Skip to main content

Tígull 13. tbl 08. árg.

Page 1


HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ KJÓSA?

Bæjarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí næstkomandi og af því tilefni býður Tígur lesendum upp á sérstaka kosningaumfjöllun í blaði vikunnar. Öllum þremur framboðunum sem bjóða fram krafta sína til bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum. Sjálfstæðisflokki, Eyjalistanum og Miðflokknum.

Jafnframt viljum við minna á að þessa dagana stendur yfir íbúakosning um uppbyggingu á Nýjahrauni. Hægt er að greiða atkvæði í Ráðhúsinu alla virka daga fram til 16. maí. Við hvetjum íbúa til að kynna sér málið og nýta kosningarétt sinn. ( Ath fimmtudaginn 14. maí er frídagur )

Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00 að kvöldi sama dags.

Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir:

Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 8. apríl 2026 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra, sem eru óstaðsettir í hús og þeirra sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.

Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 8. apríl 2026 við Hátún til og með Ægisgötu, auk þeirra, sem búa í húsum er bera bæjarnöfn.

TÍGULL

DREIFING:

Dreifing fer fram á fimmtudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Í V E S T M A N N A E Y J U M

FJÖLSKYLDUDAGUR

Fimmtudaginn 14. maí

Klukkan 15:00 í Ásgarði

SÚPA OG SPJALL

Föstudaginn 15. maí

Klukkan 12:00 í Ásgarði

KOSNINGAKAFFI

Í Höllinni, laugardaginn 16. maí, kjördag klukkan 14:00-17:00

KOSNINGAVAKA

Í Akóges laugardaginn 16. maí.

Húsið opnar 21:00

OPIÐ ÖLLUM - ALLIR VELKOMNIR

FRAMTÍÐARSÝN EYJALISTANS

FYRIR VESTMANNAEYJAR

Zindri Freyr, Ágúst, Anton, Arndís, Erlingur, Eyrún, Hildur og Jessý.

Þegar gengið er til kosninga er ekki aðeins verið að kjósa um nöfn á blaði, heldur um þá sýn sem á að móta daglegt líf íbúanna næstu árin. Eyjalistinn hefur verið í meirihluta í bæjarstjórn Vestmannaeyja undanfarin átta ár. Eyjalistinn hefur fest sig í sessi sem mikilvægt afl í bæjarmálum, afl sem leggur áherslu á samtal, jöfnuð og skynsamar ákvarðanir. Í þessari grein munum við kafa ofan í það af hverju Eyjalistinn er rétti valkosturinn fyrir þá sem vilja tryggja blómlegt og réttlátt samfélag fyrir Vestmannaeyinga.

Breið samstaða og grasrótarvinna Eyjalistinn er ekki hefðbundinn stjórnmálaflokkur í þeim skilningi eða bundinn við þrönga flokkshagsmuni. Hann er framboð fólks úr samfélaginu, listi óháðra íbúa og fólks úr ólíkum áttum sem eiga

það sameiginlegt að brenna fyrir málefnum Vestmannaeyja. Þessi uppruni gefur listanum ákveðið frelsi, ákvarðanir eru teknar með hagsmuni íbúa að leiðarljósi, en ekki út frá flokkslínum. Með því að kjósa Eyjalistann er fólk að velja stjórnmálaafl sem trúir á mátt samráðs. Við erum stolt af því að ávallt eru haldnir félagsfundir fyrir hvern bæjarstjórnarfund þar sem félagsfólk fær miklar upplýsingar um málefni sem liggja fyrir. Í kjölfar kosninga var listinn einnig með opna málefnafundi þar sem öllum var boðið að taka þátt. Stefnuskrá listans var í kjölfarið búin til eftir mikið samráð við félaga og nýliða listans.

