

![]()


DREIFING:
Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir& Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumynd: Á myndinni er Magnús Örn Möller. Ljósmyndari/Hlynur Ágústsson
ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

SALTFISKUR MEÐ HVÍTLAUKSMÚS OG SÚKKULAÐIKLESSA Í
Ég þakka Unu dóttur minni fyrir
þessa áskorun. Ég ætla að bjóða upp á suðrænan og seiðandi saltfisk ásamt hvítlauksmús og súkkulaðiklessu í eftirrétt.
Ég vil svo skora á tengdason minn
Friðrik Má Sigurðsson sem er yfirgrillari fjölskyldunnar.
• Þorskhnakkar
• Rauðlaukur
• Hvítlaukur
• Sólþurrkaðir tómatar
• Cherry tómatar
• Ólífur svartar & grænar
• Döðlur
• Fetaostur
Aðferð
Salta þorskhnakka í ca. 3-4 tíma með grófu salti og skola svo vel uppúr köldu vatni.
Velta fiskbitunum upp úr pipruðu hveiti og steikja snöggt við frekar háan hita á pönnu og taka svo af og raða í eldfast mót.
Setja á pönnuna vel af smjöri og olíu.
Slatta af rauðlauk og hvítlauk. Sólþurrkaðir tómatar ca 1/2 krukka og cherry tómatar ca 5 stk. í bita. Ólífur svartar og grænar eftir

smekk. Döðlur saxaðar smá slatti og pipar. Látið malla í góða stund á pönnunni (ekki of háan hita) svo úr verði sósa og svo sett yfir fiskinn. Gott að setja smá mulinn feta yfir en ekki of mikið.
Sett i ofn i ca 12 mínútur, fer eftir þykkt fiskbitanna.
Fiskurinn er borinn fram með hvítlauksmús og góðu víni.
HVAÐ VITA KRAKKARNIR?
SAGA MARGRÉT SINDRADÓTTIR
Aldur: 9 ára
Fjölskylda: Þórsteina, Sindri og Nökkvi og Edda
Þekkir þú einhverja sjómenn? Já, afa Bjössa.
Hefur þú farið á sjó? já á skemmtiferðaskip og Herjólf.
Borðar þú fisk? Já.
Ef þú ættir skip, hvað myndi það heita? Svarta Perlan.
Þekkir þú einhverja fiska ? Ýsu, Þorsk, Steinbít
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Eitthvað skemmtilegt með frænku minni og frænda.
• Hvítlaukur
• Kartöflur
• Smjör
• Mjólk
• Salt & pipar
Aðferð
Baka tvo hvítlauka í álpappír með olíu og salti í ca 40 mínútur. Sjóða og stappa kartöflurnar með slatta af smjöri og smá volgri mjólk.
Vel af svörtum pipar og svo salt. Kreista síðan hvítlaukinn útí og stappa vel.
SÚKKULAÐI-KLESSA
• Sykur, 2 dl
• Egg, 4 stk
• Súkkulaði, 200 g
• Smjör, 200 g
• Hveiti, 1 dl
Sykri og eggjum þeytt saman, súkkulaði og smjör brætt í potti. Súkkulaðiblöndunni bætt út í eggjablönduna og hveitinu bætt við. Bakað í 30-45 mínútur við 180-200 gráður. Kremið: 200g súkkulaði, 70g smjör og 2msk síróp.
Gott að bera fram með vanilluís eða rjóma.


Sjómannadagurinn 2026
Til hamingju með daginn
VM félag vélstjóra- og málmtæknimanna óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn
Sum verkefni eru meira en fagleg viðfangsefni. Þau snerta sögu, minningar og staði sem hafa mótað okkur. Í þessari grein segir Sif Hjaltdal Pálsdóttir, landslagsarkitektinn frá persónulegri og faglegri tengingu sinni við Vestmannaeyjar, Eldfell og verkefnið The Wanderer’s Perspective eftir Ólaf Elíasson. Hún fjallar um ábyrgðina sem fylgir því að vinna í viðkvæmu og söguríku landslagi, áskoranirnar við að skapa nýja upplifun án þess að raska sérstöðu staðarins og hvernig bernskuminningar, fagþekking og saga gossins 1973 fléttast saman í einu metnaðarfullu verkefni.
Það eru ákveðin forréttindi að fá að vinna að verkefni á stað sem hefur mótað mig frá barnsaldri. Þótt ég hafi fæðst í Hafnarfirði var ég aðeins hálfs mánaðar gömul þegar foreldrar mínir, Páll Zóphóníasson og Áslaug Hermannsdóttir, flugu með mig til Vestmannaeyja þar sem ég ólst upp. Ég flutti aftur í Hafnarfjörðinn átján ára gömul með Grími Jónssyni, lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskólanum og síðar lá leið okkar til Danmerkur í nám þar sem við bjuggum í um áratug. Þar eignuðumst við börnin okkar, Grím Jón og Sölku, áður en við fluttum heim árið 2008. Síðan þá hef ég starfað á teiknistofunni Landslag ehf.
Það var því bæði ánægjulegt og sérstakt þegar Landslag fékk það verkefni að vinna að frumathugun á listaverki Ólafs Elíassonar, The Wanderer’s Perspective. Verkefnið fólst meðal annars í því að meta hvort hægt væri að leggja göngustíg um Eldfell með lágmarks raski á viðkvæmt landslaginu og með tilliti til aukins álags. Að einhverju leyti lá kannski beint við að ég kæmi að því verkefni, enda frá Vestmannaeyjum. Mér finnst það forréttindi að fá að vinna að þessu verkefni og sérstaklega ánægjulegt að halda áfram samstarfi við teymi Ólafs Elíassonar og Vestmanneyjabæ.
Þegar unnið er á stað sem hefur jafn sterka sögu og tilfinningalega tengingu fyrir samfélagið og Eldfell fylgir því ákveðin ábyrgð. Það skiptir mig miklu máli að verkefnið verði Vestmannaeyingum til sóma og að það falli eðlilega að landslaginu. Þegar ég kem til Eyja vegna verkefnisins vinn ég oft í gamla herberginu mínu heima hjá foreldrum mínum. Þaðan sé ég beint yfir að skálanum eða „kúlunni“, sem er hluti af verkinu. Að hafa það bókstaflega fyrir augunum minnir mig á þá ábyrgð sem fylgir því að vinna á jafn mikilvægum stað.

