16. tbl. 07. árg. 11.-18. júní 2025

mótið 12. - 14. júní 2025
16. tbl. 07. árg. 11.-18. júní 2025
mótið 12. - 14. júní 2025
Við hjá Vestmanneyjabæ, eins og Eyjamenn allir, erum alltaf jafn stolt og glöð þegar ÍBV íþróttafélag heldur sín knattspyrnumót á hverju sumri. Þetta eru stórverkefni sumarsins á íþróttasviðinu: TM mótið og Orkumótið í Eyjum. Mikil vinna og undirbúningur liggur að baki hjá félaginu, sem og öllum þeim þátttakendum sem mótin sækja. Enda eru þessi mót í flestum tilvikum hápunkturinn á sumrinu hjá þeim iðkendum og þjálfurum sem sækja okkur heim.
Eyjamenn eru þekktir fyrir að taka vel á móti gestum og það er einstök upplifun fyrir þátttakendur, nánast eins og að fara til útlanda, þegar farið er um borð í Herjólf og siglt til Eyja. ÍBV íþróttafélag leggur alltaf mikinn metnað í að mótin gangi vel fyrir sig og með samstilltu átaki allra þeirra sem koma beint eða óbeint að mótunum framkvæmdin ótrúlega vel. Og í raun má segja að bæjarbúar allir séu að einhverju leyti virkir þátttakendur í mótunum.
TM mótið fer fram í 36. sinn í ár og þátttakendur hafa aldrei verið fleiri en nú. Félagið heldur nú 42. Orkumótið, var fyrirmynd annar sumarmóta sem við þekkjum svo vel í dag. Jákvæð upplifun af Eyjum, ásamt leikgleði og hæfilegu keppnisskapi, er það sem gerir mótin að minningum sem gleymast seint og eru alltaf svo verðmætar hjá öllum, bæði þátttakendum og þeim sem fylgjast með.
Fyrir okkur hér í Eyjum eru þetta tvær af stærstu ferðamannahelgum sumarsins, enda foreldrar og fjölskyldur dugleg að fylgja krökkunum sínum til leiks. Þetta er einmitt stór hluti af töfrum mótanna: það er ekki síður skemmtilegt að vera foreldri eða fylgdarmaður og sjá og upplifa gleðina sem skín úr hverju andliti.
Við hér í Eyjum erum stolt af því sem um að Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða fyrir mótsgesti og ég efast ekki um að þú, sem og aðrir gestir mótanna, eigið góðar stundir framundan á okkar fallegu Heimaey. En mundu að þetta er upplifun og þetta er ævintýri sem vert er að njóta. Að vera til fyrirmyndar innan sem utan vallar er góð skemmtun. Þetta er leikur þó að þetta sé keppni!
Góða skemmtun! Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
FORSÍÐUMYNDIN: Forsíðumynd vikunnar er tekin á úrslitaleik TM-mótsins á síðasta ári þar sem Valur og KR. Leiknum lauk með sigri KR sem urðu TM-mótsmeistarar 2025. Mynd: Sigfús Gunnar.
DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Deloitte í Vestmannaeyjum leitar að öflugum og drífandi einstaklingi í spennandi og krefjandi starf bókara. Við bjóðum viðskiptavinum hérlendis og erlendis m.a. upp á bókhalds-, launa- og reikningshaldsþjónustu, sjálfvirknivæðingu á fjármálaferlum, rekstrargreiningu og aðra ráðgjöf á sviði fjármálaferla.
Deloitte í Vestmannaeyjum leitar að öflugum og drífandi einstaklingi í spennandi og krefjandi starf bókara. Við bjóðum viðskiptavinum hérlendis og erlendis m.a. upp á bókhalds-, launa- og reikningshaldsþjónustu, sjálfvirknivæðingu á fjármálaferlum, rekstrargreiningu og aðra ráðgjöf á sviði fjármálaferla.