Fjölskyldan í forgrunni

Eitt helsta aðalsmerki Eyjalistans er áherslan á fjölskylduna. Í samfélagi sem vill laða að ungt

fólk og halda í þá sem fyrir eru er grunnþjónustan lykilatriði. Eyjalistinn hefur talað skýrt fyrir því að leikskólamál séu forgangsmál og með Eyjalistann í meirihluta bæjarstjórnar hefur verið bætt við um 60 leikskólaplássum á kjörtímabilinu sem er að líða. Stefna listans gerir ráð fyrir að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla með markvissum hætti. Þetta snýst ekki bara um húsnæði heldur líka um starfsfólkið, að bærinn sé eftirsóknarverður vinnustaður fyrir fagfólk í skólakerfinu. Með því að styrkja stoðir fjölskyldunnar er verið að fjárfesta í framtíðinni. Eyjalistinn vill bæta við stöðugildi fjöltyngisstjóra í leikskólana sem sinnir málörvun erlendra barna á meðan að sérkennslustjórar sinna þá hefðbundinni sérkennslu t.d. forgreiningum, félagsfærni o.s.frv. Þar leggjum við

mikla forvörn er kemur að málefnum ungra barna og undirbúum þau vel fyrir komandi grunnskólagöngu.

Samgöngumál

Enginn veit betur en Eyjamenn að samgöngur eru lífæð samfélagsins, þar sem að lífsgæði og rekstraröryggi fyrirtækja byggjast á góðum og öruggum samgöngum. Eyjalistinn hefur verið ötull talsmaður þess að ríkisvaldið standi við skuldbindingar sínar varðandi siglingar og flug. Við horfum enn lengra, baráttan fyrir bættum samgöngum snýst um að tryggja áreiðanleika. Hvort sem það er í gegnum öfluga dýpkun Landeyjahafnar, tryggari áætlun Herjólfs eða skoðun á framtíðarlausnum eins og jarðgöngum. Þá hefur listinn lagt áherslu á að vera málefnaleg en fastmælt rödd gagnvart ríkinu. Kjósandi sem velur Eyjalistann velur fulltrúa sem munu aldrei hætta að minna á að Vestmannaeyjar eru hluti af þjóðvegi eitt. Í stefnuskrá listans leggjum við mikla áherslu á að málum Vestmannaeyja verði forgangsraðað betur í samgönguáætlun.

Atvinnumál og nýsköpun

Sjávarútvegurinn er og verður grunnstoð samfélagsins en Eyjalistinn gerir sér grein fyrir að fjölbreytni er lykillinn að stöðugleika. Listinn leggur áherslu á að skapa umhverfi þar sem nýsköpun getur blómstrað, þar viljum við koma á nýsköpunarsjóð sem úthlutað yrði úr einu sinni á ári. Þetta á við um allt frá hátækni í vinnslu yfir í ferðaþjónustu og skapandi greinar. Með því að styðja við frumkvöðla og lítil fyrirtæki í bænum vill Eyjalistinn tryggja að hér séu til staðar áhugaverð störf fyrir menntað ungt fólk sem vill flytja heim. Samstarf við þekkingarsamfélagið og stuðningur við menntun í heimabyggð, eins og í gegnum námsstyrki sem „skila sér heim” eru dæmi um hvernig Eyjalistinn hugsar til langs tíma.

Umhverfi og sjálfbærni:

Náttúran okkar

Samkvæmt stefnuskrá Eyjalistans eigum við að vera leiðandi í

umhverfismálum og vernda þá náttúruperlu sem við búum í. Við leggjum áherslu á að Vestmannaeyjabær sé til fyrirmyndar, sérstaklega hvað varðar markviss orkuskipti og skilvirka sorphirðu. Í stefnu okkar er skýrt kveðið á um að við nýtum auðlindir okkar á sjálfbæran hátt, sem er jafnt umhverfisleg sem efnahagsleg skynsemi. Með því að vera í fararbroddi í grænni orku styrkjum við ímynd Eyjanna og búum í haginn fyrir komandi kynslóðir.

Menning og íþróttir

Samfélagið í Eyjum væri hljóðlátt án þess öfluga íþrótta- og menningarlífs sem hér þrífst. Eyjalistinn trúir því að stuðningur við barnastarf í íþróttum og listum sé besta forvörnin. Við viljum tryggja að öll börn hafi jöfn tækifæri til þátttöku, óháð efnahag foreldra. Því viljum við hækka frístundastyrk upp í 75.000kr á kjörtímabilinu og fjölga aðildarfélögum. Með því að fjölga aðildarfélögum og að hægt sé að nýta styrkinn á styttri námskeiðum eykst fjölbreytni þeirra sem geta nýtt sér styrkinn. Eyjalistinn stefnir einnig að því að skoða möguleikann á stækkun Einarsstofu í Safnahúsi og tryggja Lista- og menningarfélaginu húsnæði svo þeirra mikilvæga starfsemi haldist áfram trygg.