Ég geri mér líklega ekki fulla grein fyrir því hversu mikil áhrif það hafði á mig sem landslagsarkitekt að alast upp í þessu einstaka landslagi. Þegar ég hugsa til baka rifjast upp gönguferðir um alla eyjuna sem barn, þar sem markmiðið var allt frá því að fara í nestisferð til þess að reyna að týnast með vinkonu – sem gekk reyndar aldrei sérstaklega vel því við vissum alltaf hvar við vorum. Ég man eftir álminum hennar Unnar leikkonu sem var eitt fárra trjáa í Eyjum og þegar ég fléttaði fasta fléttu í „Háa grasið“ á Helgafelli, sem skildi eftir sig mjóa rönd niður hlíðina allt sumarið.
Eyjarnar hafa greinilega fylgt mér inn í námið. Ég valdi aftur og aftur verkefni tengd Vestmannaeyjum. Í einu verkefni vann ég með þrívíddarlíkön og „gróf upp“ húsin sem fóru undir hraun í gosinu 1973. Sú vinna nýttist síðar að einhverju leyti í verkefninu Pompei Norðursins. Lokaverkefnið mitt í landslagsarkitektúr fjallaði um stækkun kirkjugarðsins í Vestmannaeyjum og þar kom þrívíddin aftur að góðum notum. Þegar kom svo að hönnun göngustígsins á Eldfell reyndist þessi reynsla ómetanleg. Ég hef oft þakkað föður mínum fyrir að hvetja mig til að leggja sérstaka áherslu á þrívíddarhugsun í náminu, því hún hefur reynst mér afar mikilvæg í starfi.





Gildi er bakhjarl sjómanna og styður við þá og ölskyldur þeirra á öllum æviskeiðum. Aðild að sjóðnum tryggir meðal annars:
Ævilangan ellilífeyri við starfslok
Áfallalífeyri í kjölfar veikinda eða vinnuslyss
Rétt á maka- og barnalífeyri
Með séreignarsparnaði fást auknar ráðstöfunartekjur við starfslok en hann getur einnig nýst við fasteignakaup. Við vekjum jafnframt athygli á tilgreindri séreign en með henni er mögulegt að ráðstafa hluta af hefðbundnu lífeyrisiðgjaldi í aukinn séreignarsparnað. Mikilvægt er að kynna sér kosti og galla tilgreindrar séreignar áður en sú leið er valin.
Allir sem greitt hafa til Gildis geta sótt um húsnæðislán hjá sjóðnum.
Kynntu þér málið nánar á gildi.is

Þótt ég hafi gengið ótal sinnum um Eldfell í gegnum tíðina upplifði ég staðinn öðruvísi þegar ég skoðaði hann í fyrsta sinn sem hönnuður. Ég viðurkenni að ég var svolítið efins í fyrstu um hvernig stígur upp Eldfell gæti gengið upp án þess að ganga of nærri náttúrunni. En eftir að hafa skoðað svæðið ítarlega, frá mörgum sjónarhornum og bæði út frá landslagslegum og listrænum forsendum, varð mér ljóst að verkið gæti skapað nýja og áhugaverða upplifun af staðnum án þess að draga úr sérstöðu hans.
Listaverkið sjálft er vissulega sýnilegt í landslaginu og það er hluti af hugmyndfræðinni. Til dæmis er ætlunin að göngustígurinn sjáist frá skálanum. Hins vegar erum við að vinna með ósnorta náttúru og því skiptir máli að allur frágangur sé vandaður. Við höfum lagt mikla vinnu í útfærslu stígsins, efnisval og litaval svo að bæði listavekið og Eldfell sjálft fái notið sín. Markmiðið hefur frá upphafi verið að finna jafnvægi milli þess að skapa sterka upplifun og að virða landslagið.
Saga gossins árið 1973 er óhjákvæmilegur hluti af verkefninu. Þegar ég var að alast upp var hins vegar ekki mikið rætt um tilfinningalegu hlið gossins. Það er skiljanlegt, enda var um mikið áfall að ræða og á þeim tíma var ekki sama hefð fyrir því að ræða slíka reynslu opinberlega. Ég fékk hins vegar góða innsýn í hagnýtu hlið gossins í gegnum föður minn, sem var nýlega orðinn bæjartæknifræðingur þegar gosið hófst. Í gegnum hann kynntist ég fjölmörgum þáttum þessarar sögu.
Ég taldi mig reyndar þekkja hana nokkuð vel þar til að ég fór að kafa dýpra í verkefnið. Þá komst ég að ýmsu sem ég hafði aldrei heyrt áður. Ég vissi til dæmis ekki að Helgafellsbrautin hefði verið grafin upp á
síðari hluta gossins til að losa um gufu og hita svo að jarðvegurinn vestan megin við hana myndi ekki sjóða líkt og gerðist austan megin. Pabbi sagði mér einnig af svokallaðri gígvakt, þar sem fylgst var með hraunrennsli úr gígnum og brugðist við með kælingu þegar þörf krafðri. Slíkar sögur minna mann á hversu einstök og merkileg saga þessa svæðis er.
Að mínu mati talar verkið ekki eingöngu til ferðamanna. Landslagið sjálft, útsýnið og ferðin upp stíginn skapa upplifun sem höfðar jafnt til heimamanna sem gesta. Fyrir Vestmannaeyinga getur einnig verið tilefni til að rifja upp sögu staðarins og tengslin við gosið. Minningar þeirra sem upplifðu þessa atburði mega ekki gleymast og verkið gefur tækifæri til að nálgast söguna á nýjan hátt, bæði út frá mannlegri reynslu og þeim miklu verkfræðilegu og samfélagslegu áskorunum sem fylgdu gosinu.
Ein stærsta áskorunin í verkefninu hefur verið að vinna með náttúru sem er bæði viðkvæm og síbreytileg. Mikil áhersla hefur verið lögð á að raska jarðvegi sem minnst. Þess vegna byggir lausnin á stíg sem hvílir á yfirborðinu á varanlegum undirstöðum eða festingum. Þetta gerir mannvirkið afturkræft; ef það yrði fjarlægt myndi náttúran á tiltölulega skömmum tíma jafna út ummerkin. Reynslan sýnir að slóðar á Eldfelli myndast og hverfa með tímanum, þannig að sú síbreytilega náttúra sem einkennir fjallið vinnur í raun með okkur.
Ég vonast til að þeir sem ganga upp Eldfell þegar verkefnið verður fullbúið upplifi ferðina sem meira en einfalda gönguleið. Markmiðið er að gangan verði upplifun sem tengir saman landslag, náttúruöfl, sögu, minningar og tíma. Að fólk fái tækifæri til að staldra við, horfa yfir umhverfið og upplifa staðinn með nýjum augum.
Samstarf Landslags við teymi Ólafs Elíassonar hefur verið einstaklega ánægjulegt og lærdómsríkt. Þegar ég gekk um svæðið með Matteo, verkefnastjóra verksins hjá Ólafi, sá ég staðinn að einhverju leyti með nýjum augum. Það hefur verið sérstaklega áhugavert að vinna með fólki úr ólíkum faggreinum og samstarfið við Vestmannaeyjabæ hefur sömuleiðis verið afar gott og sýnir vel hvað þverfagleg samvinna getur skilað miklu þegar unnið er að jafn metnaðarfullu verkefni.
Þetta verkefni er persónulegra fyrir mig en flest önnur sem ég hef unnið að sem landslagsarkitekt. Ég er að vinna á stað sem hefur fylgt mér allt mitt líf, en verkefnið hefur samt kennt mér að sjá hann upp á nýtt. Það hefur minnt mig á að jafnvel staðir sem maður telur sig þekkja vel eiga enn eftir að segja manni nýjar sögur.

