

DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
ÚTGÁFA:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
ÞRÍR GLÆSILEGIR LEXUSBÍLAR TIL AÐ REYNSLUAKA OG UPPLIFA
Starfsmenn Lexus verða á svæðinu í samningaskapi, gefa góð ráð og upplýsa um allt það nýjasta. Léttar veitingar í boði.
Föstudaginn 30. maí kl. 16–18
Laugardaginn 31. maí kl. 11–15 í og við Akóges-salinn
Ég þakka Jónasi fyrir þessa áskorun, ég ætlaði nú að skella í saltfiskrétt en sé svo að Jónas kallar eftir einhverju á grillið, það er jú sumar og um að gera að nota grillið sem mest.
Þetta er mjög einföld uppskrift þannig að hvaða Pìrati sem er ætti að ná að klòra sig fram úr þessu.
Ég kalla þessa uppskrift “Donald Tbone Trump”
GRILLAÐ GRÆNMETI
• Zucchini
• Paprika
• Sveppir
• Laukur
KRYDDSMJÖR
• 2 stk. Lime
• 1 stk. rauður chilipipar
• 1 búnt ferskt timjan
• 250 g smjör
• Sjávarsalt
Aðferð
Blandið saman safa úr 1 lime og 2-3 msk. af ólífuolíu og penslið kjötið.
Rífið smá ferskt timjan yfir. Látið standa í 2-3 klst. Jafnvel lengur. Best er að hita grillið vel og setja svo steikurnar á þegar það er orðið rjùkandi heitt, loka steikinni vel og svo er kjötið sett a òbeinan hita eða á efri grind þar til það er tilbúið.
HVAÐ VITA KRAKKARNIR?
PÁLL GUÐJÓN
Aldur: 4 ára
Fjölskylda: Pabbi (Hjalti Enok) og mamma (Arna Hlín) og
Sigurbjörg Vaka.
Þekkir þú einhverja sjómenn? Já, Auðunn Blöndal.
Hefur þú farið á sjó? Já hundrað vikur
Borðar þú fisk? Jább og líka súpu og líka vatn.
Hvað gera sjómenn? Að stýra bát
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Lögga
Þekkir þú einhverja fiska ? Hahah já! Candyfloss og líka hákarl og líka fiskur í raspi og líka þorskur og líka svona lítinn.
Það bara grillar hver og einn eftir sìnum smekk og muna að pensla kjötið reglulega með leginum góða.
Kryddið með svörtum pipar og sjávarsalti rétt áður en þetta er borið fram.
GRILLAÐ GRÆNMETI
Skerið allt grænmetið í sneiðar og penslið með òlìfuolíu.
Grillið á heitu grilli með kjötinu og penslið með olíu ef með þarf. Saltið með sjávarsalti og berið fram. Gott með kryddsmjöri.
KRYDDSMJÖR
Hreinsið kjötið úr límónunum, kjarnhreinsið chilipiparinn.
Maukið allt saman með smjörinu í matvinnsluvél. Smakkið til.
Með þessu er gott að hafa bökunarkartöflur
Ég skora á fyrrum skipsfélaga og yfirkokk á Ottó N Þorlákssyni hann Agnar Magnússon að koma með eitthvað spennandi á grillið. Gleðilegan sjòmannadag.
Síðastliðinn föstudag opnaði Skeljungur nýja og endurbætta verslun í Vestmannaeyjum að Kleifum 7.
Verslunarrýmið hefur tekið stakkaskiptum og er nú orðið enn notendavænna. Viðskiptavinir geta gengið beint inn og skoðað helstu vörur sem eru til sýnis í versluninni. Markmiðið með breytingunum er að gera upplifun viðskiptavina sem þægilegasta og aðgengilegasta – hvort sem um ræðir einstaklinga, atvinnurekendur eða stærri fyrirtæki. Í versluninni er að finna vandað og fjölbreytt úrval vara í smurolíum og hreinsiefnum, þar sem áhersla er lögð á gæði og rekstraröryggi. „Við höfum einnig bætt við úrvali af sérhæfðum bátavörum frá traustum framleiðendum á borð við Unitor, sem henta bæði fyrir fagfólk í sjávarútvegi og áhugafólk um sjóferðir,“ sagði Agnes Svava, verslunarstjóri hinnar nýju verslunar. „Við bjóðum einnig upp á hinar sívinsælu bílahreinsivörur frá Koch Chemie, sem hafa slegið í gegn meðal viðskiptavina okkar. Þessar vörur eru þekktar fyrir einstaka virkni og gæði – og þeir sem prófa koma iðulega aftur til að prófa fleiri vörur úr línunni. Endurkaupin tala sínu máli, og við höfum fengið afar jákvæð viðbrögð frá ánægðum kúnnum.
Það skiptir okkur máli að þjónustan sé persónuleg og fagleg, og við leggjum metnað í að veita ráðgjöf við val á vörum sem hentar hverjum og einum. Starfsfólk okkar er tilbúið að leiðbeina og hjálpa hvort sem verið er að velja rétta olíutegund, hreinsiefni eða bátavöru,“ sagði Agnes.