Gagnsæi og íbúalýðræði

Við teljum að íbúar eigi skýran rétt á að fylgjast með og hafa áhrif á hvernig samfélaginu er stýrt. Í stefnuskrá Eyjalistans er lögð áhersla á að auka gagnsæi, sérstaklega þegar kemur að stórum framkvæmdum á vegum bæjarins, þar eigum við að gera betur og munu gera betur. Eyjalistinn vill að verkefni eins og „Viltu hafa áhrif?“ verði áfram forgangsverkefni til að styðja við menningar-, íþrótta- og tómstundastarf sem og ný verkefni á þeim sviðum. Þegar fólk kýs Eyjalistann er það að biðja um bæjarstjórn sem hlustar. Arndís María Kjartansdóttir, oddviti listans og aðrir frambjóðendur hafa lagt áherslu á að vera sýnileg og aðgengileg. Frambjóðendur hafa farið í ótal heimsóknir í aðdraganda kosninga þar sem þeir fá

óhindrað samtal við stjórnendur stofnana og fyrirtækja.

Heilbrigðis- og öldrunarmál Vestmannaeyjar eiga að vera góður staður til að eldast á. Eyjalistinn leggur áherslu á að öldrunarþjónusta sé fjölbreytt og mæti þörfum hvers og eins, hvort sem það er með öflugri heimaþjónustu eða góðum búsetuúrræðum. Það er mikilvægt að þeir sem hafa byggt upp þetta samfélag geti notið efri áranna í öryggi í sinni heimabyggð. Sömuleiðis er baráttan fyrir öflugri heilbrigðisþjónustu á HSU í Eyjum alltaf jafn mikilvæg. Eyjalistinn leggur áherslu á að sérfræðiþjónusta verði aðgengilegri í heimabyggð enda getur reynst erfitt að sækja þjónustu á Höfuðborgarsvæðið ef veður er vont eða eins og samgöngur hafa verið undanfarnar vikur og mánuði.

Af hverju Eyjalistinn?

Að velja Eyjalistann er að setja hagsmuni fjölskyldunnar í fyrsta sæti, að berjast fyrir samgöngum, að vinna með fólkinu sem hér býr, að stuðla að sjálfbærum vexti, að vernda umhverfið okkar, að hlusta og starfa fyrir ykkur í ykkar umboði kæru íbúar. Enginn er eyland, vinnum þetta saman. Vestmannaeyjar standa frammi fyrir stórum tækifærum en líka áskorunum. Til að mæta þeim þarf fólk sem þorir að framkvæma, fólk sem á rætur í samfélaginu og fólk sem vinnur af heilindum fyrir íbúa. Eyjalistinn hefur sýnt það í verki að hann er það afl. Með því að setja x við E, ertu að kjósa sterka rödd fyrir alla Eyjamenn, ekki bara suma.

Gerum góðan bæ enn betri! Hugsaðu vel til okkar í kjörklefanum. Kjóstu Eyjalistann!

