já hvenær? Já ég hef komið tvisvar áður, þegar systir
mín var að keppa í fótbolta.
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Gylfi Sigurðsson
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Nr.4, eins og Van Dijk. En ætla að breyta í nr.11.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Hægri kantur
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei er að fara í fyrsta skipti
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Hákon Rafn Valdimarsson
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu?
Ég á afmæli 9.september og er númer 9
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vörn
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Arsenal


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já fór til eyja í dagsferð með pabba þegar ég var 6 ára.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Gylfi Sig.
Númer hvað spilar þú og afhverju?
Ég spila númer 26 því það var dregið númer. Væri til í að spila númer 8 því ég á afmæli 8.apríl og pabbi
spilaði númer 8.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vörn eða miðju.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?
Hélt með Man City en held með Liverpool núna.


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já ég hef komið þrisvar áður. Alltaf til að spila eða horfa á fótbolta.
Uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Orri Óskarsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 88 af því að besta talan mín er 8 og það er ennþá betra að hafa tvær áttur aftan á búningnum.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Miðju.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester City.


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, mörgum sinnum. Fór á Orkumótið með bróður mínum, TM mótið með systur minni og í skemmtiferðir með ömmu og afa.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Albert Guðmundsson.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég er númer 2 afþví að ég á afmæli 2. janúar.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? frammi eða í marki.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Manchester United.
HÓLMAR ÖRN ÞORBERGSSON


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já en man ekki alveg hvenær.
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Daníel Leó Grétarsson
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég er númer 8, mér finnst það góð tala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Frammi
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Liverpool


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já í fyrra spilaði ég með eldra árinu því það vantaði auka leikmenn og svo kom ég líka 2023 að horfa á eldri bróðir minn keppa á Orkumótinu fyrir Hauka.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Albert Guðmundsson.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Númer 20, því það er afmælisdagurinn minn. Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Hægri kantur.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Manchester United.


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, ég kom í dagsferð þegar ég var 4 ára til að sjá Litlu Grá og Litlu Hvít
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska
landsliðinu? Gylfi
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu?
Ég valdi númer 23 eftir að ég náði 23 kill í Fortnite
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Frammi
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Manchester United af því amma elskaði það
SIGURÐUR ANDRASON


Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu?
Orri. Ég var að fá áritaða treyju frá honum áðan.
Númer hvað spilar þú og afhverju?
32 - Af því pabbi var með hana þegar ég var lítill.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Frammi.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?
Liverpool.

Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei aldrei komið til Vestmannaeyja Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Albert Guðmundsson
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? 26 Af því að ég er fæddur 2016 og vissi að ég yrði ekki eini í þessum árgang um að vilja vera númer 16 og valdi því 26
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Skemmtilegast að spila frammi en er betri í vörn
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Liverpool


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já ég fór með fjölskyldunni minni til Eyja árið 2020.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Albert Guðmundsson en Hallgrímur
Steingrímsson þegar hann er valinn í liðið.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég er alltaf númer 11 því mér finnst það flott tala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mér finnst skemmtilegast að spila frammi í sókninni.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Liverpool


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei aldrei komið áður.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Hákon Haraldsson
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir
þeirri tölu? 6 - Roberto Carlos er minn maður
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vörn - Stundum kallaður ,, Veggurinn af skaganum”
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Liverpool





Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja? Nei ég hef aldrei farið til Vestmannaeyja og hlakka mikið til að fara.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Mikael Egill Ellertsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég spila númer 20 því ég á afmæli 20. september. Ég var númer 17, því afi Gummi átti afmæli 17. mars.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vinstri kant
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United.


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja?
Nei, aldrei..
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Sverrir Ingi Ingason og Hákon Arnar Haraldsson.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu?
Ég er númer 3, af því ég á afmæli 3. maí.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn.
Hvað er uppáhaldslið þið í enska boltanum? Liverpool.


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já Í fyrra á orkumótið 2025.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Albert Guðmundsson.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég er númer 10, finnst það góð tala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Miðju.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool.