Agnes Svava hefur starfað sem sölu og fyrirtækjaráðgjafi hjá Skeljungi. „Ég hef starfað hjá Skeljungi frá desember 2022, og fékk það tækifæri að færa mína aðstöðu til Eyja. Er mjög spennt fyrir framtíð Skeljungs hér í Eyjum.“ sagði Agnes. Hún er þó langt því frá ókunn Vestmannaeyjum enda ólst hún hér upp. „Mamma er Sigrún Olga Gísladóttir, og Amma Stína í Sparó sem allir Eyjamenn ættu að þekkja,“ sagði hún aðspurð.
Opnunartímar í Skeljungi eru eftirfarandi: Mánudaga til fimmtudaga: 08:00–16:00 og föstudaga: 08:00–15:15 „Við hvetjum Eyjamenn og aðra í nærsamfélaginu til að kíkja við, kynna sér úrvalið og njóta þeirrar vinalegu og faglegu þjónustu sem Skeljungur hefur upp á að bjóða. Það er alltaf heitt á könnunni – og við hlökkum til að taka á móti ykkur,“ sagði Agnes að lokum.
Hannes og Teddi voru ánægðir með veitingarnar við opnunina.
Örlygur Helgi Grímsson svæðisstjóri Skeljungs í Eyjum, lengst til hægri, fer yfir vöruúrvalið með framtíðarkúnnum.
Við
Gildi er bakhjarl sjómanna og styður við þá og ölskyldur þeirra á öllum æviskeiðum. Aðild að sjóðnum tryggir meðal annars:
Ævilangan ellilífeyri við starfslok
Áfallalífeyri í kjölfar veikinda eða vinnuslyss
Rétt á maka- og barnalífeyri
Með séreignarsparnaði fást auknar ráðstöfunartekjur við starfslok en hann getur einnig nýst við fasteignakaup. Við vekjum jafnframt athygli á tilgreindri séreign en með henni er mögulegt að ráðstafa hluta af hefðbundnu lífeyrisiðgjaldi í aukinn séreignarsparnað. Mikilvægt er að kynna sér kosti og galla tilgreindrar séreignar áður en sú leið er valin.
Allir sem greitt hafa til Gildis geta sótt um húsnæðislán hjá sjóðnum.
Kynntu þér málið nánar á gildi.is
Dagana 28. mars til 4. apríl fóru fjórir nemendur FÍV ásamt kennurum í ferð til Spánar í tengslum við Erasmus-verkefni skólans. Ferðin hófst með siglingu frá Eyjum á föstudegi og snemma morguns daginn eftir var haldið af stað til Malaga. Þar tók á móti okkur sól og blíða – ekki slæm byrjun! Dagurinn var notaður til að njóta, skoða borgina og kíkja í nokkrar verslanir áður en haldið var með rútu til Sevilla daginn eftir.
Í Sevilla tók spænski hópurinn á móti okkur og hófst formleg dagskrá verkefnisins. Í þetta sinn var fókusinn á stjórn vatnamála og nýsköpun, með það markmið að efla skilning nemenda á m.a. mikilvægi nýsköpunar þegar kemur að sjálfbærri vatnsnotkun, tilgangi vatnatilskipun Evrópusambandsins, meðhöndlun og hreinsun vatns, sem og losun þess.
Dagskráin var bæði fræðandi og fjölbreytt. Hópurinn heimsótti friðlýsta náttúrusvæði, La Lantejuela, þar sem hreinsað affallsvatn er nýtt til að skapa
búsvæði fyrir fjölbreytt dýralíf – lifandi dæmi um hvernig hægt er að umbreyta úrgangi í verðmæti. Þá var einnig farið í bæinn Mairena del Alcor þar sem hópurinn skoðaði vatnsleiðslukerfi frá tímum Rómverja og sá með berum augum hve langt við höfum komið í vatnsstjórn síðan þá.
Enn önnur heimsóknin var í Carambolo vatnshreinsistöðina, þar fengum við innsýn í vatnssöfnun og hreinsun drykkjavatns svæðisins. Við fengum einnig að skoða vatnstankana og sjá öll stig ferlisins: frá söfnun til dreifingar. Að heimsókn lokinni röltum við yfir í Arboreto grasagarðinn, nutum sólargeislanna og fengum okkur hádegismat í fallegu umhverfi sem væri ekki til ef ekki væri fyrir mikla áherslu svæðisins á sjálfbæra vatnsnotkun.
Því miður var ekki sól og blíða allan tímann úti á Spáni, og eftir vinnudag upp í skólanum var rigningardagurinn nýttur til að fara með hópinn í skoðunarferð um sjálfa Alcázar höllina, sem er elsta
Við sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins.
höll Evrópu sem er enn í notkun og er vægast sagt mögnuð.
Fræðslan þessa dagana var mikil og verkefnavinnan gekk mjög vel. Nemendur FÍV stóðu sig frábærlega! Það er óhætt að segja að þær slógu í gegn bæði hjá kennurum og nemendum hinna landanna, og voru skólanum til mikils sóma. En ferðin var ekki einungis vinna, það var skoðað, verslað og notið þess að borða góðan mat. Nemendur skólanna náðu mjög vel saman, margar skemmtilegar stundir á og utan skólatíma - fjöldinn allur af minningum skapaðar á þessum dögum. Á lokakvöldinu var viðurkenningarathöfn fyrir vel unnin störf og sameiginlegur kvöldmatur í skólanum þar sem spænsku fjölskyldurnar buðu upp á fjölbreyttan heimilsmat. Ferðalagið heim gekk mjög vel. Hópurinn tók hraðlest frá Sevilla til Madríd þar sem töskunum var komið í geymslu og borgin skoðuð á methraða. Fegurð Madridar leyndi sér ekki, en þess má geta að gríðarlegur mannfjöldi og þrengslin í metrolestum borgarinnar var eflaust eitt stærsta menningarsjokk ferðarinnar. Eftir sjö góða klukkutíma í Madrid var farið uppá flugvöll og hópurinn flaug með Iberia flugfélaginu beint til Keflavíkur. Allir eru sammála um að þessi ferð hafi verið algjörlega frábær.