Við sendum sjómönnum og fjölskyldum
þeirra heillaóskir í tilefni dagsins.
ISFELAG.IS

Hér má sjá ferlið í myndum þegar listaverkinu var komið fyrir, en það voru þeir Þórður Svans, Arnar ásamt Skipalyftunni sem að sáu um að koma því fyrir. Fleiri myndir og myndbönd munu koma á vefsíðu Tíguls og þá hægt að sjá allt ferlið. Ljósmyndirnar tók Addi í London.









Foreldrar: Anna Ólafsdóttir og Haraldur Hannesson. Systkini: Baldur Haraldsson og Hannes Haraldsson. Hvað er draumurinn að vinna við í framtíðinni?
Ég lifi þannig lífi að mér finnst oft voða notalegt að taka bara daginn í dag áður en ég tek morgundaginn. Annars hefur mig oft langað að verða geimfari. Í hvaða skóla þá stefnir þú? Stefni á fjarnám. Ekki alveg klár á hvaða skóla. Hugsanlega stýrimannaskólann eða fiskeldisfræði (Háskólinn á Hólum).
Hvernig var þín upplifun af FÍV? Þetta var frábær upplifun. Kynntist fullt af flottu fólki, bæði kennurum og nemendum og félagslífið mjög gott. Námið uppá tíu og hvet alla til að skrá sig í nám við skólann.
Uppáhalds kennari í FÍV? Verð að fá að klína þeim titli á Óla Tý. Þetta er höfðingi heim að sækja. Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst? Nýsköpunaráfanginn var mjög áhugaverður og skemmtilegur.
Eitthvað að lokum? Ég vil hvetja ungu kynslóðina sem er að stíga upp í framhaldsskólann ásamt þeim sem eru ennþá þar að nýta hvern dag í að vera ungmenni. Þú fattar það ekki fyrr en þú útskrifast hversu ógeðslega gaman og gefandi þessi tími var. Þannig nýttu hvert einasta tækifæri sem gefst í að skemmta þér. Til hamingju með áfangann.
Foreldrar: Eyrún Sigurjónsdóttir og Davíð Egilsson.
Systkini: Elísabet og Egill.
Hvað er draumurinn að vinna við í framtíðinni?
Mig hefur alltaf langað að verða sjúkraþjálfari.
Í hvaða skóla stefnir þú þá á?
Ég stefni á að flytja aftur heim til Svíþjóðar, í háskólann í Lund.
Hvernig var þín upplifun af FÍV?
Ótrúlega góð og skemmtileg. Ég hef kynnst frábæru fólki og lært helling á þessum tíma.
Uppáhalds kennari í FÍV?
Auðbjörg er í uppáhaldi.
Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst?
Seinni dönskuáfanginn sem ég fór í, söfnuðum okkur fyrir geggjaðri ferð til Köben.
Eitthvað að lokum?
Takk fyrir allt elsku FÍV.




BREKI ÞÓR HALLDÓRSSON
Aldur: 13 ára
Fjölskylda: Halldór Ingi og Sigrún Arna
Þekkir þú einhverja sjómenn? Já, bróðir minn
Hefur þú farið á sjó? Nei.
Borðar þú fisk? Já.
Ef þú ættir skip, hvað myndi það heita? Þórarinn.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Sjómaður.
JÓN GUNNAR SIGURÐSSON
Fjölskylda: Foreldrar mínir eru Sæbjörg Snædal Logadottir og Sigurður Steinar Konráðsson og systkini Hafþór Logi Sigurðsson, Brynjar Þór Stefánsson og Andrea Rán Sigurðardóttir.
Á hvaða bát ertu?
Ég er á Drangavík VE 80.
Hvenær og hvar byrjaðir þú á sjó?
Ég byrjaði í september 2024 á Dala Rafni.
Hvað heillaði við sjómennskuna?
Það sem heillar mig við sjómennskuna er bara að það er góður peningur og félagsskapurinn.
Eftirminnilegasti sjómaður sem þú hefur róið með? Eftirminnilegasti sjómaðurinn er Egill Þór Valgarðsson.
Eftirminnilegasti túrinn?
Þegar við fengum pokann í skrúfuna.
Þín helsta fyrirmynd?
Ætli það séu ekki bara mamma og pabbi, voru bæði á sjó.
Eitthvað að lokum?
Ég vil óska öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar sjómannadagshelgar - njótið helgarinnar.