REYNSLAN SKIPTIR MIKLU MÁLI

Í kosningunum á laugardaginn velja kjósendur það fólk sem það treystir best til að fara með stjórn bæjarfélagsins næstu fjögur árin. Það skiptir máli hvaða fólk fær umboð til þeirra starfa því mörg stór hagsmunamál, sem skipta hag Vestmannaeyinga miklu, bíða úrlausnar og niðurstöðu. Ljóst er að reynsla, styrkur og öflug forysta þeirra sem leiða munu Vestmannaeyjabæ á næstu árum mun vega mjög þungt. Framboðslisti okkar sjálfstæðismanna, sem valinn var af tæplega 1200 Eyjamönnum, er skipaður öflugu og reynslumiklu fólki með fjölbreyttan bakgrunn úr atvinnulífi og samfélagi Vestmannaeyja. Saman mynda framboðslistinn ásamt bæjarstjóraefni listans, Írisi Róbertsdóttur með sína víðtæku reynslu í starfi bæjarstjóra, þann styrk sem þarf til að fylgja eftir mikilvægum hagsmunamálum Vestmannaeyinga og tryggja bænum öfluga forystu á komandi árum. Vestmannaeyjabær er sameiginlegt fyrirtæki okkar allra og það skiptir máli hvernig þessu fyrirtæki okkar er stjórnað. Að því sé stýrt af ábyrgð og festu skiptir okkur öll máli, það hefur áhrif á velsæld okkar í nútíð og framtíð.

Ljúka þarf við Landeyjahöfn Á komandi árum verður brýnt að sækja áfram fast að ríkisvaldinu um úrlausn mála sem skipta Vestmannaeyjar miklu, enda eru samgöngur við Eyjar á ábyrgð ríkisins. Eins og allir Eyjamenn, leggjum við ríka áherslu á að samgöngur á sjó og í lofti komist í mun

betra horf en verið hefur. Traustar samgöngur eru ein af grunnforsendum öflugs samfélags, sterks atvinnulífs og áframhaldandi uppbyggingar, meðal annars í ferðaþjónustu í Eyjum.

Ástandið sem varað hefur í Landeyjahöfn er algjörlega óboðlegt og grípa þarf til aðgerða til að koma í veg fyrir að Eyjamönnum verði boðið upp á slíkt ófremdarástand aftur og aftur. Við bindum vonir við að niðurstöður rannsókna, sem unnar hafa verið undanfarin ár á vegum dönsku straumfræðistofnunarinnar DHI, skili tillögum um varanlegar úrbætur á Landeyjahöfn þannig að höfnin fari að virka eins og ætlað var. Vegagerðin mun kynna tillögurnar á íbúafundi í Vestmannaeyjum 2. júní næstkomandi. Við munum fylgja því fast eftir, við ríkið, að ráðist verði án tafar í þær framkvæmdir sem þar verða lagðar til.

Almannavarnir eru á ábyrgð ríkisins

Fjármögnun nýrrar almannavarnavatnsleiðslu, NSL4, er eitt allra stærsta hagsmunamál okkar Eyjamanna. Unnið hefur verið markvisst að framgangi málsins og erindi hafa verið send til innviða-, fjármála- og dómsmálaráðuneytisins vegna fjármögnunar á lögninni. Samtal við ríkið er í gangi en niðurstaða hefur ekki enn fengist í málið.

Það mun því mæða mikið á nýrri bæjarstjórn að sigla því máli í höfn. Það er sjálfsagt sanngirnismál að ríkið beri fullan kostnað af lagningu þessarar almannavarnavatnsleiðslu. Við leggjum þunga áherslu á að

hér sé um að ræða almannavarnamál og ríkið eigi að bera kostnað af því líkt og öðrum almannavörnum í landinu.

Við munum berjast fyrir hagsmunum Eyjamanna

Við ætlum að skapa aðstæður til áframhaldandi vaxtar og uppbyggingar í Vestmannaeyjum.

Stórskipakantur við Eiðið er ein mikilvægasta forsenda fyrir því að atvinnulífið geti vaxið og dafnað á komandi árum. Í Vestmannaeyjum er mikið af öflugu fólki og framsýnum fyrirtækjum sem vilja byggja upp samfélagið enn frekar. Hlutverk sveitarfélagsins er að skapa þeim skýran og traustan ramma til vaxtar og þróunar þannig að verðmætasköpun, atvinnuuppbygging og aukin lífsgæði skili sér til samfélagsins alls.

Samstaða og samvinna skilar árangri

Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram ítarlega stefnuskrá þar sem helstu stefnumál framboðsins eru dregin fram. Í stefnuskránni er lögð áhersla á sterka hagsmunagæslu, ábyrgan rekstur, öfluga þjónustu við alla bæjarbúa, unga sem aldna, með fjölskylduna í forgrunni, framúrskarandi skóla, fjölbreytt íþrótta-, tómstunda- og menningarstarf og öfluga menntun svo eitthvað sé nefnt.