Hefðbundinn vinnudagur:
Hefðbundinn vinnudagur:
• Umsjón með fjárhagsbókhaldi, launavinnslu og skýrslugerð til stjórnenda
• Umsjón með fjárhagsbókhaldi, launavinnslu og skýrslugerð til stjórnenda
• Vinna að tilfallandi verkefnum fyrir viðskiptavini
• Vinna að tilfallandi verkefnum fyrir viðskiptavini
• Almenn skrifstofustörf
• Almenn skrifstofustörf
• Stuðningur við markaðssókn og fylgjast með spennandi tækifærum
• Stuðningur við markaðssókn og fylgjast með spennandi tækifærum
• Þátttaka í gæðaferlum
• Þátttaka í gæðaferlum
Bakgrunnur þinn og reynsla:
Bakgrunnur þinn og reynsla:
• Reynsla af bókhaldi, uppgjörum og/eða launavinnslu, kostur en ekki skilyrði
• Reynsla af bókhaldi, uppgjörum og/eða launavinnslu, kostur en ekki skilyrði
• Reynsla af DK launakerfi, Business Central launakerfi, H3 eða Kjarna
• Reynsla af DK launakerfi, Business Central launakerfi, H3 eða Kjarna
• Viðurkenndur bókari, kostur en ekki skilyrði
• Viðurkenndur bókari, kostur en ekki skilyrði
• Góð færni í Excel
• Góð færni í Excel
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund
• Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund
Nánari upplýsingar um starfið veita Vigdís Sigurðardóttir, yfirmaður Deloitte í Vestmannaeyjum, vsigurdardottir@deloitte.is, og Ásta Þyri Emilsdóttir, verkefnastjóri í mannauðsdeild, asemilsdottir@deloitte.is. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, deloitte.is, til og með 15. júní 2025. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veita Vigdís Sigurðardóttir, yfirmaður Deloitte í Vestmannaeyjum, vsigurdardottir@deloitte.is, og Ásta Þyri Emilsdóttir, verkefnastjóri í mannauðsdeild, asemilsdottir@deloitte.is. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, deloitte.is, til og með 15. júní 2025. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Miðvikudagur 11. júní
10:45/13:15/15:45/18:15
11:00-20:30
18:00-20:00
Brottför Herjólfs frá Landeyjarhöfn
Bátsferðir - skemmtisigling í Klettshelli
Kvöldmatur
Fimmtudagur 12. júní
7:00-9:00
8:00-18:00
8:20-12:20
11:30-13:30
13:00-17:00
16:30-18:30 19:00
Morgunmatur í Höllinni
Bátsferðir - skemmtisigling í Klettshelli
Leikir - riðlakeppni
Hádegismatur
Leikir - riðlakeppni
Kvöldmatur
Setning - hæfileikakeppni í íþróttahúsinu
Föstudagur 13. júní
7:00-9:00
8:20-12:20
11:30-13:30
13:00-17:00
16:30-18:30
19:00-19:45
20:00
Morgunmatur í Höllinni
Leikir - riðlakeppni
Hádegismatur í Höllinni
Leikir - riðlakeppni
Kvöldmatur
Landslið - Pressulið, 2 leikir á Hásteinsvelli
Þær sem keppa landsleik mæta 45 mín. fyrir leik í Herjólfshöll
Kvöldvaka í íþróttahúsinu - NUSSUN
Úrslit í hæfileikakeppni kynnt
Laugardagur 14. júní
7:00-9:00 8:00-14:00 9:00-17:00 11:15-13:15 15:00-16:30 16:30 17:00
17:15-18:00
19:30/22:00/23:55
Morgunmatur í Höllinni
Leikir - riðlakeppni
Liðsmyndataka við Sundlaugina - SportHero
Hádegismatur í Höllinni
Jafningjaleikir
Bikarúrslitaleikir
Úrslitaleikur um TM Mótsbikarinn
Grillveisla við Týsheimili
Brottför Herjólfs frá Vestmannaeyjum
Dalvegur
H ama r s v e gur
Illugagata
Hásteinsvöllur
Skrifstofa ÍBV
Dalavegur
Helgafellsvöllur
Týsheimili
Herjólfshöll
Þórsheimili
Veitingasala og WC
Hamarsvegur
Þórsvöllur
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já ég einu sinni áður og það var á TM mótið í fyrra.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Sveindís Jane.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Númer 17 og finnst það bara flott tala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Hægri kant.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja ef já hvenær? Já, ég hef komið 5x til Eyja, 3x á TM mótið með þessu skipti og 2x í dagsferð með fjöllunni. Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Sveindís Jane, Glódís Perla og Sandra Marín Jessen.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir
þeirri tölu? 19, fannst það flott tala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vörn eða á kantinum.