Við sendum sjómönnum og fjölskyldum
þeirra hátíðarkveðjur í tilefni sjómannadags


JÓN ÓLAFUR SVEINBJÖRNSSON
Aldur: 11 ára
Fjölskylda: Ásta Jóna Jónsdóttir, Sveinbjörn Kristinn
Óðinsson,Halla, Illugi og Alex.
Þekkir þú einhverja sjómenn? Já, pabba minn og vini hans.
Hefur þú farið á sjó? Nei, bara farið með að færa bátinn.
Borðar þú fisk? Já.
Ef þú ættir skip, hvað myndi það heita? Hilmar á þakinu.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór?
Atvinnumaður í íþróttum.
Fjölskylda: Foreldrar mínir eru Sigurhanna og Jón
Atli og svo á ég þrjár systur.
Á hvaða bát ertu:
Ég er á Drangavík VE 80
Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar?
Ég fór mína fyrstu túra á Sighvati Bjarnasyni (þá Kap) sumarið 2017.
Hvað heillar þig mest við sjómennskuna?
Það er það að geta róið eins mikið og maður vill og fengið sæmileg sumarfrí á móti því.
Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Það er án efa Egill Þór Valgarðsson. Fáir sem komast með tærnar þar sem hann er með hælana.
Eftirminnilegasti túrinn?
Það hlýtur að vera túrinn sem ég fékk allt trollið í skrúfuna.
Þín helsta fyrirmynd?
Ætli það sé ekki Grindvíkingurinn geðugi, Deandre Kane Eitthvað að lokum?
Ég vil óska öllum sjómönnum gleðilegrar helgar og jafnframt óska sjálfum mér til hamingju með frábæran árangur í sjómannamóti Ísfélagsins.



Við sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hátíðarkveðjur í tilefni sjómannadagsins
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2026
16:00 Sjómannadagsblað og merkjasala.
Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja verður dreift frítt í öll hús í Eyjum.
Yngri flokkar ÍBV sjá um merkjasölu, takið vel á móti sölubörnunum.
18:00 Ölstofa The Brothers Brewery
Sjómannabjórinn 2026 kynntur við hátíðlega athöfn. Opið 12 til 23.
20:00 Vortónleikar
Karlakórs Vestmannaeyja í Eldheimum.
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2026
8.00 Sjómannagolfmót Ísfélagsins.
Skráning í síma 481-2363 og golf.is. Vegleg verðlaun í boði.
16.00 Blóm lögð að minnisvarðanum á Skansinum
21.00 SSSÓL í Höllinni
Húsið opnar kl. 20.00 og tónleikar hefjast kl. 21.00. Miðasala á Tix.is.
11.00 Dorgveiðikeppni SJÓVE og Sjómannadagsráðs á Nausthamars bryggju. Vegleg verðlaun, stærsti fiskur, flestir fiskar o.fl. Svali og prins póló fyrir alla þátttakendur.
11-12 Brot af því besta úr lifandi viðtölum Kristjáns Óskarssonar í Sagnheimum - Stjána á Emmunni - á liðnum áratugum við Eyjafólk
12:30 Vígsla á Létti nýjum vinnubát Vestmannaeyjahafnar Bátnum verður gefið nafn, Sér Viðar mun blessa skip og áhöfn og boðið upp á léttar veitingar á hafnarskrifstofunni. Gestum gefst kostur á að skoða Létti frá 13-15.
13.00 Sjómannafjör á Vigtartorgi
Séra Viðar blessar daginn. Koddaslagur, lokahlaup, sjómannaþraut, foosball völlur á staðnum, þurrkoddaslagur, sjóstakkasund* Blaðrarinn og Tröllið Tumi Tunna mætir á svæðið. Hoppukastalar. ÍBV verður með poppkorn, Kjörís gefur ís. Leikfélagið skemmtir. Andlitsmálun í boði TM.
13-15 Island Adventure býður upp á tuðruferðir fyrir alla.
14-17 Opnar vinnustofur í Hvíta húsinu
20.00 Sjómannadagsskemmtun
Húsið opnar kl. 19.00 með forréttahlaðborði og hefst borðhald kl. 20.00. Veislustjóri verður hinn bráðfyndni Andri Ívars og með honum verður Stebbi Jak og Marína Ósk. Uppistand, Föstudagslögin og fleira fjör yfir borðhaldi. Þá mun Herra Hnetusmjör líta við. Glæsilegt hlaðborð Einsa kalda ásamt skemmtun. >>>>>> Áhugasamir hafi samband við Höllina á netfangið hollinivestmannaeyjum@gmail.com.
23.00 Sjómannadagsball í Höllinni Herra hnetusmjör, föstudagslögin: Stebbi Jak og Andri Ívars og Maríana Ósk. Eftir Herrann tekur svo DJ við í alvöru klúbbastemmara.
SJÓMINJASAFN Á FLÖTUM 23 verður opið 13-16 fimmtudag til sunnudags