Kæru Eyjamenn, við erum Sterkari saman. Við treystum á þinn stuðning!

Setjum X við D!

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Eftirtalin atriði eru hluti af þeim fjölmörgu áhersluatriðum sem fram koma í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins:

• Við ætlum að þrýsta á ríkið um varanlega lausn fyrir Landeyjahöfn.

• Við ætlum að setja börn í fyrsta sæti.

• Við ætlum að hækka frístundastyrk í 80.000 krónur á kjörtímabilinu.

• Við ætlum að bæta þjónustu við fatlað fólk.

• Við ætlum að þrýsta á byggingu nýs hjúkrunarheimilis.

• Við ætlum að hefja byggingu nýs leikskóla.

• Við ætlum að kanna byggingu sorporkustöðvar.

• Við ætlum að lækka álagningarhlutfall á fasteignaskatt.

• Við ætlum að

mála sem bíða okkar á komandi kjörtímabili,

Byggjum íþróttasvæðið upp af framtíðarsýn

Tími til að horfa á heildarmyndina Íþróttaaðstaðan í Vestmannaeyjum þarf skýra framtíðarsýn. Það hefur lítið verið gert í kjarnanum á íþróttasvæðinu frá árinu 2000 og nú er staðan orðin þannig að það þarf að taka almennilega til. Við getum ekki haldið áfram að bregðast við vandamálum eftir á, þegar þrýstingurinn er orðinn mikill og lausnirnar verða hálfgerðar neyðarlausnir. Íþróttastarf í Eyjum er eitt mikilvægasta forvarnarstarf, lýðheilsustarf og félagsstarf sem við eigum. Þar verða til vináttubönd, börn læra aga og samvinnu og margir finna sinn stað í samfélaginu. Þess vegna eiga stórar ákvarðanir um íþróttamannvirki að vera teknar út frá heildarmyndinni, ekki sem stakar framkvæmdir sem leysa aðeins hluta vandans.

Þeir sem nota aðstöðuna eiga að fá að móta hana

Við viljum móta skýra framtíðarsýn fyrir íþróttasvæðið í heild. Sú vinna á að fara fram með íþróttafélögum, þjálfurum, starfsfólki, iðkendum og þeim sem nota aðstöðuna daglega. Það á ekki að hanna framtíðina inni á skrifstofu og kynna svo niðurstöðuna þegar ákvörðunin er nánast tekin. Þau sem þekkja aðstöðuna best eiga að hafa raunverulega aðkomu að því hvað þarf að gera, hvað vantar mest og í hvaða röð á að ráðast í verkefnin.

Fimleikarnir þurfa betri aðstöðu Það þarf sérstaklega að horfa til fimleikanna. Aðstaðan þar er ekki boðleg miðað við umfang starfsins. Búnaðurinn liggur undir skemmdum, aðgengi að honum er of auðvelt og greinin hefur vaxið út úr þeirri aðstöðu sem hún hefur í dag. Fimleikar eru ein besta grunníþrótt sem börn geta stundað. Þar læra þau líkamsstjórn, styrk, liðleika, jafnvægi og aga sem nýtist þeim áfram í nánast hvaða íþrótt sem þau velja síðar. Góður fimleikasalur væri því ekki bara fjárfesting í einni deild, heldur í

íþróttastarfi barna í Vestmannaeyjum almennt.

Stelpur detta of snemma út úr

íþróttum

Við þurfum líka að horfa hreint á þátttöku stelpna í íþróttum. Við vitum að stelpur detta oft fyrr út úr íþróttum en strákar, sérstaklega þegar þær eldast. Fimleikarnir eru ein af þeim greinum þar sem margar stelpur finna sig. Ef við viljum halda fleiri stelpum lengur inni í íþróttum þarf aðstaðan að sýna að þeirra grein skipti máli. Það er ekki nóg að tala um jafnrétti í íþróttum ef aðstaðan segir annað.