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Arsenal, besta liðið.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, til að keppa í fótbolta.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Sveindís Jane.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Númer 9 af því að ég var níu ára þegar ég fékk búningin minn.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vörn og miðju.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?
Manchester United.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, 2021, 2022 og 2024.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Sveindís Jane og Karólína Lea.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 99 af því ég dró það.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Miðju.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?
Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já spilaði á TM mótinu í fyrra (2024).
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Sveindís Jane.
Númer hvað spilar þú og afhverju?
Er ekki með númer.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Skemmtilegast að spila hægri kantinn
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær?Ég fór fyrst til Eyja þegar ég var 11 daga gömul. Mamma og pabbi eru uppalin þar og ég fer oft á ári. Bæði fjölskyldur mömmu og pabba búa þar.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Uppáhalds leikmaðurinn minn er Elísa
Viðarsdóttir og hún er líka fyrirmyndin mín.
Númer hvað spilar þú og afhverju?
Ég er númer 17 og mér fannst það bara töff númer.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mér finnst skemmtilegast að spila hægri bakvörð.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja ef já hvenær? Ég hef ekki komið áður til Vestmannaeyja. Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Sveindís Jane.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég er númer 4 af því ég byrjaði að æfa fótbolta þegar ég var 4 ára.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Skemmtilegast að spila aftari miðju Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool.
ÞÓRHILDUR
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, á pæjumótið og á Íslandsmótinu þegar ég fótbrotnaði í fyrra.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Sara Björk.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er númer 33 því systir mín var númer 33.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Hafsent.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Arsenal.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Alltof oft.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Glódís Perla.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 44 útaf því að uppáhalds talan mín er 4 og ég ákvað bara að vera 2x4.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
BRYNHILDUR KATRÍN SVERRISDÓTTIR
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, ég kom á TM-mótið í fyrra og hef líka heimsótt bestu vinkonu mína Helenu Rún sem býr í
Eyjum og spilar með ÍBV.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Ég get ekki gert upp á milli Sveindísar
Jane og Glódísar Perlu, þær eru báðar geggjaðar eins og allar í landsliðinu.
Númer hvað spilar þú og afhverju?
Ég spila í treyju númer átta. Það er happatalan mín og ég fékk hana á fyrsta búninginn minn.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mér finnst skemmtilegast að spila á hægri kanti.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?
Ég held með Liverpool í ensku deildinni.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, á TM-mótið í fyrra 2024.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Sveindís Jane Jónsdóttir.
Númer hvað spilar þú og afhverju?
Númer 7. Sara Björk Gunnarsdóttir mín helsta fyrirmynd spilaði í treyju númer 7 fyrir Íslenska landsliðið.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Miðju.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei aldrei.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Karólina Lea.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Nr 11, því að Salah er númer 11.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Frammi.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, ég á heima í Vestmannaeyjum.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Sveindís Jane og Karólína.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er númer 23 út af ég fæddist 23. maí.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn og miðja.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool auðvitað!
KRISTÍN MARÍA
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já tvisvar 2023 og 2024.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Glódís Perla.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 13 er fædd 2013 og á afmæli 13.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Frammi.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
JANA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já ég kom í fyrra og hitt í fyrra.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Sveindís Jane.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Nr 1 þegar ég spila mark en nr 23 ef ég spila úti. Ég á afmæli 23 mars og Sveindís Jane spilar í treyju nr 23.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mér finnst skemmtilegast að spila í marki.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Það eru Rauðu Djöflarnir í Manchester.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, TM mótið í fyrra 2024.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Sveindís Jane.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er númer 7 eins og Ronaldo sem er uppáhalds leikmaðurinn minn.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei, aldrei.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Engin ein í uppáhaldi.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég spila númer 11. Bara vegna þess að það er flott númer.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mér finnst skemmtilegast í vörn. Það er staðan mín.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
SVALA MARÍA
Hefur komið til Vestmannaeyja?