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei ég er að fara í fyrsta skipti og er mjög spenntur. Búin að heyra að það sé geggjað að spranga þar.
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Albert Guðmundsson Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég er númer 76, KR dróg númer. Núna er þetta eitt af mínum uppáhalds tölum.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Örugglega hægri eða vinstri kantur.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Manchester United




ARNAR DAN VIGNIRSSON

BALTASAR LEONAR KRISTÓFERSSON

ELVAR ARON GARÐARSSON

ARNAR ELÍ SIGURÞÓRSSON

BJARMI ÞORBJÖRNSSON

EMIL ÞÓR GRÉTARSSON

ARNI STORMUR TRYGGVASON

DAVID-ÖRN SCURTU

EVERT BENT BJÖRGVINSSON

BALTASAR BRIMAR SÆVARSSON

EIÐUR GAUTI THEODÓRSSON

EYJÓLFUR PÉTURSSON

FLORENCIO SILVA

HRAFN SIGURSTEINSSON

LEÓ BREKI BJARKASON

NÓEL GAUTI ÓSKARSSON

HÁKON DAGUR HAFLIÐASON

GABRIEL HRAFN LEÓSON

LÚKAS GOÐI HARÐARSON

ÓÐINN INGI GUÐMUNDSSON

HINRIK DAÐI ÓTTARSSON

HRINRIK FREYR SMÁRASON

MACEL IGNACZAK

ÓÐINN TÝR BRYNJARSSON

HÖRÐUR KÁRI ÍSFJÖRÐ PÁLMASON

JÓEL DAN GÍSLASON

MANÚEL BIRNRI KARLSSON

ÓMAR DAGUR EIÐSSON

PÉTUR BJARNASON

SVEINN SIGURBERGSSON

SIGURÐUR ANDRASON

TEITUR ATLI RUNARSON


SIGRÐUR VIGFÚSSON

THEÓDÓR BJARNI SVEINSSON

SVEINN GEORG SINDRASON

VALMUNDUR ÞÓR VALSSON



Fæðingardagur? 30.04.1991
Staða á vellinum? Vörn
Ferill sem leikmaður? AGF Aarhus, Liverpool FC, Hibernian, NY Red Bulls, NEC Nijmegen, Helsingborg IF, Esbjerg FB, FC Zurich, Darmstadt 98, Schalke 04, DC United, KAS Eupen, Plymouth Argyle, AC Horsens.
Bestu leikmenn sem þú hefur spilað með? Steven Gerrard og Thierry Henry.
Erfiðasti andstæðingurinn?
C. Ronaldo, Gareth Bale og K. Mbappe.
Titlar sem þú hefur unnið?
Bikarmeistari í Sviss og 2. Bundesliga.
Hver eru markmið þín í fótboltanum?
Að reyna alltaf að bæta mig.
Besti þjálfari sem þú hefur haft og af hverju?
Arnar Gunnlaugsson. Frábær taktískur þjálfari og frábær manneskja.
Hver var þín helsta fyrirmynd þegar þú varst yngri?
David Beckham.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum?
Reitur og spil.
En það leiðinlegasta sem þú gerir á æfingum?
Það er ekkert leiðinlegt :)
Mestu vonbrigði á vellinum?
Töpin á móti Ungverjum og Úkraníu til að komast á EM. Stærsta stundin á þínum ferli?
Að spila fyrir landsliðið.
Hvernig er hefðbundinn leikdagur hjá þér?
Hann er aldrei sá sami.
Ertu hjátrúafullur fyrir leiki?
Já, ég bið alltaf til Guðs fyrir leiki.
Áttu þér áhugamál fyrir utan fótbolta?
Já, andleg og líkamleg heilsa er stórt áhugamál hjá mér sem ég eyði miklum tíma í.
Hjá hvaða liði hafa verið þínir bestu tímar á ferlinum? FC Zürich og Schalke 04.
Hver er sterkasta deild sem þú hefur spilað í?
Championship á Englandi.
Fórst þú oft á Orkumótið í Eyjum?
Ég fór já en ég man ekki hversu oft.
Hvað þurfa krakkar sem eru að leggja leið sína á Orkumótið í Eyjum að gera til þess að ná langt í fótbolta? Gera sitt besta og hafa gaman.
Einhver skilaboð sem þú vilt koma á framfæri? Eltu draumana þína. Ekki leyfa neinum að segja þér að eitthvað sé ekki hægt. Það er allt hægt.
Gangi ykkur rosalega vel á Orkumótinu.



Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já,ég fór síðast árið 2025 á Orkumótið.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Gylfi Sig en Þórir Jóhann Helgason frændi minn er líka uppáhalds leikmaðurinn minn.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 4. (19) útaf
Lamine Yamal
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Hægri bakvörð.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja?
Nei þetta er í fyrsta skiptið
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Guðlaugur Victor Pálsson
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir
þeirri tölu?
Er númer 7 og það er útaf Ronaldo
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Markmaður
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Liverpool


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær?
Já nokkrum sinnum. Er nýkominn af TM mótinu með systur minni..
Uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?
Albert
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? 8, það er happatalan mín.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn. Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Manchester United.