Nýtingin á að vera betri

Með nýjum fimleikasal myndi líka losna um rými fyrir aðrar greinar. Það myndi hjálpa tímatöflunni, bæta æfingatíma yngstu barnanna og skapa betri nýtingu á núverandi rýmum. Í dag eru börn of oft með æfingar of seint á daginn vegna þess að aðstaðan er sprungin. Það er ekki eðlilegt. Það vantar líka geymslur, betri klefa og skýrari hugsun í nýtingu húsnæðis. Þetta þarf að skoða saman, ekki sem sundurlaus verkefni.

Íþróttasvæðið á að vera ein heild

Við viljum horfa á íþróttasvæð-

ið sem eina heild. Það á að reyna að koma sem flestum íþróttum á sama svæði, bæði til að einfalda líf fjölskyldna og styrkja félagslega þáttinn. Mörg börn æfa fleiri en eina grein og þá skiptir máli að þau þurfi ekki alltaf að flakka á milli staða.

Slíkt svæði myndi líka auka líkurnar á því að börn og fullorðnir prófi fleiri íþróttir.

Í framtíðarsýninni þarf líka að gera pláss fyrir fleiri greinar en þær stærstu. Píla, tafl, körfubolti, padel og aðrar greinar eiga líka að eiga sinn stað. Það þarf jafnframt að horfa til aðstöðu sem styður við starfið í kringum íþróttirnar, eins og fundaraðstöðu, geymslur og svæði þar sem börn geta beðið eftir æfingum, lært eða fengið sér að borða.

Við eigum að byggja betur

Við þurfum einnig að gera meiri kröfur til þess hvernig við byggjum. Mannvirki sem eru reist fyrir opinbert fé eiga að hafa skýrt notagildi, vera vel hönnuð og sóma sér í umhverfinu. Við eigum að byggja skynsamlega, hagkvæmt og fallega. Við eigum ekki að sætta okkur við

kaldar og óspennandi lausnir sem leysa eitt vandamál í nokkur ár og verða síðan sjálfar vandamál.

Það þarf að skoða framkvæmdina aftur

Það þarf að skoða hvort hægt sé að stöðva eða endurmeta framkvæmdina sem samþykkt var á síðasta bæjarstjórnarfundi. Við erum ekki á móti lagfæringum. Við erum að segja að það þurfi að laga hlutina rétt.

Spurningin er hvort peningarnir nýtist betur ef farið er fyrst í lausn sem tekur á fleiri vandamálum í einu, eins og fimleikasal, betri geymslum og betri nýtingu á núverandi rýmum.

Ef ekki er hægt að stöðva framkvæmdina þarf að skoða hvort hægt sé að breyta henni þannig að hún nýtist betur en upphaflega var lagt upp með. Upphæðin á þessum klefum þarf líka að rýna betur í.

Okkar afstaða er skýr

Við viljum ekki fleiri skyndilausnir og við viljum ekki framkvæmdir án heildarsýnar. Við viljum byggja upp íþróttasvæðið af metnaði, með fólkinu sem notar það og fyrir framtíðina. Fyrsta skrefið á að vera skýr framtíðarsýn og í þeirri framtíðarsýn á almennilegur fimleikasalur að vera í forgangi.

Sækjum störfin!

Atvinnulíf í Vestmannaeyjum hefur lengi byggst á öflugum stoðum sjávarútvegs og frumkvæði heimamanna. Saga svæðisins sýnir að einkaframtak hefur verið lykilafl í uppbyggingu samfélagsins, þar sem hugvit, kjarkur og framtakssemi hafa skapað verðmæti og störf.

Þrátt fyrir styrkleika einkageirans sýna tölur að opinber störf eru hlutfallslega færri í Vestmannaeyjum en víða annars staðar. Á landsvísu eru um 25–30% starfa í opinbera geiranum en í Vestmannaeyjum er þetta hlutfall hins vegar talið vera nær 15–20%. Þetta getur haft áhrif á stöðugleika þar sem einkageirinn er háður ytri þáttum eins og sveiflum á mörkuðum og breytingum í rekstrarumhverfi sjávarútvegs.