Já, 2024 að keppa á TM mótinu og einu sinni með mömmu og pabba í frí 2019. Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Sveindís Jane.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Númer 9 af því að bróðir minn valdi það.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn (vinstri kantur)
Hvað er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið til Vestmanneyja, ef já , þá hvenær? Já, þegar ég var lítil með fjölskyldunni.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu?Sveindís Jane.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 22 því ég á afmæli 22. janúar.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Kant og vörn.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?
Manchester united.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Ég hef komið tvisvar sinnum til Eyja, einu sinni á TM mótið og svo að keppa einn leik á móti ÍBV á Íslandsmótinu.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Karólína Lea og svo Telma markmaður Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er í markinu og er í treyju númer 1.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Mér finnst skemmtilegast að vera í marki.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool að sjálfsögðu :)
Icewear gefur öllum
þátttakendum mótsins skópoka og veglegan
Icewear afsláttarmiða! MÓTSINS verslun.
Einnig er mótgestum boðinn 25% afsláttur af öllum vörum í verslun Icewear í Vestmannaeyjum meðan á mótinu stendur.
*Gildir fyrir Vini Icewear, hægt er að skrá sig á staðnum.
KRISTÍN DÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR
ARNA HLÍN UNNARSDÓTTIR
MÍA DRÖFN KRISTJÁNSDÓTTIR
ÍRIS EMMA ÍSFJÖRÐ PÁLMADÓTTIR
BRÍET BJÖRK HAFÞÓRSDÓTTIR
KOLFINNA LIND TRYGGVADÓTTIR
ÁSTA GUÐRÚN BIRGISDÓTTIR
EVA LAUFEY LEIFSDÓTTIR
SARA RÓS SINDRADÓTTIR
EMILÍA EIR EIÐSDÓTTIR
ELÍSABET DAVÍÐSDÓTTIR
INGUNN ÁSA FANNARSDÓTTIR
HRAFNTINNA TRYGGVADÓTTIR
SARA HULD ELVARSDÓTTIR
HELENA RÚN ÞORGILSDÓTTIR
KOLBRÁ NJÁLSDÓTTIR
KLARA FREYSDÓTTIR
ANNA STEINUNN HALLGRÍMSDÓTTIR
ANNA RAKEL BALDVINSDÓTTIR
SELMA DÍS HAUKDAL BIRKISDÓTTIR
ÍRIS DRÖFN GUÐMUNDSDÓTTIR
HRAFNTINNA EINARSDÓTTIR
BJARTEY PERLA TRAUSTADÓTTIR
ELÍSA ÓLÖF ELÍSDÓTTIR
ELENA RUT EINISDÓTTIR
SANDRA DRÖFN FROSTADÓTTIR
GUÐBJÖRG KARLSDÓTTIR
ÍSEY HREFNA GYLFADÓTTIR
INGIBJÖRG SVANA ÓLAFSDÓTTIR
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær?Ég kom í fyrsta skiptið til Vestmannaeyja þegar TM mótið var haldið 2024.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Uppáhald leikmaðurinn minn í Íslenska landsliðinu er Sveindís Jane Jónsdóttir.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég spila nr. 65 og ég veit ekki afhverju.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Mér finnst skemmtilegast að spila á miðjunni.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?
Uppáhalds lið í enska er Manchester United.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Ég fór í dagsferð með fjölskyldunni minni
árið 2017.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Dagný Brynjarsdóttir.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er nr. 17, 17 er happatalan mín.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn er mín uppáhalds staða.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, á TM mótið í fyrra.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Sveindís Jane Jónsdóttir.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er nr. 11 af því að Mo Salah er nr. 11 og hann er uppáhalds leikmaðurinn minn.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Spila oftast vörn en finnst skemmtilegast að spila frammi.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
NÍNA MARGRÉT SCOTT
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, 2023 og 2024.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Karólína Lea og Sveindís Jane. Númer hvað spilar þú og afhverju? 22 finnst það bara flott tala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Vörn.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já ég hef komið áður til Eyja, fer árlega á pysju veiðar og síðan tók ég þátt á TM mótinu í fyrra. Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Sveindís og Karólína eru í miklu uppáhaldi.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég var alltaf númer 23, en þegar ég byrjaði í Víking var það ekki laust svo núna er ég númer 7.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Mér finnst skemmtilegast að spila á kanti og á miðju. Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Ég hef haldið með Liverpool síðan ég byrjaði í fótbolta.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já tvisvar sinnum. Þegar stóri bróðir minn keppti á Orkumótinu og í fyrra þegar ég var að keppa á TM mótinu.