BJARKI ÞÓR
Aldur: 4 ára
Fjölskylda: Mamma mín heitir Heba Þórðardóttir, pabbi minn heitir Einar Jóhann og systa Eyrún Stella. Þekkir þú einhverja sjómenn? Já Birkir pabba hans Ásgeirs vinar míns
Hefur þú farið á sjó? Já, mörgum sinnum í bát, í Herjólf. Borðar þú fisk? Já, ég borða fisk.
Hvað gera sjómenn? Sigla bátnum og veiða fisk. Þekkir þú einhverja fiska ? Síli, ýsa, fiskur í raspi og hákarl en hann er vondur.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Kannski verða sjómaður, en ætla að verða slökkviliðsmaður eins og Pálmi og gröfumaður eins og pabbi
Foreldrar: Björn Matthíasson og Hrefna Jónsdóttir
Systkini: Bergdís og Kristjana.
Hvað er draumurinn að vinna við í framtíðinni ? Er ekki með neitt sérstakt í huga eins og er, en eitthvað í kringum íþróttir.
Í hvaða skóla þá stefnir þú? Ég stefni á að fara í Íþróttafræði í HR.
Hvernig var þín upplifun af FÍV? Mín upplifun var mjög góð skemmtilegir kennarar og skemmtilegt fólk.
Uppáhalds kennari í FÍV? Eva María Jónsdóttir.
Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst ?
Tölvustærðfræði með Gunnari.
Eitthvað að lokum: Takk FÍV, frábær skóli í alla staði.
Foreldrar: Stefán og Þjóðhildur.
Systkini: Þórður Örn, Kristín Auður, Þóra Björg og Brynjar Þór.
Hvað er draumurinn að vinna við í framtíðinni?
Væri til í að vinna eitthvað í kringum íþróttir.
Í hvaða skóla þá stefnir þú? Hallast að HR.
Hvernig var þín upplifun af FÍV? Mjög góð, gaman að vera áfram með öllum vinunum.
Uppáhalds kennari í FÍV? Óli Týr.
Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst?
Eðlisfræði en Brids og skák var líka mjög skemmtilegur.
Eitthvað að lokum? Já bara óska öllum nýstúdentum til hamingju með áfangann
Foreldrar: Guðmundur og Gíslína
Systkini: Mía Rán og Kormákur
Hvað er draumurinn að vinna við í framtíðinni ? Forseti Íslands, ef það klikkar þá er múrarafrú plan B. Í hvaða skóla þá stefnir þú ? Stefnan var sett á Harvard en það er víst einhver skandall þar með útlendingamál þannig ég tek allavegana eins árs pásu til að hugsa aðra kosti.
Hvernig var þín upplifun af FÍV ? Hún var fín en þó margir segi að framhaldsskólaárin séu bestu ár ævinnar þá á ég enn eftir að upplifa mín bestu ár, og ég held að þau ár verði á Bessastöðum. Uppáhalds kennari í FÍV? Kata Harðar því hún gaf mér aldrei S (seint) þessi elska.
Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst?
Klárlega fjármálalæsi hjá Gunnari eg ákvað meira að segja að taka hann tvisvar honum til mikillar gleði. Eitthvað að lokum? Einkunnir lýsa ekki innri manni. Ég er með góða sál.
Ríkharður Zoëga Stefánsson, betur þekktur sem Rikki kokkur, hefur verið áberandi þátttakandi í sjómannslífi Vestmannaeyja í nærri fimm áratugi. Hann flutti til Eyja árið 1974 og hefur síðan þá verið óþreytandi í störfum sínum, bæði á sjó og landi. Rikki hefur meðal annars var kokkur á togaranum Bergey VE 544 í áratugi og síðar Vestmannaey, þar sem hann hefur séð um matargerð fyrir áhöfnina af mikilli alúð og fagmennsku.
Þrátt fyrir að vera mikið á sjó hefur Rikki einnig ávallt lagt sitt af mörkum til samfélagsins. Hann hefur verið virkur í Sjómannadagsráði Vestmannaeyja í yfir 20 ár og hefur þar haft frumkvæði að ýmsum nýjungum, þar á meðal að bæta við skemmtun og fjölbreyttari dagskrá fyrir alla aldurshópa .
Auk þess hefur Rikki lagt áherslu á að varðveita minningu þeirra sem fallið hafa til sjós, meðal annars með því að taka þátt í gerð minnisvarða um sjó-
menn við Skansinn. Hann hefur einnig verið virkur í Kiwanis félaginu og öðrum sjálfboðastörfum, þar sem hann hefur lagt sitt af mörkum til góðgerðarmála og styrktar samfélagsins
Rikki hefur með óeigingjörnum hætti lagt mikið af mörkum til sjómannasamfélagsins í Vestmannaeyjum sem og samfélagsins alls og er því sannarlega verðugur tilnefningu Tíguls sem Sjómaður ársins 2025.