Sérfræðistörf eru einnig færri en æskilegt er. Gögn benda til þess að hlutfall háskólamenntaðra íbúa í Vestmannaeyjum sé um 25% á meðan það er yfir 40% á höfuðborgarsvæðinu. Fjölgun opinberra sérfræðistarfa gæti því haft bein áhrif á búsetuákvarðanir ungs fólks og stuðlað að auknum stöðugleika til lengri tíma.

Sameiningar opinberra stofnana hafa þegar haft áhrif á dreifingu starfa. Til dæmis fækkaði sýslumannsembættum úr 24 í 9 árið 2015 með það að markmiði að auka hagkvæmni og um næstu áramót verður þeim fækkað í eitt. Slíkar breytingar geta leitt til

samþjöppunar starfa en einnig skapað tækifæri fyrir svæði sem berjast markvisst fyrir því að fá til sín verkefni. Vestmannaeyjar þurfa að vera virkur þátttakandi í þeirri samkeppni.

Byggðaáætlun stjórnvalda leggur áherslu á jafna dreifingu starfa og þjónustu. Í henni hefur verið sett fram markmið um að fjölga opinberum störfum utan höfuðborgarsvæðisins. Þessi stefna styður beint við kröfur okkar um að hlutfall opinberra starfa verði ekki lægra en gengur og gerist annars staðar á landinu.

Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands starfar um 30–40% vinnuafls í Vestmannaeyjum beint eða óbeint við sjávarútveg sem er mun hærra hlutfall en landsmeðaltal sem er nær 8–10%. Þetta undirstrikar hversu mikilvægt einkaframtakið hefur verið í uppbyggingu samfélagsins. Fyrirtæki á borð við Laxey er dæmi um hvernig nýsköpun og fjárfesting geta styrkt atvinnulífið, aukið fjölbreytni og skapað ný tækifæri til framtíðar. Mikilvægt er að halda áfram að greiða leið einkaframtaksins en jafnframt tryggja að það sé gert á jafnréttisgrundvelli.

Við erum lánsöm að einkageirinn sé sá burðarás sem hann er í okkar samfélagi en það er pólitískt verkefni að auka fjölbreytni í atvinnulífi Vestmannaeyja. Sérstaklega er mikilvægt að fjölga opinberum störfum, ekki síst sérfræðistörfum sem krefjast menntunar og

sérþekkingar. Slík störf stuðla að auknum stöðugleika, draga úr sveiflum í atvinnu og gera samfélagið aðlaðandi fyrir ungt og vel menntað fólk sem vill setjast hér að til lengri tíma. Í dag er hlutfall opinberra starfa í Vestmannaeyjum lægra en víða annars staðar á landinu sem er staða sem ekki er hægt að sætta sig við til lengdar. Sameiningar opinberra stofnana, svo sem sýslumannsembætta, hafa í för með sér breytingar sem geta skapað ný tækifæri ef rétt er haldið á spöðunum. Mikilvægt er að Vestmannaeyjar taki virkan þátt í þeirri þróun og berjist fyrir því að fá til sín verkefni og störf sem falla til við slíkar breytingar.

Það krefst samstillts átaks sveitarfélags, atvinnulífs og íbúa að tryggja að rödd eyjanna heyrist og að hagsmunir þeirra séu virtir. Byggðaáætlun stjórnvalda gegnir einnig lykilhlutverki í þessu samhengi. Vestmannaeyjar hafa alla burði til að vera öflugra og fjölbreyttara atvinnusvæði. Það gerist þó ekki af sjálfu sér og það er undir okkur komið að sækja störf og vinna að því að þau flytjist til Eyja.

Með því að styðja áfram við kraft einkaframtaksins og vinna að fjölgun opinberra starfa má efla sterkt og stöðugt samfélag í Vestmannaeyjum þar sem tækifærin halda áfram að verða til.

Sæunn Magnúsdóttir

Höfundur skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Vestmannaeyjum

Sælkeri vikunnar: UNA ÞORVALDSDÓTTIR

Besta kjúklinga/skólastjóra súpan

Hráefni

3 msk Filippo Berio ólífuolía

1 poki Rose Poultry kjúklingalæri

1 tsk karrýduft

4 stk hvítlauksrif

1 bolli blaðlaukur, niðurskorinn

1 stk græn paprika, niðurskorin

1 stk rauð paprika, niðurskorin

1 l ítill haus blómkál, niðurskorinn

1 l ítill haus spergilkál, niðurskorinn

1 flaska Heinz chilisósa

1 ½ l vatn

2 msk Oscar kjúklingakraftur

400 g Philadelphia sweet chili rjómaostur (2 stk)

2 ½ dl rjómi

Salt og pipar

Aðferð:

Hitið olíuna í potti. Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið upp úr olíunni.