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?
Þekki ekki Íslenska landsliðið nógu vel þannig ég
segi Cristiano Ronaldo.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir
þeirri tölu?
8 sem er afmælisdagurinn minn.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Sókn


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei, ég hef ekki áður komið til Vestmannaeyja
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Gylfi Sig
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? 52. Ég fékk það númer hjá Víking.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vinstri kant
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool
THEODÓR BIRKIR HLYNSSON


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, ég hef komið einu sinni áður til Vestmannaeyja, árið 2023. Þá fór ég með pabba og við skoðuðum margt skemmtilegt og heimsóttum hvítu hvalina og sáum Lunda sem var fastur í olíu í sjónum.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Hákon Arnar, hann er lang bestur.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég spila númer 76 en það er engin ástæða ég fékk þessa tölu frá þjálfurunum, en það er allt í lagi
þetta er öfugt six seven!
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mér finnst skemmtilegast að spila frammi/striker. Gaman að skora mörk.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Uppáhalds liðið mitt í Enska boltanum er Liverpool


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, 2025.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Orri Steinn Óskarsson.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? 12 - það var eina talan sem var laus.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Sem sóknarmaður.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Manchester City.


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja? Já, ég fór sumarið 2025 í fyrsta skipti til Vestmannaeyja. Það var mjög gaman, þetta er geggjuð eyja, margt að gera og skemmtilegt fólk.
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Jón Dagur Þorsteinsson
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég spila í treyju númer 4 vegna þess að minn maður er Virgil van Dijk, hann er bestur og er númer 4.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vinstri vörn, en ég spila allar stöður sem þjálfararnir segja mér að spila.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Allan daginn LIVERPOOL! You´ll never walk alone.


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já það hef ég auðvitað, fór að horfa á stóra bróður minn keppa með ÍA á Orkumótinu 2021.
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Það er Albert Guðmundsson.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég spila númer 17, því stóri bróðir minn spilat númer 17.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mér finnst skemmtilegast að spila vörn.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Auðvitað Manchester United!


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja: Já ég er ættaður frá Vestmannaeyjum og hef komið á þjóðhátíð og svona.
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu: Það er alltaf Kristian Nökkvi Hlynsson. Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir því? Ég er númer 77 að því að Óskar Bogga í Víking var númer 77 þegar hann spilaði með Fylki. Hann er fyrirmyndin mín og við köllum líka hvorn annan brósa!
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Miðju
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska: Manchester City


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já tvisvar. Einu sinni að horfa á systir mína á TM móti og á Orkumótið
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Aron Einar
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu?
13, útaf því að ég á afmæli 13. júní
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vinstri kant
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Manchester City ARON BREKI HARALDSSON


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, fór með fjölskyldunni minni árið 2024. Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Orri Óskarsson. Hann á sitt eigið lag sem mér finnst skemmtilegt.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? 11, það er uppáhalds talan mín. Hún styrkir liðsandann í mér.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mér finnst skemmtilegast að spila miðju. Þá getur maður verið alls staðar á vellinum.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Leeds United!


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, árið 2019.
Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?
Gylfi Þór Sigurðsson
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir
þeirri tölu?
3, af því að ég er fæddur 3. mars.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Markmaður
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Manchester City


Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? já, júlí 2020.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Albert Guðmundsson.
Númer hvað spilar þú og afhverju?
Númer 21 það er afmælisdagurinn minn.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Sókn.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.




Hefur þú komið til Vestmannaeyjar, ef já, þá hvenær?
Já, ég fór í fyrra með eldri á Orkumótið og lentum í 2. sæti um Suðureyjarbikarinn. Uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?
Hákon Arnar Haraldsson.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu ? Ég er nr 10 af því Gylfi Þór Sigurðsson er nr #10#.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Frammi eða vörn, mig langar mest að vera framherji!!
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum?
Manchester United .

Það var lið HK sem sigraði Þrótt frá Reykjavík í úrslitaleik um Orkumótstitilinn í fyrra. Þessi lið mættust einnig í úrslitaleiknum 2024. Þá fór Þróttur með sigur af hólmi. En sigurinn í dag var torsóttur hjá HK, HK komst yfir í fyrri hálfleik með marki frá Kristófer Aroni Kristjánssyni, en Þrótturum óx ásmeginn eftir því sem líða tók á leikinn og náðu að jafna í síðari hálfleik með marki Jakobs Steins Valdimarssonar. Það þurfti því að framlengja leikinn um 2 x 5 mínútur og þrátt fyrir góð tilþrif tókst liðunum ekki að bæta við mörkum í framlengingunni. Því varð að grípa til vítaspyrnukeppni og það var líkt og peyjarnir hefðu ekki gert annað en að æfa vítaspyrnur því 15 fyrstu spyrnurnar rötuðu í markið en eitthvað varð að láta undan og fór 16. spyrnan í markstöngina og HK því Orkumótsmeistari 2025.