RÍKHARÐUR
ZOËGA STEFÁNSSON
Fjölskylda: Foreldrar eru Ánrý Fjóla Stefánsdóttir og Stefán Agnar Magnússon. Ég á tvær dætur Guðbjörg Erla og Fjóla Sif, kona mín heitir Matthildur Einarsdóttir. Og ég á 6 barnabörn.
Á hvaða bát ertu ? Ég er matsveinn á Bergey, Hver fyndnastur um borð?
Það er nú enginn fyndinn.
Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvenær?
1978 á Vestmannaey.
Hvað heillar þig við sjómennskuna ?
Hafið, vinnan og félagsskapurinn eða vinnufélagarnir og kvenmannslaust skip þá ræður kokkurinn öllu.
Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Sveinn Rúnar Valgeirsson og Gunnar í Svanhól, skemmtilegustu sjómenn sem ég hef verið með, miklir stríðnispúkar.
Eftirminnilegasti túrinn ?
Ætli það sé ekki þegar ég fékk hjartaáfall.
Þín helsta fyrirmynd? Ein af þeim er Guðjón Matthíasson heitinn var mjög duglegur peyi.
Eitthvað að lokum: Mín ósk er það að róa með mínum uppáhalds tengdasonum þeim Ágústi
Halldórs og Sævaldi Hallgrímssyni. Þeir vita það að þeir hafa ekkert í mig í aðgerð. Kveðja uppáhalds tengdapabbi.
Aldur: 4 að verða 5 ára í sumar.
Fjölskylda: Mamma mín heitir Birgitta og pabbi Sigurbergur. Ég á einn bróðir Svenni og eina systir Salka.
Þekkir þú einhverja sjómenn? Afi Valdi er sjómaður.
Hefur þú farið á sjó? Já, með afa.
Borðar þú fisk? Já, finnst hann góður.
Hvað gera sjómenn? Veiða fiskinn.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór?
Sjómaður eins og afi.
Þekkir þú einhverja fiska? Síld, steiktur fiskur.
Fjölskylda: Konan mín heitir Ásta Jóna Jónsdóttir krakkarnir heita Alexander, Illugi, Halla Ruth og Jón Ólafur.
Á hvaða bát ertu? Huginn VE.
Hver fyndnastur um borð? Það er ekki hægt að komast yfir einn kaffibolla án þess að Ágúst Gísli fari á flug. Stórkostlegur félagi.
Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar? Ég byrjaði á Berg VE 2009. Grétar Sævalds hringdi í mig vegna þess að ég var alltaf suðandi í honum í ölæði. Ég ætlaði bara að taka nokkra túra en er búinn að vera á sjó síðan.
Hvað heillar þig við sjómennskuna? Það heillaði mest að fá útborgað og komast aðeins í burtu.
Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Grímur á Felli er án efa sá allra eftirminnilegasti. Þegar eitthvað er sagt við hann Grím þá kaffærir hann mann á núll einni. Algjör snillingur Eftirminnilegasti túrinn? Túrarnir á Hólmaborginni eða gamla Jóni Kjartans. Þar gekk allt á afturfótunum á kolmunna.
Þín helsta fyrirmynd? Mín helsta fyrirmynd er hann pabbi, Óðinn í Klöpp. Hann er frábær gæji.
Eitthvað að lokum: Ég óska öllum sjómönnum og fjölskyldum til lukku með daginn og góða skemmtun um helgina.
Icewear Vestmannaeyjum leitar að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingum í hlutastörf fyrir sumarið 2025.
Um er að ræða sumarstarf með möguleika á hlutastarfi yfir vetrartímann.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Framúrskarandi þjónustulund og sölumennska
• Reynsla af afgreiðslu- og sölustörfum er kostur
• Jákvæðni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
• Íslensku- og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
• Almennt sölu- og afgreiðslustarf
• Veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina
Nánari upplýsingar inn á www.alfred.is
Frekari fyrirspurnir um starfið má senda á netfangið atvinna@icewear.is
ELMAR GAUTI
Aldur: 5 ára (aðspurður - réttur aldur er 3 ára).
Fjölskylda: Mamma (Eva) og pabbi (Kristgeir).
Þekkir þú einhverja sjómenn? Já, afi Alli og pabbi.
Hefur þú farið á sjó? Nei.
Borðar þú fisk? Já.
Hvað gera sjómenn? Veiða hákarla og stóra fiska.
Þekkir þú einhverja fiska ? Nei.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór?
Með stórt skegg og stóran hamar.
Fjölskylda: Giftur Hildi Gísladóttur og eigum við saman Önnu Lovísu, Birgit Rós og Arnar Frey.
Á hvaða bát ertu? Ég er háseti á Huginn VE-55 og er búinn að vera þar síðan í ágúst 2002.
Hver er fyndnastur um borð? Við eigum allir okkar augnablik en annars er mórallinn um borð góður og alltaf stutt í sprell.
Hvenær og hvar byrjaðir þú á sjó? Fór nokkrar túra sem pjési með pabba mínum Helga Ágústssyni á bæði Klakk VE og Sindra VE en byrjaði sjómennskuna að einhverju viti á Sindra VE-60 (frystitogari) í kringum 1999 og hef verið á sjó síðan með einhverjum hléum.
Hvað heillaði við sjómennskuna?Það er svo margt. Bæði eru launin yfirleitt góð og finn frið á milli og ekki skemmir að hafa kynnst öllum þessum frábæru einstaklingum í gegnum sjómennskuna.