10.00 Fánar dregnir að húni
13.00 Sjómannamessa í Landakirkju.
Séra Guðmundur Örn predikar og þjónar fyrir altari. Eftir messu verður minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra. Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur nokkur lög. Blómsveigur lagður að minnisvarðanum. Óli Jói stjórnar athöfninni.
Forréttir við innkomu
• Freyðandi skelfisksúpa
• Kafir lime, kókos, humar
• Nobashi rækja í kadafi deigi
• Yuzu og jalapenosósa, sæt melóna
• Dádýra tataki mojito
• Granatepli, teriyaki, mynta
• Stökkt andasalat á vöfflu
• Vatnsmelóna, kasjúhnetur, kóriander dressing
• Grillaður lax frá laxey
• Eggjakrem, stökkt múslí, wasabi
Aðalréttir (steikarborð)
• Hægelduð nautalund með black garlic
• Kalkúna wellington
Meðlæti
• New style sumar salat
• Romaine, tómatar, granatepli, parmesan, basilolía
• Sætkartöflu brulee
• Stökkt kartöflusmælki með hvítlauksdressingu
• Vorlaukur, chili, steinselja
• Svepparagú með hvítlauk og steinseljusmjöri
• Strandsveppir, ostrusveppir, kantarellur, kastaníusveppir
Sósur
• Sveppa og garðablóðbergsósa
• Einsa Kalda bernaise sósa
Eftirréttarhlaðborð
• Dubai súkkulaðikaka a la grillmarkaðurinn
• Ástaraldin ostamús með engifer crumble og ástaraldinsósu
• Saltkaramellu tiramisu
• Nutella tart með ristuðum pekanhnetum
14-17 Meistarflokkur ÍBV kvenna með kaffisölu í Akóges.
14-17 Opnar vinnustofur í hvíta húsinu
15.00 Hátíðardagskrá á Stakkó Lúðrasveit Vestmannaeyja Heiðraðir aldnir sægarpar, Guðni Hjálmarsson stjórnar. Karlakór Vestmannaeyja. Ræðumaður dagsins er Guðmundur Helgi Þórarinsson, fráfarandi formaður VM. Verðlaunaafhending, Leikfélagið, hoppukastalar og popp. Andlitsmálun í boði TM. Þurrkoddaslagur á Stakkó. Tröllið Tumi Tunna mæta á svæðið.
* TM gefur 50.000 kr. styrk til góðgerðafélags að vali sigurvegara í sjóstakkasundi.
Þeir sem ætla að taka þátt í Sjóstakkasundi og öðrum dagskráratriðum vinsamlegast hafið samband á Facebook síðu Sjómannadagsráðs eða í síma ráðsins: 868-8575 eða 893-2411.
Sjómannadagsráð áskilur sér rétt á að gera breytingar á dagskránni ef þurfa þykir.

Haraldur Hannesson hefur lifað og starfað í nánum tengslum við sjóinn frá unga aldri. Hann hóf ungur að sniglast í kringum afa sinn og föður við Baldur VE og var aðeins um tíu ára gamall þegar hann var farinn að taka þátt í löndun. Þótt sjómennskan hafi ekki endilega verið sjálfgefið draumastarf í upphafi, varð hún smám saman að stórum hluta af lífi hans.
Valið á Haraldi sem sjómanni ársins kemur í kjölfar fjölda ábendinga þar sem hann var ítrekað nefndur sem sjómaður sem hefur sýnt einstakan dugnað, reynslu og árangur. Þeir sem þekkja til hans lýsa honum sem lunknum sjómanni sem þekki miðin og svæðið í kringum Eyjar afskaplega vel; alla hóla, botna og aðstæður eins og lófann á sér.
Haraldur býr að áralangri reynslu, meðal annars frá því hann var á trolli á Baldri ásamt föður sínum hér áður, og sú þekking hefur nýst honum vel í gegnum tíðina. Undanfarin ár hefur hann einnig vakið athygli fyrir góðan árangur á strandveiðum, þar sem hann hefur fiskað af miklum krafti, verið snöggur til og oftar en ekki náð kvótanum.
Í umsögnum um Harald kemur skýrt fram að þar fari virkilega duglegur, hraustur og útsjónarsamur sjómaður. Hann er maður sem þekkir sjóinn, svæðið og starfið af eigin raun, og hefur með vinnusemi sinni og árangri unnið sér inn virðingu þeirra sem til þekkja. Það er því vel við hæfi að Haraldur Hannesson hljóti nafnbótina Sjómaður ársins hjá Tígli. Við tókum létt spjall við kappann.
Haraldur Hannesson fæddist í Vestmannaeyjum 2. október 1968. Hann er menntaður rafvirki, með sveinspróf í rafvirkjun, auk þess sem hann hefur lokið vélarvarðaprófi og skipstjórnarmenntun.
Eiginkona Haraldar er Anna Ólafsdóttir sjúkraþjálfari.
Synir þeirra eru Baldur Haraldsson, Hannes Haraldsson, sem er í sambúð með Birgittu Dögg Óskarsdóttur og eiga þau soninn Harald Þór, og Ólafur Már Haraldsson.
Tengsl Haraldar við sjóinn hófust snemma. Hann fór nokkrum sinnum á sjó með Baldri VE 24 á yngri árum og byrjaði síðan sem háseti á Baldri árið 1987. Þar var hann í tvö ár áður en hann hóf nám í rafvirkjun.
Að námi loknu starfaði hann við rafvirkjun hjá Geisla í tíu ár.
Í fyrstu segir Haraldur að það hafi fyrst og fremst verið góð laun sem heilluðu við sjómennskuna. Áhuginn jókst þó eftir því sem á leið.
„Eftir að ég kláraði stýrimannaskólann fékk ég meiri áhuga á sjómennskunni og eftir að maður fór að starfa sem stýrimaður varð þetta meira spennandi,“ segir Haraldur.
Fyrirmyndin var ekki langt undan. Haraldur nefnir afa sinn, Harald Hannesson, sem sína helstu fyrirmynd, en hann segist hafa verið mikið að sniglast með honum í krónni á sínum yngri árum. Sjómennskan var því snemma hluti af daglegu lífi hans.
Þegar Haraldur er spurður um eftirminnilegasta sjómanninn sem hann hefur róið með segir hann marga flotta og skemmtilega karla koma upp í hugann. Einn standi þó sérstaklega upp úr.
„Ég held að ég segi Gunnar Jónsson á Ísleifi. Hann var afburða veiðimaður, góður skipstjóri og sterkur karakter,“ segir Haraldur.
Hann segir það að miklu leyti hafa verið fyrir tilstilli Gunnars og Jóns Atla að hann varð viðloðandi sjómennsku, fyrst á Ísleifi og síðan á Kap, þar sem hann var í tæp 20 ár.
Á löngum ferli hefur Haraldur sem betur fer sloppið við að lenda í sjóslysi. Hann á þó margar minningar af sjónum, þótt ekkert eitt atvik standi endilega upp úr öðru.
„Það er alltaf eftirminnilegt þegar vel gengur að veiða, hvort sem það var í uppsjávarsjómennskunni eða á trillunni,“ segir hann.
Aðstæður og árstíðir skipta miklu máli í sjómennskunni að mati Haraldar. Skemmtilegasti árstíminn fari einfaldlega eftir því hvar róið er. Á Herjólfi sé sumarið klárlega skemmtilegast, á trillunni séu mars og apríl eftirminnilegir þegar loðnan gengur og fiskurinn undirbýr hrygningu, en í uppsjávarveiðunum sé loðnutíminn sérstakur.
Sjómennskan hefur tekið miklum breytingum á starfsævi Haraldar, ekki síst hvað varðar tæki og tækni. Hann nefnir siglingatölvur og AIS-merki sem stærstu breytingarnar.
„Þegar ég byrjaði á Ísleifi voru arpa og radarinn enn við lýði, en með þessu varð mikil breyting,“ segir hann.
Aðspurður hvað sé erfiðast við sjómennskuna segir Haraldur það fara eftir aðstæðum hverju sinni. Á uppsjávarskipunum hafi smugutúrarnir yfir sumartímann verið langir og stundum leiðinlegir. Á trillunni sé veðráttan erfiðust, sérstaklega þegar lítið sé að hafa.
„Það er ekkert til sem er leiðinlegra en það,“ segir hann.
Á Herjólfi segir hann vetrartímann alltaf jafn krefjandi.
Haraldur hefur sínar skýru skoðanir þegar kemur að mat. Versti maturinn að hans mati er þorramatur og svið, en bestur þykir honum allur hrossakjöt matur, hvort sem það er saltað hrossakjöt, bjúgu eða folaldalundir.
Þegar kemur að fallegum stöðum nefnir hann Þórsmörk, en segir fegurðina þó líka fara eftir hugarástandinu hverju sinni.
„Það fer nú líka bara eftir því hvernig liggur á manni í það skiptið hvað er fallegt,“ segir Haraldur.
Þótt hann muni ekki nákvæmlega hvert draumastarfið var þegar hann var ungur segir hann líklegt að sjómennskan hafi alltaf legið vel við honum. Hann hafi verið sem peyji í kringum afa sinn og pabba og snemma byrjaður að landa hjá þeim á Baldri VE.
Í lokin vill Haraldur koma kveðju á framfæri til sjómanna og sjókvenna í tilefni dagsins.
„Ég óska öllum sjómönnum og konum til hamingju með daginn og sendi einnig kveðjur til félaga minna á aflaskipinu Herjólfi.“