Hver er uppáhaldsleikmaður þinn í íslenska landsliðinu? Sveindís Jane.
Númer hvað spilar þú og af hverju? Nr.75, af því að mér finnst það flott tala.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Frammi.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já á TM mótið í fyrra.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Karolína Lea.
Númer hvað spilar þú og afhverju?
Númer 13. Af þvi að ég er fædd 13. Júlí 2013.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Frammi.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool .
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, ég hef farið til Vestmannaeyja, ég hef farið nokkrum sinnum.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Uppáhalds leikmaðurinn minn er Glódís Perla.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég er númer 13 því ég er fædd 2013.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mér finnst skemmtileg að spila á kannti eða frammi.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?
Uppáhalds liðið mitt er Liverpool í enska boltanum.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Nei þetta er í fyrsta skipti.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Ég held mest upp á Glódísi Perlu Viggósdóttur.
Númer hvað spilar þú og afhverju? Ég spila númer 18 af því amma mín átti afmæli 18. ágúst.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Mér finnst skemmtilegast að spila á kanti.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Liverpool.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Ég hef oft komið til Eyja, þetta er t.d. þriðja sinn sem ég kem á TM-mótið, báðir bræður mínir hafa spilað á Orkumótinu svo ég hef komið með þeim og svo átti ég ættingja í Eyjum sem ég hef komið í heimsókn til.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Glódís Perla.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 77, útaf því það er nett númer en drauma númerið mitt er 20 en ég má það ekki strax því hún þarf að vera odda núna.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Miðju.
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Arsenal.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, á síðasta TM mót.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu? Glódís Perla.
Númer hvað spilar þú og afhverju? 21, af því það var laust.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Vörn
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Manchester United.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær? Já, hef komið í þrjú skipti til Vestmannaeyja. Fór í útlegu í Vestmannaeyjum með fjölskyldunni í júlí árið 2016, fór á TM mótið 2024 og spilaði svo 1 leik í maí 2025.
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Glódís Perla.
Númer hvað spilar þú og af hverju? Er nr. 13. Er fædd 3.1.13 og valdi því númer út frá því.
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Skemmtilegast að vera í dýpri miðju því það er skemmtilegt að senda fyrirgjafir og hjálpa í vörninni. Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum? Arsenal.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já hvenær? Já ég hef komið tvisvar sinnum til Eyja. Einu sinni þegar við fórum með bróðir mínum á Orkumótið og svo í fermingu hjá frænda mínum. Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í íslenska landsliðinu? Uppáhalds leikmaður minn í landsliðinu er Sveindís Jane.
Númer hvað spilar þú og er einhver ástæða fyrir þeirri tölu? Ég spila númer 27. Ég ætlaði að velja númer 7 en það var upptekið svo ég valdi þá 27. Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila? Mér finnst skemmtilegast að spila frammi og á kanti. Hvað er uppáhaldsliðið þitt í enska boltanum? Uppáhaldsliðið mitt er Manchester United.
Það voru lið KR og Vals sem mættust á Hásteinsvelli í úrslitaleik TM-mótsins 2024. KR-ingar komust yfir snemma leiks með marki Oktavíu Gunnarsdóttur og þrátt fyrir tilraunir Vals til að jafna leikinn tókst þeim það ekki og KR-ingar því meistarar 2024.
Hefur þú komið áður til Vestmannaeyja, ef já, þá hvenær?
Hvað er uppáhalds leikmaðurinn þinní íslenska landsliðinu?
Númer hvað spilar þú og afhverju?
Hvaða stöðu finnst þér skemmtilegast að spila?
Hvaða lið er uppáhalds í enska boltanum?
Bara komið tvisvar og í bæði skipti á TM.