Eftirminnilegasti sjómaður sem þú hefur róið með?Hef róið með mörgum frábærum mönnum en átti Grímur á Felli standi ekki upp úr. Frábær skipstjórn og vinur og með eindæmum orðheppinn og skemmtilegur.
Eftirminnilegasti túrinn?Túrin sem við fórum á Danska Páli VE-423 árið 1998 þar sem mjög alvarlegt slys varð um borð.
Þín helsta fyrirmynd? Hann hét minn Helgi Þórisson. Erfitt að finna betri skipstjóra, bæði sanngjarn og ekki yfir aðra hafinn.
Eitthvað að lokum? Ég vil óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar sjómannadagshelgi.
12” PIZZA með 3 áleggjum
+ 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir
+ gosdós
9” PIZZA
með 3 áleggjum
[ 2.490 kr. ]
12” PIZZA
með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð
eða brauðstangir
+ gosdós
[ 4.390 kr. ]
[ 4.990 kr. ]
16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir
+ 2L gos
OPIÐ Sun-fim 12-21
Fös og lau 12-22
12” PIZZA
með 3 áleggjum [ 2.990 kr. ]
16” PIZZA
með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos
[ 6.190 kr. ]
16” PIZZA
[ 6.790 kr. ]
með 3 áleggjum [ 3.690 kr. ]
TVENNUTILBOÐ
Tvær 16” pizzur + stórar brauðstangir
[ Greitt er fyrir dýrari pizzuna og brauðstangir ]
481-1567 ( Sendum heim alla daga frá kl. 17.00
Fjölskylda: Eiginkona Thelma Gunnarsdóttir, dætur Agnes Líf og Elísa Sjöfn. Á hvaða bát ertu? Hef ekki verið á sjó síðan ég keypti Klett. En var síðast á Ísleifi VE Hver er fyndnastur um borð? Einar Sigþórsson engin spurning. Fékk mann til að skellihlæja frá morgni til kvölds.
Hvenær og hvar byrjaðir þú á sjó? Byrjaði 1988 18 ára á Klakknum sem var togari með 15 manna áhöfn. Sennilega yngsda áhöfn á Íslandi ef kokkurinn var ekki talinn með. Blessuð sé minning Helga í Hvammi.
Hvað heillaði við sjómennskuna? Sennilega launin og hasarinn og jaxlamennskann.
Eftirminnilegasti sjómaður sem þú hefur róið með? Þeir eru margir en ef ég á nefna einn þá er það Helgi Ágústsson. Hann var skipstjóri á Klakknum þegar ég byrjaði og flestir í áhöfninni á milli 18 til 20 ára. Hann hugsaði vel um okkur peyjana og tók á öllum vandamálum með bros á vör, nema þegar við fengum sel í trollið.
Eftirminnilegasti túrinn? Sennileg þegar við sigldum á Bremerhaven 1988. Ég og Kjarri rökuðum hvorn annan sköllóttan og Helgi bannaði okkur að fara í
Aldur: 4 ára,
Fjölskylda: Móðir: Viktoría Dís Viktorsdóttir, Faðir: Halldór Páll Geirsson, Systkini: Helena Ósk Halldórsdóttir. Þekkir þú einhverja sjómenn? Nei… eða Anna Ísabella!
Pabbi hennar er sjómaður!
Hefur þú farið á sjó? Nei.
Borðar þú fisk? Jebb!
Hvað gerir sjómaður? Þeir veiða fisk og svona
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Ég vil
vinna í löggunni og vera löggukona
Þekkir þú einhverja fiska? Já! Ýsu og steinbít!
land fyrr en hann fengi hattana sem hann pantaði á okkur. Hann var hræddum um að við myndum lenda í veseni lítandi út eins skinheads.
Þín helsta fyrirmynd? Faðir minn Maggi á Kletti sjómannslega er það senni Helgi Ágústson
Eitthvað að lokum? Hef verið með hléum á sjó í ca 30 ár og margar góðar breytingar átt sér stað. Þá er fækkun slysum efst í huga og er það helst slysavarnarskólanum að þakka. Annars frábær tími með mikið að góðum köllum og peyjum.
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ KL. 21.00
LAUGARDAGUR 31. MAÍ KL. 23.00
UNA / JÓNSI / BEGGI
EINAR ÁGÚST & HAFFI
ÁSAMT GOSUNUM
MIÐASALA Á TIX.IS
FIMMTUDAGUR 29.MAÍ 2024
14-17 Kökubasar Eykindils Í sal Líknar v/Faxastíg
14:00 Einarsstofa
Lista- og menningarfélag
Vestmannaeyja opnar sýningu. Opin 10-17 alla helgina.
16:00 Sjómannadagsblað og merkjasala
Skátarnir dreifa Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja frítt í öll hús í Eyjum. Yngri flokkar ÍBV sjá um merkjasölu, takið vel á móti sölubörnunum.
18:00 Ölstofa The Brothers Brewery
Sjómannabjórinn 2025 kynntur við hátíðlega athöfn. Opið 12 til 23.
FÖSTUDAGUR 30.MAÍ 2025
8.00 Sjómannagolfmót Ísfélags
Skráning í síma 481-2363 og golf.is. Vegleg verðlaun í boði.
16.00 Blóm lögð að minnisvarðanum á Skansinum 16-18 Akóges
Bílasýning Toyota.