Foreldrar: Friðrik Örn Sæbjörnsson og Þórey Svava Ævarsdóttir.
Systkini: Bróðir minn Felix Örn svo á ég fullt af skemmtilegum stjúpsystkinum.
Hvað er draumurinn að vinna við í framtíðinni?
Draumurinn væri auðvitað bara að vinna á háttsettri skrifstofu með skemmtilegu fólki.
Í hvaða skóla stefnir þú þá á?
Ég ætla að taka mér smá pásu frá skóla og byrja að vinna en legg svo hausinn í bleyti þegar kemur að því að fara í háskóla.
Hvernig var þín upplifun af FÍV?
Hún var rosaleg, skemmtilegur tími sem maður fékk að eyða með vinum og að fá að djóka aðeins í kennurunum, verður ekkert betra en það, en muna samt að vera alltaf kurteis.
Uppáhalds kennari í FÍV? Úff ég á eina frænku þarna og stjúpsystur þannig ég ætla að velja tvo uppáhalds kennara. Andrea frænka og Margrét stjúpsystir.
Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst?
Jákvæð sálfræði allan daginn því það voru enginn próf í þeim áfanga.
Eitthvað að lokum? Trú á eigin verkefni er lykillinn að því að gera hið ómögulega mögulegt.
Foreldrar: Rósa Gunnarsdóttir og Valgeir Yngvi Árnason.
Systkini: Mía Mekkín Valgeirsdóttir
Hvað er draumurinn að vinna við í framtíðinni?
Vinna við að sparka i bolta Í hvaða skóla stefnir þú þá á?
HA eða Bifröst.
Hvernig var þín upplifun af FÍV?
Ánægður að vera búinn.
Uppáhalds kennari í FÍV? Góð spurning. Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst?
Próflausi áfanginn hjá Kötu Harðar.
Eitthvað að lokum? Haters gonna hate.





ARÍA RÓS ALEXDÓTTIR
Aldur: 8 ára
Fjölskylda: Alex Freyr, Anna Mekkín, Kara Björk, Víkingur
Henrý og Vífill Frans.
Þekkir þú einhverja sjómenn? Já, afi minn er á sjó.
Hefur þú farið á sjó? Nei, ekki mikið.
Borðar þú fisk? Já.
Ef þú ættir skip, hvað myndi það heita? Adda Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Fótboltakona.
Fjölskylda: Sonur Eyglóar Elíasdóttir og Viðars Sigurjónssonar.
Á hvaða bát ertu? Mesta mína tíð á Þórunni Sveinsdóttur en hef undið mínu kvæði í kross. Er kominn í ferðamannabransann og er í dag skipstjóri hjá Island Adventures.
Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar?
Fer fyrst 13 ára gamall á Þórunni Sveinsdóttur, fyrstu 2 sumrin sem viðvaningur en svo sem fullgildur háseti 15 ára gamall.
Hvað heillar þig mest við sjómennskuna?
Þetta er ákveðið ævintýri að vera sjómaður, maður veit aldrei hvað næsti dagur ber í skauti sér.
Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Af mörgum frábærum mönnum ætla ég að nefna Hrútinn, Guðna Jónasar, algjör eðaldrengur og hörkutól sem kenndi manni margt.
Eftirminnilegasti túrinn?
Fyrsta veiðiferðin er alltaf minnisstæð, en fyrsti skipstjóratúrinn stendur nú samt upp úr.
Þín helsta fyrirmynd?
Maður lítur nú upp til þeirra margra (pun intended) en afi minn og nafni er klárlega ein af stjörnunum í mínu lífi.
Eitthvað að lokum?
Allur fiskur á markað og 90% veiðiskyldu á kvótann takk.