Kryddið með salti, pipar og karrýdufti.

Setjið þá grænmetið út í ásamt vatninu.

Bætið Heinz chilisósu, sweet chili rjómaostinum og rjóma saman við.

Látið malla í 15-25 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.

Svo er alltaf hægt að betrum bæta með góðum kryddum en ég róta oft í krydd skápnum og bæti einhverju hér og þar út í súpuna eins og t.d heitu pizza kryddi og fleira.

Ég geri líka nánast alltaf guacamole með en ætla ekki að henda uppskrift af því með því ég geri alltaf bara eitthvað haha en það eru fullt af flottum guacamole uppskriftum á netinu.

Svo má líka alveg sleppa kjúklingum í súpuna hún er líka jafn góð án hans.

Berið svo fram með baguette brauði eða snakki. Því lengur sem súpan mallar því betri verður hún svo ég mæli með að gera hana extra snemma.

Verði ykkur að góðu!

Ætla að skora á mömmu mína næst því hún er besti kokkurinn out there!

Útimálning fyrir íslenskt veðurfar

veðurfar STEINVARI

ug varnarlína gegn íslensku veðri, afrakstur þrotlausra rannsókna áratugi. Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu.

GERÐU FÍNT FYRIR SUMARIÐ!

Steinvari – íslensk varnarlína í útimálningu

Steinvari er ö ug varnarlína gegn íslensku veðri, afrakstur þrotlausra rannsókna og þróunar í áratugi. Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu.

Í MEISTARA HÖNDUM

Steinvari – íslensk varnarlína í útimálningu

afsláttur af Kjörvara & Steinvara %

það segir sig sjálft -

afsláttur

Steinvari er ö ug varnarlína gegn íslensku veðri, afrakstur þrotlausra rannsókna og þróunar í áratugi. Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu.

GERÐU FÍNT FYRIR SUMARIÐ!

Steinvari – íslensk varnarlína í útimálningu

Viðarvörn fyrir íslenskar aðstæðu

Notaðu sumarið verja viðinn! ðarvörn r íslenskar aðstæður

Notaðu sumarið til að verja viðinn!

Þú færð trampólínið fyrir sumarið hjá okkur!

Viðarvörn fyrir íslenskar aðstæ

Notaðu sumarið

til að verja viðinn!

til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss. hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.

Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss.

Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður

Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss.

Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.

Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður

Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.

Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður

Strandvegur 30 / 481 1475 /

Hressingarganga í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00

Púttsalurinn pútt í kviku virka daga kl. 13:00 - 14:00

OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11:30 VERIÐ VELKOMIN Í

ALLT ÁRIÐ

Er maí þinn skoðunarmánuður? Frumherji í Eyjum Apríl 18. - 21. maí

Tímapantanir í síma 570 9090 Faxastígur 38 (Lokað í hádeginu)

Hvítur á leik og vinnur!

Hvítur á leik og vinnur!

ORÐARUGL

FRAMBOÐ KJÖRSEÐILL

ATKVÆÐI

MEIRIHLUTI MINNIHLUTI BÆJARSTJÓRN

ODDVITI KOSNING KJÖRDEILD

MÁLEFNI ÍBÚAR LÝÐRÆÐI

Er potturinn bilaður?

RD lagnir eru að fá sérfræðinga frá

fyrirtækinu Pottagaurinn til Eyja!

Ef þú vilt að við kíkjum á þinn pott vertu þá í sambandi við okkur í síma: 774 5959.

RD pípulagnir og Verktakar

Við kíkjum á hann fyrir þig! - allar almennar pípulagnir

rdlagnir@rdlagnir.is / rmlagnir.is / 774 5959

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 13. tbl 08. árg. by Leturstofan - Issuu