21.00 Nýdönsk í Höllinni
Húsið opnar kl. 20.00 og tónleikar hefjast kl. 21.00. Miðasala á Tix.is.
11.00 Dorgveiðikeppni SJÓVE og Jötuns á Nausthamars bryggju. Vegleg verðlaun, stærsti fiskur, flestir fiskar o.fl.
11-15 Akóges Bílasýning Toyota
13.00 Sjómannafjör á Vigtartorgi
Séra Viðar blessar daginn. Kappróður, koddaslagur, tuðrukvartmíla, lokahlaup, sjómannaþraut, foosball völlur á staðnum, þurrkoddaslagur, sjóstakkasund*. Blaðrarinn mætir á svæðið. Hoppukastalar. ÍBV verður með poppkorn, Kjörís gefur ís. Leikfélagið skemmtir. Andlitsmálun í boði TM.
20.00 AFTUR TIL 2000- Sjómannadagsskemmtun
Tónlistin sem einkenndi síðustu aldamót mun ráða ríkjum. Fram koma: Beggi í Sóldögg, Einar Ágúst, Jónsi í Í svörtum fötum og Eyjaraddirnar Haffi úr MEMM og Una Þorvalds. Öll syngja þau við takt Bigga Nielsen úr Landi og sonum ásamt Gosunum. Veislustjóri verður Simmi Vill. Glæsilegt hlaðborð Einsa kalda ásamt skemmtun. >>>>>> Áhugasamir hafi samband við Höllina á hollinivestmannaeyjum@gmail.com.
23.00 Sjómannadagsball í Höllinni
Beggi í Sóldögg, Einar Ágúst, Jónsi í Í svörtum fötum og Eyjaraddirnar Haffi úr MEMM og Una Þorvalds ásamt Gosunum.
Forréttir við innkomu
• Nauta carpaccio, pistasíur, granatepli, parmesen, ponzu, stökkt frecola
• Skötusels mandarin tempura “new style” Wakame, sæt melóna, sweet chilli
• Lamba tartar á stökkri tartalettu, rauðrófa, kryddkaka, eggjakrem, jurtir
• Peking önd “dumplings”, vorlaukur, reykt chilli dressing, kóriander
• Sushi, eldfjalla maki, lax, agúrka, humarsalat, brennt laxa-belly nigri, kalamansi, teriyaki, sesamfræ
Aðalréttir (steikarborð)
• Nauta ribeye hægeldað í villisveppasoði
• Kalkúnabringur í savíusmjöri
Meðlæti
• New style sesar salat
• Romaine, tómatar, granatepli, parmesan, brauðten-
ingar, yuzu-dressing
• Kartöflukaka með kryddjurtarmús
• Garðablóðberg, chili, graslaukur, steinselja, karmellað smjör
• Smjörsteiktir sveppir
• Strandsveppir, ostrusveppir, kantarellur, kastaníusveppir
• Ofnbakað rótargrænmeti
• Ristaðar salthnetur, beikon, döðlur, sólþurrkaðir tómatar, sítrónuolía
Sósur
• Sveppa og garðablóðbergsósa
• Einsa Kalda bernaise sósa
Eftirréttarhlaðborð
• Mjólkursúkkulaði brownies
• Hvítsúkkulaðismjörkrem, jarðaber
• Mars súkkulaðimús
• Súkkulaðiskál, karamella, sykurpúðar
• Pistasíu tiramisu
• Mini sítrónutart
SJÓMINJASAFN Á FLÖTUM 23
verður opið 13-16 alla fimmtudag til sunnudags
SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2025
10.00 Fánar dregnir að húni
13.00 Sjómannamessa í Landakirkju. Séra Guðmundur Örn predikar og þjónar fyrir altari. Eftir messu verður minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra. Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur nokkur lög. Blómsveigur lagður að minnisvarðanum. Geir Jón stjórnar athöfninni.
14-17 Meistarflokkur ÍBV kvenna með kaffisölu í Akóges.
15.00 Hátíðardagskrá á Stakkó Lúðrasveit Vestmannaeyja Heiðraðir aldnir sægarpar, Guðni Hjálmarsson stjórnar. Karlakór RæðumaðurVestmannaeyja. dagsins er Ísólfur Gylfi. Verðlaunaafhending, Fimleikafélagið Rán, hoppukastalar og popp. Andlitsmálun í boði TM.
* TM gefu 50.000 kr. styrk til góðgerðafélags að vali sigurvegara í sjóstakkasundi.
Þeir sem ætla að taka þátt í kappróðrinum og öðrum dagskráratriðum vinsamlegast hafið samband á Facebook síðu Sjómannadagsráðs eða í síma ráðsins: 869-4449, 697-9695 eða 898-7567
Sjómannadagsráð áskilur sér rétt á að gera breytingar á dagskránni hér ef þurfa þykir.
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA TIL 02:00 FÖS OG LAU TIL 04:00 TILHAMINGJUMEÐDAGINN KÆRUSJÓMENNOGFJÖLSKYLDUR! KOMDU OG KÍKTU VIÐ!
Aldur: 7 ára (aðspurður - réttur aldur er 3 ára).
Fjölskylda: Mamma: Guðný Erla, pabbi: Tryggvi Stein og á tvo bræður Sigurður Hjálmar og Ágúst Guðni.
Þekkir þú einhverja sjómenn? Já, afa Villý og svo Kiddi frændi minn hann vinnur á Herjólfi.