OPIÐ ALLA VIRKA DAGA TIL 02:00
FÖS OG LAU TIL 04:00
KOMDU OG KÍKTU VIÐ!
TILHAMINGJUMEÐDAGINN KÆRUSJÓMENNOGFJÖLSKYLDUR!


SJÓMENN & FJÖLSKYLDUR, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Jónína Björk Hjörleifsdóttir eða Jóný eins og flestir þekkja hana hefur verið valin bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026 og tekur við titlinum með auðmýkt, gleði og ótal hugmyndir í farteskinu. Listsköpunin hefur fylgt henni í mörg ár og orðið að mikilvægum hluta af lífi hennar, hvort sem hún vinnur með mósaík, leir, gler eða málverk. Hún segir listina veita sér ákveðna sálarró og innblásturinn sé sjaldan langt undan í Vestmannaeyjum, þar sem náttúran, fólkið og orkan í samfélaginu setji sterkan svip á verkin hennar.
Hvernig var að heyra nafnið þitt tilkynnt sem bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026? Èg var stödd à biđstofu sjùkrahùssins þegar mèr var tilkynnt ađ èg hlyti bæjarlistamanninn. Sem betur fer hafđi Esther sagt mèr ađ hùn hefđi sent àbendingu þannig ađ èg nàđi ađ halda andliti og var ansi hògvær held èg bara.
Hvernig byrjaði listsköpunin hjá þér?
Listsköpun byrjaði hjà mèr þegar èg var òfrìsk af yngsta barninu mìnu. Fađir minn var bùin ađ vera ađ glìma viđ veikindi og eitthvađ var èg eirðarlaus og fòr ađ finna mèr eitthvað til ađ hafa fyrir stafni. Eftir þađ skràđi èg mig à nàmskeiđ hjà Steinunni Einardòttur og þà var bara ekki aftur snùiđ.
Hvað gefur mósaík, keramík eða myndlist þér sem önnur tjáning gerir ekki?
Listsköpun gefur mèr einhverja sàlarrò sem èg hef hvergi fundiđ annarstaðar. En þar sem èg er ì mörgu dett èg bara inn ì vissa list hverju sinni. Kannski pöntun sem ýtir viđ mèr. Hef òtrùlega gaman af öllu hvort sem þađ er mosaik, màla eđa leir.
Af hverju hefurðu kosið að vinna í mörgum listformum frekar en að velja bara eitt?
Kannski kemur þađ fram í því ađ èg sè ì tvìburamerkinu þar sem èg dett ì hvert listformiđ à eftir öđru. Tvìburinn þyrfti helst ađ vera ì þremur vinnum þar sem hann veđur úr einu ì annađ. En èg elska þetta bara allt saman. Kannski þess vegna sem hentar mèr ađ hafa þetta val.
Hvaða áhrif hafa Vestmannaeyjar á verkin þín?
Viđ getum held èg öll veriđ sammàla ađ þađ sè dàsamleg orka ì eyjum. Og þar sem èg rek lìtiđ gallerý er èg sannarlega minnt à þađ reglulega hversu fallegur og dýrmætur stađur eyjarnar okkar eru. Og engin vandamál ađ fà innblàstur ùr þeim. Heimakletturinn og kindur eru t.d. mitt uppàhald ì glerinu en èg hef einnig gaman af andlitsmyndum þar sem þær eru àskorun.

Hvað hefur Lista- og Menningarfélag Vestmannaeyja þýtt fyrir þig?
Þar sem èg er ein af stofnendum Lista og menningarfèlagsins hefur fèlagiđ haft mikla þýđingu fyrir mig. Komin flottur hòpur ì kringum fèlagiđ og međ þeim innanborđs geta bara gòđir hlutir gerst. Viđ höfum þær òskir ađ bæjarfèlagiđ sjài hversu mikils virđi svona fèlag er bæjarfèlaginu. Viđ höfum sèđ um smiđjur fyrir ungt fòlk og komiđ ađ nàmskeiđum međ Visku og ì raun ætti svona fèlag ađ vera ì hverju bæjarfèlagi.
Hvað finnst þér mikilvægast í því að hvetja nýtt fólk, sérstaklega ungt fólk, til listsköpunar?
Viđ þurfum ađ halda vel utan um unga fòlkiđ okkar þvì ekki passa allir ì box ìþròttafèlaganna. Viđ verđum ađ vera vakandi yfir allri sköpun hvort sem þađ er tònlist, leiklist, leikmyndahönnun, kvikmyndasköpun ađ allir finni sinn flöt. Viđ erum nefnilega međ fullt af flottum krökkum sem þurfa sitt rými.
Hvað langar þig að gera á árinu sem bæjarlistamaður?
Sem bæjarlistamađur langar mig ađ gera tvennt. Mig langar ì eina innisýningu og ađra ùtilistasýningu. Ùtilistasýningin yrđi međ ađstođ barna ì Vestmannaeyjum. Er rètt ađ byrja ađ hugsa þetta þannig ađ þiđ fàiđ ađ fylgjast međ framhaldinu. Enda à èg eftir ađ spjalla viđ mann og annan.
Hvað vonarðu að fólk finni eða sjái þegar það skoðar verkin þín?
Èg vona ađ ùtilistaverkin lífi þađ lengi ađ fòlk geti sìđan bent à merkiđ og sagt þetta gerđi èg à sama aldri og þù. Kanski fjarlægur draumur enn.... Innilistin gleður vonandi lìka alltaf og erfist mann frá manni hver veit.
Hvað er framundan hjá Jóný?
Framundan er ađ hugsa um Gallerý Skúrinn ì sumar, bæjarlistasýningin, barnabörnin og fjölskyldan. Og hreinlega ađ njòta. Èg er međ fràbærar konur ì Gallerýinu svo èg næ lìka ađeins ađ anda viđ og viđ. Svo hreinlega veit èg ekki ì hvađ þetta leiðir mig. Èg er ì tveim öđrum fèlögum FMÀ og Litlu Reykjavík, þar reyni ég ađ taka þàtt ì sýningum og gòđgerđasölu.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri að lokum?
Mig langar ađ þakka fòlki fyrir ađ taka svona vel à mòti okkur Esther ì bollamàluninni og vonandi verđur meiri tilbreyting ì haust. Èg er allavegana bùin ađ sjà fullt af ungum sem öldnum listamönnum. Verđur bara gaman ađ fylgjast međ þeim.

Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknar íbúð eldri borgara í Kleifarhrauni. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Umsóknarfrestur er til 16. júní nk. Umsóknir eru m.a metnar út frá félagslegum, heilsufarslegum og fjárhagslegum forsendum.
Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Fjölskyldu og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23 (gamla Íslandsbanka) og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað. Mikilvægt er að skila inn öllum gögnum sem óskað er eftir eða nýjum gögnum hafi aðstæður breyst. Eldri umsóknir óskast staðfestar.
Frekari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu margret@ vestmannaeyjar.is. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar í þjónustuveri Fjölskyldu -og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23.
Alexandra Ósk Viktorsdóttir, 18 ára nemandi á félagsvísindabraut við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum, lítur til baka á skólaárin með mikilli hlýju. Hún segir upplifun sína af FÍV hafa verið mjög góða enda hafi skólinn verið fullur af frábæru fólki og alltaf gaman að mæta.
Alexandra er dóttir Hrafnhildar Skúladóttur og Viktors Hólm og á systkinin Viktoríu Dís og Kristófer Daða. Hún lýsir sér sem samviskusömum og jákvæðum nemanda sem hafi lagt metnað í námið og ávallt reynt að gera sitt besta.
Það sem stendur helst upp úr eftir árin í skólanum er þátttaka hennar í nemendaráðinu. Þar fékk hún tækifæri til að leggja sitt af mörkum við að efla félagslífið í skólanum, verkefni sem hún segir hafa verið einstaklega skemmtilegt.
„Það var svo gaman að fá að taka þátt í að gera félagslífið í skólanum gott,“ segir Alexandra.
Þegar hún er beðin um að nefna skemmtilegasta áfangann stendur dönskuvaláfanginn upp úr, sérstaklega þar sem hann fól í sér ferð til Kaupmannahafnar. Námið var þó ekki alltaf auðvelt og segir Alexandra að áfangar hjá Tinnu Hauks hafi stundum verið krefjandi, en bætir við að Tinna sé „algjör snillingur“.
Af kennurum og starfsfólki skólans segir Alexandra að Auðbjörg og Hlíf Helga hafi haft mest áhrif á sig. Það er greinilegt að tengslin við fólkið í skólanum skipta hana miklu máli, því þegar hún hugsar til þess sem hún á eftir að sakna mest nefnir hún vinkonurnar og daglega rútínu skólalífsins.
„Ég á eftir að sakna þess að vera með vinkonunum á hverjum degi og fá mér beyglu hjá okkar konu Hlíf,“ segir hún.
Utan skóla fer mestur tími Alexöndru í handbolta. Þar liggur líka næsta skref hennar. Hún ætlar að vera áfram í Vestmannaeyjum, spila með sínu uppáhaldsliði í handboltanum og vinna meðfram því. Hún er jafnframt að skoða hvort hún hefji fjarnám strax.

Framtíðardraumarnir tengjast fólki og umönnun, en Alexandra hefur mikinn áhuga á þroskaþjálfanámi og sér fyrir sér að starfa á því sviði í framtíðinni.
Aðspurð hvað hafi hjálpað henni mest að ná góðum árangri nefnir hún skipulag, dugnað og ekki síst fólkið í kringum sig.
„Fólkið í kringum mig hvetur mann alltaf áfram,“ segir hún.
Ráð hennar til yngri nemenda eru einföld en góð: að njóta tímans. Hún segir auðvelt að gleyma því hversu skemmtilegt þetta tímabil sé þegar mikið er að gera, en minnir á að skólaárin líði hratt.
„Bara að njóta, því þetta er svo gaman.“

Bestu árnaðaróskir og kveðjur til sjómanna og allra Vestmannaeyinga á sjómannadaginn!
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir, 19 ára nemandi á nátt úruvísindalínu við Framhaldsskólann í Vestmannaeyj um, kveður skólann með góðar minningar í farteskinu. Hún segir FÍV vera góðan skóla með góðum kennur um og skemmtilegu fólki.
Hrafnhildur er dóttir Auðbjargar Höllu Jóhannsdóttur og Hallgríms Steinssonar og á systurnar Unni og Önnu Steinunni. Hún lýsir sér sem samviskusömum nemanda sem hafi lagt metnað í námið, unnið verk efni tímanlega og reynt að skipuleggja sig vel. Það sem stendur helst upp úr eftir árin í skólanum er samveran með vinunum.
„Að vera með vinunum alla daga,“ segir Hrafnhildur um það sem hún mun muna best úr FÍV.
Skemmtilegasti áfanginn var að hennar sögn danska 2, þar sem nemendur fóru í ferð til Kaupmannahafnar. Sú ferð var eftirminnileg og gerði áfangann sérstak lega skemmtilegan.
Námið var þó ekki alltaf auðvelt. Hrafnhildur segir eðlisfræði hafa verið erfiðasta fagið, en góður stuðn ingur heima fyrir og samvinna með vinkonunum hjálpuðu henni að ná góðum árangri.
Þegar hún er spurð hvaða kennari eða starfsmaður hafi haft mest áhrif á hana nefnir hún fyrst mömmu sína með bros á vör. „Mamma mín því hún ól mig upp,“ segir hún, en bætir við að Óli Týr, Tinna og Hlíf Helga séu í uppáhaldi.

Næsta skref hjá Hrafnhildi er háskólanám í haust. Framtíðardraumurinn er skýr, en hún stefnir á að verða læknir. Utan skóla eyðir hún miklum tíma með vinum sínum og einmitt samveran með þeim er það sem hún á eftir að sakna mest úr FÍV.
Ráð hennar til yngri nemenda eru að gera sitt besta og njóta tímans í framhaldsskóla.
Að lokum vill Hrafnhildur koma þökkum á framfæri til fólksins sem hefur fylgt henni í gegnum skólaárin. „Takk fyrir samveruna kennarar og nemendur í FÍV.“















Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur
#135413 Difficulty: moderate


HELLUGERÐ AGNARS