Marinó Þorsteinn Kristjánsson er 11 ára leikmaður HK sem spilaði úrslitaleikinn á Orkumótinu í fyrra. Við fengum Marinó í létt spjall.
Hvaða stöðu spilar þú helst? Oftast kantmaður, stundum varnarmaður.
Númer hvað spilar þú og er einhver sérstök ástæða fyrir þeirri tölu? Ég spila númer 11 því mér finnst það flott tala.
Hver er þín helsta fyrirmynd í fótboltanum?
Messi því hann er svo hraður, sterkur, létt fyrir hann að fara fram hjá mönnum. Hann er bara svo góður.
Hefur þú komið til Vestmannaeyja áður (fyrir utan að keppa á Orkumóti)? Ef já, þá hvenær? Já ég hef nokkru sinnum komið á TM mótið með systur minni og líka farið með fjölskyldunni minni á þjóðhátíð.
Hvernig fannst þér að koma til Eyja og hvað er það helsta sem stóð upp úr?
Já mér finnst gaman að fara í ferðalagið til eyja, það er alltaf stemning og það stóð helst upp úr að vinna Orkumótið í fyrra.
Með hvaða liði heldur þú í enska boltanum? Liverpool.
Hvernig var tilfinningin þegar dómarinn flautaði úrslitaleikinn af og þið orðnir meistarar? Það er ólýsanleg tilfinning að vinna mótið í vító með liðinu og ég brosi alltaf þegar ég hugsa um þetta.
Eitthvað að lokum?
Ég á geggjaðar minningar af Orkumótinu með vinum mínum og ég vona að þið njótið öll mótsins.
Lag og texti: Jón Jónsson
Nú er tími ævintýra.
Grænir vellir okkar bíða.
Hér eignast munum haug af minningum
Tvöföld skæri og svo spretta.
Í góðu færi verð að negla.
Við skiljum allt eftir á vellinum
Oooooh, gaman útí Eyjum
Oooooh, sameiginlegt eigum að trúa draumana á.
Hér í Eyjum upplifum þá
Oooooh, í fótbolta' útí Eyjum
Oh oh ooooh!
Pabbi og mamma, afi og amma
Dómarann má ekki skamma
Ef eitthvað klikkar gengur betur næst
Viljum njóta, viljum þora.
Þarft að skjóta til að skora.
Við vitum öll að draumar geta ræst.
Oooooh, gaman útí Eyjum
Oooooh, sameiginlegt eigum að trúa draumana á.
Hér í Eyjum upplifum þá
Oooooh, í fótbolta’ útí Eyjum
Oh oh ooooh!

Á goslokahelginni í júlí verður kynnt nýútkomin bók eftir Sigurgeir Jónsson, sú 16., sem hann hefur skrifað og gefið út, og heitir Vísnagátur úr Vestmannaeyjum. Þar er að finna um 150 vísnagátur sem flestar tengjast Vestmannaeyjum. Eldri gáturnar með gömlu sniði þar sem á að finna lausnina í innihaldi gátunnar.
Nýrri gáturnar fjalla allar um örnefni, eyjar, dranga og sker, ýmsa staði og húsanöfn í Vestmannaeyjum. Þar
á aftur á móti að finna lausnina með þvíað lesa beint úr vísunni, án þess að rugla stöfum.
Sem dæmi er hér vísnagáta þar sem finna á eyju í Vestmannaeyjum:
Um huliðsheima Eyja hljóða margar góðar sögur. Huldumanna og meyja margt er fært í ljóð og bögur.
Lausnina er að finna í 1. línu, Heimaey.
Tígull hefur ákveðið, í samráði við Sigurgeir, að efna til getraunar og verður ein vísnagáta birt í þessu blaði og tveimur næstu, þar sem á að ráða úr örnefnum og fleiru í Vestmannaeyjum.
Senda skal svör við öllum þremur gátunum saman fyrir 28. júní á netfangið sigurge@internet.is . Dregið verður úr réttum lausnum og úrslitin kynnt á kynningu bókarinnar á Goslokahátíð. Þrír heppnir munu hljóta verðlaun, sem eru áritaðar bækur.
En hér er þriðja og síðasta gátan. Að þessu sinni er spurt um gamalt húsnafn í miðbænum í Vestmannaeyjum. Nafnið er hægt að lesa beint úr textanum án þess að rugla stöfum.
Ýmislegt lengur ekki má, ef á í tískunni´að tolla. Ég hafa vil gamla háttinn á, helli rjúkandi kaffi í bolla.




Verið velkomin á
Jákvæður og uppbyggilegur stuðningur er besta hvatningin!
Við erum hér til að hafa gaman saman!
Berum virðingu fyrir dómurum, þau eru fólk eins og við, með mismikla reynslu.