Hefur þú farið á sjó? Já.
Borðar þú fisk? Já.
Hvað gera sjómenn? T.d sigla langt í burtu frá Vestmannaeyjum og veiða fisk og Kiddi hann er að segja hvert bílarnir fara í Herjólfi.
Þekkir þú einhverja fiska ? Já, ýsa, makríll, humar, krabbi og síli.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór?
Vinna í málningastofu og vera hárgreiðslukona.
OSKAR DAGUR EYJÓLFSSON
Fjölskylda: Pabbi, Eyjólfur V. Harðasson, mamma, Sigþrúður I. Sæmundsdóttir, fjögur eldri systkini.
Kærasta mín er Stefanía Ósk Bjarnadóttir.
Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar? September 2023 byrjaði ég í afleysingum.
Hvað heillar þig við sjómennskuna? Öll vinna sem fellur í sér að vinna með höndum og er ekki skrifstofu vinna heillar mig.
Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Alex Andersen, svo yfirvegaður og rólegur ungur maður.
Eftirminnilegasti túrinn? Sennilega þegar ég var seinn í flug og þurfti að hoppa á bryggjuna.
Þín helsta fyrirmynd? Faðir minn og móðir mín duglegasta fólk sem ég þekki!
Eitthvað að lokum: Gleðilegan sjómannadag kæru sjómenn!
Aldur: 3 ára.
Fjölskylda: Mamma Sòlveig Rut Magnúsdóttir, pabbi
Ellert Scheving og bróðir Daníel Gauti Scheving. Þekkir þú einhverja sjómenn? Neiii eða jú pabbi minn eða afi Maggi.
Hefur þú farið á sjó? Bara í Herjólf. Borðar þú fisk? Nei ég er með ónæmi (skrifað eins og hún segir það).
Hvað gerir sjómaður? Ná í fiska og hàkarla.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Með ömmu Önnu Huldu, hun nær í nammi fyrir krakkana Þekkir þú einhverja fiska? Bara fiskar, þeir eru margir 5,6 eða 7.
Fjölskylda: Er giftur Bylgju Dögg Guðjónsdóttur og saman eigum við þrjú börn, Kristján Val, Birgi Davíð og Birgittu Dögg.
Á hvaða bát ertu? Ég er skipstjóri á Þórunni Sveins, hef verið hér um borð í einhver 20 ár eða eitthvað. Hver fyndnastur um borð? Haha, þú segir nokkuð, ætli Palli Almars sé ekki brandarakallinn um borð.
Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar? Ég fór fyrst á sjó 14 ára gamall eitt sumar þar sem ég og Hafliði skiptum með okkur hlut á Breka með Sævari Sveins, heitinum.
Hvað heillar þig við sjómennskuna? Félagsskapurinn um borð fyrst og fremst. En svo er náttúrulega alltaf gaman þegar það er góð veiði og svona.
Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Ég myndi segja að það væri Helgi gamli heitn á Hvammi, sem var kokkur á Sindra og svo aftur með á Emmunni og Háin. Það var rosalega gaman að vera með honum, æðislegur kall.
Eftirminnilegasti túrinn? Ætli það séu ekki bara eftirminnilegustu túrarnir þegar maður lendir í einhverri ufsaveiði, það er orðið svo sjaldgæft.
Þín helsta fyrirmynd? Ætli ég verði ekki að segja að Stjáni á Emmunni sé mín helsta fyrirmynd. Eitthvað að lokum? Gangið hægt um gleðinnar dyr á sjómannadaginn.
Bestu árnaðaróskir og kveðjur til sjómanna og allra Vestmannaeyinga á sjómannadaginn!
Dagana 2.–5. maí 2025 hélt Karlakór Vestmannaeyja í eftirminnilega og fjölbreytta söngferð til Færeyja. Ferðin var farin í tilefni af því að kórinn fagnar því að nú á vordögum eru 10 ár síðan kórinn var endurreistur.
Ferðin fól í sér þátttöku í kóramóti í Vestmanna, heimsókn til vinabæjarins Götu og óteljandi kærleiksríkar móttökur þar sem kórinn naut einstaks viðmóts og hlýju. Söngurinn skapaði tengsl – en það var gestrisnin sem varð að hjartnæmu undirlagi alls ferðalagsins.
SÚ DANSKA DÁLEIDDI DRENGINA
Kóramótið í Vestmanna hófst á sameiginlegum æfingum undir stjórn Margrethe Debel frá Danmörku. Margrethe er frábær kórstjóri sem þrátt fyrir ungan aldur hefur stýrt fjölmörgum stórkórum og unnið þvert á landamæri. Hún leiddi hópinn af öryggi, ná-
Tenórarnir Ólafur og Egill á hátiðarkvöldverði að loknu kóramóti.
kvæmni og umfram allt innblæstri. Hennar nærvera náði að hvetja kórfélaga til að vaxa sem hópur, skapa samhljóm og leggja hjartað í hverja nótu. Sá galli var þó á gjöf Njarðar að leiðsögnin fór nær eingöngu fram á dönsku sem varð til þess að hópurinn þurfti að grafa djúpt og rifja upp menntaskóla dönskuna sem gekk ágætlega hjá flestum.