Glódís Perla.
22, á afmæli 22. júní.
Hægri kantur.
Liverpool.
Já að horfa á bróður minn spila.
Sveindís Jane.
95 af því bróðir minn átti treyjuna.
Miðja.
Man utd.
Á TM mótið og í afmæli til frænku minnar.
Glódís Perla.
17, góð spurning. Miðja. Liverpool.
Fæðingardagur? 7. október 1997.
Staða á vellinum? Hafsent.
Ferill sem leikmaður? Grindavík-Breiðablik-Djurgården í Svíþjóð-Vålerenga í Noregi-Duisburg í Þýskalandi-Brøndby í Danmörku.
Bestu leikmenn sem þú hefur spilað með? Glódís
Perla og Sherida Spitse.
Erfiðasti andstæðingurinn? Lea Schuller framherji Þýskalands.
Titla sem þú hefur unnið?
Bikarmeistari með Breiðblik, 2x Bikarmeistari með Vålerenga, 2x Deildarmeistari með Vålerenga.
Hver eru markmið þín í fótboltanum? Að komast á HM með landsliðinu.
Besti þjálfari sem þú hefur haft og af hverju? Ég myndi segja Freyr Alexanderson, hann veit mikið um fótbolta og hafði mikla trú á leikmönnum sínum og liðinu.
Hver var þín helsta fyrirmynd þegar þú varst yngri? Ólína Viðars og Sara Björk.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Spil.
En það leiðinlegasta sem þú gerir á æfingum? Upphitun.
Mestu vonbrigði á vellinum? Tap á móti Portúgal í umspilinu fyrir HM 2023.
Stærsta stund á þínum ferli? Þegar við unnum Þýskaland 3-0 og tryggðum okkur á EM. Hvernig er hefðbundinn leikdagur hjá þér? Vakna og borða morgunmat, fer út í göngutúr og slaka aðeins á, borða hádegismat og tek smá lögn áður en ég legg af stað í leikinn.
Ertu hjátrúafull fyrir leiki? Nei myndi ekki segja það! Áttu þér áhugamál fyrir utan fótbolta? Finnst gaman að horfa á körfubolta, lesa og elda mat ásamt því að vera með vinum og fjölskyldu.
Hjá hvaða liði hafa verið þínir bestu tímar á ferlinum? Ég myndi segja Vålerenga, við unnum marga titla og ég eignaðist mjög góðar vinkonur þar!
Hver er sterkasta deild sem þú hefur spilað í?
Bundesligan í Þýskalandi!
Fórst þú oft á TM mótið/Orkumótið í Eyjum?
Mig minnir að ég hafi farið tvisvar! Mjög skemmtilegt mót!
Hvað þurfa krakkar sem eru að leggja leið sína á TM og Orkumótið í Eyjum að gera til þess að ná langt í fótbolta? Hafa gaman, æfa vel og hafa trú á sjálfum sér!
Lag og texti: Jón Jónsson
Nú er tími ævintýra.
Grænir vellir okkar bíða.
Hér eignast munum haug af minningum
Tvöföld skæri og svo spretta.
Í góðu færi verð að negla.
Við skiljum allt eftir á vellinum
Oooooh, gaman útí Eyjum
Oooooh, sameiginlegt eigum að trúa draumana á.
Hér í Eyjum upplifum þá
Oooooh, í fótbolta' útí Eyjum
Oh oh ooooh!
Pabbi og mamma, afi og amma
Dómarann má ekki skamma
Ef eitthvað klikkar gengur betur næst
Viljum njóta, viljum þora.
Þarft að skjóta til að skora.
Við vitum öll að draumar geta ræst.
Oooooh, gaman útí Eyjum
Oooooh, sameiginlegt eigum að trúa draumana á.
Hér í Eyjum upplifum þá
Oooooh, í fótbolta’ útí Eyjum
Oh oh ooooh!
Virkir dagar frá 8:00-17:00 laugardagar 10:00-14:00
Nýsmíði
Gólfhitafræsing
Gólfhitalögn
Kjarnaborun
Pallasmíði
Þakvinna
Innréttingar
Utanhúsklæðningar
aglverktakar@gmail.com // 768 5228