SANNKÖLLUÐ KÓRAHÁTÍÐ
Laugardaginn 3. maí stóð kóramótið sem hæst, æfingar héldu áfram fyrir sameiginlega kórinn fram að tónleikum þar sem stóri samkórinn um 120 manns, kom fyrstur fram en þar á eftir fylgdu 17 færeyskir kórar, hver með sín sérkenni og stíl. Flestir voru færeysku kórarnir afbragðsgóðir. Karlakór Vestmannaeyja var síðastur á svið sem gestakór kvöldsins, og flutti efnisskrá sína af öryggi og þótti bæði kröftugur og skemmtilegur. Áheyrendur tóku vel á móti kórnum, en formaður kórasambands Færeyja Leif Hansen hafði orð á því í ræðu sinni á kvöldskemmtun að betur færi á því að kórinn væri kallaður “Kraft Karlakór Vestmannaeyja”. Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um nafnabreytinguna.
EINN DANS VIÐ MIG
Kvöldinu lauk með veislu þar sem söngurinn hélt áfram við borðhald og dans. Þriggja rétta máltíð, skemmtiatriðum og balli með hljómsveitinni Brim frá Vestmanna sem er á engan hátt tengd hljómsveitinni Brimnes frá Vestmannaeyjum. Skemmtunin öll minnti óneitanlega á lundaball á síðustu öld,
Sjómannadagurinn 2025
VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn
enginn skjávarpi eða aðkeyptir skemmtikraftar bara mátulega heimilisleg skemmtiatriði og svo var maður manns gaman. Ballið fór fram í sama sal og því þurfti að rýma til fyrir dansgólfi í salnum. Færeyingar eiga góða leið til þess. Það einfaldlega stóðu allir upp og svo hófst færeyskur hringdans þar sem allur hópurinn einfaldlega dansaði út úr salnum á meðan borðin voru fjarlægð og svo dansaði hersingin aftur inn, engin vandamál.
Eftir að dansleikurinn hófst kom kona sem hafði búið á Íslandi að máli við undirritaðan og benti mér góðfúslega á það að þessar konur sem sátu meðfram dansgólfinu væru að bíða eftir því að vera boðið upp í dans og skildu ekki alveg afhverju meðlimir kórsins væru ekki duglegri á því sviði. Ég benti henni á að slíkt tíðkaðist tæplega á böllum á Íslandi lengur þar sem jafnréttið væri komið á þann stað að líklega væri vænlegra til árangurs að reyna að bjóða strákunum upp í dans. Það varð úr að nokkrar konur tóku á sig rögg og buðu upp í dans, einhverjir kórmeðlimir þekktust boðið með mismiklum glæsileika.
KAFFI, KÖKUR OG KÆRLEIKUR
Það var ekki aðeins tónlistin sem sameinaði – heldur líka kaffiboðin. Hvar sem kórinn kom var tekið á móti honum með hlýju og rausn. Borið var fram ilmandi kaffi, heimabakaðar kökur og smurt brauð í bland við góða samveru. Færeysk gestrisni er engri lík. Hún var einlæg, sjálfsögð og hluti af hverri heimsókn, hvort sem það var í íþróttahúsi, á elliheimili eða í heimahúsi. Þessa hlýju báru kórfélagar með sér heim og tala enn um með virðingu og þakklæti.
TÓNLIST Í ÞJÓNUSTU TENGSLA
Á sunnudeginum hélt kórinn til Götu – vinabæjar Vestmannaeyja. Þar söng hann á elliheimilunum bæði í Leirvík og Götu við mikinn fögnuð heimilis-
Nýtt og glæsilegt ráðhús í Götu skoðað.
fólks, sem tók flytjendunum opnum örmum. Martin Juul Vestmannaeyjavinur lét sig ekki vanta og tók á móti kórnum eins og um væri að ræða þjóðhöfðingja stórþjóðar og bað fyrir kveðju til allra Eyjamanna og telst henni hér með komið á framfæri. Í kjölfarið bauð Hanna Jensen, bæjarfulltrúi í Götu og lögþingismaður, hópnum í glæsilegt ráðhús sveitarfélagsins áður en ferðinni var heitið heim til Hönnu. Þar fóru fram skemmtilegir heimatónleikar. Þar var sungið á stofugólfinu fyrir gesti og gangandi. Hanna bauð kórnum einnig til veislu og að henni lokinni hélt söngurinn áfram í notalegu umhverfi á heimili gestgjafanna.
SÖNGUR SEM TENGDI, FERÐ SEM GLEYMIST EKKI Ferðinni lauk með heimför á mánudegi – en í hugum kórfélaga lifir hún áfram. Þar sameinaðist tónlist, vinátta og menning. Með sér tóku Eyjamenn ekki aðeins minningar og myndir – heldur upplifun að góðvild og gestrisni sem þekkja engin landamæri.
Sindri Ólafsson
Formaður (kraft) Karlakórs Vestmannaeyja
Menn sáttir eftir velheppnaðan söng fyrir heimilisfólk á “eldrasambýlinum Gøtubrá.” Með hópnum er Hanna Jensen, bæjarfulltrúi í Götu og lögþingismaður.
SENDUM SJÓMÖNNUM
SÝNING Í VESTMANNAEYJUM
30. MAÍ KL. 16 - 18 31. MAÍ KL. 11 - 15
Toyota Kauptúni kemur til Eyja dagana 30. — 31. maí. Kynning og reynsluakstur á nýjum bílum. Ka og kleinur í boði.
Við verðum til húsa hjá Akóges, Hilmisgötu 15.
TOYOTA FÖRUM LENGRA